Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Páskaeggjasyrpan: Háspenna og dramatík á ţriđja mótinu

20170409_155024

Ţriđja og síđasta mótiđ í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur fór fram í gćr og var ţađ fjölmennasta mótiđ til ţessa. Toppbarátta beggja flokka var ćsispennandi og réđust úrslit ekki fyrr en í lokaumferđinni. Einnig skapađist mikil spenna yfir ţví hver myndi hljóta flesta vinninga samanlagt í mótunum ţremur. Sú spenna komst ţó ekki í hálfkvisti viđ spennuna sem myndađist vegna allra páskaeggjanna sem biđu í gulu kössunum á kantinum eftir ađ komast í hendur verđandi eigenda sinna. Spurningum um stćrđ eggjanna, uppruna og innihald rigndi yfir skákstjórana svo minnti um tíma á hrađaspurningar í Gettu Betur.

Í yngri flokki hóf Anna Katarina Thoroddsen mótiđ af miklum krafti og gerđi sér lítiđ fyrir og vann fyrstu sex skákir sínar. Hennar helsti keppinautur, Einar Tryggvi Petersen, lenti í vandrćđum í 4.umferđ ţar sem hann varđ ađ játa sig sigrađan gegn Einari Degi Brynjarssyni. Einar Tryggvi hafđi halađ inn 5 vinninga ţegar hann mćtti taplausri Önnu Katarinu í síđustu umferđ. Ţar hafđi Einar Tryggvi betur og náđi ţar međ Önnu Katarinu ađ vinningum og skaust upp fyrir hana á stigum. Einar Tryggvi tryggđi sér ţví sigur í mótinu og Anna Katarina varđ í 2.sćti. Í 3.sćti lenti hinn ungi og efnilegi Leon Bjartur Sólar Arngrímsson en hann nćldi sér í 5 vinninga og tapađi einungis fyrir Einari Tryggva og Önnu Katarinu. Jöfn honum ađ vinningum voru Einar Dagur Brynjarsson, Soffía Berndsen, Bjartur Ţórisson og Katrín María Jónsdóttir, en öll voru ţau lćgri en Leon Bjartur á stigum. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Soffíu Berndsen.

Katarina og Bjartur Ţórisson voru í toppbaráttu allra mótanna ţriggja og ţau röđuđu sér í ţrjú efstu sćtin í keppninni um samanlagđan vinningafjölda. Einar Tryggvi varđ hlutskarpastur međ 19 vinninga, Anna Katarina hlaut 17 vinninga og Bjartur Ţórisson varđ ţriđji međ 16,5 vinning. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Soffíu Berndsen en hún fékk alls 14 vinninga í mótunum ţremur.

20170409_155314

Í eldri flokki var ekki međ nokkru móti hćgt ađ sjá fyrir efstu sćtin fyrr en síđasta klukkan hafđi veriđ stöđvuđ. Benedikt Ţórisson, sem daginn áđur hafđi tryggt sér sćti í úrslitum í Barna Blitz hrađskákmótinu, hélt áfram ađ ná góđum úrslitum og vann međal annarra Ísak Orra Karlsson og Örn Alexandersson. Benedikt var efstur ásamt Gunnari Erik Guđmundssyni fyrir síđustu umferđ ţar sem ţeir mćttust í úrslitaviđureign. Ţar hafđi Gunnar Erik betur og tryggđi hann sér ţví sigur í mótinu međ 6 vinninga í 7 skákum. Gunnar Erik fór taplaus í gegnum mótiđ og leyfđi ađeins tvö jafntefli, gegn Benedikt Briem og Erni Alexanderssyni. Í 2.sćti varđ Örn Alexandersson međ 5,5 vinning og í 3.sćti, einnig međ 5,5 vinning, var Batel Goitom Haile. Benedikt Ţórisson hafnađi í 4.sćti međ 5 vinninga. Jafnir honum ađ vinningum, en lćgri á stigum, voru ţeir Karl Andersson Claesson og Gabríel Sćr Bjarnţórsson. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Ásthildar Helgadóttur en hún lauk tafli međ 3,5 vinning.

Flesta samanlagđa vinninga í eldri flokki í mótunum ţremur fékk Batel Goitom Haile, alls 17,5 vinningur. Í 2.sćti varđ Gunnar Erik Guđmundsson međ 16 vinninga. Ţriđji varđ Árni Ólafsson međ 14 vinninga. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Iđunnar Helgadóttur sem halađi inn 10 vinninga í mótunum ţremur.

Lukkan var međ Guđrúnu Fanneyju Briem í dag er hún var dregin út í happdrćttinu og hlaut hún ađ launum páskaegg nr.6.

Taflfélag Reykjavíkur ţakkar öllum ţeim fjölmörgu börnum sem lögđu leiđ sína í Faxafeniđ og tóku ţátt í ađ gera Páskaeggjasyrpuna áriđ 2017 ađ ţeim stórskemmtilega og eftirminnilega viđburđi sem raunin varđ. Nói Síríus fćr jafnframt miklar og góđar ţakkir fyrir ánćgjulegt samstarf.

Sjáumst ađ ári liđnu! 

Nánari úrslit og stöđu í yngri flokki má nálgast hér.

Nánari úrslit og stöđu í eldri flokki má nálgast hér.

Nánar á heimasíđu TR.


Stóra páskaeggjamót KR fer fram í kvöld

Páskaeggjamót KR jafnan fjölsótt   - ese

Ţađ er jafnan hart barist á skákmótunum í KR- heimilinu hvort heldur er á mánudagskvöldum eđa árdegismótunum á laugardagsmorgnum.  Ţađ sem af er ári hafa margir frćknir kappar fagnađ ţar glćstum sigrum eđa hafnađ í öđru sćti ella eđa enn neđar. Međal sigursćlla keppenda undanfariđ hafa veriđ Magnús Sigurjónsson, Jón G. Briem, Guđfinnur Kjartansson, Stefán Ţormar, Gunnar Gunnarsson, Bjarni Hjartarson  o.fl. ađ ógleymdum Björgvini Víglundssyni, tvöföldum Íslandsmeistara (bćđi 50+ og 65 ára og eldri) sem gerđi sér lítiđ fyrir og vann kapptefliđ um Friđrikskónginn međ fullu húsi fyrr í vetur. 

Á mánudagskvöldiđ kemur verđur svo haldiđ ţar hiđ árlega Kapp- og Happ páskaeggjamót, ţar sem 3 risa páskaegg frá sćlgćtisgerđinni SAMBÓ verđa í vinning auk fjölda annarra girnilegra nammieggja frá GÓU. Bćđi sigurvegarar í einstökum aldursflokkum karla og kvenna geta gert sér góđar vonir um ađ fara ekki tómhentir heim og eins ţeir sem detta óvćnt í lukkupottinn í mótslok ţegar darrađardansinum lýkur.  

Um er ađ rćđa 7 mínútna 11–13 umferđa alvöru hrađskákmót, eftir keppendafjölda. Ýtt verđur á klukkurnar kl. 19.30 og allir sem taflmanni geta valdiđ hjartanlega velkomnir til ţátttöku.


Páskaeggjamót Hugins fer fram í kvöld

Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 25. sinn mánudaginn 10. apríl 2017, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform er er á skak.is og eru vćntanlegir ţátttakendur beđnir um ađ skrá sig til ađ auđvelda undirbúning mótsins. Mótiđ verđur reiknđ til alţjóđlegra hrađskákstiga.

Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 2001 – 2004) og yngri flokki (fćddir 2005 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.

Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í  Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.


Guđmundur öruggur sigurvegari ţrátt fyrir tap - Dagur fylgir Gumma í landsliđsflokk

IMG_2743

Guđmundur Gíslason (2314) vann öruggan sigur í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lauk í dag í Stúkunni í Kópavogi. Guđmundur tapađi fyrir félaga sínum Halldóri Grétari Einarssyni (2257) en ţađ kom ađ lítilli sök. Guđmundur hlaut 7˝ vinning, vinningi meira en nćsti mađur. Dagur Ragnarsson (2316). Fjölnismađurinn vann Lenku Ptácníková (2242) og fylgir Gumma í landsliđsflokk sem fram fer í Hafnarfirđi 10.-20. maí nk. Jóhann Ingvason (2121), sigurvegarinn frá í fyrra, varđ ţriđji međ 6 vinninga.

Skákstjóri mótsins var Ólafur S. Ásgrímsson. Halldór Grétar Einarsson, formađur Breiđabliks, ađstođađi viđ mótiđ og átti heiđurinn af beinum útsendingum. 

Lokastöđu mótsins má nálgast á Chess-Results. 


Barna Blitz: Róbert Luu og Benedikt Ţórisson komnir áfram

IMG_8871Hún var óvenjuleg Laugardagsćfingin í gćr ţví hún var jafnframt undankeppni í svokölluđu Barna Blitz sem haldiđ er samhliđa Reykjavíkurskákmótinu. Tvö sćti voru í bođi fyrir ţau börn sem eru fćdd áriđ 2004 eđa síđar. Spennan var ţví enn meiri en venjulega á ţessum vel sóttu ćfingum.

Fyrirfram var búist viđ sterkari ţátttakendum en yfirleitt mćta á ţessar ćfingar. Róbert Luu var sá sterkasti ađ ţessu sinni en Róbert stundađi Laugardagsćfinguna grimmt er hann tók sín fyrstu skref í skáklistinni. Róbert hefur síđustu ár náđ langt í Barna Blitz keppninni og var ţví til alls líklegur, enda langstigahćstur keppenda.

IMG_8862

Svo fór ađ Róbert vann mótiđ međ 6 vinninga í 7 skákum. Hann varđ ţó ađ sćtta sig viđ tap gegn Benedikt Ţórissyni er hann uggđi ekki ađ sér í vörninni og gleymdi ađ lofta út fyrir kónginn. Benedikt hefur veriđ á mikilli siglingu ađ undanförnu og ţessi sigur tryggđi honum 2.sćtiđ međ 5,5 vinning. Benedikt fylgir ţví Róberti í úrslit Barna Blitz sem fram fer laugardaginn 22.apríl.

Skákstjóri var Gauti Páll Jónsson.

Nánar á heimasíđu TR.


Ađalfundur Vinaskákfélagsins fer fram 4. maí

Ađalfundur Vinaskákfélagsins verđur haldinn 4 maí 2017 í Vin, Hverfisgötu 47, 101 Reykjavík klukkan 19:30. 

Dagskrá ađalfundar er sem hér segir:

  1. Forseti setur fundinn.
  2. Kosning fundarstjóra.
  3. Skýrsla stjórnar lögđ fram.
  4. Reikningar lagđir fram til samţykktar.

Kaffi hlé!

  1. Lagabreytingar.
  2. Kosning stjórnar.
  3. Önnur mál. 

Stjórnin.

 

 


Ţriđja og síđasta mót Páskaeggjasyrpunnar hefst kl.13 í dag

TRBanner2017_simpleŢriđja og síđasta mót Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ í dag, sunnudaginn 9.apríl. Tafliđ hefst klukkan 13 og er áćtlađ ađ ţví ljúki um klukkan 15:45.

Keppt verđur í tveimur flokkum, 1-3.bekk (og yngri) og 4-10.bekk. Sjö umferđir verđa tefldar međ 5 mínútna umhugsunartíma á mann og bćtast 3 sekúndur viđ tímann eftir hvern leik (5+3). Hrađskákstig verđa reiknuđ. Enginn ólöglegur leikur er leyfđur og ţví tapast skák viđ fyrsta ólöglega leik.

Verđlaunapeningur og páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki. Ţá verđur jafnframt páskaegg í verđlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki. Ađ móti loknu verđur einn ţátttakandi dregin út í happdrćtti og hlýtur sá heppni ađ launum stórt páskaegg. Ţátttakendur geta ađeins fengiđ eitt páskaegg hver í hverju móti Páskaeggjasyrpunnar, ţó er happdrćttisvinningurinn undanskilin ţeirri reglu. Ađ loknu ţriđja og síđasta mótinu verđa veitt stór páskaegg í verđlaun fyrir samanlagđan árangur.

Allir sem taka ţátt í minnst tveimur af ţremur mótum Páskaeggjasyrpunnar fá páskaegg í verđlaun fyrir ţátttökuna og verđa ţau afhent í lok ţriđja mótsins.

Skráning fer fram í gegnum skráningarformiđ hér ađ neđan, en einnig má nálgast ţađ í gula kassanum á skak.is. Birnukaffi verđur opiđ svo engin ţarf ađ tefla međ tóman maga!

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til ađ sjá ykkur á móti númer 3 í Páskaeggjasyrpunni 2017!

Skráningarform

 


Hrađskákmót öđlinga fer fram á miđvikudagskvöld

Hrađskákmót öđlinga fer fram miđvikudaginn 12. apríl í félagsheimili TR ađ Faxafeni 12. Mótiđ hefst kl. 19.30 og er opiđ fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik (umferđum kann ađ vera fjölgađ í níu ef nćg ţátttaka verđur).  Í lok mótsins fer fram verđlaunaafhending fyrir Hrađskákmótiđ sem og Skákmót öđlinga sem lauk fyrir skemmstu.

Ţátttökugjald er kr. 1.000 og er í ţví innifaliđ ilmandi nýtt kaffi. Greiđa skal međ reiđufé viđ upphaf móts.

Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra (Fide) hrađskákstiga.

Núverandi Hrađskákmeistari öđlinga er Róbert Lagerman.

Skákmenn 40+ eru hvattir til ađ fjölmenna!

Skráning fer fram hér ađ neđan.

Skráningarform

Skráđir keppendur


Skákţáttur Morgunblađsins: Wesley So ćtlar ađ verđa heimsmeistari

Ţađ er varla neinum blöđum um ţađ ađ fletta ađ stórveldin međal ţjóđa Asíu eru Kínverjar og Indverjar. En ţađ hefur ekki alltaf veriđ ţannig. Anand ruddi brautina fyrir Indverja á árunum í kringum 1990 en ţá vann hann sér sćti í áskorendakeppninni. Kínverjar tefldu fyrst á ólympíumóti ári 1978 en fram ađ ţeim tíma voru Filippseyingar Asíu-stórveldiđ í skákinni ţökk sé sterkri skákhefđ og Eugenio Torre sem áriđ 1974 varđ fyrsti stórmeistari Asíu og hefur teflt í fleiri ólympíumótum en nokkur annar. Á ţví síđasta sem fram fór í Bakú í Aserbadsjan náđi hann árangri sem lengi verđur í minnum hafđur hann tefldi á 3. borđi fyrir Filppseyinga og hlaut 10 vinninga af 11 mögulegum. Miklar vonir bundu Filippseyingar viđ Torre á uppgangsárunum og sumariđ 1976 vann hann sterkt skákmót í Manila og lagđi ţar sjálfan Karpov heimsmeistara ađ velli. Torre var á ţessum árum fenginn til ađ stjórna sjónvarpsţćtti um skák og tók einnig ađ sér hlutverk í kvikmyndum sem kann ađ hafa leitt hann á brautir fjarri hinni einmanalegu göngu til ćđstu metorđa skáklistarinnar.

„Heitasti“ skákmađurinn í dag er líka frá Filippseyjum; Wesley So hefur opinberlega lýst ţví yfir ađ hann stefni á ađ verđa heimsmeistari. Hann hefur unniđ hvern sigurinn á fćtur öđrum undanfariđ, nú síđast á stórmótunum í London og Wijk aan Zee og er kominn í 2. sćti á stigalista FIDE međ 2822 elo stig. Ţar trónir Magnús Carlsen á toppnum međ međ 2838 elo stig. Munurinn er ekki mikill en áđurnefndur Karpov lýsti ţví nýlega yfir ađ Norđmađurinn bćri enn höfuđ og herđar yfir kollega sína.

Uppgjör ţessarra tveggja eđa einhverskonar reikningskil virđast liggja í loftinu; ţađ spurđist út um daginn ađ í keppni á netinu sem kallast Pro chess league myndu ţeir mćtast í skák međ tímamörkunum 15 2. So tefldi fyrir sveit sem nefnist Erkibiskupar St. Louis en Magnús var í brúnni fyrir Norsku dvergana. Ţeir fyrrnefndu unnu 9:7 ţó ađ Magnús hafi unniđ allar fjórar skákir sínar ţ. ám. So. Í skákinni sem hér fer á eftir tókst norska heimsmeistaranum ađ ţröngva stíl sínum upp á So sem tefldi byrjunin fremur „druslulega,“ skipti vitlaust upp á miđborđinu og mátti síđan fylgjast međ Magnúsi bćta stöđu sína hćgt og bítandi. Ţegar tíminn tók ađ styttast gáđi So ekki ađ sér:

Wesley So – Magnús Carlsen

Bogo-indverskv vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 a5 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 b6 7. Rc3 Bb7 8. g3 O-O 9. Bg2 Re4 10. Rxe4 Bxe4 11. O-O a4 12. De3 Bb7 13. Dd3 f5 14. Re5 Bxg2 15. Kxg2 d6 16. Rf3 Df6 17. e4 Rc6 18. Hae1 Ha5! 

Óvenjulegur stađur fyrir hrókinn sem frá a5 eygir f5-reitinn.

GDO113CL819. d5 fxe4 20. Dxe4?

Og hér var tvímćlalaust betra ađ taka á e4 međ hrók.

20. ... exd5 21. cxd5 Re7! 22. Hd1 Df5! 23. Dxe7 Dxf3+ 24. Kg1 Hc5 25. Hd2 h6 26. He1? Hf5 27. He3 Hc1+ 28. He1 Hxe1+ 29. Dxe1 He5 30. Dc1 b5 31. h3 Kf8 32. h4 Ke8 33. Kh2 Kd8 34. Dh1 Db3 35. Dg2 He1 36. Dh3 Df3 37. Dg2 Df5 

GDO113CLCSvarta stađan er vćnleg en vinningsleiđin liggur ekki fyrir. Ein áćtlunin gćti veriđ ađ bćta stöđu kóngsins ogh sćkja ađ d5-peđinu. En eins og stundum gerist ţegar tíminn styttist leikur annar ađilinn gróflega af sér.

38. Dh3?? Hh1+!

– drottningin fellur og frekari barátta er tilgangslaus. So gafst upp.

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 1. apríl 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


Guđmundur hefur tryggt sér sćti í landsliđssćti - mikil spenna hver fylgir honum upp

2017-04-08 13.01.15

Guđmundur Gíslason (2314) er í banastuđi í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák. Í dag vann Kristján Eđvarđsson (2228) og hefur hlotiđ 7˝ vinning í átta umferđum! Hefur tveggja vinninga forskot á nćstu menn. Mikil spenna er í baráttunni um annađ sćti sem jafnframt tryggir keppnisrétt í landsliđsflokki.

2017-04-08 13.01.09

Jóhann Ingvason (2121), sem vann Björgvin Víglundsson (2143), Dagur Ragnarsson (2316), sem lagđi Tómas Björnsson (2179) ađ velli, og Lenka Ptácníková (2242), sem hafđi betur gegn Braga Halldórssyni (2110), eru í 2.-4. sćti međ 5˝ vinning. Kristján Eđvarđsson (2228) er fimmti međ 5 vinninga og virđist vera úr leik í baráttunni.

Í lokaumferđinni sem fram fer á morgun og hefst kl. 13 mćtast:

  • Halldór Grétar Einarsson (4˝) - Guđmundur Gíslason (7˝)
  • Lenka Ptácníková (5˝) - Dagur Ragnarsson (5˝)
  • Jóhann Ingvason (5˝) - Tómas Björnsson (4˝)
  • Kristján Eđvarđsson (5) - Jón Kristinsson (4˝)

Vinni Jóhann hefur hann tryggt sér annađ sćti á mótinu og sćti í landsliđsflokki. Jafntefli dugar einnig Jóhanni ef Lenka og Dagur gera einnig jafntefli. 

Dagur kemst áfram vinni hann og Jóhann vinni ekki. Degi gćti dugađ jafntefli ef Jóhann tapar. Lenka ţarf ávallt sigur til ađ komast áfram og ţarf ţá jafnframt ađ treysta á ađ Jóhann vinni ekki. 

Áhorfendur eru velkomnir í Stúkuna. Birnukaffi hefur flutt sig um set og ţar nú međ ađsetur! 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband