Fćrsluflokkur: Spil og leikir
29.4.2018 | 11:48
Vignir Vatnar, Gunnar Erik og Sara Sólveig unnu Rótarý-bikarana á Sumarskákmóti Fjölnis
Sumarskákmót Fjölnis var haldiđ međ glćsibrag og 44 flottum ţátttakendum á öllum grunnskólaaldri. Helmingur skákkrakkanna voru ćfingafélagar í Fjölni en margir af sterkustu skákkrökkum landsins á grunnskólaaldri mćttu í Grafarvoginn til ađ vera međ á skemmtilegu skákmóti og til ađ nćla sér í glćsileg verđlaun. Mótiđ gekk afar vel fyrir sig undir stjórn ţeirra félaga Helga formanns skákdeildar Fjölnis og Kristjáns Arnar skákfrömuđar. Tefldar voru sex umferđir og mótiđ var ţví jafnt og spennandi allan tímann. Rótarýklúbbur Grafarvogs er ađ vanda góđur stuđningsađili Sumarskákmótsins og ţađ var formađur klúbbsins, Theodór Blöndal, sem afhenti verđlaunagripina og ávarpađi ţátttakendur međ skemmtilegri tölu.
Vignir Vatnar Stefánsson er einn af ţeim sem nćr alltaf mćtir á skákmót Fjölnis, eđa allt frá ţví ađ hann sex ára gamall tók ţátt í sínu fyrsta skákmóti, Torgmóti Fjölnis, og vakti ţá gífurlega athygli fyrir góđa taflmennsku og ungan aldur. Eftir mótiđ varđ ekki aftur snúiđ hjá Vignir Vatnari og hann er okkar efnilegasti íslenski skákmađur í dag. Vignir Vatnar mćtti galvaskur til leiks og kom efstur í mark međ 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Nćstir á eftir honum međ 5 vinninga komu bekkjarbrćđur Vignis ţeir Arnar Heiđarsson og Sverrir Hákonarson Hörđuvallaskóla og Árni Ólafsson Hlíđaskóla. Sigurvegari yngri flokks varđ Gunnar Erik Guđmundsson 5. bekk Salaskóla međ 4,5 vinninga, jafn Daníel Tal 4. bekk Rimaskóla en hćrri á stigum. Arnar Gauti bekkjarfélagi Daníels í Rimaskóla varđ ţriđji.
Sigurvegari í stúlknaflokki reyndist Sara Sólveig Lis 5. bekk Rimaskóla, Elín Lára Jónsdóttir Salaskóla í 2. sćti og Karen Ólöf Gísladóttir í 3. sćti.
Á verđlaunahátíđ í lok mótsins voru afhent 20 áhugaverđ verđlaun, pítsur, bíómiđar og fottustu húfurnar frá 66°N auk ţess sem bíómiđar voru dregnir út í happadrćtti. Fjöldi foreldra og annarra ađstandenda fylgdust međ mótinu sem var lokahnykkur á vetrarstarfi Skákdeildar Fjölnis 2017 - 2018.
Lokastađan á Chess-Results.
29.4.2018 | 10:52
Carlsen sigurvegari í Shamkir - Shankland og Wang efst fyrir lokaumferđina í St. Louis
Magnus Carlsen (2843) stýrđi skákinni gegn Ding Liren (2778) í jafnteflishöfn fljótt og vel í gćr á minningarmótinu um Gashmimov. Ţar međ tryggđi hann sér sigur á mótinu. Hann hlaut 6 vinninga í 9 skákum. Ding varđ annar međ 5,5 vinninga og Karjakin (2778) ţriđji međ 5 vinninga.
Frá lokaathöfninni
Lokastađan
Sjá nánari umfjöllun á Chess.com.
Sam Shankland (2671) heldur áfram frábćrri frammistöđu á bandaríska meistaramótinu í St. Louis. Í gćr lagđi hann Alexander Onichuk (2672) ađ velli. Caruana (2804) fylgir honum eins og skugginn ţví hann vann Zherebhukh (2640). Ađeins munar á ţeim hálfum vinningi.
Lokaumferđin fer fram í kvöld. Ţá teflir Shankland viđ Awonder Liang (2552) en Caruana viđ Onichuk (2672). Verđi ţeir jafnir verđur tefldur bráđabani.
Spennan er ekki minni í kvennaflokki. Ţar er hin 15 ára, Annie Wange (2321) međ hálfs vinnings forskot á Nazi Paikidze (2352). Wang mćtir Sabinu Foisor (2306) en Piaikidze mćtir Goletiani (2306). Tefld verđur til ţrautar á morgun verđi ţćr jafnar.
Lokaumferđin í dag hefst klukkutíma fyrr en vanalega eđa kl. 17.
Sjá nánari umfjöllun á Chess.com.
Sjá nánar á Chess.com.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 18)
28.4.2018 | 20:39
NM stúlkna: Gekk á ýmsu í ţriđju umferđ!
Ţađ gekk á ýmsu hjá íslensku keppendum í 3. umferđ NM stúlkna sem er nýlokiđ. Alls komu fimm vinningar í hús af níu mögulegum. Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Nansý Davíđsdóttir unnu báđar sínar skákir og tefla báđar á fyrsta borđi í fyrramáliđ í sínum flokkum. Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir, Anna Katarina Thoroddsen og Iđunn Helgadóttir unnu í c-flokki. Stúlkurnar eru hvergi efstar en góđ úrslit í fyrri skák morgundagsins gćtti opnađ á ýmsa möguleika fyrir lokaumferđina í öllum flokkum.
A-flokkur
Verónika Steinunn Magnúsdóttir vann sćnsku stúlkuna Brandy Paltzer. Verónika er í 3.-4. sćti međ 1,5 vinning. Norsku Kyrkbjo-tvíburarnir eru efstar međ 2,5 vinning og teflir Veró viđ Marte í fyrramáliđ.
B-flokkur
Nansý Davíđsdóttir vann öruggan sigur á hinni sćnsku Margaritu Aaritovskaja. Nansý er í 2.-4. sćti međ 2 vinninga og tefli viđ Nielnke Van Den Brink í fyrramáliđ en sú er efst međ fullt hús.
C-flokkur
Stađa íslensku keppendanna jafnađist nokkuđ í flokknum. Freyja Birkisdóttir og Batel Gotiom Haile sem báđar voru efstar međ fullt hús töpuđu. Á sama tíma unnu Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir og Anna Katarina Thoroddsen sínar skákir. Ţćr eru allar í 3.-8. sćti međ 2 vinninga. Ţćr tefla innbyrđis á morgun. Batel og Ylfa annars vegar og Freyja og Anna hins vegar. Iđunn Helgadóttir vann sína skák og hefur 1 vinning.
Fjórđa umferđ hefst kl. 10 í fyrramáliđ. Allar skákar sýndar beint!
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 10 og 16)
28.4.2018 | 14:39
Freyja og Batel á toppnum í NM stúlkna
Freyja Birkisdóttir og Batel Goitom Haile byrja best íslensku stúlknanna á Norđurlandamóti stúlkna sem fram fer um helgina á Hótel Borgarnesi. Ţćr eru í 1.-3. sćti í c-flokki (u13) međ fullt hús eftir 2 umferđir. Batel vann stigahćsta keppenda flokksins Ameliu Nordquelle í vel tefldri skák. Freyja vann hins vegar seiglusigur á Ylfu Ýr Welding Hákonardóttir. Veronika Steinunn Magnúsdóttir gerđi jafntefli í sinni skák í a-flokki en Nansý Davíđsdóttir tapađi í hörkuská í b-flokki.
A-flokkur (u20)
Veronika Steinunn Magnúsdóttir gerđi jafntefli viđ hina finnsku Mikaaleu Ebeling. Verónika hefur hálfan vinning.
B-flokkur (u16)
Nansý Davíđsdóttir tapađi fyrir hinni finnsku Sarabellu Norlamo í hörkuskák sem var lengsta skák umferđinnar. Nansý hefur 1 vinning.
C-flokkur (u13)
"Reynsluboltarnir" Freyja Birkisdóttir og Batel Goitom Haile hafa byrjađ afar vel og hafa báđar fullt hús. Ţrátt fyrir ungan aldur hafa ţćr báđar margoft teflt á slíkum mótum.
Hinar íslensku stúlkurnar fimm töpuđu allar í dag - flestar í spennandi skákum.
Ylfa Ýr og Anna Katarina Thoroddsen hafa 1 vinning en Guđrún Fanney Briem, Soffía Arndís Berndsen og Iđunn Helgadóttir eru ekki komnir á blađ.
Ţriđja umferđ hefst núna kl. 16. Allar skákir mótsins eru sýndar beint.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 10 og 16)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2018 | 14:23
Helgi Áss sigrađi á fjórđa móti Hrađskákmótarađar TR
Ţađ var fámennt en góđmennt á fjórđa og síđasta móti Hrađskákmótarađar TR sem fram fór föstudagskvöldiđ 28. apríl síđastliđinn. Eftir snarpa taflmennsku stóđ stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson uppi sem sigurvegari međ sex vinninga af sjö, en hann ţurfti ađ sćtta sig viđ tap gegn Fide-meistaranum knáa Vigni Vatnari Stefánssyni. Vignir átti reyndar möguleika á ađ vinna mótiđ fyrir síđustu umferđ en ţá tapađi hann fyrir Dađa Ómarssyni. Ţess má geta ađ Vignir Vatnar sigrađi á fyrsta mótinu og Dađi vann mót númer tvö međ gríđarmiklum yfirburđum. Jon Olav Fivelstad stýrđi mótinu af kostgćfni og tefldi líka.
Mótstöfluna má sjá hér:
28.4.2018 | 10:32
NM stúlkna: Önnur umferđ nýhafin - allar skákirnar sýndar beint!
Önnur umferđ Norđurlandamóts stúlkna í skólaskák er nýhafin. Vert er ađ vekja athygli á ţví ađ allir skákir mótsins eru sýndar beint!
Prýđilega gekk í gćrkveldi og komu 5 vinningar af 9 mögulegum í hús. Síđari umferđ dagsins hefst kl. 16.
Alls taka 33 stúlkur ţátt í mótinu og ţar af níu íslenskar.
Beinar útsendingar má nálgast hér.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 10 og 16)
28.4.2018 | 09:00
Carlsen og Ding Liren tefla úrslitaskák í Shamkir - Shankland og Wang efst í St. Louis
Fjórum skákum af fimm lauk međ hreinum úrslitum í áttundu og nćstsíđustu umferđ minningarmótsins um Gashimov í Shamkir í Aserbaísjan. Stađan hefur nú skýrst og ađeins tveir keppendur geta unniđ mótiđ. Magnús Carlsen (2843), sem vann Anish Giri (2777) og Ding Liren (2778), sem lagđi Rauf Mamedov 2704) ađ velli. Heimsmeistarinn hefur 5˝ vinning en Ding hefur 5 vinninga. Ţeir mćtast í hreinni úrslitaskák í dag. Magnúsi dugar jafntefli til ađ tryggja sér sigur á mótinu en Kínverjinn ţarf sigur međ svörtu.
Lokaumferđin hefst fyrr en venjulega eđa kl. 10
Sjá nánari umfjöllun á Chess.com.
Öllum skákum bandaríska meistaramótsins í gćr í níundu umferđ lauk međ jafntefli nema ađ Sam Shankland (2671) vann Yaroslov Zherebukh (2640). Ţegar tveimur umferđum er ólokiđ er Shankland afar óvćnt efstur međ 6˝ vinning. Eitthvađ sem enginn átti von á fyrir mót. Áskorandinn, Caruana (2804), er annar međ 6 vinning og Wesley So (2786) ţriđji međ 5˝ vinning.
Hin, 15 ára, Annie Wang (2321) styrkti verulega stöđu sína í gćr međ jafntefli viđ Nazi Paikiddze (2352) í gćr. Wang hefur 7˝ vinning en Paikidze er önnur međ 6˝ vinning. Ađrar hafa ekki möguleika á titlinum.
Tíunda og nćstsíđasta umferđ bandaríska meistaramótsins hefst kl. 18 í kvöld.
Sjá nánari umfjöllun á Chess.com.
Sjá nánar á Chess.com.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 18)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2018 | 07:00
Sumarskákmót Fjölnis í dag
Nćstkomandi laugardag, 28. apríl, verđur hiđ árlega Sumarskákmót Fjölnis haldiđ í hátíđarsal Rimaskóla og hefst kl. 11.00. Mótinu lýkur međ glćsilegri verđlaunahátíđ kl. 13:15. Mćtiđ tímanlega til skráningar.
Ađ venju er mótiđ hiđ glćsilegasta og mikill fjöldi áhugaverđra vinninga í bođi. Tíu gjafabréf frá Dominos, Fimm gjafabréf í SAM-bíóin og fimm af flottustu húfunum frá 66°N.
Rótarýklúbbur Grafarvogs er ađ venju styrktarađili sumarskákmótsins og gefur klúbburinn eignarbikara til sigurvegara í eldri flokki, yngri flokki og stúlknaflokki.
Tilkynnt verđur kjör Skákdeildar Fjölnis á afreksmeistara og ćfingameistara deildarinnar 2017 2018.
Á sumarskákmótinu verđa tefldar 6 umferđir međ 6 mínútna umhugsunartíma. Sumarskákmót Fjölnis er eitt af síđustu grunnskólamótum vetrarins og er öllum áhugasömum grunnskólakrökkum í skák um allt land, bođin ókeypis ţátttaka.
Mćtiđ krakkar og takiđ međ ykkur skólafélaga og vini.
Í skákhléi býđst ţátttakendum ađ kaupa sér veitingar fyrir 250 kr, drykk og Prins póló. Heitt kaffi á könnunni fyrir foreldra.
Spil og leikir | Breytt 23.4.2018 kl. 16:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2018 | 00:30
NM stúlkna: Ágćtis byrjun íslensku stúlknanna
Norđurlandamót stúlkna í skólaskák hófst í kvöld á Borgarnesi. Alls taka 33 stúlkur ţátt og ţar af eru 9 íslenskar. Gunnlaugur Júlíusson, bćjarstjóri Borgarbyggđar, setti mótiđ og lék fyrsta leikinn fyrir Batel Goitom Haile á móti Guđrúnu Fanneyju Briem, yngsta keppenda mótsins. Íslensku stelpurnar fengu 5 vinninga af 9 mögulegum. Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir, vann mjög góđan sigur í yngsta flokknum og hróksfórn Nansýjar Davíđsdóttir ţótti nokkuđ flott!
A-flokkur (u20)
Verónika Steinunn Magnúsdóttir tapađi fyrir hinni norsku Marte Kyrkjebo í langlengstu skák kvöldsins
B-flokkur (u16)
Naný Davíđsdóttir vann mjög góđan sigur á Ingrid Skaslien. Nansý átti leik í ţessari stöđu
33. Hxe6+!! Kxe6 34. Dd5# 1-0.
C-flokkur (u13)
Sjö íslenskar skákstúlkur tefla í c-flokki (u13). Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir vann mjög góđan sigur á mun stigahćrri skákkonu. Freyja Birkisdóttir fékk fyrsta vinning mótsins ţegar hún vann öruggan sigur.
Í tveimur tilfellum mćttust íslenskar innbyrđis og unnu ţćr Batel Goitom Haile og Anna Katarina Thoroddsen ţćr Iđunni Helgadóttur og Guđrúnu Fanneyju Briem í hörkuskákum. Soffía Arndís Berndsen tapađi sinni skák.
Teflt er viđ úrvalsađstćđur á Hótel Borgarnesi og er öllum skákum umferđarinnar varpađ upp á skjá auk ţess ađ vera í beinni á netinu.
Tvćr umferđir fara fram á morgun. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síđari kl. 16.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 10 og 16)
27.4.2018 | 11:00
Norđurlandamót stúlkna hefst í kvöld á Borgarnesi
Norđurlandamót stúlkna fer fram Hótel Borgarnesi helgina 27.-29. apríl. Alls taka 33 stúlkur ţátt á aldrinum 10-20 ára. Níu ţeirra eru íslenskar og sjö ţeirra tefla í yngsta flokknum (13 ára og yngri). Mikilvćg reynsla fyrir stelpurnar sem margar hverjar eru ađ tefla á sínum fyrsta alţjóđlega skákviđburđi!
Fyrsta Norđurlandamót stúlkna var haldiđ áriđ 2008 og er ţetta í ţriđja skiptiđ sem mótiđ fer fram á Íslandi. Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir, fyrrum forseti SÍ og ţingmađur, átti frumkvćđiđ ađ koma mótinu á legg á sínum tíma.
Fulltrúar Íslands eru sem hér segir:
A-flokkur (u20)
Verónika Steinunn Magnúsdóttir
B-flokkur (u16)
Nansý Davíđsdóttir sem er margfaldur norđurlandameistari stúlkna
C-flokkur (u13)
Freyja Birkisdóttir
Batel Goitom Haile
Iđunn Helgadóttir
Guđrún Fanney Briem
Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir
Soffía Berndsen
Anna Katarina Thoroddsen
Taflmennskan hefst kl. 20 á föstudagskvöldiđ. Á laugar- og sunnudegi eru tefldar tvćr umferđir. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síđari kl. 16. Verđlaunaafhending er um kl. 20 á sunnudagskvöldiđ. Beinar útsendingar verđa frá mótinu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 8778273
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar