Fćrsluflokkur: Spil og leikir
11.2.2018 | 21:50
NM í skólaskák - dagur 3
5. umferđ: 6 vinningar af 10 mögulegum
Oliver Aron, Jón Kristinn, Hilmir Freyr, Aron og Óskar Víkingur unnu. Alexander og Róbert gerđu jafntefli. Stephan, Gunnar Erik og Batel töpuđu.
Jón Kristinn hafđi hvítt gegn Dimitri Tumanov (2133) frá Finnlandi. Eftir byrjunina kom upp skrautleg stađa ţar sem Jón Kristinn var peđi undir en međ ákveđin fćri sem ţvćldust fyrir Finnanum. Jokkó vann svo mann fyrir nokkur peđ en var sjálfur algjörlega án peđa en međ ótrúlega virka létta menn og hróka sem spunnu mátnet í kringum svarta kónginn. Besti sóknarmađur hvíts var svo sjálfur kóngurinn sem ţvćldist alla leiđ upp til f6 til ţess ađ fullkomna mátfléttuna. Algjörlega týpískur sigur fyrir Jón Kristin!
Svartur var ađ enda viđ ađ leika 33..b6 en hér var okkar mađur fyrir löngu búinn ađ finna óverjandi mát í 6 leikjum: 34. Hcd1+ Ke7 35. Hg7+ Kf8 36. Kf6! Hxc5 37. Hd8+ Be8 38. Hf7+ og svartur gafst upp.
Hilmir Freyr hafđi svart gegn Dananum Nicolai Kistrup (2115). Ţegar Daninn virtist vera ađ ná undirtökunum eftir byrjunina fatađist honum flugiđ og međ sinni alkunnu kćnsku tókst Hilmi ađ snúa á hann međ taktísku gegnumbroti á miđborđinu. Hann vann peđ í framhaldinu og fékk upp endatafl ţar sem báđir höfđu ţungu mennina og biskup en Hilmir 4 peđ gegn 3 á sama vćng. Svo sannarlega ekki auđveld stađa til ţess ađ vinna en Hilmir hélt pressunni og á endanum urđu Dananum á mistök og ţá var ekki ađ sökum ađ spyrja. Góđur sigur í hús hjá okkar manni.
Hér lék Hilmir Freyr 24..e5! sem kemur hvítum í algjör vandrćđi. Ekki má taka á e5 međ peđi vegna leppunar á d-línunni og heldur ekki međ biskup vegna Bg5 og allt hrynur. Daninn neyddist til ţess ađ leika 25. Bh6 en eftir 25..exd4 26. Rd5 Bxd5 27. exd5 Hxd5 var Hilmir sćlu peđi yfir og sigldi sigrinum heim.
6. umferđ: 6,5 vinningur af 9 mögulegum
Oliver Aron, Hilmir Freyr, Óskar Víkingur, Róbert og Batel unnu öll. Jón Kristinn, Alexander og Stephan gerđu jafntefli. Aron og Gunnar Erik töpuđu.
Spennan var mikil fyrir síđustu umferđ í A- og B-flokki. Sú sérstaka stađa var komin upp í A-flokknum ađ Oliver Aron og Jón Kristinn voru efstir ásamt ţremur öđrum keppendum. Oliver var hćstur ţeirra á stigum fyrir umferđina en allt gat gerst og í raun var lítiđ annađ ađ gera en ađ einbeita sér ađ taflmennskunni og vona ađ önnur úrslit féllu međ okkar mönnum. Oliver hafđi hvítt gegn FM Felix Tuomainen (2215). Hann fékk mun betra tafl eftir byrjunina og ţrengdi jafnt og ţétt ađ andstćđingi sínum. Tuomainen neyddist til ţess ađ gefa skiptamun og í framhaldinu peđ til viđbótar. Oliver tókst ađ takmarka allt mótspil og smátt og smátt fćkkađi möguleikum svarts. Á endanum var hann kominn í algjöra leikţröng og gafst upp. Mjög öruggur sigur.
Hér lék Oliver Aron 45. h4 og fullkomnađi öruggan sigur. Svartur er liđi undir en auk ţess í algjörri leikţröng og getur ekki hreyft neinn mann án ţess ađ tapa meira liđi. Ţađ má segja ađ skákin hafi veriđ einkennandi fyrir skákstíl Olivers sem byggir á mjög skynsamri taflmennsku og á ţví ađ takmarka spil andstćđingsins og gera honum ţannig erfitt fyrir.
Á sama tíma og ţetta átti sér stađ barđist Jón Kristinn í erfiđri stöđu og uppskar jafntefli. Norđmađurinn Johannes Haug vann sína skák og ţví var ljóst ađ Oliver Aron og Haug voru efstir og jafnir en Jón Kristinn í 3. sćti. Eftir stigaútreikning stóđ Oliver svo uppi sem Norđurlandameistari viđ mikinn fögnuđ í íslensku herbúđunum!
Hilmir Freyr var fyrir umferđina líka efstur í B-flokknum ásamt Finnanum FM Toivo Keinanen (2347) en ađeins lćgri á stigum og ţurfti ţví ađ treysta á hagstćđ úrslit.
Finninn fékk ekkert frumkvćđi eftir byrjunina og samdi jafntefli eftir einungis rúma 20 leiki. Ţví lá ţađ ljóst fyrir ađ međ sigri gegn Fćreyingnum Janus Skaale (1772) yrđi Hilmir Freyr Norđurlandameistari. Janus hafđi veriđ ađ tefla mjög vel allt mótiđ svo ţađ var enginn ástćđa til ţess ađ ćtla ađ hann yrđi auđvelt fórnarlamb. En eins og áđur tefldi Hilmir eins og sannur herforingi og Fćreyingurinn sá aldrei til sólar. Annar Norđurlandameistaratitill í höfn! Hilmir Freyr tefldi allt mótiđ af miklum krafti, fullur sjálfstrausts og vel undirbúinn fyrir hverja skák.
Hér lék Hilmir 28. Hxf7! og eftir 28..Hxf7 29. He7 Hf8 30. Hxf7 Hxf7 31. d7 gafst svartur upp.
Í D-flokknum hafđi Róbert Luu svart gegn Dananum Casper Liu (1963). Í miđtaflinu gaf Róbert skiptamun fyrir riddara og 2 peđ á miđborđinu og ţađ var ljóst ađ ef Daninn fćri ađ teygja sig langt í sínum sóknarađgerđum á kóngsvćngnum gćtu umfram peđ Róberts orđiđ hćttuleg. Ţá tók Daninn skyndilega upp á ţví ađ skipta upp á drottningum og missti svo alveg tökin í vörninni. Róbert kom peđunum af stađ og međ skemmtilegu riddarahoppi vann hann liđ af Dananum sem gafst upp í kjölfariđ. Vel útfćrđur sigur.
Hér lék Róbert 45..Re3! og eftir 46. Hd2 Hc1+ 47. Kf2 Rc4!, međ hótuninni 48..e3+, er ljóst ađ svörtu peđin verđa ekki stöđvuđ.
Batel hafđi svart gegn Dananum AIM Albert Moller (1775). Eftir mikla stöđubaráttu, sem Batel tefldi skynsamlega, fékk hún upp endatafl ţar sem Daninn sat uppi međ mjög lélegan biskup sem tónađi illa viđ peđastöđu hans. Auk ţess var Daninn međ mjög rangstćđan hrók sem var viđ ţađ ađ króast inni. Í framhaldinu tóku hvítu peđin ađ falla, eitt af öđru, og Batel innbyrti sigurinn af öryggi.
Í ţessari stöđu lék Batel 36..Ke7 og eftir 37. Hf3 Hxe4 38. He1 Hxe1 39. Kxe1 hxg4 40. hxg4 Hh2 41. Kf2 Be4 var sigurinn í höfn.
Góđur lokadagur hjá okkar fólki og mjög ánćgjulegt ađ ná ađ landa tveimur Norđurlandameistaratitlum. Hópurinn hefur veriđ landi og ţjóđ til mikils sóma hérna á mótinu. Undirbúningur fyrir skákir, matarćđi, svefn og almenn framkoma til fyrirmyndar.
Lokastađa Íslendinganna í öllum flokkum:
A-flokkur:
1. sćti Oliver Aron Jóhannesson 4,5 v.
3. sćti Jón Kristinn Ţorgeirsson 4 v.
B-flokkur:
1. sćti Hilmir Freyr Heimisson 5 v.
9. sćti Aron Ţór Mai 2,5 v.
C-flokkur:
5. sćti Alexander Oliver Mai 3,5 v.
10. sćti Stephan Briem 2 v.
D-flokkur:
3.-6. sćti Óskar Víkingur Davíđsson 3,5 v.
9.-10. sćti Róbert Luu 2,5 v.
E-flokkur:
6.-7. sćti Gunnar Erik Guđmundsson 3 v.
6.-7. sćti Batel Goitom Haile 3 v.
Verđlaunahafarnir: Jón Kristinn, Hilmir Freyr og Oliver Aron
Íslensku keppendurnir ásamt ţjálfurum og fararstjórum.
Bestu kveđjur heim!
- Björn Ívar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2018 | 11:52
Hrađskákmóti Reykjavíkur frestađ vegna veđurs
Hrađskákmóti Reykjavíkur sem fyrirhugađ var í dag hefur veriđ frestađ um óákveđinn tíma vegna veđurs. Ný dagsetning verđur tilkynnt á nćstu dögum.
11.2.2018 | 07:00
Hrađskákmót Reykjavíkur fer fram í dag
Hrađskákmót Reykjavíkur verđur haldiđ í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12 sunnudaginn 11.febrúar og hefst tafliđ kl.13:00.
Tefldar verđa 11 umferđir međ tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viđbótartíma eftir hvern leik). Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er opiđ öllum.
Ţátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótiđ fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eđa yngri. Skráning fer fram á skákstađ og lýkur henni kl.12:50.
Eftir Hrađskákmótiđ fer fram verđlaunaafhending fyrir Skákţing Reykjavíkur.
Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin auk ţess sem krýndur verđur Hrađskákmeistari Reykjavíkur. Verđi keppendur jafnir ađ vinningum verđur skoriđ úr um sćtaröđ međ stigaútreikningi (tie-break). Röđ stigaútreiknings: 1.Innbyrđis úrslit 2.Bucholz (-1) 3.Bucholz (median) 4.Sonneborn-Berger.
Ríkjandi hrađskákmeistari Reykjavíkur er Dagur Ragnarsson. Sigurvegari mótsins í fyrra varđ hins vegar Vestfjarđarvíkingurinn Guđmundur Gíslason sem vann ţađ ţrekvirki ađ vinna međ fullu húsi! Undanfarin 11 ár hafa sex skákmeistarar boriđ titilinn Hrađskákmeistari Reykjavíkur, ţar af einn stórmeistari og fjórir FIDE-meistarar:
2017: Dagur Ragnarsson 2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíđ Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíđ Kjartansson 2007: Davíđ Kjartansson.
Spil og leikir | Breytt 7.2.2018 kl. 17:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2018 | 21:19
NM í skólaskák: dagur 2
3. umferđ - 4,5 vinningur af 9
Hilmir Freyr, Óskar Víkingur og Gunnar Erik unnu allir. Jón Kristinn, Oliver Aron og Alexander Oliver gerđu jafntefli. Aron, Stephan, Róbert og Batel töpuđu öll.
Hilmir Freyr hafđi svart á danska skákmanninn Mads Vestby-Ellingsen (2160). Upp kom mjög flókin stađa úr hollenskri vörn ţar sem sá danski óđ á Hilmi og fórnađi mönnum hćgri vinstri. Á hliđarlínunni var ekki nokkur leiđ ađ átta sig á ţví hvađ vćri eiginlega ađ gerast en ţegar kóngur Hilmis hafđi ferđast frá kóngsvćngnum og í skjól yfir á drottningarvćnginn dó mesti sóknarmáttur hvítu stöđunnar út.
Vestby-Ellingsen lék síđast 30. b4 sem Hilmir svarađi međ 30..Hxf2+! 31. Kxf2 Dg2 mát
Óskar Víkingur hafđi svart gegn hinum danska Simon Ehrenreich (1762). Upp kom nimzo-indversk vörn og jafnađi Óskar tafliđ auđveldlega. Hann hafđi örlitla yfirburđi í annars jafnteflislegu hróksendatafli en náđi ađ setja Danann undir pressu og vinna peđ. Ehrenreich fatađist flugiđ í vörninni og eftir rúmlega 80 leiki af miklum ,,svíđing" fékk Óskar upp stöđu sem hann hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fariđ yfir í skáktímum í gegnum tíđina og ţekkir eins og handarbakiđ á sér.
Stađan er vel ţekkt endataflsstađa sem gengur undir nafninu Lucena-stađan. Á íslensku er vinningsađferđin jafnan kölluđ ,,ađ byggja brú". Óskar Víkingur er ţrautreyndur brúarsmiđur og lék hér ađ sjálfsögđu 86..Hd5. Eftir 87. Kc2 Ke2 88. He8+ Kf3 89. Hf8+ Ke3 90. Hf7 Hd4 91. Kc3 Hf4 92. He7+ Kf3 var brúarsmíđin fullkomnuđ og hvítur gafst upp.
4. umferđ - 5 vinningar af 10
Stephan, Gunnar Erik og Batel unnu öll. Jón Kristinn, Oliver Aron, Aron og Róbert gerđu jafntefli. Hilmir Freyr, Alexander og Óskar Víkingur töpuđu.
Gunnar Erik hafđi svart gegn Finnanum Niklas Jaakkola (1154). Upp kom Sikileyjarörn og eftir uppskipti í miđtaflinu fékk Gunnar Erik upp örlítiđ hagstćđara tvöfalt hróksendatafl ţar sem hvítur hafđi tvípeđ. Eftir uppskipti á hrókunum kom upp peđsendatafl ţar sem Finnanum varđ á ónákvćmni sem gaf Gunnari Erik kost á ţví ađ nýta sér ţekkingu sína á fjarlćgum frípeđum.
Hér lék Gunnar Erik 42..h5+ og eftir 43. Kh4 Kh6 44. Kg3 Kg5 45. Kh3 h4 gafst hvítur upp ţar sem svarti kóngurinn röltir yfir á miđborđiđ og gćđir sér á hvítu peđunum í skiptum fyrir fjarlćga frípeđiđ sitt á h-línunni.
Í dag fór einnig fram langur fundur fulltrúa allra skáksambandanna á Norđurlöndunum og sat undirritađur fundinn fyrir hönd SÍ. Stađa skákarinnar á Norđurlöndunum var rćdd og skiptust fulltrúarnir á ýmsum hugmyndum međ ţađ ađ markmiđi ađ bćta samstarf ţjóđanna í málefnum skákar í skólum. Viđ Íslendingar höfum, ađ mínu mati, veriđ ađ gera athyglisverđa hluti í ţeim málum á undanförnum 10 árum og voru hinar ţjóđirnar sérlega áhugasamar um ađ reyna ađ lćra eitthvađ af okkur. Sérstaklega ţó Finnarnir sem eru ađ kljást viđ talsvert áhugaleysi á skák međal yngri kynslóđarinnar.
Eftir kvöldmat fór íslenski hópurinn í gönguferđ í finnska kuldanum í skóginum sem umlykur svćđiđ. Hressandi endir á löngum degi.
5. umferđ fer fram kl. 9:00 í fyrramáliđ (kl. 7:00 ađ íslenskum tíma)
Pörun 5. umferđar:
Bestu kveđjur heim,
- Björn Ívar Karlsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Sú stađa er komin upp ţegar tvćr umferđir eru eftir af Skákţingi Reykjavíkur 2018 ađ Akureyringurinn Stefán Bergsson hefur tveggja vinninga forskot á nćstu menn og ţarf ađeins jafntefli til ađ tryggja sigurinn. Hann mćtir raunar stigahćsta keppandanum, Braga Ţorfinnssyni, í áttundu umferđ sem fram fer á morgun. Ţá fćst svar viđ ţeirri spurningu hvort skákţingiđ vinnist međ fullu húsi, sem gerđist síđast fyrir 25 árum og var ţar ađ verki Vestfirđingurinn Guđmundur Gíslason. Stađa efstu manna fyrir lokasprettinn:
1. Stefán Bergsson 7 v (af 7), 2.-10. Hilmir Freyr Heimisson, Björn Hólm Birkisson, Ţorvarđur Ólafsson, Bragi Halldórsson, Lenka Ptacnikova, Einar Hjalti Jensson, Bragi Ţorfinnsson, Júlíus Friđjónsson og Dagur Ragnarsson 5 v.
Í 6. umferđ vann Stefán snaggaralegan sigur á Hrafni Loftssyni:
Hrafn Loftsson Stefán Bergsson
Kóngsindversk vörn
1 d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3 O-O 5. e4 d6 6. Be2 e5 7. Be3 Rg4 8. Bg5 f6 9. Bc1 Rc6 10. d5 Rd4!?
Ţessi peđsfórn virđist gefa góđ fćri ţó ađ algengara sé ađ víkja riddaranum undan til e7.
11. Rxd4 exd4 12. Dxd4 f5 13. Dd1 fxe4!
Međ hugmyndinni 14. Bxg4 Dh4! sem hótar biskupinum og máti á f2.
14. Rxe4 De7 15. f3 Bf5 16. O-O
Freistandi, en gott var einnig 16. ... Bxe4, t.d. 17. fxg4 Be5! og hvíta kóngsstađan stenst ekki álagiđ.
17. Kxh2 Dh4+ 18. Kg1 Bxe4 19. fxe4 Hxf1+ 20. Kxf1 Hf8+ 21. Bf3 Dxe4 22. De2 Dh4 23. Df2?
Hann gat varist međ 23. De1!
23. ... Dxc4+ 24. Kg1 He8!
Međ vinningsstöđu!
25. Kh2 Bd4 26. Dd2 Be5+ 27. Kh3 Df1 28. Kg4 h5+ 29. Kh4 Dh1+ 30. Kg5 Kg7!
Kóngurinn rekur smiđshöggiđ á vel útfćrđa sókn.
31. Dd3 Bf6+ 32. Kf4 Dh4+ 33. g4 Dh2 mát.
Björgvin efstur í Stúkunni
Björgvin Jónsson vann Halldór Grétar Einarsson í fjórđu umferđ skákhátíđar MótX sem fram fer í Stúkunni á Kópavogsvelli og ţar er tefld ein skák í viku. Skákhátíđin dregur til sín flesta af sterkustu skákmönnum Íslands en í efsta flokki eru línur ađeins teknar ađ skýrast ţó ađ stór hluti keppenda hafi nýtt sér möguleika á ˝ vinnings yfirsetu, sumir oftar en einu sinni. Stađa efstu mann í A-flokki er ţessi: 1. Björgvin Jónsson 3˝ v. ( af 4 ) 2.4. Jóhann Hjartarson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Ţröstur Ţórhallsson 3 v.
Sjötti sigur Magnúsar Carlsen í Wijk aan Zee
Fremsti skákmađur Hollendinga, Anish Giri, hefur um nokkurt skeiđ átt viđ sérkennilegan ímyndarvanda ađ stríđa. Mót eftir mót rigndi niđur jafnteflum í skákum hans. Svo dćmi sé tekiđ má nefna áskorendamótiđ í Moskvu sem fram fór fyrri part árs 2016 en ţar tefldi hann 14 skákir og ţeim lauk öllum međ jafntefli. Fyrir Tata Steel-mótiđ í Wijk aan Zee var honum ljóst ađ hann yrđi ađ reka af sér slyđruorđiđ. Niđurstađan varđ ţessi:
1.-2. Giri og Magnús Carlsen 9 v. (af 13 ) 3.4. Kramnik og Mamedyarov 8˝ v. 5.6. Anand og So 8 v. 7. Karjakin 7˝ v. 8. Svidler 6 v. 9. Wei 5 ˝ v. 10.11. Jones, Caruana og Matlakov 5 v. 13. Adhiban 3˝ v. 14. Hou Yifan 2˝ v.
Nú hefur veriđ er tekinn upp sá siđur í Wijk ađ tefla til úrslita verđi tveir eđa fleiri efstir og í tveim hrađskákum sem Magnús og Giri tefldu um sigurvegaratitilinn hafđi Norđmađurinn betur, 1˝:˝ , og vann ţar međ sinn sjötta sigur á ţessu merka móti.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 3. febrúar 2018
Spil og leikir | Breytt 3.2.2018 kl. 13:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2018 | 19:37
NM í skólaskák - dagur 1
Norđurlandamótiđ í skólaskák hófst hér í Vierumaki í Finnlandi í morgun. Teflt er venju samkvćmt í fimm aldursflokkum og hefur hver ţjóđ tvo fulltrúa í hverjum flokk. Fulltrúar Íslands ađ ţessu sinni eru:
A-flokkur:
FM Jón Kristinn Ţorgeirsson 2319
FM Oliver Aron Jóhannesson 2263
B-flokkur:
CM Hilmir Freyr Heimisson 2136
Aron Ţór Mai 1965
C-flokkur:
Alexander Oliver Mai 1981
Stephan Briem 1876
D-flokkur:
Óskar Víkingur Davíđsson 1871
Róbert Luu 1680
E-flokkur:
Gunnar Erik Guđmundsson 1491
Batel Goitom Haile 1421
Ţjálfarar og fararstjórar eru Helgi Ólafsson og Björn Ívar Karlsson.
Ađstćđur hér eru til fyrirmyndar. Mótsstađurinn er Vierumaki Olympic center sem er einhvers konar ćfingasvćđi fyrir ýmsar íţróttagreinar. Teflt er í rúmgóđum sal og allt til alls fyrir keppendur og áhorfendur. Helmingur skákanna er sýndur beint á netinu og hćgt er ađ fylgjast međ ţeim í sérstökum sal viđ hliđina á keppnissalnum. Keppendur og fylgdarliđ gista svo í rúmgóđum hótelherbergjum. Hér eru allir sammála um ađ bođiđ sé upp á talsvert betri ađstćđur en gengur og gerist á Norđurlandamótum í skólaskák.
1. umferđ
6,5 vinningur af 10 mögulegum
Jón Kristinn, Oliver Aron, Aron Ţór, Hilmir Freyr, Alexander Oliver og Gunnar Erik unnu allir. Óskar Víkingur gerđi jafntefli. Stephan, Róbert og Batel töpuđu. Aron Ţór vann hinn sćnsk/íslenska Baldur Teodor Petersson (2161) í vel útfćrđri skák. Aron fékk mun betra tafl eftir byrjunina og ţrengdi mjög ađ andstćđingi sínum sem neyddist á endanum til ţess ađ gefa drottninguna fyrir ónćgar bćtur. Aron sigldi sigrinum í höfn af öryggi.
Aron lék síđast 18. f4 sem svartur svarađi međ 18...Rd3 en eftir 19. Bf1 varđ eitthvađ undan ađ láta og Aron vann af öryggi.
2. umferđ
5 vinningar af 9 mögulegum
Hilmir Freyr, Alexander Oliver og Batel unnu öll. Oliver Aron og Jón Kristinn gerđu innbyrđis jafntefli. Ađ auki gerđu Stephan og Róbert líka jafntefli. Aron Ţór, Óskar og Gunnar Erik töpuđu.
Alexander og Batel unnu vel útfćrđar skákir. Skák Hilmis gegn hinum sćnska FM Milton Pantzar (2260) vakti talsverđa athygli. Upp kom sjaldgćft afbrigđi af London-system sem Hilmir var vel undirbúinn fyrir. Hann hafđi einnig teflt London-system í nýlegri skák gegn Einari Hjalta Jenssyni í Skákţingi Reykjavíkur og hafđi ţar misst af skemmtilegu trikki međ Bc7 eftir byrjunina. Ţetta var rćtt í undirbúningnum fyrir skákina og ţađ kom skemmtilega á óvart ţegar eftirfarandi stađa kom upp:
Hér lék Hilmir ađ sjálfsögđu 14. Bc7! og ţađ er ljóst ađ svartur tapar miklu liđi eftir 14..Hxc7 15. a5. Svartur barđist í rúmlega 30 leiki en Hilmir vann af miklu öryggi. Hilmir, sem mćtti vel klćddur til leiks í finnska kuldanum, lét eftirfarandi ummćli falla fyrir skákina: ,,When the gloves are on - the game is on"
3. umferđ hefst kl. 9:00 ađ finnskum tíma í fyrramáliđ (7:00 ađ íslenskum tíma).
Pörun 3. umferđar:
Bestu kveđjur heim.
- Björn Ívar Karlsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2018 | 10:00
SŢR #9: Stefán Bergsson er Skákmeistari Reykjavíkur 2018
Spennustigiđ í skáksal Taflfélags Reykjavíkur var hátt er síđasta umferđ Skákţings Reykjavíkur var tefld. Fyrir umferđina áttu fjórir skákmenn möguleika á efsta sćti en ađeins einn ţeirra, Stefán Bergsson, átti ţess kost ađ tróna einn á toppnum. Stefáni nćgđi jafntefli í lokaumferđinni gegn Degi Ragnarssyni til ţess ađ tryggja sér sigur í mótinu en Dagur hefđi náđ Stefáni ađ vinningum međ sigri. Á sama tíma mćttust Hilmir Freyr Heimisson og Bragi Ţorfinnsson og hefđi annar hvor getađ náđ Degi og Stefáni ađ vinningum fćri svo ađ Dagur myndi vinna Stefáni.
Stóra spurning lokaumferđarinnar var sú hvort Stefán stćđist pressuna sem fylgir ţví ađ nćgja jafntefli í lokaumferđ gegn mun stigahćrri andstćđingi, hafandi í huga tapiđ í 8.umferđ ţar sem jafntefli nćgđi Stefáni líka. Til ađ gera langa sögu stutta ţá stóđst Stefán pressuna međ glćsibrag. Hann tefldi mjög vel gegn franskri vörn Dags, hann nýtti sér mistök sem Dagur gerđi í miđtaflinu og vann ađ lokum skákina. Ţađ var í ţessari stöđu sem Stefán gerđi út um skákina:
Stefán lék 20.Rf6+! og eftir 20 Bxf6 21.exf6 Rb3 22.De3 Rxd4 23.Hxd4 Bc6 24.Hg4 gafst Dagur upp.
Ţessi sigur tryggđi Stefáni 8 vinninga í skákunum 9 og sat hann ţví einn á toppnum viđ leiđarlok, heilum vinningi á undan nćsta manni. Stefán Bergsson er ţví Skákmeistari Reykjavíkur áriđ 2018. Sannarlega stórbrotin frammistađa hjá Stefáni sem var í upphafi móts ađeins 14.stigahćsti keppandinn.
IM Bragi Ţorfinnsson vann skák sína í lokaumferđinni gegn CM Hilmi Frey Heimissyni og lauk tafli međ 7 vinninga. Ţađ nćgđi Braga til ađ hreppa 2.sćtiđ. Í humátt á eftir Braga komu IM Einar Hjalti Jensson og FM Sigurbjörn Björnsson međ 6,5 vinning. Einar Hjalti hlaut 3.sćtiđ eftir stigaútreikning.
Nánar verđur fjallađ um mótiđ á nćstu dögum. Upplýsingar um einstök úrslit og lokastöđu, sem og skákir mótsins, má finna á Chess-Results.
Nánar á heimasíđu TR.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2018 | 09:00
Guđmundur endađi í 3.-5. sćti í Úrúgvć
Alţjóđlegi meistarinn, Guđmundur Kjarntassnon (2441) endađi í 3.-5. sćti á alţjóđlega mótinu í Copa Marcel Duchamp í Montevideo í Úrúgvć. Guđmundur hlaut 7 vinninga í 9 umferđum.
Frammistađa Guđmundar samsvarađi 2408 skákstigum og hćkkađi hann um 1 stig fyrir hana.
Úrslit í skákum Guđmundar má finna á Chess-Results.
150 keppendur frá 9 löndum tóku ţátt í mótin og ţar af voru 7 stórmeistarar. Guđmundur var nr. 7 í stigaröđ keppenda.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2018 | 07:00
Hrađskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudaginn
Hrađskákmót Reykjavíkur verđur haldiđ í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12 sunnudaginn 11.febrúar og hefst tafliđ kl.13:00.
Tefldar verđa 11 umferđir međ tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viđbótartíma eftir hvern leik). Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er opiđ öllum.
Ţátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótiđ fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eđa yngri. Skráning fer fram á skákstađ og lýkur henni kl.12:50.
Eftir Hrađskákmótiđ fer fram verđlaunaafhending fyrir Skákţing Reykjavíkur.
Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin auk ţess sem krýndur verđur Hrađskákmeistari Reykjavíkur. Verđi keppendur jafnir ađ vinningum verđur skoriđ úr um sćtaröđ međ stigaútreikningi (tie-break). Röđ stigaútreiknings: 1.Innbyrđis úrslit 2.Bucholz (-1) 3.Bucholz (median) 4.Sonneborn-Berger.
Ríkjandi hrađskákmeistari Reykjavíkur er Dagur Ragnarsson. Sigurvegari mótsins í fyrra varđ hins vegar Vestfjarđarvíkingurinn Guđmundur Gíslason sem vann ţađ ţrekvirki ađ vinna međ fullu húsi! Undanfarin 11 ár hafa sex skákmeistarar boriđ titilinn Hrađskákmeistari Reykjavíkur, ţar af einn stórmeistari og fjórir FIDE-meistarar:
2017: Dagur Ragnarsson 2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíđ Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíđ Kjartansson 2007: Davíđ Kjartansson.
Spil og leikir | Breytt 7.2.2018 kl. 17:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2018 | 16:00
Icelandic Open - Skákţing Íslands - minningarmót um Hemma Gunn fer fram 1.-9. júní í Valsheimilinu
Íslandsmótiđ í skák 2018, fer fram í Valsheimilinu, 1.-9. júní nk. Mótiđ verđur opiđ ađ ţessu sinni og teflt í einum flokki. Rétt eins og var var 100 ára afmćlismótinu áriđ 2013 ţegar teflt var í Turninum í Borgartúni sćllar minningar. Mótiđ ber jafnframt heitiđ Icelandic Open. Mótiđ nú verđur minningarmót um Hemma Gunn, sem lést ţegar mótiđ fór fram í Turninum.
Mótiđ nú verđur jafnframt Íslandsmót kvenna og unglingameistaramót ÍslandS (u22). Efsta konan á mótinu verđur Íslandsmeistari kvenna sem og yngsta ungmenni, 22 ára og yngri. Engin áskorendaflokkur fer heldur fram í ár. Segja má ţví Íslandsmótiđ opna komi í stađ fjögurra móta!
Á nćstu vikum, samt mjög líklega ekki fyrr en eftir GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ, verđur fyrirkomulag mótsins nánar kynnt en ţađ verđur mjög líklega mjög áţekkt ţví sem var á afmćlinumótinu 2013. Ţá sigrađi á Hannes Hlífar Stefánsson eftir ađ hafa lagt Björn Ţorfinnsson ađ velli í úrslitaeinvígi. Björn náđi sér hins vegar í stórmeistaraáfanga á mótinu.
Vinsamlegast bókiđ ţessar dagsetningar og takiđ frá. Ţetta verđur eitthvađ.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 142
- Frá upphafi: 8778676
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar