Fćrsluflokkur: Bloggar
9.9.2016 | 22:35
Norđurlandamótiđ byrjar vel! Danir og Finnar lagđir af velli.
Norđurlandamót barnaskóla- og unglingasveita hófst í dag í Holmenkollen í Noregi. Vel gekk hjá Íslensku liđunum. Skipulagningin hjá Norsurum er alveg upp á tíu, hóteliđ frábćrt og ađstćđur eins og best vćri á kosiđ.
Andstćđingar dagsins í dag voru Danir og Finnar. Danir eru ţriđju sterkustu á pappírnum og ţví voru úrslit dagsins svo sannarlega ánćgjuleg fyrir Hörđuvalla drengi. Finnar eru lćgst skrifađir í unglingaflokknum, og var ţví um algjöran skyldusigur ađ rćđa hjá Álfhólsskóla.
Ţó svo ađ í enda dags litu ţetta út sem ţćgilegir og öruggir sigrar, ţá get ég ekki sagt annađ en ađ ég hafi um tíma veriđ ansi órólegur um ađ viđ myndum ekki knýja fram sigur í báđum viđureignum.
Hörđuvallaskóli 3 ˝ - Danir ˝
Danir voru sýnd veiđi en ekki gefin, og ţrátt fyrir ađ vera međ tvo stigalausa á ţriđja og fjórđa borđi, sýndu ţeir svo sannarlega í dag ađ ţeir kunna vel ađ tefla. Á fyrsta borđi mćtti hinn ţaulreyndi Vignir Vatnar honum Andreas Skovgaard (1852) , Vignir fékk mjög ţćgilega stöđu úr byrjuninni en hleypti Andreas fullmikiđ inn í skákina á ákveđnum tímapunkti en Vignir sýndi ţađ enn og aftur hversu frábćr skákmađur hann er. Á öđru borđi var bróđir hans Emil Skovgaard (1690) en annađ borđiđ, var eina borđiđ ţar sem viđ vorum stigalćgri og ţví var ljóst ađ viđ ramman reip var ađ draga fyrir Stephan Briem.
1.borđ: Andreas-Vignir
Vignir jafnađi tafliđ nokkuđ fljótt međ svörtu mönnunum, og snemma í skákinni var verulega fariđ ađ halla á tímann hjá Andreas. Vignir bauđ Andreas í Blumenfield Gambit en Andreas afţakkađi bođiđ pent, og átti Vignir í engum vandrćđum í byrjuninni. Eins og áđur hefur komiđ fram, komst Andreas inn í skákina á vissu tímabili, en ţó hafđi undirritađur aldrei neinar sérstakar áhyggjur á ađ Vignir myndi ekki sigla vinningnum í höfn.
Ágćt skák hjá Vigni en var ţó heppinn ađ andstćđingur hans refsađi honum ekki meira en raun bar vitni.
2.borđ: Stephan-Emil
Stephan tefldi ţessa skák virkilega solid og hélt dambi í skákinni allan tímann en náđi ţó aldrei ađ fá almennilegt frumkvćđi. Stađan var ávallt í dýnamísku jafnvćgi en ţó hefđi Stephan getađ leikiđ 27.b4!
Gott jafntefli var niđurstađan úr ţessari skák.
3.borđ : Krćmmer-Sverrir
Sverrir tefldi byrjunina ónákvćmt og var snemma kominn peđi undir.
Hins vegar reyndist 14.Bc8 hjá Sverri tryggja honum sigur í skákinni, en ţar trixađi hann Danann í ađ drepa eitrađ peđ sem varđ ţess valdandi ađ hvítur missti drottninguna. 14.Bc8 15.Dxc6 15. Bxh2 +!!!
Ţrátt fyrir dapra byrjunartaflmennsku hjá Sverri ţá náđi hann í sigurinn sem skiptir jú öllu máli.
4.borđ : Arnar Milutin-Mathias
Arnar beitti London system gegn Mathias og fékk mjög ţćgilega stöđu úr byrjuninni. Arnar var snemma kominn međ betri stöđu, og var hans sigur virkilega verđskuldađur. Flott skák hjá Arnari.
Frábćr úrslit 3 ˝ - ˝ er ţá stađreynd gegn frćndum okkar. Ţó hefđu ţessi úrslit alveg getađ snúist viđ á hinn bóginn en ţađ sýnir ákveđiđ styrkleikamerki ađ sigra svona sannfćrandi án ţess ađ menn séu á sínum besta degi!
Strákarnir eiga nóg inn,i ég er sannfćrđur um ţađ.
2.umferđ gćti reynst sú mikilvćgasta í mótinu en ţar mćtum viđ Svíum og eru ţeir mjög sterkir á pappírnum. Ţeir eru međ gríđarlega sterkan fyrsta borđs mann Joakim Nilsson (2012) og svo eru ţeir međ ţétta stráka á hinum borđunum sem eru allir međ yfir 1500 stig. Á pappírunum ćtti ţetta ađ verđa mjög spennandi viđureign og gćti skipt sköpum ađ móti loknu.
Ég hef fulla trú á ţví ađ strákarnir munu ekki bregđast á morgun, og er ég mjög bjartsýnn á Íslenskan sigur.
Ísland 3 Finnland 1
Liđsmenn Álfhólsskóla voru sáttir međ pörun fyrstu umferđar, en ţar mćttum viđ eina liđinu sem eru veikari en viđ á pappírnum. Ţeir eru einungis međ einn stigamann. Ég var bjartsýnn fyrir viđureignina.
1.borđ : Dawid Mikaela (1717)
Dawid fékk yfirburđarstöđu eftir byrjunina, en hann tefldi uppskiptaafbrigđiđ í Spćnska leiknum. Mikaela varđist ţó vel eftir ađ hafa teflt byrjunina afleitlega, en Dawid sýndi flotta úrvinnslu og sigrađi skákina međ glćsibrag.
2.borđ : Kalle Róbert Luu
Róbert hafđi svart gegn Kalle. Róbert ákvađ ađ tefla Skandinavann viđ litla hrifningu ţjálfara síns...:) Upp kom leiđinleg stađa sem erfitt var ađ brjóta upp, en Róbert vann peđ í miđtaflinu en sá ţó engar sigurleiđir fyrir svartan. Hins vegar fór Róbert í flotta peđasókn á kóngsvćng í endataflinu sem ađ lokum, skilađi ţessum mikilvćga sigri.
3.borđ : Halldór Atli Egor
Ég veit ekki alveg hvađ skal segja um ţessa skák. Ţetta er ef til vill skák sem Halldór Atli vill gleyma sem allra fyrst. Skemmst er frá ţví ađ segja ađ hann tapađi skákinni á innan viđ korteri ţar sem hann lék af sér drottningunni.
Ţar sem ég ţekki Halldór Atla vel og hef veriđ kennarinn hans í nokkur ár, ţá veit ég ađ hann kemur tvíefldur til leiks í fyrramáliđ.
4.borđ : Martinez Guđmundur Agnar
Guđmundur Agnar hafđi svart gegn Roberto Martinez (ekki landsliđsţjálfara Belgíu) , Agnar tefldi mjög óhefđbundna byrjun sem kom andstćđingnum algjörlega í opna skjöldu og reyndist ţetta hárrétt ađferđ hjá Agnari ađ koma andstćđing sínum á óvart. Skemmst er frá ţví ađ segja ađ Agnar tefldi ţessa skák alveg gríđarlega vel, og notađi hann tímann mjög vel, eitthvađ sem undirritađur hefur aldrei séđ hann gera áđur. Ţó fékk hann góđa ađstođ frá andstćđing sínum, sem ákvađ ađ gefa honum heilan biskup í verđlaun fyrir flotta taflmennsku í skákinni, eftir ţađ ţurfti ekki ađ spyrja ađ leikslokum.
3-1 sigur er ađ vissu leyti svekkjandi ţar sem ađ ég tel ađ viđ eigum í lang flestum tilfellum ađ sigra ţetta liđ 4-0 , og finnst mér ansi ólíklegt ađ mörg liđ muni missa vinninga á móti ţessu liđi.
Andstćđingar okkar á morgun eru Noregur 1 en ţeir eru sterkasta liđiđ á pappírnum. Ţađ verđur virkilega erfiđ viđureign en ţeir eru međ međalstig 1850 á međan ađ viđ erum međ rétt rúmlega 1500. Ţó má ekki gleyma ţví, ađ ELÓ-stig ein og sér hafa aldrei unniđ eina einustu skák!
Önnur umferđ hefst í fyrramáliđ klukkan 07:00 á íslenskum tíma, og ţví er tilvaliđ ađ vakna snemma og styđja strákana okkar!
Ţar til nćst.
- Birkir Karl Sigurđsson
Beinar útsendingar: http://skole2016.nordisksjakk.no/en/live-games/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2010 | 17:13
Bent Larsen
Skák.is barst eftirfarandi minningargrein um Bent Larsen frá Gunnari Finnlaugssyni.
Skákkonungurinn og mannlífsriddarinn Bent Larsen er horfinn af skákborđi lífsins. Auk ţess ađ vera afburđa skákmađur var hann einnig skemmtilegur fyrirlesari, ásamt ţví ađ vera afkastamikill og góđur skákblađamađur.Eitt af ţví fyrsta sem ég man eftir var skákeinvígi Friđriks og Larsens í byrjun árs 1956. Ţá var Larsen vondi strákurinn" og tók Norđurlandatitilinn af skákgođi okkar Íslendinga, Friđrik Ólafssyni. Ţeir voru góđir kunningjar, en friđsemi og vingjarnlegheit voru ţeim fjarri ţegar barist var á skákborđinu. Ţessir tveir heiđursmenn hafa auđgađ skákmenningu Norđurlanda í meira en hálfa öld!
Ég kynntist Larsen lítillega haustiđ 1989 í Holstebro í Danmörku. Ţá fór fram aukakeppni um sćti í millisvćđamóti milli Margeirs, Yrjölä og Larsens. Sem nýbakađur formađur í Malmö Schacksällskap fékk ég ţá hugmynd ađ fá Larsen til Málmeyjar. Hann tók vel í mína málaleitun og seinna um haustiđ kom hann, tefldi klukkufjöltefli, fjöltefli og hélt fyrirlestur viđ mikla hrifningu skákáhugamanna hér á Skáni. Mér er ţađ sérstaklega minnisstćtt hve auđvelt var ađ ná samkomulagi viđ hann um ţóknun og annađ varđandi heimsóknina.
Vinur minn Lars Grahn í Málmey gaf út Schacknytt í um ţađ bil tvo áratugi. Draumur hans var ađ fá Larsen til ađ skrifa reglulega. Sá draumur rćttist einfaldlega vegna ţess ađ Larsen sćtti sig viđ lág ritlaun. Lars hefur sagt mér ađ hann dansađi af gleđi ţegar svar Larsens kom. Larsen skrifađi mikiđ, og er án efa Norđurlandameistari skákblađamanna. Fyrst og fremst skrifađi hann i Skakbladet, Schacknytt og dönsk dagblöđ. Međal annars skrifađi hann skákţátt daglega árum saman í Extra Bladet.
Upp úr 1970 flutti Larsen til Las Palmas. Hann var meira eđa minna flćmdur úr landi af skattayfirvöldum.
Skatturinn taldi ađ maturinn sem hann fékk á skákmótum utan Danmerkur vćru fríđindi sem borga ćtti skatt af! Hann snéri aldrei aftur til Danmerkur og bjó síđustu árin í Argentínu.
Danir syrgja sína stćrstu skákstjörnu fyrr og síđar. Á heimasíđu Danska Skáksambandsins er vitnađ í forseta sambandsins. Hann segir ţar ađ Larsen hafi á sínum bestu árum veriđ einn vesturlandabúa sem gat bođiđ Sovétmönnum byrginn. Hann gleymir illilega íslendingunum Friđrik Ólafssyni og Robert James Fischer!
Larsen var fróđur og áhugasamur um margt. Hefđi hann einblínt á skákborđiđ hefđi hann trúlega náđ enn lengra. En Larsen var ekki bara skákmađur, hann var heimsborgari og bođberi skákarinnar. Sagt er ađ sjaldan hafi honum orđiđ svarafátt. Einn vina minna í Danmörku sagđi mér ađ eina svariđ sem mađur fékk aldrei frá Larsen vćri;
Ég veit ţađ ekki.
Heimur okkar skákmann verđur fátćklegri eftir andlát Larsens en minningin um skákstjörnu Norđurlanda lifir!
Gunnar Finnlaugsson
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2010 | 00:23
Pistill ritstjóra um Íslandsmót skákfélaga
Ritstjóri Skák.is hefur venju samkvćmt skrifađ pistil um Íslandsmót skákfélaga og má finna hann á bloggsíđu hans.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2010 | 23:08
Susan Polgar fjallar um skák á Íslandi
Susan Polgar fjallar um íslenskt skáklíf og ţá sérstaklega reykvískt skáklíf í nýlegri fćrslu á bloggsíđu sinni. Umfjöllunin er ađ mestu leyti byggđ á á frásögn af heimasíđu TR.
Bloggar | Breytt 13.1.2010 kl. 08:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
28.11.2009 | 17:18
Stelpur tefla líka!
Mjög góđ umfjöllun var um kvennaskák í Íslandi í dag í gćr. Ţar var m.a. viđtal viđ Eddu Sveinsdóttir, skákmömmu og stjórnarmann í SÍ og Helli, Guđný Erlu Hannesdóttur, í skákfélaginu ÓSK og Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur skákdrottningu.
Innslagiđ í held sinni má finna á Vísi.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2009 | 16:48
Fleiri pistlar um Íslandsmót skákfélaga
Fleiri pistlar hafa birst um Íslandsmót skákfélaga á heimasíđum félaganna. Annar er eftir Ţorstein Ţorsteinsson, liđsstjóra a-liđs Eyjamanna, og hinn er eftir Ţóri Benediktsson hjá TR.
Áđur birtir pistlar
- Pistill Gunnars Björnssonar
- Pistill Magnúsar Pálma
- Pistill Hrannars Baldurssonar
- Pistill Hermanns Ađalsteinssonar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2009 | 07:47
Íslandsmót skákfélaga gert upp
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2009 | 01:35
Ritstjóri spáir Bolvíkingum sigri
Ritstjóri Skák.is hefur skrifađ sinn hefđbundna pistil um spáđ í spilin fyrir Íslandsmót skákfélaga. Ritstjórinn spáir Bolvíkingum sigri, Eyjamönnum öđru sćti og Hellisbúum ţví ţriđja.
Pistil ritstjóra má finna á bloggsíđu hans.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2009 | 10:08
Nýr pistill frá Guđmundi
Guđmundur Kjartansson hefur skrifađ pistil um skoska meistaramótiđ á heimasíđu TR en ţar náđi hann í stórmeistaraáfanga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2009 | 00:32
Pistill Guđmundar Kjartanssonar
Guđmundur Kjartansson hefur birt pistil á heimasíđu TR um skáksumariđ 2009 ţar sem hann segir frá mótinu í Búdapest ţar sem hann náđi sínum lokaáfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.11.): 7
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 139
- Frá upphafi: 8771193
Annađ
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 107
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar