Bloggfćrslur mánađarins, september 2012
4.9.2012 | 14:12
Spennandi Íslandsmót íţróttafélaganna á laugardaginn
Ţađ stefnir í hörkuspennandi Íslandsmót íţróttafélaganna í skák á Hlíđarenda á laugardaginn og útlit fyrir ađ allt ađ 14 liđ sendi keppnissveitir. Flest Reykjavíkurfélögin tefla fram liđum, og er búist viđ ađ KR-ingar mćti firnasterkir til leiks međ Stefán Kristjánsson stórmeistara á 1. borđi.
Valsmenn sigruđu međ yfirburđum á Reykjavíkurmóti íţróttafélaganna í fyrra, en steinlágu fyrir KR á Lćkjartorgi á menningarnótt. Liđ Valsara er ţó til alls líklegt međ Jón Viktor Gunnarsson í broddi fylkingar.
Framarar ćtluđu sér stóra hluti í fyrra en höfđu ekki erindi sem erfiđi. Í liđi ţeirra núna verđa m.a. stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Helgi Áss Grétarsson.
Allt bendir til ađ Reykjavíkurfélögin Fylkir, Ţróttur, Leiknir og Víkingur verđi međ, líkt og í fyrra, og verđa sagđar fréttir af ţeim liđum á nćstu dögum.
Norđanmenn senda sameiginlegt liđ til keppni undir merkjum KA/Ţórs og međal liđsmanna eru Gylfi Ţórhallsson og Halldór B. Halldórsson. Ţá mćta galvaskir Skagamenn undir liđstjórn Einars K. Einarssonar, og Halldór Grétar Einarsson stýrir sterku liđi Breiđabliks.
Björn Ívar Karlsson stýrir liđi ÍBV, en auk ţess er vonast eftir liđum frá Hafnarfirđi og Garđabć.
Skákakademían stendur ađ mótinu. Hvert liđ er skipađ 4 mönnum, auk varamanns og liđstjóra. Tefldar verđa hrađskákir og hefst mótiđ klukkan 11 á laugardaginn. Tekiđ er viđ skráningum í stefan@skakakademia.is.
4.9.2012 | 13:16
Ól-pistill nr. 9 - Asíubúar, Kasparov og dularfull vera undir brú

Ţađ náđist fínt jafntefli gegn Austurríki í 6. umferđ sem fram fór í gćr. Stelpurnar koltöpuđu hins vegar fyrir sveit Venesúela. Í dag héldu nefndarfundir áfram hjá FIDE. Kasparov er mćttur og ţegar farinn ađ láta til sín taka.eru andstćđingarnir Íran og Suđur-Kórea.
Gćrdagurinn
Hjörvar Steinn Grétarsson var eini íslenski sigurvegarinn í gćr en hann átti fína vinningsskák á ţriđja borđi. Henrik Danielsen og Ţröstur Ţórhallsson gerđu jafntefli. Henrik átti um tíma fína stöđu en yfirsást vinningsleikur í einni stöđu. Ţröstur gerđi jafntefli í maraţonskák (125 leikir) eftir ađ hafa lengi veriđ í köđlunum. Hannes náđi sér aldrei á strik á fyrsta borđi og tapađi.
Hjá stelpunum gerđi Elsa María jafntefli en ađrar töpuđu. Hallgerđur Helga átti mjög vćnlega stöđu en fann ekki besta framhaldiđ. Tinna hafđi einnig ágćtis tafl um tíma en Lenka náđi sér ekki strik. Semsagt ekki góđ úrslit gegn Venesúela (fagna ţví mjög ađ ţurfa aldrei ađ skrifa ţetta erfiđa nafn aftur sem ég get aldrei munađ!).
Umferđ dagsins
Í dag tefla strákarnir viđ Íran en stelpurnar viđ Suđur-Kóreu.
Viđ höfum Írönum fjórum sinnum, 1958, 1964, 1910 og svo í Khanty-Mansiysk 2010 ţar sem viđ töpuđum sannfćrandi 1-3. Ţeir eru heldur sterkari en íslenska liđiđ á pappírnum ţótt ţađ muni reyndar ekki miklu. Ađalliđiđ teflir, ţ.e. Dagur hvílir aftur. Stelpurnar eiga svo ađ vinna liđ Suđur-Kóreu nokkuđ auđveldlega, eru miklu sterkari. Hallgerđur Helga hvílir.
FIDE-málefni - Kasparov í stuđi
Alls konar nefndarfundir eru í gangi hjá FIDE. Manni er frjálst ađ sćkja alla fundi en eina nefndin sem ég er formlega í er tćkninefnd. Ţar voru m.a. til umrćđu svindlmál, skákklukkur, beinar útsendingar og fleira. Hér togast á tvenns konar hagsmunir. Ţađ er hagsmunir áhorfenda og svo hagsmunir ţeirra sem vilja koma í veg fyrir hvers konar svindl. Ţví miđur er ţróunin í síđari áttina, kannski lítiđ viđ ţví ađ gera viđ mennirnir eigum ţađ greinlega til ađ svindla.
Hér í Istanbul komast t.d. áhorfendur hvergi nálćgt skákmönnunum og finnst sumum gestunum, sem jafnvel hafa borgađ háar fjárhćđir til ađ koma hingađ heldur súrt í broti. Ég er loks búinn ađ fá ađgang í inn skáksalinn og get framvegis veriđ ţar ţegar mér sýnist. Mér skilist ađ ţađ standi nú öllum forsetum skáksambandanna ţađ til bođa.
Einnig var fróđleg umrćđa um ţađ sem kallađ er the ultimate chessboard". Skákborđ sem ţú ţarft bara ađ leika. Um leiđ og ţú klárar leikinn er leikurinn sjálfkrafa skráđur og klukkan sett á andstćđinginn. Í raun og veru ţađ sama og á netinu nema ađ ţú setur fyrir framan andstćđinginn. Ţetta er eitthvađ sem menn dreymir um. Örugglega nokkuđ langt í ţetta.
Ađ loknum ţeim fundi fór á fund hjá Skák í skóla-nefndina. Ţar fannst mér athyglisverđast ađ heyra fulltrúa frá Armeníu tala. Skákin er ţar í öndvegi og allir kunna skák. Sami mađur er forseti landsins og skáksambandsins.
Krökkum á aldrinum 6-9 er kennd í skák og allt land og ţađ eru til námsbćkur bćđi fyrir kennara og nemendur. Helsta vandamáliđ hefur veriđ ađ finna skákkennara en međ góđu kennsluefni hefur ţađ gengiđ. Ţar eins og í Tyrklandi er stuđst viđ kennara í skólum. Kennd er skák í öllum skólum í Armeníu og er skák sjónvarpsefni í landinu. Og árangurinn stendur ekki á sér ţví Armenía er eitt sterkasta skákland heims, ţrátt fyrir fámenni og helstu skákmenn landsins eru ţjóđhetjur.
Einnig talađi ţarna fulltrúi frá Argentínu. Ţar hefur mikill árangur náđst. Skák ţar er kennd 1.157 kennslustundir í hverri viku.
Í dag fór ég á tvenna fundi. Fyrst um grundvallarlög FIDE (statues) og síđar á fund um skáklög (law of chess). Á fundinum um grundvallarlögin var töluvert tekist á. Kasparov mćttur ásamt lögfrćđingi sínum og fór mikinn. Baráttan er bara forsmekkurinn fyrir FIDE-ţingiđ 2014 ţar sem forsetakosningar verđa.
Heimsmeistarinn fyrrverandi er mikill rćđumađur en ţađ fer ekki framhjá manni ţegar honum líkar ekki eitthvađ. Hristir hann ţá hausinn og bađar út öllum öngum. FIDE-menn hafa komiđ til móts viđ tillögur Kasparovs ađ einhverjum leyti en um sumt eru menn sammála um ađ vera ósammála um. Máliđ verđur vćntanlega klárađ á sjálfu FIDE-ţinginu sem fram fer 7.-9. september međ ţá einhverjum kosningum.
Fjármál FIDE hafa veriđ til umrćđu hér á öđrum fundum. Ţar hefur t.d. komiđ í ljós ađ FIDE hefur borgađ tćpa milljón evra í lögfrćđikostnađ. FIDE-menn eru ósáttir en lögsóknirnar eru gerđar af nokkrum skáksamböndum en flestum er ljóst ađ ţađ er í raun og veru Kasparov sem borgar. Einnig hefur komiđ í ljós mun hćrri ferđakostnađur Kirsans er ţađ er greinilega liđin tíđ ađ hann eđa Kalmíkía borgi flugkostnađ, heldur er ţađ FIDE. Einnig hafa ekki borist greiđslur frá Albaníu, vegna HM kvenna, mótshöldurum Grand Prix-keppni kvenna og eitthvađ vantar einnig frá Tyrkjunum vegna ólympíuskákmótsins.
Omar Salama, sem er hér međal dómara, er nú búinn ađ fá stöđuhćkkun og er nú svokallađur svćđisdómari (sector arbiter), sem er miklu skemmtilegra heldur en ađ setja yfir einni viđureign. Omar er einni ţriggja slíkra í opnum flokki. Verđur ađ teljast mikill heiđur fyrir hann.
McDonalds og dularfull vera undir brú
Í fyrradag lentum viđ fjögur (ég, Davíđ, Hjörvar og Hallgerđur) í smá ćvintýri. Hér rétt hjá er verslunarmiđstöđ. Hins vegar er ekki auđvelt ađ komast ţangađ en til ţess ţarf ađ komast yfir eitthvađ sem ýmist er kallađ hér lćkur eđa fljót eđa eitthvađ ţar á milli. Í ţessu fljóti" rennur svo ekki einu sinni vatn. Davíđ fann brú, sem reyndar er mjög mjó og vćgast sagt ótraust međ lágt grindverk auk ţess algjört myrkur er ţarna á kvöldin. En yfir fórum viđ og komust í verslunarmiđstöđuna. Mikil gleđi fyrir Hjörvar sem gat ţá fengiđ sér langţráđan McDonalds-borgara.
Á heimleiđinni var ákveđiđ ađ finna ađra leiđ en hina mjög svo ótraustu brú. Stóđ til ađ labba ţar undir venjulega bílabrú ţegar unga fólkiđ rak upp skađrćđisöskur, bentu eitthvađ og sögđu eitthvađ lifandi undir brúnni. Hljóp svo unga fólkiđ af stađ en viđ ţeir gömlu töltum á eftir. Fariđ var yfir gömlu ótraustu brúnna í enn meira myrkri. En hvađ ţau sá undir brúnni verđur óleyst um ókomna tíđ.
Toppbaráttan
Rússar, Armenar og Aserar eru efstir í opnum flokki međ 11 stig en 5 ţjóđir hafa 10 stig. Rússar tefla viđ Assera en Armenar viđ Kínverja.
Rússar og Pólverjar eru efstir í kvennaflokki međ 11 stig en 5 ţjóđir hafa 10 stig.
Norđurlandamótiđ:
Viđ erum í 3. sćti í opnum flokki en erum neđstir í kvennaflokki.
Í opnum flokki hafa allar ţjóđirnar nema Fćreyingar 7 stig. Svíar eru efstir og viđ í ţriđja sćti. Allar ţjóđirnar nema Finnar eru neđar en stigin ţeirra gefa til kynna. Finnar náđu góđum úrslitum ţegar ţeir náđu 1,5 punkti gegn Frökkum.
Stađan í opnum flokki:
Rk. | SNo | Team | TB1 | TB2 | TB3 | TB4 |
42 | 34 | Sweden | 7 | 84,5 | 16 | 32 |
50 | 52 | Finland | 7 | 69,5 | 14,5 | 35 |
53 | 51 | Iceland | 7 | 67 | 14 | 38 |
58 | 39 | Denmark | 7 | 60,5 | 15,5 | 28 |
62 | 54 | Norway | 7 | 57 | 14 | 32 |
118 | 74 | Faroe Islands | 4 | 37 | 10,5 | 35 |
Svíar eru einnig efstir í kvennaflokki međ 8 stig. Viđ rekum lestina međ 4 stig en allar hinar ţjóđirnar hafa 6 stig.
Stađan í kvennaflokki:
Rk. | SNo | Team | TB1 | TB2 | TB3 | TB4 |
38 | 46 | Sweden | 8 | 49 | 14,5 | 32 |
47 | 40 | Norway | 6 | 68 | 13 | 37 |
69 | 77 | Finland | 6 | 42 | 11 | 33 |
73 | 51 | Denmark | 6 | 33 | 11 | 31 |
95 | 62 | Iceland | 4 | 29,5 | 9 | 34 |
Nóg í bili.
Gunnar Björnsson
4.9.2012 | 12:00
Beinar útsendingar: Íran og Suđur-Kórea
Ţá liggja fyrir viđureignir dagsins. Strákarnir tefla viđ Íran og hvílir Dagur Arngrímsson. Stelpurnar mćta Suđur-Kóreu og hvílir Hallgerđur Helga. Viđ teljumst lítisháttar lakari í opnum flokki en stelpurnar teljast umtalsvert betri en ţćr S-kóresku.
Viđureignir dagsins:
Round 7 on 2012/09/04 at 15:00 | ||||||||
Bo. | 51 | Iceland | Rtg | - | 45 | Iran | Rtg | 0 : 0 |
28.1 | GM | Stefansson, Hannes | 2515 | - | GM | Ghaem Maghami, Ehsan | 2579 | |
28.2 | GM | Danielsen, Henrik | 2511 | - | IM | Alavi, Seyed Javad | 2458 | |
28.3 | IM | Gretarsson, Hjorvar Steinn | 2506 | - | IM | Darini, Pouria | 2503 | |
28.4 | GM | Thorhallsson, Throstur | 2426 | - | GM | Golizadeh, Asghar | 2472 |
Bo. | 62 | Iceland | Rtg | - | 100 | South Korea | Rtg | 0 : 0 |
47.1 | WGM | Ptacnikova, Lenka | 2281 | - | Wang, Chengjia | 1988 | ||
47.2 | Johannsdottir, Johanna B | 1886 | - | WCM | Kim, Taegyeong | 1536 | ||
47.3 | Finnbogadottir, Tinna K | 1832 | - | WCM | Byun, Sungwon | 1566 | ||
47.4 | Kristinardottir, Elsa M | 1737 | - | WCM | Oh, Minah | 1522 |
Afar spennandi viđureignir eru í báđum flokkum. Í opnum flokki mćtast m.a.: Aserbaídsjan - Rússland og Kína - Armenía og í kvennaflokki mćtast m.a.: Rússland - Pólland og Georgía - Kína.
Viđureignir íslensku liđanna:
- Íran (opin flokkur)
- Suđur-Kórea (kvennaflokkkur)
- Heimasíđa mótsins
- Ólympíufréttir Skák.is
- Myndaalbúm (nýtt albúm daglega)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Barna- og unglingameistaramót T.R. sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 16. september í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Tafliđ hefst kl.14.
Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad-kerfi međ umhugsunartímanum 15 mín. á skák.
Teflt verđur í einum flokki. Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í mótinu og ţar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2012. Ţá verđa veitt verđlaun fyrir ţrjár efstu stúlkurnar og ţar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2012. Til viđbótar verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í aldursflokknum 12 ára og yngri.
Mótiđ er opiđ öllum krökkum 15 ára og yngri (fćdd 1997 og síđar). Skráning fer fram á taflfelag@taflfelag.is (vinsamlegast gefiđ upp nafn, fćđingarár og símanúmer) og einnig er hćgt ađ skrá sig á mótsstađ sunnudaginn 16. september frá kl. 13.30- 13.45.
Ađgangur á mótiđ er ókeypis.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2012 | 11:12
Skákćfingar T.R. hefjast á laugardaginn
Áratuga löng hefđ er fyrir Laugardagsćfingum Taflfélags Reykjavíkur. Ţćr hefjast aftur eftir sumarfrí laugardaginn 8. september. Ađ venju fara ćfingarnar fram í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12.
Á ćfingunum eru ćfingaskákmót, skákkennsla, skákţrautir ásamt ýmsum öđrum uppákomum. Ţá er bođiđ upp á léttar veitingar um miđbik ćfinganna, en sá partur er orđinn órjúfanlegur hluti af ćfingunum hjá börnunum. Haldiđ er utan um mćtingu og árangur barnanna og hverri ćfingu er gerđ góđ skil í ítarlegum pistlum.
Á laugardögum kl. 11.30 - 13.30 verđur bođiđ upp á sérstakar skákćfingar fyrir stelpur á öllum aldri. Ţessar skákćfingar eru ađallega hugsađar fyrir byrjendur. Allar stelpur, 5 ára og eldri, eru velkomnar. Allar mömmur, ömmur, frćnkur og vinkonur eru sérstaklega velkomnar ađ taka ţátt í skákćfingunum! Skákţjálfari verđur Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir, formađur T.R. Viđ byrjum núna á laugardaginn 8. september!
Á laugardögum kl. 14 -16 verđa skákćfingar fyrir börn og unglinga (stelpur og stráka) fćdd 1997 og síđar. A-flokkurinn verđur eingöngu opinn fyrir ţau sem eru félagsmenn í T.R. og er fyrir alla unglinga fćdd 1997-1999, svo og yngri börn sem eru lengra komin í skáklistinni. B-flokkurinn er opinn fyrir öll börn sem eru fćdd 2000 og síđar.
Flokkarnir munu ţó stundum vera saman í einum hópi. Fyrirkomulagiđ munu skákţjálfarar kynna betur á ćfingunum. Skákţjálfarar á Laugardagsćfingunum verđa eins og í fyrra Torfi Leósson og Dađi Ómarsson, skákmenn í T.R.
Ţátttaka á skákćfingunum er ókeypis.
Veriđ velkomin!
Fyrirspurnir sendist á taflfelag@taflfelag.is
4.9.2012 | 06:00
Ćsir byrja ađ tefla í dag eftir sumarfrí
Ćsir byrja ađ tefla ţriđjudag 4 september eftir ađ hafa legiđ í sumardvala. Teflt er í Ásgarđi Stangarhyl 4. Allir skákmenn 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir.
Hittumst á hvítum reitum og svörtum og skemmtum okkur međ góđum félögum.
Spil og leikir | Breytt 2.9.2012 kl. 15:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2012 | 23:04
Skákakademían: Skák í grunnskólum komin á fulla ferđ

Kennsluefni Smára Rafns mun nýtast vel, enda er kennsla á vegum Skákakademíunnar nú farin á fulla ferđ í grunnskólum Reykjavíkur. Kennsluhópinn í vetur skipa Aron Ingi Óskarsson, Björn Ívar Karlsson, Björn Ţorfinnson, Bragi Ţorfinnsson, Róbert Lagerman og Stefán Bergsson. Flestir eru ţeir ţrautreyndir skákkennarar og er helmingur hópsins međ kennsluréttindi eđa í kennsluréttindanámi.
Smári Rafn, höfundur kennsluefnisins sem Skákakademían mun nota í vetur, er ţjálfari keppnissveitar Álfhólsskóla, sem varđ Íslandsmeistari barnaskólasveita 2012. Kennsluhefti Smára Rafns eru ađ mestu byggđ á skákţrautum, og er styrkleiki miđađur viđ fimm stig, frá byrjendum til lengra kominna, sem hafa ţá tileinkađ sér víđtćkan skilning á skákinni. Einnig er fariđ í gegnum helstu lögmál skákarinnar á skýran og hnitmiđađan hátt og geta heftin ţannig nýst almennum grunnskólakennurum í byrjendakennslu. Kennarahandbók geymir svör viđ ţrautunum, og margvíslegan fróđleik um skáksöguna.
Námsefni Smára Rafns er tilvaliđ í alla grunnskóla, og nýtist bćđi viđ kennslu á vegum Skákakademíunnar og grunnskólakennara sem vilja kenna nemendum sínum grundvallaratriđin.
Mikill áhugi er innan grunnskóla um allt land ađ auka og efla skákkennslu. Reynslan og rannsóknir sýna ađ skákkunnátta hefur mjög jákvćđ áhrif á námsárangur og bćtir félagslega fćrni barnanna. Fjölmargir íslenskir skólastjórar og kennarar eru í fararbroddi skákvćđingar grunnskólanna.
Skipuleg kennsla fer fram í flestum grunnskólum Reykjavíkur og Kópavogs í vetur, sem og víđar á höfuđborgarsvćđinu. Skólar á landsbyggđinni sýna líka sífellt aukinn áhuga á skákkennslu, og býđur Skákakademían öllum grunnskólum ađstođ og ráđgjöf viđ ađ byggja upp kennslu og skáklíf.
Í Skákbúđinni, sem Smári Rafn heldur úti, er hćgt nálgast kennsluefniđ, sem og taflsett og fleiri skákvörur.
Frekari upplýsingar um ráđgjöf og ađstođ viđ grunnskóla, sem hafa áhuga á kennslu og eflingu skáklífs, veitir Stefán Bergsson framkvćmdastjóri Skákakademíunnar í stefan@skakakademia.is.
3.9.2012 | 19:07
Íran og Suđur-Kórea á morgun
Íslenska liđiđ í opnum flokk mćtir sveit Írans (Ř-2508), sem telst 45. sterkasta sveitin á mótinu, í sjöundu umferđ ólympíuskákmótsins sem fram fer á morgun. Kvennaliđiđ mćtir sveit Suđur-Kóreu, sem er talin sú 100. sterkasta á mótinu.
Liđiđ í opnum flokki hefur 7 stig og er í 53. sćti. Rússar, Armenar og Aserar eru efstir međ 11 stig.
Liđiđ í kvennaflokki hefur 4 stig og er í 95. sćti. Rússar og Pólverjar eru efstir međ 11 stig.
Umferđin hefst kl. 12.
Andstćđingarnir:
45. Iran (RtgAvg:2508 / TB1: 7 / TB2: 56.5) | |||||||
Bo. | Name | Rtg | FED | Pts. | Games | Rp | |
1 | GM | Ghaem Maghami Ehsan | 2579 | IRI | 2.0 | 5.0 | 2554 |
2 | IM | Alavi Seyed Javad | 2458 | IRI | 1.5 | 3.0 | 2444 |
3 | IM | Darini Pouria | 2503 | IRI | 2.5 | 5.0 | 2506 |
4 | IM | Idani Pouya | 2477 | IRI | 3.0 | 5.0 | 2493 |
5 | GM | Golizadeh Asghar | 2472 | IRI | 3.5 | 6.0 | 2500 |
100. South Korea (RtgAvg:1658 / TB1: 4 / TB2: 20.5) | |||||||
Bo. | Name | Rtg | FED | Pts. | Games | Rp | |
1 | Wang Chengjia | 1988 | KOR | 1.5 | 5.0 | 1972 | |
2 | WCM | Kim Taegyeong | 1536 | KOR | 0.0 | 4.0 | 1113 |
3 | WCM | Byun Sungwon | 1566 | KOR | 1.0 | 5.0 | 1659 |
4 | WCM | Oh Minah | 1522 | KOR | 3.0 | 5.0 | 1738 |
5 | Cho Yeon Hee | 1542 | KOR | 2.0 | 5.0 | 1730 |
156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig. Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.
- Heimasíđa mótsins
- Ólympíufréttir Skák.is
- Myndaalbúm (nýtt albúm daglega)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
3.9.2012 | 18:36
Jafntefli gegn Austurríki
Liđiđ í opnum flokki gerđi 2-2 jafntefli viđ liđ Austurríkis í hörkuviđureign í sjöttu umferđ ólympíuskákmótsins sem fram fór í dag. Hjörvar Steinn Grétarsson vann góđan sigur á 3. borđi. Henrik Danielsen gerđi jafntefli sem og Ţröstur Ţórhallsson sem jafntefli međ mikilli seiglu í langri maraţonskák sem tók alls 125 leiki. Lengsta skák umferđarinnar. Hannes Hlífar Stefánsson tapađi. Kvennaliđiđ tapađi 0,5-3,5 fyrir Venesúela.
Armenar og Rússar gerđu 2-2 jafntefli í hörkuviđureign á fyrsta borđi. Kramnik rúllađi yfir Aronian en Movsesian vann Grischuk. Kínverjar og Rússar gerđu og 2-2 jafntefli í kvennaflokki. Spennan heldur ţví áfram.
Skákir dagsins:- Opinn flokkur (Austurríki)
- Kvennaflokkur (Venesúela)
- Rússland - Armenía (opinn flokkur)
- Kína - Rússland (kvennaflokkur)
- Heimasíđa mótsins
- Ólympíufréttir Skák.is
- Myndaalbúm (nýtt albúm daglega)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
Spil og leikir | Breytt 4.9.2012 kl. 12:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2012 | 13:24
Ól-pistill nr. 8 - Úrslitaviđureignir í dag
Ţá eru viđureignir dagsins hafnar eins og áđur hefur komiđ fram á Skák.is. Austurríkismenn komu örlítiđ á óvart međ ţví ađ hvíla Kindermann á 2. borđi. Markus Ragger, ţeirra langbesti mađur, hefur reyndar átt slćmt mót og heldur ţví vonandi áfram í dag. Kvennaliđiđ teflir viđ sveit Venesúela.
Mikil spenna er í loftinu enda mjög mikilvćgar viđureignir íbćđi opnum- og kvennaflokki. Jafnvel úrslitaviđureignir í báđum flokkum.
Sjálfur fór ég FIDE-fundi í morgun, bćđi um tćkniefni og um skák í skólum. Athyglisverđir báđir og mun ég segja betur frá ţeim í síđari pistlum. Sérstaklega hafđi ég gaman ađ ţví ađ heyra fyrirlestur frá fulltrúa Armena um skákkennslu ţar í landi. Á morgun halda FIDE-fundir áfram en ţá heldur áfram umrćđa um lög (statues) FIDE. Kasparov er mćttur á svćđiđ en var víst spakur á fundum í gćr.
Smá krankleiki hefur veriđ trufla menn hér. Einstaka liđsmenn hafa fengiđ í magann en ţó ekki alvarlega. Leigubílsstjórar hér eru afar athyglisverđir og örugglega ekki mikiđ minna hćttulegt ađ fara í slíkan bíl í samanburđi viđ fallhlífarstökk. Engin virđing er borin fyrir fótgangandi vegfarendum sem eiga fótum sínum fjör ađ launa. Enn minni virđing er borinn fyrir hámarkshrađa.
Vel gekk hjá hinum Norđurlandaţjóđunum, sem sum hver tefldu viđ dúka (nýyrđi Elvars Guđmundssonar yfir slakari skákţjóđir sem byggist á ţví á ţví ađ hćgt sé ađ rúlla upp dúkum). Finnar, sem eru efstir Norđurlandanna, unnu heyrnardaufa, sem eru reyndar býsna ţéttir, Danir unnu Trinidad og Tobago og Svíar unnu Andorra.
Finnar fá nú Frakka, Svíar mćtum Skotum, Danir mćta Alsíringum, Norđmenn mćti Pakistönum og Fćreyingar mćta Nýja-Sjálendingum. Danir og Norđmenn eiga ađ vera í góđum málum.
Hér í blađmannaherberginu sit ég hliđin á manni sem segist vera umbođsmađur Karjakin. Hann er ađ sjálfsögđu búinn ađ fá bćklinga bćđi um Reykjavíkurskákmótiđ 2013 og EM landsliđa 2015!
Nóg í bili.
Gunnar Björnsson
- Heimasíđa mótsins
- Ólympíufréttir Skák.is
- Myndaalbúm (nýtt albúm daglega)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 10
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 98
- Frá upphafi: 8778265
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar