Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Viđ erum ein fjölskylda: Söfnun fyrir börnin í Afríku

born_i_somaliu.jpgHelgina 6. til 7. ágúst standa Skákakademía Reykjavíkur og Skáksamband Íslands fyrir maraţonskák í Ráđhúsi Reykjavíkur. Ţar munu mörg efnilegustu börn og unglingar landsins tefla viđ gesti og gangandi. Mótherjar krakkanna borga upphćđ ađ eigin vali, sem rennur beint í söfnun Rauđa kross Íslands vegna hinnar hrćđilegu hungursneyđar í Sómalíu.

Kjörorđ Skákhreyfingarinnar er „Viđ erum ein fjölskylda" og međ skákmaraţoninu í Ráđhúsinu vilja ungir liđsmenn skákgyđjunnar á Íslandi sýna börnum í Sómalíu stuđning í verki.

Rauđi krossinn dreifir matvćlum daglega til ţúsunda fjölskyldna í Miđ- og Suđur Sómalíu, ţvert á átakalínur međan stríđ geisar ţar. Ţá njóta um 5.500 börn umönnunar í 40 nćringarmiđstöđvum Rauđa krossins og Rauđa hálfmánans víđsvegar um landiđ. Rauđi krossinn rekur einnig um 20 heilsugćslustöđvar um allt land og vinnur ađ vatnsveituverkefnum á ţurrkasvćđunum.

Taflmaraţoniđ í Ráđhúsinu hefst klukkan 10 laugardaginn 6. ágúst og stendur til klukkan 18. Ţađ heldur áfram á sunnudag, á sama tíma, og er ţađ einlćg von íslensku skákkrakkanna ađ sem allra flestir leggi leiđ sína á maraţoniđ. Margt smátt gerir eitt stórt - og ţađ ţarf ekki mikla peninga til ađ bjarga einu mannslífi.


Fjallađ um fornleifafund á taflmanni í Sjónvarpi

SGN skakmÍ fyrradag var fjallađ um fornleifafund á taflmanni á Siglanesi hér í frétt á Skák.is og um málţing um Lewis-taflmennina í ágúst á Skálholti.

Fjallađ var um taflmannafundinn í sjónvarpsfréttum RÚV í gćr  auk ţess Einar S. Einarsson hefur sent fleiri myndir í myndaalbúmiđ um fornleifafundinn.

Nánari upplýsingar um Lewis-taflmennina og málţingiđ má finna á: www.leit.is/lewis  og www.skalholt.is     


Pistill frá Róbert um Harkany

Róbert klórar sér í hausnumHér kemur pistill Róberts Lagerman sem og skákskýring um mótiđ í Harkany sem hann reyndar tók ţátt í fyrra.

Harkany

Harkany er lítill krúttlegur heilsubćr, sem er um fjöggura tíma akstursferđ frá höfuđborg Ungverja, Búdapest. Í ţessum heilsubć, hafa skákmót veriđ haldin til fjölda ára, svo ákveđin hefđ er fyrir skákmótum í Harkany, enda tilvaliđ ađ einbeita sér ađ taflmennsku og stunda heilsuböđ eftir skák og endurnćra líkama og sál fyrir átök nćstu skákar, í ţessum litla bć.

Ég ákvađ ađ skella mér Harkany, eftir ađ hafa ráđfćrt mig viđ IM Braga Ţorfinnson, en hann fór ţangađ einmitt áriđ 2009 ásamt Jóni Viktori og Degi Arngrímssyni, sem náđi sínum fyrsta áfanga ađ stórmeistaratitli ţar.

Taflmennskan mín var nokkuđ heilsteypt, ég náđi aldrei almennilega ađ blanda mér í toppbaráttuna, en tefldi nćr allt mótiđ á borđunum fyrir neđan forystusauđina.

Stigagróđinn ágćtur eđa um tólf Elo-stig í plús.

Ég mćli hiklaust međ ţessu móti, fyrir okkur Íslendinga, frábćr stađur til ađ einbeita sér ađ taflmennsku, og frábćr heilsuböđ fyrir sál og líkama.

Eftirfarandi skák er tefld í umferđ.....

Róbert Lagerman

 


Pistill frá Dađa um First Saturday

Dađi Ómarsson í Búdapest 2010Styrktarhafar SÍ hafa veriđ duglegir viđ senda skákskýringar.  Hér kemur pistill og skákskýring frá Dađa Ómarssyni sem styrktur var á First Saturday.

Pistillinn:

Fyrst Saturday mótin í Búdapest voru í fyrsta skiptiđ í ár haldin á nýjum stađ en ţau hafa veriđ haldin í Ungverska skáksambandinu á Jókai street í nćrri tvo áratugi alla mánuđi ársins ađ frátöldum janúar og desember.  Ţetta var í annađ skiptiđ sem ég tók ţátt í mótinu og hafđi ég ekki gert mér miklar vonir um ađ ađstađan myndi skána mikiđ frá fyrri stađnum sem  ţó hafđi ákveđinn sjarma yfir sér en er löngu kominn til ára sinna. 

Nýi keppnisstađurinn var 3 stjörnu Hóteliđ Medosz  sem var virkilega morkiđ svo vćgt sé til orđa tekiđ og seinna frétti ég ađ ţar höfđu einhverjir íslendingar gist og ekki gefiđ ţví háa einkunn.  Ţađ eina sem ég sá jákvćtt viđ nýja stađinn er ađ hann er meira miđsvćđis heldur en sá gamli og tók ţađ ađeins  um 4-5 mínútur fyrir mig ađ komast á stađinn.  Gallarnir eru hins vegar fleiri en kostirnir og var gatan til ađ mynda  ekki eins róleg og á gamla stađnum og var oft mikill hávađi frá götunni og ţegar leiđ á skákina varđ loftiđ inni í salnum virkilega ţungt vegna ţess hversu lágt var til lofts.  Mótiđ var ađ ţessu sinni haldiđ í ţremur flokkum Gm, IM og FM og voru ţeir nokkuđ sterkari heldur en vanalega  og ţá sérstaklega Gm grúbban ađ mati ţeirra sem sćkja mótin reglulega. 

Ég byrjađi mótiđ mjög hćgt og brösulega en náđi ađ komast upp í 50% ţegar mótiđ var hálfnađ.  Eftir ţađ gekk ekkert upp og tapađi ég stöđum ţar sem ég var annađ hvort međ unniđ eđa betra.  Í nćrri öllum skákunum fékk ég mun betra úr byrjunum eins og venjulega en úrvinnslan  var ekki ađ gera sig.

Dađi Ómarsson


Hannes tapađi í lokaumferđinni - endar í 2.-5. sćti - tryggir sér keppnisrétt á EM einstaklinga 2012

Íslandsmeistarinn HannesStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2546) tapađi fyrir úkraínska stórmeistarann Dmitry Kononenko (2593) í níundu og síđustu umferđ Czech Open sem fram fór í dag.  Hannes hlaut 7 vinninga og endar í 2.-5. sćti.  Ofangreindur Kononenko sigrađi á mótinu en hann hlaut 7,5 vinning.  Árangur Hannesar samsvarađi 2689 skákstigum og hćkkar um 16 stig fyrir frammistöđu sína.  Samkvćmt styrkjareglum SÍ tryggir slíkur árangur (2670+) Hannesi keppnisrétt fyrir Íslands hönd á EM einstaklinga ađ ári ásamt Íslandsmeistaranum Héđni Steingrímssyni.

Guđmundur Kjartansson (2310) gerđi jafntefli viđ tékkneska FIDE-meistaranum Jan Bartos (2215) í lokaumferđinni en nafni hans Gíslason (2323) tapađi fyrir Ţjóđverjanum Dennes Abel á (2418).  Ţeir hlutu báđir 4,5 vinning.   Árangur Kjartanssonar samsvarađi 2331 skákstigi og hćkkar hann um 4 stig en árangur nafna hans samsvarađi 2282 skákstigum og lćkkar hann um 6 stig. 

Sigurđur Eiríksson (1951) og Jakob Sćvar Sigurđsson (1789) töpuđu báđir.  Sigurđur hlaut 4 vinninga en Jakob Sćvar hlaut 1,5 vinning.

Í a-flokki tefla 279 skákmenn.  Ţar af eru 50 stórmeistarar og 58 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er nr. 17 í stigaröđ keppenda, Gíslason nr. 132 og Kjartansson nr. 140.


Politiken Cup: Henrik og Gunnar unnu í fyrstu umferđ

Gunnar FinnlaugssonÍ dag hófst Politiken Cup í Helsingör í Danmörk.  Tveir íslenskir skákmenn taka ţátt, stórmeistarinn Henrik Danielsen (2535) og Gunnar Finnlaugsson (2079).  Báđir unnu ţeir í fyrstu umferđ, mun stigalćgri andstćđinga.  Á morgun eru tefldar tvćr umferđir, sú fyrri kl. 7 í fyrramáliđ en áhugasamir geta fylgst beint međ skák Henriks á morgun.

311 skákmenn taka ţátt í ţessu móti og ţar af eru 26 stórmeistarar.  Henrik er nr. 19 í styrkleikaröđ keppenda en Gunnar er nr.  126.


NM öldunga: Stefnir í metţátttöku - margir sterkir íslenskir skákmenn hafa skráđ sig

NM öldunga 2011

Ţađ stefnir í metţátttöku á NM öldunga sem fram fer í Reykjavík 10-18. september nk.  Ţegar um 1,5 mánuđur er í mót hafa 46 skákmenn skráđ til leiks en metiđ er frá 2001 ţegar 44 skákmenn tóku ţátt.  Mótiđ er jafnframt ţađ langsterkasta en skráđir eru til leiks eru 3 stórmeistarar, 1 alţjóđlegur meistarar og 3 FIDE-meistarar.  Ţađ er einnig ánćgjulegt ađ sjá mjög marga af okkar sterkustu skákmönnum taka ţátt, kappar sem hafa ekki reglulegir gestir á kappskákmótum hérlendis!

Ţar má fremstan nefna Friđrik Ólafsson (2434), ţá Magnús Sólmundarson (2218), Braga Halldórsson (2198), Júlíus Friđjónsson (2190), Jón Ţ. Ţór (2188), Jóhann Örn Sigurjónsson (2133) og Gunnar Finnlaugsson (2072) en sá síđastnefndi hefur fariđ mikinn í kynningarmálum fyrir mótiđ á erlendri grundu.

Ţess má ađ Magnús Sólmundarson fékk um daginn nýlega leiđréttinguMagnús sólmundarson á skákstigum.  Hans stig var ranglega skráđ eftir Haustmót TR 1993 ţar sem Magnúsi gekk illa.  Hann var tvískráđur inn sem nýr ađili og var tvöfaldur á tímabili á stigalistanum.  Síđar viđ hreinsun hjá FIDE fóru hćrri stigin út en sú lćgri héldu sér.  Stiganefnd SÍ beitti sér í málinu fyrir skemmstu og náđi fram leiđréttingu hjá Magnúsi sem verđur til ţess ađ hann er nú nćststigahćstur íslensku keppendanna!

Íslenskir skákmenn eru hvattir til ađ skrá til leiks.   

 


Sögulegur fornleifafundur: Taflmađur frá 12. öld finnst á Siglunesi

SGN skakmViđ fornleifauppgröft á Siglunesi fannst nýlega fínlega úskorinn taflmađur úr beini í líkingu viđ hina fornu LEWIS taflmenn. Taflmađurinn er talinn vera frá 11. eđa 12. Öld.  Frá ţessu er greint í frétt á heimasíđu Fornleifastofnunar Íslands í dag.

Ţetta eru stórmerkur fundur og  góđ tíđindi ţví hann hleypir á sinn hátt Guđmundur G. Ţórararinsson, fv. alţingismađurfyllri stođum undir kenningu Guđmundar G. Ţórarinssonar  um ađ hinir fornu sögualdartaflmenn frá 12 öld séu gerđir á Íslandi.
 Ţann 19. ágúst nk. verđur haldiđ í Skálholti alţjóđlegt málţing um ráđgátuna miklu  um uppruna  „The Lewis Chessmen" undir yfirskriftinni „Eru taflmennirnr frá Ljóđhúsum (Lewis) íslensk listasmíđ?"

Svipmót Lewis taflmannanna bendir til ţess ađ ţeir séu af íslenskum uppruna, hrókarnir í berserkslíki og riddarinn á smáhesti og ekki hvađ síst biskupinn, sem ţar kemur til skjalanna í fyrsta sinn á skákborđinu svo vitađ sé, sem bendir til ţess ađ ţeir séu gerđir á biskupsstóli.  Auk ţess sem LC Bishop 3mörg önnur,  söguleg og málfrćđileg rök og ýmsar vísbendingar benda til ţess ađ ţeir séu  íslenskir ađ uppruna.   

Á málţinginu munu ţekktir frćđimenn, ţeir  James Robinson, safnvörđur frá Breska ţjóđminjasafninu og  David H. Caldwell frá ţví Skoska, báđir flytja erindi um líklegan uppruna „Taflmannanna frá Ljóđshúsum"  en ţeir eru báđir höfundar nýlegra frćđirita ţar um  „The Lewis Chessmen" (2004) og „The Lewis Chessmen Unmasked" (2010) aukTHE LEWIS CHESSMEN    Hinir fornu sögualdartaflmenn Guđmundar G. Ţórarinssonar og 2-3 íslenskra frćđimanna.

Málţingiđ fer fram á ensku og er öllum opiđ međan húsrúm leyfir.  Ţađ hefst međ setningarathöfn í Skálholtskirkju kl. 10 árdegis  föstudaginn 19. ágúst nk. og stendur daglangt međ hádegishléi. 

Í undirbúningsnefnd eru: Dr. Kristinn Ólason; rektor Skálholtsskóla,  Einar S. Einarsson;  Guđmundur G. Ţórarinsson;  Guđni Ágústsson og  Sr. Gunnţór Ingason

Nánari upplýsingar á: www.leit.is/lewis  og www.skalholt.is    

Myndaalbúm


Hrađskákkeppni taflfélaga: Hellir mćtir Bridsfjelaginu í fyrstu umferđ

Dregiđ var í fyrstu umferđ og forkeppni Hrađskákkeppni taflfélaga í kvöld.  Hrađskákmeistarar Hellis mćta Bridsfjelaginu í frumraun ţeirra síđarnefndu í liđakeppni og Íslandsmeistarar Bolvíkinga mćta KR-ingum. 

Röđun forkeppni:

  • Fjölnir - Víkingaklúbburinn
  • Vin - TA

Röđun 1. umferđar:

  • Mátar - TR
  • Gođinn - TV
  • SA - TG
  • SSON - SR
  • Hellir - Bridsfjelagiđ
  • Haukar - Fjölnir/Víkingaklúbburinn
  • SFÍ - Vin/TA
  • TB - KR

Félögin eru hvött til ţess ađ klára fyrstu umferđ fyrir 15. ágúst nk.

 


Czech Open: Hannes međ hálfs vinnings forskot fyrir lokaumferđina

Íslandsmeistarinn HannesStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2546) gerđi jafntefli viđ rússneska stórmeistarann Alexandre Danin (2538) í áttundu og nćstsíđustu umferđ Czech Open sem fram fór í Pardubice í Tékklandi í dag.  Fariđ er yfir skák dagsins á Skákhorninu.  Hannes er efstur međ 7 vinninga.  Fjórir stórmeistarar koma humátt á eftir Hannesi međ 6,5 vinning.  Í lokaumferđinni sem fram fer á morgun teflir Hannes viđ úkraínska stórmeistarann Dmitry Kononenko (2593).  Skákin, sem hefst kl. 13, verđur sýnd beint á heimasíđu mótsins og án efa mun íslenskir skákfrćđingar fjalla um hana jafnóđum á Skákhorninu.

Guđmundur Gíslason (2323) vann tékkneska FIDE-meistaranum Josef Kratochvil (2230) en nafni hans Kjartansson (2310) tapađi fyrir spćnska alţjóđlega meistaranum David Recuero (2441).  Gíslason hefur 4,5 vinning en Kjartansson hefur 4 vinninga.  Gíslason mćtir Ţjóđverjanum Dennes Abel á (2418) á morgun en Kjartansson mćtir tékkneska FIDE-meistaranum Jan Bartos (2215).

Í b-flokki tapađi Sigurđur Eiríksson (1951) en Jakob Sćvar Sigurđsson (1789) gerđi jafntefli.  Sigurđur hefur 4 vinninga en Jakob Sćvar hefur 1,5 vinning.

Í a-flokki tefla 279 skákmenn.  Ţar af eru 50 stórmeistarar og 58 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er nr. 17 í stigaröđ keppenda, Gíslason nr. 132 og Kjartansson nr. 140.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband