Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2012

Skákmyndakeppni barna í Ráđhúsinu á laugardaginn!

Skákmyndasamkeppni barnaŢađ verđur fjör í Ráđhúsinu á laugardaginn klukkan 14 ţegar skákmeistararnir Stefán Kristjánsson (Íslandi), Flovin Ţór Nćs (Fćreyjum) og Paulus Napatoq tefla viđ gesti og gangandi á vestnorrćnu menningarhátíđinni Nýjar slóđir.

SkákmyndakeppniEn ţađ verđur ekki bara hćgt ađ tefla viđ meistarana eđa fylgjast međ tilţrifum ţeirra á skákborđinu:  Tekiđ verđur sérstaklega vel á móti byrjendum í fjölskylduhorninu, ţar sem hćgt er ađ lćra mannganginn og taka ţátt í skákmyndakeppni barna. Veitt verđa verđlaun fyrir bestu, frumlegustu og skemmtilegustu myndirnar í lok dagskrárinnar klukkan 17.

Hulda HákonHulda Hákon, sem er međal fremstu myndlistarmanna ţjóđarinnar, mun velja verđlaunamyndirnar. Sjálf er Hulda mjög áhugasöm um skák og hefur haldiđ myndlistarsýningu í Tasiilaq á Grćnlandi á skákhátíđ Hróksins.

Frétt um skákveisluna í Ráđhúsinu laugardaginn 8. september!


40 ár frá Einvígi aldarinnar: Risamót fyrir börn og eldri borgara í Laugardalshöll

Fischer SpasskyLaugardaginn 15. september verđur ţess minnst međ málţingi og risaskákmóti í Laugardalshöll ađ 40 ár eru liđin frá ,,Einvígi aldarinnar“ í Reykjavík. Ţá sigrađi Bandaríkjamađurinn Robert J. Fischers hinn rússneska Boris Spassky í heimsmeistaraeinvígi, sem vakti gríđarmikla athygli um veröld víđa. Reykjavíkurborg stendur ađ skákhátíđinni í Laugardalshöll, í samvinnu viđ SÍ, Skákakademíuna og taflfélögin í Reykjavík.

 

Mótiđ er ćtlađ börnum á grunnskólaaldri, auk ţess sem skákmenn 60 ára og eldri tefla í sérstökum heiđursflokki. Skipting barnaflokkanna er sem hér segir:

 

1.-2. bekkur.

3.-4. bekkur.

5.-6. bekkur.

7.- 10. bekkur.

 

Teflt verđur í ađalsal Laugardalshallar, ţar sem hiđ sögulega einvígi fór fram, og verđa ýmsir munir sem tengjast einvíginu til sýnis á sviđinu.

 

Fjöldi vinninga verđur í bođi og auk ţess efnt til happdrćttis, svo öll börn eiga möguleika á glađningi. Skemmtikraftar stíga á sviđ og ţá munu allir keppendur fá bol ađ gjöf, sem framleiddur er af ţessu tilefni.

 

Risaskákmótiđ í Laugardalshöll hefst klukkan 13 en klukkan 11 um morguninn verđur málţing um einvígiđ, ţar sem ávörp verđa flutt og fjallađ um einvígiđ frá ýmsum hliđum. Heimsmeistaraeinvígiđ 1972 var tvímćlalaust stćrsti viđburđur sem fram hafđi fariđ á Íslandi, enda einvígiđ í kastljósi fjölmiđla um allan heim mánuđum saman.

 

Ţátttaka í hátíđinni er ókeypis en keppendur eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst.


Ól-pistill nr. 10 - Góđ skák Hannesar - Ivanchuk međ uppistand

Hannes HlífarHannes Hlífar Stefánsson hrökk í gang međ góđum sigri í sjöundu umferđ á ólympíuskákmótinu ţegar hann vann fyrsta borđs mann Íran á afar fallegan hátt á fyrsta borđi.  Ţađ dugđi ekki til ţví viđureignin tapađist 1,5-2,5.  Kvennasveitin vann sannfćrandi sigur á Suđur-Kóreu, 3-1.  Davíđ Ólafsson vann svo öruggan sigur á keilumótinu sem fram fór í gćrkveldi.   Í dag eru ţađ Perúmenn í opnum flokki og Alsíringar í kvennaflokki.  Og Ivanchuk gjörsamlega stal senunni í upphafi umferđar í dag.

Gćrdagurinn

Sigur Hannesar var afar ljúfur í gćr.  Langbesta skák hans til ţessa.  Viđ fengum góđar kveđjur frá Margeiri Péturssyni ţar sem hann hćlir sérstaklega 34. He3 hjá Hannesi.  Henrik hélt örugglega jafntefli á öđru borđi.  Hjörvar ţáđi hálfeitrađ í byrjun skákarinnar og lenti í erfiđleikum í kjölfariđ og mátti sćtta sig viđ tap á ţriđja borđi.  Ţröstur lék einnig af sér í miđtaflinu og fékk hálfóteflandi stöđu í kjölfariđ og tapađi.  Hans fyrsta tapskák.  Tap gegn Íran stađreynd, annađ ólympíuskákmótiđ í röđ.

Kvennasveitin vann öruggan sigur á Suđur-Kóreu.  Lenka, Tinna og Elsa unnu allar örugga sigra.  Kvennaliđiđ í upphafi viđureignarJóhanna lenti hins vegar fljótlega í ógöngum sem hún komst aldrei úr.  Góđur 3-1 sigur stađreynd á Kóreu-stelpum. 

Umferđ dagsins

Í dag tefla strákarnir viđ sveit Perú.  Viđ höfum teflt viđ ţá sex sinnum áđur og alltaf unniđ ţá nema einu sinni ţegar ţađ fór jafntefli.   Í Khanty vannst frábćr sigur 3,5-0,5, ţar sem reyndar lukkan var reyndar međ okkur í liđi.  Stađan er 18,5-5,5 en Perúmönnum hefur fariđ mikiđ fram síđustu misseri.  Loks hvílir Ţröstur, sem hefur teflt allar skákirnar til ţessa.

Perú - ÍslandStelpurnar mćta liđi Alsírs sem er heldur veikara en okkar á pappírnum.  Jóhanna Björg hvílir.

FIDE-málefni

Í gćr sótti ég fundi í reglunefnd FIDE (Rules Committee).  Ţar voru hin smćstu atriđi rćdd og stundum var nánast deilt um hvar kommur ćttu ađ vera.  Fundinum stjórnuđu hinir virtu skákdómarar Geurt Gijssen og Stewart Reuben.

Ég missti af byrjuninni vegna annars fundar. 

Eitt helsta „deiluefniđ“ var hvort 10 mínútna skákir teldust atskákir (rapid) eđa hrađskákir (blitz).  Niđurstađan var atskák.

Einnig var töluvert rćtt um hvort ţađ mćtti kćra eftir ađ hafa ritađ undir skorblađiđ.   Ţađ verđur ţannig ađ ţađ má kćra úrslit skáka eftir ađ hafa undirritađ skorblađiđ.  Ţađ á eingöngu ţegar um er ađ rćđa úrskurđ skákstjóra. Mótshaldarar gefa úr áfrýjunarfrest sem er oftast ađ mér heyrđist 30-60 mínútur og eitthvađ sem mótsstjórn Reykjavíkurmótsins ţarf ađ taka upp fyrir nćsta mót.

Einnig var tölvuert rćtt um GSM-síma og missti ég ţráđinn í ţeirri umrćđu og veit ekki alveg hvar hún endađi, held ţó ađ reglurnar séu eins og núna enda erfitt ađ teygja og toga hvađ megi í ţeim frćđum.  Langbest ađ láta hringingu eđa hvađa hljóđ úr síma vera túlkađ á sama hátt.  Ekki missti ég ţó jafn mikiđ ţráđinn og einn kollegi minn í nágrannaskáksambandi sem hreinlega hraut svo Hópurinn í keiluundir tók á međan umrćđan fór fram. 

Engir fundir voru í dag.  Á morgun verđur ađalfundur ECU og í kvöld ćtlum viđ fulltrúar Norrćnu skáksambandanna ađ hittast og fara yfir helstu málin.  Sameinađir stöndum vér.

Keila og lyfta

Í kvöld fóru nokkur okkar ađ spila keilu.  Davíđ vann öruggan sigur, ég annar og Henrik ţriđji.  Tinna vann kvennakeppnina eftir harđa baráttu.

Spilađ var keiluhöll sem er á sama stađ og verslunarmiđstöđin hér rétt hjá.  Mannskapurinn ađ ţessu sinni hikađi ekki viđ ađ fara yfir brúnna en ekki var leitađ af dularfullu verunni.

Göngum yfir brúnaLyftumál eru sígild á ólympíuskákmótum.  Hér eru 3 lyftur sem yfirleitt dugar ágćtlega nema á mestu álagspunktum í kringum upphaf umferđar.  Viđ höfum fundiđ ţađ trikk ađ taka lyftuna upp fyrst ţví yfirleitt er hún stútfull á leiđinni niđur og ţá mćtum viđ vonsviknum andlitum sem ekki er pláss fyrir.  Í gćr bilađi svo ein lyftan og mátti sjá langar biđrađir en hún er komin í lag aftur.

Toppbaráttan

Toppbaráttan harđnar.  Rússar unnu Asera í hörkuviđureign og á sama tíma lögđu Kínverjar Armena.  Rússar eru efstir međ 13 stig en Kínverjar og Úkraínumenn koma nćstir međ 12 stig.   Rússar og Úkraínumenn mćtast í dag en ţetta eru tvćr stighćstu sveitirnar.  Kínverjar mćtar Aserum. 

Filippseyjamenn eru ađ brillera á mótinu og gerđu 2-2 jafntefli í gćr viđ Ungverja sem hvíldu Judit Polgar.  Gamli mađurinn, Torre, vann Almasi.   Ađrir fyrrum andstćđingar á mótinu Argentínumenn eru einnig ađ standa sig og gerđu 2-2 jafntefli viđ Indverja.

Í dag mćtast svo Rússar og Úkraínumenn.  Ali Nihat, forseta tyrkneska skáksambandsins, mćtti Ivanchuk enn ađ útskýrameđ stuđningsađila sem átti ađ leika fyrsta leikinni fyrir Kramnik gegn Ivanchuk.  Hófst ţá mikil rekistefna.  Ivanchuk stóđ upp og hélt einhverja rćđu yfir Ali, hvort Ali hafi skiliđ hana er svo annađ mál.   Mér skilst á rússneskum blađamanni hér í blađamannaherberginu ađ rćđan hafi gengiđ út á ţađ Ivanchuk líkađi ekki ađ láta fyrsta leikinn í sínum skákum.  Skiptum ţá engum togum ađ Kramnik stóđ ţá upp og fór frá borđinu einnig.   Viđkomandi lék svo fyrsta leikinn án ţess ađ ţeir sittu viđ borđiđ!  Almennt var mikiđ hlegiđ af ţessu atviki sem mun víst alveg vera í stíl viđ Ivanchuk.

.....og hann lék án ţess ađ keppandi vćri viđ borđiđKínverjar, Rússar og Pólverjar eru efstir međ 12 stig í kvennaflokki.  Pólverjar mćta Kínverjum og Rússar mćta Úkraínumönnum rétt eins og í opnum flokki.

Norđurlandamótiđ:

Viđ erum í 5. sćti í báđum flokki eftir umferđina í gćr.   Höfum 7 stig eins og Svíar.  Norđmenn og Danir eru efstir međ 9 stig en ţessar ţjóđir hafa teflt á móti býsna mörgum dúkum (upprúllanlegum).   Ţeir tefla svo innbyrđis á eftir.  Finnar hafa 8 stig og Fćreyingar reka lestina međ 6 stig.

Stađan í opnum flokki:

Rk.

SNo

Team

TB1

TB2

TB3

TB4

41

54

Norway

9

93

17

46

42

39

Denmark

9

91

18,5

39

49

52

Finland

8

98

16,5

50

67

34

Sweden

7

103

16,5

51

69

51

Iceland

7

96

15,5

54

99

74

Faroe Islands

6

61,5

14,5

44

 

Svíar og Danir eru efstir í kvennaflokki međ 8 stig.  Norđmenn hafa 7 stig en viđ og Finnar rekum lestina međ 6 stig.  Allar ţjóđirnar eru neđar en ţau eiga ađ vera miđađ viđ stig.

Stađan í kvennaflokki:

Rk.

SNo

Team

TB1

TB2

TB3

TB4

54

46

Sweden

8

62

15

46

55

51

Denmark

8

62

14,5

42

59

40

Norway

7

87

15

48

80

77

Finland

6

60

12

48

83

62

Iceland

6

50,5

12

46

 

Nóg í bili.

Gunnar Björnsson


Sigurbjörn öruggur sigurvegari Meistaramóts Hellis

Sigurbjörn BjörnssonSigurbjörn Björnsson sigrađi örugglega á ný loknu Meistaramóti Hellis međ 6,5 í sjö skákum og gerđi ađeins jafntefli viđ Davíđ Kjartansson. Eftir erfiđa vinnusigra í upphafi móts gegn Jóni Úlfljótssyni og Ţorvarđi komst Sigurbjörn í gang og landađi sigrinum af öryggi. Ţađ var meiri spenna í lokaumferđinni um nćstu sćti og margar fjörugar skákir tefldar á efstu borđum.

Mikael Jóhann og Ţorvarđur voru jafnir í öđru til ţriđja sćti međ 4,5v en fengu tvo stigahćstu menn mótsins ţá Sigurbjörn og Davíđ ađ glíma viđ og máttu játa sig sigrađa. Á međan vann Sćvar Nökkva en Jón Árni og Vigfús gerđu jafntefli. Ţessi úrslit ţýddu ađ Davíđ og Sćvar eru jafnir í öđru og ţriđja sćti ţótt Davíđ sé sjónarmun á undan á stigum.  

Í baráttunni um aukaverđlaunin settu jafntefli nokkuđ svip sinn á lokaumferđina nema hjá Atla Jóhann Leóssyni sem landađi verđlaunum í flokknum undir 1800 stig annađ áriđ í röđ međ sigri í lokaumferđinni.

Búiđ er ađ finna út verđlaunasćti mótsins en ţau skipa:

 Ađalverđlaun:

1.    Sigurbjörn Björnsson

2.-3. Davíđ Kjartansson og Sćvar Bjarnason

Aukaverđlaun:

  • Skákmeistari Hellis: Sigurbjörn Björnsson.
  • Besti árangur undir 2200 skákstigum: Sćvar Bjarnason.
  • Besti árangur undir 1800 skákstigum: Atli Jóhann Leósson.
  • Besti árangur undir 1600 skákstigum: Felix Steinţórsson.
  • Besti árangur stigalausra: Arsenij Zacharov.
  • Unglingaverđlaun (15 ára og yngri),1.vl. Gauti Páll Jónsson, 2. og 3.vl. Dawid Kolka og Jakob Alexander Petersen.
  • Kvennaverđlaun,1.vl. Sóley Lind Pálsdóttir, 2. og 3.vl. Nansý Davíđsdóttir og Svandís Rós Ríkharđsdóttir.
Miđađ er viđ alţjóđleg skákstig. 

Úrslit 7. umferđar:

BorđNafnStigV.ÚrslitV.NafnStig
1Karlsson Mikael Johann 19260 - 1Bjornsson Sigurbjorn 2391
2Kjartansson David 233441 - 0Olafsson Thorvardur 2202
3Halldorsson Jon Arni 22104˝ - ˝4Vigfusson Vigfus 1994
4Sverrisson Nokkvi 201240 - 14Bjarnason Saevar 2090
5Leosson Atli Johann 17401 - 0Thorarensen Adalsteinn 1710
6Steinthorsson Felix 1329˝ - ˝Palsdottir Soley Lind 1406
7Ulfljotsson Jon 18183˝ - ˝3Zacharov Arsenij 0
8Einarsson Oskar Long 15873+ - -3Jonsson Robert Leo 1203
9Jonsson Gauti Pall 14813˝ - ˝3Kolka Dawid 1524
10Davidsdottir Nansy 14713˝ - ˝Rikhardsdottir Svandis Ros 1394
11Gudmundsson Bjarni Thor 1020˝ - ˝Petersen Jakob Alexander 1241
12Bragason Gudmundur Agnar 111520 - 12Finnsson Johann Arnar 1470
13Unnsteinsson Oddur Ţór 0˝0 - 12Ragnarsson Heimir Pall 1121
14Svansdottir Alisa Helga 1000˝- - +Kristbergsson Bjorgvin 1239

 

Lokastađan:

 

RöđNafnStigV.TB1TB2TB3
1Bjornsson Sigurbjorn 23916,5292226,5
2Kjartansson David 23345322221
3Bjarnason Saevar 20905312120
4Olafsson Thorvardur 22024,5312217,3
5Halldorsson Jon Arni 22104,5312218,8
6Karlsson Mikael Johann 19264,5282015,3
7Leosson Atli Johann 17404,5262014,5
8Vigfusson Vigfus 19944,5261915,8
9Sverrisson Nokkvi 20124302114
10Steinthorsson Felix 13294271913,3
11Einarsson Oskar Long 15874261912
12Palsdottir Soley Lind 14064251811,3
13Ulfljotsson Jon 18183,5281911,5
14Thorarensen Adalsteinn 17103,5272012,3
15Jonsson Gauti Pall 14813,5261811
16Davidsdottir Nansy 14713,5261810
17Kolka Dawid 15243,522178,75
18Zacharov Arsenij 03,521168,25
19Rikhardsdottir Svandis Ros 1394324177,75
20Petersen Jakob Alexander 1241323178
21Jonsson Robert Leo 1203321157,5
22Finnsson Johann Arnar 1470321155,5
23Ragnarsson Heimir Pall 1121319155,5
24Gudmundsson Bjarni Thor 1020318134,5
25Kristbergsson Bjorgvin 12392,519144
26Thorsteinsson Leifur 1586223174
27Bragason Gudmundur Agnar 1115219143,5
28Hardarson Jon Trausti 18131,525174,75
29Unnsteinsson Oddur Ţór 00,519140,75
30Svansdottir Alisa Helga 10000,518130,25


Skákir sjöundu umferđar, innslegnar af Paul Frigge, fylgja međ.

Skákveisla í Ráđhúsinu á laugardaginn: Saman erum viđ sterkari!

Vestnorrćnu meistararnir Stefán Kristjánsson, og Flóvin Ţór Nćs tefla viđ alla sem vilja. Grćnlenski afrekspilturinn Paulus Napatoq teflir blindskák. Fjölskylduhorn og skákmyndakeppni barna.


Paulus Napatoq Efnt verđur til skákveislu í Ráđhúsi Reykjavíkur, laugardaginn 8. september klukkan 14, í tilefni vestnorrćnu hátíđarinnar Nýjar slóđir. Gestum og gangandi er bođiđ ađ spreyta sig í skák gegn meisturum frá Fćreyjum, Grćnlandi og Íslandi. Össur Skarphéđinsson utanríkisráđherra setur skákveisluna og kynnir til leiks skákmeistarana Flóvin Ţór Nćs, Stefán Kristjánsson og Paulus Napatoq.
 
Fćreyingurinn Flóvin Ţór Nćs, sem er stćrđfrćđingur og auk ţess Ţingeyingur í móđurćtt, og Flóvin og MotzfeldStefán Kristjánsson, yngsti stórmeistari Íslendinga tefla fjöltefli viđ alla sem ţora, og eru skákáhugamenn á öllum aldri hjartanlega velkomnir. Tekiđ verđur sérstaklega vel á móti byrjendum í fjölskylduhorninu, ţar sem hćgt er ađ lćra mannganginn og taka ţátt í skákmyndakeppni barna. Veitt verđa verđlaun fyrir bestu myndirnar í lok dagskrárinnar klukkan 17.
 
Stefán KristjánssonMeđal ţeirra sem hafa bođađ komu sína í fjöltefliđ gegn Flóvin og Stefáni eru ţingmennirnir Guđlaugur Ţór Ţórđarson, Vigdís Hauksdóttir og Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir og borgarfulltrúarnir Óttarr Proppé, Kjartan Magnússon og Oddný Sturludóttir, en sonur hennar sem er í skáksveit Austurbćjarskóla mun hjálpa mömmu sinni gegn meisturunum. Ţá munu mörg af efnilegustu börnum og ungmennum landsins reyna sig í fjölteflinu.
 
Paulus (međ haglabyssuna) og litli bróđirGrćnlenski pilturinn Paulus Napatoq kemur frá Ittoqqortoormiit, sem er afskekktasta ţorpiđ á norđurhveli jarđar. Paulus er tvítugur og blindur frá fćđingu. Hann lćrđi ađ tefla ţegar liđsmenn Hróksins og Kalak heimsóttu ţorpiđ hans í fyrsta sinn, og var Paulus eldsnöggur ađ lćra mannganginn og sigrađi á grunnskólamóti ţar sem keppendur voru hátt í hundrađ. Paulus mun tefla blindskák viđ Helga Hjörvar alţingismann og fv. forseta Norđurlandaráđs, en Helgi hefur frá unga aldri veriđ lunkinn og sókndjarfur skákmađur. Paulus mun síđan taka viđ áskorunum frá ţeim sem vilja tefla viđ ţennan unga grćnlenska snilling, sem er af miklum veiđimannaćttum á Grćnlandi.
 
Skáksamband Íslands og Skákakademían skipuleggja veisluna í Ráđhúsinu á laugardaginn, sem er hluti hátíđarinnar Nýjar slóđir. Markmiđ hátíđarinnar Nýjar slóđir er ađ miđla sambandi, sögu og menningartengslum Grćnlands, Fćreyja og Íslands og helgina 7.-9.september bjóđa upp á hlađborđ menningarviđburđa ţar sem íslenskir, fćreyskir og grćnlenskir listamenn koma saman. Ţađ fer vel á ţví ađ skákíţróttin skipi veglegan sess á slíkri hátíđ, enda sterk bönd milli skákmanna í löndunum ţremur í norđri. Fćreyingar og Norđlendingar mćtast árlega í einvígi, og Íslendingar hafa síđan 2003 stađiđ ađ landnámi skákarinnar á Grćnlandi.
 
Together we are stronger! sagđi Jonatan Motzfeldt eftir ađ ţeir Ivan Sokolov höfđu lagt fćreyska mótherja í tvískák á Grćnlandi 2003.Kjörorđ skákveislunnar á laugardaginn eru ,,Saman erum viđ sterkari" en ţau orđ lét Jonathan  Motzfeldt landsfađir Grćnlendinga falla, eftir ađ hafa teflt í liđi međ Ivan Sokolov á fyrstu skákhátíđinni á Grćnlandi, sem haldin var í Qaqortoq áriđ 2003. Motzfeldt heitinn tók ţátt í fyrsta alţjóđlega skákmótinu í sögu Grćnlands, en međal annarra keppenda voru einmitt Flóvin Ţór og Stefán Kristjánsson sem skora gesti á hólm í Ráđhúsinu.


Vetrarstarf T.R. hafiđ!

Vetrarstarf Taflfélags Reykjavíkur hófst ađ venju međ Stórmóti T.R. og Árbćjarsafns 12. ágúst sl. Tveimur dögum síđar fór fram 27. Borgarskákmótiđ í Ráđhúsinu 14. ágúst. Ţetta mót er samstarfsverkefni T.R. og Hellis.

Skákćfingarnar hefjast laugardaginn 8. september! Á laugardögum kl. 11.30-13.30 verđa skákćfingar fyrir stelpur á öllum aldri. Strax ţar á eftir eđa kl. 14-16 verđa hinar hefđbundnu laugardagsćfingar fyrir stelpur og stráka fćdd 1997 og síđar.

Taflfélag Reykjavíkur heldur margvísleg skákmót allan veturinn. Hér skal ađeins stiklađ á stóru núna í haustbyrjun:

Barna-og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót T.R. verđur haldiđ sunnudaginn 16. september.

Tölvuteksmótiđ 2012 - Haustmót T.R. byrjar sunnudaginn 23. september. Teflt er ţrisvar í viku og gert er hlé á mótinu á međan Íslandsmóti skákfélaga stendur.

Vetrarmót öđlinga verđur haldiđ 2. sinni og hefst miđvikudaginn 31. október. Teflt er einu sinni í viku.

Eftir áramót ber svo hćst Kornax mótiđ 2013 - Skákţing Reykjavíkur sem hefst sunnudaginn 6. janúar.

Skákkeppni vinnustađa verđur haldin 1. febrúar.

Ađ auki verđa haldin hrađskákmót, skákmót í samvinnu viđ Skóla-og frístundasviđ Reykjavíkurborgar, Skákmót öđlinga í mars - maí svo eitthvađ sé nefnt.

Skráning er ţegar hafin í Barna-og unglingameistaramót/Stúlknameistaramót T.R. á taflfelag@taflfelag.is og einnig er skráningarform fyrir Tölvuteksmótiđ 2012 - Haustmót T.R. á heimasíđu T.R., ţar sem Mótaáćtlun félagsins er einnig ađ finna. Nánari upplýsingar um skákćfingarnar og skákmótin í september er ađ finna á  www.taflfelag.is 


Guđfinnur efstur í Ásgarđi

Guđfinnur KjartanssonĆsir ţeir fóru rólega af stađ á sínum fyrsta skákdegi eftir sumarhlé. Ţađ mćttu sautján skákmenn til leiks í dag og tefldu níu umferđir.

Efstir og jafnir urđu ţeir Guđfinnur R. Kjartansson og Ţorsteinn Guđlaugsson međ 7.5 vinning, Guđfinnur örlítiđ hćrri á stigum svo ađ hann telst sigurvegari dagsins.í ţriđja sćti varđ svo Haraldur Axel Sveinbjörnsson međ 7 vinninga.

Nánari úrslit:

  • 1-2    Guđfinnur R. Kjartansson                7.5     34 stig
  •           Ţorsteinn Guđlaugsson                     7.5     33
  • 3        Haraldur Axel Sveinbjörnsson                   7
  • 4        Valdimar Ásmundsson                     6
  • 5-6    Baldur Garđarsson                                     5
  •           Gunnar Finnsson                              5
  • 7-9    Jón Víglundsson                               4.5
  •           Jón Steinţórsson                              4.5
  •           Erlingur Hallsson                              4.5
  • 10-14 Friđrik Sófusson                               4
  •           Björn V. Ţórđarson                          4
  •           Óli Árni Vilhjálmsson                       4
  •           Ásgeir Sigurđsson                                      4
  •           Birgir Sig / Finnur Kr                        4

Nćstu ţrír fengu örlítiđ fćrri vinninga


Verđur teflt á Mars? Forseti FIDE fundar međ NASA

Skákróbótinn og hönnuđur hansÁ nýafstöđnu meistaramóti Moskvu í hrađskák, ţar sem Alexander Morozevich sigrađi međ yfirburđum, varđ skákvélmenni sem stal senunni. Vélmenniđ er hannađ af Konstantin Kosteniuk, og ţađ lét sig ekki muna um ađ tefla fjöltefli viđ ţrjá samtímis.

Fyrsti áskorandi vélmennisins var hann mjög svo litríki og umdeildi forseti FIDE, Kirzan Ilyumzhinov, og hann tilkynnti ađ nú hefđi hann fengiđ ţá hugmynd ađ skipuleggja skákviđburđ á Mars! Í frétt á Chessbase segir ađ Kirzan eigi á nćstu dögum fund međ fulltrúum NASA og ţar ćtli hann ađ kynna hugmynd sína í fullri alvöru.

KirzanSjálfur hefur Kirzan, sem er fyrrverandi forseti rússneska sjálfsstjórnarlýđveldisins Kalmikíu, sagt á prenti frá ţeirri reynslu sinni ađ vera numinn brott af geimverum og kvađst hann hafa numiđ af ţeim margvíslegan vísdóm.

 

 


Perú og Alsír á morgun

Íslandsvinurinn Jorge Cori teflir viđ TopalovÍslenska sveitin í opnum flokki mćtir Perú á morgun.  Međalstig Perúmanna eru 2378 skákstig en á fyrsta borđi fyrir ţá teflir Jorge Cori (2487), sem margir muna eftir frá nýlegum Reykjavíkurskákmótum.  Stelpurnar mćta sveita Alsír sem hefur međalstign 1894.  Báđir íslensku sveitirnar eru ţví ađ tefla viđ sveitir sem teljast heldur lakari. 

Rússar eru efstir í opnum flokki međ 13 stig eftir sigur á Aserum.  Grischuk vann Saferli en öđrum skákum lauk međ jafntefli. Kínverjar sem unnu Armena og ólympíumeistarar Úkraínu, sem unnu Spánverja eru í 2.-3. sćti međ 12 stig.  Rússar og Úkraínumenn mćtast á morgun og Kínverjar mćta Aserum.Kramnik og Grischuk

Í kvennaflokki bar ţađ helst til tíđinda ađ Pólverjar héldu jöfnu gegn Rússum.  Ţesar tvćr ţjóđir eru efstar ásamt Kínverjum međ 12 stig.

Andstćđingar morgundagsins:

71. Peru (RtgAvg:2378 / TB1: 7 / TB2: 74.5)
Bo. NameRtgFEDPts.GamesRp
1GMCori Jorge Moises2487PER4.07.02485
2FMVera Siguenas Deivi2359PER4.07.02451
3FMLeiva Giuseppe2283PER3.07.02320
4FMPacheco Marco2383PER2.56.02191
5 Rojas Guevara David Mario2057PER0.01.00

 

79. Algeria (RtgAvg:1894 / TB1: 6 / TB2: 72.5)
Bo. NameRtgFEDPts.GamesRp
1WCMAmira Hamza1840ALG3.57.01832
2WCMKhadidja Latreche1889ALG2.06.01793
3WIMLatreche Sabrina1949ALG5.07.01962
4WCMZineb Dina Abdi1898ALG3.05.01962
5 Djouher Nouali1727ALG1.53.01738

 

156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig.  Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.

Tap gegn Íran - góđ skák Hannesar - sigur gegn S-Kóreu í kvennaflokki

Henrik og HannesÍslenska liđiđ í opnum flokki tapađi fyrir Írönum í dag.  Hannes Hlífar Stefánsson vann mjög góđan sigur á fyrsta borđi, Henrik Danielsen gerđi jafntefli en Hjörvar Steinn Grétarsson og Ţröstur Ţórhallsson töpuđu.   Kvennaliđiđ vann öruggan 3-1 sigur á S-Kóreu.  Lenka Ptácníková, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Elsa María Kristínardóttir unnu en Jóhanna Björg Jóhannsdóttir tapađi.

Á efstu borđunum vekur sigur Kínverja á Armeníu Wang Hao og félagar frá Kínaóneitanlega athygli ţar sem Wang Yue vann Movsesian.  Stađan í viđureign Asera og Rússa er 1,5-1,5 en ţar sitja Grischuk og Safarli enn ađ tafli.

Skákir íslensku liđanna má nálgast hér:
156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig.  Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 8778260

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband