Bloggfærslur mánaðarins, september 2013
30.9.2013 | 21:20
EM ungmenna: Óskar Víkingur og Hilmir Freyr unnu í 2. umferð
Önnur umferð EM ungmenna fór fram í dag í Budva í Svartfjallalandi í dag. Óskar Víkingur Davíðsson (U8) og Hilmir Freyr Heimisson (U12) unnu sínar skákir. Óskar Víkingur hefur byrjað afskaplega vel og unnið báðar sínar skákir. Vignir Vatnar Stefánsson (U10) og Mikael Jóhann Karlsson (U18) gerðu báðir jafntefli. Vignir Vatnar hefur 1,5 vinning.
Bent er sérstaklega á skemmtilegt blogg Óskars Víkings sem fjallar einnig um aðstæður á skákstað.
Því miður eru fréttir takmarkaðar frá skákstað en netið virkar ekki ekki nógu vel á skákstað.
Úrslit annarrar umferðar:
Name | FED | Rtg | Result | Name | FED | Rtg |
Lominadze Giorgi | GEO | 0 | 0 - 1 | Davidsson Oskar Vikingur | ISL | 1379 |
Helmer Jan | GER | 1575 | ½ - ½ | Stefansson Vignir Vatnar | ISL | 1782 |
Steinthorsson Felix | ISL | 1513 | 0 - 1 | Psyk Radoslaw | POL | 1752 |
Heimisson Hilmir Freyr | ISL | 1742 | 1 - 0 | Pannwitz Kai | SCO | 1522 |
Thorgeirsson Jon Kristinn | ISL | 1824 | 0 - 1 | Fedotov Nikita | RUS | 2048 |
Kolka Dawid | ISL | 1666 | 0 - 1 | Tifferet Shaked | ISR | 1866 |
Tairi Krenar | MKD | 1864 | ½ - ½ | Karlsson Mikael Johann | ISL | 2068 |
Magnusdottir Veronika Steinun | ISL | 1577 | 0 - 1 | Thode Gilda | SUI | 1880 |
Staða íslensku keppendanna:
SNo | Name | RtgI | Pts. | Rk. | Group |
12 | Davidsson Oskar Vikingur | 1379 | 2.0 | 4 | Open8 |
12 | Stefansson Vignir Vatnar | 1782 | 1.5 | 31 | Open10 |
72 | Heimisson Hilmir Freyr | 1742 | 1.0 | 67 | Open12 |
108 | Steinthorsson Felix | 1513 | 0.0 | 115 | Open12 |
88 | Thorgeirsson Jon Kristinn | 1824 | 0.5 | 87 | Open14 |
108 | Kolka Dawid | 1666 | 0.0 | 105 | Open14 |
57 | Karlsson Mikael Johann | 2068 | 0.5 | 57 | Open18 |
59 | Magnusdottir Veronika Steinun | 1577 | 0.0 | 63 | Girls16 |
Mikael Jóhann teflir í flokki 18 ára og yngri, Jón Kristinn og Dawid í flokki 14 ára og yngri, Hilmir Freyr og Felix í flokki 12 ára og yngri, Vignir Vatnar í flokki 10 ára og yngri, Óskar Víkingur í flokki 8 ára og yngri og Veronika Steinunn í flokki stúlkna 16 ára og yngri. Fararstjórar og þjálfarar eru Helgi Ólafsson og Hjörvar Steinn Grétarsson.
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða íslenska hópsins
- Chess-Results (úrslit Íslendinga)
- Bloggsíða Óskars Víkings
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2013 | 13:45
Nýtt fréttaskeyti Skákakademíunnar
Nýtt Fréttaskeyti Skákakademíunnar er komið út. Meðal efnis er stórskemmtilegt viðtal við alþjóðlega meistarann Guðmund Kjartansson sem og yfirheyrslan yfir Birni Jónssyni formanni TR.
Fréttaskeytið fylgir með sem viðhengi.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2013 | 09:18
Yangyi Yu heimsmeistari unglinga
Heimsmeistaramót unglinga, 20 ára og yngri, kláraðist nýlega í Kocaeli í Tyrklandi. Íslandsvinir settu svip sinn á mótið enda lögum verðið eitt að keppikeflum Reykjavíkurskákmótsins að draga til landsins unga og efnilega skákmenn. Kínverjinn Yangyi Yu, sem tók í Reykjavíkurskákmótinu 2013, sigraði á HM. Hann hlaut 11 vinninga í 13 skákum. Annar varð Tyrkinn Alexander Ipatov, fráfarandi heimsmeistari, sem hefur tvívegis tekið hér þátt.
Perúmaðurinn Jorge Cori varð svo í 3.-4. sæti og Wei Yi varð í 4.-7. sæti en báðir hafa verið meðal þátttaka á Reykjavíkurskákmótinu. Wei Yi varð einmitt yngsti stórmeistari heims eftir síðasta Reykjavíkurmót.
Heimsmeistari kvenna varð rússneska stúlkan Aleksandra Goryachkikna. Í næstu sætum má finna nokkrar góðkunningja úr Reykjavíkurskákmótinu, þær Alina Kahlinskaya, Deysi Cori og Dinara Saduakassova.
29.9.2013 | 22:19
Áskell og Einar unnu Framsýnarmótið
Áskell Örn Kárason og Einar Hjalti Jensson unnu sigur á Framsýnarmóti Goðans Máta sem fram fór um helgina á Breiðumýri í Reykjadal. Þeir höfðu mikla yfirburði, gerðu jafntefli sín á milli og hlutu 6,5 vinning í 7 skákum. Þriðji varð Sigurður Eiríksson með 5 vinninga en hann gerði sér lítið fyrir og vann landsliðskonurnar Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur og Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur í lokaumferðunum tveimur. Haraldur Haraldsson varð í fjórða sæti með 4,5 vinninga og Smári Sigurðsson varð í 5. sæti einnig með 4,5 vinninga, eftir sigur á Stefáni Bergssyni í gær og jafntefli við Jón Þorvaldsson í dag.
Flest allir keppendur á Framsýnarmótinu 2013.
Lokastaðan.
1 | Kárason Áskell Örn | 2205 | SA | 6.5 | 30.0 | |
2 | FM | Jensson Einar Hjalti | 2305 | Goðinn-Mátar | 6.5 | 30.0 |
3 | Eiríksson Sigurður | 1940 | SA | 5.0 | 26.0 | |
4 | Haraldsson Haraldur | 2004 | SA | 4.5 | 30.5 | |
5 | Sigurðsson Smári | 1710 | Goðinn-Mátar | 4.5 | 26.0 | |
6 | Jóhannsdóttir Jóhanna Björg | 1911 | Hellir | 4.5 | 25.5 | |
7 | Jónsson Logi Rúnar | 1364 | SA | 4.5 | 22.5 | |
8 | Bergsson Stefán | 2131 | SA | 4.0 | 31.5 | |
9 | Þorvaldsson Jón | 2165 | Goðinn-Mátar | 4.0 | 31.5 | |
10 | Daníelsson Sigurður G | 2030 | Goðinn-Mátar | 4.0 | 29.5 | |
11 | Sigurðarson Tómas Veigar | 1982 | Víkingaklúbburinn | 4.0 | 29.0 | |
12 | Þorsteinsdóttir Hallgerður H | 1949 | Hellir | 4.0 | 26.5 | |
13 | Björgvinsson Andri Freyr | 1623 | SA | 4.0 | 26.5 | |
14 | Sigurðsson Jakob Sævar | 1805 | Goðinn-Mátar | 4.0 | 24.0 | |
15 | Björnsson Gunnar | 2102 | Hellir | 3.5 | 30.5 | |
16 | Þórhallsson Símon | 1588 | SA | 3.5 | 26.5 | |
17 | Aðalsteinsson Hermann | 1325 | Goðinn-Mátar | 3.5 | 22.0 | |
18 | Ragnarsson Heimir Páll | 1455 | Hellir | 3.5 | 21.5 | |
19 | Ásmundsson Sigurbjörn | 1191 | Goðinn-Mátar | 3.0 | 24.5 | |
20 | Karlsson Sighvatur | 1307 | Goðinn-Mátar | 3.0 | 21.0 | |
21 | Viðarsson Hlynur Snær | 1074 | Goðinn-Mátar | 3.0 | 20.0 | |
22 | Ingólfsson Eyþór Kári | 0 | Goðinn-Mátar | 3.0 | 17.5 | |
23 | Gunnarsson Ari Rúnar | 0 | Goðinn-Mátar | 3.0 | 16.0 | |
24 | Bessason Heimir | 1528 | Goðinn-Mátar | 2.5 | 25.0 | |
25 | Kristjánsson Bjarni Jón | 0 | Goðinn-Mátar | 2.5 | 23.5 | |
26 | Hermannsson Jón Aðalsteinn | 0 | Goðinn-Mátar | 2.5 | 16.5 | |
27 | Þórarinsson Helgi James | 0 | Goðinn-Mátar | 2.0 | 21.0 | |
28 | Statkiewicz Jakub | 0 | Goðinn-Mátar | 1.5 | 19.0 | |
29 | Aðalsteinsson Stefán Bogi | 0 | Goðinn-Mátar | 1.0 | 18.5 |
Verðlaunahafar. Haraldur, Áskell og Sigurður urðu efstir gesta, En Jón Þorvaldsson Einar Hjalti Jensson urðu efstir Goð-Máta. Á myndina vantar Smára Sigurðsson.
Alls tók 29 keppendur þátt í mótinu og þar á meðal voru nokkrir ungir skákmenn úr Þingeyjarsýslu sem settu svip sinn á mótið. Sumir þeirra voru að taka þátt í sínu fyrsta stóra skákmóti. Þeir fengu allir skákbækur í þátttökuverðlaun.
29.9.2013 | 21:10
Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur - Töfluröð keppenda
Töfluröð keppenda í Stórmeistaramóti Taflfélags Reykjavíkur er nú ljós en dregið var við upphaf fimmtu umferðar Gagnaveitumótsins fyrr í dag. Það verður TR-ingurinn og alþjóðlegi meistarinn Arnar E. Gunnarsson sem fær það erfiða hlutskipti að mæta úkraínska ofurstórmeistaranum Sergey Fedorchuk í fyrstu umferð sem hefst næstkomandi þriðjudag kl. 17.30. Meðfylgjandi mynd sýnir röð keppenda og þá má sjá heildarpörun með því að smella á Chess-Results hlekkinn hér að neðan.
29.9.2013 | 20:16
EM ungmenna: Vignir Vatnar og Óskar Víkingur unnu í fyrstu umferð
EM ungmenna hófst í dag í Budva í Svartfjallalandi. Átta íslenskir fulltrúar taka þátt í mótinu. Vignir Vatnar Stefánsson, sem teflir í flokki 10 ára og yngri, og Óskar Víkingur Davíðsson, sem teflir í flokki 8 ára og yngri, unnu sínar skákir. Jón Kristinn Þorgeirsson, sem teflir í flokki 12 ára og yngri, gerði jafntefli. Aðrar skákir töpuðust.
Takmarkaðar fréttir hafa borist frá íslenska hópnum í Budva en einhver netvandræði munu vera til staðar eins og svo oft í fyrstu umferðum svo stórra móta.
Úrslit fyrstu umferðar:
Name | FED | Rtg | Result | Name | FED | Rtg |
Davidsson Oskar Vikingur | ISL | 1379 | 1 - 0 | Morgunov Marc | AUT | 0 |
Stefansson Vignir Vatnar | ISL | 1782 | 1 - 0 | Panfilii Laurentiu | MDA | 1428 |
Matviishen Viktor | UKR | 2115 | 1 - 0 | Heimisson Hilmir Freyr | ISL | 1742 |
Ivannikau Maksim | BLR | 1862 | 1 - 0 | Steinthorsson Felix | ISL | 1513 |
Tica Sven | CRO | 2105 | ½ - ½ | Thorgeirsson Jon Kristinn | ISL | 1824 |
Petrov Vladimir Sergeev | BUL | 2014 | 1 - 0 | Kolka Dawid | ISL | 1666 |
Karlsson Mikael Johann | ISL | 2068 | 0 - 1 | Nasuta Grzegorz | POL | 2343 |
Haszon Kamilla Sara | HUN | 1932 | 1 - 0 | Magnusdottir Veronika Steinun | ISL | 1577 |
Mikael Jóhann teflir í flokki 18 ára og yngri, Jón Kristinn og Dawid í flokki 14 ára og yngri, Hilmir Freyr og Felix í flokki 12 ára og yngri, Vignir Vatnar í flokki 10 ára og yngri, Óskar Víkingur í flokki 8 ára og yngri og Veronika Steinunn í flokki stúlkna 16 ára og yngri. Fararstjórar og þjálfarar eru Helgi Ólafsson og Hjörvar Steinn Grétarsson.
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða íslenska hópsins
- Chess-Results (úrslit Íslendinga)


Í Borgundarhólmi í Danmörku lauk svo Norðurlandameistaramóti öldunga. Þar voru Friðrik Ólafsson og Áskell Örn Kárason í toppbaráttunni en náðu þó ekki titlinum. Þeir hlutu 6 ½ vinning hvor og voru hnífjafnir í 2. sæti. Hinn gamalreyndi danski stórmeistari Jens Kristiansen sigraði, hlaut 7 vinninga. Friðrik Ólafsson sem er kominn fast að áttræðu tók þá skynsamlegu stefnu að spara kraftana í nokkrum skákum. Auðvitað gaf það helsta keppinaut hans ákveðið forskot. En gaman var að fylgjast með taflmennsku hans. Sigurskákin við Heikki Westerinen var sennilega besta skákin sem hann tefldi á mótinu:
Friðrik Ólafsson Heikki Westerinen
Kóngsindversk vörn
1. Rf3 Rf6 2. g3 g6 3. b3 Bg7 4. Bb2 O-O 5. Bg2 d6 6. d4 c5 7. c4 cxd4 8. Rxd4 d5 9. cxd5 Rxd5 10. O-O Rb4?!
Mislukkuð atlaga. Best er 10. ... Dd7! ásamt - Hd8
11. Dd2 R8c6 12. Rxc6 Rxc6 13. Bxg7 Kxg7 14. Bxc6! ´
Svartur þarf nú að fást við erfiðan veikleika á c-línunni.
14... bxc6 15. Hd1 Dxd2 16. Hxd2 Be6 17. Rc3 c5 18. Hc1 c4 19. b4!
C4-peðinu er borgið í bili en á móti kemur að peðastaða hvíts á drottningarvæng er afar ógnandi og riddarinn en betri en biskupinn í þessari stöðu.
19. ... Hfb8 20. Hb2 Hd8 21. f3 f5 22. Kf2 Bf7 23. b5 e5 24. a4 Kf6 25. a5 Ke7 26. f4 exf4 27. gxf4 Hab8 28. Ke3 Hd6 29. Hd1 He6 30. Kf2 Ha6 31. Ha2 Hd6 32. Had2 Hbd8 33. Hxd6 Hxd6 34. Ke3!
Betra en 34. Hxd6 Kxd6 og kóngurinn kemst til c5.
34. ... Hf6 35. Kd4 Be6 36. Kc5 Hf8 37. Hd6 Hc8 38. Hc6 Kd7 39. Hxc8 Kxc8 40. b6 Kb7 41. bxa7 Kxa7 42. Rb5 Kb8
- sjá stöðumynd -
43. Kb6!
Þetta er kóngssókn! Ein hugmyndin er að leika riddaranum til c7 og síðan a-peðinu fram.
43. ... Bd5 44. Rc3
Einfaldara var 44. a6 Kc8 45. e4! með hugmyndinni 45. ... fxe4 46. Rc7! eða 45. .. Bxe4 46. Rd6+ og 47. Rxe4.
44. ... Ba8 45. Kc5 Ka7 46. Kxc4 Ka6 47. Kb4 Bc6 48. Ra4 Kb7 49. Rc5 Kc7 50. Kc4 Kd6 51. Kd4 Bb5 52. e3 Kc6 53. Re6 Be2 54. Ke5 Bc4 55. Rf8
- og Westerinen gafst upp. Svörtu peðin á kóngsvæng eru að falla.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.
Grein þessi birtist í Sunnudagsmogganum, 22. september 2013
| Olafsson, Fridrik - Westerinen, Heikki M.J (PGN) 1. Nf3 Nf6 2. g3 g6 3. b3 Bg7 4. Bb2 O-O 5. Bg2 d6 6. d4 c5 7. c4 cxd4 8. Nxd4 d5 9. cxd5 Nxd5 10. O-O Nb4 11. Qd2 N8c6 12. Nxc6 Nxc6 13. Bxg7 Kxg7 14. Bxc6 bxc6 15. Rd1 Qxd2 16. Rxd2 Be6 17. Nc3 c5 18. Rc1 c4 19. b4 Rfb8 20. Rb2 Rd8 21. f3 f5 22. Kf2 Bf7 23. b5 e5 24. a4 Kf6 25. a5 Ke7 26. f4 exf4 27. gxf4 Rab8 28. Ke3 Rd6 29. Rd1 Re6+ 30. Kf2 Ra6 31. Ra2 Rd6 32. Rad2 Rbd8 33. Rxd6 Rxd6 34. Ke3 Rf6 35. Kd4 Be6 36. Kc5 Rf8 37. Rd6 Rc8+ 38. Rc6 Kd7 39. Rxc8 Kxc8 40. b6 Kb7 41. bxa7 Kxa7 42. Nb5+ Kb8 43. Kb6 Bd5 44. Nc3 Ba8 45. Kc5 Ka7 46. Kxc4 Ka6 47. Kb4 Bc6 48. Na4 Kb7 49. Nc5+ Kc7 50. Kc4 Kd6 51. Kd4 Bb5 52. e3 Kc6 53. Ne6 Be2 54. Ke5 Bc4 55. Nf8 1-0 |
Spil og leikir | Breytt 23.9.2013 kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2013 | 19:49
Sóley Lind nærri sigri í Västerås
Teflt var um helgina á alþjóðlegu móti í Västerås í Svíþjóð. Sex íslenskir skákmenn tóku þátt. Sóley Lind Pálsdóttir var nærri sigri í b-flokki en tapaði í lokaumferðinni. G. Sverrir Þór (1993) og Páll Sigurðsson (1940) stóðu sig best Íslendinga í a-flokknum.
Lokastaða íslensku skákmannanna var sem hér segir:
A-flokkur:
- G. Sverrir Þór (1993) og Páll Sigurðsson (1940) 4,5 v. af 8
- Sigríður Björg Helgasdóttir (1746) 3,5 v.
- Baldur Teodor Petersson (1617) 3 v.
- Hrund Hauksdóttir (1679) 2,5 v.
Lettneski stórmeistarinn Normunds Miezis (2546) vann aðalmótið.
Sóley Lind Pálsdóttir (1412) endaði í 3.-6. sæti í b-flokki, hlaut 6,5 vinning í 8 skákum.
29.9.2013 | 18:50
Jón Viktor eftur með fullt hús á Gagnaveitumótinu
Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2409) er efstur með fullt hús að lokinni fimmtu umferð Gagnaveitumótsins - Haustmóts TR sem fram fór í dag. Töluvert var um frestanir, meðal annars vegna Framsýnarmótsins og Vasteras-mótsins í Svíþjóðum og staðan í öllum flokkum nokkuð óljós.
A-flokkur:
Jón Viktor Gunnarsson (2409) vann sína fimmtu skák í röð þegar hann vann Kjartan Maack (2128). Dagur Ragnarsson (2040) vann Jóhann H. Ragnarsson (2037) en Sverrir Örn Björnsson (2136) og Oliver Aron Jóhannesson (2007) gerðu jafntefli.
Tveimur skákum var frestað og þar með talið toppviðureign Stefáns Kristjánssonar (2491) og Einars Hjalta Jenssonar (2305). Þær verða tefldar á morgun.
Jón Viktor er efstur með 5 vinninga, Einar Hjalti hefur 4 vinninga og Stefán hefur 3,5 vinning.
B-flokkur:
Jón Trausti Harðarson (1930) er efstur með 4,5 vinning en þremur en enn eru fjórar skákir ókláraðar og tveir keppendur geta náð Jóni Trausta að vinningum.
C-flokkur:
Elsa María Kristínardóttir (1787) er efst með 3,5 vinning. Tveimur skákum var frestað og getur staðan á toppnum breyst.
D-flokkur:
Haukur Halldórsson (1539) er efstur með 4 vinninga. Skákunum á 2. og 3. borði var frestað og fleiri geta náð Hauki að vinningum.
Flestar frestuðu skákirnar verða tefldar á morgun og staðan ætti að vera ljósari að þá.
29.9.2013 | 15:10
Áskell Örn og Einar Hjalti sigurvegarar Framsýnarmótsins
Áskell Örn Kárason og Einar Hjalti Jensson sigraðu á Framsýnarmóti Goðans Máta sem fram fór um helgina í Breiðumýri í Reykjadal í Þingeyjarsveit. Þeir höfðu mikla yfirburði og hlutu 6,5 vinning í 7 skákum. Þriðji varð Sigurður Eiríksson með 5 vinninga en hann gerði sér lítið fyrir og vann landsliðskonurnar Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur og Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur í lokaumferðunum tveimur.
Nánari úrslit væntanleg.
- Heimasíða Goðans-Máta
- Chess-Results
- Myndaalbúm (fleiri myndir væntanlegar)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 1
- Sl. sólarhring: 45
- Sl. viku: 158
- Frá upphafi: 8779079
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 106
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar