Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Henrik og Gunnar töpuđu í fjórđu umferđ

HenrikHenrik Danielsen (2535) tapađi fyrir kínverska stórmeistaranum Xiangzhi Bu (2675) í fjórđu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag.   Gunnar Finnlaugsson (2072) tapađi fyrir Dananum Bjřrn Mřller Ochsner (2258).  Henrik hefur 3 vinninga en Gunnar hefur 2 vinninga.   Henrik mćtir Finnanum Kari Rauramaa (2217) í fimmtu umferđ sem fram fer á morgun.  Umferđin hefst kl.11 og verđur skák Henriks sýnd beint.

311 skákmenn taka ţátt í ţessu móti og ţar af eru 26 stórmeistarar.  Henrik er nr. 19 í styrkleikaröđ keppenda en Gunnar er nr.  126.


Henrik Danielsen í TV

HenrikStórmeistarinn Henrik Danielsen (2535) hefur gengiđ til liđs viđ Taflfélag Vestmannaeyja en síđustu ár hefur Henrik veriđ í Haukum en ţar áđur í TV og Hróknum.

Eyjamenn eru til alls líklegir í komandi átökum međ stórmeistarana Henrik og Helga Ólafsson innanborđs.


Skákfélag Vinjar fćr góđan liđsstyrk

Haukur AngantýssonŢrír góđir piltar og öflugir skákmenn hafa gengiđ til liđs viđ Vinjarliđiđ.  Haukur Angantýsson (2290), Jorge Rodriguez Fonseca (2006) og Eymundur Eymundsson (1795).

Alţjóđlegi meistarinn Haukur Angantýsson tók sér hlé frá skákinni í vel á annan áratug en hann var međ öflugri mönnum hér áđur fyrr ţar sem hann var í Taflfélagi Reykjavíkur.   Haukur var Íslandsmeistari í skák áriđ 1976 og tefldi fyrir Íslands hönd á Ólympíuskákmótinu 1970.  Ţađ er mikiđ gleđiefni ađ Haukur sé sestur viđ borđiđ á ný og hann hefur svo sannarlega sýnt ađ ţađ lifir í glćđunum.

Jorge Fonseca hefur teflt međ Haukum undanfarin ár. Jorge hefur veriđ duglegur ađ mćta á mót Vinjargengisins undanfarin misseri og hefur margoft sýnt hve öflugur hann getur veriđ, bćđi á Íslandsmótinu sem og á minni mótum. Hann heldur međ Real Madrid.

Eymundur Eymundsson hefur frá blautu barnsbeini teflt međ Skákfélagi Akureyrar, enda fćddur ogeymundur.jpg uppalinn í ţorpinu. Hann hefur veriđ búsettur í borginni í nokkurn tíma og verđur nú međ Skákfélagi Vinjar sem sendir tvö liđ til leiks í haust, í ţriđju og fjórđu deild. Liđiđ er međ í Íslandsmótinu í fjórđa sinn í vetur og markmiđiđ er, sem fyrr, ađ gera betur frá ári til árs og hefur félagiđ stađiđ viđ ţađ hingađ til. Fimmtíu félagar eru nú skráđir í skákfélagiđ og liđsfélagar fagna komu ţessara öflugu skákmanna og frábćru liđsmanna.


Fjölgar í Bridsfjelaginu

Stefán Freyr GuđmundssonBridsfjelagiđ hefur sótt um ađild af Skáksambands Íslands og verđur ađildarsumsókn félagsins tekin fyrir og vćntanlega samţykkt á nćsta stjórnarfundi SÍ.  Allmargir skákmenn hafa skráđ sig í félagiđ og hafa margir ţeirra eitthvađ átt viđ Bridge auk skákarinnar.  Sterkastir félaga eru ţeir Sigurđur Páll Steindórsson, Sigurđur Sverrisson og Stefán Freyr Guđmundsson, sem er forsvari fyrir félagiđ.

Ţeir sem hafa skráđ sig í félagiđ skv. Keppendaskrá SÍ eru auk Sigurđur Páll Steindórssonofangreinda: Gunnar Björn Helgason, Valgarđur Guđjónsson, Gústaf Steingrímsson, Ragnar Sveinn Magnússon, Gísli Hrafnkelsson, Páll Ţórsson, Sveinn Rúnar Eiríksson og Daníel Már Sigurđsson.  

Bridsfjelagiđ byrjar međ látum en ţađ mćtir Hrađskákmeisturum Hellis í fyrstu umferđ Hrađskákkeppni taflfélaga. 


Landskeppni viđ Fćreyjar fer fram 6. og 7. ágúst

Sigurđur Dađi kampakáturÁrleg landskeppni viđ Fćreyinga fer fram daganna 6.-7. ágúst nk.  Fyrri umferđin verđur tefld laugardaginn 6. ágúst á Húsavík, í ađstöđu Gođans í sal Framsýnar-stéttarfélags Garđarsbraut 26 og hefst taflmennskan kl 18:00. Síđari umferđin verđur tefld í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl 14:00 sunnudaginn 7. ágúst. 
Liđ Íslands verđur skipađ liđsmönnum fra SA, Mátum, SAUST og Gođanum.

Liđ Fćreyinga (óstađfest)

1        John Rřdgaard               2332        2343       
2        Sjúrđur Thorsteinsson    2161        2148        
3        Rógvi E. Nielsen              2103        2112        
4        Wille Olsen                     2060        2061        
5        Herluf Hansen                2031        2049        
6        Jákup á R. Andrease      1898        1969        
7        Arild Rimestad                1818        1728        
8        Andreas Andreasen       1878        1935        
9        Wensil Hřjgaard            1779        1850        
10      Rógvi Olsen                    1715                        
11      Hanus Ingi Hansen        1615    

Liđ Íslands í fyrri umferđ á Húsavík.  (óstađfest)

1.        Sigurđur Dađi Sigfússon             Gođinn
2.        Áskell Örn Kárason                      SA
3.        Halldór Brynjar Halldórsson         SA
4.        Gylfi Ţórhallsson                          SA
5.        Rúnar Sigurpálsson                    Mátar
6.        Sigurđur Arnarson                        SA
7.        Viđar Jónsson                             SAUST
8.        Sigurđur Eiríksson                        SA
9.        Mikael Jóhann Karlsson                SA
10.      Jakob Sćvar Sigurđsson             Gođinn
11.      Smári Sigurđsson                        Gođinn

Sagt verđur nánar frá ţessari landskeppni ţegar nćr dregur.

Heimasíđa Gođans


Chessbase fjallar um Ţormóđ og málţingiđ

FornleifafundurVefsíđan Chessbase fjallar um fornleifafundinn á Ţormóđi (taflmađurinn sem fannst á Siglunesi), og um málţingiđ sem fram fer föstudaginn 19. ágúst í Skálholti.

Greinin á Chessbase


Politiken Cup: Henrik međ fullt hús eftir 3 umferđir

HenrikHenrik Danielsen (2535) er einn 24 skákmanna sem hafa fullt hús ađ loknum ţremur umferđum á Politiken Cup.   Í ţriđju umferđ, sem fram fór í dag, vann hann norska skákmanninn Even Thingstad (2223).  í 4. umferđ, sem fram fer á morgun mćtir Henrik kínverska stórmeistaranum, og nćststigahćsta keppenda mótsins,  Xiangzhi Bu (2675).   Umferđin hefst kl.11 og verđur skák Henriks sýnd beint.  Gunnar Finnlaugsson (2072) er međ 2 vinninga. 

311 skákmenn taka ţátt í ţessu móti og ţar af eru 26 stórmeistarar.  Henrik er nr. 19 í styrkleikaröđ keppenda en Gunnar er nr.  126.


Jón Kristinn sigrađi á unglingalandsmóti

Jón Kristinn ŢorgeirssonJón Kristinn Ţorgeirsson (1609) sigrađi í skákkeppni Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fór í dag á Egilsstöđum.  Jón Kristinn vann alla sjö andstćđinga sína.  Í öđru sćti varđ heimamađurinn Ásmundur Hrafn Magnússon en hann hlaut 5,5 vinning.    Ţriđji varđ Ađalsteinn Leifsson (1198).   Daníel Fannar Einarsson vann svo sigur í opnum flokki, einnig međ fullu húsi.


Röđ efstu manna í ađalmótinu:

 

Rk.NameTypRtgNClub/CityPts. 
1Ţorgeirsson Jón Kristinn U141609SA - UFA7
2Magnússon Ásmundur Hrafn U180UÍA5,5
3Leifsson Ađalsteinn U141198SA - UFA5
4Sverrisson Atli Geir U141000UÍA4,5
5Hallgrímsson Jónas Bragi U140UÍA4,5
6Hallgrímsson Snorri U141332Gođinn - HSŢ4,5
7Pálsdóttir Sóley Lind U141194TG - UMSK4
8Freysson Mikael Máni U140UÍA4
9Mobee Tara Sóley U141209Hellir - Ađrir Keppendur4
10Sigurbjörnsson Ţorgeir Örn U140UÍ Fjallabyggđar4
11Ágústsson Ágúst Jóhann U140UÍA4
12Kristjánsson Skúli U140UMSK3,5


Röđ efstu manna í opnum flokki:

 

Rk.NameTypClub/CityPts. 
1Einarsson Daníel Fannar U14UÍA7
2Vilhjálmsson Jóhann Beck U14UÍA5,5
3Hjarđar María Elísabet U18UÍA4,5
4Vilhjálmsson Jón Margeir U14USAH3,5

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Annar áfangi Hjörvars

Hjörvar Steinn GrétarssonHjörvar Steinn Grétarsson náđi sínum öđrum áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli ţegar hann varđ í 3.-7. sćti á opna mótinu í Suđur-Wales á dögunum. Hjörvar hlaut 6˝ vinning af níu mögulegum. Sigurvegarar urđu ţeir Peter Wells og Keith Arkell sem hlutu 7 vinninga, en ţeim fyrrnefnda var dćmdur sigur á stigum. Búast má viđ ţví ađ Hjörvar nái lokaáfanganum ađ alţjóđlega titlinum á ţessu ári, en á verkefnalista framundan er Evrópukeppni taflfélaga og jafnvel Evrópukeppni landsliđa.

Auk Hjörvars tefldu fjórir ungir íslenskir skákmenn á mótinuÖrn Leó í Wales og stóđu sig allir međ mikilli prýđi. Ţannig var árangur Arnar Leós Jóhannssonar eftirtektarverđur, en hann hlaut 6 vinninga og hafnađi í 8.-9. sćti af 69 keppendum. Eyjamađurinn Nökkvi Sverrisson hlaut 5 vinninga og varđ í 21.-25. sćti, Guđmundur Kristinn Lee fékk 4 vinninga og varđ í 37.-49. sćti. Óskar Long Einarsson og Birkir Karl Sigurđsson hlutu 3˝ vinning og urđu í 50.-57. sćti.

Hjörvar tefldi margar skemmtilegar skákir á mótinu en stysta sigurskákin kom í fimmtu umferđ:

Opna Suđur-Wales-mótiđ 2011:

Hjörvar Steinn Grétarsson - Jack Rudd

Benony - byrjun

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rf3 g6 7. Da4+!?

Athyglisverđur leikur sem getur reynst erfđur viđfangs ef menn eru ekki međ á nótunum. Algengara er 7. Bf4, 7. Rd2, 7. e4 eđa 7. g3.

7. ... Rbd7

7. ... Bd7 er vel svarađ međ 8. Db3.

8. Bf4 a6 9. e4 Rh5 10. Bg5 Dc7?

Betra var 10. ... Be7.

11. g4! h6

Riddarinn stendur hörmulega á g7 en ekki gengur 11. ... Rgf6 vegna 12. Bxf6 og riddarinn á d7 er leppur.

12. gxh5 hxg5 13. hxg6 f6

g3cnp4sf.jpg14. e5!

Ađ leika peđi beint ofan í ţrćlvaldađan reit kom margoft fyrir í skákum Kasparovs. Hugmyndin í ţessu tilviki er ađ rýma e4-reitinn fyrir riddarann. Hér kemur til greina ađ leika 14. ... g4 sem Hjörvar hugđist svara međ 15. exf6! gxf3 16. g7 o.s. frv.

14. ... dxe5 15. Re4 b5 16. Bxb5 axb5 17. Dxa8 g4 18. Rfd2 Db7

Eđa 18. ... Rb6 19. Da5.

19. Dxb7 Bxb7 20. g7!

- og svartur gafst upp.

Magnús efstur í Biel

Shirov og CarlsenMagnús Carlsen hefur forystu ţegar tefldar hafa veriđ ţrjár umferđir í stórmeistaraflokki skákhátíđarinnar í Biel í Sviss. Sex skákmenn tefla tvöfalda umferđ og hefur Magnús hlotiđ 2˝ v. eđa 7 stig, en á ţessu móti hefur ţriggja stiga kerfiđ fyrir sigur veriđ tekiđ upp. Morozevich kemur nćstur međ 2 vinninga og 5 stig og síđan Alexei Shirov sem er međ 1˝ v. og 4 stig. Magnús hóf mótiđ međ ţví ađ vinna heimamanninn Pelletier og síđan lagđi hann Shirov ađ velli í ađeins 33 leikjum og var ekki langt frá ţví ađ leggja Morozevich í 3. umferđ en skákinni lauk međ jafntefli.

Í heimsmeistarakeppni landsliđa sem fram fer ţessa dagana í Ningbo í Kína hafa Armenar međ LevAronian Aronjan á 1. borđi náđ öruggri forystu eftir fimm umferđir međ 8 stig og 13˝ vinning af 20 mögulegum. Rússar koma nćstir međ 7 stig og 12 vinninga og í 3. sćti eru Ungverjar međ 7 stig og 11˝ vinning.

Alls taka tíu liđ ţátt í ţessari keppni, ţátttökuréttur miđast viđ fimm efstu liđ frá síđasta Ólympíumóti og fimm „heimsálfuliđ". Íslendingar komust í ţessa keppni ţegar hún var haldin í Luzern áriđ 1993.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 24. júlí 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Kramnik öruggur sigurvegari í Dortmund ţrátt fyrir tap í lokaumferđinni

Kramnik í Dortmund (mynd af heimasíđu mótsins)Heimsmeistarinn fyrrverandi, Vladimir Kramnik (2781), vann öruggan sigur á Dortmund Sparkassen-mótsins sem lauk í dag.  Kramnik hlaut 7 vinninga.  Víetnaminn Le Quang (2715) varđ annar međ 5,5 vinning en Giri (2701) og Ponomariov (2764) urđu í 3.-4. sćti međ 5 vinninga.

Teflt var tvöföld umferđ.

Stađan:
  • 1. Kramnik (2781) 7 v.
  • 2. Le Quang (2715) 5,5 v.
  • 3.-4. Giri (2701) og Ponomariov (2764) 5 v.
  • 5. Nakamura (2770) 4,5 v.
  • 6. Meier (2656) 3 v.

Heimasíđa mótsins

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband