Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2017

EM Landsliða - liðsstjórapistill 4. umferðar

EM2017_IcelandPortugal

Viðuriegn dagsins var gegn liði Portúgal. Enn kom skipting andstæðinga okkar á óvart þegar eini stórmeistari þeirra, Antonio Fernandez tók hvíldina á móti okkur. Sá reyndist okkur erfiður í Bakú þegar hann sneri erfiðri stöðu gegn Jóhanni awm var lykillinn að jafntefli Portúgala þá.

Lið Portúgala er annars nokkuð ungt og greinilegt að þeir eru aðeins ganga í gegnum endurnýjun á liðinu og virðist vera einhver uppgangur í skákinni hjá þeim því þónokkuð margir keppendur frá Portúgal voru á EM ungmenna í Rúmeníu í síðasta mánuði.

Ég hef áður minnst aðeins á aðstæður hér en þær eru mjög góðar. Keppnissalurinn er rúmgóður og engu undan að kvarta þar. Boðið er upp á vatn fyrir keppendur af styrktaraðila og andrúmsloftið almennt séð nokkuð afslappað. Með því á ég við að þótt að það sé ákveðin öryggisgæsla þar sem fólk geymir síma sína frammi og allir sem koma inn þurfa að láta skanna sig með "metal-detector" tæki þá er lítil tortryggni hér og menn ekkert að stressa sig á lítilsháttar brotum á reglum. Allt öðruvísi andrúmsloft en var t.d. í Baku á Ólympíumótinu í fyrra.

Mótið fer fram á stóru hóteli eða ætti heldur að kalla hótelgarð en á enskunni kalla þeir þetta resort. Hér er semsagt hótelið og svo fullt af íbúðum semtilheyra svæðinu hér ásamt mikið af börum, veitingastöðum, líkamsræktarsal og fleira og fleira. Hótelið eiginlega lokað sökum "off-season" og var það í raun enduropnað þegar keppendur voru að týnsat inn daginn fyrir mótið. Það eru semsagt bara skákmenn og fylgdarlið á hótelinu en það er nú svosem nóg af þeim!

Einnig fer fram hér heimsmeistaramót ungmenna í at- og hraðskák en það virðist almennt séð nokkuð fámennt en eykur engu að síður við fjöldann sem er að gista hér.

Maturinn er fínn eins og áður hefur komið fram en sundlaugarnar eru þó lokaðar hér. Þá er bara að skella sér í sjóinn eins og ég og Gunnar gerðum um daginn sem er nú bara helvíti hressandi! Sólin hefur reyndar ekki látið sjá sig í tvo daga núna en veðrið er samt nokkuð þægilegt.

Færum okkur í viðureign dagsins og byrjum á fyrstu skákinni til að klárast. Fyrir þá sem vilja fylgjsat með á daginn er rétt að benda á að umræður um skákirnar fara iðullega fram á Facebook síðunni "íslenskir skákmenn" en þar hefur Björn Ívar Karlsson verið að fara á kostum í að greina hvað er að gerast í byrjun skákanna.

 

2. borð Hjörvar hvítt á IM Andre Ventura Sousa 2405

EM2017_Rnd4_Hjorvar

 Hjörvar greindi andstæðing sinn mjög vel. Hann bjóst við annaðhvort kóngsindverja sem hann hafði mikið teflt áður eða drottningarbragði. Þar sem andstæðingur hans hafði litla reynslu í þannig byrjunum var Hjörvar vel sáttur við að fá symmetríska stöðu því hann metur það þannig að þar komi oft í ljós hvor er betri skákmaður.

Hjörvar var því alveg sáttur við að gelda stöðuna og fá stöðu eins og að neðan þó hún láti lítið yfir sér.

EM2017_4th_Hjorvar_1

Hjörvar byggði stöðuna upp jafnt og þétt og þurfti í raun voða lítið að gera þar sem andstæðingur hans leyfði einfalt trikk með Dd3 og svartur gaf í kjölfarið peð en breytti því svo í skiptamun og eftirleikurinn mjög auðveldur hjá Hjörvar algjörlega laus við áhyggjur um mótspil.  Auðveldur og góður sigur hjá Hjörvari sem átti það skilið eftir óheppnina á móti Georgíu.

EM2017_4th_Hjorvar_2

1-0 fyrir Ísland!

 

1. borð Héðinn svart á Jorge Ferreira 2499

EM2017_Rnd4_Hedinn

Fyrsta borðs maður Portúgals er jafnframt liðsstjóri þeirra. Hann gerði jafntefli við Hannes í Baku en þar fékk hann einnig hvítu mennina og beitti þá 1.d4. Í dag valdi hann 1.e4 gegn Héðni og Bb5+ afbrigðið gegn Sikileyjarvörn.

Portúgalinn skildi eftir peð í dauðanum í byrjuninni og það var eiginlega vendipunktur skákarinnar.

Em2017_4th_Hedinn1

Hér hefðu varkárir menn líklegast teflt stöðuna með ...g6 og ...Bg7 og teflt þetta solid. Það hefði líka verið minna stressandi fyrir liðsstjórann í liðakeppni ;-)

Þess í stað var boðið upp í dans og Héðinn tók peðið á e4. Þetta var áhættusöm ákvörðun þar sem hvítur fékk mikla sókn og forystu í lisskipan. Líklega hefði Héðinn orðið tefla stöðuna með því að leika ...g5 fyrr og hefði það mögulega verið leið til að réttlæta peðsátið á e4. Þess í stað stóðu öll spjót á svörtu stöðunni og á endanum náði Héðinn ekki að verjast vaxandi hótunum hvíts þó að Portúgalinn hafi ekki valið fljótlegustu leiðirnar.

Ósigur hjá okkur hér og stðaan nú 1-1 í viðureigninni.

 

 

 3. borð Hannes svart á FM Luis Silva 2355

EM2017_Rnd4_Hannes

Hannes leitaði í smiðju Hjörvars frá því tveim umferðum áður þegar 3...a6 var beitt í drottningarbragði. Silva virtist vita hvað hann ætti að gera og hafnaði þráleik snemma og fékk svo eitthvað betra tafl. Hannes fórnaði peði í miðtaflinu en hafði klárlega jafnt tafl engu að síður.

Em2017_4th_Hannes1 

Hannes sýndi svo styrk sinn og tefldi framhaldið glimrandi. Hann fékk algjöran "cream-knight" eða dramariddra á c5 reitnum og var magnað að sjá hvað hvíta staðan hrundi hratt.

Em2017_4th_Hannes2

Silva fórnaði að lokum manni fyrir frípeðin hættulgea hjá Hannesi og fékk sinn eigin peðamassa í staðinn. Hannes dundaði sér þá bara og tæklaði úrvinnsluna auðveldlega og skilaði mikilvægum sigri í hús.

Hannes er að tefla vel hérna úti og virðist í góðu formi....það er vonandi að "gamli-Hannes" sé mættur hér til leiks!

Við leiðum hér 2-1 í viðureigninni.

 

4. borð Guðmundur hvítt á IM David Martins 2384

P1050081

Gumm fékk á sig grjótgarðinn í Hollendignum og beitti afbrigði með uppskiptum á f4. Hvítur fær oft góð tök á e5 reitnum í slíkum stöðum og það varð niðurstaðan í þessari skák þar sem riddarinn var kominn á e5 reitinn í 14. leik og hvítur stóð betur.

Em2017_4th_Gummi1

Gummi hélt nokkuð góðum control á stöðunni en þó mér hafi fundist hann vera að missa mestu stöðuyfirburðina var hvítur samt með betra tafl. Skákin hjá Hannesi var enn í gangi og Gummi með aðeins betri tíma þegar þessi staða kom upp:

Em2017_4th_Gummi2

Hér hefði mátt sýna aðeins meiri praktík hjá hvítum með því að endurtaka stöðuna með 34.Kg2 þar sem svartur var nýbúinn að skáka á g8 og fara aftur á e6. Það er eiginlega sama hvort hvítur er að tefla upp á vinning eða ekki. Ef hann er að tefla upp á vinning færist hann nær tímamörkunum (tíminn fór óþægilega langt niður í lokin) og ef það er ekki verið að tefla upp á sigur er hægt að sjá hvað svartur gerir og ráðfæra sig við liðsstjóra.

Ég hefði líklega átt að láta tryggja hér matchpunktinn með því að láta bjóða jafntefli þar sem ég taldi Hannes með auðunnið tafl. Þetta og viðureignin við Albani er klárlega eitthvað sem ég og við í liðinu munum læra af og góður punktur hjá Birni Þorfinnssyni í Facebook grúppunni Íslenskir skákmenn en hann "lenti" í því að þurfa að taka jafntefli fyrir liðið á sínum tíma.

Ég vissi reyndar að Gummi taldi sig vera með betra sem var klárlega rétt en svartur var samt kominn með aðeins og mikið sprikl að mínu mati og tímahrak yfirvofandi. Ég róaðist aðeins þegar drottningarnar fóru af borðinu. Staðan þá var líklega steindautt jafntefli en Gummi taldi sig þó enn með betra tafl og endaði á að vinna skákina þegar svartur skildi peðið sitt á a6 eftir oní en ég skildi ekki alveg hvað honum gekk til með þar.

Þetta þýddi nokkuð góður 3-1 sigur sem setur okkur upp í 4 stig. Pörun er þegar ljós og munum við mæta sterkri sveit Slóvena. Það er þó klárt að við eigum klárlega möguleika á að stríða þessari sveit og vinna hana á góðum degi. Fróðlegt verður að sjá hvernig Slóvenarnir stilla upp en það er eiginlega anybodies guess hverja þeir eru að fara að hvíla á morgun.

 

Clipboard01

 

Við hlökkum til áskoruninnar hvernig sem þeir stilla upp og ég veit t.a.m. að Hjörvar er mjög spenntur að fá að tefla við goðsögnina Beliavsky.

Í toppbaráttunni settu Ungverjar allt í uppnám með glæsilegum sigri á Rússum. Það var Erdos sem var hetjan hjá þeim með mjög sannfærandi sigri á Nepo. Það er ljóst að toppbaráttan á þessu móti verður grjóthörð!

 

Kveðjur frá Krít,

Ingvar Þór Jóhannesson - liðsstjóri

 

 

Að neðan er SnapChat story frá Ingvar77 eins og venjulega með ýmsku skralli ;-)


EM landsliða: Góður sigur gegn Portúgal - Slóvenía á morgun

P1050091

 

Íslenska liðið vann góðan 3-1 sigur á Portúgal í fjórðu umferð EM landsliða á Krít. Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson unnu sínar skákir á 2.-4. borði. Héðinn Steingrímsson tapaði á fyrsta borði. Andstæðingar morgundagsins eru Slóvenar. Óvænt úrslit urðu þegar Ungverjar unnu Rússa 2½ og eru efstir með 7 stig ásamt Króötum og Armenum.

P1050081

Hjörvar var fyrstur til að vinna en hann afar góðan og öruggan sigur á örðu borði. Hannes Hlífar Stefánsson tefldi einnig afar öruggt á þriðja borði og staðan orðin 2-0. Héðinn var hins vegar í köðlunum, eftir frekar vafasamt peðsrán í byrjun skákar, og staðan hjá Guðmundi nokkuð óljós. Liðsstjórinn, Ingvar Þór Jóhannesson, var því ekki alveg í rónni. 

Héðinn tapaði sinni skák og Guðmundur einn eftir. Gummi leysti dæmið vel og vann sigur eftir nærri 70 leiki. Góður 3-1 í höfn gegn Portúgal. Á Ólympíuskákmótinu fyrra gerðum við 2-2 svekkjandi jafntefli við Portúgali.

Ísland er efst í Norðurlandakeppninni (heildarsæti í sviga).

  1. (24) Ísland 4 stig
  2. (25) Finnland 4 stig
  3. (27) Noregur 3 stig
  4. (34) Danmörk 2 stig
  5. (38) Færeyjar 1 stig

Andstæðingar morgundagsins eru Slóvenar. Þeir hafa meðalstigin 2572 á móti 2527 meðalstigum okkar manna svo örlítið hallar á okkur. 

Lið Slóvena

Clipboard01

 


Áskriftargjöld – endurútgáfa Tímaritsins Skákar

Tímaritið SkákEftirfarandi bréf hefur verið sent til allra sem eru á Keppenaskrá Skáksamband Íslands. Skáksambandið vonar eftir góðum undirtektum íslenskra skákmanna við endurgáfu tímaritsins sem stefnt er á að komi út tvisvar á ári - vor og haust.

--------------------

Kæri viðtakandi

Skáksamband Íslands hefur ákveðið að hefja endurútgáfu Tímaritsins Skákar eftir alllangt hlé. Stefnt er að því að Tímaritið komi út tvisvar sinnum á ári – um vor og haust. Fyrsta tölublaðið kemur út í kringum GAMMA Reykjavíkurskákmótið í mars nk. og verður sent heim til þeirra sem greiða áskriftargjaldið.

Um mikilvægi Tímaritsins þarf ekki að deila. Það hefur reynst okkar ómetanlegt í gegnum áratugina til að varðveita skáksöguna. Í Tímaritinu Skák verður meðal annars fjallað um helstu mót innanlands sem og utanlands, helstu landsliðskeppnir, í því verða áhugaverð viðtöl auk þess sem mikil áhersla verður lögð t.a.m. á það öfluga æskulýðs- og öldungastarf sem í gangi er.

Til að styrkja við blaðið hefur verið stofnuð valfrjáls krafa í netbanka á alla þá sem eru á Keppendaskrá Skáksambandsins undir nafninu „áskriftargjald“. Á þeirri skrá eru allir þeir sem hafa verið skráðir í taflfélag eða teflt reiknaða kappskák á undanförnum árum.

Í áskriftargjaldinu verður einnig innifalinn frír stigaútreikningur og tvö skemmtikvöld á ári – vor og haust. Það fyrsta verður í nóvember nk. og verður kynnt á www.skak.is.  Áskriftargjaldið er hóflegt, eða 5.000 kr. á hverju starfsári. Helmingsafsláttur er fyrir eldri borgara (+67), unglinga (u18) og öryrkja. Jafnframt verður sérstakur fjölskylduafsláttur. Elsti fjölskyldumeðlimur borgar fullt gjald en aðrir fjölskyldumeðlimir greiða hálft gjald. Þeir sem telja sig eiga að fá afslátt geta haft samband við skrifstofu SÍ í netfangið skaksamband@skaksamband.is eða í síma 568 9141 á milli 9 og 13.

Þeir sem ekki vilja taka þátt eru hvattir til að hafa samband og verður þá krafan felld niður. Einnig er einfaldlega hægt að sleppa því að greiða greiðsluseðilinn í netbankanum. Hann ber ekki vexti og verður felldur niður eftir þrjá mánuði verði hann þá enn ógreiddur.

Hinn 1. janúar nk. mun SÍ taka upp stigagjald, 1.000 kr. fyrir þátttöku á hverju kappskákmóti. Það gjald þurfa eingöngu þeir að greiða sem ekki greiða áskriftargjaldið. Þeim tekjum er ætlað að dekka kostnað við skákstigaútreikning. Skákmót fyrir börn á grunnskólaaldri verða alfarið undanskilin því gjaldi.

Það er einlæg von okkar að sem flestir taki þátt í þessu með okkur. Skák er skemmtileg!

Gunnar Björnsson
forseti Skáksambands Íslands

Pálmi R. Pétursson
Magnús Teitsson
ritstjórar Tímaritsins Skákar


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Viðureign dagsins: Portúgalir

P1050079

Ísland mætir Portúgal í 4. umferð EM landsliða sem fram fer í dag á Krít. Meðalstig Portúgala eru 2433 skákstig á móti 2527 meðalstigum íslenska liðsins. Við höfum 27. sterkasta liðið en þeir hafa á skipa því 34. sterkasta. Líkurnar eru því bersýnilega með íslenska liðinu í dag.

Viðureign dagsins

Clipboard01

Portúgalar hafa ekki tekið þátt í EM landsliða síðan 2001. Þeir tóku ávallt þátt árin 1989-2001 en síðan þá hafa þeir látið þátttöku á Ólympíuskákmótinu duga. Þeirra besti árangur náðist árið 1989 þegar þeir enduðu í 18. sæti.

Við höfum eini sinni mætt Portúgölum á EM. Það var árið 2001. Þá unnum við góðan 3-1 sigur. Jón Viktor Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson unnu sínar skákir en Hannes Hlífar Stefánsson og Stefán Kristjánsson gerðu jafntefli. 

Við höfum mætt þeim sjö sinnum á Ólympíuskákmóti. Unnið þá fimm sinnum, gert einu sinni jafntefli og tapað eini sinni. Síðast mættum við þeim árið 2002 og gerðum 2-2 jafntefli. Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson unnu en Helgi Áss Grétarsson og Stefán Kristjánsson töpuðu. Tölfræðin gegn Portúgölum er því afar góð. 

Umferðin hefst kl. 13. Skákir íslenska liðsins má nálgast hér á Chess24

Rússar (6), sem eru efsti með fullt hús stiga, tefla við Ungverjaland (5). Aðrar toppviðureignir eru: Þýskaland (5) - Pólland (5), Ísrael (5) - Króatía (5), Armenía (5) - Holland. Aserar, sem hafa næststigahæsta liðið gerðu aðeins jafntefli í gær hafa aðeins 3 stig. Þurfa heldur betur að eiga góð úrslit í næstu umferðum ætli liðið að blanda sér í toppbaráttuna. 

Athyglisvert er að skoða þjálfara- og liðsstjórateymi Rússa. Í því fylgdarliði eru þrír fyrirverandi Evrópumeistarar: Najer, Potkov og Motylev auk Rublevsky og Riazantsev! Lið sem án efa vera í toppbaráttunni tæki það þátt! Ekkert annað lið hefur á skipa neinu sambærilegu aðstoðarmannateymi og Rússarnir. Vekur reyndar athygli að indverski stórmeistarinn Adhiban er hér. Við höfum ekki áttað okkur á hvað hann sé að gera hérna. Væntanlega er hann að stoða eitthvað liðið.  

Á Chess.com má finna góða úttekt um umferð gærdagsins

Í kvennaflokki vakti sigur Rússa á Úkraínumönnum mesta athygli. Fimm sveitir hafa þar fullt hús stiga. 

 


Æskan og ellinn fer fram á laugardaginn

ÆSKAN OG ELLIN 20161-005

Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN XIV., þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í 14. sinn laugardaginn 4. nóvember  í Skákhöllinni í Faxafeni. 

TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi TOPPFISKS ehf – leiðandi fyrirtækis í ferskum og fyrstum sjávarafurðum - standa saman að mótshaldinu sem það hefur eflst mjög að öllu umfangi og vinsældum með árunum.   

ÆSKAN OG ELLIN 20162-002Fyrstu 9 árin var mótið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring, en nú síðustu 4 árin í samstarfi við TR- elsta og öflugasta taflfélag landsins.  Þessi mót - þar sem kynslóðirnar mætast - hafa jafnan verið fjölsótt jafnt af yngri sem eldri skákmönnum og afar velheppnuð. Yfir  80 ára aldursmunur er hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans. 

Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.    

Vegleg verðlaun og viðurkenningar. Auk aðalverðlauna verða veitt aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga.  Annars vegar fyrir þrjú efstu sæti í barna og unglinga-flokkum, 9 ára og yngri; 10-12 ára og 13-15 ára og hins vegar fyrir efstu menn í 3 öldunga-flokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri.  Auk þess fær sú telpa sem bestum árangri nær og yngsti og elsti keppandi mótsins heiðursverðlaun. 

ÆSKAN OG ELLIN XIII 2016 Vettvangsmyndir - EE

Mótsnefnd skipa þeir Kjartan Maack, formaður TR, og Einar S. Einarsson, erkiriddari/formaður Riddarans. 

Skráning til þátttöku fer fram á www.skak.is og www.taflfelag.is  vikuna fyrir mót.  Hámarksfjöldi keppenda er takmarkaður og því mikilvægt að skrá sig sem allra fyrst og/eða mæta tímanlega á mótsstað.   


Barna- og unglingameistaramót TR fer fram á sunnudag

Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 5. nóvember í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13.

Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á mann auk 5 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til atskákstiga.

Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum og þar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2017.

Þá verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokknum og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2017.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokknum 13-15 ára (f. 2002-2004), 11-12 ára (f. 2005-2006), 9-10 ára (f. 2007-2008) sem og 8 ára og yngri (f. 2009 og síðar) í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Fyrra árs Unglingameistari TR er Vignir Vatnar Stefánsson og Stúlknameistari TR er Batel Goitom Haile.

Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 2002 og síðar).

Skákmótið hefst kl.13 og er aðgangur ókeypis. Skráning í mótið fer fram rafrænt og má nálgast  skráningarformið hér. Einnig má finna skráningarformið í gula kassanum á skak.is. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.


Skákþing Skagafjarðar hefst 8. nóvember

Skákþing Skagafjarðar 2017 hefst miðvikudaginn 8. nóv. kl. 20.00 í Safnaðarheimilinu.  Telfdar verða 5 umferðir eftir Monradkerfi og verða tímamörkin 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími á hvern leik.  Skákmeistari Skagafjarðar 2016 varð Jón Arnljótsson.


EM Landsliða - Liðsstjórapistill 3. umferðar

P1050049Í gær vannst sigur á Albönum en verkefni dagsins var öllu erfiðara, grjóthörð sveit Georgíumanna. Við bjuggust við að hinn litríki Baadur Jobava myndi tefla með Georgíumönnum en hann var eitthvað slappur og úr varð að hann hvíldi gegn okkur. 

Tölfræðin var ekki okkur í vil þegar sagan var skoðuð í morgun. Íslendingar og Georgíumenn hafa mæst sex sinnum í sveitakeppni, þrisvar sinnum á Ólympíumótum og þrisvar á Evrópumóti. Georgíumenn hafa unnið í öll sex skiptin....það er svo sannarlega ólseigt í þeim Zurab og félögum þó að Azminn hafi lagt kónginn á hilluna.

 

 

Clipboard02

 

Förum yfir stöðu mála í dag og höfum sama ganginn og í gær með því að fara yfir skákirnar í þeirri röð sem þær kláruðust.

4.borð Gummi svart gegn Luka Paichadze

EM2017_3rd_Gummi

Upp kom Caro-Kann vörn í þessari skák eins og Gummi átti von á. Mér fannst á andstæðingi hans í byrjuninni að hann hefði ekki átt von á því og tók hann sér tíma í að ákveða hvað hann ætlaði að tefla. Upp koma advance afbrigðið með 3.e5 og hvítur valdi 4.h4 afbrigðið sem Gummi svaraði að bragði með 4...h5.

EM 2017_3rd_Gummi_1

Gummi hefði líklega getað fengið auðteflanlegra tafl með því að drepa á e3 aðeins fyrr en honum fannst staðan strax orðin "þjáning" eftir Rxd5 (sjá stöðumynd að ofan). Hvítur hefur einhvern veginn allt spilið og getur potað að vild á báðum vængjum.

 

EM 2017_3rd_Gummi_2

Hér er staðan orðin mjög erfið hjá Gumma. Hvítur hefur tekið yfir b- og c-línuna með hrókunum og menn hvíts standa vel. Á meðan er svartur með hræðilega drottningu á a7 og veik peð og liðatap nánast óumflýjanlegt.

 

EM 2017_3rd_Gummi_3

Georgíumaðurinn kláraði dæmið hér með týpisku "hvítur á leik og vinnur" trikki. Ég læt lesendum eftir að leysa það en hægt er að skoða skákina að neðan ef það vefst fyrir einhverjum.

 

 

3. borð Hannes hvítt gegn Jojua

EM2017_3rd_Hannes

Sikileyjarvörn kom á borðið hjá Hannesi en hafði frekar átt von á 1...e5

EM 2017_3rd_Hannes_1

Hugmyndin með c5 virist nokkuð góð og eftir drottningakaup fékk hann mun þægilegri stöðu og var ég nokkuð viss um að Hannes væri aldrei að fara að tapa þarna og týpísk staða sem hann getur kreyst eitthvað úr.

EM 2017_3rd_Hannes_2

Hannes bætti stöðuna jafnt og þétt en að sama skapi er hvíta staðan einhvern veginn komin í jakkafötin en hefur ekkert partý til að fara í. Skákin var meira og minna 10-11 leikir í viðbót af tilfærslum fram og til baka þar sem engin gerði neitt og jafntefli var svo samið.

Staðan hér því 0,5-1,5 Georgíumönnum í vil.

 

2. borð Hjörvar svart gegn Pantsulaia

EM2017_3rd_hjorvar

Þetta var klárlega mikilvægasta skákin í þessari viðureign og það var hér sem heilladísirnar hefðu mátt snúast.

Hjörvar hafði skoðað í þaula fyrir skákina hvernig hann ætlaði að mæta 1.Rf3 og 1.c4 og með ýmsar leikjaraðir í huga. Pantsulaia valdi 1.c4 og Hjörvar fór í tísku afbrigði með 2....Bb4.

Hjörvar fékk snemma gott forskot í liðsskipan í skiptum fyrir að gefa biskupaparið. Keppendur hrókuðu á sitthvorum vængnum og Hjörvar lét fljótt til skarar skríða.

EM 2017_3rd_Hjorvar_1

Í stöðumyndinni að ofan er Hjörvar nýbúinn að leika hinum kröftuga leik ...b5!? sem opnar línur á drottningarvæng. Einnig kom til greina að leika ...Rb4 strax en sá leikur kemur einnig í afbrigði Hjörvars.

 

EM 2017_3rd_Hjorvar_2

Strax í kjölfarið fann Hjörvar annan flottan tölvuleik þegar hann lék ...c5 sem hótar að opna enn fleiri línur í átt að hvíta kóngnum. Hjörvar tefldi framhaldið mjög vel og fékk myljandi sókn.

EM 2017_3rd_Hjorvar_3

Hér hefði Hjörvar mögulega getað kórónað magnaða skák með því að hörfa með biskupinn á f7 en það er að sama skapi mikill tölvuleikur. Hjörvar sem var mjög tæpur á tíma, tók hér á b1 sem lítur einnig mjög vel út. Í kjölfarið kom hinn hrókurinn í spilið og hvítur þurfti að þræða einstigi til að ná jafntefli.

EM 2017_3rd_Hjorvar_4

Pantsulaia fann ekki réttu leiðina og í stöðumyndinni að ofan var loks síðasti séns á vinningi. Með því að skáka á g2 (í stað ..Dxf3) stendur svartur til vinnings. Eftir Kd3 kemur ...Hd8+ og í kjölfarið fellur hrókinn á b3. Í staðinn missti Hjörvar þráðinn, hann átti enn þráskák á nokkrum stöðum eftir þetta en þess í stað fjaraði skákin út í tap sem er einstaklega grátlegt og í raun ósanngjarnt.

Úrslitin í þessari skák þýddu að úrslitin voru ráðin og skák Héðins gat því ekki haft áhrif á niðurstöðuna.

 

1.borð Héðinn hvítt gegn Mchelidshvili

EM2017_3rd_hedinn

Héðinn beitti Saemisch afbrigðinu í Nimzo með því að leika strax 4.a3 eftir ...Bb4. Mér fannst Héðinn fá týpíska "Héðins-stöðu" með hlutina að mestu undir control og hvítur klárlega með betra tafl.

EM 2017_3rd_Hedinn_1

Þrátt fyrir að hvítur hafi "betra í blöðunum" þá er erfitt að bæta hvítu stöðuna. Segja má að nokkurt dýnamískt jafnvægi sé í stöðunni og hvítur þarf að vanda sig gríðarlega. Líklega var planið sem Héðinn valdi með Kh2-h3 aðeins of mikið en hugmyndin var væntanlega að valda h4 peðið og hóta þá Rxg6 og e5 í einhverjum stöðum án þess að tapa tempói eftir ...Rf5.

Mchedlishvili nýtti sér hinsvegar kóngsstöðuna á h3 og þar sem hvítur átti erfiðara um vik að finna leiki sem bæta stöðuna var Héðinn þegar í tímahraki þegar hann lék af sér skákinni.

EM2017_3rd_Hedinn_2

Hér lék Héðinn af sér skákinni í erfiðri stöðu með Dc3?? Svartur drap á c3 og lék svo ...Ha3.

Niðurstaðan í raun sorglegt 0.5-3-5 tap sem var alltof stórt miðað við gang mála. Á tímabili fannst mér stöðurnar hjá Héðni og Hannesi vænlegar til útflutnings og Hjörvar átti gríðarlegan séns á vinningi eins og farið var yfir að ofan.

Tapið þýðir að við teflum niður fyrir okkur á morgun og á "matseðlinum" verður sveit Portúgal. Við eigum í raun harma að hefna þar sem að jafntefli gegn Portúgal í Baku 2016 kostaði okkur möguleikann á frábærum árangri. Stund hefndarinnar mun renna upp á morgun!

Clipboard05

 

Á efstu borðunum gerðu Hollendingar og Ungverjar jafntefli á efsta borði 2-2

EM2017_Hungary_Netherlands

 

Þetta gaf Rússum færi á að taka forystuna og þeir gerðu það með 2.5-1.5 sigri á Tékkum þar sem Nepo réð úrslitum á öðru borði.

EM2017_3rd_Czech_Russia

 

Kafteinninn kveður frá Krít!

EM2017_3rd_capitano

Ingvar.

 

 

P.s.

 

Hér er snapchat story dagsins að vanda. Addið mér á snapchat Ingvar77


EM landsliða: Portúgal á morgun

P1050049

Ísland mætir Portúgal í fjórðu umferð Evrópumóts landsliða sem fram fer á morgun. Sveit Portúgala er með meðalstigin 2433 skákstig á móti 2527 meðalstigum íslenska liðsins. Portúgalar eru þó sýnd veiði en ekki gefin en þeir unnu Finna, nokkuð óvænt, í annarri umferð 3-1 og töpuðu naumlega fyrir Króötum í fyrstu umferð. Portúgalar hafa ekki tekið þátt í EM síðan 2001.

Sveit Portúgala

Clipboard05


Ísland er nú í 31. sæti 40 liða með 2 stig og 7 vinninga. Þrátt fyrir það er Ísland í öðru sæti "Norðurlandakeppninnar" á eftir Norðmönnum sem unnu Færeyinga 3-1. í dag. Í öðrum "Derby-slag" í dag unnu Finnar Dani 2½:1½. 

Staðan í Norðurlandakeppninni (sæti í sviga)

  1. (21) Noregur 3 stig 
  2. (31) Ísland 2 stig
  3. (33) Finnland 2 stig
  4. (35) Færeyjar 1 stig
  5. (38) Danmörk 0 stig

Svíar taka ekki þátt.

Rússar eru efstir með fullt hús stiga einir liða í opnum flokki. Fjögur lönd hafa fullt hús stiga í kvennaflokki.

 


Andri hlaut 1 vinning í dag í Uppsölum

471_Andri_Freyr_Bjorgvinsson-281x300Akureyringarnir Andri Freyr Björgvinsson (1937) og Símon Þórhallsson (2027) taka þessa dagana þátt í alþjóðlegu unglingamóti í Uppsölum í Svíþjóð. Í dag voru tefldar tvær umferðir og fékk Andri Freyr einn vinning í þeim en Símon hálfan.

Eftir sex umferðir hefur Andri Freyr hlotið 2,5 vinninga en Símon 1,5 vinninga.

Mótinu verður framhaldið á morgun með sjöundu umferð

Heimasíða mótsins

 


Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 236
  • Frá upphafi: 8764693

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 140
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband