Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Skákþáttur Morgunblaðsins: Magnús Carlsen vann sex skákir í röð

Hou Yifan-CarlsenMig grunar að andstæðingar heimsmeistarans Magnúsar Carlsens leiti stundum athvarfs í þeim þanka að allt væri betra ef pilturinn hefði haldið áfram með vetraríþróttirnar eins og flestir landar hans og látið skákina eiga sig; hann mun hafa svifið yfir 20 metra í skíðastökki þegar hann var 10 ára.

Í Wijk aan Zee byrjaði Magnús með tveimur jafnteflum og tapi en svo komu hamskiptin: Magnús vann sex skákir í röð! Meistarar á borð við Caruana og Aronjan, sem hafa stundum verið að máta sig við skákkrúnuna, steinlágu báðir. Þegar þetta er ritað fyrir elleftu umferðina sem fór fram í gær var ekki alveg loku fyrir það skotið að staðarmet félli en til þess þarf hann að vinna allar skákirnar sem eftir eru. Staðan:

1. Magnús Carlsen 7½ v. (af 10). 2.- 3. So og Vachier La-Grave 6½ v. 4.-7. Giri, Ivantsjúk, Caruana og Liren Ding 6 v. 8.-9. Wojtaszek og Radjabov 5 v. 10. Aronjan 4½ v. 11. Van Wely 3½ v. 12.-13. Hou Yifan og Saric 3 v. 14. Jobava 1½ v.

Meðan á sigurgöngunni stóð bar minna á endataflstækni en oft, taflmennskan í miðtaflinu var afar góð og þótt sumir ættu möguleika á jafntefli hafði Magnús þá undir að lokum. Í 10. umferð bauð Radjabov upp á Berlínarvörn spænska leiksins. Eins og stundum áður fór Magnús „með löndum“, hélt drottningunum á borðinu og hafði sigur eftir snarpa kóngssókn:

Wijk aan Zee 2015:

Magnús Carlsen – Teimour Radjabov

Spænskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3

Að hrókera stutt dugði í lokaskákinni í Sochi en Magnús hefur leikið þessu nokkrum sinnum áður.

4.... Bc5 5. 0-0 d6 6. Rbd2 0-0 7. Bxc6 bxc6 8. h3 h6 9. He1 He8 10. Rf1 a5 11. Rg3 Hb8 12. b3 Bb4?!

Ekki er ljóst hvað vakir fyrir svarti með þessum leik og þeim næsta. Hví ekki 12.... a4?

13. Bd2 Ha8 14. c3 Bc5 15. d4 Bb6 16. dxe5 dxe5 17. c4 Rh7 18. De2 Rf8 19. Be3 c5 20. Had1 Df6 21. Rh5

Svarti riddarinn er á leið til e6 og síðan til d4. Magnús gerir allt til þess að hindra þá fyrirætlan.

21.... De7 22. Rh2 Kh7 23. Df3 f6 24. Rg4 Bxg4 25. Dxg4 Hed8?

25.... Re6 lá beinast við og er besti leikurinn sem Radjabov óttaðist 25. Df5+ Kh8 27. Bxh6!? gxf6 28. Rxf6 t.d. 28.... Hf8 29. Hd7! o.s.frv. En betra er 28.... Rd4 og svartur getur barist áfram.

26. Df5+ Kh8 27. f4!

Opnar taflið upp á gátt.

27.... Hxd1 28. Hxd1 exf4 29. Bxf4 De6 30. Hd3! He8

GFETIJ4O31. Rxg7! Kxg7 32. Dh5! Rh7 33. Bxh6+ Kh8 34. Dg6 Dg8

 

 

 

 

 

 

 

GDETIJ4K
35. Bg7+!

Gerir út um taflið þar sem hrókurinn er miklu öflugri en léttu menn svarts.

35.... Dxg7 36. Dxe8+ Df8 37. De6 Dh6 38. e5! Dc1+ 39. Kh2 Df4+ 40. Hg3

– og Radjabov gafst upp.

 


Fjórir efstir á Skákþingi Reykjavíkur

Fjórir skákmenn eru efstir að loknum sex umferðum á Skákþingi Reykjavíkur. Stefán Kristjánsson, Guðmundur Gíslason, Oliver Aron Jóhannesson og Jón Viktor Gunnarsson hafa allir hlotið fimm vinninga en í 5.-9. sæti koma Björn Þorfinnsson, Dagur Arngrímsson, Dagur Ragnarsson, Mikhael Jóhann Karlsson og Bjarni Sæmundsson með 4½ v. Talsvert hefur verið um óvænt úrslit á mótinu, sem lýkur sunnudaginn 1. febrúar.

 

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.  

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 24. janúar 2015.

Skákþættir Morgunblaðsins


Jóhann Örn sigurvegari Toyota-skákmótsins

Toyota mótið 2015  ESE 034Áttunda  Toyotaskákmótið  fór fram í gær í söludeild  Toyota í Kauptúni. Þátttaka var aðeins minni en stefndi í fyrirfram en sumir voru með flensu og aðrir þurftu að vera við jarðafarir. Það voru 29 kappar sem settust að tafli kl. 13.00

Garðar Guðmundsson formaður Ása setti mótið og byrjaði á því að óska Toyota mönnum til hamingju með 50 ára starfsafmæli á Íslandi.

Toyota mótið 2015  ESE 003

Garðar þakkaði þeim einnig fyrir stuðninginn undanfarin ár en Toyota er stuðnings aðili Æsa og hafa gefið öll verðlaun á öllum Toyota mótunum.

Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota og Páll Þorsteinsson upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi voru viðstaddir.

Úlfar lék svo fyrsta leikinn á fyrsta borði fyrir Björn Víking Þórðarson sem hafði hvítt gegn  Jóni Þ Þór. Björn var elsti öðlingurinn sem tefldi í Toyota í gær, hann er fæddur 1931 hann teflir samt oft eins og unglingur á besta aldri.

Toyota mótið 2015  ESE 004

Það var öllum ljóst að þetta yrði hörkuspennandi mót, því að þarna voru mættir margir mjög sterkir skákmenn. Til dæmis þeir Jóhann Örn Sigurjónsson og Bragi Halldórsson sem báðir hafa unnið Toyotabikarinn. Jóhann vann Toyotamótið 2009 og Bragi vann bæði 2013 og 2014. Það vildi síðan svo til að tölvan raðaði þeim félögum saman í fyrstu umferð.

Jóhann gaf svo tóninn og vann Braga í fyrstu umferð. Að loknum fimm umferðum var Jóhann einn efstur með 5 vinninga. Hafði unnið alla sína andstæðinga, en fast á eftir honum komu fjórir kappar með 4 vinninga, þeir Sæbjörn Larsen, Ögmundur Kristinsson , Bragi Halldórsson og Gylfi Þórhallsson.

Það var baráttujaxlinn Gísli Gunnlaugsson sem náði fyrsta punktinum af Jóhanni og gerð jafntefli við hann í sjöttu umferð.

Toyota mótið 2015  ESE 011

Það var svo í áttundu umferð sem að  Bragi fór upp fyrir Jóhann, þá vann Bragi Ögmund en Jóhann tapaði fyrir Gylfa og Bragi var efstur þegar ein umferð var eftir með 7 vinninga Jóhann með 6½  og Gylfi og Jón Þór með 6 vinninga.

Úrslitin réðust svo auðvitað í síðustu umferðinni eins og oftast gerist á skákmótum. Þá vann Jóhann Guðfinn og Bragi og Gylfi gerðu jafntefli. Ögmundur  vann Jón Þ Þór.

Niðurstaðan; Jóhann og Bragi jafnir með 7 ½ vinning en Jóhann hærri á stigum og er bikarhafi Toyota 2015. Það er gleðilegt að sjá að Jóhann Örn er búinn að ná góðum styrk eftir erfið veikindi sem hann þurfti að takast á við.

Jafnir í 3.-4.  sæti urðu svo Gylfi Þórhallsson og Ögmundur Kristinsson báðir með 6 ½ vinning, en Gylfi örlítið hærri á stigum og fékk bronsið.

Í mótslok afhenti forstjóri Toyota svo öll verðlaun, sextán skákmenn fengu verðlaun rúmlega helmingur þátttakenda.

Toyota mótið 2015  ESE 033

Úlfar gat þess svo í lokin að hann vonaðist eftir að sjá okkur aftur um sama leiti að ári.

Það er gaman að geta þess að tveir af frammámönnum í skákhreyfingunni heiðruðu okkur með nærveru sinni í mótsbyrjun þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambandsins og Stefán Bergsson framkvæmdastjóri Skákakademíunnar. Við þökkum þeim fyrir það

Æsir sáu um skipulagningu og stjórn skákmótsins og skákstjórar voru þeir Garðar Guðmundsson og Finnur Kr Finnsson.

Þátttakendur voru flestir frá Ásum og Riddurum. Við viljum þakka stjórnendum Toyota kærlega fyrir móttökurnar í gær og allan stuðning undanfarin ár. 

Sjá nánar um úrslit og myndir frá ESE. 

Toyota mótið 2015  Úrslit


Nóa Siríus mótið: Fjórir efstir eftir bókarumferð

Fjórðu umferð Nóa Siríus mótsins – Gestamóts Hugins og Skákdeildar Breiðabliks, var með rólegra móti. Úrslit urðu að lang mestu leyti skv. bókinni góðu ef frá eru taldar tvær viðureignir:

Guðmundur Halldórsson (2219) – Jón Trausti Harðarson (2067) 0 – 1

Heimir Páll Ragnarsson (1490) – Sigurður J Gunnarsson (1921) 1/2 – 1/2

P1030490Af öðrum áhugaverðum úrslitum má nefna að tveir af þrem stigahæstu mönnum mótsins (JVG er jafn GM Þresti með 2433) IM Karl Þorsteins (2456) og GM Þröstur Þórhallsson (2433) gerðu stutt jafntefli á 1. borði og IM Jón Viktor Gunnarsson(2433) vann snaggaralegan sigur gegn BM Stefáni Bergssyni (2085) á 2. borði.

Fjórir skákmenn eru nú efstir og jafnir með 3,5 vinninga af 4: GM Þröstur Þórhallsson (2433),  IM Jón Viktor Gunnarsson (2433) FM Guðmundur Gíslason (2315) og Jón Trausti Harðarson (2067).

P1030475

Árangur Jóns Trausta vekur athygli en kemur þó ekki á óvart enda vitað að hann stendur undir mun fleiri skákstigum en núverandi mælingar gefa til kynna. Þá er Jón Trausti einning í hópi efstu manna á Skákþingi Reykjavíkur þar sem hann mokar inn skákstigum.

Næsta umferð Nóa Siríus mótsins verður afar spennandi. Á efstu borðunum mætast:

1. borð: GM Þröstur Þórhallsson og FM Guðmundur Stefán Gíslason
2. borð: Jón Trausti Harðarson og IM Jón Viktor Gunnarsson
3. borð: Dagur Ragnarsson og IM Karl Þorsteins
4. borð: WGM Lenka Ptácníková og Hrafn Loftsson
5. borð: Gunnar Freyr Rúnarsson og Kristján Eðvarðsson



Skákdagurinn í Kerhólaskóla

20150126_131215

Skákdagur Íslands tókst afar vel í Kerhólsskóla. Við erum lítill leik- og grunnskóli á Borg í Grímsnesi, með tæplega 60 nemendur alls, niður í 1 árs börn. Björn Þorfinnsson skákmeistari heimsótti okkur eftir hádegi og spjallaði við nemendur í grunnskóladeildinni og elsta hóp leikskólans um skákina. Krakkarnir voru afar áhugasamir áheyrendur enda fróðlegt og skemmtilegt að hlusta á Björn.

20150126_134855

Að því loknu tók hann hraðskák við þrjá nemendur, hann fékk 13 sekúndur en nemendur þrjár mínútur! Björn var nú fljótur að vinna fyrstu tvo en sá þriðji stóð aðeins í honum og náði að fella Björn á tíma. Var Samúel, nemandinn í 8. bekk að vonum ánægður með sig.

20150126_133645

Eftir að nemendur höfðu spreytt sig við taflið í nokkurn tíma undir leiðsögn skákmeistarans og kennara, tefldi Björn fjöltefli við allan hópinn. Áhugi á skák er töluverður í Kerhólsskóla og hefur aukist aftur mikið síðustu daga. Í skólanum eru komin skákborð víða og nemendur nota hvert tækifæri til að tefla. Við í Kerhólsskóla þökkum kærlega fyrir þessa ánægjulegu heimsókn og ætlum að rækta skákáhugann áfram með nemendum okkar.


Guðmundur með annan frábæran sigur - mætir Svidler - Hannes mætir Topalov!

Guðmundur KjaGuðmundur Kjartansson (2468) heldur áfram frábæru gengi á alþjóðlega mótinu í Gíbraltar. Í þriðju umferð sem fram fór í dag vann hann paragvæska stórmeistarann Axal Bachmann (2629) í mjög vel tefldri skák. Hannes Hlífar Stefánsson (2570) lét sér hins vegar duga jafntefli gegn rússneska stórmeistaranum og sigurvegara Gíbraltar-mótsins í fyrra Nikita Vitiugov (2735).

Guðmundur hefur fullt hús en Hannes hefur 2,5 vinning. 

Andstæðingar morgundagsins eru ekki að verra taginu en Guðmundur teflir við Peter Svidler (2739) og Hannes teflir við Veselin Topalov (2800) stigahæsta keppenda mótsins, fjórða stigahæsta skákmann heims,og fyrrum heimsmeistara í skák. 

Ritstjóri telur, þó ekki að fullrannsökuðu máli, að þetta sé í fyrsta skipti að íslenskur skákmaður tefli við skákmann sem hafi 2800 skákstig eða hærri.

Rétt er að benda skákáhugamönnum á Facebook-hópinn "Íslenskir skákmenn" en þar má gera ráð fyrir að skákir dagsins verði skeggræddar á meðan þær eru í gangi.

Umferð dagsins hefst kl. 14 og er mælt með að skákáhugamenn byrgi sig upp með poppi og Pepsi Max. 

Feðginin Magnús Kristinsson (1744) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1566) taka einnig þátt. Þau hafa hálfan vinning.

Alls taka 253 frá 46 löndum þátt í efsta flokki mótsins. Þar eru 72 stórmeistarar. Hannes er nr. 40 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 82.


Haldið upp á Skákdaginn í Melaskóla

Harpa fjöltefliMánudaginn sl. var haldið upp á skákdaginn með taflmennsku víða um land. Dagurinn er til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák. Friðrik fæddist 26. janúar 1935 og var því 80 ára þann. Hann er án efa sá íslenski skákmaður sem mestum frama hefur náð í greininni.

Í Melaskóla var haldið fjöltefli í Skálanum. Nemendur í 6. bekk  tefldu fjöltefli við nemendur í 2. og 3. bekk. Björn Pétursson fyrrverandi skólastjóri  tefldi fjöltefli við nemendur í 4. og 5. bekk. Það var svo Harpa Ingólfsdóttir skákkona og Íslandsmeistari kvenna 2000 og 2004 sem tefldi fjöltefli við nemendur í  6. og 7. bekk. Thor, Tómas og Ingi náðu lengstu skákunum gegn Hörpu en máttu að lokum játa sig sigraða eins og allir aðrir keppinautar hennar.

Á skákdeginum var teflt um allt land; í skólum, fyrirtækjum, kaffihúsum, skipum, sundlaugum, taflfélögum, skákklúbbum og víðar. Allir tefla; konur og karlar, ungir og gamlir, atvinnumenn og áhugamenn, enda eru kjörorð skákhreyfingarinnar VIÐ ERUM EIN FJÖLSKYLDA.


Toyota-skákmót eldri borgara.

Á morgun föstudaginn 30 janúar verður Toyotaskákmót eldri borgara haldið í höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni Garðabæ. Að mótinu standa eldri skákmenn á stór Reykjavíkursvæðinu það Æsir skákfélag eldri borgara í Reykjavík og Riddarinn skákfélag eldri borgara í Hafnarfirði.

Þetta er áttunda Toyotamótið sem er haldið. Fyrsta mótið fór fram í Stangarhyl 4 félagsheimili F E B í Reykjavík 2008. Hin hafa öll verið haldin í söludeild  Toyota

Toyota gefur öll verðlaun, sem eru vegleg teflt er um veglegan farandbikar.

Það eru rúmlega 30 skákmenn skráðir til leiks núna.Þeir sem ætla að vera með en hafa ekki skráð sig ennþá eru beðnir að skrá sig í netf. finnur.kr@internet.is og í rokk@internet.is

Mótið byrjar kl. 13.00. Tefldar verða 9 umferðir með 10. mín. umhugsunartíma.


Frikkinn 2015 fer fram á föstudagskvöld!

frikkinn_2015
Frikkinn 2015 
fer fram nú á föstudagskvöldið á fyrsta skemmtikvöldi ársins og hefst það kl. 20.00

Taflfélag Reykjavíkur bíður til veislu Friðriki Ólafssyni til heiðurs.  Tefldar verða stöður úr skákum afmælisbarns vikunnar og heiðursborgara Reykjavíkur.  Við hvetjum alla skákmenn til að heiðra Friðrik með þáttöku, og um leið gefst frábært tækifæri til að tefla stöður úr sumum af mögnuðustu skákum meistarans okkar.

Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:

  1. Tefldar verða stöður úr skákum Friðriks Ólafssonar
  2. Tefldar verða 12 skákir með 5 mínútna umhugsunartíma
  3. Keppendur tefla innbyrðis eina skák með hvítt og eina skák með svart. (2. skáka viðureign milli keppenda)
  4. Tvær stöður úr skákum Friðriks verða í boði í hverri viðureign.  Sá sem stýrir svörtu mönnunum í hvorri skák velur hvor staðan er tefld!  Hvítur á alltaf fyrsta leik í stöðunum.
  5. Stöðurnar geta bæði verið úr þekktum byrjunum eða þegar þeim sleppir.
  6. Gerð verða eitt eða tvö hlé til Billjardbarsferða meðan á mótinu stendur.
  7. Verðlaun:
    1.sæti 8000 króna úttekt á billjardbarnum í formi veitinga.
    2.sæti 5000 króna úttekt á Billjardbarnum í formi veitinga.
    3.sæti 2000 króna úttekt á Billiardbarnum í formi veitinga.
  8. Þátttaka á þetta sérstaka skemmtikvöld er ókeypis.
  9. Aldurstakmark er 20 ár og rétt er að geta þess að áfengisbann ríkir í húsakynnum Taflfélagsins.
  10. Sigurvegarinn hlítur nafnbótina Frikkinn 2015

Tekið skal fram að í vor verður haldin skemmtikvöldakóngakeppni þar sem Mórinn 2014,Karlöndin 2014, Úlfurinn 2014, Frikkinn 2015 og aðrir sigurvegarar skemmtikvöldanna munu mætast í uppgjöri þeirra bestu.

Verið velkomin!


Friðrik Ólafsson heiðursborgari Reykjavíkur

Friðrik Ólafsson heiðursborgari og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sæmdi Friðrik Ólafsson stórmeistara í skák, heiðursborgaranafnbót  við hátíðlega athöfn í Höfða, í gær. Friðrik Ólafsson er sjötti einstaklingurinn sem gerður er að heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Þeir sem hlotið hafa þessa nafnbót áður eru; séra Bjarni Jónsson árið 1961, Kristján Sveinsson augnlæknir árið 1975, Vigdís Finnbogadóttir árið 2010, Erró árið 2012 og Yoko Ono árið 2013.

Með því að sæma Friðrik Ólafsson heiðursborgaratitli vill Reykjavikurborg þakka Friðriki fyrir árangur hans og afrek á sviði skáklistarinnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði það vel við hæfi að heiðra Friðrik á áttræðisafmælinu, en hann átti afmæli þann 26. janúar sl. Dagur sagði að áhugi á skák væri óvíða meiri en á Íslandi og líklega hefði enginn Íslendingur haft jafn mikil áhrif á skákíþróttina hérlendis og Friðrik Ólafsson. Hans dýrmæta framlag til íslenskrar menningar væri þakkarvert.

Stórmeistararnir

Stórmeistarar fjölmenntu í Höfða til að fagna heiðursborgara Reykjavíkur

Í ræðu borgarstjóra kom fram að Friðrik hafi ungur að árum sýnt óvenjulega dirfsku og hugkvæmni og í skákum hans hafi hann sýnt meiri tilþrif en menn áttu að venjast. Hann var ungur að árum eða aðeins 17 ára gamall þegar hann varð Íslandsmeistari, 18 ára Norðurlandameistari og stórmeistari í skák árið 1958 fyrstur íslenskra skákmanna.

Friðrik lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands og starfaði hjá dómsmálaráðuneytinu áður en hann varð atvinnumaður í skákíþróttinni árið 1974. Friðrik var forseti alþjóðaskáksambandsins FIDE á árunum 1978-1982 og að því loknu starfaði hann sem skrifstofustjóri Alþingis. Á sínum skákferli vann Friðrik allmörg alþjóðleg skákmót, varð skákmeistari Norðurlanda og sex sinnum varð hann Íslandsmeistari.

Friðrik þakkaði fyrir heiðursnafnbótina og sagði að sér þætti vænt um titilinn því honum þætti vænt um Reykjavík. Hann sagðist oft hafa gengið fram hjá Höfða þegar hann var ungur að árum á leið í og úr skóla og aldrei hefði honum dottið í hug að 70 árum seinna stæði hann einmitt í Höfða og tæki við heiðursnafnbót.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, tilkynnti að Skáksambandið hefði stofnað sjóð, Friðrikssjóð, sem yrði varið til að styrkja unga skákmenn. Þá færði hann Friðriki einnig heiðursskjal frá  alþjóðaskáksambandinu FIDE þar sem hann er gerður að heiðursfélaga sambandsins.

Sjá nánar á vefsíðu Reykjavíkurborgar.


Stefán, Jón Viktor og Björn efstir á Skákþingi Reykjavíkur

Stefán Kristjánsson (2492), Jón Viktor Gunnarsson (2433) og Björn Þorfinnsson (2373) eru efstir og jafnir með 6½ vinning að lokinni áttundu og næstsíðustu umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gær. Athyglisvert er að þeir töpuðu allir óvænt í þriðju umferð en hafa heldur betur náð vopnum sínum. Stefán og Jón Viktor gerðu jafntefli í innbyrðis skák í gær en Björn hafði betur gegn Oliver Aroni Jóhannssyni (2170).

Dagur Ragnarsson (2059), Mikael Jóhann Karlsson (2077) og Jón Trausti Harðarson (2067) eru í 4.-6. sæti með 6 vinninga.

Sem fyrr var nokkuð um óvænt úrslit. Örn Leó Jóhannsson (2048) endurtók góð úrslit frá Gestamóti Hugins og Breiðabliks og gerði jafntefli við Guðmund Gíslason (2315).

Í lokaumferðinni, sem fram fer á sunnudag, mætast meðal annars Jón Viktor-Björn, Mikael Jóhann-Stefán og Jón Trausti-Dagur. 

Sú sérkennilega staða getur komið að tveir eða fleiri verði jafnir og efstir án þess að hafa mæst. 

 


Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 319
  • Frá upphafi: 8763709

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 153
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband