Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2012

Berserkir í banastuđi á Atskákmóti Icelandair

IMG 5084Berserkir stóđu undir nafni og sigruđu af talsverđu öryggi á skemmtilegu og vel heppnuđu Atskákmóti Icelandair, sem fram fór um helgina. Berserkir fengu 49,5 vinning af 68 mögulegum. Sveit Íslands varđ í 2. sćti međ 47 vinninga og Computer Says No hreppti silfriđ međ 45 vinningum.

Sveit Berserkja var afar harđsnúin, skipuđ Jóni Viktori Gunnarssyni, Davíđ Kjartanssyni, Ţorsteini Ţorsteinssyni og Jóni G. Friđţjófssyni. Sigurlaunin voru ekki af verri endanum: Allir fengu farmiđa fyrir tvo til Evrópu međ Icelandair.

Silfursveit Íslands var skipuđ Ţresti Ţórhallssyni, Dađa Ómarssyni, Stefáni Bergssyni, Vigni Vatnari Stefánssyni og Gylfa Ţórhallssyni. Ţeir fengu allir gjafabréf á veitingastađinn Satt.

Sveit Computer Says No náđi 3. sćtinu eftir harđa keppni. Liđsmenn sveitarinnar voru Bragi Ţorfinnsson, Björn Ţorfinnsson, Gunnar Björnsson og Gunnar I. Birgisson. Í verđlaun fengu ţeir gjafabréf fyrir tvo í Fontana.

Glćsilegan borđaverđlaun

Glćsileg verđlaun voru einnig í bođi fyrir ţá sem náđu bestum árangri á hverju borđi: Farmiđar fyrir tvo innanlands í bođi Flugfélags Íslands og Saga Club Icelandair, gisting í 2 nćtur fyrir tvo á Icelandair Hótelum ásamt morgunverđarhlađborđi. Hćgt verđur ađ velja um gistingu á Hótel Akureyri eđa á Hótel Hérađi. Verđlaunin hlutu:

1. borđ: Ţröstur Ţórhallsson 14,5 vinning af 17.

2. borđ: Arnar Gunnarsson 14,5 vinninga af 17.

3. borđ: Björn Ívar Karlsson 13 vinninga af 17.

4. Jón Trausti Harđarson 14 vinninga af 17.

Atli vann óvćntasta sigurinn

Atli Jóhann Leósson (1766) fékk verđlaun fyrir óvćntasta sigurinn, en hann skellti alţjóđameistaranum Arnari Gunnarssyni (2440) og fékk fyrir afrekiđ gjafabréf fyrir tvo á veitingastađinn Satt.

Sigríđur Björg besti varamađurinn

Sigríđur Björg Helgadóttir var besti varamađurinn, fékk 8,5 vinning af 13, og hlaut gjafabréf fyrir tvo á veitingastađinn VOX og ferđatafl í verđlaun.

Lightweight best undir 8000 stigum

Heildarstigatala liđsmanna á ţessu skemmtilega móti mátti ekki fara yfir 8500 skákstig, og voru flestar efstu sveitirnar nálćgt ţeim mörkum. Sérstök verđlaun voru veitt ţeirri skáksveit undir 8000 stigum sem bestum árangri náđ. Ţau komu í hlut Lightweight (Jóhann Ingvason, Örn Leó Jóhannson, Páll Andrason og Birkir Karl Sigurđsson) sem hlaut 29,5 v af 68 og 12. sćti af 18.

Jorge á leiđ til Bandaríkjanna

Tveir voru dregnir út til ađ tefla hrađskák ţar sem mikiđ var í húfi: Ferđ fyrir tvo til Bandaríkjanna međ Icelandair. Skákina tefldu Jorge Fonseca (2009) og Omar Salama (2294) og hafđi Jorge lítiđ eitt betri tíma til ađ vega upp stigamismuninn. Jorge tefldi feiknavel og tryggđi sér sigurinn og ferđ vestur um haf, en Omar fékk gjafabréf fyrir tvo á veitingastađnum VOX.

Frábćrt mót

Atskákmót Icelandair 2012 fór framúrskarandi vel fram og er ţegar orđiđ ómissandi hluti af skákmótaflórunni á Íslandi. Fyrirkomulagiđ reynir mjög á útsjónarsemi liđstjóra viđ ađ púsla saman liđum og svo mikiđ er víst ađ keppendur skemmtu sér hiđ besta. Óskar Long, skipulaggjandi mótsins á mikinn heiđur skiliđ fyrir ţá miklu vinnu sem ađ baki liggur!

Úrslit á Atskákmóti Icelandair (Chess Results)

Myndaalbúm (HJ og fleiri)


Fastir liđir eins og venjulega: Davíđ Íslandsmeistari í netskák

Davíđ skákFIDE-meistarinn Davíđ Kjartansson varđ í kvöld Íslandsmeistari í netskák ţriđja áriđ í röđ. Davíđ hefur veriđ einkar sigursćll um helgina en hann var í liđi Berserka sem sigrađi á Atskákmóti Skákklúbbs Icelandair sem verđur gerđ betur skil hér á Skák.is síđar. Arnar E. Gunnarsson og Ingvar Ţór Jóhannesson urđu í 2.-3. sćti. 45 skákmenn tóku ţátt og ţar af margir sem tefldu á Icelandair-mótinu.

Röđ efstu manna:

  • 1. Davíđ Kjartansson 7,5 v. af 9
  • 2.-3. Arnar E. Gunnarsson og Ingvar Ţór Jóhannesson 7 v.
  • 4. Lenka Ptácníková 6,5 v.
  • 5.-7. Omar Salama, Rúnar Sigurpálsson og Halldór Brynjar Halldórsson 6 v.
  • 8.-14. Guđmundur Gíslason, Jón Kristinsson, Sigurđur Ingason, Arnar Ţorsteinsson, Birgir Berndsen, Róbert Lagerman og Guđmundur Freyr Hansson 5,5 v.

Frekar úrslit verđa birt síđar sem og upplýsingar um aukaverđlaunahafa.


Hjörvar og Guđmundur međ jafntefli í Hastings - báđir í skiptu efsta sćti

Hjörvar í HastingsAlţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2516) og Guđmundur Kjartansson (2404) gerđu báđir jafntefli í 3. umferđ Hastings Chess Congress sem fram fór í dag. Báđir eru ţeir í efstir međ 2,5 vinning en ţađ hafa 11 ađrir skákmenn. Guđmundur gerđi jafntefli viđ enska stórmeistarann Keith Arkell (2470) en Hjörvar viđ enska alţjóđlega meistarann Jonathan Hawkins (2507).

Í 4. umferđ, sem fram fer á morgun gamlársdag teflir Guđmundur viđ enska stórmeistarann Nicholas Pert (2557) en Hjörvar viđ Englendinginn Rufus Duff (2114).

92 keppendur taka ţátt og ţar af 13 stórmeistarar. Hjörvar er nr. 10 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 19.


Héđinn fékk 4 vinninga í 6 skákum í bandarísku háskólakeppninni

Héđinn Steingrímsson ađ tafli í bandarísku háskólakeppninniStórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2560) tók ţátt í bandarísku háskólakeppninni á milli jóla og nýárs sem fram fór í Princeton í New Jersey. Ţar tefldi hann á fyrsta borđi fyrir háskólann Texas Tech ţar sem hann stundar MBA-nám.

Héđinn hlaut 4 vinning í 6 skákum. Áđur hefur komiđ fram hér á Skák.is hvernig honum gekk í fyrstu fjórum umferđum. Í 5. umferđ vann hann  Haizhou Zu (2370) en í sjöttu og síđustu umferđ gerđi hann jafntefli viđ stórmeistarann Margvelashvili (2607).

Sveit Héđins varđ í sjöunda sćti af 44 sveitum.


Öruggur sigur Hadda Bé

Halldór BrynjarÍ dag fór fram jólahrađskákmót Skákfélags Akureyrar og mćttu 13 skákmenn til leiks ţrátt fyrir hvimleitt veđur.  Halldór Brynjar Halldórsson fór á kostum og sigrađi nokkuđ örugglega.  Hann og lagđi alla andstćđinga sína í dag nema Sigurđ Arnarson sem lenti í öđru sćti tveimur vinningum á eftir Hadda Bé. Jón Kristinn Ţorgeirsson og Sigurđur Eiríksson urđu jafnir í 3.-4. sćti og Smári Ólafsson í ţví fimmta. Ţessir keppendur skáru sig nokkuđ úr í vinningafjölda.

Lokastađan varđ eftirfarandi:

  • Halldór Brynjar 11 vinningar af 12
  • Ziggi A (Eins og Spice Girls nefndu hann forđum) 9 vinningar
  • Jón Kristinn og Sigurđur E 8,5 vinningar
  • Smári Ólafs   8 vinningar
  • Símon og Einar G 5,5 vinningar
  • Haki og Sveinbjörn 5 vinningar
  • Andri Freyr 4 vinningar
  • Eymundur og Logi 3 vinninga
  • Ađalsteinn 2 vinningar

Frásögn tekin af heimasíđu Skákfélags Akureyrar.


Skákţáttur Morgunblađsins: Friđrik og Uhlmann tryggđu sigur "Handanna"

Friđrik teflir viđ HavlíkováÍ keppni sem vakti talsverđa athygli hér á landi og fram fór í Poderbrady í Tékklandi milli „Gamalla handa" og „Snjóflygsna" áttu sér stađ mögnuđ umskipti í seinni hálfleik. Lengst af benti flest til ţess ađ ţarna myndi enn eitt karlavígiđ falla. „Snjóflygsurnar", ţ.e. rússnesku skákkonurnar Valentina Gunina og Alina Kashlinskaya, tékkneska skákkonan Kristína Havlikova og indverska skákdrottning Tania Sachdev, tefldu af miklum styrk, einkum ţó hin undurfagra Tania sem náđi besta vinningshlutfalli keppenda, sex vinningum úr átta skákum og árangri upp á 2643 elo-stig.

Wolfgang Uhlmann og Friđrik Ólafsson, sem tefldu fyrir „Hendurnar" ásamt Vlastimil Hort og Oleg Romanishin, byrjuđu báđir illa og um tíma virtist mega afskrifa gamla Austur-Ţjóđverjann. Einhvers stađar úr blámóđu fjarskans heyrđist ţó hvíslađ ađ gamlir gćđingar fćru stundum hćgt af stađ. Í hálfleik var stađan 10:6 „Snjóflygsunum" vil og allt eins líklegt ađ ţćr ykju forskotiđ í seinni helmingi keppninnar. En viti menn: „Hendurnar" unnu nćstu viđureignir og söxuđu á forskotiđ. Fyrir lokaumferđina var svo jafnt, 14:14. „Snjóflygsurnar" stóđu ţó betur ađ vígi ţví ţćr höfđu hvítt í öllum skákum lokaumferđarinnar. Hafi ţađ ţađ veriđ taktík ţeirra ađ semja jafntefli gegn Hort og Romanisin og reyna síđan ađ vinna Friđrik og/eđa Uhlmann ţá mistókst ţađ hrapallega: Friđrik og Uhlmann unnu báđir og tryggđu sigur „Handanna" eđa góđborgaranna eins og einhver vildi kalla liđiđ, lokaniđurstađan 17:15. Hort og Romanishin fengu 4 ˝ v. af átta en Friđrik og Uhlmann 4 vinninga hvor. Félagar Friđriks í liđinu hafa allir teflt á Íslandi, Uhlmann á Fiske-mótinu 1968, Hort á Reykjavíkurskákmótinu 1972 og oft eftir ţađ en Romanishin var međ á Reykjavíkurmótinu áriđ 2004.

Ţrjár sigurskákir Friđriks í ţessari keppni voru vel tefldar. Í lokaumferđinni virtist stađan í jafnvćgi ţegar andstćđingi hans varđ á meinleg yfirsjón og Friđrik lét ekki tćkifćriđ sér úr greipum ganga:

Kristina Havlikova - Friđrik Ólafsson

Sikileyjarvörn - Alapin

1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c3 d5 4. e5 c5 5. h3 Rc6 6. Rf3 Bf5 7. Be2 cxd4 8. cxd4 Bxb1!?

Óvćntur leikur. Friđrik lćtur biskupapariđ af hendi og reynir ađ byggja upp trausta stöđu fyrir riddarana.

9. Hxb1 e6

Alls ekki 9. .... Da5+ 10. b4! Dxa2 11. Hb2 og drottningin hefur ratađ í mikil vandrćđi.

10. h4 h5 11. O-O

Hér var upplagt ađ leika 11. b4 ásamt b5 viđ tćkifćri og koma biskupnum fyrir á a3.

11. ... Rh6 12. Bd3 O-O 13. Bg5 Db6 14. Dd2 Rg4 15. Be2 Hac8 16. Hbc1 Hfe8

Taflmennska hvíts hefur veriđ alltof bitlaus og Friđrik hefur náđ ađ jafna tafliđ.

17. Hc3 Ra5 18. Hfc1 Hxc3 19. Dc3 Rc6 20. Bf4 a6 21. Bd3 Bh6 22. Bxh6 Rxh6 23. a3 a5 24. Dd2 Rg4 25. Bb1 Kg7 26. Hc3 He7 27. b3 Hc7 28. Re1??

Hér er kominn tapleikurinn. Tékkneska skákkonan lagđi ţá spurningu fyrir Friđrik hvort peđiđ á d4 vćri „eitrađ" eđur ei. Eftir dálitla umhugsun komst Friđrik ađ réttri niđurstöđu.

gguq3eqc.jpg28. ... Rxd4! 29. Hxc7 Dxc7 30. f3

Nú rann upp fyrir henni ljós ađ 30. Dxd4 er svarađ međ 30. ... Dc1! og vinnur manninn til baka. Ţessi leikur breytir engu.

30. ... Rxb3! 31. Dc2 Dxe5!

Ţar féll ţriđja peđiđ og fleiri eru á leiđinni. Hvítur gafst upp.

Helgi Ólafsson

helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 23. desember 2012

Skákţćttir Morgunblađsins


Guđmundur Gíslason er jólasveinn Hellis

Guđmundur Gíslason jólasveinn HellisGuđmundur Gíslason sigrađi á jólabikarmóti Hellis sem fram fór 28. desember sl. Guđmundur fékk 12,5v í 15 skákum og missti ađeins 2v niđur. Ţessir vinningar fóru í fyrri hluta mótsins. fyrst međ tapi fyrir Hallgerđi í 2. umferđ og svo međ jafnteflum í 5. og 6. umferđ gegn Erni Leó og Lenku. Eftir ţađ var Guđmundur alveg óstöđvandi og náđi forystunni eftir 9. umferđ af Stefáni Bergssyni sem sigrađi á mótinu á síđasta ári. Ađ lokum stóđu bara Guđmundur og Lenka Ptácniková eftir en stađ Guđmundar var betri međ eitt tap og tvö jafntefli en Lenka međ 3 töp og tvö jafntefli. Ţetta gaf Guđmundi fćri á ţví ađ afgreiđa málin strax sem hann gerđi međ ţví ađ vinna Lenku í lokaskák mótsins. Á međan tefldu Páll Andrason og Örn Leó Jóhannsson úrslitaskák um ţriđja sćtiđ og hefđi ţar Páll betur. 

Lokastađan

  • 1.    Guđmundur Gíslason                    12,5v/15
  • 2.    Lenka Ptácniková                         10v/15
  • 3.    Páll Andrason                                 9,5v/15
  • 4.    Örn Leó Jóhannsson                      8,5v/15
  • 5.    Oliver Aron Jóhannesson               7,5v/13
  • 6.    Jón Trausti Harđarson                    7,5v/13
  • 7.    Stefán Bergsson                            7v/12
  • 8.    Vignir Vatnar Stefánsson               6,5v/12
  • 9.    Stefán Már Pétursson                    6,5v/12
  • 10.  Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir    5,5v/11
  • 11.  Vigfús Ó. Vigfússon                        5,5v/11
  • 12.  Hjálmar Sigurvaldason                   5v/10
  • 13.  Elsa María Kristínardóttir                4,5v/10
  • 14.  Birkir Karl Sigurđsson                      4v/9
  • 15.  Kristófer Jóel Jóhannesson             4v/9
  • 16.  Eggert Ísólfsson                              4v/9
  • 17.  Andri Steinn Hilmarsson                  3v/8
  • 18.  Jóhanna Björg Jóhannsdóttir          2v/7
  • 19.  Björgvin Kristbergsson                    2v/7
  • 20.  Hörđur Jónasson                             2v/7
  • 21.  Arnar Ingi Pálsson                           1v/7

Guđmundur og Hjörvar unnu í 2. umferđ - Guđmundur vann sterkan stórmeistara

Guđmundur KjartanssonAlţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2516) og Guđmundur Kjartansson (2404) unnu báđir í annarri umferđ Hastings Chess Congress sem fram fór í dag. Guđmundur vann úkraínska stórmeistarann Andrey Sumets (2638), sem er nćststigahćstur keppenda en Hjörvar vann enska FIDE-meistarann Adam Ashton (2366). Ţeir hafa báđir fullt hús og eru efstir ásamt fjórum öđrum.

Í 3. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ enska stórmeistarann Keith Arkell (2470) en Hjörvar viđ enska alţjóđlega meistarann Jonathan Hawkins (2507).

92 keppendur taka ţátt og ţar af 13 stórmeistarar. Hjörvar er nr. 10 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 19.



Mikill Ţungi á Atskákmóti Skákklúbbs Icelandair

Skáksveitin "Ţunginn" er efst á Atskákmóti Skákklúbbs Icelandair ađ loknum fyrri degi mótsins sem fram fór í Hótel Natura (Loftleiđum) sem fram fór í dag. Berserkir koma í öđru sćti og Ísland er í 3. sćti. Mikil spenna er á mótinu en segja má ađ a.m.k. átta sveitir geti blandađ sér í toppbaráttuna.

Mótinu verđur framhaldiđ međ umferđum 10-17 á morgun.

 

Rk.TeamTB1TB2
1Ţunginn2715
2Berserkir25,515
3Ísland24,514
4Computer says no23,512
5Nansý og strákarnir2313
6Lagerman og lćrisveinarnir2212
7Vegheflar réttlćtisins2210
8Nemandinn og kennararnir ţrír228
9Felix og sveinar hans20,512
10Lightweight19,510
11Díonýsus18,59
12Bolvíkingar15,59
13Kvennaliđ158
14Zugzwang13,55
15Icelandair125
16KR sveitin10,53
17Bjartasta Vonin62
18Unglingasveitin3,50


Davíđ Kjartansson og Sveinn Ingi Sveinsson jólavíkingar Víkingaklúbbsins 2012

Davíđ Kjartansson sigrađi á Jólaskákmóti Víkingaklúbbsins sem fram fór í Billiard-barnum í gćr. Tómas Björnsson og Páll Agnar Ţórarinsson urđu í 2.-3. sćti. Sveinn Ingi Sveinsson vann svo Jólamótiđ í Víkingaskákinni.

Jólamót Víkingaklúbbsins

Place Name                 Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch. Progr.

  1   Davíđ Kjartansson                  7.5      31.0  37.5   39.0
 2-3  Tómas Björnsson                    6.5      31.0  38.5   34.0
      Páll Thórarainsson                 6.5      31.0  38.5   33.5
  4   Gunnar Rúnarsson                   6        31.5  39.0   30.0
  5   Ólafur Thorsson                    5.5      32.0  39.5   25.5
  6   Róbert Lagerman                    5        32.5  40.0   22.0
  7   Stefán Sigurjónsson                4        33.5  41.0   20.0
 8-9  Jón Árni Halldórsson               2        35.5  43.0   12.0
      Sturla Thórđarsson                 2        35.5  43.0    9.0
 10   Lárus Knútsson                     0        35.5  45.0    0.0

Jólamótiđ í Víkingaskák
 
Place Name                 Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch. Progr.

  1   Sveinsson, Sveinn                  4.5       7.0  10.5   12.5
  2   Björnsson, Tómas                   3.5       7.0  11.5   10.5
  3   Sigurjónsson, Stefán               3         7.5  12.0    8.0
 4-5  Rúnarsson, Gunnar                  2         8.5  13.0    7.0
      Thórsson, Ólafur                   2         8.5  13.0    7.0
  6   Halldórsson, Jón                   0         8.5  15.0    0.0

 


Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 325
  • Frá upphafi: 8763715

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 159
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband