Leita í fréttum mbl.is

Henrik međ fullt hús eftir 3 umferđ - mćtir Cheparinov á morgun

Henrik Danielsen

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2511) vann Jesper Schultz-Pedersen (2172) í 3. umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.  Henrik hefur fullt hús vinninga ásamt 25 öđrum skákmönnum. 

Í 4. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Henrik viđ búlgarska stórmeistarann Ivan Cheparinov (2677).  Umferđin hefst kl. 11.  Skákin verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins.

292 skákmenn taka ţátt frá 24 löndum.  Ţar á međal eru 22 stórmeistarar.  Henrik er nr. 19 í stigaröđ keppenda.

Dagur međ annađ jafntefli viđ stórmeistara

Dagur Arngrímsson

Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2366) gerđi jafntefli viđ rúmenska stórmeistarann Vlad-Christian Jianu (2507) í 4. umferđ alţjóđlega mótsins í Arad í Rúmeníu sem fram fór í dag.  Dagur gerđi tvö jafntefli viđ stórmeistara í dag.  Dagur hefur 3 vinninga og er í 15.-48. sćti.

Í fimmtu umferđ, sem fram fer á morgun teflir Dagur viđ Rúmenann Mihai Pachia (2092).  Skákin er sýnd beint á vefsíđu mótsins og hefst kl. 13:30.

183 skákmenn taka ţátt í mótinu frá 9 löndum.  Ţar á međal eru 11 stórmeistarar og 11 alţjóđlegir meistarar.  Dagur er nr. 22 í stigaröđ keppenda.

Skákţáttur Morgunblađsins: Bragi vann opna skoska meistaramótiđ

 

Bragi Ţorfinnsson međ sigurverđlaunin á opna skoska

Níu íslenskir skákmenn tóku ţátt í opna skoska meistaramótinu sem fram fór í Glasgow í Skotlandi dagana 7.-15. júlí. Ţó Skotar hafi aldrei komiđ sér upp skákmanni sem eitthvađ hefur kveđiđ ađ, hafa ţeir löngum haft orđ á sér fyrir ađ vera býsna úrrćđagóđir á skáksviđinu og er ţađ alveg í takt viđ ţjóđarkarakterinn. Og sennilega getum viđ lćrt eitthvađ af ţeim hvađ varđar mikla natni viđ tölfrćđi skákarinnar. Heimasíđa mótsins gat ţess skilmerkilega ađ opna skoska meistaramótiđ hefđi veriđ haldiđ allar götur síđan 1884, og einungis falliđ niđur vegna heimsstyrjaldanna, og er ţví elsta skákmót sem um getur. Ţess má geta ađ hiđ fornfrćga skákmót í Hastings fór fyrst fram áriđ 1895.

 

Íslenski hópurinn sem tefldi í Glasgow stóđ sig vel en athyglin beindist vitanlega mest ađ stigahćstu skákmönnunum, ţeim Hjövari Steini Grétarssyni og Braga Ţorfinnssyni. Báđir hafa ţeir veriđ á fljúgandi siglingu undanfariđ en ađ ţessu sinni stal Bragi senunni, hlaut 7 vinninga af níu mögulegum og varđ í efsta sćti ásamt fjórum öđrum skákmönnum. Hjörvar hlaut 6 vinninga og varđ í 11.-19. sćti.

Flestir ađrir íslensku keppendurnir stóđu sig vel: Róbert Lagerman fékk 5 ˝ vinning, Eyjamađurinn Nökkvi Sverrisson hlaut 5 vinninga, Mikael Jóhann Karlsson, Jón Trausti Harđarson og Emil Sigurđarson fengu allir 4 ˝ vinning, Birkir Karl Sigurđsson fékk 3 ˝ vinning og Óskar Long hlaut 2 ˝ vinning. Jón Trausti, Nökkvi og Emil hćkkuđu sig allir um á bilinu 31-39 elo-stig og Bragi bćtti stigatölu sína umtalsvert međ árangur upp á 2575 stig.  

Hann kom aftur inn í íslenska landsliđiđ fyrir ÓL í Khanty Manyisk áriđ 2010 og var lykilmađur í ţeirri sveit. Á ţessu ári hefur hann orđiđ efstur á Skákţingi Reykjavíkur og Skákţingi Íslands og stóđ sig frábćrlega vel framan af á Reykjavíkurskákmótinu. Í eftirfarandi skák sem hann tefldi í 5. umferđ náđi hann ađ leggja indverskan stórmeistara ađ velli eftir nokkra hnitmiđađa leiki:

Opna skoska, Glasgow 2012:

Bragi Ţorfinnsson - Deep Sengupta ( Indland )

Slavnesk vörn

1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 c6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bb4 6. e3 b5 7. Bd2 a5 8. axb5 Bxc3 9. Bxc3 cxb5 10. b3 Bb7 11. bxc4 b4 12. Bb2 Rf6 13. Bd3 Rbd7 14. O-O O-O 15. Rd2

Í hvassri byrjun sem Shirov og ýmsir fleiri gerđu vinsćla velur Bragi rólegt framhald. Algengara er 15. He1.

15. ... h6

Einkennilegur leikur, 15. ... He8 međ hugmyndinni 16. ... e5 er eđlilegra.

16. Bc2 Dc7 17. f3 Hfe8 18. Kh1 e5 19. d5?!

Og ţessi leikur heppnast vegna ţess ađ Indverjinn uggir ekki ađ sé.

19. ... Ba6?

Mun betra var 19. ... Rc5 eđa 19. .. Rb6 og svartur má vel viđ stöđu sína una.

20. Ba4! He7 21. f4 exf4 22. exf4 Db6 23. Bc6 Bb7

g9qpcjc0.jpg(SJÁ STÖĐUMYND )

24. c5!

Óţćgilegur hnykkur, hvítur leikur peđinu ofan í „ţrćlvaldađa reitinn". Ţetta geta menn lćrt af Kasparov. Hvítur hefur nú atburđarásina í hendi sér.

24. ... Rxc5 25. Bxf6 gxf6 26. Dg4+ Kf8 27. Dh4! Kg7

27. ... Kg7 stođar lítt. Hvítur vinnur eftir 28. Dxh6+ Ke8 29. Rc4! Dc7 30. Dxc6 Dxc6 31. Re5! Sem hótar máti á h8 og drottningunni.

28. Hf3 Hg8 29. Hg3 Kh7 30. Hh3

- og svartur gafst upp, 30. ... Hg6 er svarađ međ 31. f5 o.s.frv.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

-------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 22. júlí 2012.

Skákţćttir Morgunblađsins


Wang Hao efstur í Biel

Kínverski stórmeistarinn (2739) er efstur međ 13 stig ađ lokinni sjöttu umferđ ofurmótsins í Biel sem nú er í fullum gangi. Hollenski undradrengurinn Anish Giri (2696) er annar međ 11 stig. Stigahćsti skákmađur heims, Magnus Carlsen (2837), er ţriđji međ...

Hjörvar međ jafntefli í lokaumferđinni - hársbreidd frá stórmeistaratitli

Alţjóđlegi meistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2507), gerđi jafntefli viđ ţýska stórmeistarann og landsliđsmanninn Rainer Buhmann (2571) í 9. og síđustu umferđ Czech Open sem fram fór í gćr. Hjörvar var hársbreidd frá sínum lokaáfanga ađ...

Dagur međ jafntefli viđ stórmeistara í 3. umferđ

Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2366) gerđi jafntefli viđ ungverska stórmeistarann Imre Balog (2542) í 3. umferđ alţjóđlega mótsins í Arad í Rúmeníu. Dagur hefur 2,5 vinning og er í 14.-30. sćti. Í dag eru tefldar 2 umferđir. Í 4. umferđ, sem nú...

Henrik međ sigra í tveimur fyrstu umferđunum

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2511) vann sínar skákir í 1. og 2. umferđ Politiken Cup sem fram fóru í gćr og í dag. Í gćr vann Svíann Eric Nordin (1906) en í morgun vann hann Danann Mikael Skjoldager (2077). Í dag eru tefldar 2 umferđir. Í 3. umferđ,...

Afmćlismót Don Roborto fer fram á morgun

Góđur vinur Skákfélags Vinjar, Róbert Lagerman, verđur heiđrađur á mánudaginn 30. júlí međ veglegu móti. Fer ţađ fram í Vin, Hverfisgötu 47 og hefst klukkan 13:15. Róbert hefur í fjölmörg ár komiđ viđ á mánudögum og leiđbeint bćđi byrjendum og lengra...

Dagur vann í 2. umferđ - alvaran hefst á morgun

Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2366) vann Arghir Bonte (1986) í 2. umferđ alţjóđlega mótsins í Arad í Rúmeníu sem fram fór í morgun. Dagur er međal 37 keppenda sem hafa fullt hús. Tvćr umferđir fara fram á morgun. Segja má ađ ţá hefjist alvaran...

Henrik í beinni frá Politiken Cup kl. 12

Í dag hefst opna skákmótiđ Politiken Cup sem haldiđ er í nágrenni Kaupmannahafnar, Helsingör. Međal keppenda er Henrik Danielsen (2511). Í fyrstu umferđ, sem hefst núna kl. 12 teflir Henrik viđ Svíann Eric Nordin (1906). Henrik er eini Íslendingurinn sem...

Hjörvar međ jafntefli í dag - er í 4.-15. sćti fyrir lokaumferđina

Alţjóđlegi meistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2507), gerđi jafntefli viđ hinn unga og efnilega Ísraela, Nitzan Steinberg (2326), sem er ađeins 14 ára, í áttundu og nćstsíđustu umferđ Czech Open sem fram fór í dag. Hjörvar hefur 6 vinninga og er í...

Ćrsladraugur í Pardubice? - Pistill frá Steinţóri Baldurssyni

Upp hafa komiđ umrćđur hvort Ćrsladraugur sé mögulega kominn á stjá í skákhöllinni í Pardubice. Ćrsladraugar eins og menn kannski muna eru sagđir vera húsdraugar sem gera skarkala, hreyfa hluti úr stađ og sem valda ýmsum óútskýranlegum atvikum innanhúss....

Don Roberto í hálfa öld!

Góđur vinur Skákfélags Vinjar, Róbert Lagerman, verđur heiđrađur á mánudaginn 30. júlí međ veglegu móti. Fer ţađ fram í Vin, Hverfisgötu 47 og hefst klukkan 13:15. Róbert hefur í fjölmörg ár komiđ viđ á mánudögum og leiđbeint bćđi byrjendum og lengra...

Hrađskákkeppni taflfélaga: Akureyringar og Mátar mćtast

Í kvöld var dregiđ í forkeppni og fyrstu umferđ Hrađskákkeppni taflfélaga. Hvorug tveggja á ađ vera lokiđ eigi síđur en 15. ágúst nk. Allmikiđ er um spennandi viđureignir og má ţar nefna ađ Taflfélag Vestmannaeyja og Víkingaklúbburinn mćtast í...

Dagur vann í fyrstu umferđ í Arad

Í dag hófst alţjóđlegt mót í Arad í Rúmeníu. Međal keppenda er alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2366). Dagur vann stigalágan andstćđing (1845) í fyrstu umferđ. Hann mćtir öđrum stigalágum andstćđingi (1986) á morgun. 183 skákmenn taka ţátt í...

Ísbílsmótiđ - Hjörvar í beinni

Mikil skákhátíđ fer fram í dag í Sumarskákhöll Skákakademíunnar . Venju samkvćmt verđur hádegishrađskákmót sem hefst 12:00. Ađ ţessu verđur ekki teflt um annađ en heiđurinn -- en um mitt mót mun Ísbíllinn renna upp ađ Skákhöllinni og keppendur kćla sig...

Hjörvar og Hannes međ jafntefli - Hjörvar í 2.-10. sćti

Alţjóđlegi meistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2507), gerđi jafntefli viđ stórmeistarann Rustam Knusnutdinov (2503), frá Kasakstan, í sjöundu umferđ Czech Open sem fram fór í dag. Hjörvar hefur 5,5 vinning og er í 2.-10. sćti. Á morgun teflir Hjörvar...

Hjörvar vann Robert Hess - er í 2.-5. sćti

Alţjóđlegi meistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2507), gerđi sér lítiđ fyrir og vann bandaríska landsliđsmanninn og Íslandsvininn Robert Hess (2639) međ svörtu í sjöttu umferđ Czech Open sem fram fór í dag. Hjörvar hefur nú 5 vinninga og er í 2.-5....

Guđfinnur bar sigur úr bítum

RIDDARAR REITAĐA BORĐSINS hittast til tafls jafnt sumar sem vetur og láta ekki deigan síga ţótt sól skíni í heiđi. Ađ etja kappi í skáktafli er mun skemmtilegri iđja finnst flestum en ađ reita arfa. Líka má segja ađ sumir hverjir hinna öldnu skákmanna...

Giri efstur í Biel - Morozevich hćttur á mótinu

Hollenski stórmeistarinn Anish Giri (296) er efstur á ofurskákmótinu í Biel eftir sigur á Bacrot (2713) í dag. Giri hefur 7 stig (2˝ vinning). Kínverjinn Wang Hao (2739) er annar međ 6 stig (2 stig) en hann vann Nakamura (2778) í dag. Stćrstu fréttir...

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 72
  • Sl. sólarhring: 106
  • Sl. viku: 351
  • Frá upphafi: 8780074

Annađ

  • Innlit í dag: 51
  • Innlit sl. viku: 224
  • Gestir í dag: 50
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband