Fćrsluflokkur: Spil og leikir
15.4.2017 | 14:55
GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst á miđvikudag - Giri teflir viđ fjármálaráđherra á ţriđjudaginn
Upphitun fyrir Reykjavíkurmótsveislan hefst í höfuđstöđvum GAMMA, ţriđjudaginn 18. apríl nk. kl. 13:00. Ţá teflir ofurstórmeistarinn Anish Giri, helsta stjarna Reykjavíkurskákmótsins, klukkufjöltefli viđ 10-12 skákmenn. Međal andstćđinga hans ţar verđur fjármálaráđherrann Benedikt Jóhannesson en ráđherrann var um skeiđ međal efnilegustu skákmanna landsins áđur en önnur hugđarefni tóku viđ. Friđrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, mun vera viđstaddur og leika fyrsta leik fjölteflisins. Upphitunin heldur áfram kl. 18 ţegar opnunarpartý mótsins verđur haldin í Smurstöđunni í Hörpu. Ţangađ eru allir keppendur og skákáhugamenn velkomnir.
Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa engin lömb ađ leika sér viđ. Elstur ţeirra verđur Gunnar Gunnarsson, 83 ára, fyrrum Íslandsmeistari í skák (áriđ 1966) og fótbolta međ Val (áriđ 1956). Ţá munu landsliđskonurnar Guđlaugu Ţorsteinsdóttur og Nansý Davíđsdóttur međal annars etja kappi viđ Giri.
Fjöltefliđ verđur forsmekkurinn ađ sjálfu Alţjóđlega Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer í Hörpu 19.-27. apríl. Mótiđ verđur hiđ sterkasta og fjölmennasta í 53 ára sögu ţess.
Alls eru um 280 skákmenn skráđir til leiks frá um 45 löndum. Ţar af eru 35 stórmeistarar og hafa ţeir aldrei veriđ fleiri.
Ofurstórmeistararnir
Ofurstórmeistarar eru ţeir taldir sem hafa 2700 skákstig eđa meira. Áđurnefndur Anish Giri, sem hefur 2771 skákstig, er einn besti skákmađur heims og sá stigahćsti sem nokkurn tímann hefur teflt á Reykjavíkurskákmóti í hálfrar aldar sögu mótanna.
Georgíumađurinn Baadur Jobava er einn frumlegasti skákmađur heims og vekur taflmennska hans jafnan athygli.
Dmitry Andreikin er ţekktur fyrir ađ tefla ávallt til sigurs og vakti kraftmikil taflmennska hans í mótinu í fyrra mikla athygli.
Gođsagnir
Lettinn Alexei Shirov er einn allra skemmtilegast skákmađur heims, ţekktur fyrir sinn leiftrandi stíl, og hefur hefur margoft veriđ líkt landa sinn, Mikhail Tal, sem sigrađi á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu áriđ 1964. Shirov sigrađi á Reykjavíkurskákmótinu 1992 ásamt Jóhanni Hjartarsyni og hefur síđan haldiđ sér í hópi bestu skákmanna heims. Hann er fjórđi í stigaröđ keppenda.
Gata Kamsky tefldi síđast á Reykjavíkurskákmótinu 1990. Ţá var hann 15 ára ađ aldri og ţótti undrabarn. Kamsky komst nćstum ţví á topp skákheimsins ţví hann tefldi heimsmeistaraeinvígi viđ Karpov sem hann tapađi.
Eugene Torre hefur löngum veriđ besti skákmađur Filippseyinga. Torre er sá skákmađur, sem teflt hefur á flestum Ólympíuskákmótum allra skákmanna í skáksögunni, eđa alls 22 sinnum. Á Ólympíuskákmótinu í Bakú í fyrra hlaut hann 10 vinninga í 11 skákum og hefur sjaldan veriđ í betra formi.
Óvćntir sigurvegarar tveggja síđustu ára Abijeet Gupta og Erwin L´Ami eru svo ađ sjálfsögđu međal keppenda.
Skákdrottningar
Indverska skákdrottningin Tania Sadchev stal senunni í fyrra međ frábćrri frammistöđu og geislandi framkomu. Hún er fastagestur hér. Landskona hennar Harika Dronavalli tekur einnig ţátt en hún er međal bestu skákkvenna heims.
Međal annarra gesta má nefna hina mongólsku Tuvshintugs Batchimeg en hún verđur ţar međ fyrsti skákmađurinn frá Mongolíu sem teflir á Reykjavíkurskákmótinu.
Einnig má nefna hina írönsku Dorsa Derakhshani sem hefur vakiđ athygli fyrir ţađ ađ neita ađ tefla međ slćđu og hefur gerđ brotrćk úr landsliđi Írans fyrir ţá sök.
Undrabörnin
Ţađ hefur ávallt veriđ lögđ mikil áhersla á ađ fá hingađ til landsins undrabörn. Í áranna rás hafa t.d. Magnus Carlsen, Gata Kamsky, Fabiano Caruana og Hikaru Nakamura, sótt landiđ sem kornungir skákmenn.
Á mótinu nú er vert ađ benda á tvo unga indverska drengi sem báđir eru taldir geta orđiđ međal bestu skákmanna heims - jafnvel heimsmeistarar. Praggnanandhaa Rameshbabu er annar ţeirra. Sá er ađeins 11 ára og sá yngsti í heimi sem náđ hefur titli alţjóđlegs meistara.
Hinn er Nihal Sarin, 12 ára, og er líka alţjóđlegur meistari. Sarin ţessi lagđi Helga Ólafsson t.d. nýlega ađ velli í hrađskák í Moskvu. Ţeir eru báđir talda hafa möguleika á ţví ađ verđa yngsti stórmeistari sögunnar. Nýlega grein má lesa um kappann í Chessbase. Hann er ţessa stundina ađ tefla í Fagranesi í Noregi og er ađ gera ţar mjög góđa hluti.
Heimavarnarliđiđ
Nćrri 100 íslenskir skákmenn taka ţátt í mótinu nú og ţar á međal ţrír stórmeistarar. Stigahćstur ţeirra er Hannes Hlífar Stefánsson, sigursćlasti skákmađur í sögu Reykjavíkurskákmótanna. Hannes hefur sigrađ fimm sinnum á mótinu.
Ţađ sćtir tíđindum ađ Jóhann Hjartarson tekur nú ţátt í mótinu nú í fyrsta skipti í 21 ár og er ţađ mikiđ fagnađarefni. Sá ţriđji er svo Ţröstur Ţórhallsson. Sjö íslenskar skákkonur taka ţátt. Fyrir ţeim fer Lenka Ptáncíková, stórmeistari kvenna og margfaldur Íslandsmeistari.
Alţjóđulegu meistararnir Guđmundur Kjartansson, Bragi og Björn Ţorfinnssynir taka ţátt og ţađ gerir einnig Vignir Vatnar Stefánsson, okkar efnilegasti skákmađur.
Íslenska heimavarnarliđiđ er skemmtilegt blanda af atvinnumönnum, áhugamönnum, eldri skákmönnum og ungum ljónum sem eru ađ stíga sín fyrstu skref. Akureyringar fjölmenna á Reykjavíkurskákmótiđ nú og er ţađ gleđilegt og vitnar um skákgrósku norđan heiđa.
Fćreyingar fjölmennir
Um 180 erlendir skákmenn taka ţátt í mótinu og hafa ţeir aldrei veriđ fleiri. Flestir ţeirra koma frá Bandaríkjunum, Indlandi og Kanada. Góđ ţátttaka Fćreyinga vekur athygli en ţeir eru 12 talsins. Fyrir ţeim hópi fer Helgi Dam Ziska, fyrsti stórmeistari okkar góđu frćndţjóđar.
Ekki bara skákmót
Reykjavíkurskákmótiđ er miklu frekar skákhátíđ en skákmót. Efnt er til alls konar sérviđburđa međan mótiđ fer fram. Áđur hefur veriđ minnst á fjöltefli Anish Giri. Međal annarra sérviđburđa má nefna:
Opnunarpartý, fyrirlestur um skákţjálfun, fyrirlestur um ţađ sem gerist bakviđ tjöldin í heimsmeistaraeinvígum, hrađskákmót, barnahrađskákmót, spurningkeppni (pub quiz), fótbolta, gullna hringinn međ viđkomu viđ leiđi Fischers og kotrumót.
Ţesir viđburđir eru opnir gestum og gangandi.
Umferđir hefjast yfirleitt kl. 15. Bođiđ verđur upp á skákskýringar alla daga í Hörpu og hefjast ţćr um tveimur tímum eftir upphaf umferđar eđa um kl. 17. Um skákskýringar sjá okkar fremstu skákmenn af ţeim sem ekki taka ţátt í mótinu ađ ţessu sinni.
Beinar útsendingar á netinu verđa í umsjón Simon William og Fionu Antoni-Steil.
Ítarlegur fréttaflutningur frá mótinu verđur alla daga á www.skak.is.
15.4.2017 | 08:48
Páskamót SA fer fram á mánudaginn
Sćlir félagar í lok páskaveislunnar mánudaginn 17 apríl kl 13:00 bjóđum viđ upp á Skákveislu. Páskahrađskáksmótiđ. Nú ríđur á ađ menn láti sig ekki vanta, heldur mćti hressir og kátir eftir páskeggjaátiđ og brenni nokkrum kaloríum viđ skákborđiđ. Ţađ mćttu 17 keppendur á Bikarmótiđ og nú stendur til ađ slá ţá tölu út. Mótiđ er opiđ öllum sem kunna mannganginn.
Sjá nánar á heimasíđu SA.
14.4.2017 | 17:12
Áskell tapađi fćstum á Bikarmótinu
Ţegar Bikarmótinu var fram haldiđ í dag, föstudaginn langa, kom fram tillaga um ađ lengja skákirnar. Skákstjóri lagđist ţó gegn ţví og sćttust keppendur ađ tefla enn 15 mínútna skákir, ţótt dagurinn vćri langur. Eins og vera ber fćkkađi keppendum smám saman ţegar á leiđ og eftir níundu umferđ voru einungis ţrír eftir. Ólafur Kristjánsson gekk svo af skaptinu eftir tap fyrir Jóni Kristni og settust ţá ađ tafli Jón og Áskell, einir eftir. Var Jón međ tvö töp (fyrir Sigurđum A og E), en Áskell međ eitt og hálft (fyrir Jóni sjálfum og hálft gegn Eymundi). Skákina vann Jón eftir nokkrar sviptingar og nćgđi nú jafntefli í síđustu skák mótsins. Hann fékk ţó snemma lakara tafl og mátti ađ lokum játa sig sigrađan. Ţar međ var hann kominn í ţrjú töp, en Áskell hékk í tveimur og hálfu og fćr nafn sitt á bikarinn ađ launum. Lauk mótinu í tólftu umferđ og ţótti á allan máta vel heppnađ. Ţó má vera ađ reglum verđi breytt lítillega til ađ minnka hćttuna á ađ sami keppandi sitji yfir fleiri en eina umferđ í röđ, eins og gerđist nú í dag.
Sjá nánar á heimasíđu SA.
14.4.2017 | 07:59
Bráđfjörugt Bikarmót SA
Hiđ árlega Bikarmót Skákfélagsins hófst í gćr, skírdag. 17 keppendur mćttu til leiks. Mótiđ er útsláttarkeppni og falla menn út eftir ţrjú töp. Nokkuđ er fariđ ađ saxast á keppendahópinn, en ţó voru enn tíu eftir ţegar upp var stađiđ eftir sex umferđir í gćr. Tefldar eru 15 mínútna skákir.
Mótinu verđur framhaldiđ í dag, föstudaginn langa kl. 13. Í sjöundu umferđ eigast ţessi viđ (tapađar skákir í sviga):
- Benedikt Briem(2,5)-Ólafur Kristjánsson(2)
- Óskar Long(2,5)-Áskell Örn Kárason(1,5)
- Eymundur Eymundsson(1,5)-Sigurđur Arnarson(2)
- Ulker Gasanova(2,5)-Jón Kristinn Ţorgeirsson(1)
- Haki Jóhannesson(2,5)-Haraldur Haraldsson(1,5)
Fyrirkomulag mótsins er óvenjulegt, međ útsláttarfyrirkomulagi eins og lýst er hér ađ framan. Dregiđ er í hverja umferđ og geta sömu keppendur ţví mćst oft og ţessvegna haft sama litinn margar skákir í röđ. Ţađ heyrđi til sérstakra tíđinda í gćr ađ ţeir Óskar Long Einarsson og Stephan Briem drógust saman í fjórum fyrstu umferđunum. Óskar vann ţrjár skákir af fjórum, ţannig ađ Stephan fékk ekki fleiri andstćđina á mótunu. Líkindurekingssérfrćđingur Skákfélagsins telur ađ líkurnar á ađ ţetta gerist hafi veriđ a.mk. 1:70000. Fleiri keppendur rákust ítrekađ hver á annan, en allt setti ţetta skemmtilegan brag á mótiđ, sem vćntnalega lýkur á morgun.
Sjá nánar á heimasíđu SA.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2017 | 11:41
Helgi Áss er hrađskákmeistari öđlinga 2017
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson bar sigur úr býtum á Hrađskákmóti öđlinga sem fór fram í gćrkveld en hann lauk keppni međ fullt hús vinninga í skákunum sjö. Helgi er ţví hrađskákmeistari öđlinga á jómfrúarári sínu sem háttvirtur öđlingur. Fide-meistarinn Ingvar Ţór Jóhannesson koma annar í mark međ 5,5 vinning en Ingvar er sömuleiđis á sínu fyrsta ári í Öđlingamótunum. Jafnir í 3.-5. sćti međ 4,5 vinning urđu Bragi Halldórsson, Arnaldur Loftsson og Ţór Valtýsson ţar sem Bragi hlaut 3. sćtiđ ađ loknum stigaútreikningi.
Ađ móti loknu fór einnig fram verđlaunaafhending fyrir skákmót öđlinga sem lauk á dögunum. Ţar urđu efstir og jafnir međ 6 vinninga Björgvin Víglundsson og Ingvar Ţór ţar sem Björgvin varđ ofar á stigum. Ţorvarđur F. Ólafsson varđ ţriđji međ 5,5 vinning. Björgvin er aukinheldur Íslandsmeistari skákmanna 50 ára og eldri en öđlingamótiđ var einnig Íslandsmót ţess aldurshóps í ár.
- Chess-Results (Öđlingamót)
- Chess-Results (Hrađskákmót)
- Umfjöllun um Skákmót öđlinga
Nánar á heimasíđu TR.
13.4.2017 | 07:44
Óskar Víkingur sigrađi á páskaeggjamóti Hugins
Páskaeggjamót Hugins í Mjódd fór fram í 25 sinn síđastliđinn mánudag 10.apríl. Keppendur voru 49 sem gerir mótiđ eitt af ţeim best sóttu. Ađ ţessu sinni var umhugsunartíminn 5 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik í stađ 7 mínútna umhugsunartíma eins og veriđ hefur hingađ til en umferđirnar voru sjö eins og áđur.
Ţađ var djús og vatn fyrir keppendur en heitt á könnunni fyrir foreldra og var glatt á hjalla allan tímann, Eins og og oft áđur fengust afgerandi úrslit ţví í ţetta sinn sigrađi Óskar Víkingur Davíđsson örugglega á mótinu međ ţví ađ vinna alla sjö andstćđinga sína nokkuđ örugglega. Ţótt Óskar hafi áđur unniđ til verđlauna á mótinu er ţetta hans fyrsti sigur og aldrei ađ vita nema ţeir verđi fleiri síđar. Ţađ var jöfn barátta um nćstu sćti og ţar gerđu margir tilkall til verđlauna en ţegar upp var stađiđ var Gunnar Erik Guđmundsson einn í öđru sćti međ 6v. Hann tefldi vel á mótinu og tapađi ađeins fyrir Óskari. Ţar sem Gunnar Erik var sá eini ţeirra sem var međ 5v fyrir lokaumferđina, sem náđi sér í vinning í síđustu umferđinni voru margir jafnir međ 5v í lokin eđa samtals 10 skákmenn. Af ţeim var Magnús Hjaltason efstur á stigum og hlaut hann ţriđja sćtiđ.
Veitt voru verđlaun í fjórum flokkum. Ţremur aldursflokkum. Ţrír efstu keppendur komu úr flokki ţeirra sem fćddir voru 2005 2008 en ţađ voru eins og fram hefur komiđ Óskar Víkingur Davíđsson, Gunnar Erik Guđmundsson og Magnús Hjaltason. Í elsta aldursflokkum ţeirra sem fćdd voru 2001-2004 voru efst ţau Karl Anderson Claesson, Rakel Tinna Gunnarsdóttir og Steindór Sólon Arnarson.
Í flokki ţeirra sem fćdd voru 2009 og síđar hlutu verđlaun ţeir Einar Dagur Brynjarsson, Egill Breki Pálsson og Gunnar Freyr Valsson.
Stúlknaverđlaun fengu Iđunn Helgadóttir, Batel Goitom Haile og Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir. Ţćr tefldu á efstu borđum allt mótiđ og stóđu sig mjög vel og gáfu strákunum ekkert eftir.
Auk ţess fékk efsti keppandi í hverjum aldursflokki páskaegg í verđlaun. Ef sá efsti hafđi unniđ páskaegg í ađalverđlaun fékk sá nćsti í aldursflokknum páskaeggiđ.
Í lokin voru sjö páskaegg dregin út og duttu ţar í lukkupottinn ţau Árni Ólafsson, Kiril Alexander Igorson, Alfređ Dossing, Arnór Gunnlaugsson, Adam Omarsson, Víkingur Eldon Arnarson og Bergţór Helga Gunnarsdóttir. Ţau sem ekki hlutu verđlaun á mótinu voru svo leyst út međ páskaeggi nr. 3 ţannig ađ allir fóru ánćgđir heim. Mótsstjórar voru Alec Elías Sigurđarson, Erla Hlín Hjálmarsdóttir og Vigfús Ó. Vigfússon.
Eftirtaldir hlutu verđlaun á páskaeggjamótinu:
Flokkur 2001-2004:
- Karl Anderson Claesson, 4v
- Rakel Tinna Gunnarsdóttir, 3,5v
- Steindór Sólon Arnarson, 3v
Flokkur 2005-2008:
- Óskar Víkingur Davíđsson, 7v
- Gunnar Erik Guđmundsson, 6v
- Magnús Hjaltason, 5v
Flokkur 2009 og yngri
- Einar Dagur Brynjarsson, 4v
- Egill Breki Pálsson, 4v
- Gunnar Freyr Valsson, 4v
Stúlkur:
- Iđunn Helgadóttir, 5v
- Batel Goitom Haile, 5v
- Ylfa Ýr Welding Hákonardótttir, 4v
Árgangaverđlaun:
- Árgangur 2011: Jósef Omarsson
- Árgangur 2010: Leon Bjartur Sólar Arngrímsson
- Árgangur 2009: Bjartur Ţórisson (Einar Dagur Brynjarsson)
- Árgangur 2008: Soffía Arndís Berndsen
- Árgangur 2007: Rayan Sharifa (Gunnar Erik Guđmundsson)
- Árgangur 2006: Stefán Orri Davíđsson
- Árgangur 2005: Anton Breki Óskarsson (Óskar Víkingur Davíđsson)
- Árgangur 2004: (Steindór Sólon Arnarson)
- Árgangur 2003: Tinna Chloé Kjartansdóttir (Rakel Tinna Gunnarsdóttir)
- Árgangur 2002: Sigurđur Arnar Garđarsson
- Árgangur 2001: (Karl Anderson Claesson)
Gert verđur hlé á barna- og unglingaćfingum fram yfir páskahátíđina. Nćsta ćfing verđur mánudaginn 24. apríl og hefst kl. 17.15. Ćfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengiđ er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á ţriđju hćđ.
Nánar á heimasíđu Hugins.
12.4.2017 | 08:56
Páskamót KR - Dagur Ragnarsson vann međ fullu húsi
Hinn ungi og örtvaxandi skákmeistari Dagur Ragnarsson gerđi sér lítiđ fyrir og vann Stóra-Páskamót KR međ fullu húsi eđa 13 vinningum af 13 mögulegum. Vart er hćgt ađ gera betur og ţar međ skaut hann 22 öđrum ţátttakendum ref fyrir rass međ sannfćrandi hćtti. Tómas Björnsson varđ annar međ 10.5 v.; Gunnar Freyr Rúnarsson ţriđji međ10 v. og Gauti Páll Jónsson fjórđi međ 9.5 v. en eftir ţađ fór ađ teygjast úr lestinni.
Svava Ţorsteinsdóttir varđ efst kvenna en Björgvin Kristbergsson rak lestina og fékk páskaegg í sárabćtur. Fleiri voru leystir út međ ţeim hćtti eđa duttu í lukkupottinn. Skákdeildin ţakkar gestum og félögum sínum ţátttökuna. Teflt er í KR ölll mánudagskvöld kl. 19.30 og á laugardagsmorgnum kl. 10.30. Veri gestir velkomnir.
Međf. er myndskeiđ frá mótinu frá hendi GRK
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2017 | 07:00
Hrađskákmót öđlinga fer fram í kvöld
Hrađskákmót öđlinga fer fram miđvikudaginn 12. apríl í félagsheimili TR ađ Faxafeni 12. Mótiđ hefst kl. 19.30 og er opiđ fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik (umferđum kann ađ vera fjölgađ í níu ef nćg ţátttaka verđur). Í lok mótsins fer fram verđlaunaafhending fyrir Hrađskákmótiđ sem og Skákmót öđlinga sem lauk fyrir skemmstu.
Ţátttökugjald er kr. 1.000 og er í ţví innifaliđ ilmandi nýtt kaffi. Greiđa skal međ reiđufé viđ upphaf móts.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra (Fide) hrađskákstiga.
Núverandi Hrađskákmeistari öđlinga er Róbert Lagerman.
Skákmenn 40+ eru hvattir til ađ fjölmenna!
Skráning fer fram hér ađ neđan.
Skráningarform
Spil og leikir | Breytt 5.4.2017 kl. 09:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2017 | 10:47
Kirsan Ilyumzhinov enn forseti FIDE en nánast valdalaus
Stjórnarfundur var haldinn hjá FIDE í Aţenu í gćr. Niđurstađa ţess fundar var sú ađ Kirsan Ilyumzhinov heldur stöđu sinni sem forseti FIDE. Völd hans hafa hins vegar enn veriđ minnkuđ og eru í raun og veru nú engin. Öll raunverulegu völd eru í hendi varaforsetans Georgios Makropoulos.
Niđurstöđu fundar FIDE má finna á heimasíđu sambandsins.
Stađa Kirsan er ekki góđ. Orđrómur er um ađ hann vilji bjóđa sig aftur fram en međ á međan hann lista Bandaríkjamanna yfir óćskilega menn vegna tenglsa hans viđ Sýrland er stađa hans vonlaus.
Sögur segja ađ möguleika munu Karpov og Kasparov takast á um forsetastól FIDE. Hér áđur fyrr hafđi Kasparov yfirleitt ávallt betur í einvígum ţeirra en ţau einvígi fóru fram viđ skákborđiđ.
Ítarlega umfjöllun um stöđuna í FIDE má finna á Chess.com.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2017 | 10:05
Wesley So og Sabina Foisor skákmeistarar Bandaríkjanna
Bandaríska meistaramótinu í skák lauk í gćr međ sigri Wesley So. Hann fyrsti meistaratitilinn en Wesley So er fćddur í Filippseyjum en tók upp bandarískan ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum. Wesley So varđ ásamt á mótinu ásamt Alexander Onichuk (2667) en ţeir hlutu 7 vinninga í 11 skákum. Frammistađa ţess síđarnefnda vekur nokkra athygli enda sló hann ţarna viđ Fabiano Caurana og Nikaru Nikamura sem urđu í 3.-5. sćti međ 6˝ vinning.
Bandaríkjamenn nota sama kerfi og viđ Íslendingar og láta tefla til úrslita međ styttri tímamörkum séu menn jafnir í efsta sćti. Ţar hafđi So betur í tveimur atskákum 1˝-˝ og ţví skákmeistari Bandaríkjamanna í fyrsta skipti.
Lokastađan (inniheldur aukakeppni)
Ekki ţurfti aukakeppni í kvennaflokki. Ţar vann Sabina Foisor sigur. Sabina ţessi tók ţátt í Reykjavíkurskákmótinu áriđ 2015.
Nánar um mótiđ á Chess24.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778337
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar