Færsluflokkur: Spil og leikir
17.5.2015 | 10:27
Fjórða umferð Íslandsmótsins hefst kl. 14 í dag í Hörpu - halda sviptingarnar áfram?
Fjórða umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 14 í Háuloftum í Hörpu í dag. Í gær var boðið upp á afar spennandi og sviptingarsamar skákir sem buðu upp á mjög óvænt úrslit. Hannes Hlífar er efstur með 2,5 vinning en Héðinn, Henrik og Hjörvar eru skammt undan með 2 vinninga.
Aðalskák umferðinnar svona fyrirfram verður að teljast skák Henriks og Héðins. Forystusauðurinn Hannes teflir við Einar Hjalta og Hjörvar teflir við Íslandsmeistarann frá í fyrra Guðmund Kjartansson.
Umferð dagsins
Staðan
Skákáhugamenn eru hvattir til að fjölmenna í Hörpu. Öllum skákununum varpað upp á skjá og heitt á könnunni!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (tölvuskýringar)
- ChessBomb
- Myndaalbúm (GB)
16.5.2015 | 20:00
Skákþáttur Morgunblaðsins: Tvöfaldur sigur á Norðurlandamóti stúlkna
Nansý Davíðsdóttir varði Norðurlandameistaratitil sinn í aldursflokki C á Norðurlandamóti stúlkna, sem fram fór í Kolding í Danmörku um síðustu helgi. Nansý hafði nokkra yfirburði fram yfir stöllur sínar í flokknum og hlaut 4½ vinning af fimm mögulegum. Meðal keppinauta hennar var Anna Cramling Bellon, sem hlaut 3½ vinning í 2. sæti, en hún er dóttir Piu Cramling, skákdrottningar Svía, og spænska stórmeistarans Juans Manuels Bellons.
Keppt var í þremur aldursflokkum í Danmörku og í þeim elsta, sem skipaður var stúlkum fæddum 1994-1997, náði Hrund Hauksdóttir efsta sæti ásamt Jessicu Bengtson frá Svíþjóð, þær hlutu fjóra vinninga af fimm mögulegum en Jessicu Bengtson var dæmdur sigur eftir stigaútreikning. Frammistaða Hrundar er sérstaklega góð ef horft er til þess að áður en mótið hófst var hún númer 11 í stigaröðinni af 12 keppendum. Íslendingar áttu sex keppendur í mótinu og allar bættu stúlkurnar sig miðað við ætlaðan árangur.
Spennandi Íslandsmót hefst í Hörpu 14. maí
Háuloft, skemmtilegur salur efst í Hörpu, verður vettvangur keppni landsliðsflokks á Skákþingi Íslands sem hefst hinn 14. maí. Mótið í ár vekur sérstaka athygli fyrir þær sakir að tveir Íslandsmeistarar frá síðustu öld snúa nú aftur; stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, sem tefldi á Akureyri 1997 og vann þá sigur, og Jón L. Árnason, sem tefldi síðast á Íslandsþingi í Garðabæ haustið 1991, en hann varð Íslandsmeistari 16 ára gamall árið 1977. Endurkoma þeirra á sér þær skýringar að í nóvember nk. teflir Ísland fram gullaldarliði á Evrópumóti landsliða, en Ísland má sem mótshaldari stilla upp tveimur liðum a.m.k. Aðrir keppendur í landsliðsflokknum verða Íslandsmeistarinn Guðmundur Kjartansson, Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Héðinn Steingrímsson, Henrik Danielsen, Stefán Kristjánsson, Þröstur Þórhallsson, Bragi Þorfinnsson, Sigurður Daði Sigfússon og Lenka Ptacnikova.
Leikur ársins
Hollenska tímaritið New in chess heldur stöðu sinni sem virtasta skáktímarit heims. Í síðasta hefti þess er grein eftir Jan Timman um leik ársins 2015. Slíkur leikur þarf að vera nægilega fjarstæðukendur til að hljóta slíkan sess í skáksögunni og kom fyrir á Evrópumóti einstaklinga sem fram fór í Jerúsalem í vetur sem leið:
EM 2015; 10. umferð:
Khismatullin Eljanov
Staðan kom upp eftir 43. leik Úkraínumannsins Eljanovs. Þó að kóngur hans sé á vergangi blæs heldur ekki byrlega í herbúðum hvíts, t.d. 44. He1 Hf6! 45 f4+ Kh4 og svartur vinnur!
Hvítur lék: 44. Kg1!! og eftir 44.... Dxd1+ 45 Kh2 Hxc6 46. De7+ Kh6 47. Df8+ Kg5 kom 48. Dxf7! Hf8 (hvað annað?)49. f4+ Kh6 50. Dxf6 De2 51. Df8+ Kh5 52. Dg7! h6 53. De5+ Kh4 54. Df6+ Kh5 55. f5! gxf5 56. Dxf5+ Kh4 57. Dg6!gafst svartur gafst upp. Það er engin haldgóð vörn gegn hótuninni 58. Dxh6+ Dh5 59. g3 mát. Þessi sigur Rússans fleytti honum í 2.-4. sæti en sigurvegari Evrópumótsins varð landi hns Evgení Najaer. Eftir skákina komust menn að því með aðstoð öflugra skákreikna að besti leikur svarts er annar fjarstæðukenndur leikur, 44.... Hd5! til að finna hróknum stað á f5.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 9. maí 2015.
Spil og leikir | Breytt 10.5.2015 kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2015 | 19:18
Hannes Hlífar efstur eftir sigur á Héðni - miklar sviptingar
Hannes Hlífar Stefánsson (2590) vann sannfærandi sigur á Héðni Steingrímssyni (2532) í þriðju umferð Íslandsmótsins í skák í dag. Voru fjöldamargir áhorfendur á Íslandsmótinu sérstaklega hrifnir af hinum menntaða leik 15...c5. Miklar sviptingar voru í umferðinni og léku bæði Hjörvar Steinn Grétarsson (2561) og Jóhann Hjartarson (2566) góðum stöðum niður í tap. Hjörvar gegn Lenku Ptácníková (22849 og Jóhann á móti Braga Þorfinnssyni (2416).
Björn Þorfinnsson (2407) vann Einar Hjalta Jensson (2359) örugglega. Jón L. Árnason (2499) og Henrik Danielsen (2520) gerðu jafntefli sem og Sigurður Daði Sigfússon (2319) og Guðmundur Kjartansson (2474).
Hannes er efstur með 2,5 vinning. Héðinn, Henrik og Hjörvar eru í 2.-4. sæti með 2 vinninga. Mótið er afar jafnt en 11 af 12 keppendum hafa 1-2 vinninga.
Fjórða umferð fer fram á morgun og hefst kl. 14. Þá teflir Hannes við Einar Hjalta. Aðalskák umferðarinnar verður að teljast skák Henriks og Héðins.
Skákáhugamenn eru hvattir til að fjölmenna í Hörpu. Heitt á könnunni!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (tölvuskýringar)
- ChessBomb
- Myndaalbúm (GB)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2015 | 10:09
Þriðja umferð Íslandsmótsins hefst kl. 14 í Hörpu
Þriðja umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl.14 í Háuloftum í Hörpu. Hjörvar Steinn Grétarsson (2561) og Héðinn Steingrímsson (2532) eru efstir með fullt hús en fá ólíkt hlutverk í dag. Héðinn teflir við Hannes Hlífar Stefánsson (2590) stigahæsta keppendann og tólffaldan meistara en Hjörvar við Lenku Ptácníková (2284) sem er stigalægst keppenda. Hart hefur verið barist á mótinu og t.d. í gær var aðeins eitt jafntefli.
Í hinum stórmeistaraslag umferðarinnar mætast Jón L. Árnason (2499) og Henrik Danielsen. Sá síðarnefndi er í 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlífari.
Jóhann Hjartarson (2566) teflir við Braga Þorfinnsson (2416) sem hefur ekki byrjað vel. Björn Þorfinnsson (2407) mætir Einar Hjalta Jenssyni (2359) og hefur tækifæri á að hefna bróðurs síns. Íslandsmeistari Guðmundur Kjartansson (2474) teflir við Sigurð Daða Sigfússon (2319).
Umferðin hefst kl. 14. Rétt er að taka fram að öllum skákunum er varpað upp á tvo skjái í skáksal en hægt er að skilja hlutina öðruvísi með lestri á skákþætti Helga Ólafssonar í Mogganum í dag.
Heitt á könnunni fyrir skákákhugamenn.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (tölvuskýringar)
- ChessBomb
- Myndaalbúm (GB)
15.5.2015 | 22:13
Hjörvar og Héðinn efstir á Íslandsmótinu í skák
Stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2561) og Héðinn Steingrímsson (2532) eru efstir og jafnir með fullt hús að lokinni annarri umferð Íslandsmótsins í kvöld. Hjörvar vann Jóhann Hjartarson (2566) í fyrstu kappskák þeirra á millum. Héðinn Steingrímsson (2532) lagði Björn Þorfinnsson (2407) að velli. Hannes Hlífar Stefánsson (2590) vann Jón L. Árnason (2499). "Gömlu mennirnir" áttu því ekki gott kvöld!
Hannes og Henrik Danielsen (2520) eru í 3.-4. sæti með 1,5 vinning.
Umferð dagsins:
Þriðja umferð fer fram á morgun og hefst kl. 14. Aðalskák umferðarinnar á morgun verður að teljast viðureign Héðins og Hannesar. Röðun morgundagsins er annars sem hér segir:
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (tölvuskýringar)
- ChessBomb
- Myndaalbúm (GB)
15.5.2015 | 18:34
"Sérfræðingarnir" spá Hannesi sigri á Íslandsmótinu
123 skákáhugamenn skiluðu inn spá um úrslit á Íslandsmótinu í skák. Skákáhugamenn virðast hafa mesta trú á Hannesi Hlífar Stefánssyni en alls spáðu honum 48 efsta sætinu. 31 spáði Hjörvari sigri, 24 Jóhanni og 15 Héðni.
Ef "spámennirnir" hafa rétt fyrir fyrir yrði lokaröð sex efsta manna sem hér segir
- Hannes Hlífar 48 atkvæði í 1. sæti
- Hjörvar Steinn 58 atkvæði í 1.-2. sæti
- Jóhann Hjartarson 78 atkvæði í 1.-3. sæti
- Héðinn Steingrímsson 81 atkvæði í 1.-4. sæti
- Henrik Danielsen 70 atkvæði í 1.-5. sæti
- Guðmundur Kjartansson 82 atkvæði 1.-6. sæti
Sérfræðingarnir höfðu reyndar kolrangt fyrir í fyrra því enginn spáði Guðmundi Kjartanssyni Íslandsmeistaratitlinum.
Þegar líða fer á mótinu verður birt röð efstu spámanna.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2015 | 09:38
Vorhátíðaræfing TR á morgun laugardag
Önnur umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 17 dag í Háuloftum í Hörpu. Aðalviðureign dagsins er skák Hjörvars Steins Grétarssonar (2561) og Jóhanns Hjartarsonar (2569) en þetta en þeir hafa aldrei áður teflt saman kappskák! Einnig mætast Hannes Hlífar Stefánsson (2590) og Jón L. Árnason (2499) í öðrum stórmeistaraslag.
Umferð dagsins:
Bent er á að hægt er að spá fyrir um röð efstu manna mótsins hér á Skák.is (guli kassinn efst). Lokað verður getraunina kl. 17 í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (tölvuskýringar)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2015 | 22:45
Einar með yfirburðarsigur á Öðlingamóti TR
Einar Valdimarsson (1945) sigraði með miklum yfirburðum á Öðlingamóti TR sem lauk í gær. Einar hlaut fullt hús í sjö skákum! Í lokaumferðinni vann hann Haraldur Baldursson (1984). Ögmundur Kristinsson (2030), sem vann Þorvarð F. Ólafsson (2222) í lokaumferðinni, varð í 2.-4. sæti ásamt Þorvarði og Ólafi Gísla Jónssyni (1900). Þorvarður hlaut annað sætið eftir stigaútreikning og Ögmundur það þriðja.
Hraðskákmót öðlinga fer fram nk. miðvikudagskvöld og er opið öllum 40 ára og eldri.
14.5.2015 | 22:28
Vormót Skákdeildar Breiðabliks
Í vikunni lauk æfingum vetrarins hjá Skákdeild Breiðabliks með tveim viðburðum.
Á þriðjudeginum fengum við góðan gest sem var stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson. Tefldi hann við þrettán áhugasama iðkendur og gaf ekkert eftir, enda vildu strákarnir finna kraftinn og gæðin í leikjum frá stórmeistara. Hjörvar vann allar skákirnar og gaf hverjum og einum góð ráð eftir skákirnar. Skákdeildin þakkar Hjörvari kærlega fyrir heimsóknina og vonandi fær hann góða strauma með sér fyrir komandi átök í Landsliðsflokknum.
Á miðvikudeginum fór fram Vormót Skákdeildarinnar. Þar öttu kappi saman iðkendur vetrarins, en einnig var öðrum efnilegum krökkum Í Kópavogi boðin þátttaka. Úr varð mjög þétt og vel skipað mót. Eins og búast mátti við þá var Vignir Vatnar Stefánsson Hörðuvallaskóla í nokkrum sérflokki enda er drengurinn með styrkleika á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hann lauk keppni með 7 vinninga af 7 mögulegum. Keppnin um næstu sæti var jafnari, en lauk með því að Róbert Luu úr Álfhólsskóla og Birkir Ísak Jóhannsson úr Salaskóla urðu jafnir í 2.-3. sæti með 5,5 vinninga, en Róbert hafði betur eftir stigaútreikning.
Unglingameistari Breiðabliks 2015 varð Birkir Ísak Jóhannsson með 5,5 vinninga. Í 2.-3.sæti urðu Ólafur Örn Olafsson og Halldór Atli Kristjánsson með 5,0 vinninga, en Ólafur Örn vann á stigum.
Iðkendum á æfingum hjá skákdeildinni hefur fjölgað jafnt og þétt í vetur. Viðurkenningar frá Birki Karli þjálfara fengu Birkir ísak fyrir mestu framfarirnar og Halldór Atli fyrir bestu mætingu og dugnað.
Næst á dagskrá hjá Skákdeild Breiðabliks er þátttaka í Sumarnámskeiðum Breiðabliks. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á skákþjálfun á þeim.
Sjá nánar á: http://www.breidablik.is/forsida/sumarnamskeid_breidabliks/
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778337
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar