Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ: Dagskrá dagsins - setning og fyrsta umferđ

Giri Simul GAMMA_byEmelianova_4Y3A9585

Anish Giri fór illa međ andstćđinga sína í fjöltefli gćrdagsins í GAMMA og vann ţá alla tólf ađ tölu eins og sjá má í fréttum Stöđvar 2 og RÚV. Í gćr fór einnig fram afar vel heppnađ opnunarpartý mótsins ţar sem mikill fjölda keppenda og gesta mćttu. Međal annars létu Shirov, Kamsky, Torre og Jobava sjá sig ţar.

GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ verđur sett kl. 14:30 í dag og eru skákáhugamenn hvattir til ađ fjölmenna. Fyrsta umferđ mótsins hefst svo kl. 15:00.

Skákskýringar í umsjón Ágústar Sindra Karlssonar hefjast kl. 17:00 í Hörpu.


GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ: Dagskrá dagsins; Fjöltefli Giri og Opnunarpartý mótsins

Giri og Carlsen

Upphitun fyrir GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst í dag međ tveimur viđburđum. Annars vegar klukkufjöltefli Anish Giri sem fram fer í höfuđstöđvum GAMMA, Garđastrćti 37, og hins vegar opnunarpartý mótsins sem fram fer í Smurstöđinni í Hörpu. Fjöltefliđ hefst kl. 13 og opnunarpartýiđ kl. 18.

FJÖLTEFLI ANISH GIRI

Ofurstórmeistarinn Anish Giri (2771) verđur međ klukkufjöltefli í dag. Međal andstćđinga hans verđur fjármálaráđherrann Benedikt Jóhannesson. Fjöltefliđ fer fram í höfuđstöđvum GAMMA, Garđastrćti 37, og hefst kl. 13:00. Ráđherrann var um skeiđ međal efnilegustu skákmanna landsins áđur en önnur hugđarefni tóku viđ. Friđrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, leikur fyrsta leik fjölteflisins.  

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa engin lömb ađ leika sér viđ. Elstur ţeirra verđur Gunnar Gunnarsson, 83 ára, fyrrum Íslandsmeistari í skák (áriđ 1966) og fótbolta međ Val (áriđ 1956) og landsliđskonurnar Guđlaug Ţorsteinsdóttir og Hrund Hauksdóttir

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa sem hér segir:

  1. Aron Ţór Mai
  2. Benedikt Jóhannesson
  3. Bragi Halldórsson
  4. Gauti Páll Jónsson
  5. Guđlaug Ţorsteinsdóttir
  6. Gunnar Björnsson
  7. Gunnar Kr. Gunnarsson
  8. Haraldur Haraldsson
  9. Hrund Hauksdóttir
  10. Óskar Víkingur Davíđsson
  11. Stephan Briem
  12. Svava Ţorsteinsdóttir

Umhugsunartíminn verđur 45 mínútur á mann.

Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir! 

OPUNARPARTÝ REYKAJVÍKURSKÁKMÓTSINS

Opnunarpartý Reykjavíkurskákmótsins verđur haldiđ í veitingastađnum Smurstöđunni í Hörpu á milli 18 og 20. Ţangađ eru allir velkomnir. Tilvaliđ til ađ hitta keppendur. Nokkrar af stćrstu stjörnum mótsins hafa ţegar bođađ komu sína. 

Sértilbođ verđa í bođi fyrri gesti opnunarpartýsins á Smurstöđinni. 


Áskell Örn bestur á Páskamóti SA

Skáklífiđ á Akureyri hefur veriđ međ fjörugasta móti nú um páskana. Góđ ţátttaka var í Bikarmótinu á skírdag og föstudaginn langa og páskahrađskákmótiđ sem fór fram í dag, annan í páskum var bćđi fjölmennt og góđmennt. Alls mćtti 26 keppendur til leiks og voru tefldar 12 umferđir. Í ţetta sinn var Monrad gamli kallađur til leiks í röđuninni og fórst ţađ vel úr hendi. 

Úrslitin urđu ţessi:

Áskell Örn Kárason10˝
Smári Teitsson9
Jón Kristinn Ţorgeirsson9
Sigurđur Arnarson
Tómas Veigar Sigurđarson
Haraldur Haraldsson
Benedikt Briem7
Magnús Teitsson7
Elsa María Kristínardóttir7
Andri Freyr Björgvinsson
Ólafur Kristjánsson
Smári Ólafsson
Stephan Briem6
Ágúst Ívar Árnason6
Hjörtur Steinbergsson6
Sigurđur Eiríksson6
Karl Egill Steingrímsson6
Haki Jóhannesson6
Fannar Breki Kárason
Arnar Smári Signýjarson5
Heiđar Ólafsson
Hilmir Vilhjálmsson4
Jóel Snćr Davíđsson3
Sigurđur Máni Guđmundsson3
Ingólfur Árni Benediktsson2
Alexía Líf Hilmisdóttir

Ţeir hlutskörpustu fengu páskaegg í verđlaun, bćđi yngri og eldri. Fóru allir sćmilega mettir heim. 


Anish Giri međ klukkufjöltefli á morgun í GAMMA - fjármálaráđherra međal andstćđinga

Anish-Giri-victorious-in-the-longest-game-of-the-day

Ofurstórmeistarinn Anish Giri (2771) verđur međ klukkufjöltefli á morgun. Međal andstćđinga hans verđur fjármálaráđherrann Benedikt Jóhannesson. Fjöltefliđ fer fram í höfuđstöđvum GAMMA, Garđastrćti 37, og hefst kl. 13:00. Ráđherrann var um skeiđ međal efnilegustu skákmanna landsins áđur en önnur hugđarefni tóku viđ. Friđrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, leikur fyrsta leik fjölteflisins.  

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa engin lömb ađ leika sér viđ. Elstur ţeirra verđur Gunnar Gunnarsson, 83 ára, fyrrum Íslandsmeistari í skák (áriđ 1966) og fótbolta međ Val (áriđ 1956) og landsliđskonurnar Guđlaug Ţorsteinsdóttir og Hrund Hauksdóttir

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa sem hér segir:

  1. Benedikt Jóhannesson
  2. Bragi Halldórsson
  3. Gauti Páll Jónsson
  4. Guđlaug Ţorsteinsdóttir
  5. Gunnar Björnsson
  6. Gunnar Kr. Gunnarsson
  7. Haraldur Haraldsson
  8. Hrund Hauksdóttir
  9. Óskar Víkingur Davíđsson
  10. Stephan Briem
  11. Svava Ţorsteinsdóttir

Umhugsunartíminn verđur 45 mínútur á mann.

Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir! 


Birkir Karl endađi í ţriđja sćti

Birkir Karl Sigurđsson (1851) endađi í ţriđja sćti á skákmóti í Ástralíu sem lauk í gćr. Birkir Karl hlaut 5˝ vinning í sjö skákum.

Lokastöđuna má finna á Chess-Results.

Heimasíđa mótsins.


Mads Andersen skákmeistari Danmerkur

Mads_Andersen-edFćreyingar og Danir hafa haldiđ ţeirri venju ađ hafa sín meistaramót um páska. Landsliđsflokki Dananna lauk í gćr. Danski stórmeistarinn Mads Andersen (2565) kom sá og sigrađi og hlaut 7˝ vinning í 9 skákum. Annar varđ Allan Stig Rasmussen (2533) međ 7 vinninga og ţriđji varđ Jesper Söndergard Thybo (2739) međ 5˝ vinning.

Heimasíđa mótsins


Páskamót SA fer fram í dag

Sćlir félagar í lok páskaveislunnar mánudaginn 17 apríl kl 13:00 bjóđum viđ upp á Skákveislu. Páskahrađskáksmótiđ. Nú ríđur á ađ menn láti sig ekki vanta, heldur mćti hressir og kátir eftir páskeggjaátiđ og brenni nokkrum kaloríum viđ skákborđiđ. Ţađ mćttu 17 keppendur á Bikarmótiđ og nú stendur til ađ slá ţá tölu út. Mótiđ er opiđ öllum sem kunna mannganginn.

Sjá nánar á heimasíđu SA.


Helgi Dam skákmeistari Fćreyja

FM2017_top3_landslidsbolkur-1050x525

Helgi Dam Ziska varđ í gćr skákmeistari Fćreyinga. Helgi vann öruggan sigur en hann hlaut 4˝ vinning í 6 skákum. Fjórir skákmenn tóku ţátt í landslisđflokki og tefldu tvöfalda umferđ. Hřgni Egilstoft Nielsen varđ annar međ 3 vinninga og John Rřdgĺrd ţriđji međ 2˝ vinning.

Ţetta er ţriđji meistaratitill Helga en hann hefur ekki teflt svo oft á mótinu. Hann vann mótiđ síđast 2011.

Um 40 skákmenn tóku ţátt í mótinu sem fram fór um páskana. 

Nánar á heimasíđu fćreyska skáksambandsins.

 


GRENKE-mótiđ hófst í gćr - Carlsen međ nýtt útlit

caruana-hou-yifanGRENKE-mótiđ hófst í Karlsruhe í Ţýskalandi í gćr. Átta skákmenn taka ţátt og ţar af bćđi heimsmeistarar karla og kvenna. Carlsen mćtti međ "nýtt útlit" og gerđi jafntefli viđ Ţjóđverjann Matthias Bluebaum (2634) í fyrstu umferđ. Hou Yifan gerđi sér hins vegar lítiđ fyrir og vann Fabiano Caruana (2817) í fyrstu umferđinni. Caruana hefur ekki náđ sér strik undanfariđ og er nú kominn niđur 2800 skákstig á lifandi listanum

magnus-c24

 

Önnur umferđ hefst kl. 13 og ţá teflir Carlsen viđ Levon Aronian (2774). 

GRENKE-mótiđ fer fram í Karlsruhe og Baden Baden dagana 15.-22. apríl. Takmörkuđ umfjöllun verđur um mótiđ á Skák.is vegna árekstur ţess viđ GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ. Áhugasömum er bent á Chess.24

GRENKE-mótiđ í ár varđ til ţess ađ Henrik Carlsen, fađir heimsmeistarans, getur ađ ţessu sinni ekki tekiđ ţátt í Reykjavíkurskákmótinu ţar sem hann fylgir syni sínum á flest mót. Hann lofar hins vegar komu sinni ađ ári!

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Guđmundur Gíslason efstur í áskorendaflokki Íslandsmótsins

GPS114AK4Í keppni áskorendaflokks Skákţings Íslands sem fram fer í Stúkunni á Kópavogsvelli ţar sem keppt er um tvö sćti í landsliđsflokki hefur Ísfirđingurinn Guđmundur Gíslason unniđ allar skákir sínar og er 1 ˝ vinningi á undan Jóhanni Ingvasyni og Lenku Ptacnikovu sem eru međ 3 ˝ vinning. Međ ţrjá vinninga eru nokkrir, ţ.ám. Jón Kristinsson, eini keppandinn sem orđiđ hefur Íslandsmeistari en ţađ gerđist árin 1971 og aftur 1974. 

Óvćnt úrslit á bandaríska meistaramótinu

Spćnski leikurinn er eins og margir vita nefndur eftir spćnskum presti, Ruy Lopez. Hann var samfara miklum breytingum sem urđu á iđkun skákar ţegar styrkur drottningarinnar var aukinn á skákborđinu en breytingin er rakin til hylli Ísabellu Spánardrottningar sem eins og sagan greinir frá greiddi götu Kristófers Kólumbus. Eftir níu algengustu leiki ţess spćnska á svartur marga valkosti og einn ţeirra sem virkar svolítiđ skringilega er afbrigđi Ungverjans Breyer og byggist á ţví ađ riddara er leikiđ upp í borđ. 

Vinur okkar Boris Spasskí, sem varđ áttrćđur 30. janúar sl., tefldi Breyer-afbrigđiđ af slíkum ţokka ađ unun var á ađ horfa. En ţar kom ađ hann tapađi; í 10. einvígisskák gegn Fischer í Laugardalshöllinni um verslunarmannahelgina 1972 og aftur 20 árum síđar í fyrstu skák endurkomueinvígis ţeirra í Júgóslavíu. Spasskí lagđi meira til ţróunar afbrigđisins međ hvítu en flesta grunar; í áskorendaeinvígi sem hann háđi viđ Lajos Portisch áriđ 1977 vann hann lykilskák međ slíkum glćsibrag ađ mótspyrna Ungverjans hrundi. Á bandaríska meistaramótinu í St. Louis kom eiginlega „systurskák“ ţessarar viđureignar. Wesley So heldur naumri forystu en stórskytturnar Hikaru Nakamura og Fabiano Caruana hafa átt í basli og sá síđarnefndi missti sennilega af lestinni í keppni um efsta sćtiđ ţegar hann tapađi í 7. umferđ fyrir lítt ţekktum Úkraínumanni sem náđi viđ ţađ efsta sćti ásamt So. Stađan á toppnum:

1. – 2. So og Zherebukh 4 ˝ v. (af 7) 3. – 4. Akobian og Nakamura 4 v. 5. – 9. Robson, Caruana, Shankland, Naroditsky og Onischuk 3 ˝ v. Keppendur eru 12 talsins.

Bandaríska meistaramótiđ 2017:

Zherebukh – Caruana

Spćnskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14. Rg3 g6 15. a4 c5 16. d5 c4 17. Bg5 h6 18. Be3 Rc5 19. Dd2 h5 20. Bg5 Bg7 21. Hf1 Dc7

Allt saman ţekkt en drottningin gćti veriđ betur geymd á e7 til ađ eiga f8-reitinn.

22. Bh6 Bh8 23. Rg5 Rh7 24. Rxh7 Kxh7 25. Be3 De7 26. f4!

Ţessi framrás reynir á burđarveggi kóngsstöđunnar en riddarinn fćr e5-reitinn.

26. ... exf4 27. Bxf4 Kg8 28. Hf3 Bg7 29. Haf1 Rd7 30. Bh6 Bxh6 31. Dxh6 Df8 32. Dd2 Re5 33. Hf6 Had8 34. Dg5 Dg7 35. Bd1! Bc8 36. Dh4 Kf8 37. Df4 Dg8 38. Kh1 He7 

GPS114AK839. Bxh5!

Ţessi biskup sem stundum rekst á eigin peđ í spćnska leiknum tekur nú til óspilltra málanna. Ţađ er ekki hollt ađ taka hann: 39. ... gxh5 40. Rxh5 og „Houdini“ segir mér ađ svarta stađan sé óverjandi.

39. ... bxa4 40. Bd1 Dg7 41. Bxa4 Dh7 42. Dg5 a5 43. Kg1 Dh8 44. H1f4 Dg7 45. Hh4 Rd3 46. Hh6 Re5 47. Hf4 Bd7 48. Dh4! Kg8 49. Dxe7 He8 50. Dg5 Bxa4 51. Hf6

- og svartur gafst upp.

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 8. apríl 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 8778342

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband