Fćrsluflokkur: Spil og leikir
29.1.2018 | 11:00
Kapptefliđ um Friđrikskónginn hefst í kvöld
Eins og í fyrra standa klúbbarnir saman af mótaröđinni sem fram fer nćstu fjögur mánudagskvöld vestur í skáksal KR í Frostaskjóli og hefst ţann 29. janúar, kl. 19.30.
Mótiđ er liđur í stóru viđburđahaldi í tilefni af "Skákdegi Íslands" sem SÍ og Skákakademía Reykjavíkur stóđu fyrir 26. janúar á afmćlisdegi Friđriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara okkar og heiđursborgara Reykjavíkur, sem ţá fagnađi 83. árs afmćli sínu.
Um er ađ rćđa 4ra kvölda GrandPrix mótaröđ ţar sem átta efstu sćti í hverju móti telja til stiga (10-8-6-5-4-3-2-1). Keppt er um veglegan farandgrip, taflkóng úr Hallormstađabirki, merktan og áletrađan af meistaranum. Ţrjú bestu mót hvers keppanda reiknast til stiga og vinnings. Sigurvegarinn ár hvert fćr nafn sitt skráđ gullnu letri á stall styttunnar og fagran verđlaunagrip til eignar .
Nöfn fyrrv. sigurvegara mótarađarinnar, ţeirra Gunnars Skarphéđinssonar; Gunnars I. Birgissonar; Gunnars Kr. Gunnarssonar, Gunnars Freys Rúnarssonar, Ólafs B. Ţórssonar og Guđfinns R. Kjartanssonar prýđa nú hinn sögulega grip.
Tefldar verđa 9 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á skákina. Mótin eru ađ sjálfssögđu öllum opin óháđ aldri og félagsađild enda ţótt keppendur séu ekki međ í öllum mótunum. Vegleg verđlaun fyrir efstu menn og aukavinningar fyrir ađra. Ţátttökugjöld kr. 500
Spil og leikir | Breytt 28.1.2018 kl. 23:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2018 | 22:59
Friđriksskákmót Vinaskákfélagsins fer fram á morgun, mánudag, kl. 13
Friđriksmót Vinaskákfélagsins verđur haldiđ mánudaginn 29 janúar kl: 13, í Vin ađ Hverfisgötu 47. Mótiđ er haldiđ vegna afmćli Friđriks Ólafsson fyrsta stórmeistara Íslands, en hann á afmćli 26 janúar og verđur 83 ára ţá. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Skákstjóri verđur Hörđur Jónasson. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga.
Í hléi verđur bođiđ upp á kaffi og vöfflur. Góđ verđlaun verđa í bođi. Ţiđ getiđ skráđ ykkur á mótiđ á gula kassanum efst á síđunni á skak.is. Einnig getiđ ţiđ skráđ ykkur á stađnum.
Allir velkomnir!!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2018 | 13:53
TORG skákmót Fjölnis 2018. Glćsilegur viđburđur á Skákdegi Íslands
Ţađ voru hvorki fleiri né fćrri en 119 grunnskólakrakkar sem skráđu sig til leiks á TORG skákmót Fjölnismanna sem haldiđ var í Rimaskóla á afmćlisdegi Friđriks Ólafssonar á Skákdegi íslands.
Afmćlisbarniđ sjálft, fyrsti stórmeistari Íslands, mćtti sem heiđursgestur á mótiđ og var honum vel fagnađ međ afmćlissöng og löngu lófaklappi. Friđrik gekk upp á sviđ, ávarpađi krakkafjöldann og minntist ţess ţegar ađ hann fyrst skráđi sig til leiks á skákmót 11 ára gamall ţá voru allir ađrir ţátttakendur fullorđnir karlmenn. Mótsstjórnin varđ ađ setjast á rökstóla og ákveđa hvort ađ svo ungur drengur fengi ađ fá ađ vera međ. Friđrik Ólafsson fćrđi Helga Árnasyni formanni Skákdeildar Fjölnis mćta skákbók um eistneska skámeistarann Paul Keres sem er einn af gođsögnum skáksögunnar. Helgi bauđ Friđriki og konu hans Auđi upp á dýrindis afmćlistertu ásamt fleiri skákvinum. Áđur en ađ Friđrik settist ađ snćđingi ţá lék hann 1. leik mótsins fyrir Anton Breka Óskarsson í Rimaskóla.
Fjölnismenn áttu alls ekki von á öllum ţessum fjölda ţátttakenda en međ góđri ađstođ virtist endalaust vera hćgt ađ fjölga borđum lengst fram á gang Rimaskóla.
Skákmótiđ gekk afar vel fyrir sig ţó ađ hin mikla ađsókn tefđi ađeins fyrir í byrjun og á milli umferđa ţegar keppendur leituđu ađ ţeim borđum sem tefla ćtti viđ. Björn Ívar Karlsson leysti skákstjórnina af hendi međ einstakri yfirvegun og fćrni svo engin leiđindi komu upp á heldur bara gleđi og ţađ ekki af ástćđulausu. Hagkaup og Emmess ís gáfu öllum ţátttakendum lystugar veitingar og uppi á sviđi biđu 40 glćsilegir vinningar auk ţriggja verđlaunabikara. Tefldar voru 6 umferđir.
Ţegar svona gífurlegur fjöldi er til stađar verđur stađan afar jöfn og spennandi á milli umferđa og baráttan hörđ um hvern vinning. Ţegar komiđ var ađ verđlaunaafhendingu varđ ljóst ađ tveir efnilegir skákmeistarar voru efstir og jafnir međ fullt hús, sex vinninga. Vignir Vatnar Stefánsson 9. bekk Hörđuvallaskóla var ţó ofar Joshua Davíđssyni í 7. bekk Rimaskóla og taldist ţví sigurvegari mótsins. Í nćstu sćtum voru ţeir Gunnar Erik Guđmundsson Salaskóla, Kjartan Karl Gunnarsson Rimaskóla, Árni Ólafsson Hlíđaskóla, Benedikt Briem Hörđuvallaskóla, Ísak Orri Karlsson Álfhólsskóla, Arnór Gunnlaugsson Rimaskóla, Benedikt Ţórisson Austurbćjarskola, Rayan Sharifa Álfhólsskóla og Gestur Andri Claudiusson, allir međ 5 vinninga.
Stúlknabikarinn vann Iđunn Helgadóttir Landakotsskóla og bikar fyrir efsta sćti í yngri flokk hlaut Tómas Möller Vatnsendaskóla. Allir 30 efstu fengu verđlaun frá Hagkaup, Emmess, Pizzunni og fyrirtćkjum á Torginu viđ Hverafold. Í lokin var dregiđ í happadrćtti og fengu 11 heppnir ţátttakendur gjöf frá Disneyútgáfunni. Allir krakkarnir sem tóku ţátt í mótinu eiga heiđur skiliđ fyrir góđa frammistöđu og fína hegđun.
Fjöldi foreldra fylgdist međ, ţáđi kaffiveitingar og hjálpađi til eins og ţeir gátu. Mótsstjórar voru ţeir Helgi Árnason og Gunnlaugur Egilsson úr stjórn Fjölnis. TORG mótiđ 2019 verđur ábyggilega haldiđ í tilefni Skákdagsins ađ ári eftir ţessa góđu reynslu.
Ljósmyndir : Ţórir Benediktsson
28.1.2018 | 13:41
Skákdagurinn í Síđuskóla á Akureyri
Föstudaginn 26. janúar er Skákdagurinn haldinn hátíđlegur um allt land. Víđa er teflt s.s. í skólum, vinnustöđum, heitum pottum, kaffihúsum og dvalarheimilum svo dćmi séu nefnd. Í Síđuskóla fengum viđ félaga úr Skákfélagi Akureyrar í liđ međ okkur og buđum upp á skákfrćđslu og tćkifćri til tefla í 5. - 10. bekk.
Fjölmargir nemendur ţáđu bođiđ og á međfylgjandi myndum má sjá ánćgđa og áhugasama nemendur viđ taflborđin. Hugmyndin er ađ bjóđa upp á skólaskákmót í framhaldi af ţessum viđburđi en ţađ verđur dagsett og auglýst síđar. Skákdagurinn 2018 er tileinkađur Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alţjóđa skáksambandsins. Friđrik varđ 83 ára á Skákdaginn sjálfan.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2018 | 10:56
Hannes Hlífar endađi í öđru sćti í Marianski Lazne
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2523) endađi í öđru sćti á alţjóđlegu móti í Marianske Lazne sem klárađist í gćr. Hannes hlaut 6 vinninga í 9 skákum. Sigurvegari mótsins varđ tékkneski stórmeistarinn Jiri Stocek (2566).
Frammistađa Hannesar samsvarađi 2523 skákstigum og hćkkar hann um 1 stig fyrir frammistöđu sína.
27.1.2018 | 22:00
SŢR #5: Stefán Bergsson einn eftir međ fullt hús og efstur
Ţađ var ekki lognmollunni fyrir ađ fara á efstu borđunum í 5. umferđ á Skákţinginu á miđvikudagskvöldiđ. Á tíu efstu borđunum litu bara tvö jafntefli dagsins ljós. Hrafn Loftsson (2163) hélt jöfnu međ ţví ađ gefa peđ gegn Degi Ragnarssyni (2332) á öđru borđi en tryggja sér nćgileg gagnfćri gegn kóngi Dags í endatafli. Ţá jafnađi Ţorvarđur F. Ólafsson (2178) svo rćkilega tafliđ gegn Braga Halldórssyni (2082) á fimmta borđi ađ ekki var annađ gera eftir 20 leiki en ađ sćttast á jafnan hlut.
Ţar međ eru rólegheitin upp talin, ţví á hinum átta borđunum var teflt af hörku og sviptingar miklar. Á efsta borđi hjá ţeim Stefáni Bergssyni (2093) og Birni Hólm Birkissyni (2084) var frumlega teflt í byrjuninni en ađ lokum kom upp einhvers konar Sikileysk stađa međ vissum Grand Prix einkennum, fyrir ţá sem til ţekkja í ţeirri mćtu byrjun. Átök brutust út á miđborđi sem enduđu međ ţví ađ hvorir um sig höfđu hćttuleg frípeđ. Stađa Stefáns var ţó vćnleg megniđ af skákinni og Björn lenti í miklu tímahraki. Svo miklu, ađ ţegar Stefán hótađi báđum hrókum Björns í 36. leik, gafst Birni ekki tími til ađ sjá skemmtilega gagnsóknarleiđ sem hefđi flćkt málin töluvert fyrir Stefáni. Björn féll á tíma áđur en hann náđi ađ leika og Stefán er ţví einn efstur međ fullt hús eftir umferđina og vinningi fyrir ofan nćstu menn.
Ţeir Einar Hjalti Jensson (2336) og Vignir Vatnar Stefánsson (2304) áttu ţađ sammerkt ađ taktísk handvömm kostađi ţá liđ og skákina; Einar á ţriđja borđi gegn Hilmi Frey Heimissyni (2136) en Vignir á fjórđa borđi gegn Gauta Pál Jónssyni (2161).
Björgvin Víglundsson (2167) rétti sinn hlut gagnvart ungum og efnilegum liđsfélögum í TR međ ţví ađ vinna öruggan sigur á Aroni Ţór Mai (2066) á sjötta borđi. Björgvin hafđi ţvílíka yfirburđi í rými ađ bćđi hrókur Arons og riddari á miđborđi áttu enga reiti og voru báđir á leiđ yfir móđuna miklu ţegar Aron gaf.
Bragi Ţorfinnsson (2436) fékk hćpna stöđu upp úr byrjuninni gegn Eiríki K. Björnssyni (1936) á sjöunda borđi og stóđ höllum fćti í miđtaflinu. Hann fórnađi hins vegar peđi fyrir kóngsóknarfćri; Eiríkur tapađi alveg taktíska ţrćđinum í tímahrakinu og Bragi vann örugglega. Jóhann Ragnarsson (1991) fórnađi tveimur mönnum gegn Sigurbirni Björnssyni (2288) sem lét sér hvergi bregđa, ţáđi mennina og innbyrti vinninginn af öryggi.
Aftur á móti brá svo viđ í ţessari umferđ ađ gagnstćtt efri borđunum voru úrslit ađ mestu eftir bókinni annars stađar en sú hefur hreint ekki veriđ raunin í mótinu fram til ţessa.
Sjötta umferđin hefst kl. 13 n.k. sunnudag (28. janúar) í Skákhöll TR í Faxafeni. Nánar um úrslit, stöđu og pörun á Chess results og ţar eru líka skákirnar, hver annarri skemmtilegri.
Sjá nánar á heimasíđu TR.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2018 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Hjörvar og Jóhann efstir á skákhátíđ MótX
Öflug innanlandsmót: Skákţing Reykjavíkur 2018, Skákhátíđ MótX Kópavogi og Skákţing Akureyrar 2018, eru komin á dágóđan rekspöl. Á Skákţingi Reykjavíkur hafa ţrjár umferđir veriđ tefldar og eru í efsta sćti međ fullt hús Hilmir Freyr Heimisson, Björn Hólm Birkisson og Stefán Bergsson.
Á MótX-skákhátíđinni eru ţeir stigahćstu efstir; Hjörvar Steinn Grétarsson og Jóhann Hjartarson hafa unniđ báđar skákir sínar. Stađan í ţessu móti er alltaf dálítiđ óljós ţví ţátttakendur eiga kost á hálfs vinnings yfirsetu ţrisvar í sjö umferđum og mun t.d. Hjörvar Steinn ekki tefla í nćstu umferđ.
Í B-riđli eru Gauti Páll Jónsson og Siguringi Sigurjónsson efstir međ tvo vinninga en hjá Hvítum hröfnum er dálítiđ um frestanir en Júlíus Friđjónsson er efstur eins og stađan er međ 1˝ vinning úr tveimur skákum.
Skákţing Akureyrar er nú haldiđ í 80. skipti, en Skákfélag Akureyrar fagnar brátt 100 ára afmćli sínu. Rúnar Sigurpálsson tekur ţátt í ţinginu aftur en sigurstranglegastan verđur ađ telja Jón Kristin Ţorgeirsson.
Magnađur Anand í Wijk aan Zee
Skákhátíđin í Wijk aan Zee, sem tekur nafn sitt eftir ađalkostanda ţess, stáliđjuverinu Tata Steel, dregur ađ venju til sín nćr alla bestu skákmenn heims međ heimsmeistarann Magnús Carlsen í broddi fylkingar. Hann hefur unniđ mótiđ oftar en nokkur annar eđa fimm sinnum. Eftir fimm umferđir hefur hann skipađ sér í hóp efstu manna en ţó ađeins unniđ eina skák og taflmennska hans veriđ fremur tilţrifalítil. Stađa efstu manna:
1.-3. Anand, Giri og Mamedyarov 3˝ v. (af 5) 4.-6. Magnús Carlsen, Kramnik og So 3 v. Keppendur eru 14 talsins.
Frískleg taflmennska gamla heimsmeistarans Wisvanathans Anands hefur vakiđ mikla athygli, en á dögunum varđ hann heimsmeistari í atskák. Hiđ létta handbragđ hans naut sín í viđureigninni viđ Fabiano Caruana, sem hefur átt erfitt uppdráttar í Hollandi:
Wijk aan Zee 2018; 4. umferđ:
Wisvanathan Anand Fabiano Caruana
Petroffs-vörn
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. 0-0 0-0 8. c4 c6 9. Dc2 Ra6 10. a3 Bg4 11. Re5
Ţessi stađa er er ekki ný af nálinni og útheimtir gríđarlega undirbúningsvinnu. Hér hefur áđur veriđ leikiđ 11. ... Bxe5 12. dxe5 Rac5 13. f3 Rxd3 14. Dxd3 Rc5 15. Dd4 Rb3 16. Dxg4 Rxa1 17. Bh6 g6 18. Rc3 međ afar óljósri stöđu. Ţađ kom á óvart ađ Caruana skyldi velja leik sem ekki hefur gefist vel.
11.... Bf5!? 12. b4 Rc7 13. f3 Bg6 14. c5 Bxe5 15. dxe5 Rg5 16. Bb2 d4?!
Hyggst hasla sér völl á e3 en hvítur er fyrri til. Houdini telur 16.... a5 betra.
17. f4! Rd5 18. fxg5 Re3 19. Dd2 Bxd3 20. Dxd3 Rxf1 21. Kxf1 Dxg5 22. Rd2 Dxe5 23. Rf3 Dh5 24. Dxd4 f6 25. Dc4 Kh8 26. Bc1!
Vel leikiđ. Anand veit auđvitađ ađ biskup og riddari eiga erfitt uppdráttar gegn hrók og peđi, einkum ef línur eru opnar. Biskupinn stefnir skónum á d6 ţar sem hróknum er haldiđ niđri.
26.... Hfe8 27. Bf4 a5 28. Bd6 axb4 29. Dxb4 Dd5 30. Dxb7 h6 31. Kg1 Ha4 32. h3 Hc4 33. Db2 Dd3 34. Ha2 Dd1 35. Kh2 Hc1 36. a4!
Kóngsstađan er alveg örugg og frípeđiđ skundar af stađ.
36.... f5 37. Db7 f4 38. Bxf4 Hxc5 39. Hd2 Dxa4 40. Df7 Hg8 41. Be5!
Hótar t.d. 42. Hd8.
41.... Dc4
Glćsilega leikiđ, 42.... Dxf7 er svarađ međ 43. Hxh6 mát. Caruana gafst ţví upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 20. janúar 2018.
Spil og leikir | Breytt 22.1.2018 kl. 17:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2018 | 17:42
Hjörvar í Kerhólaskóla á Skákdaginn
Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson var einn fjölmargra sem tók ţátt í hátíđarhöldunum á Skákdaginn. Hann ásamt unnustu sinni, Liss Acevedo Méndez, heimsóttu Kerhólaskóla í Grímness- og Grafningshreppi. Tefldi ţar Hjörvar fjöltefli viđ skólanemendur og fór yfir leyndardóma skáklistarinnar.
27.1.2018 | 17:38
Árdegismót KR: Guđfinnur hafđi ţađ
Árdegismót KR í tilefni af Skákdeginum fór fram međ glćsibrag í morgun og hófst stuttu eftir sólarupprás, en segja má ađ morgunstund gefi gull í mund, amk. sumum. Keppt var um Friđrikskort međ frímerkjum af honum frá fyrir 3 árum ţegar hann varđ áttrćđur fyrstadagsstimpluđum.
Eftir níumferđatveggjaoghálfstímahörkuátök urđu úrslit ţau ađ engin annar en Guđfinnur R. Kjartansson, hinn sigursćli síteflandi ástríđuskákmađur ađ vestan rúllađi mótinu upp međ "einari", uppskar 8 vinninga af níu mögulegum og fagnađi glćstum sigri. Ađrir međ minna og ţađan af minna eins og sjá má á međfylgjandi myndskreyttri mótstöflu.
Á mánudagskvöldiđ hefst svo vestur ţar "Kapptefliđ um Friđriksbikarinn" - 4 kvölda Grand Prix mótaröđ. Muniđ ađ mćta.
27.1.2018 | 11:00
Sveitakeppni skóla á Suđurlandi: Vel heppnađ mótshald
Sveitakeppni skóla á Suđurlandi var haldin 26. jan. s.l. í Fischersetri. Alls mćttu 10 sveitir til leiks. Sveitunum var skipt í yngri (1.-5. bekkur) og eldri flokk (6.-10. bekkur) og voru sex sveitir í ţeim eldri og fjórar í ţeim yngri.
Úrslit keppninnar urđu ţau ađ í yngri flokknum sigrađi Flóaskóli örugglega međ 19 vinninga, í öđru sćti Flúđaskóli međ 13 vinninga og í ţriđja sćti b-sveit Vallaskóla međ 9 vinninga.
Nánar á Chess-Results
Í eldri flokknum var hörđ barátta á milli efstu liđanna og réđust úrslitin ekki fyrr en íđi síđustu skákm mótsins. Niđurstađan var sú Grunnskólinn í Hveragerđi sigrađi međ 14˝ vinning, í öđru sćti a-sveit Flúđaskóla međ 13˝ vinning og í ţriđja sćti b-sveit Flúđaskóla međ 10 vinninga.
Sjá nánar á Chess-Results.
Stefán Bergsson átti veg og vanda af undirbúningi mótsins. Gunnar Björnsson sá um skákstjórn. Aldís Lárusdóttir var ómetanleg hjálparhella á skákstađ. Skákţjálfarnir fá miklar ţakkir fyrir sitt skákstarf og ađ senda liđ.
Stefnt er ađ halda áfram međ fjölga sveitum ađ ári. Forseti SÍ hvatti umsjónarmenn liđa til ađ stefna á ađ senda sveitir á Íslandsmót grunnakólasveita og/eđa barnaskólasveita í vor.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 13
- Sl. sólarhring: 38
- Sl. viku: 138
- Frá upphafi: 8778717
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar