Fćrsluflokkur: Spil og leikir
29.10.2014 | 13:26
Ćskan og Ellin - Skák er fyrir alla

Síđastliđinn laugardag fór fram í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur hiđ mikla kynslóđabrúarskákmót, Ćskan og Ellin, sem var nú haldiđ í ellefta sinn. Mótiđ er samstarfsverkefni Riddarans, skákklúbbs eldri borgara, Taflfélags Reykjavíkur og OLÍS sem jafnframt er stćrsti bakhjarl mótsins. Ađ auki veita mótahaldinu góđan stuđning POINT á Íslandi, Urđur bókaútgáfa Jóns Ţ. Ţórs og Litla Kaffistofan í forsvari Stefáns Ţormars.
Varđlaunasjóđur var glćsilegur; 100.000 kr peningaverđlaun, flugmiđar til Evrópu međ Icelandair, eldsneytisúttektir, verđlaunabikarar- og peningar, skákbćkur og veitingaúttektir.Mótinu er ćtlađ ađ brúa kynslóđabil skákmanna en ţađ er opiđ skákmönnum 15 ára og yngri sem og 60 ára og eldri en fyrirkomulagiđ skapar sérlega skemmtilega stemningu ţar sem kátínan skín úr andlitum ungra sem roskna. Skák er svo sannarlega fyrir alla og á sér engin aldursmörk.
Loftiđ í Skákhöllinni var rafmagnađ ţegar keppendur hófu ađ úđa út leikjum og berja á klukkunum og ekki var óalgeng sjón ađ sjá ţá rosknari ţurfa ađ hafa sig alla viđ gegn hinum yngri og oftar en ekki risu börnin sigri hrósandi upp frá borđum og ţá var sko gaman og gleđin skein úr augum.
Ekki voru blóđ sviti og tár alfariđ bundin viđ baráttu hinna sterkustu ţví allstađar var hart barist um hin fjölmörgu aukaverđalun sem í bođi voru. Ungir keppendur náđu eftirtektarverđum árangri og sem lítiđ brot má ţar nefna Sóleyju Lind Pálsdóttur, Róbert Luu, Aron Ţór Mai, Óskar Víking Davíđsson, Nansý Davíđsdóttur og Felix Steinţórsson. Margir ađrir og enn yngri keppendur, sumir hverjir enn ađ stíga sína fyrstu dansa á reitunum svarthvítu, voru skákgyđjunni til mikils sóma.
Spennan var mikil og réđust úrslit ekki fyrr en í lokaumferđinni ţegar Bragi lagđi Vigni Vatnar eftir mikla dramatík innan borđs sem utan en ađeins Braga og alţjóđlega meistaranum Sćvari tókst ađ sigra ljóshćrđa víkinginn. Međ sigrinum tryggđi Bragi sér efsta sćtiđ annađ áriđ í röđ og í ţriđja sinn á fjórum árum. Bragi hlaut 7,5 vinning úr skákunum níu en ađ ţessu sinni var lítill afgangur af sigrinum ţví Guđfinnur R. Kjartansson var á miklu flugi í seinni hlutanum og kom í mark jafn Braga ađ vinningum. Guđfinnur mátti ţó gera sér ađ góđu gott annađ sćti eftir stigaútreikning en nćstir međ 7 vinninga komu Sćvar, Jóhann Örn og Vignir Vatnar sem jafnframt varđ efstur barna tólf ára og yngri.Ađstandendur mótsins vilja koma á framfćri miklum ţökkum til bakhjarla ţess og ekki síst til allra ţeirra frábćru keppenda sem lögđu leiđ sína í Faxafeniđ. Birna Halldórsóttir á líka heiđur skilinn fyrir ađ standa frábćra vakt í hinu margrómađa Birnu-Kaffi. Viđ vonumst til ađ sjá ykkur öll ađ ári!Hér ađ neđan fylgir yfirlit yfir efstu keppendur í hverjum flokki en heildarúrslit má sjá hér. Ţá má benda á fjöldan allan af myndum áfésbókarsíđu Taflfélags Reykjavíkur.
Heildarúrslit·
1.-2. Bragi Halldórsson, Guđfinnur R. Kjartansson 7,5v
3.-5. Sćvar Bjarnason, Jóhann Örn Sigurjónsson, Vignir Vatnar Stefánsson 7v
1.-2. Bragi Halldórsson, Guđfinnur R. Kjartansson 7,5v·
3. Sćvar Bjarnason 7v
70 ára og eldri
2.-4. Sigurđur Herlufsen, Ţór Már Valtýsson, Ásgeir Sigurđsson 6v
80 ára og eldri
1. Björn Víkingur Ţórđarson 6v·2.-3. Páll G. Jónsson, Magnús V. Pétursson 5v
15 ára og yngri
1.-2. Felix Steinţórsson, Sóley Lind Pálsdóttir 6v·3. Aron Ţór Mai 5,5v
12 ára og yngri
1. Vignir Vatnar Stefánsson 7v·2. Nansý Davíđsdóttir 6,5v·
3.-4. Arnar Milutin Heiđarsson, Mikael Maron Torfason 5v
9 ára og yngri
1. Óskar Víkingur Davíđsson 6v·
2. Róbert Luu 5,5v·
3. Freyr Grímsson 5v
Myndaalbúm (ESE)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2014 | 07:00
Vetrarmót öđlinga hefst í kvöld
Vetrarmót öđlinga 40 ára og eldri hefst miđvikudaginn 29. október kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa sjö umferđir og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viđbótartími á hvern leik.Mótiđ, sem hefur fengiđ góđar viđtökur, er nú haldiđ í fjórđa sinn en fyrirkomulag ţess hentar vel ţeim sem ekki hafa tök á ađ tefla oft í viku eđa yfir heila helgi ţví ađeins er teflt einu sinni í viku, á miđvikudagskvöldum kl. 19.30. Dagskráin er ţví ekki stíf og jafnframt lýkur mótinu vel fyrir jólaösina.Ţátttökurétt hafa allir öđlingar fertugir (á árinu) og eldri.
Dagskrá:
- 1. umferđ miđvikudag 29. október kl. 19.30
- 2. umferđ miđvikudag 5. nóvember kl. 19.30
- 3. umferđ miđvikudag 12. nóvember. kl. 19.30
- 4. umferđ miđvikudag 19. nóvember kl. 19.30
- 5. umferđ miđvikudag 26. nóvember kl. 19.30
- 6. umferđ miđvikudag 3. desember kl. 19.30
- 7. umferđ miđvikudag 10. desember kl. 19.30
Spil og leikir | Breytt 24.10.2014 kl. 06:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2014 | 02:07
Afmćlismót Einars Ben: Margir sterkustu skákmenn landsins mćta til leiks
Afmćlisskákmót Einars Benediktssonar verđur haldiđ á veitingastađnum Einari Ben, laugardaginn 1. nóvember klukkan 14. Međal keppenda verđa margir af bestu skákmönnum Íslands. Tefldar verđa sjö umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ađ mótinu standa Skákfélagiđ Hrókurinn og Taflfélag Reykjavíkur.



Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2014 | 11:07
Haustskákmót Ása hefst kl. 13
Ćsir tefla sitt haustmót á ţriđjudag 28 okt. kl. 13.00 í Stangarhyl 4. Allir skákmenn 60 + velkomnir og skákkonur 50 +. Tefldar verđa 10 umferđir međ 10 mín. umhugsunartíma.
Valdimar Ásmundsson sigrađi á síđasta haustmóti.
28.10.2014 | 06:27
Gauti Páll vann í gćr
Áttunda og nćstsíđasta umferđ EM ungmenna fór fram í gćr. Gauti Páll Jónsson vann góđa sigur, Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson gerđu jafntefli. Sá síđarnefndi sitt sjötta jafntefli í röđ! Allt ţó baráttuskákir. Símon Ţórhallsson tapađi í gćr.
Oliver hefur 4 vinninga, Símon og Gauti hafa 3,5 vinning og Dagur hefur 2,5 vinning. Árangur Símonar og Gauta er einstaklega góđur á ţeirra fyrsta stórmóti. Oliver er tćplega á pari en Dagur hefur engan veginn náđ sér á strik og hefur veriđ ófarsćll á mótinu.
Lokumferđin fer fram í dag og ţví loknu hefst langt og strang ferđalag fyrir íslensku fulltrúanna.Tćplega skákmenn frá 43 löndum taka ţátt. Fulltrúar Íslands eru fjórir ađ ţessu sinni. Dagur Ragnarsson (2154) teflir flokki 18 ára og yngri en Oliver Aron Jóhannesson (2192), Símon Ţórhallsson (1796) og Gauti Páll Jónsson (1739) tefla í flokki 16 ára og yngri. Helgi Ólafsson er fararstjóri og ţjálfari.
Dagur er nr. 42 í stigaröđ 62 keppenda. Í flokki 16 ára og yngri taka 89 skákmenn ţátt. Oliver er nr. 32 í stigaröđ keppenda en Símon er nr. 77 og Gauti er nr. 82.28.10.2014 | 05:46
Vignir Vatnar unglingameistari TR - Freyja stúlknameistari TR
Barna- og unglingameistaramóti TR var í ár skipt í tvo flokka, opinn flokk og stúlknaflokk, og mćttu samtals 38 keppendur til leiks, flestir úr Taflfélagi Reykjavíkur, eđa 31 talsins. Í opnum flokki varđ Vatnar Stefánsson öruggur sigurvegari međ fullt hús vinninga eđa 7 og er ţví Barna- og unglingameistari Taflfélags Reykjavíkur 2014. Er ţetta ţriđja áriđ í röđ sem hann hlýtur ţessa nafnbót og er hann ekki einu sinni búinn ađ ná 12 ára aldri!
Í öđru sćti varđ Björn Hólm Birkisson međ 6 vinninga og í 3.-5. sćti urđu Mykhaylo Kravchuk, Stefán Orri Davíđsson og Benedikt Ernir Magnússon, allir međ 5 vinninga, en Mykhaylo hlaut 3. sćtiđ eftir stigaútreikning.
Aldursflokkasigurvegarar urđu: Stefán Orri Davíđsson - flokki 8 ára og yngri, Róbert Luu - flokki 10 ára og yngri, Vignir Vatnar Stefánsson - flokki 12 ára og yngri Björn Hólm Birkisson - flokki 15 ára og yngri. Nánari úrslit í opnum flokki eru hér.
Í Stúlknameistaramótinu vann Freyja Birkisdóttir sigur eftir aukakeppni viđ Ylfu Ýr Welding Hákonardóttur og Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur, en ţćr urđu efstar og jafnar í mótinu međ 4 vinninga af 5 mögulegum. Í aukakeppninni vann Freyja báđar sínar skákir og Ylfa vann eina og varđ ţar međ í 2. sćti á undan Vigdísi Lilju sem hlaut 3. sćtiđ. Engin ţeirra ţriggja hefur náđ 10 ára aldri og ţví framtíđin björt.
Aldursflokkasigurvegarar urđu: Freyja Birkisdóttir - 8 ára og yngri, Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir - 10 ára og yngri og Sana Salah - 12 ára og yngri. Nánari úrslit í stúlknaflokki eru hér.
27.10.2014 | 13:11
Ćskan og Ellin: Bragi sigrađi...aftur
Bragi Halldórsson stóđ uppi sem sigurvegari á Stórmótinu Ćskan og Ellin sem fór fram í fyrradag. Ţetta er annađ áriđ í röđ sem Bragi sigrar og í ţriđja sinn á fjórum árum svo hann finnur sig svo sannarlega vel á ţessu flotta móti. Bragi hlaut 7,5 vinning og varđ jafn Guđfinni R. Kjartanssyni ađ vinningum en ofar á stigum. Jafnir í 3.-5. sćti međ 7 vinninga komu alţjóđlegi meistarinn Sćvar Bjarnason, Jóhann Örn Sigurjónsson og Vignir Vatnar Stefánsson.
Nánari umfjöllun er vćntanleg.
Mótstafla (má stćkka međ ţví ađ klikka á töfluna)
27.10.2014 | 07:00
Unglingameistaramót Hugins hefst í dag
Unglingameistaramót Hugins 2014 (suđursvćđi) hefst mánudaginn 27. október n.k. kl. 16.30 ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Mótinu verđur svo fram haldiđ ţriđjudaginn 28. október n.k. kl. 16.30. Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad kerfi. Fyrri keppnisdaginn verđa fjórar skákir og ţrjár ţann seinni. Umhugsunartími á hverja skák er 20 mínútur. Mótiđ er opiđ öllum 15 ára og yngri í grunnskóla en titilinn sjálfan getur ađeins félagsmađur í Huginn unniđ. Á međan á mótinu stendur falla venjulegar barna- og unglingaćfingar niđur. Nćsta barna- og unglingaćfing eftir unglingameistaramótiđ verđur mánudaginn 3. nóvember n.k. Keppnisstađur er Álfabakki 14a (inngangur milli Subway og Fröken Júlíu) og er salur félagsins á ţriđju hćđ. Engin ţátttökugjöld.
Verđlaunagripir verđa fyrir ţrjú efstu sćtin. Allir ţátttakendur fá skákbók.
Umferđatafla:
1.-4. umferđ: Mánudaginn 27. október kl. 16.30
5.-7. umferđ: Ţriđjudaginn 28. október kl. 16.30
Verđlaun:
- Unglingameistari Hugins (suđursvćđi) fćr farandbikar til varđveislu í eitt ár.
- Ţrír efstu fá verđlaunagripi til eignar.
- Allir keppendur fá skákbók.
- Ţrír efstu 12 ára og yngri fá verđlaunapening.
- Stúlknameistari Hugins (suđursvćđi) fćr verlaunagrip til eignar.
Spil og leikir | Breytt 24.10.2014 kl. 06:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2014 | 20:20
Símon og Dagur unnu í dag
EM ungmenna var framhaldiđ í dag eftir frídag í gćr. Símon Ţórhallsson og Dagur Ragnarsson unnu í dag, Oliver Aron Jóhannesson gerđi jafntefli en Gauti Páll Jónsson tapađi.
Oliver og Símon hafa 3,5 vinning, Gauti hefur 2,5 vinning og Dagur hefur 2 vinninga. Árangur Símonar er sérstaklega glćsilegur en hann hefur teflt viđ stigahćrri andstćđinga í hverri einustu umferđ og hefur engu síđur 50% vinningshlutfall!
Fréttaritari Skák.is í Georgíu kom viđ á skákstađ í dag. Ađstćđur á skákstađ eru almennt góđar. Ţröngt var ţó, en ekki ţó óţćgilega, á skákstađ. Öllum öđrum en keppendum er vísađ af skákstađ í upphafi umferđa. Sérstakt andrúmsloft er í lobbýi skákstađarins ţar sem foreldrar safnast saman. Međal annars mćtti fréttaritari Skák.is grátandi stúlku sem greinilega hafđi tapađ snemma leiks.
Íslenska liđiđ hefur fengiđ fremur slakt hótel í samanburđi viđ sumar ađrar ţjóđir eins og lesa má í grein Helga Ólafssonar í Morgunblađinu í dag. Styrkileiki íslensku keppendanna liggur í ţví ađ láta ekki slíkt á sig fá. Hafa menn engu ađ síđur í kjölfariđ velt fyrir sér ađ hafa sérstakt hótel fyrir fulltrúa Georgíu á EM landsliđa 2015 í Reykjavík.
Úrslit 7. umferđar
Stađa íslensku keppendanna
Tćplega skákmenn frá 43 löndum taka ţátt. Fulltrúar Íslands eru fjórir ađ ţessu sinni. Dagur Ragnarsson (2154) teflir flokki 18 ára og yngri en Oliver Aron Jóhannesson (2192), Símon Ţórhallsson (1796) og Gauti Páll Jónsson (1739) tefla í flokki 16 ára og yngri. Helgi Ólafsson er fararstjóri og ţjálfari.
Dagur er nr. 42 í stigaröđ 62 keppenda. Í flokki 16 ára og yngri taka 89 skákmenn ţátt. Oliver er nr. 32 í stigaröđ keppenda en Símon er nr. 77 og Gauti er nr. 82.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2014 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Gripinn úr vinnuferđ

Vegna sérstakra ađstćđna var íslenska íslenska landsliđiđ búiđ ađ keyra á fjórum mönnum í fyrstu umferđum HM landsliđa í Luzern haustiđ 1993 og ţrátt fyrir sigur yfir Rússum voru menn orđnir lúnir. Ţá bćttist Karl Ţorsteins í liđiđ gripinn úr vinnuferđ međ Jakobi Ármannssyni á vegum Búnađarbanka Íslands. Hann hlaut 4 vinninga af fimm mögulegum og átti stóran ţátt í ţeim árangri Íslands ađ verđa í 5. sćti í keppni viđ bestu skákţjóđir heims. En ţar setti hann líka ađ sumu leyti punktinn aftan viđ glćsilegt tímabil í skákinni. Ţó hann hafi alltaf annađ veifiđ síđan tekiđ ţátt í mótum međ góđum árangri voru markmiđin önnur; fjölskyldan og bankastörf voru sett framar á forgangslistanum.
Ţegar rennt er yfir skákir Karls frá virkasta tímabilinu, níunda áratugnum, bregđur oft fyrir nöfnum skákmanna sem létu mikiđ ađ sér kveđa á nćstu árum: Curt Hansen Kiril Georgiev, Lembit Oll, Ferdinand Hellers, Alexei Dreev. Á Reykjavíkurmótinu 1990 var Karl međal efstu manna framan af og vann ţá eftirfarandi skák af góđkunningja Reykjavíkurskákmótanna:
Karl Ţorsteins - Walter Browne
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 c5 5. g3 cxd4 6. Rxd4 O-O 7. Bg2 d5 8. Db3 Bxc3 9. Dxc3
Afbrigđiđ sem Karl beitti hafđi fariđ í gegnum mikla umrćđu" á ţessum árum en taliđ var ađ 9. bxc3 vćri vćnlegra til árangurs.
9. ... e5 10. Rb3 dxc4
Einnig er hćgt ađ leika 10. ... Rc6 eđa 10. ... d4.
11. Ra5!
Karl hafđi leikiđ 11. dxc4 gegn Polugajevskí í stórveldaslagnum 1990 sem var undanfari Reykjavíkurmótsins.
11. ... Rd5 12. Dd2 Rc6 13. Rxc4
Og hér kom til greina ađ leika 13. Dxd5 Dxd5 14. Bxd5 Rxa5 15. Bd2 og hvítur stendur ađeins betur ađ vígi.
13. ... Be6 14. O-O b5 15. Ra3 a6 16. Rc2 Hc8 17. e4 Rb6 18. b3!
Ţađ er mikilvćgt ađ valda c4-reitinn. Hvítur hefur sloppiđ út úr byrjuninni međ ađeins betri stöđu.
18. ... a5 19. De2 b4 20. Be3 Dc7 21. Hac1 Rd7 22. Hfd1 Db7
23. Bf1!
Snjall leikur sem hótar bćđi 24. Da6 og 24. Db5. Biskupar hvíts eru allsráđandi á borđinu.
23. ... a4? 24. Da6!
Ţennan leik mátti svartur ekki leyfa.
24. ... Dxa6 25. Bxa6 axb3 26. Bxc8 bxc2 27. Hxd7!
Sennilega hefur Browne sem var í tímahraki sést yfir ţennan leik.
27. ... Hxc8 28. Hd2! b3 29. axb3 Bxb3 30. Hd3 Ra5 31. Bb6
- og Browne gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Laugardagsmogganum, 18. október 2014
Spil og leikir | Breytt 20.10.2014 kl. 14:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 1
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8778760
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 90
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar