Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Þór og Sigurður efstir á Haustmóti SA

Nú stendur yfir haustmót Skákfélags Akureyrar. Teflt er á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum  í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Í kvöld fór fram 3. umferð og urðu úrslit eftirfarandi:

Þór Valtýsson (2045) - Mikael Karlsson ((1440) 1-0
Haukur H. Jónsson (1535) -Sveinbjörn Sigurðsson ((1720) 0-1
Sigurður Eiríksson (1830) - Hugi Hlynsson (1540) 1-0
Ólafur Ólafsson ( )- Gestur  Baldursson (1620)1/2- 1/2
Skúli Torfason(1730) - Sigurður Arnarson (1935) 0-1
 
Þór og Sigurður Arnarson eru efstir og jafnir með 3 vinninga, Sigurður Eiríksson með 2, Gestur og Sveinbjörn með 1,5,  Skúli 1 + frestuð skák úr 1. umferð, Hugi og Ólafur með 1 og Mikael og Haukur eru enn án vinnings en Haukur á frestaða skák gegn Skúla.
 
4. umferð fer fram á sunnudaginn kl. 14.  Þá mætast:

Mikael og Sigurður A
Gestur og Sigurður E
Þór og Ólafur
Hugi og Haukur
Sveinbjörn og Skúli
 

Skákmót í Vin á mánudag

Vin hefur fengið nýjan forstöðmann, hana Þórdísi Rúnarsdóttur. Gugga, eða Guðbjörg Sveinsdóttir, er farin eftir þrettán ár í Vin og um leið og henni er þakkað fyrir árin er Þórdís boðin velkomnin. Og það auðvitað með skákmóti Á MÁNUDAGINN 12. NÓV. KL. 13:00

Skákfélag Vinjar og Hrókurinn þakka Guggu samstarfið og hlakka til samstarfs með Þórdísi.

Þær segjast nú ekki mjög öflugar skákkonur og ef þær þora ekki að tefla þá allavega leika þær fyrstu leikina.

Vonandi sjáum við sem flesta og auðvitað er kaffi og eitthvað hollt og gómsætt með því...

 

 

 

Nú, og auðvitað verða vinningar fyrir alla. Ekki spurning.

Vin er að Hverfisgötu 47 og síminn er 561-2612.

 

Hrókurinn og skákfélag Vinjar eru með skákuppákomur eða æfingar á mánudögum

kl. 13:00.

 

Allir ævinlega velkomnir.


Grand Prix-mót í kvöld

TRSjötta Grand Prix mót T.R. og Skákdeildar Fjölnis verður haldið í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.

Verðlaun verða í boði Senu, Zonets, Smekkleysu, 12 tóna og Geimsteins.  Skákstjórar eru Óttar Felix Hauksson og Helgi Árnason, formenn T.R. og Sd. Fjölnis.


EM landsliða: 11. pistill liðsstjóra

Liðið að fagna góðum sigri
Það vannst sætur sigur á Finnum í gær.  Og nú var það Þröstur Þórhallsson sem dró okkur að landi með sigri á fjórða borði.  Ekki sá besti í íslenskri skáksögu en mikilvægur engu að síður.  Ísland náði 20. sæti, en liðinu var raðað í 31. sæti fyrir mót, sem er besti árangur sem íslenskt lið hefur náð í þessari keppni síðan árið 1992.  Liðið hafnaði reyndar einnig í 20. sæti í Leon árið 2001 en þá voru 34 lið með og árangur því betri nú.  Lið Íslands var næstefst norðurlanda, aðeins Danirnir slógu okkur við en fyrirfram var Ísland það næstlakasta á pappírnum. 

Ísland og Slóvenía voru þær þjóðir sem stóðu sig best miðað við stig en bæði liðin enduðu 11 sætum ofar en meðalstig fyrir mót gáfu til kynna.

Það sem gerir árangurinn enn betri var liðið tefldi allt mótið uppfyrir sig nema gegn Finnunum.  Fjöllum til að byrja lauslega um skákir gærdagsins.

Héðinn samdi „örjafntefli" á fyrsta borði og þar með var helsta vopn Finna Tomi Nyback úr leik.

Henrik gerði einnig öruggt jafntefli á 2. borði með svörtu.

Stefán tefldi á þriðja borði og þar var staðan flókin að mati liðsstjóra og allt stemmdi í bullandi tímahrak.  Skákin leystist upp og Stefán hafði smá frumkvæði en náði ekki að kreista.

Þröstur tefldi og fékk fljótlega eitthvað betra.  Hann snéri smásaman á andstæðinginn og vann góðan sigur.  Eftir skákina kom gullkorn dagsins frá Þresti.  „Nú er ég kominn í stuð" Smile

Með sigrunum náðum við öðru sæti norðurlandaþjóðanna, rétt mörðum Norðmenn.  Magnus Carlsen tapaði loks fyrir serbneskum andstæðingi sínum.  Norðmennirnir voru reyndar heppnir því að ná 2-2 jafntefli þar sem andstæðingur Ketils reyndi að vinna stöðu í stað þess að gera jafntefli og tryggja þar með Serbum 2,5-1,5.  Ótrúleg ákvörðun útfrá hagsmunum liðsins.  Svíarnir lágu fyrir Svartfellingum.  Við fengum reyndar jafnmarga vinninga og Danir, sem unnu Litháa, en færri stig.  Danirnir voru hressir í gærkveldi og sögðust hafa lent í sjöunda sæti.  Hmmmmm, minnir mig á eitthvað.  Wink

Lokastaða norðurlandanna er sem hér segir:

Þjóð

Sæti

Stigaröð

Stig

Vinn

Danmörk

12.

20.

10

19

Ísland

20.

31.

9 (169,5)

19

Noregur

22.

27.

9 (160,5)

19

Svíþjóð

27.

21.

8

18,5

Finnland

31.

34.

7

16,5

Rússarnir unnu Búlgara á fyrsta borði og rúllaði Svidler þvílíkt yfir andstæðing sinn á fyrsta borði en hann fékk 7 vinninga í 8 skákum sem verður að teljast ótrúlegt gegn jafnsterkum andstæðingum.  Rússarnir fengu 17 stig af 18 mögulegum sem verður einnig að teljast ótrúlegt. 

Armenar urðu aðrir með 14 stig og nágrannar Aserar urðu þriðju með 13 stig.

Ivan Sokolov tapaði nú og var sjón að sjá hann þegar hann strunsaði úr skáksalnum.  Mátti ég rétt sleppa frá því að verða á vegi hans en hann var eins og naut í flagi.  Ég held að enginn skákmaður í heimi eigi jafn erfitt með að tapa og hann nema þá helst Kasparov.

Um kvöldið borðuðum við með Sokolov og fór hann á kostum.  Hann kom okkur mikið á óvart með þekkingu sinni á Íslandi og íslenskri sögu. 

Einnig rifjaði hann upp skákina sem hann tapaði fyrir Stefáni Kristjánssyni á EM taflfélaga í Kemer og átti ekki orð yfir eigin frammistöðu.  Hann kenndi Fischer um tapið því hefði ekki verið Fischer-tímamörkin hefði Stefán tapað að hans mati!  Gullkornið dagsins var þó.  „After I lost to Kristjánsson I decided to quit professional chess".

Eitt sérkennilegasta atvik sem ég hef séð á skákmóti og undaskil ég ekki Jólapakkamót Hellis þar sem ýmislegt gerist í yngri flokkunum.  Umrætt atvik gerðist í skák Tiviakov, Hollandi, og Almasi, Ungverjalandi.

Tiviakov hafði 2 hróka gegn hróki og biskupi Ungverjans.  Þeim síðarnefnda virtist reyndar vera misboðið að sá hollenski skyldi tefla áfram og sýndi það með svipbrigðum sínum  Ungverjinn virðist reyndar vera eitthvað hrokafullur því honum virtist einnig vera ferlega misboðið að gera jafntefli við Hannes.

Jæja nóg af útúrdúrum.  Almasi lék gegn Tiviakov og svo leið smá tími og svo lék Almasi aftur!  Tivikov varð auðvitað mjög undrandi á svip en fór svo bara að hlæja og sagði.  „He played 2 moves in a row".  Þetta var svo lagað af skákstjóra en ótrúlegt að sjá svona gerast hjá skákmanni með um 2700 skákstig.  

Förum yfir árangur íslensku skákmannanna:

Hannes fékk 3 vinninga af 7 og stóð sig í samræmi við stig.  Hann átti það til að blöndera í þessu móti sem er óvenjulegt á þeim bæ.  Góður leiðtogi í liðinu en það veitir alltaf eitthvað vissa öryggistilfinningu að vita af honum á fyrsta borði.

Að öðrum ólöstuðum voru það Héðinn og Henrik sem drógu vagninn.  Héðinn náði sínum fjórða stórmeistaraáfanga í röð þ.e. þetta var fjórða mótið í röð sem hann náði árangri yfir 2600 skákstig sem bendir til þess að hann eigi miklar hækkanir inni.  Héðinn fékk 5,5 vinning í 9 skákum og var sá eini í liðinu sem tefldi allar skákirnar og hækkar um 14 stig fyrir frammistöðu sína sem samsvaraði 2662 skákstigum.  Héðinn er nú kominn með 2550 skákstig og ljóst að hann gæti sótt að fyrsta borðinu á komandi mótinu haldi hann þessu flugi.

Henrik stóð sig einnig afar vel.  Frammistaða hans var einnig vel yfir 2600 skákstig eða upp á 2654 skákstig en hann fékk 5 vinning í 8 skákum þrátt fyrir að hafa haft fimm sinnum svart.  Henrik hækkar um 16 stig og er nú kominn aftur yfir 2500 skákstig.  Mjög vel lesinn skákmaður sem undirbjó sig afar vel og átti það til að koma andstæðingum sínum á óvart jafnvel strax í fyrsta leik og það með góðum árangri!.

Stefán fékk 3,5 í 7 skákum.  Fyrir liðsstjóra er martröð að hafa hann í liði en ávallt var mikið á og brjálað tímahrak á ferðinni.  Stefán hækkar um 7 stig fyrir frammistöðuna og nálgast því enn 2500 skákstigin sem hann þarf að ná til að verða útnefndur stórmeistari.  Ég verð að viðurkenna, þrátt fyrir að mér sé það þvert um geð, að Stefán er betri en ég í borðtennis.  Frown

Varamaður ferðarinnar Þröstur Þórhallsson kom sterkur inn á endasprettinum eins og svo oft áður.  Hann fékk 2 vinninga af 5 mögulegum eftir að hafa byrjað brösuglega.  Því miður var bara mótið of stutt fyrir Þröst!  Hann lækkar um 8 stig fyrir frammistöðuna sína.

Samtals hækkar liðið um 30 stig sem þýðir að liðið fékk um 3 vinningum meira en stigin gefa til kynna. 

Sjálfur þakka ég liðinu kærlega fyrir samveruna hér á Krít.  Þetta var gaman þótt það skiptust auðvitað á skin og skúrir.  Gott lið sem náði bara býsna vel saman.  Mikil stemming og góður andi þegar farið var yfir skákirnar saman á kvöldin.  

Héðinn og Henrik voru auðvitað þeir sem drógu og vagninn en Stefán og Hannes stóðu sig einnig fyrir sínu.  Þröstur kom flottur inn á endasprettinum eins og svo oft áður en hann er liðinu ákaflega mikilvægur liðsmaður enda mikill baráttumaður sem smitar út frá sér.  

Að vera liðsstjóri er full vinna því auk þess að fylgjast með liðinu, tilkynna liðið o.þ.h. tel ég hafa skyldur við ykkur úti þarna að koma upplýsingum um gang mála á skákstað.

Skákáhugamönnum þakka ég hvatningarnar og liðinu fyrir skemmtilega samveru.  Björn Þorfinnsson fær sérstakar þakkir fyrir upplýsingaöflun þegar mig vanhagaði um eitthvað slíkt með skömmum fyrirvara.

Mótshaldarar og skipuleggjendur fá plús í kladdann fyrir frábæra skipulagningu og aðbúnað.  Allt til fyrirmyndar auk þess sem Grikkir eru einkar vinalegir og þægilegir í allra umgengi. 

Sérstakt „show" var svo í gær að horfa á leik Real Madrid og Olympikos í hótellobbýinu í gær.  Einn Grikkinn var orðinn svo æstur að þegar boltinn var sendur fram markið Spánverjann á lokamínútunum í gær, stökk hann upp eins og ætlaði að skalla hann í markið!

Heimleiðin er löng og ströng þ.e.: Krít-Aþena-London-Keflavík.  Þessi pistill var að mestu skrifaður í gær en er kláraður í flugvél á milli Aþenu og London og póstaður á netið á Heathrow flugvelli.  

Takk fyrir mig!

Nóg í bili, ekki meir!

Krítarkveðja,
Gunnar


EM landsliða: Finnar í lokaumferðinni

FinnarnirÍslendingar mæta Finnum í lokaumferð Evrópumóts landsliða sem fram fer í fyrramálið á Krít í Grikklandi.  Hannes Hlífar hvílir í liði Íslands en Westerinen hvílir hjá Finnlandi.

 

 

 

 

 

Viðureign morgundagsins:

Bo.31ICELAND (ISL)Rtg-34FINLAND (FIN)Rtg0 : 0
14.1IMSteingrimsson Hedinn 2533-GMNyback Tomi 2565     
14.2GMDanielsen Henrik 2491-IMAgopov Mikael 2440     
14.3IMKristjansson Stefan 2458-IMKarttunen Mika 2427     
14.4GMThorhallsson Throstur 2448-FMKeskinen Sauli 2298     

EM landsliða: Danmörk - Ísland 2½-1½

Íslendingar mættu Dönum í áttundu og næstsíðustu umferð EM-landsliða. Fyrstu skákinni lauk með stuttu jafntefli. Það var Henrik Danielsen sem gerði jafntefli við fyrrum landa sinn Lars Schandorff. Það er ekki hægt að segja að næstu tíðindi úr viðureigninni hafi glatt landann, því Hannes lék illa af sér strax í 18. leik, fékk tapað tafl og varð að gefast upp skömmu síðar. Það leit hins vegar út fyrir að Héðinn Steingímsson mundi bæta fyrir fingurbrjót Hannesar með sigri gegn Sune Berg Hansen á öðru borði. Þrátt fyrir vænlega stöðu gekk það þó ekki eftir og niðurstaðan var jafntefli eftir 38 leiki. Þá var einungis skák Þrastar á fjórða borði eftir og henni lauk einnig með jafntefli eftir nokkrar sviptingar. Niðurstaðan varð því naumt tap gegn danska liðinu.

 SM Peter Heine Nielsen2626-SMStefansson Hannes25741-0
 SM Sune Berg Hansen2564-AMSteingrimsson Hedinn25331/2
 SMLars Schandorff
2520-SMDanielsen Henrik24911/2
 AM Karsten Rasmussen2495-SMThorhallsson Throstur24481/2

 

 


EM taflfélaga: Liðsstjórapistill nr. 9

Hannes og AlmasiNiðurstaðan í gær var naumt tap fyrir Ungverjum sem var heldur svekkjandi.  Engu að síður ekki slæm úrslit þannig séð þegar horft er á stigamun sveitanna.  Hannes, Héðinn og Henrik gerðu jafntefli en Stefán tapaði.  Í dag mætum við Dönum og þá hvílir Stefán en Þröstur kemur inn en Þröstur hefur oft komur sterkur inn í lokaumferðunum.  Danirnir komu okkur á óvart með því að hvíla Lars Bo Hansen en fyrirfram átti ég von á því að einhver hinna þriggja neðstu myndu hvíla.  Sem fyrr teflum við upp fyrir okkur, áttundu umferðina í röð og erum stigalægri á öllum borðum. 

 

Viðureign dagsins er því:

20

DENMARK (DEN)

Rtg

31

ICELAND (ISL)

Rtg

GM

Nielsen Peter Heine

2626

GM

Stefansson Hannes

2574

GM

Hansen Sune Berg

2564

IM

Steingrimsson Hedinn

2533

GM

Schandorff Lars

2520

GM

Danielsen Henrik

2491

IM

Rasmussen Karsten

2495

GM

Thorhallsson Throstur

2448

Varðandi umferðina í gær hef ég í raun og veru litlu við bæta þær skýringar sem þegar hafa verið birtar á Horninu.

Hannes hafði hvítt og fékk e.t.v. örlítið frumkvæði.  Staðan var þó flókin og en leystist upp í jafntefli. Héðinn og Hannes

Héðinn tefldi flókið og leist mér ekkert á stöðuna.  Héðinn var seigur að vanda og varðist vel.  Eins og fram kemur á Horninu átti andstæðingur hans algjöra sleggju, 28. He4!! sem hvorugur sá og ekki einu sinni við stúderingar eftir á enda leikur sem gífurlega erfitt er að finna yfir borðinu.  Héðinn er nú með fimmta besta skor allra á öðru borði.

Henrik náði ágætis stöðu á þriðja borði en aldrei neinu áþreifanlegu.  Þessum þremur skákum lauk nánast samtímis.

Á fjórða borði átti Stefán í vök að berjast og í miklu tímahraki.  Honum tókst ekki að verjast og tap því með minnsta mun staðreynd.

Rússarnir horfa allir í sömu áttinaRússarnir héldu áfram sigurgöngu sinni, hafa fullt hús stiga, 14 samtals, og unnu Frakka 2,5-1,5 og eru svo gott sem búnir að tryggja sér sigur á mótinu.  Aðrir eru Armenar með 11 stig og í næstu sætum eru Slóvenar, Ísraelar og Aserar.  Rússar mæta Spánverjum í dag og kæmi mér ekki á óvart þótt búið væri að semja á öllum borðum eftir u.þ.b. hálftíma, þ.e. Rússarnir geri jafntefli í öllum skákum sem eftir eru.  Þeir hvíla Svidler sem hefur farið stórum með 5 af 6 en Moro hefur þó staðið sig enn betur hefur 6 af 7.. 

Ísland er nú efst norðurlandanna, er í 19. sæti með 7 stig og 15 vinninga.  Öll hin löndin nema Finnland hafa einnig 7 stig og það er mikil spennan hlaupin í „norðurlandamótið".  Finnarnir koma skammt undan með 6 stig. Magnús og Ketill

Í gær unnu Danirnir Króatana og eru þeir króatísku víst ekkert afskaplega ánægðir með norðurlandaþjóðirnar núna eftir 2 töp í röð!  Norðmenn tóku 1 vinning á Ísrael þar sem Magnús gerði jafntefli við Sutovsky.  Þröstur og Henrik voru algjörlega gáttaðir að því að hann skyldi geta haldið jafntefli þar sem hann hafi haft koltapað endatafl.  „Næst gæti hann labbað á vatni!" sagði Henrik.  Það er greinilega mikið spunnið í þennan dreng.  Svíarnir gerðu 2-2 jafntefli við Litháa og Finnarnir unnu Skotana 3-1.  

 

 

Staða norðurlandanna er sem hér segir:

Þjóð

Sæti

Stigaröð

Stig

Vinn

Ísland

19.

31.

7

15

Noregur

20.

27.

7

15

Danmörk

22.

20.

7

14

Svíþjóð

24.

21.

7

13,5

Finnland

28.

34.

6

13

Þegar við skoðuðum stöðuna í gær var okkur ljóst að fengjum sennilega Dani eða Litháa eða jafnvel Svía þótt það síðarnefnda væri ólíklegast.

Ég spurði Henrik hreint út hvort honum þótt það óþægilegt að tefla við fyrrum landa sína en Henrik sagði svo alls ekki vera og sagði svo gullkorn dagsins:  „Let´s beat those f...... Danish!"  Niðurstaðan var því sú að Stefán hvíldi. 

Skömmu síðar komu Sune og Karsten til okkar.  Sune byrjaði strax að fiska í gruggugu vatni.  „Henrik cannot play, he is Danish"  Svo horfði hann á okkur til skiptist að reynda fiska svipinn á okkur en mætti bara glottandi andlitum. 

Er ég talaði við Henrik síðar um kvöldið og sagði honum að ég teldi að hann myndi sennilega tefla við Sune var hann alls ekki viss.  Málið er að Henrik hefur gengið afskaplega með Sune í gegnum tíðina sem e.t.v. skýrir þann leik Dananna að hvíla Lars þannig að Sune færist upp.

Og ekki má sleppa því að segja frá Ivan vini mínu.  Hann er hér alltaf með nokkur gullkorn.  Í fyrradag kom hann til mín mjög alvarlegur á svip og sagði „Throstur have to play tomorrow, he can´t be here in vacation"  Og aftur í gær fékk í sömu ræðuna og loks fær Ivan ósk ósk sína uppfyllta.  Eina umferðina var hann algjörlega hneykslaður á andstæðingi sínu, sagði hann lélegan, tefldi bara upp á trikk og það meira að segja léleg, og einnig hneykslaður á því hversu lengi hann tefldi með koltapað.  „I am totally disgusted how longed he playd".  Hann kom seint en hefur farið á kostum á skákborðinu og unnið allar þrjár sínar skákir og teflir við Svíann Cicak í dag. 

Topalov virðist vera farinn og virðist aðeins hafa teflt fjórar fyrstu skákirnar. 

Rétt er að vekja athygli á góðri frammistöðu Pólverja sem eru skyndilega komnir í hóp efstu liða með 9 stig eftir að hafa tapað fyrir Íslandi og Svartfjallalandi í tveimur fyrstu umferðunum og mæta Úkraínumönnum í dag.  

Ivanchuk í MamadarjovFramkoma Ivanchuk hefur og vakið athygli hér.  Í gær var hann tefla við Mamedyarov.  Er ég leit á skákina var hann að venju samkvæmt að horfa eitthvað út í loftið.  Svo lék sá aserski og Ivanchuk svaraði um hæl eins og væri í tímahraki.  Er ég kíkti á klukkuna stóð þar 1:43 svo það virtist stemma en ég skoðaði hana betur átti hann eftir eina klukkustund og 43 mínútur eftir rúmlega 40 leiki!  Kann ekki góðri lukku að stýra enda tapaði hann.  Á kvöldin gengur hann um og skoðar stöðurnar á þeim borðum þar sem það er verið stúdera og leitar af athyglisverðum stöðum.  Nýlega t.d. settist hann niður hjá Finnunum þegar hann staðan var greinilega verið þess virði að kíkja betur á og stúderaði með þeim góða stund.  Kannski réttara að segja að Finnarnir hafi horft á hann fara með heilu leikjaraðirnar!

Ég geri ráð fyrir fjörlegum skýringum á horninu í dag og hvet menn til að fylgjast með en umferðin hefst kl. 13:30 að íslenskum tíma. 

Lokaumferðin, sem fram fer á morgun, hefst hins vegar kl. 9 að íslenskum tíma og á liðsskipan allra liða að vera tilbúinn kl. 22:30 í kvöld.

Að veðrinu hér er það að frétti að hér rigndi áðan!  Annars er hlýtt að vanda og enn hef ég ekki haft not fyrir síðerma bol.

Nóg í bili, meira á morgun.

Krítarkveðja,
Gunnar


EM: Danskerne i runde otte

Den DanskerneÍslenska liðið mætir liði Danmerkur í áttundu og næstíðstu umferð Evrópumóts landsliða sem fram fer í dag á Krít.  Hjá Íslandi hvílir Stefán Kristjánsson og hjá Dönunum hvílir annað borðs maðurinn Lars Bo Hansen.  Henrik teflir fyrir Íslands hönd gegn sínum félögum.   

Rétt er að benda á skákirnar verað væntanlega sýndar beint á vefsíðu mótsins og má búast við fjörlegum umræðum á Skákhorninu á meðan þær eru í gangi.. 

 

Viðureignin:

 

Bo.20DENMARK (DEN)Rtg-31ICELAND (ISL)Rtg0 : 0
10.1GMNielsen Peter Heine 2626-GMStefansson Hannes 2574     
10.2GMHansen Sune Berg 2564-IMSteingrimsson Hedinn 2533     
10.3GMSchandorff Lars 2520-GMDanielsen Henrik 2491     
10.4IMRasmussen Karsten 2495-GMThorhallsson Throstur 2448     

 


EM landsliða: Tap með minnsta mun gegn Ungverjum

Íslendingar mættu enn einu stórmeistaraliðinu í sjöundu umferð Evrópumóts landsliða. Að þessu sinni voru andstæðingarnir Ungverjar, sem eru með 12. stigahæstu sveitina á mótinu og voru mun stigahærri á öllum borðum. Minnsti munurinn var á þriðja borði, eða "einungis" 70 stig. Ýmsir óttuðust 0-4 ósigur, en eftir jafntefli á efstu tveimur borðunum eftir spennandi viðureignir létti mönnum nokkuð. Henrik Danielsen bætti svo við þriðja jafnteflinu og þá má segja að úrslitin væru orðin ásættanleg gegn þessum sterku andstæðingum óháð því hvernig skák Stefáns á fjórða borði færi. Stefán stóð lengi í andstæðingnum, en varð að lokum að játa sig sigraðan og heildarúrslitin urðu því 1½-2½ Ungverjum í vil.

Íslenska sveitin tefldi á áttunda borði og því voru skákirnar í fyrsta skipti í beinni útsendingu á netinu. Það var náið fylgst með þeim á Skákhorninu þar sem leikirnir voru ræddir jafnóðum og teflt var.

 SM Hannes H. Stefánsson2574-SM Zoltan Almasi26911/2
 AM Héðinn Steingrímsson2533-SM Zoltan Gyimesi26101/2
 SM Henrik Danielsen2491-SM Csaba Balogh25611/2 
 AM Stefán Kristjánsson2458-SM Robert Ruck2561 0

 


EM taflfélaga: Liðsstjórapistill nr. 8

Héðinn og HannesÞað voru flott úrslit í gær þegar sterk sveit Króatíu var lögð að velli 3-1.  Enn á ný eru það Héðinn og Henrik sem fara fram með góðu fordæmi og unnu sínar skákir.  Stefán var einnig grátlega nærri því að vinna sína skák.  Okkur hefur því gengið vel með fyrrum lýðveldi Júgóslavíu á mótinu.  Í dag mætum við Ungverjum sem hafa oft reynst okkur erfiðir og er skemmst að minnast 4-0 taps gegn þeim á síðasta ólympíuskákmótinu.  Í dag verður loks viðureign Íslands í beinni. 

Þröstur hvílir í dag enda allir hinir að standa sig afar vel. 

 

Viðureign dagsins er því:

Bo.

31

ICELAND (ISL)

Rtg

-

12

HUNGARY (HUN)

Rtg

0 : 0

8.1

GM

Stefansson Hannes

2574

-

GM

Almasi Zoltan

2691

    

8.2

IM

Steingrimsson Hedinn

2533

-

GM

Gyimesi Zoltan

2610

    

8.3

GM

Danielsen Henrik

2491

-

GM

Balogh Csaba

2561

    

8.4

IM

Kristjansson Stefan

2458

-

GM

Ruck Robert

2561

    

Ljóst er að töluvert hallar á okkar menn en Ungverjarnir er mun stigahærri á hverju borði.  Minnstur er munurinn á Henrik og Balough eða „aðeins" 70 stig.

Í gær var Hannes fyrstur að klára.  Hann hafði svart og náði að jafna taflið.  Á krítísku augnabliki bauð hann jafntefli sem andstæðingur hans tók eftir töluverða umhugsun en það hefði verið áhætta fyrir hann að reyna að vinna stöðuna.  

Henrik var næstfyrstur að klára.  Hann kom andstæðingi sínum þegar á óvart í fyrsta leik er er hann svaraði 1. e4 með 1. - e5 en slíkt er nánast óþekkt hjá Henrik.  Henrik hafði séð í gagnagrunnum að andstæðingi sínum hafi gengið illa með Berlínarvörnina.  Þegar Henrik lék svo 3. -Rf6 sagðist hann hafa skynjað vonbrigðin hjá andstæðingi sínum.  Henrik ýtti svo peðunum upp á kóngsvæng og hreinlega rúllaði yfir hann.  Glæsileg skák.  Þriðji sigur hans í röð!

Skákin hjá Stefáni var sú mest spennandi.  Stefán fékk opna og skemmtilega stöðu, fórnaði hrók og flest virtist stefna í mátsókn en báðir voru komnir í bullandi tímahrak.  Andstæðingur hans nánast þræddi einstigi og náði að halda taflinu en Stefán átti þó vinning um tíma sem sást með hjálp Fritz.  Á einu augnabliki lék þó Stefán af sér en andstæðingur náði ekki að notfæra sér stað.  Í lokastöðunni má Stefán jafnvel halda áfram taflinu þótt hann væri manni undir og en hann tók þá ákvörðun að semja enda nokkuð ljóst að Héðinn myndi ekki tapa og því sigur í viðureigninni í húsi og ekki skynsamlegt að taka of mikla áhættu.

Héðinn var síðastur að klára eins og venjulega!  Hann fékk biskupaparið gegn riddarapari andstæðings og saumaði smá saman að honum og vann góðan sigur.  Mjög góð skák hjá Héðni og hans annar sigur í röð.  

Rússarnir eru sem fyrr efstir eftir sigur á Ísrael 3-1.  Það lið skipa reyndar að mestu einnig Rússar.   Rússarnir hafa fullt hús en aðrir mjög óvænt eru Slóvenar með 10 stig en þeir eru aðeins 19. stigahæsta sveitin.  Úkraínar, Frakkar og Armenar hafa 9 stig. 

Ísland er í 15. sæti með 7 stig og 13,5 vinning sem verður að teljast afar gott í ljósi þess að liðið hefur ávallt teflt upp fyrir sig.  Norðmenn eru sem fyrr efstir norðurlandaþjóðanna en þeir hafa hálfum vinningi meira en við.  Seigt lið sem nær greinilega mjög vel saman og náði 2-2 jafntefli við Holland í gær þar sem Magnus og Espen unnu.  Jon Hammer féll af tíma í erfiðri stöðu.  Magnus er búinn að standa sig frábærlega og hefur 5 vinninga á fyrsta borði.  Norðmenn fá erfiða andstæðinga í dag en þeir mæta Ísraelunum. 

Svíar gerðu 2-2 gegn Goggunum (Georgíu) þar sem Pontus Carlsson vann á fjórða borði.Eftir góða byrjun hefur heldur betur fjarað undir Dönunum sem töpuðu fyrir Svisslendingum 1,5-2,5.  Finnarnir gerðu 2-2 jafntefli við Ítali.

Staða norðurlandanna er sem hér segir:

Þjóð

Sæti

Stigaröð

Stig

Vinn

Noregur

13.

27.

7

14

Ísland

15.

31.

7

13,5

Svíþjóð

25.

21.

6

11,5

Danmörk

26.

20.

5

11,5

Finnland

32.

34.

4

10

Og enn að Ivan Sokoov .  Hann er hérna á kostum.  Fyrir viðureignina í gær hafði hann ætlað að veðja á Króatíu í einhverri króatískri lengju en hafði svo frétt að Kozul myndi hvíla og hætti því að veðja.  Er hann sagði mér og Þresti frá sagði ég honum að ætti þá að betta á Ísland.  Honum fannst það nú ekki merkilegt og taldi mögulega okkar greinilega ekki mikla.  Ég hitti hann svo í gær og sagði: „You should have bet on Iceland like I told you" en Ivan hafði reyndar lítinn húmor fyrir því.

Lítið verður um SMS í dag til Björns nema að ég þurfi að koma einhverju á framfæri sem ekki sést í beinni.  Hvet menn til að fylgjast með í beinni og með horninu þar sem skákirnar verða væntanlega skýrðar beint af vitringunum sem þar eru. 

Af öðru héðan er að frétta að hér er ljómandi veður!  Kalt á Íslandi?  Wink

Nóg í bili, meira á morgun.

Krítarkveðja,
Gunnar

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 8778922

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 100
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband