Færsluflokkur: Spil og leikir
15.7.2014 | 09:40
Ólymíufarinn: Guðmundur Sverrir Þór
Það eru ekki bara keppendur sem fara frá Íslandi á Ólympíuskákmótið því fimm íslenskir skákstjórar verða þar við störf. Einn þeirra er Guðmundur Sverrir Þór sem er Ólympíufarinn í dag. Á morgun verður keppandi úr opna flokknum kynntur til leiks.
Guðmundur Sverrir Þór
Taflfélag
Skákfélag Akureyrar
Staða
Skákstjóri
Hvenær tókstu fyrst þátt á Ólympíuskákmót og hversu oft hefur þú tekið þátt?
Þetta verður mitt fyrsta Ólympíumót
Minnisstæðasta skák?
Mér er minnisstæð skák á móti Svíanum Henrik Isaksson i Umeå 2011. Ég var með mígreni og bauð jafntefli eftir átta leiki, þetta var í síðustu umferð og jafntefli tryggt okkur báðum verðlaunasæti í mótinu. Hann hafnaði og þá ákvað ég að skákina skyldi ég halda út, hvað sem það kostaði og vinna skrattakollinn. Eftir nokkra undarlega leiki hjá Isaksson í miðtaflinu náði ég góðu frumkvæði og tryggði mér unnið endatafl sem þó tók smá tíma að vinna úr og á tímabili var ég við það að glutra því niður í jafntefli enda orðinn vel þreyttur af höfuðverknum. Á endanum tókst mér þó að knésetja hann og vann fyrir vikið mótið og skaut sterkum skákmönnum ref fyrir rass. Þetta var mér vitanlega eina skákin sem ég hef teflt sem sýnd hefur verið beint á netinu.
Minnisstæðasta atvik á skákmóti?
Ýmis skemmtileg atvik úr deildó koma upp í hugann en það er kannski ekki við hæfi að nefna þau hér. Minnisstætt er þegar brunabjallan fór í gang í Reykjavíkurmótinu í Hörpunni í vor, allir hlupu út og voru svo kallaðir inn til þess eins og vera hent út aftur.
Hverjar eru þínar væntingar/vonir um gengi íslensku liðanna?
Ég vona að bæði lið endi ofar en stigin segi til um og að allir bæti sig á stigum. Meira er ekki hægt að biðja um, nema kannski að Ísland verði Norðurlandameistari.
Hverju spáir þú fyrir um sigurvegara?
Armenía í karlaflokki og Kína í kvennaflokki
Hver er/verður þinn undirbúningur fyrir Ól?
Ég er skákstjóri í skákþingi Svíþjóðar nú í júlí.
Hefurðu áður teflt fyrir norðan heimskautsbaug?
Ég hef teflt eina hraðskák í Kiruna í N-Svíþjóð.
Eitthvað að lokum?
Þetta verður skemmtileg lífsreynsla og ég hlakka til að heimsækja Tromsö með öllu þessu góða fólki sem fer fyrir hönd Íslands. Áfram Ísland!
Stofnaður hefur verið sér færsluflokkur á Skák.is þar sem haldið er utan um allar fréttir tengdar Ólympíuskákmótinu í Tromsö og FIDE-kosningunum.
| Thór, G. Sverrir - Isaksson, Henrik (PGN) 1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4 Nf6 5. Nf3 Nc6 6. Nc3 Bg4 7. Be3 e6 8. Rc1 Bb4 9. Be2 dxc4 10. Bxc4 O-O 11. O-O Rc8 12. Be2!{Besti leikurinn skv. Fritz. Nú byrjar svartur að tefla undarlega.} Qa5!? 13. Qb3 Rfd8 14. Rfd1 a6? 15. a3 Bxc3 16. Rxc3 Nd5? 17. Rc5 b5? 18. Rdc1 Nce7 19. h3 Bh5!? 20. Bg5 f6 21. Bd2 Qb6 22. a4! b4? 23. Qc4 Bxf3? 24. Bxf3 Rxc5? 25. dxc5 Qc6 26. a5 Rb8? 27. Be2?{Betra er 26. Bf4} Rb5 28. b3 Rxa5? 29. Bxb4 Nxb4 30. Qxb4! Ra2 31. Bf3 Nd5 32. Qc4?{Mun betra er 32. Bxd5 exd5, 33. Db6. Textaleikurinn virkar einnig.} a5 33. Rd1 Kf8 34. Bxd5 exd5 35. Rxd5! Ra1+ 36. Kh2 Re1 37. Qd4 Qc7+ 38. f4 Re6 39. h4 Ke7 40. Kg3 Qb7 41. Qd3 Qb4 42. Rd7+ Kf8 43. Rd8+ Kf7 44. Qd7+ Re7 45. Qd5+ Kg6{Áætlun hvíts var að leika hér 46. Kg4 og hóta máti en svartur getur leikið 46. - He5} 46. f5+ Kh6 47. Qd2+? Qxd2 48. Rxd2 Re3+ 49. Kf2 Rxb3??{Eftir 49. - Hc3 er svartur sennilega búinn að tryggja sér jafntefli.} 50. Rc2 Rb7 51. c6 Rc7 52. Ke2 Kh5 53. Rc4 g6 54. fxg6 Kxg6 55. Kd3 Kf5 56. Kd4 a4 57. Kd5 a3 58. Ra4 Rg7 59. Rxa3 Rxg2 60. Rf3+ Kg6 61. Kd6 Rd2+ 62. Kc7 Rd4 63. Rc3 Rxh4 64. Kd7 Rd4+ 65. Ke7 Re4+ 66. Kf8 Ra4 67. c7 Ra8+ 68. c8=Q Rxc8+ 69. Rxc8 h5 70. Ke7 h4 71. Ke6 Kg5 72. Kd5 Kf4 73. Rc3?!(73. Rh8 Kg3 74. Ke4 h3 75. Ke3 Kg2 76. Ke2 Kg3 77. Rg8+ Kf4 78. Kf2!) Kg4 74. Ke4 h3 75. Rc8 Kg3??(75... h2 76. Rh8 Kg3 77. Ke3 Kg2 78. Ke2 h1=Q!) 76. Ke3! h2 77. Rg8+ Kh3 78. Kf2 h1=N+ 79. Kf3 Kh2 80. Rg2+ Kh3 81. Rg6 Kh2 82. Rxf6 Kg1 83. Rg6+ Kf1 84. Rg2 1-0 |
15.7.2014 | 09:25
Lenka með tap í gær
Lenka Ptácníková (2310) frönsku landsliðskonuna Almira Skripchenko (2449) er alþjóður meistari í áttundu umferð EM kvenna sem fram fór í gær. Lenka hefur 4 vinninga og er í 51.-69. sæti.
Í níundu umferð, sem fram fer í dag, teflri Lenka við rússnesku skákkonuna Dinara Dordzhieva (2225) sem er FIDE-meistari kvenna.
Evrópumeistarinn frá 2012, rússneska skákkonan, Valentina Gunina (2501) hefur vinningsforskot á næstu keppendur en hún hefur 7½ vinning eftir sjö vinningsskákir í röð! Georíska skákonan, Salome Melia (2454) er önnur með 6½ vinning.
Alls taka 116 skákkonur frá 26 löndum þátt og þar af flestar sterkustu skákkonur Evrópu. Fjórtán efstu sætin veita keppnisrétt á Heimsbikarmótinu (World Cup) að ári. Lenka er nr. 51 í stigaröð keppenda.
- Heimasíða EM kvenna
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
14.7.2014 | 09:23
Ólympíufarinn 2014: Tinna Kristín Finnbogadóttir
Ólympíuskákmótið fer fram í Tromsö í Noregi dagana 1.-14. ágúst nk. Átján manna hópur fer frá Íslandi. 10 keppendur, 2 liðsstjórar, 5 skákstjórar auk fararstjóra sem jafnframt er FIDE-fulltrúi. Í dag og næsta 17 daga verða Ólympíufararnir kynntir einn á dag! Við byrjum á Tinnu Kristínu Finnbogadóttur, sem teflir á þriðja boði í kvennaliðinu.
Nafn
Tinna Kristín Finnbogadóttir
Taflfélag
UMSB
Staða
Þriðja borð í kvennaliðinu
Hvenær tókstu fyrst þátt á Ólympíuskákmót og hversu oft hefur þú tekið þátt?
Ég tók fyrst þátt árið 2010 og svo árið 2012. Svo tvisvar.
Minnisstæðasta skák á Ólympíuskákmóti og þá af hverju?
Á móti konunni frá Írak á Ólympíumótinu í Khanty, ég prófaði nýja byrjun og hún lék ónákvæmt snemma svo skákin kláraðist fljótt og örugglega.
Minnisstæðasta atvik á Ólympíuskákmóti?
2012 Þegar við teflum við Namibíu í fyrstu umferð og stelpan sest á móti mér og segir: "I am black". Hún var samt að tala um að hún hefði svart í skákinni.
Hverjar eru þínar væntingar/vonir um gengi íslensku liðanna?
Bjartsýnar.
Hverju spáir þú fyrir um sigurvegara?
Að þeir verði allir stutthærðir í öðrum flokknum.
Hver er/verður þinn undirbúningur fyrir Ól?
Ég hef mætt á vikulegar æfingar með kvennalandsliðinu og hef annars verið að skoða nýjar byrjanir eitthvað.
Hefurðu áður teflt fyrir norðan heimskautsbaug?
Nei, það hef ég ekki.
Eitthvað að lokum?
Áfram Ísland!
Stofnaður hefur verið sér færsluflokkur á Skák.is þar sem haldið er utan um allar fréttir tengdar Ólympíuskákmótinu í Tromsö og FIDE-kosningunum.
| Finnbogadottir, Tinna Kri - Jwan, Jamal Mohammed Amee (PGN) 1. e4 e5 2. Nf3 Nc6 3. Bc4 Bc5 4. O-O Nf6 5. d4 exd4 6. e5 Ng8 7. c3 dxc3 8. Qd5 Qe7 9. Bg5 Qf8 10. Nxc3 Na5 11. Nb5 Bb6 12. Rfe1 Ne7 13. Nd6+ Kd8 14. Nxf7+ Ke8 15. Bxe7 Qxe7 16. Nxh8 Nxc4 17. Qg8+ Qf8 18. Qxh7 Nxb2 19. Ng6 1-0 |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2014 | 20:00
Skákþáttur Morgunblaðsins: Kantpeðin ruddu brautina

Vangaveltur af þessu tagi sóttu á mig þegar ég skoðaði skák sem hinn nýbakaði Íslandsmeistari Guðmundur Kjartansson tefldi á sterku lokuðu móti í Ellivuori í Finnlandi sem lauk 29. júní sl. Guðmundur hlaut þar 3 ½ vinning úr níu skákum og varð í 7. sæti af 10 keppendum. Hann mætti öflugum finnskum meistara meistara í 1. umferð og vann glæsilegan sigur. Eins og hjá Larsen ruddi kantpeðið brautina. Áður en varði var Guðmundur búinn að þrefalda á h-línunni. Það hlaut eitthvað undan að láta:
Guðmundur Kjartansson - Mikhael Agopov
Enskur leikur
1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. Rc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 e6 6. d3 Rge7
Í bókaflokki sínum um Enska leikinn kallar rúmenski stórmeistarinn Marin þetta „Fischer-afbrigðið" með skírskotun til sigra Fischers á Tigran Petrosjan og Vasilí Smyslov árið 1970.
7. h4!?
Guðmundur hefst þegar handa. Larsen var vanur að hrókera og leika biskupinum til f4 eða g5. Nú er öruggast að leika 7. ... h6 þó að hvítur eigi góð færi eftir 8. Bd2 og eftir t.d. 8. ... b6 9. h5 g5 má reyna 10. Rxg5!? hxg5 10. Bxg5 en þannig tefldi Radjabov gegn Ivantsjúk ekki alls fyrir löngu - og vann!
7. ... d5 8. Bd2 b6 9. h5 Bb7 10. Da4 d4?!
Hæpið. Eftir 10. ... Dd7 má svartur vel við una.
11. Re4 O-O 12. hxg6 hxg6 13. O-O-O!
Það gefur augaleið að sóknarmöguleikar hvíts á kóngsvængnum er miklir og hljóta að hrekja svartan í grimma vörn.
13. ... f5 14. Reg5 Dd6 15. Hh7 e5 16. Hdh1 Rd8 17. Dd1!
Drottningin er á leið á h-línuna.
17. ... Df6 18. Dg1 e4 19. Dh2!
Hótar 20. Hh8+ Bxh8 21. Dh7 mát.
19. ... Hf7
Reynir að blíðka goðin með því að láta skiptamun af hendi en 19. .... He8 leiðir til svipaðrar niðurstöðu.
Þessi fórn snýst um að hrekja vald drottningarinnar á h8-reitnum.
20. ... fxe4 21. Bg5!
Hörfi drottningin kemur 22. Hh8+ og mátar.
21. ... exf3 22. Bxf6 Hxf6
Æskilegt væri að skjóta inn 22. ... fxg2 en þá kemur 23. Hh8+ og mátar.
23. Hxg7+! Kxg7 24. Dh8+ Kf7 25. Hh7+
Þungu fallstykkin sjá um sitt!
25. ... Ke6 26. Bh3+ Hf5 27. De8 Rdc6 28. Bxf5+ Kxf5
Tært og skemmtilegt væri: 28. ... gxf5 29. Hh6+ Ke5 30. exf3! Hxe8 31. f4 mát!
29. Dd7+ Kf6 30. Dd6+ Kf5 31. Hf7+
- og Agopov gafst upp. Hann er óverjandi mát, t.d. 31. Kg4 32. Df4+ Kh4 33. Hh7+ Kg2 34. Dxf3+ og 35. Hh1 mát.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.
Grein þessi birtist í Laugardagsmogganum, 5. júlí 2014
| Kjartansson, Gudmundur - Agopov, Mikael (PGN) 1. Nf3 c5 2. c4 Nc6 3. Nc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 e6 6. d3 Nge7 7. h4 d5 8. Bd2 b6 9. h5 Bb7 10. Qa4 d4 11. Ne4 O-O 12. hxg6 hxg6 13. O-O-O f5 14. Neg5 Qd6 15. Rh7 e5 16. Rdh1 Nd8 17. Qd1 Qf6 18. Qg1 e4 19. Qh2 Rf7 20. Nxe4 fxe4 21. Bg5 exf3 22. Bxf6 Rxf6 23. Rxg7+ Kxg7 24. Qh8+ Kf7 25. Rh7+ Ke6 26. Bh3+ Rf5 27. Qe8 Ndc6 28. Bxf5+ Kxf5 29. Qd7+ Kf6 30. Qd6+ Kf5 31. Rf7+ 1-0 |
Spil og leikir | Breytt 6.7.2014 kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2014 | 11:08
Dortmund-mótið hófst í gær: Versta tap Kramniks á ferlinum?
Þrjú skákmót af stærri gerðinni hófust í gær. Eitt þeirra er haldið í Dortmund, annað í Biel og það þriðja í Bergamo. Dortmund vekur óneitanlega mesta athygli en meðal keppenda þar eru Kramnik og Caruna. Í Biel eru Giri, Vachier-Lagrave og Hou Yifan meðal keppenda en sjálft aðalmótið hefst þar á morgun. Í Bergamo er Wesley So, sem nýlega tilkynnti flutning yfir á bandaríska skáksambandið stærsta nafnið.
Í Dortmund vakti Georgs Meier á Vladimir Kramnik óneitanlega mesta athygli en svo virðist sem Kramnik hafi haft tapað tafl eftir um 12 leiki!
Spænski alþjóðlegi meistarinn, David Martinez, sem skýrir skákina á Chess24, segir svo:
Unquestionably Kramnik's worst game in the last 25 years... and I'm only not adding more years because I don't remember seeing his junior games!
Þess má geta að Kramnik er tífaldur (!!) sigurvegari Dortmund-mótsins.
Fabiano Caruana (2789) vann þýska landsliðsmanninn David Baramidze (2616), sem fæddur er í Georgíu. Þýska landsliðið í skák er líkt þýska fótboltaliðinu að því leiti að þar er mikið af innflytjendum! Aðeins Meier er þýskur að uppruna.
Öðrum skákum mótsins lauk með jafntefli.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2014 | 10:47
EM kvenna: Lenka tapaði í gær
Lenka Ptácníková (2310) tapaði fyrir armensku skákkonunni Elina Danielian (2458) í sjöundu umferð EM kvenna sem fram fór í gær. Lenka hefur 4 vinninga og er í 31.-46. sæti.
Evrópumeistarinn frá 2012, rússneska skákkonan, Valentina Gunina (2501) er efst með 6,5 vinning. Í öðru sæti með 6 vinninga er georgíska skákkonan Lela Javakhishvili (2474).
Bent er á heimasíðu Hugins en Tómas Veigar Sigurðarson, vefstjóri síðunnar, hefur þar safnað saman skákum Lenku frá mótinu.Alls taka 116 skákkonur frá 26 löndum þátt og þar af flestar sterkustu skákkonur Evrópu. Fjórtán efstu sætin veita keppnisrétt á Heimsbikarmótinu (World Cup) að ári. Lenka er nr. 51 í stigaröð keppenda.
- Heimasíða EM kvenna
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
12.7.2014 | 17:57
Skákstjóranámskeið fer fram 24.-27. júlí - nauðsynlegt fyrir þá sem vilja dæma á EM
Skáksamband Íslands býður upp á skákstjóra námskeið í lok júlí. Þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem boðið er upp á slíkt námskeið. Kennari á námskeiðinu verður hinn virti egypski alþjóðlegi skákdómari Hassan Khalad en honum til aðstoðar verður Omar Salama.
Nauðsynlegt er að sækja slík námskeið til að öðlast alþjóðlega dómaragráðu. Þeim sem vilja vera meðal skákdómara á EM landsliða á næsta ári eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í námskeiðinu.
Skráning fer fram í gegnum Omar Salama, omariscof@yahoo.com, 691 9804.
Þátttökugjöld eru aðeins 10.000 kr. en til samanburðar er hefðbundið gjald á slík námskeið erlendis um €120.
Dagskrá námskeiðsins:
No | Day | Period | Articles | |
1 | Thursday | 24/7/2014 | 18:00 - 19:00 | Introduction - Arbiter´s Duties - Titles for Arbiters |
2 | 24/7/2014 | 19:00 - 19:45 | Organizng Tournaments - Tournament Rules - Time Systems | |
3 | 24/7/2014 | 19:45 - 20:00 | Rest | |
4 | 24/7/2014 | 20:00 - 21:00 | Tournaments´ formats - Round Robin - Swiss System | |
5 | 24/7/2014 | 21:00 - 22:00 | Tie break Systems - prizes and Hort | |
6 | Friday | 25/7/2014 | 18:00 - 19:00 | Rating System for Rated and Unrated players |
7 | 25/7/2014 | 19:00 - 19:45 | Players´ Titles - Chess Clocks - Equipments | |
8 | 25/7/2014 | 19:45 - 20:00 | Rest | |
9 | 25/7/2014 | 20:00 - 21:00 | Swiss Manager - Part 1 | |
10 | 25/7/2014 | 21:00 - 22:00 | Swiss Manager - Part 2 | |
11 | Saturday | 26/7/2014 | 13:00 - 14:00 | Laws of Chess - Part 1 |
12 | 26/7/2014 | 14:00 - 14:45 | Laws of Chess - Part 2 | |
13 | 26/7/2014 | 14:45 - 15:00 | Rest | |
14 | 26/7/2014 | 15:00 - 16:00 | Laws of Chess - Part 3 | |
15 | 26/7/2014 | 16:00 - 17:00 | Laws of Chess - Part 4 | |
16 | Sunday | 27/7/2014 | 13:00 - 17:00 | Laws of Chess - Part 5 |
17 | 27/7/2014 | 14:00 - 14:45 | Laws of Chess - Part 6 | |
18 | 27/7/2014 | 14:45 - 15:00 | Rest | |
19 | 27/7/2014 | 15:00 - 16:00 | Laws of Chess - Examples and Quistions - Part 1 | |
20 | 27/7/2014 | 16:00 - 17:00 | Laws of Chess - Examples and Quistions - Part 2 | |
21 | Monday | 28/7/2014 | 17:00 - 18:45 | Changes of Laws of Chess + what should professional players know |
22 | 28/7/2014 | 18:45 - 19:45 | Rest | |
23 | 28/7/2014 | 19:15 - 21:15 | Test | |
24 | 28/7/2014 | 21:15 | Closing Ceremony and Certificates |
12.7.2014 | 16:29
Mótaáætlun SÍ starfsárið 2014-15
Mótaáætlun fyrir starfsárið 2014-15 er nú aðgengileg. Hana má nálgast hér. Dagskráin er að mestu hefðbundin.
Þó má vekja athygli á því að ekki er búið að setja inn áætlunina Íslandsmótið í skák (landsliðsflokk og áskorendaflokk) né Íslandsmót kvenna á næsta ári. Vonast er til að landsliðsflokkurinn fari fram á Blönduósi í tilefni 90 ára Skáksambandsins sem var stofnað á Blönduósi 23. júní 1925. Ákvarðnir um Íslandsmót kvenna og áskorendaflokk verða teknar þegar ljóst verður um staðsetningu og dagsetningu landsliðsflokks. Það liggur þó fyrir landsliðsflokkur og Íslandsmót kvenna fer ekki fram á sama tíma.
Ekki liggur heldur fyrir dagsetning á Íslandsmótinu í atskák í ár.
Í haust er stefnt að því að halda Íslandsmót öldunga í fyrsta skipi í mörg ár en Taflfélag Garðabæjar hélt mót undir þessu heiti fyrir allmörgum árum. Eftir umræður undirbúningsnefndar liggja fyrir eftirfarandi drög að mótshaldinu.
- SÍ áskilur sér rétt til að fresta mótshaldinu alfarið verði þátttaka mjög slök (undir 20).
- Sjö umferðir eftir svissneska kerfinu
- Teflt verði í tveimur flokkum 50+ og 65+ (M.v. 1949 og 1964).
- SÍ áskilji sér rétt til að láta tefla í einum flokki verði keppendur færri en 12 í öðrum öðrum hvorum flokki.
- Íslandsmeistaratitill verði engu að síður veittur í báðum aldursflokkum.
- Verði menn jafnir verði reiknuð Buchols-stig (ekki aukakeppni)
- Fyrstu verðlaun verði 50.000 ferðastyrkur á HM eða EM öldunga í báðum flokkum - eða á önnur mót komist menn ekki
- Veitt verði 2. og 3. verðlaun í báðum flokkum (gripir) og sérstök aldursverðlaun (70+, 75+, 80+ o.þ.h.) - einnig gripir.
- Þátttökugjöld verði kr. 5.000.
- Teflt verði um tvær langar helgar
- Dagsetningar 16. eða 17. október -19. október (4 umferðir) og 14.-16. nóvember (3 umferðir)
- Staðsetning óákveðin
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2014 | 09:54
Lenka með mjög góðan sigur í gær
Lenka Ptácníková (2310) vann mjög góðan og sannfærandi sigur á alþjóðlega meistarann Sopiko Guramishvili (2402) frá Georgíu í sjöttu umferð EM kvenna sem fram fór í gær. Lenka hefur 4 vinninga og er í 14.-25. sæti.
Eftir slaka byrjun hefur Lenka nú fengið 3,5 vinning í síðustu fjórum skákum.
Í dag mætir hún armensku landsliðskonunni Elina Danielian (2458) sem er einn átta þátttakenda sem ber hin hefðbundna stórmeistaratitil.
Skákin verður í beinni á vefsíðu mótsins og hefst kl. 12.
Evrópumeistarinn frá 2012, rússneska skákkonan, Valentina Gunina (2501) er efst með 5,5 vinning. Í 2.-3. sæti eru Natalia Zhukova (2451), Úkraínu, og Lela Javakhishvili (2474), Georgíu, með 5 vinninga. Konur frá Austur-Evrópu hafa mikla yfirburði á mótinu en fara þarf niður í sextánda sæti til finna vestur-evrópska skákkonu.
Bent er á heimasíðu Hugins en Tómas Veigar Sigurðarson, vefstjóri síðunnar, hefur þar safnað saman skákum Lenku frá mótinu.
Alls taka 116 skákkonur frá 26 löndum þátt og þar af flestar sterkustu skákkonur Evrópu. Fjórtán efstu sætin veita keppnisrétt á Heimsbikarmótinu (World Cup) að ári. Lenka er nr. 51 í stigaröð keppenda.
- Heimasíða EM kvenna
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
11.7.2014 | 16:28
Kasparov með undirtökin í Asíu
Baráttan um forsetastól FIDE stendur nú sem hæst en þar berjast Kirsan Ilyumzhinov og Garry Kasparov hatrammlega um embættið. Taktík stuðningsmanna Kirsans hefur verið sú að láta sem kosningarnar séu formsatriði fyrir hann að vinna. Kasparov og félagar hafa verið í þeirri varnarbaráttu að svo sé ekki og hafa nú síðustu vikur verið að birta tölur yfir raunverulegar tölur (real numbers) í Afríku og í dag í Asíu (að Eyjaálfu meðtalinni). Tölurnar þar segja þeir vera 15-8 Kasparov í vil.
Með þessum aðgerðum hefur Kasparov sennilega tekist það sem hann ætlaði sér. Það er trú á hans möguleika hefur aukist aftur. Sumir stuðningsmenn Kasparovs telja baráttuna vera jafna og að frammistaða frambjóðenda á FIDE-þingingu muni ráða úrslitum. Kosningarnar fara fram 11. ágúst.
Í viðtali við Skák.is í gær, sagðist Kasparov vera bjartsýnn og var í ljómandi skapi. Tölurnar frá Asíu greinilega glöddu hann sem og það tókst að það hrekja ranga frétt þess efnis að atkvæði Nígeríu hafði farið yfir á Kirsan. Kasparov er nú í fríi í "heimalandi sínu", Króatíu, þar sem safnar kröftum fyrir lokaátökin fyrir Tromsö.
Baráttan er hörð á Twitter en þar takast George Mastrokoukos (@GMastrokoukos), útbreiðslufulltrúi FIDE, og Mig Greengard (@chessninja), fjölmiðlafulltrúi Kasparovs á að miklum krafti.
Staða frambjóðenda er ójöfn. Kirsan ferðast nú um allan heim undir nafninu vinnuheimsóknir (working visits) sem þýðir að FIDE greiðir allan ferðakostnað. Á sama tíma þarf heimsmeistarinn fyrrverandi að treysta á stuðning einkaaðila.
En þá aftur að Asíu. Í frétt á heimsíðu Kasparov segir meðl annars:
As in Africa, some countries that nominated Ilyumzhinov have since published support for Garry Kasparov. This confirms what we said at the start, that Ilyumzhinov's campaign is based on false representation of support to scare federations into thinking he could never lose. That trick is over. There is nothing to be afraid of and it's time to join the winning team!
As always, our numbers are based on public record, such as official federation websites or letters of support such as those reproduced below. It is also notable how Ilyumzhinov's supporters, even official ones, never seem to include any reasons for why they support him...
Skipting landanna er að sögn Kasparovs sem hér segir (landaheiti á ensku)
KASPAROV 15: Afghanistan, Australia, Bhutan, Fiji, Guam, Hong Kong, Indonesia, Korea, Kyrgyzstan, Macau, Myanmar, New Zealand, Philippines, Papua New Guinea, Singapore
ILYUMZHINOV 8: Cambodia, India, Iran, Kazakhstan, Maldives, Nepal, Qatar, Uzbekistan
25 Asíuríki hafa ekki gefið sig upp. Athygli vekur að þarna telur Kasparov Afganistan upp en fyrir skömmu var skipt þar um forseta og skákforystu á heimasíðu FIDE eins og áður hefur komið fram á Skák.is. Mögulega gæti staðan því verið 14-9. Ameríka er hins vegar vandamálið fyrir Kasparov en þar eru yfirburðir Kirsans miklir. Stóra spurningin er hvort sigrar í Evrópu, Asíu og Afríku geti unnið upp vondu stöðu í Ameríku.
Spil og leikir | Breytt 14.7.2014 kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 16
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 184
- Frá upphafi: 8779122
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 114
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar