Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2013

Opna Íslandsmótiđ í skák - mikiđ um óvćnt úrslit í fyrstu umferđ

2013 05 31 19.02.49Opna Íslandsmótiđ í skák byrjađi heldur betur međ látum. Mikiđ um óvćnt úrslit og bar ţađ helst til tíđinda ađ Loftur Baldvinsson vann alţjóđlega meistarann Braga Ţorfinnsson međ glćsilegri fléttu. Feđginin Magnús Kristinsson og Veronika Steinunn byrjuđu einnig vel. Magnús gerđi jafntefli viđ FIDE-meistarann Ţorstein Ţorsteinsson en Veronika vann stórmeistarabanann Stefán Bergsson.

Hinn ungi og efnilegi Felix Steinţórsson gerđi jafntefli viđ2013 05 31 20.17.17 Ţór Valtýsson og annar ungur og efnilegur skákmađur Bárđur Örn Birkisson gerđi jafntefli viđ Nökkva Sverrisson. Björgvin Kristbergsson gerđi sér svo lítiđ fyrir og gerđi jafntefli viđ landsliđskonuna Tinnu Kristínu Finnbogadóttur. 

Ţađ var Illugi Gunnarsson, menntamálaráđherra, sem setti mótiđ sem fram fer á efstu hćđinni í Turninum í Borgartúni (Höfđatorg). Illuga var tíđrćtt um skákkennslu í grunnskólum en ráđuneyti hans hefur einmitt ýtt úr vör verkefninu Skák eflir skóla sem hefst í völdum grunnskólum 2013 05 31 19.59.22í haust. Ađ setningu lokinni lék Illugi fyrsta leikinn fyrir stigahćsta keppenda mótsins, Héđin Steingrímsson e2-e4 gegn Jóni Úlfljótssyni. Héđinn vann skákina rétt og hinir íslensku stórmeistararnir sem allir unnu. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem er nćststigahćstur keppenda, vann landsliđskonuna Elsu Maríu Kristínardóttir.

Tvćr umferđir fara fram á morgun. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síđari kl. 17. Áhorfendur eru velkomnir á stađinn en góđar ađstćđur er fyrir áhorfendur á skákstađ auk einstaks útsýnis.


Íslandsmótiđ í skák hefst í dag kl. 17 í Turninum Borgartúni - 100 ára afmćli fagnađ

Skáksamband ÍslandsÍslandsmótiđ í skák hefst í dag klukkan 17. Mótiđ á hundrađ ára afmćli í ár en Skákţing Íslendinga - eins og mótiđ hét í upphafi, var fyrst haldiđ áriđ 1913. Taflfélag Reykjavíkur hélt mótiđ fystu árin en Skáksamband Íslands tók viđ mótinu tveimur árum eftir stofnun ţess - eđa áriđ 1927. 

Í tilefni ţessa merka afmćlis er mótiđ nú međ óvenjulegi sniđi. Ţađ er opiđ í fyrsta skipti og í fyrsta Hjörvar2skipti í hundrađ ára sögu mótsins tefla allir í sama flokki. Mótiđ er einnig Íslandsmót kvenna. Ríflega 70 keppendur eru skráđir til leiks. Teflt er viđ einstakar ađstćđur  á 20. hćđinni í Turninum viđ Borgartún (Höfđatorg). Menntamálaráđherra, Illugi Gunnarsson, setur mótiđ og leikur fyrsta leik ţess. Skákáhugamenn eru hvattir til ađ fjölmenna viđ setningu mótsins.

Mótiđ er mjög sterkt. Langt er síđan ţađ hefur veriđ svo vel skipađ en nánast allir sterkustu virku skákmenn landsins taka ţátt. Međal keppenda eru stórmeistararnir Héđinn SteingrímssonHannes Hlífar StefánssonHenrik Danielsen og Stefán Kristjánsson og alţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson, sem varđ tvítugur í dag, Bragi ŢorfinnssonGuđmundur Kjartansson og Sćvar Bjarnason.

Bragi ŢorfinnssonHannes er ellefufaldur Íslandsmeistari í skák, sá langsigursćlasti í íslenskri skáksögu en titlana vann hann á tímabilinu 1998-2010. Héđinn Steingrímsson hefur orđiđ tvisvar sinnum Íslandsmeistari. Í fyrra sinniđ áriđ 1990 ţegar hann sigrađi á Höfn í Hornafirđi, ţá ađeins 15 ára, sem er aldursmet sem enn stendur. Henrik Danielsen vann mótiđ 2009. Ađrir keppendur á mótinu hafa ekki orđiđ Íslandsmeistarar í skák.

Núverandi Íslandsmeistari Ţröstur Ţórhallson tekur ekki ţátt í mótinu enda hćttur atvinnumennsku í skák.

Fyrsti Íslandsmeistarinn í skák var Pétur Zóphóníasson sem hélt Pétur Zópreyndar titilinum til ársins 1917. Ţess má geta ađ barnabarnabarnabarn Péturs, Vignir Vatnar Stefánsson, er međal keppenda. Alls hafa 35 hampađ titlinum. Nćstir á eftir Hannesi eru Eggert Gilfer og Baldur Möller međ sjö titla hvor. Ásmundur Ásgeirsson, Friđrik Ólafsson og Helgi Ólafsson eru sexfaldir meistarar, áđurnefndur Pétur og Jóhann Hjartarson fimmfaldir meistarar og Ingi R. Jóhannsson vann titilinn fjórum sinnum.
 
Íslandsmót kvenna var hins vegar fyrst haldiđ áriđ 1975.  Ţá sigrađi Guđlaug Ţorsteinsdóttir á mótinu, ađeins fjórtán ára. Ţrettán konur hafa orđiđ Íslandsmeistarar kvenna. Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir langoftast eđa ellefu sinnum, Guđlaug er nćst međ sex sigra og Lenka Ptácníková hefur unniđ titilinn fjórum sinnum.
 
Hallgerđur og Tinna fengu pils og slćđu til ađ fela bera hluti!Ţađ sama á viđ Íslandsmót kvenna og sjálft Íslandsmótiđ. Nánast allar sterkustu virku skákkonur landsins taka ţátt. Auk Lenku, sem er núverandi Íslandsmeistari kvenna, má nefna Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur, Tinnu Kristínu Finnbogadóttur, Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur, Elsu Maríu Kristínardóttur, Sigríđi Björg Helgadóttur, Hrund Hauksdóttur og Veroniku Steinunni Magnúsdóttur. Af ţeim sem taka ţátt núna hafa ţrjár orđiđ Íslandsmeistarar. Lenka fjórum sinnum á tímabilinu 2006-2012; Hallgerđur Helga sem varđ Íslandsmeistari kvenna kvenna 2008 og Elsa María sem hampađi titlinum áriđ 2011.
 
Mótiđ fer fram alla daga frá föstudeginum 31. maí til laugardagsins 8. júní. Tefldar eru tíu umferđir. Hćgt verđur ađ fylgjast međ gangi mála á Skák.is og á vefsíđu mótsins, http://www.icelandicopen.com/.

Skákfélag Vinjar sigrar á Íslandsmóti Víkingaskákfélaga 2013

Vinjarmenn Íslandsmeistarar VíkingaskákfélagaSkákvertíđ Víkingaskákmanna lauk miđvikudaginn 28. maí í Víkinni Víkingsheimilinu  ţegar fjórđa Íslandsmeistaramót Víkingaskákfélaga fór fram.  Fimm mjög jöfn liđ áttu kappi í hörkukeppni, en Íslandsmeistarar síđasta árs Forgjafarklúbburinn (Gunnar Fr. Rúnarsson, Stefán Sigurjónsson og Halldór Ólafsson) freistuđu ţess ađ verja titilinn frá 2012.  Leikar fóru ţannig ađ Skákfélag Vinjar sigrađi, en í síđustu umferđ skildi ađeins einn vinningur 3. efstu liđin.  

Ingi Tandri Traustason og Jón Birgir Einarsson í Vin fengu borđaverđlaun fyrir árangur sinn á 1. og 2. borđi.  Vin tryggđi sér Íslandsmeistaratitilinn međ  ţví ađ sigra Forgjafarklúbburinn í síđustu umferđ, međan Víkingaklúbburinn gerđi jafntefli viđ Hrókinn.

Ţetta er í fyrsta skiptiđ sem Vin verđur Íslandsmeistari í Víkingaskák, en  ţeir hafa tekiđ  ţátt síđan 2010. 

 Lokastađan:

1. Skákfélag Vinjar 8 af 10
2. Víkingaklúbburinn 7.5 v.
3-4. Forgjafarklúbburinn 5.5.
3-4. Hrókurinn 5.5 v.
5. Vinir Sigurgeirs Carlssonar 4.5 v.
6. Skotta 0.0 v.

Íslandsmeistari:  Skákfélag Vinjar.

Besti árangur á hverju borđi:

1. borđ:  Ingi Tandri Traustason (Vin) 4. v af 5
2. borđ:  Jón Birgeir Einarsson (Vin) og Ţorvarđur Fannar (Víkingaklúbbnum) 4. v. af 5.
3. borđ:  Halldór 'Olafsson (Forgjafarklúbburinn) 2.5 v af 4.

Sveitirnar skipuđu eftirfarandi skákmenn:

Víkingaklúbburinn: Sigurđur Ingason, Thorvarđur Fannar
Forgjafarklúbburinn: Stefán Ţ. Sigurjónsson, Ólafur B. Thórsson & Halldór Ólafsson.
Vin: Ingi Tandri Traustason, Jón Birgir Einarsson.
Hrókurinn:  Arnar Valgeirsson, Marteinn Jónsson.
Vinir Sigurgeirs Carlssonar:  Gunnar Fr. Rúnarsson, Ţorgeir Einarsson

Heimasíđa Víkingaklúbbsins


Helgi og Davíđ landsliđseinvaldar fram til 2015

Helgi Ólafsson - mjög kátur!Á síđasta ađalfundi SÍ var lögum breytt ţannig ađ landsliđseinvaldar velja landsliđ Íslands bćđi í opnum- og kvennaflokki. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SÍ var fyrri ákvörđun landsliđsnefndar stađfest ţađ er ađ Helgi Ólafsson yrđi landsliđseinvaldur í opnum flokki og Davíđ Ólafsson í Davíđ Ólafsson - sigurvegari mótsinskvennaflokki. Ráđningar beggja gilda fram yfir EM landsliđa 2015, ţ.e. fyrir EM landsliđa EM í Varsjá í haust, Ólympíuskákmótiđ í Tromsö í Noregi á nćsta ári og EM landsliđa í Reykjavík 2015.

Stjórn SÍ fagnar ţví mjög ađ ţessir tveir hafi tekiđ ţetta hlutverk ađ sér enda báđir náđ góđum árangri međ landsliđin síđan ţeir tóku viđ ţeim áriđ 2010.

 


Coca Cola-mót SA fer fram í kvöld

Síđasta stórmót vortíđar Skákfélags Akureyrar hiđ nafntogađa Coca-Colamót verđur háđ nk. fimmtudag 30. maí. Öllum heimil ţátttaka. (Enginn leikur í Pespi-deildinni ţetta kvöld). Tafliđ hefst kl. 20.


Íslandsmótiđ í skák hefst á föstudag - haldiđ upp á 100 afmćli mótsins

Skáksamband ÍslandsÍslandsmótiđ í skák hefst á föstudaginn klukkan 17. Mótiđ á hundrađ ára afmćli í ár en Skákţing Íslendinga - eins og mótiđ hét í upphafi, var fyrst haldiđ áriđ 1913. Taflfélag Reykjavíkur hélt mótiđ fystu árin en Skáksamband Íslands tók viđ mótinu tveimur árum eftir stofnun ţess - eđa áriđ 1927. 

Í tilefni ţessa merka afmćlis er mótiđ nú međ óvenjulegi sniđi. Ţađ er opiđ í fyrsta skipti og í fyrsta hedinnskipti í hundrađ ára sögu mótsins tefla allir í sama flokki. Mótiđ er einnig Íslandsmót kvenna. Nú tveimur dögum fyrir mót eru ríflega 70 keppendur skráđir til leiks. Teflt er viđ einstakar ađstćđur  á 20. hćđinni í Turninum viđ Borgartún (Höfđatorg). Menntamálaráđherra, Illugi Gunnarsson, setur mótiđ og leikur fyrsta leik ţess. 

Mótiđ er mjög sterkt. Langt er síđan ţađ hefur veriđ svo vel skipađ en nánast allir sterkustu virku skákmenn landsins taka ţátt. Međal keppenda eru stórmeistararnir Héđinn SteingrímssonHannes Hlífar StefánssonHenrik Danielsen og Stefán Kristjánsson og alţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson, sem varđ tvítugur í dag, Bragi og Björn ŢorfinnssynirGuđmundur Kjartansson og Sćvar Bjarnason.

Stefán og HannesHannes er ellefufaldur Íslandsmeistari í skák, sá langsigursćlasti í íslenskri skáksögu en titlana vann hann á tímabilinu 1998-2010. Héđinn Steingrímsson hefur orđiđ tvisvar sinnum Íslandsmeistari. Í fyrra sinniđ áriđ 1990 ţegar hann sigrađi á Höfn í Hornafirđi, ţá ađeins 15 ára, sem er aldursmet sem enn stendur. Henrik Danielsen vann mótiđ 2009. Ađrir keppendur á mótinu hafa ekki orđiđ Íslandsmeistarar í skák.

Núverandi Íslandsmeistari Ţröstur Ţórhallson tekur ekki ţátt í mótinu enda hćttur atvinnumennsku í skák.

Fyrsti Íslandsmeistarinn í skák var Pétur Zóphóníasson sem hélt reyndar titilinum til ársins 1917. Henrik DanielsenŢess má geta ađ barnabarnabarnabarn Péturs, Vignir Vatnar Stefánsson, er međal keppenda. Alls hafa 35 hampađ titlinum. Nćstir á eftir Hannesi eru Eggert Gilfer og Baldur Möller međ sjö titla hvor. Ásmundur Ásgeirsson, Friđrik Ólafsson og Helgi Ólafsson eru sexfaldir meistarar, áđurnefndur Pétur og Jóhann Hjartarson fimmfaldir meistarar og Ingi R. Jóhannsson vann titilinn fjórum sinnum.
 
Íslandsmót kvenna var hins vegar fyrst haldiđ áriđ 1975.  Ţá sigrađi Guđlaug Ţorsteinsdóttir á mótinu, ađeins fjórtán ára. Ţrettán konur hafa orđiđ Íslandsmeistarar kvenna. Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir langoftast eđa ellefu sinnum, Guđlaug er nćst međ sex sigra og Lenka Ptácníková hefur unniđ titilinn fjórum sinnum.
 
Lenka PtácníkóváŢađ sama á viđ Íslandsmót kvenna og sjálft Íslandsmótiđ. Nánast allar sterkustu virku skákkonur landsins taka ţátt. Auk Lenku, sem er núverandi Íslandsmeistari kvenna, má nefna Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur, Tinnu Kristínu Finnbogadóttur, Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur, Elsu Maríu Kristínardóttur, Sigríđi Björg Helgadóttur, Hrund Hauksdóttur og Veroniku Steinunni Magnúsdóttur. Af ţeim sem taka ţátt núna hafa ţrjár orđiđ Íslandsmeistarar. Lenka fjórum sinnum á tímabilinu 2006-2012; Hallgerđur Helga sem varđ Íslandsmeistari kvenna kvenna 2008 og Elsa María sem hampađi titlinum áriđ 2011.
 
Mótiđ fer fram alla daga frá föstudeginum 31. maí til laugardagsins 8. júní. Tefldar eru tíu umferđir. Hćgt verđur ađ fylgjast međ gangi mála á Skák.is og á vefsíđu mótsins, http://www.icelandicopen.com/.

Ólafur Guđmarsson atskákmeistari Austurlands

Sverrir Gestsson, Ólafur Guđmarsson og Viđar JónssonAtskákmeistaramót Austurlands fór fram á Egilsstöđum 26. maí sl. Atskákmeistari Austurlands varđ Ólafur Guđmarsson, Reyđarfirđi en hann hlaut 6 vinninga í 7 skákum. Annar varđ Sverrir Gestsson, Egilsstöđum, međ 5 vinninga og ţriđji varđ Viđar Jónsson, Stöđvarfirđi, međ 4 vinninga.

Heimasíđa SAUST


Lokadagur í Ásgarđi í dag

ĆSIR   hrađskákmótiđ   efstu menn  2113x1135Ćsir í Ásgarđi  tefldu sitt síđasta skákmót á ţessari vetrarskákvertíđ í dag. Ţeir enduđu međ vorhrađskákmóti ţar sem ţrjátíu skák öđlingar mćttu til leiks. Tefldar voru níu umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Jóhann Örn Sigurjónsson vann ţađ međ glćsibrag, fékk 8˝ vinning

Í öđru sćti varđ Sćbjörn G Larsen međ 7 vinninga. Síđan komu ţrír jafnir međ 6˝ vinning. Ţađ voru ţeir Guđfinnur R Kjartansson, Ari Stefánsson og Björn V Ţórđarson. Guđfinnur var međ flest stig ţannig ađ hann fékk bronsiđ.

Ţá voru veitt verđlaun fyrir bestan árangur samanlagt á öllum skákdögum vetrarins. Guđfinnur R ĆSIR  Vetrarhrókarnir   ese 2487x1534Kjartansson var ţar langefstur međ 188 vinninga í 250 tefldum skákum sem telst vera 75% vinningshlutfall. Guđfinnur er ţví Vetrarhrókur ţessa skákvetrar, í verđlaun fékk hann gullpening og bikar. Vetrarhrókur nr. 2 varđ Ţorsteinn Guđlaugsson međ 166˝ vinning í 290 tefldum skákum sem er 57% vinningshlutfall.Vetrarhrókur nr 3 varđ svo Valdimar Ásmundsson međ 166 vinninga  í 280 skákum sem er 59 % vinningshlutfall. Fast á hćla ţessum kom svo Haraldur Axel Sveinbjörnsson međ 165˝ vinning. Haraldur hefur veriđ Vetrarhrókur nr. 1 síđastliđin ţrjú ár.

Viđ verđum svo í sumarfríi til ţriđja september nk. ţá byrjar dagskrá nćsta vetrar.

Skákglöđum öldungum er bent á ađ Riddararnir fara ekkert í sumarfrí ţeir tefla alla miđvikudaga  viđ Hafnarfjarđarkirkju og upplagt ađ skreppa ţangađ ef okkur klćjar í skákfingurna.

Myndaalbúm (ESE)

Úrslit dagsins

 

_sir_28_mai.jpg

 


Skákir Íslandsmótsins í atskák

Arnar í viđtali viđ StefánIngvar Ţór Jóhannesson annar skákskýrenda Íslandsmótsins í atskák hefur slegiđ inn skákirnar ţrjár úr úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í atskák.

Eins og áđur hefur komiđ fram, vann Arnar fyrstu skákina međ svörtu, Davíđ jafnađi metin međ svörtu en svo vann Arnar bráđabanaskákina.

Útsending RÚV

 


Íslandsmót Víkingaskákfélaga fer fram á morgun

Fjórđa Íslandsmót Víkingaskákfélaga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu ţriđjudaginn 28. mai og hefst taflmennska kl. 19.30.  Ţegar hafa nokkur liđ skráđ sig til leiks, en einnig er vonast eftir ađ Skákfélag Íslands og Fjölnir skrái sig til leiks.  Liđin verđa skipuđ ţriggja manna sveitum auk varamanna og eru tímamörk 15. mínútur á skákina.  

Búist er viđ hörku barátu jafnra liđa um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn í Víkingaskák, en teflt verđur um stóran farandbikar og eignarbikar auk ţess sem veitt verđa sérstök verđlaun fyrir árangur á hverju borđi. Ţeir sem ekki eru skráđir í liđ geta komiđ og fengiđ ađ tefla međ ţeim liđum sem skráđ eru til leiks.  Bođiđ er upp á veitingar á stađnum.  Áhugasamir sendi skráningu á gunnarrunarsson(hjá)gmail.com.

 Ţau liđ sem hafa skráđ sig til leiks eru:

1. Víkingaklúbburinn (liđstjóri: Sigurđur Ingason)
2. Forgjafarklúbburinn (liđstjóri: Halldór Ólafsson)
3. Skákfélag Vinjar (liđstjóri: Arnar Valgeirsson)
4. Guttormur Tutti (liđstjóri: Ţorgeir Einarsson)

Skákstjóri verđur Haraldur Baldursson.

Sigurvegarar frá upphafi:

2010:  Víkingaklúbburinn
2011:  Víkingaklúbburinn
2012;  Forgjafarklúbburinn
2013:  ?????


Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 20
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 334
  • Frá upphafi: 8763724

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 168
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband