Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Ól 2010

Teflir blindandi við 10 manns - Blindskákarfjöltefli í tilefni MP Reykjavíkurskákmótsins

Evgenij MiroshnichenkoMP Reykjavíkurskákmótið mun fara fram dagana 9.-16. Mars. Teflt verður í Ráðhúsi Reykjavíkur og munu um 170 keppendur frá 30 löndum tefla í mótinu.  Meðfram sjálfu mótinu munu verða haldnir nokkrir skemmtilegir skákviðburðir.

Fyrsti viðburðurinn og ef til vill sá merkilegasti verður þegar Úkraínumaðurinn  Evgenij Miroshnichenko mun reyna að tefla við 10 skákmenn í einu og það blindandi! Það verður fjölbreyttur hópur skákmanna og kvenna sem mun tefla við ÚkraínuIMG 1159manninn. Fyrst skal nefna hinu ungu skákkrakka Vigni Vatnar Stefánsson, Nansý Davíðsdóttir og Mykael Krawchuk. Vignir og Nansý hafa vakið mikla athygli að undanförnu fyrir sigra sína við skákborðið og Mykael stendur þeim ekki langt að baki og er jafnframt ættaður frá Úkraínu. 

Íslendingar eiga margar glæsilegar skákdrottningar og fulltrúar kvennalandsliðsins munu reyna að máta ofurstórmeistarann. Margt er líkt með skák og stjórnmálum; Guðfríður Lilja, Halldór Blöndal og Óttarr Proppé verða fulltrúar pólitíkusa en í þeirra röðum hafa margoft leynst sterkir skákmenn.

Hermann GunnarssonSíðastan en langt frá því að vera sístan skal nefna hinn þekkta skákskýranda og gleðipinna Hermann nokkurn Gunnarsson en Hemmi er býsn sterkur skákmaður og fróðlegt að fylgjast með hvort honum takist að leggja stórmeistarann að velli.

Fjölteflið fer fram í MP-banka Ármúla 13a - þriðjudaginn 8. mars kl. 16:30 til ca. 19:00, degi áður en Reykjavík-Open hefst.

Allir eru velkomnir til að horfa á fjölteflið og er aðgangur ókeypis.  


 

 


Þröstur með 1,5 vinning í dag

Þröstur ÞórhallssonStórmeistarinn Þröstur Þórhallsson (2367) hlaut 1,5 vinning í 2 skákum dagsins í opnum flokki London Chess Classic.  Í fyrri skák dagsins vann hann stigalágan andstæðing og í þeirri síðari gerði hann jafntefli við enska alþjóðlega meistarann Craig Hanley (2428).   Þröstur hefur 5 vinninga og er í 10.-27. sæti. Í áttundu og næstsíðustu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Þröstur við enska stórmeistarann Keith Arkell (2431).  Frí var í aðalmótinu í dag.

Efstir með 6 vinninga eru stórmeistararnir Boris Avrukh (2625), Ísrael, og Gawain Jones (2575), Simon Williams (2493) og Daniel Gormally (2470).

Almennt um mótin:

Þátt taka 8 skákmenn og eru meðalstig keppenda 2725 stig.   Stigahæstur keppenda er Anand (2804) en aðrir þátttakendur eru Carlsen (2802), Kramnik (2791), Nakamura (2741) og svo Englendingarnir Adams (2723), Short (2680), McShane (2645) og Howell (2611).  Þröstur Þórhallsson (2367) tekur þátt í FIDE Open, sem er viðburður sem fram fer samhliða.   Þar tefla 175 skákmenn og þar af 11 stórmeistarar.   Meðal keppenda eru Boris Avrukh (2675), Ísrael, Abhijeet Gupta (2600), Indlandi, sem var meðal sigurvegara á MP Reykjavíkurskákmótinu síðasta og Gawain Jones (2575).   Englandi.   Þröstur er nr. 29 í stigaröð keppenda.



Unglingameistaramót Íslands (20 ára og yngri) fer fram næstu helgi

Unglingameistaramót Íslands 2010 fer fram í Álfabakka 14a, Mjóddinni, Reykjavík dagana 6. og 7. nóvember nk.  Þátttökurétt eiga þeir sem verða 20 ára á almanaksárinu og yngri.

Sigurvegari á mótinu hlýtur titilinn “Unglingameistari Íslands 2010” og í verðlaun farseðil (á leiðum Icelandair) á skákmót erlendis.

Umferðatafla:            

  • Laugardagur 6. nóv.               kl. 13.00          1. umferð
  •                                              kl. 14.00          2. umferð
  •                                              kl. 15.00          3. umferð
  •                                              kl. 16.00          4. umferð
  • Sunnudagur 7. nóv.                kl. 11.00          5. umferð
  •                                              kl. 12.00          6. umferð
  •                                              kl. 13.00          7. umferð

 

Tímamörk:  25 mín á keppanda

Þátttökugjöld:  kr. 1.000.- (hámark kr. 1.500 á fjölskyldu)

Skráning: http://www.skak.is og skaksamband@skaksamband.is 


Hannes með jafntefli í fjórðu umferð

Frá mótinu í St. PétursborgStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2585) gerði jafntefli við rússneska alþjóðlega meistarann Roman Lovkov (2414) í 4. umferð minningarmótsins um Chigorin sem fram fór í St. Pétursborg í dag.   Hannes hefur 3 vinninga og er í 21.-55. sæti.  Í fimmtu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hannes við Rússa eins í öllum umferðunum hingað til.  Að þessu sinni við alþjóðlega meistarann Aleksey Goganov (2478).

Efstir með fullt hús eru stórmeistararnir Ivan Sokolov (2641), Bosníu, og Boris Savchenko (2627), Rússlandi.

Sigurskákir Hannesar úr 1. og 2. umferð fylgja með fréttinni en skákir 3. og 4. umferðar eru ekki ekki enn aðgengilegar.  

Mótið í St. Pétursborg er sautjánda minningarmótið um Chigorin.   Mótið er ægisterkt en 61 stórmeistari tekur þátt og styrkleika mótsins má sjá á því að Hannes er aðeins númer 31 í stigaröð keppenda.  23 skákmenn hafa meira en 2600 skákstig.  Opinn skákmót gerast vart sterkari en þetta en alls eru 274 skákmenn skráðir til leiks.  Stigahæstur keppenda er úkraínski stórmeistarinn Anton Korobov (2670).   Meðal annarra keppenda má nefna Íslandsvinina Alexey Dreev (2649), Ivan Sokolov (2641) og Yuriy Kuzubov (2628).

Heimasíða mótsins


Rewind to the beginningOne move backFlip the boardShow moves paneShow commentsPlay one moveFast-forward to the end
Stefansson, Hannes - Mirzoeva, Elmira
2585 - 2239
M.Chigorin Memorial 2010, 2010.10.28

Stefansson, Hannes - Mirzoeva, Elmira (PGN)

1. c4 Nf6 2. Nf3 g6 3. Nc3 Bg7 4. g3 O-O 5. Bg2 d6 6. d4 Nbd7 7. O-O e5 8. e4 c6 9. b3 exd4 10. Nxd4 Re8 11. h3 Nc5 12. Re1 Qa5 13. Bb2 Qb6 14. Rb1 a5 15. Ba1 Bd7 16. Kh2 Re7 17. Nc2 Qc7 18. Ne3 Rae8 19. Nb5 Qb8 20. Nxd6 Rd8 21. e5 Ne8 22. f4 Be6 23. Bd4 Nxd6 24. Bxc5 Nf5 25. Nxf5 Rxd1 26. Nxe7+ Kh8 27. Rbxd1 Bf8 28. Bd6 Qe8 29. Nd5 cxd5 30. cxd5 Bd7 31. Bxf8 Qxf8 32. e6 Qd6 33. exd7 Qxd7 34. d6 Kg7 35. Re7 Qb5 36. d7 1-0

Skákþáttur Morgunblaðsins: Kvennaliðið stóð sig vel á Ólympíumótinu

100 1648Íslenska liðið sem tefldi í kvennaflokki á Ólympíumótinu í Khanty Manyisk í Síberíu hafnaði í 57. sæti af 115 þátttökuþjóðum, hlaut 22 vinninga af 44 mögulegum eða 50% vinningshlutfall. Í Dresden í Þýskalandi varð sveitin í 60. sæti. Allar stúlkurnar í sveitinni voru að bæta árangur sinn og sveitin varð að lokum 12 sætum ofar en röðun fyrir mótið úthlutaði. Lenka Ptacnikova hlaut 8½ v. af 11 á 1. borði sem reiknast sem 20 skáka áfangi að alþjóðlegum meistaratitli, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hlaut 5½ vinning af 11 á 2. borði, Sigurlaug Friðþjófsdóttir hlaut 2½ v. af átta mögulegum á 3. borði, Tinna Kristín Finnbogadóttir fékk 3 v. af sjö mögulegum á 4. borði og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sem var 1. varamaður, hlaut 2½ v. af sjö mögulegum.

Niðurstaðan gefur tilefni til að stefna enn hærra á næstu mótum. Hallgerður sem tefldi allar skákirnar ellefu stóð sig vel og á heilmikið inni. Tinna og Jóhanna voru nýliðar í hópnum og áttu slæman kafla um miðbik mótsins þar sem einbeitnin var ekki nógu góð.

Hin nýja kynslóð tekur þarna við keflinu af skákkonum á borð við Guðlaugu Þorsteinsdóttur, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Hörpu Ingólfsdóttur. Þó er alls ekki útilokað og raunar óskandi að þessar þrjár snúi aftur og fleiri til sem myndi þýða að í dag ættum við mjög frambærilegan hóp kvenna á alþjóðlegum vettvangi.

Á síðustu Ólympíumótum hafa sveitir frá Georgíu og Kína verið atkvæðamiklar í keppninni um efsta sætið en nú var rússneska sveitin var gjörsamlega óstöðvandi og vann allar viðureignir sínar og var því með fullt hús stiga og 34 vinninga. Lokaniðurstaða efstu þjóða varð þessi:

1. Rússland 22 stig 2. Kína 18 stig 3. Georgía 16 stig 4. Kúba 16 stig 5. Bandaríkin 16 stig.

Athygli vekur góð frammistaða Kúbverja en þeir áttu einnig öfluga sveit í karlaflokki. Lengi geta þeir sótt í arf þriðja heimsmeistarans, Jose Raoul Capablanca.

Íslenska kvennaliðið var í raun án liðsstjóra því Davíð Ólafsson sem hafði tekið hlutverkið að sér forfallaðist á síðustu stundu. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, sem sat þing FIDE hljóp í skarðið að einhverju leyti en segja má að þarna hafi Lenka Ptacnikova tekið að sér forystuhlutverkið. Hún tefldi af miklum þrótti og hikaði ekki við að taka djarfar ákvarðanir yfir skákborðinu eins og eftirfarandi skák ber vott um:

Lenka Ptacnikova – Eva Repkova (Slóvakía )

Frönsk vörn

1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5 Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4 Dd6 7. 0-0 Rf6 8. Rb3 Rc6 9. Rbxd4 Rxd4 10. Rxd4 a6 11. He1 Dc7 12. De2 Bd7 13. Bg5 0-0-0 14. a4 Bc5 15. c3 h5

Hér var betra að leika 15.... h6.

16. b4 Bd6 17. h3 e5

gc4mhdms.jpgSjá stöðumynd

18. Rb5!

Mannsfórn ber vott um sókndirfsku og sjálfstraust. Hvítur gat einnig leikið 18. Rf3 og hefur þá góða stöðu.

18.... axb5 19. axb5 Bf5 20. b6 Dxb6 21. Be3 Dc7 22. Bb5! Rd7

22.... Kb8 má svara með 23. Ha7 með sterkri sókn eftir a-línunni.

23. Ha8 Rb8 24. Ba7 Dxc3 25. Be3!

Og nú á svartur enga vörn við hótuninni 26. Hc1.

25.... Bc7 26. Hc1 Dxc1 27. Bxc1 Hd6 28. Be3 Hhd8 29. Ba4 Hg6 30. Dxh5 Be4 31. f3 Bd3 32. Bb3 Hd7 33. Dh8+ Hd8 34. Dh4 f5 35. Bg5 Bb6 36. Kh1 Hf8 37. Be7 Bf1 38. Ha2 Bd8 39. Dh7 Hh6 40. Dxg7 Hfh8 41. Bxd8 Kxd8 42. Hd2+

- og svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku síðar en í blaðinu sjálfu.  

Grein þessi birtist í sunnudagsmogganum, 17. október 2010.

Skákþættir Morgunblaðsins


Skákþáttur Morgunblaðsins: Allgott gengi íslensku liðanna á Ólympíumótinu í Khanty Manyisk

Eftir gott gengi íslensku liðanna á Ólympíumótinu í Khanty Manyisk í Síberíu kom bakslag í níundu umferð. Þá tapaði karlasveitin fyrir sveit Chile og kvennasveitin fyrir Mongólíu. Þrátt fyrir það náðist einn áfangi í þeirri umferð þegar Lenka Ptacnikova innsiglaði áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Áður hefur hún verið sæmd stórmeistaratitli kvenna. Hún hefur farið fyrir hinni ágætu íslensku kvennasveit og hlotið 7 vinninga úr níu skákum en sveitin hefur sjaldan eða aldrei náð jafn góðum árangri en féll við tapið í 57. sæti af 115 þátttökuþjóðum. Rússneska sveitin er langefst eftir níu umferðir og hefur tryggt sér sigur á mótinu.

Eitthvað vantar upp á stöðugleikann hjá körlunum. Þó hefur sveitin teflt fimm viðureignir án taps og Hannes Hlífar er að ná góðum árangri. Gremjulegt var tapið fyrir Chile í 9. umferð eftir stórsigur Íslands yfir Perú 3 ½ : ½ í umferðinni á undan. Þar tókst Hannesi að ná fram hefndum gegn fremsta skákmanni Perú, Granda Zuniga. Á Ólympíumótinu í Bled 2002 tapaði hann eftir langa og eftirminnilega baráttu sem stóð í um 90 leiki. Gunnar Eyjólfsson var hrifinn af þeirri einstöku rósemi sem kom yfir þennan geðuga bónda þar sem hann sat og lék undir mikilli tímapressu. Hvorki datt né draup af Granda hvað sem á gekk, og var stórleikarinn Gunnar sannfærður að hann hlyti að hafa tileinkað sér chi-gong eða orðið fyrir trúarlegri reynslu nema hvort tveggja væri. Hið síðarnefnda mun vera staðreynd.

Í baráttunni um efsta sætið í opna flokkun stendur sveit Úkraínu fremst og er það ekki síst þakka hinum frábæra 1. borðs manni þeirra Vasilí Ivantsjúk sem gerði sér lítið fyrir og vann sex fyrstu skákir sínar. Hrein unun er að fylgjast með taflmennsku hans. Minna ber á norsku stórstjörnunni Magnúsi Carlsen sem ekki hefur náð sér á strik og hefur tapað tveimur skákum.

Staða efstu þjóða er þessi:

1. Úkraína 16 stig. 2. - 3. Rússland og Frakkland 15 stig. 4. - 6. Ísrael, Kína og Bandaríkin 14 stig.

Íslenska sveitin féll við tapið fyrir Chile niður í 50. sæti. Fyrir liggur að þó íslenska sveitin hafi unnið marga góða sigra stendur allt og fellur með genginu í lokaumferðunum tveimur. Í viðureigninni við Sviss, sem vannst 3:1, hleypti Bragi Þorfinnsson öllu í bál og brand með tveim peðsleikjum, 15. ... g5 og 17. .... g4.

Roland Ekström - Bragi Þorfinnsson

Slavnesk vörn

1. c4 Rf6 2. Rf3 c6 3. d4 d5 4. e3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Rh4 Bg6 7. Bd2 Rbd7 8. Be2 dxc4 9. Rxg6 hxg6 10. Bxc4 Be7 11. Dc2 Hc8 12. h3 a6 13. O-O c5 14. dxc5 Bxc5 15. Bb3 g5 16. f3 Dc7 17. Hf2 g4 18. fxg4 Re5 19. Re4 Hér var best að leika 19. g5! Rfg4 20. Bxe6 fxe6 21. hxg4 og 21. ... Rxg4 strandar á 22. Da4+ og vinnur. En svartur 22... Hh4 með góðum færum.

19. ... Rfxg4! 20. He2

gu1mfc8q.jpgSjá stöðumynd

20. .. Rd3!

Jafnvel enn magnaðri leikur var 20. ... Rc4!

21. g3 Rge5 22. Rxc5 Rxc5 23. h4 Dc6 24. e4 Rf3+ 25. Kg2 Rd4 26. Bd5 Dd7

Einfaldara var 26. ... Rxc2 27. Bxc6+ Hxc6 og vinnur létt.

27. Dc3 Rxe2 28. Dxg7 Hf8 29. Bh6 De7 30. He1 exd5 31. exd5 De4+ 32. Kh2 Kd7 33. Bf4 Df3 34. De5 Df2+ 35. Kh3 Rxf4+ 36. gxf4 Df3 37. Kh2 Df2 38. Kh3 Hce8 39. Df5 Kd8 40. Df6 Kc8

- og hvítur gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku síðar en í blaðinu sjálfu.  

Grein þessi birtist í sunnudagsmogganum, 3. október 2010.

Skákþættir Morgunblaðsins


Eyjamenn efstir eftir fyrstu umferð

img_6337.jpgTaflfélag Vestmannaeyja leiðir eftir fyrstu umferð Íslandsmót skákfélaga eftir 8-0 stórsigur á Skákdeild KR.    Taflfélag Bolungarvíkur er í 2. sæti eftir 6½-1½ sigur á Fjölni og Hellismenn eru í þriðja sæti eftir 6-2 sigur á Taflfélagi Reykjavíkur.    Önnur umferð fer fram í fyrramálið í Rimaskóla og hefst kl. 11.   B-sveit Bolvíkinga leiðir í 2. deild, Víkingaklúbburinn í þriðju deild og Kórdrengirnir og B-sveit Selfyssinga í fjórðu deild. 

Í upphafi keppninnar var Lenka Ptácníková heiðruð fyrir Lenkafrábæran árangur sinn á Ólympíuskákmótinu í  Síberíu og Gunnar Björnsson, forseti SÍ, upplýsti að stjórn SÍ hafi ákveðið í tilefni þess árangurs að senda Lenku á EM einstaklinga í kvennaflokki sem fram fer í Istanbul á næsta ári.  

Úrslit 1. umferðar í 1. deild:


Fjolnir ATB A:
Hellir ATR A6:2
Haukar ASA A:
TV AKR A8:0


Staðan í 1. deild:

 

Rk.TeamTB1
1TV A8
2TB A6,5
3Hellir A6
4SA A4,5
5Haukar A3,5
6TR A2
7Fjolnir A1,5
8KR A0


Staðan í 2. deild:

 

Rk.TeamTB1
1TB B6
2Matar5
3TR B4
4Hellir B3,5
5TA2,5
6SSON2
7SR A1
8Haukar B0


Staðan í 3. deild:

 

Rk.TeamTB1TB2
1Vikingaklubburinn A26
2TV B25
3Godinn A25
4TR C24,5
5SR B24,5
6KR B23,5
7TG A23,5
8TG B13
9Hellir D13
10Hellir C02,5
11SA B02,5
12SA C01,5
13TB C01,5
14Sf. Vinjar A01
15Haukar C01
16TV C00


Staðan í 4. deild:

 

Rk.TeamTB1TB2
1Kordrengirnir26
2SSON B26
3Godinn B25,5
4SFÍ25,5
5TV D25
6Sf. Sauðarkroks24
7SA D24
8Fjolnir C24
9Fjolnir B23,5
10Vikingaklubburinn B23,5
11S.Austurlands23,5
12Godinn C13
13TR E13
14UMSB02,5
15UMFL02,5
16TR D02,5
17Hellir E02
18Sf. Vinjar B02
19TG C01
20Fjolnir D00,5
21Aesir feb00,5
22TV E00
23Osk00


Upplýsingar um pörun í 3. og 4. deild á morgun má nálgast á Chess-Results.

 


Ól í skák: Lokapistill

copy_of_l_i_skak_2010_100.jpgÓlympíuskákmótið endaði mjög vel en íslensku sveitirnar unnu báðar 3-1 í lokaumferðinni.   Sveitin í opnum flokki vann Rússland 5 en stelpurnar unnu Jamaíka í spennuþrunginni viðureign þar sem heyra mætti æsta stuðningsmenn Jamaíka stynja  og dæsa þegar Lenka bjargaði sér fyrir horn í lokin.  

Hjörvar hvíldi hjá strákunum.   Bræðurnir Bragi og Björn unnu góða sigra á 3. og 4. borði en stórmeistararnir Hannes og Héðinn gerðu jafntefli.   Hannes með svörtu á fyrsta borði.   Héðinn mun líklega haft vinningsstöðu um tíma.    Góð úrslit og fertugasta sætið staðreynd.   Til samanburðar endaði liðið í Dresden 2008 í 64. sæti, þá með 4 stórmeistara innanborðs en nú tefldu tveir með sveitinni.   Besti árangur síðan í Bled 2002.   Það urðu Þjóðverjar sem erfðu hið beiska 64. sæti!

Miklar umræður urðu í aðdraganda mótsins um val á liðinu en Helgi Ólafsson, landsliðsþjálfari, hafði 100 1649lagt til að Henrik yrði ekki valinn og stjórn SÍ ákvað að gefa Helga býsna frjálsar hendur um val á liðinu.   Helgi getur verið stoltur af sínum árangri og ljóst að strákarnir voru mjög ánægðir með liðsstjórn Helga.   Liðinu var raðað nr. 54 fyrir mót, endar 14 sætum fyrir ofan það og 24 sætum ofar en í Dresden.   Allir meðlimir sveitarinnar hækka á stigum en til samanburðar lækkuðu allir á stigum í Dresden.

Sú stefna sem stjórn SÍ valdi, að ráða landsliðsþjálfara, leggja mun meiri áherslu á undirbúning, skilaði sér því með góðum árangri beggja liða og miklum framförum frá síðustu mótum.  

Skoðum árangur sveitarmiðlima:

1.       Hannes Hlífar Stefánsson, 6,5 v. af 11 - hækkar um 2 skákstig

2.       Héðinn Steingrímsson, 6 v. af 10 - hækkar um 4 stig

3.       Bragi Þorfinnsson, 5,5 v. af 9 - hækkar um 12 stig

4.       Björn Þorfinnsson, 4,5 v. af 7 - hækkar um 4 stig

5.       Hjörvar Steinn Grétarsson, 4 v. af 7 - hækkar um 2 stig

Samtals hækka sveitarmeðlimir um 24 stig sem samsvarar því að íslenska sveitin fékk um 2,5 vinningi meira en gera hefði mátt fyrir mót.  

Viðureign kvennasveitarinnar í lokaumferðinni varð ekki síður æsileg.   Til að byrja með leit _l_i_skak_2010_106.jpgviðureignin vel út.   Bæði Hallgerður og Jóhanna unnu örugga sigra, Sigurlaug hafði góða stöðu og lék af sér og tapaði.   Lenka tefldi æsilegustu skák umferðarinnar.   Hún fékk betra en tefldi ónákvæmt og skyndilega var staðan á borðinu orðin hrikalega spennandi og Lenka gat hæglega tapað.   Ég var eini Íslendingurinn sem eftir var en þarna voru örugglega um 8-10 Jamaíkabúar sem voru á nálum enda væntanlega hafði þetta verið einn þeirra besti árangur ef þeir hefðu náð 2-2 jafntefli.   Lenka lék einu sinni þegar hún átti 1 sekúndu eftir og heyrði ég þá vonbrigðastunurnar fyrir aftan mig.   Ekki urðu þær minni þegar Lenka snéri á Jamaísku.   Þegar Lenka hafði unnið ákvað ég að sýna mikla hógværð í virðingaskini við þessu stuðningsmenn.  

Allir meðlimir kvennasveitarinnar hækka á stigum - sem er auðvitað frábært.   Ekki síst vegna þess að Davíð Ólafsson, sem átti að verða liðsstjóri þeirra, forfallaðist  aðeins með sólarhringsfyrirfara.   Ég hljóp í skarðið með skömmum fyrirvara en get auðvitað ekki sinnt starfinu af sama mætti og Davíð hefði gert, m.a. annars vegna FIDE-þingsins, auk þess sem skáklegi grunnur minn er miklu lélegri.   Davíð reyndist okkur stelpunum þó mikill hjálparkokkur.   Hann talaði við stelpurnar á Skype og gaf þeim góð ráð.   Helgi aðstoðaði einnig stelpur eftir mætti.   Stelpurnar þurftu svo eðli málsins að taka meira af skarið sjálfar en ella.   Virkilega vel af sér vikið hjá þeim.   T.d. var ég upptekinn í tvo daga vegna FIDE-þings og þá áttu þær góð úrslit.   Ákveðið var að sú sem myndi klárast næstsíðast myndi ekki fara heldur veita síðustu skákkonunni stuðning með því að vera áfram.  

Skoðum árangur sveitarmiðlima:

1.       Lenka Ptácníková, 8,5 v. af 11 - hækkar um 36 stig

2.       Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, 5,5 v. af 11 - hækkar um 13 stig

3.       Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, 2,5 v. af 8 - hækkar um 16 stig

4.       Tinna Kristín Finnbogadóttir , 3 v. af 7 - hækkar um 1 stig

5.       Jóhanna Björg Jóhansdóttir, 2,5 v. af 7 - hækkar um 21 stig

Sveitarmeðlimir hækka um 87 stig!   Það þýðir að sveitin hafi fengið u.þ.b. 6 vinningum meira en hún hefði átt að fá samkvæmt stigum.  Ég ætla að nefna sérstaklega hana Lenku sem var sannkallaður leiðtogi í góðum hópi.   Hún tapaði í fyrstu umferð en eftir það tapaði hún ekki skák og vann sex skákir í röð.  Maður er virkilega stoltur af stelpunum og Davíð landsliðsþjálfara sem undirbjó liðið greinilega mjög vel fyrir átökin!

Í norðurlandakeppninni hafnaði sveitin í opnum flokki í þriðja sæti.   Danir unnu þá keppni en það var með fáranlegum endaspretti og í raun og veru án þess að vera mjög sannfærandi.   Sune Berg varð líka hálfvandræðalegur þegar við óskuðum honum til hamingju og sagði að sem betur fer væri mótið ekki lengra!   Svíar urðu aðrir, Norðmenn sem voru með stigahæsta liðið urðu aðeins fjórðu, Magnus Carlsen, náði sér aldri á strik og tapaði þremur skákum.   Finnar urðu fimmtu og Færeyingar sjöttu. 

Danir og Íslendingar urðu mun ofar en stigin gerðu ráð fyrir, Svíar, Finnar og Færeyingar u.þ.b. á pari en Norðmenn lægri.

Lokastaðan í opnum flokki:

  • 19 (44) Danmörk, 15 stig (257,5)
  • 34 (34) Svíþjóð, 13 stig (277)
  • 40 (54) Ísland, 13 stig (257,5)
  • 51 (23) Noregur, 12 stig (274,5)
  • 59 (60) Finnland, 12 stig (218)
  • 80 (83) Færeyjar, 11 stig (185,5)

Þrátt fyrir góða lokaniðurstöðu kvennaliðsins dugði það ekki þriðja sæti.   Svíar unnu þá keppni, Danir urðu aðrir, Norðmenn þriðju, þrátt fyrir að vera þar einnig stigahæstir.   Íslendingar voru skammt á eftir og getum vel við unað.   Liðið lenti í efri helmingi mótsins.   Þrjár af stúlkunum eru undir tvítugu þannig að lið Íslands ætti bara að styrkjast næstu ár.

Lokastaðan í kvennaflokki:

  • 41 (55) Svíþjóð, 12 stig (244,5)br
  • 45 (57) Danmörk, 12 stig (200,5)
  • 53 (45) Noregur, 11 stig (204)
  • 57 (69) Ísland, 11 stig (201)

Garry og illa einbeittur á hægri höndÁ ýmsu gekk á FIDE-þinginu.   Eftir .þennan eina FIDE-þing sem ég hef setið er ég sannfærður um að Kirsan sé afar gáfaður einstaklingur með mjög sterka nærveru.   Menn geta svo deilt um siðferðið á bakvið ýmislegt sem hann hefur gert.   Kosningarnar og framkoma Kasparov er það sem stendur upp úr í minningunni.   Að sumra mati tapaði Karpov allt að 10 atkvæðum við þennan hamagang.   Það er ljóst að það réði þó aldrei úrslitum.  

Silvio Danilov kom sá og sigraði í Evrópu-kosningunum, eitthvað sem fáir áttu von á fyrir nokkrum mánuðum síðan.   Vonbrigði Ali voru mikil og virtist að einhver leiti kenna Norðmönnum um ófarir sínar og taldi að Norðmenn hafi haft áhrif á hinar Norðurlandaþjóðirnar.   

Sjálfur náði ég góðu sambandi við ýmsa þarna sem vonandi skilar sér í auknum tengslum í framtíðinni.  Til dæmis gæti verið að okkur yrði boðið að taka þátt í Smáþjóðarleikunum.   Ef við þiggjum það boð er þó ljóst að við munum aldrei senda okkar a-lið.     Ég nefndi þann kost við menn úti að Ísland myndi senda u-20 lið og var tekið vel í það.   Nefnt var mig hvort Ísland hefði áhuga að taka þátt í Commonwelth-móti.   Ég bíð eftir frekari upplýsingum.   Ég ræddi við hina Norðurlandaþjóðirnar um útfærslur á því að þjóðirnar myndi bjóða t.d. fulltrúum hinna Norðurlandanna á sín helstu opnu mót (Reykjavíkurmótið, Rilton Cup, Artic Open og Politiken Cup) og var vel tekið í það skoða það og við ætlum að ræða það betur síðar.   Ýmsir eins og t.d. Írar, Pólverjar og Tyrkir sýndu Reykjavíkurskákmótinu mikinn áhuga.   

Aðstæður allar í Khanty Mansiysk voru allar til fyrirmyndar og mun betri en menn áttu von á.   Helgi 100 1648talaði um að þetta væru bestu aðstæður síðan í Manila 1992.    Skipulagning heimamanna að öllu leyti til fyrirmyndar.   Lögreglumenn voru á öllum gatnamótum og höfðu t.d. rúturnar sem fluttu okkur á milli ávallt forgang.   Aldrei þurfti að bíða eftir rútu nema um stutta stund.   Fluttir voru inn starfsmenn frá St. Pétursborg til að vinna á hótelum, fólk sem talaði góða ensku.     Öll liðin höfðu svokallaðan „tudor" eða aðstoðarmann.   Okkar aðstoðarmaður var hún Natalyia, tvítug stúlka í tungumálanámi frá nágrannaborg Khanty, stóð sig með miklum sóma sem okkar aðstoðarmaður.   Liðin voru misheppin einn mikill Íslandsvinur sagði við mig í miklum öfundartón að þeirra aðstoðarmaður væri „some stupid boy".  

Góður andi var í hópunum og mikið hlegið og haft gaman.   Skákmennirnir voru hraustir þrátt fyrir smá magapestir og einstaka hálsbólgur.    

Þegar mótinu lauk mót bauð fararstjórinn liðsmönnum út að borða   Sumir kusu reyndar fremur að fara á verðlaunaafhendinguna sem aðrir höfðu engan áhuga á að fara á.  

Mín reynsla eftir þetta er að SÍ þarf helst að senda 3 menn út með liðunum í framtíðinni, eins og til stóð.  Að hafa tvo menn er mjög knappt.  

Ferðalagið heim var erfitt og strangt og þegar ég er að klára þennan pistil hef ég verið á fótum í nærri 40 tíma samfellt.   Sumir sváfu reyndar eins og englar í fluginu og mátti t.d. sjá tvo stórmeistara nánast í faðmlögum í vélinni heim.  

Ég vil að lokum þakka fyrir allar baráttukveðjurnar sem við fengum!

Kveðja,
Gunnar Björnsson


Skákþáttur Morgunblaðsins: Ólympíumót á slóðum loðfílanna

Að heimsmeistaranum Anand undanskildum eru allir bestu skákmenn heims samankomnir á ólympíuskákmótinu í í Khanty Manyisk í Síberíu sem hófst á þriðjudaginn. Hér spranga um sali meistarar á borð við Vladimir Kramnik, Venselin Toplaov, Levon Aronjan, Boris Gelfand, Peter Leko, Hikaru Nakamura og Judit Polgar. Enginn er þó jafn vel klæddur og stigahæsti skákmaður heims, Norðmaðurinn Magnús Carlsen sem nýverið hefur hafið störf fyrir þekktan framleiðenda tískufatnaðar. Ýmsum finnst támjóu rú-skinnsskórnir hans býsna svalir. Að loknum þrem umferðum hefur karlasveitin, sem er skipuð Hannesi Hlífari Stefánssyni Héðni Steingrímssyni, bræðrunum Braga og Birni Þorfinnssonum og Hjörvar Steini Grétarssyni, unnið eina viðureign, gert jafntefli og tapað einni. Kvennasveitin sem er skipuð Lenku Ptacnikovu, Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur, Sigurlaugu Friðþjófsdóttur, Tinnu Kristínu Finnbogadóttur og Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur hefur unnið eina viðureign og tapað tveimur. Tefldar verða ellefu umferðir. Nú skipta stigin úr hverri viðureign höfuðmáli. Karlasveitin er með þrjú stig og sjö vinninga en konurnar 2 stig og fimm vinninga.

Greinarhöfundur er í fyrsta sinn í hlutverki liðsstjóra íslenska liðsins og er það í sjálfu sér ágætis tilbreyting. Samanburður við framkvæmd annarra Ólympíumóta er staðarhöldurum hagstæður.

Íbúar Khanty Manyisk munu vera um 70 þúsund og er þetta uppgangspláss sakir mikils olíuauðs. Mikið um stórframkvæmdir og flest nýtt af nálinni, hótelinu var komið upp síðustu dagana og skipuleggjendur hafa greinilega kostað miklu til að allt fari vel fram. Öldum fyrr rigsuðu um steppurnar í grennd við þennan bæ hinir forsögulegu loðfílar, löngu útdauð tegund sem er höfð í miklum metum hér og mega heita einkennisdýr Khanty Manyisk.

Þó keppnin sé komin of stutt á veg til þess að hægt sé að draga víðtækar ályktanir þá hafa hér orðið ýmis óvænt úrslit. Kínverjar eru næsta stórveldi skákarinnar stóð einhvers staðar og það er örugglega rétt, en hvað getur maður sagt um granna þeirra í Víetnam sem hafa unnið allar viðureignir sínar, þar af eina sterkustu sveitina frá Azerbadsjan? Hollendingar eru með þétta sveit og þar vekur mesta athygli undrabarnið Giri sem er líklegur til mikilla afreka í framtíðinni. Hann er einn þeirra sem virðast ekkert hafa fyrir því að tefla. En í fyrstu umferð tapaði Hollendingur, sem mikið hefur verið látið með, fyrir einum af minni spámönnunum sem er frá Dóminíska lýðveldinu.

Ol Khanty Manyisk 2010 – 1. umferð:

Jan Smeets – Lisandro Munoz

Sikileyjarvörn

1.e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. g3 a6 7. Bg2 d6 8. O-O Bd7 9. Rb3 b5 10. a4 b4 11. Re2 Rf6 12. a5 e5 13. c3 Be6 14. Bg5 Hb8 15. Hc1Be7 16. Rbd4?!

Snotur leikur á yfirborðinu en svartur á einfalda vörn.

16. .. . Rxd4 17. cxd4 Dxa5 18. Dd3 Bd7!

Riddarinn á e2 er vandræðagripur.

19. Hfe1 Bb5 20. Db3 O-O 21. Ha1 Dc7 22. Da2 h6 23. Bd2 Dc2 24. b3 Hfc8 25. Rc1 exd4 26. Bxb4 Rg4 27. Bh3

ga0me9n0.jpg( STÖÐUMYND )

27. ... Re5!

Bráðsnjall leikur sem gerir út um taflið.

28. Bxc8 Rf3+ 29. Kh1 Rxe1 30. Bf5 Dd1 31. Re2 Dxe2 32. Bxe1

32. Dxe2 Bxe2 33. Bxe1 var skárra en gjörtapað engu að síður.

32. ... Df1 mát!

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku síðar en í blaðinu sjálfu.  

Grein þessi birtist í sunnudagsmogganum, 26. september 2010.

Skákþættir Morgunblaðsins


Góðir sigrar í lokaumferðinni - góð lokaniðurstaða íslensku liðanna

copy_of_l_i_skak_2010_100.jpgBæði íslensku liðanna unnu góða 3-1 sigra í lokaumferð Ólympíuskákmótsins sem fram fór í dag.   Strákarnir unnu Rússland 5 þar sem bræðurnir Bragi og Björn Þorfinnssynir unnu báðir góða sigra.    Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson gerðu jafntefli.   Lenka Ptácníková, _l_i_skak_2010_106.jpgHallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir unnu.   Liðið í opnum flokki endaði í 40. sæti sem er besti árangur síðan í Bled 2002.   Íslenska kvennaliðið endaði í 57. sæti sem er besti árangur síðan 2006.   Allir íslensku skákmennirnir, tíu talsins, hækka á stigum fyrir frammistöðu sína!

Úkraínumenn urðu Ólympíumeistarar í opnum flokki en Rússar í kvennaflokki. 

Nánar verður fjallað um árangur íslenska liðsins á síðar.


Rewind to the beginningOne move backFlip the boardShow moves paneShow commentsPlay one moveFast-forward to the end
Potapov, Pavel - Stefansson, Hannes
2464 - 2585
39th WCO, 2010.10.03

Potapov, Pavel - Stefansson, Hannes (PGN)

1. e4 c5 2. c3 Nf6 3. e5 Nd5 4. Nf3 d6 5. d4 cxd4 6. cxd4 e6 7. Bc4 Nb6 8. Bd3 Nc6 9. O-O Nb4 10. Be4 d5 11. Bd3 Nxd3 12. Qxd3 Be7 13. Nc3 Bd7 14. b3 O-O 15. a4 Bc6 16. Bd2 Re8 17. Rfc1 Nd7 18. Ne2 Nf8 19. b4 a6 20. Ne1 Qb6 21. Qb3 Rec8 22. Nd3 Qd8 23. Rc3 Be8 24. Rac1 1/2-1/2

Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 144
  • Frá upphafi: 8779037

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 114
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband