Fćrsluflokkur: Spil og leikir
Ţegar lokaumferđin í áskorendaflokki fór fram um síđustu helgi lá ljóst fyrir ađ enginn gat náđ Guđmundi Gísalsyni ađ vinningum. Hann hafđi hlotiđ 7 ˝ vinning úr átta skákum og langt í nćstu menn. Tvö sćti í landsliđsflokki voru í bođi og ýmsir möguleikar í stöđunni. Jóhann Ingvason stóđ vel ađ vígi ef kćmi til stigaútreiknings en varđ ţó ađ vinna skák sína gegn Tómasi Björnssyni til ađ vera öruggur međ sćti í landsliđsflokknum. Ţá áttust viđ Lenka Ptacnikova og Dagur Ragnarsson og gátu bćđi međ sigri unniđ sćti í landsliđsflokknum ef önnur úrslit yrđu ţeim hagfelld. Og eftir mikla baráttu vann Dagur sína skák, Jóhann varđ ađ gera sér jafntefli ađ góđu og á toppborđinu dró til tíđinda ţegar Bolvíkingurinn Halldór Grétar Einarsson vann sigurvegarann. Ekki í fyrsta sinn sem ţeir heiđursmenn Halldór og Guđmundur Gíslason eigast viđ. En ţessi úrslit breyttu ţó litlu um lokaniđurstöđuna:
1. Guđmundur Gíslason 7 ˝ v. (af 9) 2. Dagur Ragnarsson 6 ˝ v. 3. Jóhann Ingvason 6 v. 4. 7. Björgvin Víglundsson, Halldór Grétar Einarsson, Kristján Eđvarđsson og Lenka Ptacnikova 5 ˝ v.
Keppendur voru 22 talsins.
Ţrír ungir men taka nú sćti í landsliđsflokki, auk Dags, ţeir Vignir Vatnar Stefánsson og Bárđur Örn Birkisson. Verđur skemmtilegt ađ fylgjast međ taflmennsku ţeirra. Dagur missti af lestinni í fyrra en mćtir nú enn sterkari á ţennan vettvang. Hann náđi snemma frumkvćđinu í úrslitaskákinni og vann sannfćrandi sigur:
Skákţing Íslands 2017; 9. umferđ:
Lenka Ptacnikova Dagur Ragnarsson
Vćngtafl
1. c4 c6 2. Rf3 d5 3. b3 Bg4 4. Re5 Bh5 5. Bb2 f6 6. Rf3 e5 7. cxd5 exd5 8. g3 Bd6 9. Bg2 Re7 10. O-O O-O 11. d3 Rbc6 12. Rc3 Dd7 13. a3 a5 14. Rb5 Bb8 15. a4 Ra7 16. Rxa7 Bxa7 17. d4?
Ţessi leikur er verri en enginn. Ţađ er smá galli viđ vćngtöflin ađ hvítur á stundum erfitt međ ađ finna haldgóđa áćtlun eftir byrjunarleikina.
17. e4 18. Rd2 b5 19. f3? f5
Eđlilegur leikur en sterkara er 19. e3! 20. Rb1 b4! og riddarinn á b1 getur sig hvergi hrćrt.
20. e3 b4!
Ţenur út áhrifasvćđi sitt. Ţađ kemur líka á daginn a biskupinn á b2 hefur ekkert svćđi ađ vinna međ.
21. Hc1 g5 22. De1 Hae8 23. f4 gxf4 24. gxf4 Rg6 25. Df2 Bb6 26. Hc2 Bd8 27. Hfc1 Rh4 28. Kh1 He6 29. Bf1 Hg6 30. Bb5 Df7 31. Hc6 Hg2 32. Hg1 Hxg1+ 33. Kxg1 Kh8 34. Hc8 Rf3 35. Rxf3 exf3!
Einnig kom til greina ađ tala viđ biskup. En úr ţessu er ekki nokkur leiđ fyrir hvítan ađ verjast.
36. Kf1 De6 37. Hxd8 Hxd8 38. Dh4 Hg8 39. Dxh5 Dxe3
Hvítur getur varist máti međ ţví ađ gefa drottninguna en ţađ er vitaskuld algerlega vonlaust svo Lenka lagđi niđur vopnin.
Wesley So sigrađi á bandaríska meistaramótinu
Skytturnar ţrjár, Wesley So, Hikaru Nakamura og Fabiano Carurana, áttu ekki sjö dagana sćla á bandaríska meistaramótinu sem lauk í St. Louis um síđustu helgi. Eftir ellefu umferđir varđ So ađ deila efsta sćti međ Alexander Onischuk en ţeir hlutu 7 vinninga af af ellefu mögulegum. Ţeir ţurftu ađ tefla tvćr atskákir um sćmdarheitiđ Skákmeistari Bandaríkjanna 2017. So sigrađi 1 ˝ :˝ og bćtti ţar međ enn einni rósinni í hnappgatiđ. Nakamura og Caruana urđu í 3.-5. sćti ásamt Akobian en ţeir fengu allir 6 ˝ vinning.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 15. apríl 2017
Spil og leikir | Breytt 15.4.2017 kl. 09:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2017 | 11:29
Dagskrá dagsins: Fimmta umferđ, úrslit Barna Blitz og Pub Quiz - Hannes teflir viđ Jobava
Í gćr og dag eru stćrstu dagar á skákhátíđinni Reykjavíkurskákmótinu. Í gćr fór fram fjölmennt hrađskákmót og tveir fyrilestar fyrir utan fjórđu umferđ. Mikil stemming var í Hörpu og var skákskýringasalurinn ţétt setinn í gćr. Búast má viđ enn betri ađsókn um helgina.
Í dag verđur afar mikiđ um vera. Úrslit Barna Bltiz hefjast núna kl. 11:00. ţar tefla átta íslenskir skákmenn til úrslita. Ţađ eru: Óskar Víkingur Davíđsson, Stefán Orri Davíđsson, Róbert Luu, Ísak Orri Karlsson, Balthazar Máni Wedholm Gunnarsson, Kristján Dagur Jónsson, Arnór Gunnlaugsson og Benedikt Ţórisson keppea eftir úsláttarfyrirkomulagi Krakkarnir tóku ţátt í undankeppnum sem haldnar voru í TR, Hugin, Víkingaklúbbnum og Fjölni. Mótiđ stendur til u.ţ.. 12:30 og eru áhorfendur velkomnir.
Umferđ dagsins hefst kl. 15. Hannes Hlífar Stefánsson (2566) fćr krefjandi verkefni en hann teflir viđ georgíska ofurstórmeistarann Baadur Jobava (2712), Jóhann Hjartarson (2536) mćtir Vigni Vagnari Stefánssyni (2341), Halldór Grétar Einarsson (2257) teflir viđ indverska undrabarniđ Nihal Sarin (2424).
RÚV fjallađi um indversku undradrengina í gćr. Ţá frétt má nálgast hér.
Skákskýringar Ingvars Ţórs Jóhaannessar hefjast kl. 17.
Pub Quiz sem eru iđulega vćusćlasti sérviđburđur mótsins fer fram Hótel Plaza í kvöld og hefst kl. 21:30. Nánar um vibđurinn hér.
Beinar útsendingar á vefnum hefjast kl. 15. Ţćr eru í umsjón Simon Williams og Fionu Steil-Antoni.
22.4.2017 | 04:34
Mustafa Yilmaz sigurvegari á Reykjavik Open Blitz
Tyrkneski stórmeistarinn Mustafa Yilmaz kom sá og sigrađi á hrađskákmóti Reykjavík Open - Reykjavik Open Blitz.
Alls mćttu til leiks 68 skákmenn tilbúnir ađ kljást á reitunum 64 ţó nokkrir hafi helst úr lestinni snemma móts.
Eftir nokkra hnökra í byrjun rann mótiđ hratt í gegn en tefldar voru 9 umferđir međ umhugsunartímanum 3+2 eđa 3 mínútur á skákina plus 2 sekúndur í viđbótartíma á hvern leik.
Mustafa lét snemma til sín taka og vann allar sínar skákir snemma móts. Nokkrir fylgdu á eftir í humátt og sérstaklega byrjuđu Björn Ţorfinnsson og Vignir Vatnar vel međ fjóra vinninga af fjórum. Björn lagđi ađ velli Luca Barillaro sem hafđi fariđ skemmtilega af stađ og lagt ađ velli stórmeistarana Helga Áss Grétarson og Simon Williams.
Yilmaz gaf lítiđ eftir og gaf í raun í og hafđi lagt alla andstćđinga sína ađ velli eftir 8 umferđir. Tyrkinn átti sgurinn vísan fyrir síđustu umferđ.
Baráttan um hin verđlaunasćtin tvö var hinsvegar mjög hörđ en ţar hafđi Svíinn Erik Blomqvist átt góđan endasprett og var kominn í annađ sćtiđ međan Björn Ţorfinnsson sat í ţví ţriđja.
Björn átti erfiđa skák gegn Aman Hambleton sem var hálfum vinningi á eftir honum ásamt fjölmörgum öđrum.
Blomqvist og Yilmaz tryggđu sín verđlaun međ stuttu jafntefli í síđustu umferđ en Björn sýndi úr hverju hann er gerđur og lagđi Aman Hambleton ađ velli og tryggđi veru sína á verđlaunapalli.
Stemmning var almennt mjög góđ og menn höfđu gaman ađ taflmennskunni. Vert er einnig ađ minnast á góđan árangur Arnljóts Sigurđssonar sem lagđi hvern meistarann á fćtur öđrum.
Úrslit má nálgast á Chess-results
21.4.2017 | 20:53
Fimm enn međ fullt hús
Fimm skákmenn standa enn eftir međ fullt hús eftir fjórđu umferđ á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í kvöld í Hörpu. Hollenska stórstirniđ Anish Giri heldur sínu striki og er í hópi efstu manna ásamt ţeim Gawain Jones, Nils Grandelius, Vidit Santosh Gujrati og sigurvegaranum frá ţví í fyrra, Abhijeet Gupta. Vidit ţessi lagđi einmitt Jóhann Hjartarson ađ velli í snarpri skák ţar sem sá indverskri sá lengra í flćkjunum.
Giri lagđi landa sinn Jorden van Foreest í tćknilegu endatafli ţar sem Giri sýndi af hverju hann er međal fremstu skákmanna í heimi.
Íslandsvinirnir Gawain Jones og Nils Grandelius unnu báđir flott sigra. Gawain er í miklu stuđi en hann vann nýlega feikisterkt opiđ mót í Dubai. Nils vann gríđarlega tćknilegt endatafl međ hrók gegn biksup og peđi ţar sem hann hrakti kóng andstćđings síns yfir borđiđ áđur en hann gat tekiđ peđ hans og vakiđ upp drottningu ţrátt fyrir ađ eiga ađeins kantpeđ eftir. Skák sem er lćrdómsríkt ađ skođa.
Loks er Abhijeet Gupta enn og aftur ađ sýna styrkleika sinn og stefnir á ađ endurtaka leikinn frá ţví í fyrra.
Hannes Hlífar Stefánsson er orđinn eftur Íslendinga međ ţrjá og hálfan vinning og er í stórum hópi skákmanna sem koma í humátt á eftir efstu mönnum. Fjöldi Íslendinga er svo međ ţrjá vinninga.
Fimmta umferđ er á morgun klukkan 15:00 og skákskýrngar hefjast ađ venju klukkan 17:00. Mjög áhugaverđar viđureignir verđa á efstu borđum sem gaman verđur ađ fylgjast međ. Vidit mćtir Giri og Hannes fćr erfiđa skák međ svörtu gegn Jobava.
Bein útsending međ Fionu og Simon Williams
21.4.2017 | 07:00
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ: Dagskrá dagsins - umferđ, fyrirlestrar, hrađskákmót og Friđrik međ skákskýringar
Ţađ er afar mikiđ um ađ vera í dag á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu. Fjórđa umferđ fer fram í dag og hefst kl. 15. Ţess fyrir utan eru tveir fyrirlestrar og deginum lýkur međ hrađskákmótinu "Harpa Blitz" sem ávallt er afskaplega vinsćlt.
Dagurinn hefst međ fyrirlestri Konstantin Landa "Helping talent to shine: My experince in Iran". Mikil skáksprengja hefur átt sér stađ í Íran síđustu ár og urđu Íranar ólympíumeistarar 16 ára og yngri. Landa hefur komiđ ađ ţjálfun Írana. Mjög athyglisverđur fyrirlestur ekki síst fyrir ţá sem áhuga hafa á skákennslu. Fyrirlesturinn hefst kl. 11:30 í Vísu (skákskýringarsalnum). Sjá nánar hér.
Umferđin hefst kl. 15 eins og áđur sagđi. Margar athyglisverđar viđureignir eru í dag og má ţar nefna ađ Jóhann Hjartarson teflir viđ Indverjann sterka Gujrathi Vidit, Ţröstur viđ Armenann Sergei Movsesian,
Skákskýringar hefjast kl. 17 og verđa í umsjón Friđriks Ólafssonar.
Klukkan 20:00 verđur Takis Nikolopoulos, virtasti skákdómari heims, međ fyrirlesturinn "World Champsionship Matches - What happens behind the scenes". Ţar segir hann frá reynslu sinni sem yfirdómari nokkurra heimsmeistaraeinvígja. Fyrirlesturinn fer fram í Vísu (skákskýringarsalnum). Sjá nánar hér.
Kvöldinu lýkur svo međ hrađskákmótinu Harpa Blitz sem hefst kl. 21:30 í Flóa (skáksalnum) í Hörpu. Mótiđ er opiđ fyrir alla 18 ára og eldri. Skráningargjald er 2.000 kr. og skal greiđast međ reiđufé á skákstađ. Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). 80% af ţátttökugjöldunum renna í verđlaun. Nánari upplýsingar má finna hér.
Beinar útsendingar á vefnum hefjast kl. 15. Ţćr eru í umsjón Simon Williams og Fionu Steil-Antoni.
Spil og leikir | Breytt 20.4.2017 kl. 23:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2017 | 22:58
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ - Jóhann efstur ásamt öđrum
Íslandsmeistarinn Jóhann Hjartarson er í hópi 16 skákmanna međ fullt hús vinninga, ţrjá úr ţrem skákum. Nokkrir af efstu mönnum misstu niđur hálfan vinning í seinni umferđ dagsins, ţar á međal hinn georgíski Baadur Jobava og hinn ţekkti Letti Alexei Shirov. Tveir stigahćstu menn mótsins, Anish Giri og Dmitry Andreikin halda sínum dampi og eru jafnir Jóhanni ađ vinningum.
Eitthvađ var um óvćnt úrslit og má nefna ađ Robert Ris alţjóđlegur meistari frá Hollandi lagđi ađ velli gođsögnina Alexander Beliavsky.
Nćstir Íslendinga međ tvo og hálfan vinning eru Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Ţorfinnsson, Ţröstur Ţórhallsson og Áskell Örn Kárason. Fjórđa umferđ fer fram á morgun, föstudag klukkan 15:00 í Hörpu og ţá fara stigahćstu menn mótsins ađ mćtast innbyrđis.
Jóhann mćtir Indverjanum sterka Vidit Santosh Gujrati á međan Giri mćtir landa sínum Jorden van Foreest. Fjöldi Íslendinga verđur á sýningarborđum og hćgt er ađ sjá útsendingar frá ţeim á heimasíđu mótsins undir "Live Games"
Bein útsending međ Fionu og Simon Williams
Spil og leikir | Breytt 21.4.2017 kl. 02:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2017 | 15:07
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ - lítiđ um óvćnt úrslit
Önnur umferđ GAMMA Reykjavíkurskákmótsins fór fram í morgun. Allir sterkustu skákmenn mótsins komust slysalaust í gegnum umferđina og ţví enn gríđarlegur fjöldi skákmanna međ fullt hús vinninga. Mesta athygli vakti skák Anish Giri (2771) viđ Vigni Vatnar Stefánsson (2341), okkar efnilegasta skákmann, en Vignir stóđ sig vel og ţurfti ađ láta Hollendinginn hafa vel fyrir vinningnum en hann hafđist eftir 44 leiki.
Ţađ var ađeins sćnski meistarinn Eric Blomqvist sem tapađi á efstu borđum en hann lá fyrir hollenskum skákmanni. Fjölmargir Íslendingar náđu góđum jafnteflum og t.a.m. náđu nokkrir efnilegir skákmenn góđum úrslitum. Jón Kristinn Ţorgeirsson (2189) gerđi jafntefli viđ Guđmund Kjartansson (2468) og Báđur Örn Birkisson (2146) gerđi jafntefli viđ Ţröst Ţórhalsson (2423). Vert er einnig ađ minnast á gott jafntefli hjá Júlíusi Friđjónssyni gegn bandaríska stórmeistaranum James Tarjan.
Jóhann Hjartarson (2536) er efstur Íslendinga og sá eini sem er međ fullt hús ásamt efstu mönnum međ tvo vinninga. Jóhann vann í dag snarpan sigur í fallegri sóknarskák og er til alls líklegur. Gaman verđur ađ fylgjst međ Jóhanni en hann hefur ekki teflt á Reykjavíkurskákmóti í 21 ár en hefur fćrt taflmennsku ađeins í aukana undanfariđ og varđ m.a. Íslandsmeistari í fyrra.
Leikar taka ađ ćsast í ţriđju umferđinni sem fram fer klukkan fimm í dag en ţetta er eini dagurinn ţar sem keppendur tefla tvćr skákir. Jóhann mćtir indverskri skákkonu í ţriđju umferđinni og eins munu margir fylgjast međ Eugenio Torre, gođsögninni frá Filipseyum, sem mun etja kappi viđ Íslandsvininn Gawain Jones. Áhorfendur eru velkomnir í Hörpu en Helgi Áss Grétarsson mun sjá um skákskýringar frá kukkan 19.
Bein útsending međ Fionu og Simon Williams
20.4.2017 | 07:18
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ: Dagskrá dagsins - tvöfaldur dagur!
Ţađ verđur mikiđ teflt á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu í dag - enda tvöfaldur dagur! Fyrri umferđ dagsins hefst kl. 9 og sú síđari kl. 17. Í fyrri umferđ dagsins er athyglisverđ viđureign á fyrsta borđi ţví Anish Giri (2771) mćtir okkar efnilegasta skákmanni Vigni Vatnari Stefánsson (2341).
Ađrar athyglisverđar viđureignir fyrir okkur Íslendinga má nefna Guđmundur Gíslason (2314) - Zoltan Almasi (2696), Sigurbjörn Björnsson (2279) - Vidit Gurathi (2670), Alexander Beliavsky (2597) - Halldór Grétar Einarsson (2257) og Aljeandro Ramirez (2555) - Lenka Ptácníková (2242).
Ekki verđa skákskýringar viđ fyrri umferđ dagsins en skákskýringar Helga Áss Grétarssonar viđ umferđ 3 hefjast kl. 19. Spennandi verđur ađ heyra hvort ađ matarbókin komi ţar eitthvađ viđ sögu.
Beinar útsendingar á vefnum verđa í bođi í allan dag. Ţćr eru í bođi Simon Williams og Fionu Steil-Antoni.
19.4.2017 | 20:33
Lítiđ um óvćnt úrslit á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hófst í dag í Hörpu ţegar fyrsta umferđ mótsins fór af stađ. Alls eru mćttir til leiks 264 keppendur frá 40 löndum sem er nálćgt metţátttöku. Međal keppenda eru 33 stórmeistarar og stigahćstur keppenda er ofurstórmeistarinn Anish Giri (Hollandi) sem státar af 2771 skákstigi. Giri hefur veriđ fastagestur á elítuskákmótum í langan tíma ţrátt fyrir ađ vera ađeins 22 ára og er talinn í hópi líklegra kandídata til ađ hrifsa krúnuna af Magnus Carlsen.
Styrkleikamunur er venjulega mikill í fyrstu umferđum á opnum skákmótum og lítiđ var um óvćnt úrslit. Verst fór hjá ţeim brćđrum Birni og Braga Ţorfinnssyni en ţeir urđu ađ sćttast á skiptan hlut gegn mun stigalćgri keppendum. Bragi gerđi jafntefli gegn nýbökuđum skákmeistara Norđlendinga, Haraldi Haraldssyni en Björn Ţorfinnsson slapp međ skrekkinn gegn hinni efnilegu Nansý Davíđsdóttur. Hinn ungi Birkir Ísak Jóhannsson náđi einnig jafntefli gegn mun stigahćrri andstćđing en sá fyrsti til ađ leggja stigahćrri andstćđing var Ármann Pétursson (1227) sem lagđi ţýskan andstćđing sinn M.Wecker (2134) í ađeins 11 leikjum međ svörtu mönnunum eftir laglega fléttu.
Tvöföld umferđ verđur tefld á morgun, fimmtudag og hefst sú fyrri klukkan 09:00 en sú seinni 17:00. Mótshald mun standa yfir í Hörpu nćstu daga en mótinu lýkur 27. apríl. Áhorfendur eru velkomnir á mótsstađ en bođiđ verđur upp á skákskýringar í seinni umferđinni og eins er velkomiđ ađ líta viđ í beinar útsendingar sem sendar eru á vefinn en ţeim stýra GM Simon Williams og Fiona Steil-Antoni.
19.4.2017 | 08:16
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ sett kl. 14:30 i Hörpu
Setning GAMMA Reykjavíkurskákmótsins verđur miđvikudaginn 19. apríl 14:30. Allir skákáhugamenn eru velkomnir á setningarathöfn mótsins.
Alţjóđlega Reykjavíkurskákmótiđ nú er ţađ sterkasta og fjölmennasta í 53 ára sögu mótsins. Alls er um 280 keppendur skráđir til leiks frá um 45 löndum. Ţar af eru 35 stórmeistarar og hafa aldrei veriđ fleiri.
Ofurstórmeistararnir
Ofurstórmeistarar eru ţeir taldir sem hafa 2700 skákstig eđa meira. Hollendingurinn Anish Giri, sem hefur 2771 skákstig, er einn besti skákmađur heims og sá stigahćsti sem nokkurn tímann hefur teflt á Reykjavíkurskákmóti í hálfrar aldar sögu mótanna. Georgíumađurinn Baadur Jobava er einn frumlegasti skákmađur heims og vekur taflmennska hans jafnan athygli. Dmitry Andreikin er ţekktur fyrir ađ tefla ávallt til sigurs og vakti kraftmikil taflmennska hans í mótinu í fyrra mikla athygli.
Gođsagnir
Lettinn Alexei Shirov er einn allra skemmtilegast skákmađur heims, ţekktur fyrir sinn leiftrandi stíl, og hefur hefur margoft veriđ líkt landa sinn, Mikhail Tal, sem sigrađi á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu áriđ 1964. Shirov sigrađi á Reykjavíkurskákmótinu 1992 ásamt Jóhanni Hjartarsyni og hefur síđan haldiđ sér í hópi bestu skákmanna heims. Hann er fjórđi í stigaröđ keppenda. Gata Kamsky tefldi síđast á Reykjavíkurskákmótinu 1990. Ţá var hann 15 ára ađ aldri og ţótti undrabarn. Kamsky komst nćstum ţví á topp skákheimsins ţví hann tefldi heimsmeistaraeinvígi viđ Karpov sem hann tapađi.
Eugene Torre hefur löngum veriđ besti skákmađur Filippseyinga. Torre er sá skákmađur, sem teflt hefur á flestum Ólympíuskákmótum allra skákmanna í skáksögunni, eđa alls 22 sinnum. Á Ólympíuskákmótinu í Bakú í fyrra hlaut hann 10 vinninga í 11 skákum og hefur sjaldan veriđ í betra formi.
Óvćntir sigurvegarar tveggja síđustu ára Abijeet Gupta og Erwin L´Ami eru svo ađ sjálfsögđu međal keppenda.
Skákdrottningar
Indverska skákdrottningin Tania Sadchev stal senunni í fyrra međ frábćrri frammistöđu og geislandi framkomu. Hún er fastagestur hér. Landskona hennar Harika Dronavalli tekur einnig ţátt en hún er međal bestu skákkvenna heims.
Međal annarra gesta má nefna hina mongólsku Tuvshintugs Batchimeg en hún verđur ţar međ fyrsti skákmađurinn frá Mongolíu sem teflir á Reykjavíkurskákmótinu.
Einnig má nefna hina írönsku Dorsa Derakhshani sem hefur vakiđ athygli fyrir ţađ ađ neita ađ tefla međ slćđu og hefur gerđ brotrćk úr landsliđi Írans fyrir ţá sök.
Undrabörnin
Ţađ hefur ávallt veriđ lögđ mikil áhersla á ađ fá hingađ til landsins undrabörn. Í áranna rás hafa t.d. Magnus Carlsen, Gata Kamsky, Fabiano Caruana og Hikaru Nakamura, sótt landiđ sem kornungir skákmenn.
Á mótinu nú er vert ađ benda á tvo unga indverska drengi sem báđir eru taldir geta orđiđ međal bestu skákmanna heims - jafnvel heimsmeistarar. Praggnanandhaa Rameshbabu er annar ţeirra. Sá er ađeins 11 ára og sá yngsti í heimi sem náđ hefur titli alţjóđlegs meistara.
Hinn er Nihal Sarin, 12 ára, og er líka alţjóđlegur meistari. Sarin ţessi lagđi Helga Ólafsson t.d. nýlega ađ velli í hrađskák í Moskvu. Ţeir eru báđir talda hafa möguleika á ţví ađ verđa yngsti stórmeistari sögunnar. Nýlega grein má lesa um kappann í Chessbase.
Heimavarnarliđiđ
Nćrri 100 íslenskir skákmenn taka ţátt í mótinu nú og ţar á međal ţrír stórmeistarar. Stigahćstur ţeirra er Hannes Hlífar Stefánsson, sigursćlasti skákmađur í sögu Reykjavíkurskákmótanna. Hannes hefur sigrađ fimm sinnum á mótinu.
Ţađ sćtir tíđindum ađ Jóhann Hjartarson tekur nú ţátt í mótinu nú í fyrsta skipti í 21 ár og er ţađ mikiđ fagnađarefni. Sá ţriđji er svo Ţröstur Ţórhallsson. Sjö íslenskar skákkonur taka ţátt. Fyrir ţeim fer Lenka Ptáncíková, stórmeistari kvenna og margfaldur Íslandsmeistari.
Alţjóđlegu meistararnir Guđmundur Kjartansson, Bragi og Björn Ţorfinnssynir taka ţátt og ţađ gerir einnig Vignir Vatnar Stefánsson, okkar efnilegasti skákmađur.
Íslenska heimavarnarliđiđ er skemmtilegt blanda af atvinnumönnum, áhugamönnum, eldri skákmönnum og ungum ljónum sem eru ađ stíga sín fyrstu skref. Akureyringar fjölmenna á Reykjavíkurskákmótiđ nú og er ţađ gleđilegt og vitnar um skákgrósku norđan heiđa.
Fćreyingar fjölmennir
Um 180 erlendir skákmenn taka ţátt í mótinu og hafa ţeir aldrei veriđ fleiri. Flestir ţeirra koma frá Bandaríkjunum, Indlandi og Kanada. Góđ ţátttaka Fćreyinga vekur athygli en ţeir eru 12 talsins. Fyrir ţeim hópi fer Helgi Dam Ziska, fyrsti stórmeistari okkar góđu frćndţjóđar.
Ekki bara skákmót
Reykjavíkurskákmótiđ er miklu frekar skákhátíđ en skákmót. Efnt er til alls konar sérviđburđa međan mótiđ fer fram. Áđur hefur veriđ minnst á fjöltefli Anish Giri. Međal annarra sérviđburđa má nefna:
Opnunarpartý, fyrirlestur um skákţjálfun, fyrirlestur um ţađ sem gerist bakviđ tjöldin í heimsmeistaraeinvígum, hrađskákmót, barnahrađskákmót, spurningkeppni (pub quiz), fótbolta, gullna hringinn međ viđkomu ađ leiđi Fischers og kotrumót.
Ţesir viđburđir eru opnir gestum og gangandi.
Umferđir hefjast yfirleitt kl. 15. Bođiđ verđur upp á skákskýringar alla daga í Hörpu og hefjast ţćr um tveimur tímum eftir upphaf umferđar eđa um kl. 17. Um skákskýringar sjá okkar fremstu skákmenn af ţeim sem ekki taka ţátt í mótinu ađ ţessu sinni.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 10
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 8778346
Annađ
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar