Fćrsluflokkur: Spil og leikir
29.1.2017 | 07:00
Skákdeild KR: Kapptefliđ um Friđrikskónginn
Eins og undanfarin ár standa KR og Gallerý Skák saman ađ GrandPrix mótaröđinni um Taflkóng Friđriks Ólafssonar sem fram fer fjögur mánudagskvöld vestur í Frostaskjóli og hefst 30. janúar kl. 19.30. Tefldar verđa 9 umf./10. mín. skákir. Ţrjú bestu mót hvers keppenda telja til stiga og vinnings.
Opiđ öllum án ţátttöku í heildarkeppninni.
Spil og leikir | Breytt 24.1.2017 kl. 00:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2017 | 06:54
Dagur efstur á Skákţingi Reykjavíkur
Sviptivindar voru á toppnum í 6. umferđ Skáţingsins í sl. miđvikudagskvöld. Dagur Ragnarsson vann peđ gegn Gauta Páli Jónssyni á fyrsta borđi og sigldi vinningi örugglega í höfn. Félagi Dags á toppnum fyrir umferđina, Lenka Ptacnikova, tapađi hins vegar fyrir Birni Ţorfinnssyni sem var mćttur ferskur til leiks eftir frí í síđustu umferđunum. Jóhann Ingvason vann tvö peđ eftir flćkjur gegn Guđmundi Gíslasyni, gaf síđan annađ ţeirra til baka til ađ komast í vćnlegt hróksendatafl og vann ađ lokum.
Ţá var lífleg skák ţeirra Dađa Ómarssonar og Arnar Leós Jóhannssonar. Hinn yfirleitt dagfarsprúđi (á skákborđinu og utan ţess) Örn Leó fórnađi rými og reitum í hinni nútímalegu Nútímavörn og bćtti svo skiptamun viđ fórnarkostnađinn fyrir sterkan hvítreita biskup og nokkurt spil gegn hvítu kóngsstöđunni. Dađi átti góđa en nokkuđ vandfundna leiđ til ađ tryggja stöđuna sem hann kom ţví miđur auga á 1 2 leikjum of seint. Hann varđ ţví ađ gefa skiptamuninn til baka og niđurstađan varđ tvísýnt drottningarendatafl sem lauk ađ lokum međ jafntefli.
Benedikt Jónasson međ svörtu sýndi hvernig má nota góđan riddara gegn ađţrengdum biskup í Maroczy/Dreka endatafli gegn Atla Antonssyni. Ţeir félagar Petrosian og Pétursson hefđu mátt vera ánćgđir međ ţá úrvinnslu. Ásamt Benedikt voru ađrir sem gera sig líka líklega til ađ kljást á efstu borđum međ góđum sigrum í umferđinni. Ţar má t.d. nefna Ţorvarđ Fannar, Birkissyni (Bárđ Örn og Björn), sem og Jon Olav Fivelstad.
Dagur Ragnarsson er nú einn efstur međ 5˝ vinning en skammt undan eru Björn Ţorfinnsson og Guđmundur Kjartansson međ 5. Dagur og Guđmundur mćtast einmitt í 7. umferđ á sunnudaginn n.k. en Björn etur kappi viđ Örn Leó. Lenka sem er nú í fjórđa sćti, hefur hvítt gegn Dađa Ómarssyni.
Önnur úrslit 6. umferđar má sjá á Chess-Results.
Nánar á heimasíđu TR.
28.1.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Dagur í efsta sćti í tveim mótum
Á ţeim tveim sterku mótum sem ţessa dagana fara fram á höfuđborgarsvćđinu, Skákţingi Reykjavíkur og Nóa-Síríus mótinu, er komin upp sú stađa ađ sami skákmađurinn er efstur í báđum mótunum. Hinn 19 ára gamli Dagur Ragnarsson hefur teflt sex skákir í ţessum mótum og unniđ ţćr allar.
Nóa-Síríus mótiđ er afar vel skipađ eins og áđur hefur komiđ fram en ţađ skekkir ađeins myndina ađ keppendur eiga tvisvar kost á hálfs vinnings hjásetu og nokkrir hafa enn ekki hafiđ keppni. Stađa efstu manna:
1.-3. Dagur Ragnarsson, Guđmundur Kjartansson og Dađi Ómarsson 2 vinningar. Tíu skákmenn eru međ 1˝ vinning ţ. á m. stigahćsti keppandinn Jóhann Hjartarson, sem gerđi jafntefli viđ Örn Leó Jóhannsson í 2. umferđ.
Á Skákţingi Reykjavíkur hafa veriđ tefldar fjórar umferđir og ţar er Dagur efstur ásamt Lenku Ptacnikova sem vann Guđmund Kjartansson nokkuđ óvćnt í 3. umferđ. Ţau eru međ 4 vinninga en Björn Ţorfinnsson og Guđmundur Gíslason koma nćstir međ 3˝ vinning.
Wesley So efstur í Wijk aan Zee
Wesley So, sem er fćddur og uppalinn á Filippseyjum en söđlađi um fyrir nokkru og tefldi fyrir Bandaríkin á síđasta Ólympíumóti, er í 4. sćti á janúarlista FIDE međ 2.808 Elo-stig. Ţar trónir á toppnum sem fyrr norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen, sem teflir á sínu fyrsta móti međ venjulegan umhugsunartíma eftir titilvörnina í New York á dögunum. Fátt bendir til annars en ađ ţessir tveir muni berjast um efsta sćtiđ á A-flokki hinnar árlegu skákhátíđar í Wijk aan Zee í Hollandi á nćstu dögum.
Úkraínumađurinn Eljanov hóf mótiđ af miklum krafti en á fimmtudag tapađi hann fyrir Levon Aronjan og viđ ţađ komst So einn í efsta sćtiđ. Stađan:
1. So 4 v. (af 5) 2.3. Carlsen og Eljanov 3˝ v. 4. Aronjan 3 v. 5.10. Giri, Karjakin, Wojtaszek, Harikrishna, Wei og Andreikin 2˝ v. 11.12. Nepomniachtchi og Adhiban 2 v. 13. Rapport 1˝ v. 14. van Wely ˝ v.
Hollendingar binda enn vonir viđ hinn unga Anish Giri en hinn heimamađurinn, Loek van Wely, er heillum horfinn. Vandinn viđ Giri, sem Nigel Short kallađi túrbó-útgáfuna af Leko á Twitter um daginn, er sá ađ hann vill festast í jafnteflisgír og öllum skákum hans í Wijk hefur lokiđ međ jafntefli. Ţá hefur Karjakin heldur ekki náđ sér á strik og í 5. umferđ tapađi hann fyrir lítt ţekktum Indverja sem vann B-flokkinn í fyrra:
Sergei Karjakin Baskaran Adhiban
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Be7 8. Dd2 a6 9. a3 O-O 10. dxc5 Rxc5 11. Df2 Rd7 12. Rd4 Rxd4 13. Bxd4 f6 14. exf6 Bxf6 15. Bxf6?
Merkileg ónákvćmni. Ţađ er eins og Karjakin hafi ekki viljađ hrókera langt vegna 15. ... e5 međ hugmyndinni 16. fxe5 Bg5+ og drottningin fellur. En hann getur leikiđ 16. Bc5 međ ágćtri stöđu.
15. ... Dxf6 16. g3 g5 17. O-O-O gxf4 18. Kb1 f3 19. g4?!
Betra var 19. Hd4 međ hótuninni 20. Hf4.
19. ... Re5 20. g5 Dg7 21. g6?
Reynir ađ slá ryki í augu Indverjans.
21. ... hxg6 22. Bd3 Bd7 23. Hdg1 Rxd3 24. cxd3 Hf5 25. Hg4 Haf8 26. Hhg1 Be8!
Franski biskupinn valdar g6-peđiđ kirfilega. Hvíta stađan er töpuđ.
27. Rd1 Hh5 28. h4 He5 29. Re3 Bb5 30. Hd4
Reynir ađ halda stöđunni saman en nćsti leikur gerir út um tafliđ.
30. ... He4! 31. Hxg6 Bxd3+
og Karjakin gafst upp.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 21. janúar 2017
Spil og leikir | Breytt 23.1.2017 kl. 15:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2017 | 11:29
Teflt á Flúđum á Skákdaginn
Skákdagurinn 2017 er tileinkađur Friđrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alţjóđa skáksambandsins. Friđrik, sem enn teflir á fullu var lengi međal bestu skákmanna heims.
Flúđaskóli tók slaginn á skádeginum međ ţeim hćtti ađ bjóđa gestum og gangandi í viđureign í versluninni Samkaup Strax á Flúđum í morgunsáriđ. Voru ţađ verđlaunahafar úr Halldórsmótinu sem haldiđ var ţann 18. nóvember sl. sem sátu ađ tafli gegn viđskiptavinum búđarinnar. Mćldist ţetta vel fyrir og var krökkunum vel tekiđ. Mátti sjá góđ tilţrif á báđa bóga og aldrei ađ vita nema ţetta verđi endurtekiđ.
Viđ ţökkum versluninni góđar mótttökur og viđskiptavinir fá einnig ţakkir fyrir góđar viđtökur.
Ţau Eyţór Orri Árnason, Axel Fannar Gústafsson, Una Bóel Jónsdóttir, Ţorsteinn Ingi Styrmisson, Hjörtur Snćr Halldórsson og Vignir Öxndal Ingibjörnsson voru fulltrúar skólans.
Árni Ţór Hilmarsson, skákkennari Flúđaskóla.
27.1.2017 | 06:15
Korpúlfar á Skákdeginum - afmćlisbarniđ og Stöđ 2 mćttu í heimsókn
Skákdagurinn var hátíđlega haldinn ađ Borgum í gćr og afmćlisbarn dagsins Friđrik Ólafsson, fyrsti og fremsti stórmeistari okkar, heiđursborgari Reykjavíkur og fyrrum forseti FIDE, kom í heimsókn og var efnt til afmćlisteitis honum til heiđurs. Ţađ fór vel á ţví enda flestir hinna öldnu skákmanna af sömu kynslóđ og hann - flestir komnir vel til ára sinni ţótt ţess sjáist lítt merki. Ţađ bar til tíđinda ađ sjónvarpiđ Stöđ 2 gerđi ţessum viđburđi skil og tók Friđrik tali í tilefni dagsins. Menn stunduđu sinn tafl- og blindingsleik af miklu kappi og freistuđu ţess eftir bestu getu ađ tefla í anda meistarans međ miđsjöfnum árangri ţó. Svo fór ađ tveir íslenskir Larsenar urđu efstir sem nokkra eftirtekt vakti. Sćbjörn Larsen Guđfinnsson í fyrsta sćti međ fullu húsi og Jóhann Larsen Knútsson hreppti annađ sćtiđ eftir tvísýna baráttu međ 8 vinninga af 9 mögulegum, ađrir međ minna. Einar Ess hafđi gefiđ farandgrip til mótsins "FRIĐRIKSBIKARINN, endurnýttan bikar úr safni sínu sem vonandi stendur ţó fyrir sínu, ásamt verđlaunapeningum međ prófílmynd af meistaranum eftir konu hans. Hlynur S. Ţórđarson, mágur Ingvars Ásmundssonar heitins, er forsvarmađur klúbbsins en verndari hans er Birna Róbertsdóttir, viđburđastjóri Borga, félags- og menningarmiđstöđvar Grafarvogs. Ţau bćđi eiga ţakkir skyldar fyrir frumkvćđi sitt og atbeina allan ađ ţessum nýja skákklúbbi eldri borgara í Grafarvogi og nágrenni ţ.e.höfuđborgarsvćđinu.
Frétt Stöđvar 2 má finna hér.
Gallerý Skák/ESE
27.1.2017 | 06:09
Akureyringar héldu uppá Skákdaginn
Í gćr, á skákdaginn 26. janúar, voru háđ skólamót í fjórum grunnskólum á Akureyri. Mótshaldiđ var einkum kynnt í 3-6. bekk, en öllum ţó heimil ţátttaka. Öll fóru mótin vel fram og voru ţátttakendur alls 81. Tefldar voru fimm umferđir. Viđ munum tíunda úrslitin síđar, en skólameistarar urđu ţessir:
- Skákmeistari Brekkuskóla: Gabríel Freyr Björnsson
- Skákmeistari Lundarskóla: Ívar Ţorleifur Barkarson
- Skákmeistari Naustaskóla: Ingólfur Árni Benediktsson
- Skákmeistari Síđuskóla: Dađi Örn Gunnarsson
Viđ óskum hinum nýbökuđu meisturum til hamingju međ árangurinn og meistaratitlana.
Í gćrkvöldi var svo haldiđ opiđ mót í Skákheimilinu. Úrslit voru ekki kunn ţegar blađiđ fór í prentun, en ţađ er til tíđinda ađ Alékínsvörn var beitt í fjölmörgum skákum kvöldsins. Sýnir ţađ best gróskuna í skáklífinu hér norđan heiđa.
Nánar á vefsíđu SA
26.1.2017 | 09:06
Nóa Síríus-mótiđ - Nćrri hálf öld frá síđustu skák
Ţriđja umferđ Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á ţriđjudagskvöld 24. janúar.
Í upphafi umferđar kvaddi Pálmi Ragnar Pétursson sér hljóđs fyrir hönd mótsstjórnar og bauđ Friđrik Ólafsson sérstaklega velkominn til leiks. Pálmi sagđi ađ Friđrik hefđi veriđ međ flensu í upphafi móts, en vćri nú mćttur og ţađ vćri fagnađarefni. Ţađ vćri vissulega mikill heiđur ađ ţví ađ hafa Friđrik međal keppenda og til gamans mćtti geta ţess, fyrst teflt vćri í ţessu mannvirki, ađ ţegar Friđrik var ađ gera garđinn frćgan á 6. og 7. áratug síđustu aldar, ţá gátu Íslendingar ekki státađ af fótbolta- og handboltaliđum á heimsmćlikvarđa eins og nú vćri. Friđrik greip ţá inn í og sagđi "ađ eftir 14-2 ósigurinn gegn Dönum, hefđi veriđ sagt um Íslendinga ađ ţađ sem ţeir hefđu ekki í fótunum hefđu ţeir í höfđinu!".
Í tíđ Friđriks voru ţeir fáir landar vorir sem kepptu međal ţeirra bestu og voru sameiningartákn Íslendinga. Friđrik Ólafsson var sannarlega slíkt tákn. Ţegar Friđrik tefldi, fylgdist íslenska ţjóđin međ. Í tilefni ţess ađ Friđrik verđur 82 ára á skákdaginn, 26. janúar, bađ Pálmi skákmenn ađ rísa úr sćtum og klappa honum lof í lófa.
Ađ ţví búnu gaf Vigfús Vigfússon skákstjóri skákmönnum merki um ađ setja klukkurnar af stađ. Friđrik settist til tafls á móti Jóni Hálfdánarsyni. Alveg eins og í gamla daga en ţeir mćttust síđast viđ taflborđiđ áriđ 1969. Hvađ er hálf öld á milli vina.
Ţađ fór vel á međ ţeim kempum eins og međfylgjandi mynd sýnir og rétt eins og fyrir tćpum 50 árum, gerđu ţeir félagar jafntefli.
Til gamans má benda á frábćran vef Skáksögufélagsins og vefsíđu til heiđurs Friđriki, fyrsta stórmeistara okkar Íslendinga. Á ţessari síđu, má sjá umfjöllun um Skákţing Íslands 1969, ţegar Friđrik og Jón mćttust síđast: http://skaksogufelagid.is/1969-skakthing-islands/. Friđrik fór međ sigur af hólmi á ţessu móti međ 9 vinninga í 11 skákum. Leyfđi 4 jafntefli, ţar af gegn Jóni Hálfdánarsyni. Áhugasamir geta rakiđ skákina sem er ađ finna neđarlega á síđunni.
Af A-flokki.
Á efsta borđi gerđu Dagur Ragnarsson og Guđmundur Kjartansson jafntefli eftir langa baráttuskák sem stóđ fram á nótt. Skák Jóhanns Hjartarsonar og Andra Áss Grétarssonar var frestađ. Björgvin Jónsson gerđi jafntefli viđ Helga Áss Grétarsson í vel tefldri skák ţar sem sá síđarnefndi var nćr sigri.
Ţröstur vann Sigurđ Dađa međ svörtu í ćsispennandi skák ţar sem Sigurđur Dađi tefldi hvasst og fórnađi liđi fyrir kóngssókn en Ţröstur stóđ af sér ágjöfina og landađi ađ lokum sigrinum. Björn Ţorfinnsson sigrađi Örn Leó nokkuđ örugglega eftir ađ hafa unniđ skiptamun snemma tafls.
Lenka Ptachnikova lá fyrir Magnúsi Erni Úlfarssyni og Mikael Jóhann Karlsson náđi jafntefli gegn Fidemeistaranum og formanninum Ţorsteini Ţorsteinssyni eftir ađ sá síđarnefndi hafđi veriđ međ vinningsmöguleika. Ţá gerđu TR-ingarnir Jón Viktor Gunnarsson og Benedikt Jónasson jafntefli í langri og flókinni skák ţar sem Benedikt hafđi ađ lokum hrók og tvö peđ gegn hrók og riddara.
Halldór Grétar Einarsson, sér lítiđ fyrir og vann Kristján Eđvarđsson í vel útfćrđri skák.
Björn Hólm Birkisson náđi ađ hanga á jafntefli gegn Sigurbirni Björnssyni ţar sem sigurlíkurnar voru greinilega hjá ţeim síđarnefnda.
Upplýsingar um önnur úrslit umferđarinnar má finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=3&wi=821
Stađan í A-flokki er ţessi:
Efstir og jafnir međ tvo og hálfan vinning ađ loknum ţremur umferđum eru: Guđmundur Kjartansson (2468), Dađi Ómarsson (2197), Björn Ţorfinnsson (2404), Dagur Ragnarsson (2276), Ţröstur Ţórhallsson (2414), Magnús Örn Úlfarsson (2375).
Tvo vinninga hafa Helgi Áss Grétarsson (2448), Vignir Vatnar Stefánsson (2404), Benedikt Jónasson (2208), Björgvin Jónasson (2340), Guđmundur Halldórsson (2204), Halldór Grétar Einarsson (2242), Bárđur Örn Birkisson (2175), Guđmundur Stefán Gíslason (2332).
Jóhann Hjartarson og Andri Áss eiga skák til góđa en ţeir eru báđir međ einn og hálfan eftir tvćr.
B-flokkur:
Í B-flokki vakti ţađ mesta athygli, ađ hin unga og bráđefnilega skákkona Svava Ţorsteinsdóttir, gerđi jafntefli viđ stigahćsta mann flokksins, Jón Trausta Harđarson.
Ţá náđi Róbert Luu jafntefli viđ Agnar Tómas Möller. Á öđrum borđum var einnig hart barist og hafđi Birkir Karl Sigurđsson betur gegn Stephan Briem og Hörđur Anton Hauksson vann sigur á Hrund Hauksdóttur. Óskar Víkingur Davíđsson og Ólafur Evert Úlfsson gerđu jafntefli.
Hvađ önnur úrslit varđar, er vísađ til međfylgjandi krćkju.
Stađan í B-flokki:
Efstir og jafnir međ fullt hús eftir ţrjár umferđir eru Birkir Karl Sigurđsson og Hörđur Aron Hauksson.
Á eftir ţeim, međ tvo vinninga, koma 14 skákmenn: Óskar Víkingur Davíđsson, Róbert Luu, Stephan Briem, Agnar Tómar Möller, Hrund Hauksdóttir, Stefán Orri Davíđsson, Svava Ţorsteinsdóttir, Ólafur Evert Úlfsson, Benedikt Briem, Jón Eggert Hallsson, Gunnar Erik Guđmundsson, Jón Trausti Harđarson, Alexander Oliver Mai og Arnar Milutin Heiđarsson.
Fjórđa umferđ verđur tefld ţriđjudaginn 31. janúar og eru allir velkomnir í Stúkuna viđ Kópavogsvöll.
Nánar á Skákhuganum.
26.1.2017 | 08:39
Gleđilegan Skákdag!
Skákdagur Íslands er haldinn í sjötta sinn í dag, fimmtudaginn 26. janúar. Skákdagurinn er haldinn til heiđurs Friđrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Friđrik sem verđur 82 ára í dag tekur virkan ţátt í skáklífi landsins og teflir um ţessar mundir á sterku Nóa Síríus skákmóti Hugins.
Fjölmargir skákviđburđir fara fram í dag og eru skákmenn og konur hvattir til ađ draga fram skáksettin.Teflt verđur í grunnskólum út um allt land enda skákkennsla innan skólanna enn ađ aukast. Bragi Ţorfinnsson alţjóđlegur meistari teflir fjöltefli viđ nemendur Vatnsendaskóla í Kópavogi og skólamót verđa haldin í fjórum skólum á Akureyri svo eitthvađ sé nefnt. Ţá munu kennarar Verzlunarskólans tefla sín á milli.
Skáklíf í skólum á suđurlandi er međ miklum blóma og heimsćkir Ingibjörg Edda Birgisdóttir Kerhólsskóla og skemmtilegir viđburđir fara fram í Grunnskólunum í Vestmannaeyjum og Hveragerđi.
Heldri skákmenn ţjóđarinnar hafa ávallt veriđ einkar duglegir ađ heiđra Friđrik og munu Korpúlfar í Grafarvogi tefla um nýjan Friđriksbikar. Friđrik er vćntanlegur til Korpúlfanna en hann mun einnig kíkja í heimsókn á leikskólann Laufásborg. Laufásborg undir styrkri forystu Omars Salama hefur frá upphafi tekiđ ţátt í Skákdeginum og heimsókn Friđriks ţví kćrkomin fyrir hina ungu skákmeistara leikskólans.
Í tilefni af Skákdeginum standa Skáksambandiđ og GAMMA fyrir plakkatsdrefingu í alla skóla landsins til ađ kynna vefinn skakkennsla.is sem Friđrik vígđi á dögunum.
Allar fréttir og myndir af skákviđburđum á Skákdaginn má senda áfrettir@skaksamband.is
25.1.2017 | 15:49
Reykjavíkurmót grunnskólasveita
Reykjavíkurmót grunnskólasveita verđur haldiđ í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12 mánudaginn 6.febrúar og hefst mótiđ kl.17. Ţetta fjölmenna skákmót, sem er árviss viđburđur í reykvískri skólaskák, er samvinnuverkefni Skóla- og frístundasviđs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur.
Tefldar verđa sjö umferđir eftir svissnesku kerfi. Umhugsunartími er 8 mínútur fyrir hverja skák og bćtast 2 sekúndur viđ umhugsunartímann eftir hvern leik (8+2). Ţátttökurétt hafa allir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur í 1.-10.bekk. Allar sveitirnar keppa í einum opnum flokki og verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin auk ţess sem ţrjár efstu stúlknasveitirnar hljóta verđlaun. Hver sveit skal skipuđ fjórum nemendum auk 0-4 varamanna. Áćtlađ er ađ mótinu ljúki um kl.20. Verđlaunaafhending fer fram strax ađ móti loknu.
Sigursveitin hlýtur nafnbótina Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2017 og hlýtur farandbikar til vörslu í eitt ár. Núverandi Reykjavíkurmeistari er Laugalćkjarskóli og Rimaskóli varđ hlutskarpastur í stúlknaflokki.
Mikilvćgt er ađ skólar sendi fylgdarmann međ sínu liđi, keppendum til halds og trausts, en ekki síđur til ađ mótshaldiđ gangi hratt og örugglega fyrir sig. Ćskilegt er ađ hver liđsstjóri stýri ađ hámarki tveimur sveitum.
Skráning í mótiđ fer fram í gegnum skráningarform á vef Taflfélags Reykjavíkur (einnig ađgengilegt á www.skak.is) og lýkur skráningu sunnudaginn 5.febrúar. Ekki verđur hćgt ađ skrá liđ á mótsstađ. Frekari upplýsingar um mótiđ má nálgast međ ţví ađ senda fyrirspurn á netfangiđ taflfelag@taflfelag.is.
25.1.2017 | 13:41
Ćsir ţjófstörtuđu Skákdeginum
Ţeir voru brattir og börđu sér á brjóst gömlu brýnin sem mćttu til tafls í Ásgarđi í gćr til ađ tefla í anda meistara Friđriks sér til gamans og yndisauka. Ţór Valtýsson var vel ađ sigri sínum kominn ţó sumir ađrir yrđu ađ láta sér lynda ađ vera teknir bćđi á tíma og taugum í sömu skákinni. Á morgun fagna eldri skákmenn Skákdeginum og afmćlisbarninu Friđrik ađ Borgum gegnt Spöng í bođi Korpúlfa.
Aldrei ađ vita nema góđir gestir láti sjá sig.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778337
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar