Fćrsluflokkur: Spil og leikir
1.10.2017 | 14:55
Hrađskákkeppni taflfélaga fer fram 19. nóvember
Hrađskákkeppni taflfélaga verđur haldin í Rimaskóla 19. nóvember og hefst keppni kl. 13:00.
Tefldar verđa 2x7 umferđir eftir svissnesku kerfi og verđa tímamörkin 3 2. Hver sveit er skipuđ 6 mönnum auk varamanna. Hvert félag má senda a og b liđ til leiks en ţó áskilja mótshaldarar sér rétt á ađ takmarka fjölda b liđa ef skráning er ţeim mun meiri. Mótsgjald er 10.000 krónur á liđ. Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Varamenn koma ávallt inn á neđsta borđ og ţarf liđ ađ vera eins skipađ í báđum skákum hverrar umferđar. Ţađ liđ sem hlýtur flesta vinninga er Íslandsmeistari skákfélaga í hrađskák 2017 og verđi tvö liđ jöfn er einföld umferđ tefld til úrslita um titilinn (dregiđ um lit á borđi eitt og sitthvor liturinn á nćstu borđum).
Skákdeild Fjölnis sér um mótshaldiđ og hvetjum viđ sem flest liđ til ađ skrá sig til leiks!
Skráning fer fram hér á Skák.is (guli kassinn).
Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2017 | 08:39
Mön: Góđur gćrdagur - Dagur vann alţjóđlega meistara
Íslensku skákmennirnir halda áfram ađ ná góđum úrslitum á alţjóđlega mótinu í Mön og breytir ţar engu um hvort menn tefla í meistara-, 1. eđa 2. flokki. Áttunda og nćstsíđasta umferđ fór fram í gćr. Dagur Ragnarsson (2340) vann í gćr bandaríska alţjóđlega meistarann Marc Esserman (2453) og Hilmir Freyr Heimisson (2185) lagđi Indverjann V Pranav (2372) ađ velli. Guđmundur Kjartansson (2456) vann einnig sína skák. Alexander Oliver Mai og Arnar Heiđarsson og Freyja Birkisdottir náđu öllum góđum úrslitum í neđri flokkum mótsins.
Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2827) er efstur međ 7 vinninga. Hikaru Nakamura (2781) er annar međ 6˝ vinning. Ţeir mćtast í dag og dugar Magnusi jafntefli međ hvítu til ađ vinna sinn fyrsta mótasigur á kappskákmóti í ár.
Úrslit gćrdagsins í Meistaraflokki
Stađa íslensku keppendanna
Tveir Íslendingar taka ţátt í 1. flokki (major). Alexander Oliver Mai (1875) oo Arnar Heiđarsson (1480) unnu báđir í gćr. Alexander Oliver hefur 4˝ eftir 6 umferđir og er í 3.-4. sćti ađeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Arnar Heiđarsson (1480) vann skákmenn međ 1811 skákstig og hefur 3 vinninga. Arnar hefur ţví 50% vinningshlutfall ţrátt fyrir ađ vera stigalćgstur keppenda!
Freyja Birkisdóttir (1332) teflir í 2. flokki (minor). Í gćr gerđi hún jafntefli viđ skákmann međ 1685 skákstig. Freyja hefur 3˝ vinning og er taplaus ţrátt fyrir ađ hafa teflt viđ stigahćrri andstćđinga í öllum umferđum!
1.10.2017 | 08:21
Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram nćstu helgi
Íslandsmót ungmenna fer fram helgina 7.-8. október í Rimaskóla. Teflt er í fimm flokkum. Krýndir verđa 10 Íslandsmeistarar - efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm. Glćsilegar vinningar í bođi.
Allir flokkar hefjast 12:00 á laugardeginum. Tekiđ verđur viđ ţátttökugjöldum og stađfestingu á mćtingu frá 11:20 11:50. Ţeir keppendur sem mćta eftir 11:50 geta misst sćti sitt í mótinu.
Skráning er á Skák.is (guli kassinn efst) til og međ 5. október. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Ţátttökugjald er krónur 1.500 og greiđist međ reiđufé viđ stađfestingu á mćtingu. Systkini borga aldrei meira en 2.500 kr. samtals. Hćgt er jafnframt ađ greiđa í gegnum netbanka fyrir mót inn á reikning 101-26-12763, kt. 58026-5409. Vinsamlegast látiđ nafn keppenda koma fram í skýringu og sendiđ kvittun á skaksamband@skaksamband.is.
Stefnt er ađ ţví ađ tefla í sérflokkum fyrir stráka og stelpur en mögulega ţarf ađ sameina einstaka flokka verđi ţátttaka ekki nćgjanleg. Sigurvegari í flokki 9-10 ára tryggir sér sćti á Norđurlandamótinu í skák sem fer fram í febrúar 2018 í Finnlandi. Sigurvegarar í elstu flokkunum ţremur tryggja sér sćti á Unglingameistaramóti Íslands.
Verđi menn jafnir í efstu sćtum er teflt um Íslandsmeistaratitla en stig reiknuđ um önnur sćti. Í flokki átta ára og yngri verđa ţó reiknuđ stig um öll sćti.
8 ára og yngri (f. 2009 og síđar)
Umhugsunartími: 8-2 mínútur.
Fjöldi umferđa: Allir keppendur tefla fimm umferđir á laugardeginum. Eftir fimm umferđir verđur niđurskurđur ţannig ađ keppendur međ ţrjá vinninga eđa fleiri komast áfram og mćta líka á sunnudegi. Umferđafjöldi á sunnudegi verđur tvćr til fjórar umferđir eftir heildarfjölda keppenda.
Dagskrá: Mótiđ hefst 12:00 á laugardeginum og 12:00 á sunnudeginum fyrir ţá sem komast áfram.
9-10 ára (f. 2007 og 2008)
Umhugsunartími: 8 + 2 mínútur
Fjöldi umferđa: Allir keppendur tefla fimm umferđir. Eftir fimm umferđir verđur niđurskurđur ţannig ađ keppendur međ ţrjá vinninga eđa fleiri komast áfram og mćta líka á sunnudegi. Umferđafjöldi á sunnudegi verđur tvćr til fjórar umferđir eftir heildarfjölda keppenda.
Dagskrá: Mótiđ hefst 12:00 á laugardeginum og 12:00 á sunnudeginum fyrir ţá sem komast áfram.
1112 ára (f. 2005 og 2006)
Umhugsunartími: 15 mínútur međ 5 sekúndna viđbótartíma fyrir hvern leik.
Fjöldi umferđa: 9
Dagskrá: Mótiđ hefst 12:00 á laugardeginum og verđa ţá tefldar 5 umferđir. Mótinu verđur framhaldiđ 12:00 á sunnudeginum og verđa ţá tefldar fjórar umferđir.
1314 ára (f. 2003 og 2004)
Umhugsunartími: 15 mínútur međ 5 sekúndna viđbótartíma fyrir hvern leik.
Fjöldi umferđa: 9
Dagskrá: Mótiđ hefst 12:00 á laugardeginum og verđa ţá tefldar 5 umferđir. Mótinu verđur framhaldiđ 12:00 á sunnudeginum og verđa ţá tefldar fjórar umferđir.
1516 ára (f. 2001 og 2002)
Umhugsunartími: 15 mínútur međ 5 sekúndna viđbótartíma fyrir hvern leik.
Fjöldi umferđa: 9
Dagskrá: Mótiđ hefst 12:00 á laugardeginum og verđa ţá tefldar 5 umferđir. Mótinu verđur framhaldiđ 12:00 á sunnudeginum og verđa ţá tefldar fjórar umferđir.
30.9.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Hótunin er sterkari en leikurinn
Varđandi stöđuna á Meistaramóti Hugins er vert ađ hafa í huga ađ keppendur geta tekiđ tvćr yfirsetur en reikna má međ ađ úrslit fáist í uppgjöri efstu manna í lokaumferđunum. Efstu menn eru ţessir: 1.-3. Vignir Vatnar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Björn Ţorfinnsson 4 v. (af 5).
Á Akureyri stendur yfir haustmót Skákfélags Akureyrar og ţar er Jón Kristinn Ţorgeirsson efstur međ 3 ˝ v. eftir fjórar umferđir en međ ˝ vinningi minna eru ţeir Sigurđur Arnarson og Smári Ólafsson.
Taflfélag Reykjavíkur hefur látiđ slá inn allar viđureignir mótsins og birt á netinu, ţar vakti athygli mína skák Hjörvars Steins og Einars Hjalta Jenssonar úr sjöttu umferđ. Eftir átakalitla byrjun fór spennan ađ magnast og eftir 28. leik hvíts kom ţessi stađa upp:
Haustmót TR 2017:
Hjörvar Steinn Einar Hjalti
Teflt á tćpasta vađ. Öruggara var ađ valda f5-reitinn og leika 28. ... g6.
29. Dc4+ Kf8 30. b5!
Einar hafđi búist viđ ţessu, hann má ekki fara í drottningakaup en treysti á ...
30. ... Da3! 31. Df1!
Valdar hrókinn og hótar 32. Rc4.
31. ... Ra5 32. Ha1 Dxc3 33. Hc1 Dd3 34. Dh3!
Eftir allar ţessar vendingar búast menn hvíts til innrásar, svartur er í raun varnarlaus.
34. ... Dd7 35. Hc8+?! Ke7 36. Rf5+ Ke6
Setningin ađ hótunin sé sterkari en leikurinn er talin ein mesta spekin úr herfrćđi skákarinnar og á vel viđ stöđuna sem kom upp eftir 34. leik svarts og einnig ţessa. Vélarnar stađhćfa ađ 35. Dxh7 hefđi veriđ betra en 35. Hcc8+ og ađ nú sé 37. Dg4! leikurinn, t.d. 37. ... g6 38. Rh6+ f5 39. Rxf5 gxf5 40. Dg8+ og vinnur.
Nú sleppur kóngurinn yfir á drottningarvćnginn og sókn hvíts er runnin út í sandinn. Í framhaldinu gat Einar leikiđ 44. ... a5 međ vinningsstöđu. Hjörvar var laginn viđ skapa sér gagnfćri og vann ađ lokum.
38. He7 Dxb5 39. Re3 Kc5 40. Dc8 Kb4 41. Dg4 Ka3 42. Df3 Ka2 43. Hxg7 Rc6 44. Dxf6 Db1 45. Kg2 De4 46. Kh3 Hb2 47. Rd1 Hb3 48. Hxb7 Dg6 49. Dxg6 hxg6 50. Hc7 Hb6 51. Rc3 Kb3 52. Rd5 Hb5 53. Hxc6 Hxd5 54. Ha6 Hd7 55. Kg4 Kc4 56. h4 Kb5 57. Hxg6 Hf7 58. He6 Hxf2 59. Hxe5 Kb4 60. h5 a5 61. h6 Hf8 62. h7 a4 63. Kg5 a3 64. g4 a2 65. He1 Ha8 66. Ha1
- og svartur gafst upp.
Aronjan og Ding tefla til úrslita
Armeninn Levon Aronjan og Kínverjinn Liren Ding tefla til úrslita á heimsbikarmótinu í Tiblisi í Georgíu. Aronjan vann Frakkann Vachier-Lagrave í armageddon-skák sl. fimmtudag og samtals 5:4. Áđur hafđi Liren Ding unniđ Wesley So 3 ˝ : 2 ˝. Einvígi Aronjan og Ding hefst í dag og tefla ţeir fjórar skákir. Ţeir hafa báđir unniđ rétt til ţátttöku í nćsta áskorendamóti.------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 23. september 2017
Spil og leikir | Breytt 28.9.2017 kl. 11:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2017 | 09:35
Mjög gott gengi í gćr á Mön
Mjög vel gekk hjá íslensku skákmönnunum á alţjóđlega mótinu í Mön í gćr. Alls kom 6˝ vinningur í hús í átta skákum í meistaraflokki mótsins. Fimm vinningsskákir og ţrjú jafntefli. Gauti Páll Jónsson (2011) vann ţýska FIDE-meistarann Gerald Low (2262) og Aron Ţór Mai (2038) hafđi betur gegn skoska alţjóđlega meistaranum Stephan Mannion (2320). Auk ţeirra unnu Dagur Ragnarsson (2340), Bárđur Örn Birkisson (2164) og Björn Hólm Birkisson (2023) sínar skákir.
Sumir íslensku skákmannanna spiluđu fótbolta í gćr og í myndinni hér ađ ofan má sjá Bárđ Örn og Alexander Oliver kljást um boltann viđ heimsmeistarann!
Heimsmeistarann er efstur á mótinu međ 6 vinninga. Fimm skákmenn hafa 5˝ vinning.
Úrslit gćrdagsins í Meistaraflokki
Stađa íslensku keppendanna
Tveir Íslendingar taka ţátt í 1. flokki (major). Alexander Oliver Mai (1875) oo Arnar Heiđarsson (1480) gerđu báđir jafntefli í gćr. Sá síđarnefndi viđ skákmann viđ 1805 skákstig! Alexander hefur 3˝ vinning en Arnar hefur 2 vinninga eftir 5 umferđir.
Freyja Birkisdóttir (1332) teflir í 2. flokki (minor). Hún heldur áfram ađ gera góđa hluti. Í gćr gerđi hún jafntefli viđ skákkonu viđ 1724 skákstig. Hún hefur 3 vinning eftir 5 umferđir og er taplaus ţrátt fyrir ađ hafa teflt viđ mun stigahćrri skákmenn í öllum umferđum!
30.9.2017 | 09:11
Haustmót Vinaskákfélagsins fer fram á mánudaginn
Haustmót Vinaskákfélagsins verđur haldiđ mánudaginn 2. október. Mótiđ fer fram í Vin, ađ Hverfisgötu 47, og hefst kl.13.00.
Tefldar verđa sex umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á hverja skák. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskáksstiga. Skákstjóri mótsins verđur Hörđur Jónasson og verđa góđ verđlaun í bođ.
Hćgt er ađ skrá sig hér fyrir ofan á Skak.is (gulur kassi) en einnig verđur tekiđ viđ skráningum á stađnum.
Eins og venjan er í Vin verđur bođiđ uppá frábćrar veitingar í hléi.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Allir velkomnir!!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2017 | 17:59
Opiđ Hús hjá Hróknum: Hátíđ á hamfćrasvćđum á Grćnlandi
Hrókurinn verđur međ opiđ hús í Pakkhúsinu, Geirsgötu 11 viđ Reykjavíkurhöfn, laugardaginn 30. september milli 14 og 16. Ţar munu međal annars sirkuslistamennirnir Axel Diego og Bjarni Árnason leika listir sínar, en ţeir verđa í föruneyti Hróksins sem heldur á hamfarasvćđin á Grćnlandi í nćstu viku međ hátíđ í farangrinum.
Uummannaq er 1300 manna bćr á samnefndri eyju, 600 km norđan viđ heimskautsbaug. Ţar eru líka um 170 flóttamenn, ţar af 70 börn, frá ţorpunum tveimur í firđinum sem voru rýmd eftir flóđbylgjuna ćgilegu sem kostađi fjögur mannslíf í Nuugaatsiaq og sópađi ellefu húsum til hafs. Vegna hćttu á frekari hamförum fá íbúar ţorpanna tveggja aldrei ađ snúa heim, og er nú unniđ ađ ţví ađ finna ţeim framtíđarheimili.
Á leiđinni til Uummannaq verđur komiđ viđ í höfuđborginni Nuuk og slegiđ upp skemmtun í verslunarmiđstöđ borgarinnar, athvarf fyrir heimilislausa heimsótt og fleiri fastir viđkomustađir Hróksins í Nuuk.
Hrafn Jökulsson forseti Hróksins og skipuleggjandi landssöfnunarinnar Vinátta í verki, sem efnt var til eftir hamfarirnar, segir mikla tilhlökkun í hópnum. ,,Ţađ er stórkostlegt ađ fá snillingana úr Sirkus Íslands međ, enda gleđigjafar af guđs náđ. Viđ verđum líka međ kennslu í skák, myndlist og dansi, og vonumst til ađ virkja bćjarbúa á öllum aldri í eina allsherjar hátíđ gleđi og vináttu."
Landssöfnunin Vinátta í verki, sem var samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grćnlands, skilađi yfir 40 milljónum króna. Hrafn segir ađ mikilvćgt sé ađ peningarnir nýtist ţeim, sem verst urđu úti, međ sérstakri áherslu á börnin. Ađ beiđni Rauđa krossins á Grćnlandi verđur 500.000 dönskum krónum variđ til húsgagnakaupa fyrir ţá sem misstu allt sitt og ţá var ađ sjálfsögđu orđiđ viđ ţeirri beiđni grćnlenska Rauđa krossins um ađ kosta ferđ ţeirra fjölskyldna sem verst urđu úti til nánustu ćttingja skömmu eftir hamfarirnar.
Hrafn segist hlakka til ađ hitta fólkiđ í Uummannaq og kynnast ástandinu af eigin raun. Söfnunarfé Íslendinga eigi ađ sjálfsögđu ađ verja í samráđi viđ heimamenn og flóttafólkiđ í Uummannaq og verđur ţađ međal annars markmiđ ferđarinnar.
Ekki króna fór í kostnađ viđ landssöfnunina Vinátta í verki. Hátíđin sem í hönd fer er heldur ekki kostuđ af söfnunarfé, heldur međ samstilltu átaki fyrirtćkja á Íslandi og Grćnlandi.
Hrafn segir ađ um sé ađ rćđa mikilvćgustu ferđ Hróksins síđan 2003, ţegar landnám félagsins á Grćnlandi hófst. ,,Starf Hróksins á Grćnlandi er löngu hćtt ađ snúast bara um skák. Ţađ snýst um ađ auđga lífiđ og auka vináttu og samskipti grannţjóđanna á öllum sviđum. Kynni okkar af Grćnlandi hafa gefiđ okkur óendanlega mikiđ og ţeir eru bestu nágrannar í heimi. Viđ viljum endurgjalda ţađ og fara međ gleđi og kćrleika á ţann stađ á Grćnlandi ţar sem nú er helst ţörf."
29.9.2017 | 16:08
Vignir Vatnar Stefánsson er hrađskákmeistari TR áriđ 2017
Hrađskákmót Taflfélags Reykjavíkur fór fram miđvikudagskvöldiđ 27.september og voru 26 vaskir skákmenn mćttir í Skákhöllina til ađ takast á viđ skákgyđjuna. Tefldar voru 11 umferđir međ tímamörkunum 4+2. Góđ stemning var á međal ţátttakenda ţar sem margir ungir og efnilegir skákmenn hittu fyrir eldri en ekkert síđur efnilega skákmenn. Stigahćsti keppandinn eini titilhafinn- vann mótiđ nokkuđ örugglega og reynsluboltar af landsbyggđinni komust einnig á pall.
Vignir Vatnar Stefánsson kallar ekki allt ömmu sína ţegar kemur ađ hröđum tilfćrslum taflmanna á reitunum 64. Pilturinn lék viđ hvurn sinn fingur og ţegar stađan á borđinu var ekki líkleg til ađ skila hagnađi ţá beitti hann leifturhrađa til ađ slá andstćđinga sína út af laginu. Ţeir féllu í valinn hver á fćtur öđrum allt ţar til í 7.umferđ er félagsmálafrömuđurinn ađ norđan, Stefán Bergsson, hélt ró sinni í ćsispennandi endatafli og hafđi sigur gegn Vigni Vatnari. Ţađ varđ norđanmanninum til happs ađ Vignir Vatnar missti af máti í 2 undir lokin og eru skákáhugamenn hvattir til ţess ađ kynna sér ţessi skemmtilegu tafllok á fésbókarsíđunni Íslenskir skákmenn (tímabundnir geta stokkiđ beint í mínútu 9:10). Ţetta reyndist eina tapskák Vignis ţví hann vann allar hinar og lauk ţví keppni međ 10 vinninga. TR-ingurinn knái vann ekki ađeins mótiđ heldur tryggđi hann sér um leiđ nafnbótina Hrađskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 2017. Vignir Vatnar skipar sér ţar međ á bekk međ snjöllum meisturum á borđ viđ Friđrik Ólafsson og Guđmund Sigurjónsson.
Akureyringurinn beinskeytti Stefán Bergsson, sem í frístundum sínum selur skákvarning hvers konar, hlaut 9 vinninga og nćgđi ţađ til silfurverđlauna. Stefán lagđi báđa félaga sína á verđlaunapallinum en varđ ađ sćtta sig viđ tvö jafntefli snemma móts, auk ţess sem hann lét í minni pokann fyrir hinum bráđsnjalla knattspyrnumanni Stephani Briem.
Bronsverđlaunin komu í hlut hins eitilharđa Magnúsar Pálma Örnólfssonar. Mikill völlur er á Bolvíkingnum um ţessar mundir líkt og eftirtektarverđ framganga hans í nýafstöđnu Haustmóti TR ber vott um. Magnús Pálmi vann átta skákir, gerđi eitt jafntefli en beiđ lćgri hlut fyrir bćđi Vigni og Stefáni. Í skákinni gegn Stefáni varđ Magnúsi Pálma ţađ á ađ leika međ báđum höndum en nýútkomnar skákreglur FIDE taka hart á ţví og ber skákstjóra ađ dćma tap í slíkum tilfellum. Ţessi nýja regla alţjóđa skáksambandsins FIDE er umdeild og mun vafalítiđ reynast mörgum skákmanninum erfiđ viđureignar. Engu ađ síđur er óskandi ađ ađlögun íslenskra skákmanna gangi snurđulaust fyrir sig ţví töluverđ ógleđi fylgir ţví ađ tapa tafli vegna hinna nýju handalögmála. Hvađ sem ţví líđur ţá nćldi Magnús Pálmi sér í 8,5 vinning og virđist ţví vera kominn í áskrift ţetta haustiđ ađ verđlaunapallinum í Skákhöllinni.
Í 4.-6. sćti međ 6,5 vinning röđuđu sér reynsluboltarnir Ögmundur Kristinsson, Ţór Valtýsson og Eiríkur K. Björnsson.
Taflfélag Reykjavíkur ţakkar ţátttakendum fyrir spennandi og drengilega keppni og vonast til ţess ađ sjá sem flesta aftur á einhverjum af ţeim fjölmörgu skákmótum sem framundan eru í vetur.
Úrslit og lokastađa: Chess-Results
Nánar á heimasíđu TR.
29.9.2017 | 11:00
Íslandsmót skákfélaga hefst 19. október í Rimaskóla
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2017-2018 fer fram dagana 19.22. október nk. Mótiđ fer fram í Rimaskóla. Fyrsta umferđ (eingöngu í 1.deild) mun hefjast kl. 19.30 fimmtudaginn 19. október. Ađrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 20. október kl. 20.00 og síđan tefla laugardaginn 21. október kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag. Síđasta umferđin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 22. október.
Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viđbótartími bćtist viđ eftir hvern leik.
Frestur til félagaskipta rennur út á miđnćtti í kvöld. Ţó geta ţeir sem eru utan félaga og stigalausir skráđ sig í skákfélag allt fram á síđustu stundu.
29.9.2017 | 10:00
Síđari hluti Haustmóts SA hafinn - úrslit eftir bókinni
Í gćrkvöldi var tefld fyrsta umferđ af fimm í síđari hluta Haustmóts Skákfélags Akureyrar. Vinningar í ţessum hluta gilda tvöfalt á móti vinningum úr fyrri hlutanum. Lítilsháttar breyting varđ á keppendahópnum og eru tíu keppendur í síđari hlutanum. Úrslitin í gćrkvöldi.
- Áskell-Sigurđur E 1-0
- Eymundur-Jón Kristinn 0-1
- Ólafur-Ulker 1-0
- Jón Magnússon-Sigurđur A 0-1
- Smári-Arnar Smári 1-0
Stađan í mótinu er ţá ţessi:
Jón Kristinn 8,5; Sigurđur A 7; Áskell 6,5; Ólafur og Smári 6; Sigurđur E 3,5; Eymundur og Arnar smári 2,5; Ulker 1,5.
Önnur umferđ síđari hlutans verđur tefld nk. sunnudag, 1. október, og hefst kl. 13. Ţá tefla ţessi:
- Jón Kristinn og Ólafur
- Arnarson og Áskell
- Eiríksson og Smári
- Arnar Smári og Eymundur
- Ulker og Jón Magnússon
- Heimasíđa SA
- Chess-Results (síđari hlulti)
- Chess-Results (fyrri hluti)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.7.): 9
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 126
- Frá upphafi: 8778969
Annađ
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar