Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Växjö í júní-júlí

Clipboard06

 

Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Växjö í Svíţjóđ dagana 26. júní - 2. júlí nk. Alls er teflt í fjórum mótum.

Fyrst má sjálft ađalmótiđ sem jafnframt er svćđamót og fćr sigurvegarinn keppnisrétt á Heimsbikarmótinu í Georgíu.

Hin mótin eru Norđurlandamót kvenna og Norđurlandamót eldri skákmanna bćđi fyrir 50 ára og eldri sem og 65 ára og eldri.

Mótiđ er afmćlismót Skáksambands Svíţjóđar en sambandiđ fagnar 100 ára afmćli í ár. 

Nánari upplýsingar um mótiđ má nálgast á heimasíđu sćnska skáksambandsins

Bođsbréfiđ sjálft má nálgast hér

 


Guđmundur međ 1˝ vinnings forskot - Kristján í öđru sćti

Guđmundur Gíslason (2314) er kominn međ annan fótinn, nánast báđa, í landsliđsflokkinn í Hafnarfirđi í maí. Í sjöundu umferđ í gćr gerđi hann jafntelfi viđ Dag Ragnarsson (2316). Guđmundur hefur 6˝ vinning og 1˝ vinnings á Kristján Eđvarđsson (2228) sem lagđi Jóhann Ingvason (2121), sigurvegarann frá í fyrra, ađ velli. Jóhann, Björgvin Víglundsson (2143), Dagur, Tómas Björnsson (2179) og Lenka Ptácníková (2242) eru 3.-7. sćti međ 4˝ vinning. Bragi Halldórsson (2110) hefur svo 4 vinninga.

Í dag kl. 13 hefst nćstsíđasta umferđ og er spennan mikil um hver fylgi Guđmundi í landsliđsflokkinn.

  • Guđmundur Gíslason (6˝) - Kristján Eđvarđsson (5)
  • Tómas Björnsson (4˝) - Dagur Ragnarsson (4˝)
  • Jóhann Ingvason (4˝) - Björgvin Víglundsson (4˝)
  • Bragi Halldórsson (4) - Lenka Ptácníková (4˝)

Áhorfendur eru velkmnir í Stúkuna. Birnukaffi hefur flutt sig um set og ţar nú međ ađsetur! 


Brćđur áfram í Barna Blitz eftir undanrásir Víkingaklúbbsins

viking1

Undanrásir Víkingaklúbbsins fyrir Reykjavík barnablitz fór fram í á miđvikudaginn hjá Víking. 14. keppendur tóku ţátt. Efstur varđ Óskar Víkingur neđ 5.5 af 6. Stefán Orri bróđir hans annar međ 5.0. Róbert Luu ţriđji međ 4.5. Tefldar voru 6. umerđir međ 6 mínútna umhugsunartíma. Skákstjórar á mótinu voru Sigurđur Ingason og Gunnar Fr. Rúnarsson.

Úrslit:

1. Óskar Víkingur Davíđsson 5.5
2. Stefán Orri Davíđsson 5
3. Róbert Luu 4.5
4. Benedikt Ţórisson 4.0
5. Bjartur Ţórisson 3.5
6. Ásthildur Helgadóttir 3.5
7. Batel 3.0
8. Áslaug 3.0
9. Einar Dagur Brynjarsson 3.0
10. Bergţóra Helga Gunnarsdóttir 2.0
11. Ása 2.0
12. Sigurđur Rúnar Gunnarsson 2.0
13. Ísak Trausti Ingólfsson 1.0
14. Skotta 0.0

Nánar á heimasíđu Víkingaklúbbsins.


Guđmundur heldur sínu striki í Stúkunni

Guđmundur Gíslason (2314) heldur áfram sigurgöngu sinni í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák. Í gćr vann hann Lenku Ptácníková (2242). Sjötta sigurskákin í jafn mörgun skákum. Jóhann Ingvason (2121), sem vann Jón Kristinsson (2166), er annar međ 4˝ vinning. Dagur Ragnarsson (2316) og Kristján Eđvarđsson (2228) koma svo nćstir međ 4 vinninga. Fimm keppendur hafa svo 3˝ vinning svo baráttan verđur hörđ um efstu tvö sćtin sem gefa keppnisrétt í landsliđsflokki.

Sjöunda umferđ fer fram í kvöld og hefst kl. 18:30. Ţá mćtast međal annars:

  • Dagur Ragnarsson (4) - Guđmundur Gíslason (6)
  • Kristján Eđvarđsson (4) - Jóhann Ingvason (4˝)
  • Lenka Ptácníková (3˝) - Hallór Grétar Einarsson (3˝)
  • Tómas Björnsson (3˝) - Kristinn Jens Sigurţórsson (3˝)
  • Björgvin Víglundsson (3˝) - Gylfi Ţór Ţórhallsson (3)

Áhorfendur eru velkmnir í Stúkuna. Birnukaffi hefur flutt sig um set og ţar nú međ ađsetur! 


Lokaundankeppni Reykjavik Open Barna Blitz fer fram á morgun í TR

Eins og frá árinu 2009 stendur Skákakademía Reykjavíkur í samstarfi viđ taflfélög borgarinnar fyrir Reykjavík Open Barna-Blitz sem er hrađskákmót fyrir krakka í sjöunda bekk og yngri, ţađ er fćdd 2004 og síđar.

Taflfélag Reykjavíkur, Huginn, Skákdeild Fjölnis og Víkingaklúbburinn eru öll međ undanrásir ţar sem tvö sćti eru í bođi í úrslitunum sem tefld verđa laugardaginn 22. apríl.

Huginn: Mánudaginn 3. apríl í Mjóddinni (úrslit). Baltasar Máni Wedholm og Ísak Orri Karlsson unnu sér keppnisrétt í úrslitum. 

Víkingaklúbburinn: Miđvikudaginn 5. apríl í Víkinni(úrslit). Óskar Víkingur og Stefán Orri Davíđssynir unnu sér keppnisrétt í úrslitum.

Skákdeild Fjölnis: Miđvikudaginn 5. apríl í Rimaskóla (úrslit). Arnór Gunnlaugsson og Kristján Dagur Jónsson unnu sér keppnisrétt í úrslitum 

Taflfélag Reykjavíkur: Laugardaginn 8. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur ađ Faxafeni 12, hefst 14:00.

 


Stóra páskaeggjamót KR á mánudagskvöldiđ

Páskaeggjamót KR jafnan fjölsótt   - ese

Ţađ er jafnan hart barist á skákmótunum í KR- heimilinu hvort heldur er á mánudagskvöldum eđa árdegismótunum á laugardagsmorgnum.  Ţađ sem af er ári hafa margir frćknir kappar fagnađ ţar glćstum sigrum eđa hafnađ í öđru sćti ella eđa enn neđar. Međal sigursćlla keppenda undanfariđ hafa veriđ Magnús Sigurjónsson, Jón G. Briem, Guđfinnur Kjartansson, Stefán Ţormar, Gunnar Gunnarsson, Bjarni Hjartarson  o.fl. ađ ógleymdum Björgvini Víglundssyni, tvöföldum Íslandsmeistara (bćđi 50+ og 65 ára og eldri) sem gerđi sér lítiđ fyrir og vann kapptefliđ um Friđrikskónginn međ fullu húsi fyrr í vetur. 

Á mánudagskvöldiđ kemur verđur svo haldiđ ţar hiđ árlega Kapp- og Happ páskaeggjamót, ţar sem 3 risa páskaegg frá sćlgćtisgerđinni SAMBÓ verđa í vinning auk fjölda annarra girnilegra nammieggja frá GÓU. Bćđi sigurvegarar í einstökum aldursflokkum karla og kvenna geta gert sér góđar vonir um ađ fara ekki tómhentir heim og eins ţeir sem detta óvćnt í lukkupottinn í mótslok ţegar darrađardansinum lýkur.  

Um er ađ rćđa 7 mínútna 11–13 umferđa alvöru hrađskákmót, eftir keppendafjölda. Ýtt verđur á klukkurnar kl. 19.30 og allir sem taflmanni geta valdiđ hjartanlega velkomnir til ţátttöku.


Baltasar og Ísak Orri komnir í úrslit á Reykjavik Barna Blitz

20170403_185757

Ćfingin ţann 3. apríl sl. var ekki alveg hefđbundin. Engin dćmi eđa ţemskák var á ćfingunni og hrađskák reglum fylgt í hvívetna. Í verđlaun voru ekki ađeins medalíur eins og vanalega heldur gáfu tvö efstu sćtin ţátttökurétt í úrslitum Reykjavík Barna Bliz sem fram fer međan á Reykjavíkurskákmótinu stendur.

Baráttan var jöfn um efstu sćtin á ćfingunni en ţegar upp var stađiđ hafđi Baltasar Máni Wedholm sigurinn međ 6v í jafn mörgum skákum. Annar var Ísak Orri Karlsson međ 5v. Úrslitin réđust í innbyrđis viđureign ţeirra í fjórđu umferđ ţar sem Baltasar hafđi sigur í spennandi skák sem hefđi vel getađ fariđ öđru vísi. Ţeir tveir unnu sér ţví ţátttökurétt í úrslitum Reykjavík Barna Blitz. Síđan komu jöfn međ 4v Batel Goitom Haile og Rayan Sharifa. Batel sem tapađi ađeins gegn efstu mönnum hefđi betur á stigum og hlaut ţriđja sćtiđ.
Í ćfingunni tóku ţátt: Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson, Ísak Orri Karlsson, Batel Goitom Haile, Rayan Sharifa, Brynjar Haraldsson, Andri Hrannar Elvarsson,Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Zofia Momuntjuk, Adrian Efraím Beniaminsson Fer, Wiktoria Momuntjuk, Bergţóra Helga Gunnarsdóttir, Alfređ Dossing, Sigurđur Rúnar Gunnarsson, Hans Vignir Gunnarsson og Wihbet Haile.

Nćsta mánudag 10. apríl 2017 verđur páskaeggjamót Hugins og hefst ţađ kl. 17.00, ţ.e. nokkru fyrr en venjuleg mánudagsćfing. Páskaeggjamótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. Eins og ćfingarnar verđur páskaeggjamótiđ í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengiđ er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á ţriđju hćđ.

Úrslitin í chess-results:


Halldór Pálsson međ fullt hús á hrađkvöldi

Halldór Pálsson sigrađi örugglega á hrađkvöldi Hugins sem haldiđ var mánudaginn 3. apríl sl. Halldór vann allar skákirnar sem hann tefldi á hrađkvöldinu og fékk 7v í jafn mörgum skákum. Sigurinn var tryggđur fyrir síđustu umferđ en samt engin ástćđa til ađ slaka á. Annar var Magnús Magnússon međ 5,5v. Síđan komu jafnir međ 4v Vigfús Ó. Vigfússon og Atli Jóhann Leósson. Ţađ hafđi Vigfús betur á stigum og hlaut 3. sćtiđ.

Eins og fyrri sigurvegarar sá Halldór um dráttinn í happdrćttinu og valdi tölu Harđar Garđarssonar. Báđir völdu ţeir pizzumiđa frá Dominos. 

Lokastađan á hrađkvöldinu:

  1. Halldór Pálsson, 7v/7
  2. Magnús Magnússon, 5,5v
  3. Vigfús Ó. Vigfússon, 4v
  4. Atli Jóhann Leósson, 4v
  5. Hörđur Garđarsson, 2,5v
  6. Sigurđur Freyr Jónatansson, 2,5v
  7. Pétur Pálmi Harđarson, 2v
  8. Finnur Kr. Finnsson, 0,5v

Úrslitin í chess-results:


Páskeggjamót Hugins fer fram á mánudaginn

Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 25. sinn mánudaginn 10. apríl 2017, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform er er á skak.is og eru vćntanlegir ţátttakendur beđnir um ađ skrá sig til ađ auđvelda undirbúning mótsins. Mótiđ verđur reiknđ til alţjóđlegra hrađskákstiga.

Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 2001 – 2004) og yngri flokki (fćddir 2005 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.

Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í  Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.


Sveinbjörn Sigurđsson látinn

983932_10155114100168360_4464770511476713340_n

Sveinbjörn Sigurđsson er fallinn frá 69 ára ađ aldri. Hann lést 3. apríl sl. Skákmenn hafa minnst Sveinbjörns á Facebook-hópi skákmanna. Hér má sjá nokkur minningarorđ skákmanna um ţennan mikla meistara.

Halldór Brynjar Halldórsson

Sveinbjörn var einstakur mađur, gćđablóđ mikiđ. Ţađ vita ţeir sem hann ţekkja, ţrátt fyrir áratuga stjórnarandstöđu hans norđan heiđa.

Björn Ţorfinnsson

Sveinbjörn er einn sá allra eftirminnilegasti. Blessuđ sé minning meistarans. Hans verđur saknađ.

Sigurđur Eiríksson

Átti leiđ um Eyrarlandveginn haustiđ 1968 á leiđ minni í MA. Ţar var ţessi góđi mađur. Átti samskipti viđ hann alla tíđ síđan. Refur í skákinni en mikill öđlingur.

Gunnar Björnsson

Deildakeppnin verđur ekki söm. Sveinbjörns verđur sárt saknađ.

Áskell Örn Kárason

Sveinbjörn er allur - lést sl. mánudagskvöld. Viđ Skákfélagsmenn minnumst hans međ virđingu og hlýju. Ţess má geta ađ Sveinbjörn varđ 69 ára gamall ţann 9. mars sl. Ef Bobby gamli Fischer vćri á lífi hefđi hann einmitt orđiđ 74 ára ţennan sama dag. Ţannig ađ drengstaulinn frá Brooklyn fékk Eyrarlandsgođann í fimm ára afmćlisgjöf - ef svo má segja. 9. mars allavega merkur dagur í skáksögunni!

Rúnar Sigurpálsson

Sveinbjörn var eftirminnilegur öllum sem honum kynntust. Jafnvígur á skák og bridge, á sínum yngri árum var hann afar efnilegur knattspyrnumađur og ţeir sem muna eftir gullaldarliđi knattspyrnudeildar Skákfélags Akureyrar muna eftir Sveinbirni dreifa spilinu međ sínum öfluga vinstri fót, yfirferđin kannski ekki mikil en yfirsýnin ţeim mun meiri. Blessuđ sé minning hans.

Sigurđur Arnarson

17760843_1612709315423835_8875422128999113019_o

Ţetta gćti veriđ síđasta myndin sem tekin var af kappanum. Situr fyrir framan merki Skákfélags Akureyrar og bíđur eftir ađ fá ađ tefla viđ ungan félaga í SA.

Tómas Veigar Sigurđarson

Ég var líklega síđasti andstćđingur Sveinbjörns í kappskák. Viđ mćttumst í lokaumferđ SŢA í lok febrúar.

Mćtti honum líka í einni af síđustu skákunum sem hann tefldi, sem voru tefldar á 10 mínútna móti hjá SA ţann 9. mars, afmćlisdag Sveinbjörns. Ţađ mót var óhefđbundiđ, ţví viđ ákváđum ađ tefla tvöfalda umferđ, sem tók 240 mínútur. Var ţađ gert ađ undirlagi Sveinbjörns, sem sagđi eitthvađ á ţessa leiđ "viđ erum mćttir hér til ţess ađ tefla" ;)

Viđ fráfall hans er skarđ fyrir skildi sem erfitt verđur ađ fylla.

Hvíldu í friđi kćri vinur - Ţín verđur sárt saknađ.

Mikael Jóhann Karlsson

Frábćr mađur sem stóđ fast viđ bakiđ á ungum skákmönnum ađ hefja sín fyrstu skref í skák á Akureyri, stoppađi viđ hjá honum og spjallađi um allt milli himins og jarđar (oftast til gagnrýna hin ýmsu málefni) eftir nánast hvern skóladag, reyndist mér gríđarlega vel ţegar ég hóf mín fyrstu skref á fullorđins skákmótum á Akureyri. Megi ţessi mikli öđlingur hvíla í friđi, aldrei mun ég gleyma honum.

Gauti Páll Jónsson

Ég er ţakklátur fyrir ađ hafa kynnst honum í ţau mörgu skipti sem viđ tefldum fyrir norđan og hann var alltaf til í spjall ţegar mađur rakst á hann á göngu um bćinn. Eftirminnilegt ţegar ég hreinsađi eitt fámennt en góđmennt mót á Akureyri fyrir utan eina skák - ţegar Sveinbjörn ruslađi mér upp! Blessuđ sé minning hans.

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 8778334

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband