Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2011

Björn Sigurjónsson látinn

Björn Sölvi SigurjónssonFide-meistarinn Björn Sölvi Sigurjónsson lést á Landspítalanum ţann 22. desember eftir veikindi.  Björn varđ ţrívegis skákmeistari Kópavogs auk ţess ađ verđa bćđi Reykjavíkur- og Akureyrarmeistari. Síđustu misseri bjó Björn Sölvi í Hveragerđi ţar sem hann stundađi skriftir og bjó til skákţrautir međ öđru.

Björn var ávallt mikill TR-ingur en eftir langt hlé frá skákinni gekk hann til liđs jón gnarr leikur fyrir björn sölvaviđ Skákfélag Vinjar fyrir nokkrum árum og tók ţátt í deildakeppninni frá ţví ađ liđiđ var skráđ í Skáksambandiđ. Ţađ var ekki síst fyrir frammistöđu hans sem liđiđ komst í ţriđju deild eftir tímabiliđ 2009-2010, ţar sem Björn fékk sex vinninga af sjö mögulegum, enda titlađur „jóker" Vinjarmanna.

Í öđru tbl veftímaritsins Skák, áriđ 2009 var mikil grein um Björn Sölva og hvađa ţátt hann hafđi í framgöngu Skákfélags Vinjar, en ađ öđru leyti byggđ á samantekt Trausta Björnssonar sem birtist í tímaritinu skák, jan/feb 2002 undir formerkjunum „íslenskir skákmeistarar".http://www.skaksamband.is/assets/Timaritid_Skak/TimaritidSkak-2tbl.pdf


Skákţáttur Morgunblađsins: Fremstur međal jafningja

PetrosianTigran Petrosjan hafđi ţessi orđ um stöđu heimsmeistarans í skák á hverjum tíma. Ţessi skilgreining hentađi honum ágćtlega; ţegar hann hélt titlinum frá 1963-'69 vann hann sjaldan ţau mót sem hann tók ţátt í enda lagđi hann alltaf ađaláherslu á ađ tapa ekki og gaf ţví frá sér alltof marga hálfa vinninga, eins og Bent Larsen orđađi ţađ.

Stađa heimsmeistarans, Anands, hefur veriđ til athugunar eftir tvö stórmót, minningarmótiđ um Tal á dögunum og London chess classic sem lauk á mánudaginn. Í ţessum tveimur mótum vann Anand eina skák, gerđi 15 jafntefli og tapađi einni. Hann gat enga skýringu gefiđ á dauflegri frammistöđu sinni en stutt er í einvígi hans viđ Boris Gelfand og hefđu ýmsir taliđ ađ hćgt vćri ađ finna verđugri mótstöđumenn.

„Viđ erum allir í rćsinu, en sumir okkar eru ađ horfa á stjörnurnar," sagđi Oscar Wilde. Anand kom skemmtilega á óvart međ ţátttöku sinni í „stjörnuţokuspjalli", hliđaratburđi á London chess classic-mótinu sem enski stórmeistarinn og stćrfrćđingurinn John Nunn stóđ fyrir. Ţar sýndu ţeir magnađar myndir sem ţeir hafa tekiđ í gegnum stjörnukíki. Kannski hefur undirbúningur ţess verkefnis komiđ niđur á frammistöđu hans viđ skákborđiđ en lokaniđurstađa mótsins, ţar sem ţriggja stiga reglan var í gildi, varđ ţessi:

1. Kramnik 16 stig. 2. Nakamura 15 stig. 3. Carlsen 14 stig.

4. Luke McShane 13 stig. 5.-6. Anand og Aronjan 9 stig. 7. Short 6 stig. 8. Howell 4 stig. 9. Adams 3 stig.

Carlsen og NakamuraSlök frammistađa ensku stórmeistaranna vakti mikla athygli en ţrír neđstu menn fengu jafnmarga vinninga samanlagt og sigurvegarinn Kramnik sem vann alla Englendinga. Ţótt Magnús Carlsen hafi mátt gera sér 3. sćtiđ ađ góđu treysti hann stöđu sína á toppnum og lagđi Nakamura ađ velli. Í skákinni sem hér fer á eftir neitađi Nakamura ađ leggjast í vörn ţegar ţess ţurfti:

Magnús Carlsen - Hikaru Nakamura

Ítalskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 Bc5 5. c3 d6 6. Bb3 a6 7. Rbd2 Ba7 8. Rf1 h6 9. Rg3 0-0 10. 0-0 Be6 11. h3 Dd7 12. Be3 Re7 13. Rh4 Rg6

Eftir 13.... Bxe3 14. fxe3 hefur hvítur sóknarfćri eftir f-línunni og trausta stöđu á f5-reitnum. Ţađ breytist ţó ekki ţótt svartur stofni nú til uppskipta.

14. Rhf5 Re7 15. Rxe7 Dxe7 16. Bxa7 Hxa7 17. f4 c5 18. Bc2 b5 19. Dd2 Hb7 20. a3 a5 21. Hf2 b4 22. axb4 axb4 23. Haf1

Sjaldan er slćmt ađ tvöfalda hrókana eftir opnum eđa hálfopnum línum. Hvítur hótar nú 24. fxe5 dxe5 25. Hxf6! gxf6 26. Rh5 o.s.frv.

23.... bxc3 24. bxc3 exf4 25. Hxf4 Rh7 26. d4 cxd4 27. cxd4 Dg5 28. Kh2 Rf6 29. Bd1 Hfb8?

Svartur mátti ekki leyfa fórnina á f6. Eftir 29.... Rh7 er stađan í jafnvćgi.

30. h4 Dg6

g3soe24c.jpg- Sjá stöđumynd -

31. Hxf6!

Ţessi skiptamunarfórn blasir viđ. Eftirfylgnin er lćrdómsrík, Magnús rćđst hvergi beint ađ andstćđingnum heldur bćtir stöđu hćgt og bítandi.

31.... gxf6 32. Df4!

Betra en 31. Rh5 sem má svara međ 31.... f5.

32.... Hb2?

Svartur varđ ađ verja d6-peđiđ međ 32.... Hd8.

33. Bh5! Dg7 34. Bf3 Ha8?

Enn var betra ađ verjast međ 34.... Hd8.

35. d5 Bc8 36. Rh5 Df8 37. Rxf6+ Kh8 38. Hc1! Kg7 39. e5 dxe5 40. Rh5 Kh7 41. Be4+

Eftir 41.... Kh8 kemur 42. Dxe5+ og hrókurinn á b2 fellur. Svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

-------------------------------------------

Skákţćttur Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 18. desember 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Jólaskákţrautir Skáklandsins halda áfram

Annar hluti skákţrauta Skáklandsins birtust á Skáklandinu í DV í dag.  Ţriđji hlutinn birtist á morgun.  Skákáhugamenn eru hvattir til ađ taka ţátt!  Góđ verđlaun eru í bođi. 

Lausnir skal senda á netfangiđ stebbibergs@gmail.com ţar sem áđur útgefiđ netfangiđ ţoldi ekki álagiđ.

Skáklandiđ á DV 

 


Jólaskákmót TV fer fram í dag

Eftir gamalli hefđ verđur Jólaskákmót TV haldiđ á Jóladag og hefst kl. 13:00.  Allir félagsmenn og ađrir velunnarar félagsins eru ađ venju velkomnir.  Jólakonfekt í verđlaun.

Býsna ítarleg umfjöllun um Jólaskákmót TV og tilurđ ţess má finna á heimasíđu TV.


Gleđileg skákjól!

IMG 1156Ritstjóri óskar öllum skák og skákáhugamönnum nćr og fćr gleđilegra jóla. 

Skákmenn ţurfa ekki ađ örvćnta um jólin ţví a.m.k. 11 skákmót fara fram á milli jóla og nýárs víđsvegar um landiđ!

Ţađ eru:

  • 25. desember - Jólaskákmót TV
  • 27. desember - Hrađskákmót Gođans
  • 27. desember - Hverfakeppni SA
  • 27. desember - Jólaskákmót Víkingaklúbbsins
  • 28. desember - Jólahrađskákmót SA
  • 28. desember - Jólahrađskákmót TR
  • 28. desember - Flugeldamót SSON
  • 28. desember - Jólaskákmót Riddarans (60+)
  • 29. desember - Íslandsmótiđ í netskák (ICC)
  • 29. desember - Jólaskákmót Gallerý Skákar
  • 30. desember - Jólabikarmót Hellis

Mótin verđa nánar kynnt á Skák.is sama dag og ţau fara fram.

Gleđileg skákjól!


Jólaskákţrautir Skáklandsins

Stefán Bergsson, ritstjóri Skáklandsins á DV, hefur sett upp jólaskákţrautir á vefsíđu Skáklandsins.  45 ţrautir/spurningar munu ţar birtast nćstu daga.

Sjón er sögu ríkari og eru skák(áhuga)menn hvattir til ađ taka ţátt.

Skáklandiđ á DV 

 


Jólaskákmót Riddarans haldiđ 28. desember

RIDDARINN - skákklúbbur eldri borgara- efnir til glćsilegs jólaskákmóts miđvikudaginn 28. desember nk. í höfuđstöđvum sínum  í  Standbergi, safnađarheimili Hafnarfjarđarkirkju, ţar sem fjölmargir gamalreyndir gamlingjar hittast til tafls allan ársins hring, sér til ánćgju og yndisauka, ţó sumir séu vissulega tapsárari en ađrir.  Ný vinningsskák lćknar ţó öll sár um síđir.  Áberandi er hvađ öldungarnir eru lítiđ gefnir fyrir jafntefli - vilja tefla til ţrautar.  

Veglegir jólapakkar verđa í verđlaun frá Urđi Bókaútgáfu í JÓLAKAPPINU.  Jafnframt verđa dregnir út góđir vinningar í JÓLAHAPPINU sem efnt verđur til í mótslok en Jói Útherji og Halldór skósmiđur í Grímsbć sjá til ţess ađ enginn fari í jólaköttinn.

Tefldar  verđa 11 umferđir ađ venju međ 10 mín uht. og hefst mótiđ kl. 13 og lýkur um 5 leitiđ.  Ţátttökugjald er kr. 300 og innifelur kaffi og krćsingar. Allir liđtćkir skákmenn 60 ára og eldri velkomnir.

Klúbburinn sendir öllum skákunnendum fjćr og  nćr bestu hátíđarkveđjur.

 


Ţrjú skákmót hjá SA yfir hátíđirnar

Eins og oftast verđur nóg um ađ vera hjá skákáhugamönnum fyrir Norđan um jólin. Nćst á dagskrá er hin árlega hverfakeppni sem háđ verđur ţriđja í jólum, 27. desember og hefst kl. 20.  Eins og í fyrra er gert ráđ fyrir tveimur sveitum, norđan og sunnan Glerár. Tefldar verđa ein eđa tvćr 15 mínútna skákir í upphafi og ađ ţví loknu bćndaglíma í hrađskák. Áhugamenn eru hvattir til ađ fjölmenna; allir fá ađ vera međ međan húsrúm leyfir. Liđstjórar eru Áskell Örn Kárason (sunnan) og Smári Ólafsson (norđan).

Nćst á dagskrá verđur svo sjálft jólahrađskákmótiđ. Ţađ hefur veriđ auglýst 29. desember en nú hefur veriđ ákveđiđ ađ flýta ţví um einn dag, vegna Íslandsmótsins í netskák, sem er á dagskrá ţann 29. Sumsé, jólahrađskákmót 28. desember kl. 20!

Ţá er líka minna á hiđ arfavinsćla nýjársmót félagsins, sem akkúrat fer fram á nýjársdag og hefst í síđasta lagi kl. 14. Ţeir sem reynt hafa vita ađ betur er ekki hćgt ađ fagna nýju ári en ađ láta máta sig á ţessu móti! Eftir ţađ liggur leiđin klárlega upp á viđ!


Jólaskákmót TV á Jóladag

Eftir gamalli hefđ verđur Jólaskákmót TV haldiđ á Jóladag og hefst kl. 13:00.  Allir félagsmenn og ađrir velunnarar félagsins eru ađ venju velkomnir.  Jólakonfekt í verđlaun.

Býsna ítarleg umfjöllun um Jólaskákmót TV og tilurđ ţess má finna á heimasíđu TV.


Jólahrađskákmót TR fer fram 28. desember

Jólahrađskákmót Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ miđvikudaginn 28. desember kl. 19.30.  Tefldar verđa 9 umferđir međ 5 mínútna umhugsunartíma.  Mótiđ fer fram í húsnćđi T.R. ađ Faxafeni 12.  Ţátttökugjald er kr. 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 213
  • Frá upphafi: 8764961

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 160
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband