Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2016

Líf eftir dauðann (staðfest)

8 umferð   salurinn

Svo öldum skiptir hafa vísindamenn leitað svara við ráðgátunni hvort líf sé eftir dauðann, með nokkuð misjöfnum árangri. Þeim áhorfendum sem lögðu leið sína í skáksal Tónlistarskóla Seltjarnarness í dag til að fylgjast með 8.umferð Skákþings Íslands varð nokkuð hverft við er svarið við þessari mögnuðu lífsgátu fékkst óvænt staðfest. Einn sigursælasti skákmaður Íslands fyrr og síðar, Jóhann Hjartarson, leysti gátuna eftir nokkra umhugsun og skákaði þar vísindamönnum um gjörvallan heim.

Jóhann Hjartarson stýrði hvítu mönnunum gegn Einari Hjalta Jenssyni í mjög þýðingarmikilli skák. Jóhann þurfti sigur til að styrkja stöðu sína á toppnum, en Einar Hjalti gat með sigri blandað sér í toppbaráttuna.

8 umferð

Hrókar Jóhanns villtust eilítið af leið í óbyggðum miðtaflsins og átti Jóhann í basli með að smala þeim aftur til byggða. Einar Hjalti gekk á lagið og byggði upp vinningsstöðu. Smám saman herti Einar Hjalti takið á stórmeistaranum og þótti áhorfendum næsta víst að dánarvottorðið yrði undirritað innan fárra leikja. Áhorfendur horfðu samúðarfullum augum á stórmeistarann hvar hann sat í stól sínum, þungur á brún, og bjó sig undir að draga andann í síðasta sinn.

Einar Hjalti lék sínum 51.leik og virtist Jóhann þá ætla að lina þjáningar sínar og stöðva klukkuna. Af einhverri óútskýrðri ástæðu snérist honum hugur á síðustu stundu og ákvað hann þess í stað að leika einum leik til; 52.Hc5. Stórmeistarinn lék hróknum í opinn dauðann. Áhorfendur litu hver á annan og hristu höfuð sín, enda leikurinn svo sannarlega ekki til þess fallinn að hafa verkjastillandi áhrif á stórmeistarann. Einar Hjalti þakkaði pent fyrir sig og drap hrókinn. Skyndilega lyftust augabrúnir stórmeistarans, hann hallaði undir flatt og starði á borðið í nokkrar sekúndur. Því næst greip hann um hinn hrókinn og fórnaði honum líka; 53.Hxg6! Hrókarnir sem snemma í miðtaflinu ráfuðu stefnulaust um kóngsvænginn höfðu loks fundið tilgang með tilvist sinni.

Þegar þarna var komið við sögu virtist Jóhann hafa bjargað töpuðu tafli í jafntefli. Yfirvofandi þráskákin varð ekki umflúin. Eða hvað? Einar Hjalti var ekki á þeim buxunum að ætla að sleppa stórmeistaranum úr snörunni og gekk með kóng sinn úr þráskákinni í þeirri von að hann gæti dregið björg í bú með frelsingja sínum á c-línunni. En þar fór kóngur Einars Hjalta úr öskunni í eldinn. Jóhann stillti drottningu sinni upp fyrir framan frelsingjann og sleppti lausum sínum eigin frelsingjum á kóngsvæng. Stórmeistarinn, sem stuttu áður hafði hangið í snörunni án sjáanlegs lífsmarks, hafði ekki aðeins bjargað töpuðu tafli í jafntefli, heldur hafði nú snúið jöfnu tafli yfir í gjörunnið tafl. Stuttu síðar sá Einar Hjalti sína sæng upp reidda og gaf taflið.

Eftir þessa lygilegu atburðarrás er gamla brýnið, Jóhann Hjartarson, einn efstur í einhverju mest spennandi Skákþingi Íslands í manna minnum.

6 umerð turnarnir tveir

 

Úrslit 8.umferðar:

Rtg NameResult NameRtg
2410IMThorfinnsson Bjorn1 - 0 Ingvason Johann2142
2280FMGislason Gudmundur½ - ½ Johannsson Orn Leo2226
2371FMKjartansson David1 - 0IMKjartansson Gudmundur2457
2547GMHjartarson Johann1 - 0IMJensson Einar Hjalti2370
2426IMThorfinnsson Bragi½ - ½GMGretarsson Hjorvar Steinn2580
2454IMGunnarsson Jon Viktor½ - ½GMSteingrimsson Hedinn2574

 

Staðan eftir 8.umferð:

Rk. NameFEDRtgPts.RpKrtg+/-
1GMHjartarson JohannISL25476,02626108,4
2IMGunnarsson Jon ViktorISL24545,52513107,0
3GMSteingrimsson HedinnISL25745,5250410-4,8
4IMThorfinnsson BragiISL24265,525611014,7
5FMGislason GudmundurISL22804,524972044,4
6IMThorfinnsson BjornISL24104,52417101,5
7IMJensson Einar HjaltiISL23704,02377201,6
8FMKjartansson DavidISL23713,5236120-3,0
9IMKjartansson GudmundurISL24573,0228210-18,6
10 Johannsson Orn LeoISL22262,52267205,0
11GMGretarsson Hjorvar SteinnISL25802,5224810-28,6
12 Ingvason JohannISL21421,0211520-7,2

 

9.umferð hefst á fimmtudag kl.15:

Rtg NameResult NameRtg
2574GMSteingrimsson Hedinn IMThorfinnsson Bjorn2410
2580GMGretarsson Hjorvar Steinn IMGunnarsson Jon Viktor2454
2370IMJensson Einar Hjalti IMThorfinnsson Bragi2426
2457IMKjartansson Gudmundur GMHjartarson Johann2547
2226 Johannsson Orn Leo FMKjartansson David2371
2142 Ingvason Johann FMGislason Gudmundur2280

 

 

 


Sumarnámskeið Taflfélags Reykjavíkur

lau-aef-1


Taflfélag Reykjavíkur býður upp á átta skáknámskeið í sumar fyrir börn fædd árin 2003 – 2008. Námskeiðin verða haldin í húsakynnum félagsins að Faxafeni 12 (gengið inn að norðanverðu).

 

Námskeið 1: 13.júní – 16.júní, kl. 10:00 – 12:30.

Námskeið 2: 13.júní – 16.júní, kl. 13:30 – 16:00.

Námskeið 3: 20.júní – 24.júní, kl. 10:00 – 12:30.

Námskeið 4: 20.júní – 24.júní, kl. 13:30 – 16:00.

Námskeið 5: 27.júní – 1.júlí, kl. 10:00 – 12:30.

Námskeið 6: 27.júní – 1.júlí, kl. 13:30 – 16:00.

Námskeið 7: 4.júlí – 8.júlí, kl. 10:00 – 12:30.

Námskeið 8: 4.júlí – 8.júlí, kl. 13:30 – 16:00.

 

Þátttakendur velja annaðhvort námskeiðið fyrir hádegi eða eftir hádegi. Ætlast er til þess að þátttakendur kunni mannganginn að mestu leyti.

Kennarar á námskeiðunum eru alþjóðlegu meistararnir Bragi Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson. Þeir Bragi og Jón Viktor eru á meðal fremstu skákmanna landsins og voru meðal annars í sigurliði Íslands á Ólympíumótinu í skák (u16) árið 1995.

Gjald fyrir hvert námskeið er 7.000kr, nema fyrir námskeið 1 og 2 (4 dagar) en þá er gjaldið 5.600kr. Taflfélag Reykjavíkur áskilur sér rétt til þess að fella niður námskeið sé þátttaka ekki næg.

Skráning fer fram hér.

Nánari upplýsingar veitir Bragi Þorfinnsson í síma 867 2627.


Hátt spennustig í Tónlistarskóla Seltjarnarness

Áhorfendur fylgjast með skákunum í 7 umferð á tjaldi

Andrúmsloftið í Tónlistarskóla Seltjarnarness var þrungið spennu í gær er 7.umferð Skákþings Íslands var tefld. Hart var barist, bæði á toppi og botni, og óvænt úrslit litu dagsins ljós líkt og í flestum umferðum Skákþingsins til þessa.

Mikil eftirvænting hafði myndast fyrir viðureign Héðins Steingrímssonar og Braga Þorfinnssonar, en þeir voru efstir í mótinu fyrir skák dagsins. Skákin var spennandi allt fram að síðasta andartaki er kóngarnir tveir stóðu einir eftir á borðinu. Jafnteflið tryggði þeim áframhaldandi stöðu á toppnum.

Héðinn og Bragi

Jóhann Hjartarson lagði Hjörvar Stein Grétarsson að velli í hörkuskák og þar með náði Jóhann þeim Héðni og Braga að vinningum í toppsæti mótsins. Sama leik lék Jón Viktor Gunnarsson sem í dag vann Björn Þorfinnsson. Þeir Héðinn, Bragi, Jóhann og Jón Viktor hafa allir 5 vinninga að loknum 7 skákum. Jón Viktor og Héðinn mætast í næstu umferð í sannkölluðum toppslag.

Guðmundur Gíslason hélt áfram stórbrotinni frammistöðu og skrifaði nýjan kafla í ævintýrasögu sína. Hann vann Guðmund Kjartansson með svörtu mönnunum og hefur nú unnið fjórar skákir í röð; tvær gegn stórmeisturum og tvær gegn alþjóðlegum meisturum. Guðmundur er nú aðeins einum vinningi á eftir efstu mönnum.

Einar Hjalti Jensson vann Davíð Kjartansson og lyfti sér með því upp að hlið Guðmundar Gíslasonar með 4 vinninga. Einar Hjalti á eftir að tefla við alla fjóra efstu menn mótsins og gæti því orðið örlagavaldur á lokaspretti baráttunnar um Íslandsmeistaratitilinn.

Margir fylgdust spenntir með feðgaslagnum þar sem Örn Leó Jóhannsson hafði hvítt gegn föður sínum, Jóhanni Ingvasyni. Eftir mikla baráttu lék Örn Leó illa af sér í 29.leik og varð að játa sig sigraðan skömmu síðar. Þetta var fyrsta sigurskák Jóhanns í mótinu.

Björn Þorfinnsson stingur höfðinu í bolinn

 

Úrslit 7.umferðar:

Rtg NameResult NameRtg
2454IMGunnarsson Jon Viktor1 - 0IMThorfinnsson Bjorn2410
2574GMSteingrimsson Hedinn½ - ½IMThorfinnsson Bragi2426
2580GMGretarsson Hjorvar Steinn0 - 1GMHjartarson Johann2547
2370IMJensson Einar Hjalti1 - 0FMKjartansson David2371
2457IMKjartansson Gudmundur0 - 1FMGislason Gudmundur2280
2226 Johannsson Orn Leo0 - 1 Ingvason Johann2142

 

Staðan eftir 7.umferð:

Rk. NameFEDRtgPts.RpKrtg+/-
1IMGunnarsson Jon ViktorISL24545,02501105,4
2GMSteingrimsson HedinnISL25745,0250810-3,2
3GMHjartarson JohannISL25475,02600105,7
4IMThorfinnsson BragiISL24265,025551012,6
5FMGislason GudmundurISL22804,025372046,0
6IMJensson Einar HjaltiISL23704,02402207,0
7IMThorfinnsson BjornISL24103,5240710-0,2
8IMKjartansson GudmundurISL24573,0231910-12,4
9FMKjartansson DavidISL23712,5227120-15,4
10 Johannsson Orn LeoISL22262,02269203,4
11GMGretarsson Hjorvar SteinnISL25802,0221210-26,5
12 Ingvason JohannISL21421,0213220-3,8

 

 

8.umferð er tefld í dag og hefst kl.15:

Rtg NameResult NameRtg
2410IMThorfinnsson Bjorn  Ingvason Johann2142
2280FMGislason Gudmundur  Johannsson Orn Leo2226
2371FMKjartansson David IMKjartansson Gudmundur2457
2547GMHjartarson Johann IMJensson Einar Hjalti2370
2426IMThorfinnsson Bragi GMGretarsson Hjorvar Steinn2580
2454IMGunnarsson Jon Viktor GMSteingrimsson Hedinn2574

 

 

 

 


Góð byrjun íslenskra keppenda í Sardiníu – alþjóðlegur meistari lagður – þrír í beinni í dag

P1040344Íslensku keppendurnir byrja flestir prýðilega á Porto Mannu-skákmótinu sem nú er í gangi á ítölskunni eyjunni Sardiníu. Sex íslenskir taka þátt auk þess sem yfirdómarinn er Ingibjörg Edda Birgisdóttir og er nú kölluð í daglegu tali – Inga yfir.  Svo fylgir með aukafólk svo íslenska sendinefndin er eitthvað á annan tuginn.

Vel fer um mannskapinn enda úrvalsastæður eru á skákstað. Maturinn er stórgóður en gisting með fullu fæði kostar um €63 eða tæplega 9.000. Búið er í húsum. Staðurinn er einnig úrvalsgóður fyrir fjölskyldufólk svo óhætt er að mæla með þessu móti fyrir þá sem vilja tefla og jafnvel að taka fjölskylduna með. En um mótið sjálft.  Fimm umferðum af níu er nú lokið.

P1040369

Stefán Bergsson (1974) er efstur Íslendinganna með 3½ vinning, Gunnar Björnsson (2110), Baldur Teódór Petersson (2019) og Snorri Þór Sigurðsson (1953) hafa 3 vinninga, Þorsteinn Magnússon (1338) hefur 2 vinninga og Heimir Páll Ragnarsson (1575) hefur 1½ vinning.

P1040381

Í gær var tvöfaldi dagurinn. Þá tefldi undirritaður eina allra mestu spennandi skák á ferlinum. Andstæðingurinn var ungur þýskur alþjóðlegur meistari, Jonathan Carlstedt (2466). Ég hafði nýlega setið á útitaflinu á Íslandi ásamt Stefáni, Birni Ívar og Agnari Tómas Möller. Þar fékk fimm mínútna fyrirlestur um hvernig ætti að tefla á móti Phildor-vörninni sem Agnar hafði beitt gegn mér. Ég notaði það setup og fékk afbragðstöðu úr byrjuninni og var Birni Ívari ákaflega þakklátur.

Sá þýski hleypti upp stöðunni með því að gefa 2 menn fyrir hrók og upp kom gríðarlega spennandi skák sem stal allri athygli nærstadda. Ég taldi mig vera með betra og tefldi til vinnings og ég hafði það á tilfinningunni að það gerði andstæðingurinn minn einnig. Ætlaði ekki að sætta sig við jafntefli við stigalágan andstæðing  Að lokum leystist upp staðan og upp kom endatafl með léttum köflum þar sem ég var peði yfir sem mér tókst að svíða í 96 leikjum!

Ótrúlega sætur sigur. Skákin hafði hins vegar tekið um 5½ klukkustund og minni en klukkutími í næstu skák. Búið var að loka matsölustaðnum og ekkert annað í boði en skófla í sig pizzusneiðum.  Í seinni skákinni tefldi ég við ítalska alþjóðlega meistarann Luca Moroni sem fórnaði á manni í byrjun skákar án þess að hugsa og átti ég aldrei nokkurn séns.  

Í dag verðum við þrír í beinni.  Stefán teflir við gríska alþjóðlega meistarann Georgios Souleidis (2419), ég tefli við rússneska stórmeistarann Sergei Beshukov (2372), sem var skella í sig staupum í gær og verður vonandi kolryðgaður, og Baldur við þýsku skákkonuna Zoya Schleining (2364) sem er stórmeistari kvenna.

Umferðin hefst kl. 13 og því um að ræða fína upphitun fyrir Íslandsmótið sem hefst kl. 15.


Subway í Mjódd (Dagur Ragnarsson) sigraði á Mjóddarmóti Hugins

IMG_2836Dagur Ragnarsson sem tefldi fyrir Subway í Mjódd sigraði með 6,5v af sjö mögulegum á Mjóddarmótinu sem fram fór laugardaginn 4. júní sl. í göngugötunni í Mjódd Annar var Gauti Páll Jónsson með 6v sem tefldi fyrir Gámaþjónustuna.Dagur og Gauti Páll gerðu jafntefli í 4 umferð. Úrslitin réðust svo í 6. og næst síðustu umferð þegar Dagur vann Þorvarð F. Ólafsson, ÍTR á meðan Gauti Páll gerði jafntefli við Tómas Björnsson, Nettó í Mjódd. Dagur sigldi svo sigrinum í höfn í lokaumferðinni með því að vinna hinn efnilega Stephan Briem, Valitor sem stóð sig mjög vel á mótinu. Það voru þrír skákmenn jafnir í 3. – 5. sæti með 5v en það voru Þorvarður F. Ólafsson, ÍTR, Helgi Brynjarsson, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Daði Ómarsson, Lyfjaval í Mjódd.

32 skákmaður tók þátt sem aðeins meira en í fyrra og fer að nálgast meðal þátttöku, en þátttakan er samt töluvert minni en fyrst eftir hruni. Mótið var ágætlega skipað þótt flestir sigurvegar síðustu ára væru vant við látnir vegna þátttöku á Skákþingi Íslands, sem fram fer um þessar mundir á Seltjarnarnesi. Af þeim sem tóku þátt hafði aðeins Daði Ómarsson unnið mótið áður, þannig að við fengum nýjan sigurvegara að þessu sinni. Mótshaldið tókst vel og komu engin ágreiningsefni upp og í þetta sinn tókst að taka úr umferð fyrir mótið þær klukkur sem eiga það til að dettta út í hraðskákinni. Veðurspáin fyrir helgina gerði ráð fyrir sól og blíðu og bestu helgi sumarsins til þessa, sem er ekki alveg besta veðrið fyrir mótshald í göngugötunni í Mjódd. Spáin gekk ekki alveg eftir því það var skýjað fram eftir degi á laugardaginn, þótt veðrið væri annars mjög gott. Það hefði því verið hægt að nota skjávarpa en hann reyndist ekki falur í þetta sinn svo eins og í fyrra var gripið til þess ráðs að skákstjóri las upp pörun hverrar umferðar. Þegar keppendur eru ekki fleiri en í þessu móti gengur það vel upp. Skákfélagið Huginn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og fyrirtækjunum fyrir þeirra framlag til mótsins..

Lokastaðan á Mjóddarmótinu:

RöðNafnVinn.TB1TB2TB3
1Subway í Mjódd, Dagur Ragnarsson6,5322329
2Gámaþjónustan, Gauti Páll Jónsson6292223,5
3ÍTR, Þorvarður F. Ólafsson5332320,5
4Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Helgi Brynjarsson5312220,5
5Lyfjaval í Mjódd, Daði Ómarsson5312219,5
6Nettó í Mjódd, Tómas Bjornsson4,5322317
7Valitor, Stephan Briem4,5302115,8
8Frú Sigurlaug ehf, Óskar Haraldsson4,5262013,3
9Arion banki, Þórir Benediktsson4292114
10Íslandsbanki í Breiðholti, Dawid Kolka4271911,5
11Sorpa, Sigurður Freyr Jónatansson4261910,5
12Íslandspóstur, Sigurður Ingason4261911,5
13Stefán Arnalds4241810,5
14Hjá Dóra, Jón Víglundsson4221510,8
15Ökuskólinn í Mjódd, Þór Valtýsson3,5271911,5
16BV 60, Jón Úlfljótsson3,521168,25
17Benedikt Briem3,521168,5
18GM Einarsson múrarameist., Eiríkur K. Björnsson329199,5
19Dominos, Hjalmar Sigurvaldason3271910,8
20Efling stéttarfélag, Árni Thoroddsen324177
21Finnur Finnsson323187
22Björgvin Kristbergsson323165,5
23Apótekarinn i Mjódd, Óskar Long Einarsson320154,5
24Landsbankinn í Mjódd, Örn Alexandersson319146
25Konráð K. Björgólfsson318134,5
26Guðjón Ólafsson315112
27Suzuki bílar, Hörður Jónasson2,520153,25
28Ármann Pétursson219151,5
29Benedikt Þórisson219142,5
30Bjartur Þórisson124170,5
31Sigurjón Ólafsson123160,5
32Pétur Jóhannesson119130,5

 

Lokastaðan í chess-results.


Eiríkur sigraði á hraðkvöldi Hugins

Eiríkur Björnsson sigraði á hraðkvöldi Hugins sem haldið var 6. júní sl. Eiríkur vann hraðkvöldið með fullu húsi 6v í sex skákum og er þetta í þriðja sinn í röð sem sigurvegarinn leggur alla andstæðinga sína að velli. Annar var Vigfús Ó. Vigfússon með 5v. Eiríkur og Vigfús mætust í spennandi skák í lokaumferðinni þar sem Vigfús náði ekki að klár fórnina sem hann var byrjaður á þrátt fyrir nægan tíma. Þá gekk Eiríkur á lagið og kláraði dæmið. Þriðji var svo Hjálmar Sigurvaldason með 4v. Eiríkur dró Hjálmar Sigurvaldason í happdrættinu. Eiríkur valdi úttekt hjá Saffran en Hjálmar valdi pizzumiða frá Dominos. Hlé verður gert á þessum skákkvöldum í sumar en þráðurinn tekinn upp næsta haust.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Eiríkur Björnsson, 6v/6
  2. Vigfús Ó. Vigfússon, 5v
  3. Hjálmar Sigurvaldason, 4v
  4. Jón Úlfljótsson, 3v
  5. Finnur Kr. Finnsson 2v
  6. Hörður Jónasson, 1v
  7. Björgvin Kristbergsson

Úrslitin í chess-results


Hátt spennustig í Tónlistarskóla Seltjarnarness

Áhorfendur fylgjast með skákunum í 7 umferð á tjaldi

Andrúmsloftið í Tónlistarskóla Seltjarnarness var þrungið spennu í dag er 7.umferð Skákþings Íslands var tefld. Hart var barist, bæði á toppi og botni, og óvænt úrslit litu dagsins ljós líkt og í flestum umferðum Skákþingsins til þessa.

Mikil eftirvænting hafði myndast fyrir viðureign Héðins Steingrímssonar og Braga Þorfinnssonar, en þeir voru efstir í mótinu fyrir skák dagsins. Skákin var spennandi allt fram að síðasta andartaki er kóngarnir tveir stóðu einir eftir á borðinu. Jafnteflið tryggði þeim áframhaldandi stöðu á toppnum.

Héðinn og Bragi

Jóhann Hjartarson lagði Hjörvar Stein Grétarsson að velli í hörkuskák og þar með náði Jóhann þeim Héðni og Braga að vinningum í toppsæti mótsins. Sama leik lék Jón Viktor Gunnarsson sem í dag vann Björn Þorfinnsson. Þeir Héðinn, Bragi, Jóhann og Jón Viktor hafa allir 5 vinninga að loknum 7 skákum. Jón Viktor og Héðinn mætast í næstu umferð í sannkölluðum toppslag.

Guðmundur Gíslason hélt áfram stórbrotinni frammistöðu og skrifaði nýjan kafla í ævintýrasögu sína. Hann vann Guðmund Kjartansson með svörtu mönnunum og hefur nú unnið fjórar skákir í röð; tvær gegn stórmeisturum og tvær gegn alþjóðlegum meisturum. Guðmundur er nú aðeins einum vinningi á eftir efstu mönnum.

Einar Hjalti Jensson vann Davíð Kjartansson og lyfti sér með því upp að hlið Guðmundar Gíslasonar með 4 vinninga. Einar Hjalti á eftir að tefla við alla fjóra efstu menn mótsins og gæti því orðið örlagavaldur á lokaspretti baráttunnar um Íslandsmeistaratitilinn.

Margir fylgdust spenntir með feðgaslagnum þar sem Örn Leó Jóhannsson hafði hvítt gegn föður sínum, Jóhanni Ingvasyni. Eftir mikla baráttu lék Örn Leó illa af sér í 29.leik og varð að játa sig sigraðan skömmu síðar. Þetta var fyrsta sigurskák Jóhanns í mótinu.

Björn Þorfinnsson stingur höfðinu í bolinn

 

Úrslit 7.umferðar:

Rtg NameResult NameRtg
2454IMGunnarsson Jon Viktor1 - 0IMThorfinnsson Bjorn2410
2574GMSteingrimsson Hedinn½ - ½IMThorfinnsson Bragi2426
2580GMGretarsson Hjorvar Steinn0 - 1GMHjartarson Johann2547
2370IMJensson Einar Hjalti1 - 0FMKjartansson David2371
2457IMKjartansson Gudmundur0 - 1FMGislason Gudmundur2280
2226 Johannsson Orn Leo0 - 1 Ingvason Johann2142

 

Staðan eftir 7.umferð:

Rk. NameFEDRtgPts.RpKrtg+/-
1IMGunnarsson Jon ViktorISL24545,02501105,4
2GMSteingrimsson HedinnISL25745,0250810-3,2
3GMHjartarson JohannISL25475,02600105,7
4IMThorfinnsson BragiISL24265,025551012,6
5FMGislason GudmundurISL22804,025372046,0
6IMJensson Einar HjaltiISL23704,02402207,0
7IMThorfinnsson BjornISL24103,5240710-0,2
8IMKjartansson GudmundurISL24573,0231910-12,4
9FMKjartansson DavidISL23712,5227120-15,4
10 Johannsson Orn LeoISL22262,02269203,4
11GMGretarsson Hjorvar SteinnISL25802,0221210-26,5
12 Ingvason JohannISL21421,0213220-3,8

 

 

8.umferð er tefld á miðvikudag og hefst kl.15:

Rtg NameResult NameRtg
2410IMThorfinnsson Bjorn  Ingvason Johann2142
2280FMGislason Gudmundur  Johannsson Orn Leo2226
2371FMKjartansson David IMKjartansson Gudmundur2457
2547GMHjartarson Johann IMJensson Einar Hjalti2370
2426IMThorfinnsson Bragi GMGretarsson Hjorvar Steinn2580
2454IMGunnarsson Jon Viktor GMSteingrimsson Hedinn2574

 

 

 

 


Hraðkvöld hjá Hugin í kvöld - Omar vann á síðasta hraðkvöldi

Hraðkvöld Hugins verður mánudaginn 6. júní nk.  og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Þetta er lokaæfing á vormisseri. Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).

Omar Salama sigraði örugglega á hraðkvöldi Hugins sem, haldið var 30. mai sl. Þegar kom að lokum hraðkvöldsins stóð enginn andstæðinga Omars ósigraður eftir svo hann var með fullt hús 8v af átta mögulegum á æfingunni. Það var hins vegar hörð barátta um næstu sæti og réðst endanleg röð ekki fyrr en í lokaumferðinni þegar Gauti Páll færði Sigurði Ingasyni annað sætið með því að vinna Vigfús. Sigurður Ingason var annar með 6v, Vigfús Ó. Vigfússon þriðji með 5,5v og Gauti Páll varð að gera sér 4. sætið að góðu með 5v. Þátttakendur voru 9 og tefldu einfalda umferð allir við alla. Omar dró Hörð Jónasson í happdrættinu og völdu þeir báðir pizzumiða frá Dominos. 

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Omar Salama, 8v/8
  2. Sigurður Ingason, 6v
  3. Vigfús Ó. Vigfússon, 5,5v
  4. Gauti Páll Jónsson, 5v
  5. Sigurður Freyr Jónatansson, 4v
  6. Hjálmar Sigurvaldason, 2,5v
  7. Hörður Jónasson, 2v
  8. Björgvin Kristbergsson, 2v
  9. Finnur Kr. Finnsson, 1v

Úrslitin í chess-result


Skákgleði á Hátíð hafsins

image

Það var líflegt um að litast við Grandagarð í dag er fólk naut veðurblíðunnar á Hátíð hafsins. Taflfélag Reykjavíkur tók þátt í herlegheitunum og bauð gestum varðskipsins Óðins að grípa í tafl. Fjölmargir þekktust boðið; karlar og konur, piltar og stúlkur, ömmur og afar, feður og mæður, leikskólabörn, kennarar, iðnaðarmenn, skáld, unglingar, fræðimenn, forstjórar, ferðamenn, og þannig mætti lengi telja.

image

Eitt sinn var mikið teflt um borð í Óðni. Svo kom sjónvarpið til sögunnar. Fyrrum áhafnarmeðlimir sem áttu leið hjá höfðu á orði að gaman væri að sjá fólk tefla á nýjan leik í Messanum.

Það er á stundum sem þessum sem hugurinn reikar til kaffistofa landsins, til heimila, til fólks sem hefur gaman af að grípa í tafl sér til dægradvalar en ekki til að svala keppnisþörf. Hin íslenska skákhreyfing þarf að standa þessum hópi opin, ekki síður en keppnisskákmönnum.

Þetta var fólkið sem fyllti Messann í dag. Fólk sem tefldi með gleðina að vopni frekar en kappsemi. Fólk sem naut félagsskaparins ekki síður en glímunnar við skákgyðjuna.

image-5

Taflfélag Reykjavíkur vill koma á framfæri þökkum til Sjóminjasafnsins í Reykjavík fyrir samstarfið. Vonandi verður leikurinn endurtekinn að ári.


Guðmundur Gíslason óstöðvandi

6 umferð áhorfendur og keppendur

Veislan í Tónlistarskóla Seltjarnarness hélt áfram í dag er 6.umferð Landsliðsflokks var tefld. Efstu menn mótsins mættust í tveimur spennuþrungnum viðureignum, yngsti keppandinn vann sína fyrstu skák og ævintýri Vestfirðingsins, Guðmundar Gíslasonar, virðist hvergi nærri lokið.

Það var gestkvæmt á Seltjarnarnesinu í dag. Áhorfendur spáðu mikið í framvindu skákanna og greindu hverja skákstöðuna á fætur annarri af bæði festu og innlifun. Á meðal áhorfenda var fyrrum heimsmeistari, fyrrum ólympíumeistari, nokkrir fyrrum Íslandsmeistarar, fyrrum forseti FIDE og loks núverandi landsliðseinvaldur karlaliðs Íslands. Sannarlega glæsilegur áhorfendahópur það.

6 umferð greiningardeildin að störfum

Flestra augu beindust að skák Jóhanns Hjartarsonar sem stýrði hvítu mönnunum gegn Íslandsmeistaranum Héðni Steingrímssyni. Jóhann tefldi grimmt til sigurs en Íslandsmeistarinn varðist vel. Jóhann virtist teygja sig ögn of langt og Héðinn fékk hartnær unnið tafl. Þá urðu Héðni á mistök sem Jóhann nýtti sér til að snúa taflinu aftur sér í vil. Eftir mikil uppskipti glímdu þeir í hróksendatafli þar sem Jóhann hafði tvö peð gegn einu peði Héðins. Með nákvæmri taflmennsku náði Héðinn að halda jafntefli.

Í hinni viðureign efstu manna hafði Bragi Þorfinnsson hvítt gegn Jóni Viktori Gunnarssyni. Bragi fékk vænlegt tafl eftir byrjunina en náði ekki fylgja því nægjanlega vel eftir í miðtaflinu. Þeir sömdu um jafntefli eftir 32 leiki.

6 umferð Guðmundur Gísla og Einar Hjalti

Guðmundur Gíslason hélt uppteknum hætti og vann sína þriðju skák í röð, nú gegn Einari Hjalta Jenssyni. Guðmundur sem virðist nú óstöðvandi í mótinu eftir brösótta byrjun er aðeins 1,5 vinningum á eftir efstu mönnum.

Björn Þorfinnsson mætti ungstirninu Erni Leó Jóhannssyni og þurfti sigur til að tryggja stöðu sína í toppbaráttunni. Það er skemmst frá því að segja að Björn sá aldrei til sólar í dag og varð að játa sig sigraðan eftir aðeins 19 leiki. Þetta var fyrsta sigurskák Arnar Leós í mótinu og hefur hann nú 2 vinninga.

6 umferð Friðrik Ólafsson horfir rannsakandi á skák Arnar og Björns

Guðmundur Kjartansson vann Jóhann Ingvason í spennandi skák og Davíð Kjartansson vann Hjörvar Stein Grétarsson í ótefldri skák.

Héðinn Steingrímsson og Bragi Þorfinnsson eru efstir og jafnir með 4,5 vinninga en Jóhann Hjartarson og Jón Viktor Gunnarsson koma næstir með 4 vinninga. Þeir Bragi og Jóhann eru einu taplausu keppendur mótsins. 7.umferð fer fram á þriðjudag klukkan 15 og ber þar hæst viðureign efstu manna mótsins, Héðins Steingrímssonar og Braga Þorfinnssonar. Þá tefla stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Jóhann Hjartarson. Einnig mætast feðgarnir Örn Leó Jóhannsson og Jóhann Ingvason.

 

Úrslit 6.umferðar:

Rtg NameResult NameRtg
2410IMThorfinnsson Bjorn0 - 1 Johannsson Orn Leo2226
2142 Ingvason Johann0 - 1IMKjartansson Gudmundur2457
2280FMGislason Gudmundur1 - 0IMJensson Einar Hjalti2370
2371FMKjartansson David+ - -GMGretarsson Hjorvar Steinn2580
2547GMHjartarson Johann½ - ½GMSteingrimsson Hedinn2574
2426IMThorfinnsson Bragi½ - ½IMGunnarsson Jon Viktor2454

 

Staðan eftir 6.umferð:

Rk. NameFEDRtgPts.RpKrtg+/-
1GMSteingrimsson HedinnISL25744,5253010-1,2
2IMThorfinnsson BragiISL24264,525601010,6
3IMGunnarsson Jon ViktorISL24544,02457101,0
4GMHjartarson JohannISL25474,02544100,2
5IMThorfinnsson BjornISL24103,52457104,2
6FMGislason GudmundurISL22803,024922031,4
7IMKjartansson GudmundurISL24573,0238410-5,1
8IMJensson Einar HjaltiISL23703,0234920-3,0
9FMKjartansson DavidISL23712,5233320-5,4
10 Johannsson Orn LeoISL22262,023492015,8
11GMGretarsson Hjorvar SteinnISL25802,0222310-21,0
12 Ingvason JohannISL21420,0167720-16,2

 

7.umferð fer fram á þriðjudag og hefst klukkan 15:

Rtg NameResult NameRtg
2454IMGunnarsson Jon Viktor IMThorfinnsson Bjorn2410
2574GMSteingrimsson Hedinn IMThorfinnsson Bragi2426
2580GMGretarsson Hjorvar Steinn GMHjartarson Johann2547
2370IMJensson Einar Hjalti FMKjartansson David2371
2457IMKjartansson Gudmundur FMGislason Gudmundur2280
2226 Johannsson Orn Leo  Ingvason Johann2142

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 236
  • Frá upphafi: 8765212

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 139
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband