Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Kennari verđur skákkennari: Vestmannaeyjar

unnamedSkákstarf hefur lengiđ veriđ öflugt í Vestmannaeyjum. Fyrir fáeinum árum var sérstaklega mikill kraftur í skákkennslu í Grunnskólanum. Björn Ívar Karlsson bjó ţá í Eyjum og kenndi marga tíma á viku í skák. Ţegar Björn flutti upp á land breyttust ađstćđur skólans og skákkennslan minnkađi mikiđ. Áhugi skólastjórnenda og Taflfélagsmanna á ađ hafa skákkennslu í skólanum er ţó mikill og tekur skólinn ţátt í verkefni Skáksambandsins Kennari verđur skákkennari. Ţađ er hún Sćfinna Ásbjörnsdóttir kennari viđ skólann sem tekur ţátt í verkefninu. Hún er umsjónarkennari í fjórđa bekk og mun kenna sínum eigin bekk ásamt tveimur öđrum bekkjum í fjórđa bekk. Stefán Bergsson verkefnisstjóri heimsótti Sćfinnu og nemendur hennar föstudaginn 9. september. Fariđ var yfir kennsluađferđir og kennsluleiki sem Sćfinna getur nýtt sér á nćstunni. Stefnt er ađ nćstu heimsókn í nóvember. Nemendur voru sérstaklega áhugasamir og prúđir međan á kennslunni stóđ. Taflfélaginu og Hótel Eyjum er ţakkađ ađstođ viđ heimsóknina.

 


ÓL: Slóvakía og Marokkó í dag - USA og Rússland mćtast

Nú ţegar styttist í ađ skákklukkur verđi rćstar í 8.umferđ Ólympíuskákmótsins í Bakú má greina mikla spennu í skákheimum. Í opnum flokki mćtir Ísland liđi Slóvakíu á međan kvennaliđ Íslands glímir viđ Marokkó. Ţó svo hinn almenni skákáhugamađur verđi ađ öllum líkindum á sćtisbrúninni á eftir ţá eru ţađ ţó ekki okkar tvćr viđureignir sem skapa slíka ólgu í hugarfylgsnum skákmanna, nema hugsanlega einhverra heima á Íslandi. Ţađ eru ađrar tvćr viđureignir sem allra augu munu beinast ađ á eftir. Á efsta borđi í opnum flokki mćtast nefnilega Bandaríkin og Rússland. Ţađ merkilega er ađ á sama tíma berjast sömu ţjóđir á efsta borđi í kvennaflokki.

Ísland mćtir Slóvakíu í dag í opnum flokki og hinn sjóđheiti Hjörvar Steinn Grétarsson hvílir ađ ţessu sinni. Ţessi viđureign er afar jöfn sé litiđ til skákstiga en dagsskipunin er einföld; tvö stig skulu bćtast í sarpinn.

Slovakia

 

Í kvennaflokki mćtir Ísland liđi Marokkó og Hrund Hauksdóttir hvílir. Ísland er stigahćrra á öllum borđum og ćtlar sér ekkert annađ en sigur.

Morocco

 

Flestra augu munu án efa beinast ađ viđureignum Bandaríkjanna og Rússlands, en ţjóđirnar mćtast í báđum flokkum.

rus-usa

rus-usa_kvk

 


Íslandsmót öldunga 65+ fer fram í dag

ÍSLANDSMÓT ÖLDUNGA 65 ÁRA OG ELDRI -005

Íslandsmót öldunga  65 ára og eldri  verđur haldiđ laugardaginn 10. september  nk. í Ásgarđi, félagsheimili  FEB ađ Stangarhyl.  Ađ ţessu sinni standa báđir skákklúbbar eldri borgara á Höfuđborgarsvćđinu, RIDDARINN og ĆSIR, sameiginlega ađ mótinu, sem áđur hefur fariđ fram á vegum hins fyrrnefnda í Hafnarfirđi.

Ţetta er í ţriđja sinn sem slíkt Íslandsmót međ atskákarsniđi fer fram í ţessum aldursflokki.

Tefldar verđa 9 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma auk  3 sekúndna viđbótartíma á leik. Fjórar umferđir verđa tefldar fyrir hádegi en lokaumferđirnar fimm eftir hádegisverđarhlé.

Mótiđ hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 16.30  međ verđlaunaafhendingu. 

Ţátttökugjald er kr. 1000 og innifelur kaffi, svaladrykki og snarl međan á móti stendur. Björgvin Víglundsson er núverandi Íslandsmeistari og  hefur unniđ mótiđ í bćđi skiptin sem ţađ hefur veriđ haldiđ.  

Ađalverđlaun mótsins er kr. 50.000 ferđastyrkur á Norđurlandamótiđ í skák í Sastamala, Finnlandi, 22. -30. október nk.  Auk verđlaunagripa sem gefnir eru af Sportvöruverzluninni JÓA ÚTHERJA, verđa veitt vegleg bókaverđlaun og aldursflokkaviđurkenningar (65-70; 71-75; 76-80; 81 og eldri). Vćnst er góđrar ţátttöku sem víđast hvar ađ af landinu.  

Mótsnefndina skipa fulltrúar "Öđlinganefndar SÍ" ţeir: Einar S. Einarsson, formađur; Finnur Kr. Finnsson; Guđfinnur R. Kjartansson; Sigurđur E. Kristjánsson og Össur Kristinsson.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér

 


Davíđ efstur á Meistaramóti Hugins

IMG_2869

Ađ lokinni 4. umferđ á Meistaramóti Hugins er Davíđs Kjartansson einn efstur međ 4v. Jafnir í 2. – 6. sćti koma Sćvar Bjarnason, Björgvin Víglundsson, Jón Trausti Harđarson, Mikael Jóhann Karlsson og Dawid Kolka međ 3v. Í uppgjöri efstu manna í 4. umferđ vann Davíđ Sćvar. Á öđru borđi gerđu Björgvin Víglundsson og Vigfús Ó. Vigfússon jafntefli í lengstu skák umferđarinnar, sem reynar var í styttra lagi miđađ viđ ţćr umferđir sem voru á undan. Á ţriđja borđi tefldu Aron Ţór Mai og Mikael Jóhann Karlsson hörku skák sem lauk sigri Mikaels. Á fjórđa borđi áttu svo viđ Dawid Kolka og Heimir Pál Ragnarsson í annarri af tveimur viđureignum ungu strákanna í Huginn í kvöld. Ţeirri viđureign lyktađi međ sigri Dawid, sem er efstur Huginsmanna ađ loknum fjórum umferđum og fćr gott vegarnesti í á Norđurlandamót grunnskólasveita, sem fram fer um helgina. Ţar teflir Dawid á fyrsta borđi fyrir Álfhólsskóla.

Ţótt 4. umferđin vćri sú styssta til ţess virtist ţađ samt ekki koma niđur á taflmennsku keppenda, sem leit út fyrir ađ vera heildstćđari en í fyrri umferđum. Ţađ verđur ađ teljast eđlileg og jákvćđ ţróun á fyrsta kappskákmóti á haustmisseri ađ menn séu mistćkir í upphafi og bćti sig svo ţegar líđur á mótiđ. Ţađ kemur samt betur í ljós ţegar búiđ verđur ađ slá inn umferđir 3 og 4 en stefnt er ađ birta ţćr skákir međ úrslitum 5. umferđar.

Nćst umferđ sú 5. fer fram á mánudaskvöldiđ 12. september og hefst kl. 19.30. Stađan í Chess-results.


Ólympíumót: 7. umferđ í opnum flokki

7th_teamŢví miđur er undirritađur ekki alveg í sama ritstuđi og í gćr og ţví hćtt viđ ađ pistillinn ađ ţessu sinni verđi heldur styttri. Ţađ er líka ţannig ađ ţađ er ađeins erfiđara ađ tjá sig eftir svona lýjandi viđureign heldur en ţegar úrslitin eru góđ.

Viđ semsagt láum í valnum gegn Grikkjum 1-3 sem hafa reynst okkur erfiđir á síđustu árum. Ég bullađi reyndar í gćr ţegar ég sagđi ţá nr. 18 í stigaröđinni ţar sem hiđ rétta er ađ ţeir eru nr. 27 í röđinni. Engu ađ síđur eru ţeir gríđarlega ţéttir og hafa veriđ í miklu stuđi hér í Baku. Ţeir hafa ađeins tapađ einni skák allt mótiđ og gefa ekki mikil fćri á sér.

Viđ vorum komnir niđur af sviđinu ađ ţessu sinni en ekki langt. Ađeins einu ţrepi frá sviđinu og ţangađ vildum viđ aftur en verđur erfitt eftir úrslit dagsins. Í stuttu máli sagt hitti enginn á góđan dag og eiginlega mćtti segja ađ viđ hefđum aldrei átt möguleika í ţessari viđureign. Viđ vorum eins og pútt međ halla á flötinni sem fer undir brotiđ og á aldrei möguleika á ađ fara ofaní.

Kíkjum á gang mála í skákunum:

1. borđ Hannes hvítt á Papaioannou

Hannes ákvađ ađ tefla sama afbrigđi og Jóhann í umferđinni á undan, Be2 afbrigđiđ í Najdorf međ Dd3. Jóhann var ađ skođa ţetta međ Hannesi fyrir umferđ og ţví var ég bjartsýnn ţegar ég sá Dd3 á borđinu.

7th_hannes

Hér er víst best ađ leika 15.Bg5 skv. Jóhanni og tölvurnar eru ţví sammála. Ţess í stađ virtist Hannes ađeins verđa planlaus. Ţó ekkert hefđi veriđ enn ađ stöđunni fannst mér öll ţćgindi og frumkvćđi fćrast yfir á svartan eftir ađ mislitu biskuparnir voru komnir á borđiđ. Fór svo ađ Ioannis fórnađi peđi á ţematískan hátt og tók algjörlega valdiđ á svörtu reitunum á borđinu og skildi hvítareitabiskupinn eftir grjótpassífan. Hannes hafđi vissulega valdađ frípeđ en ţađ var langt í ţađ gćti fariđ ađ skipta máli.

Rd7_hannes_2

Stađan eftir peđsfórnina, svartur stjórnar í raun borđinu peđi undir.

Manni fannst Hannes ţó aldrei veri i taphćttu en ţađ var ljóst ađ allir erfiđleikarnir voru hans megin og hann ţurfti mikiđ ađ glíma viđ erfiđar skammtímahótanir og ţegar svoleiđis stress hleđst upp leik eftir leik er hćtta á ađ varnarleikurinn fari eitthvađ ađ gefa sig. Hannes virtist ţó heppinn ţegar hann slapp úr óverjandi drottningartapi/máti í 40. leik. Ţađ dugđi ţó ekki til og Grikkinn tefldi skínandi vel og hálfgerđa módelskák í ađ sýna mismun á frumkvćđi ţegar annar ađilinn rćđur algjörlega yfir einum "lita-complex" á borđinu.

Hannes reyndi ađ loka ađ fórna biskupi sínum fyrir ţráskák en ţegar ljóst var ađ svarti kóngurinn var ađ komast í skjól á b6 lagđi Hannes niđur vopn.

 

2. borđ: Hjörvar svart á Hristos Banikas

7th_hjorvar

Hjörvar tefldi byrjunina sýndist mér af nokkru öryggi og virtist ekki glíma viđ mikil vandmál.

7th_hjorvar_1

Hér er Hjörvar međ nálćgt jöfnu tafli en mér reyndari menn vilja meina ađ hér hefđi t.d. 16...Dc8 veriđ máliđ. Ţess í stađ var 16...Ne4 mögulega of mikil "kraftataflmennska". Eftir mögulega einhverja vafasama leiki til viđbótar var hvítur kominn međ alla sénsa í stöđunni og Hjörvar í vandrćđum. Hann varđist ţó af ţrótti en vildi meina ađ hann hefđi veriđ međ tapađ tafl á einhverjum tímapunkti, honum allavega leiđ ţannig. Hann vitnađi í 27. leik hvíts Db2 en ţá hefđi Hd4 mögulega bara unniđ peđiđ á e4 fyri hvítan.

Rd7_hjorvar_2

Hér hefđi Hd4 veriđ erfiđur

Hjörvar hélt vel velli í ţessari skák og hélt jafntefli eftir erfiđa vörn. Ţetta var önnur skák dagsins ađ klárast.


3. borđ Guđmundur hvítt á A.Mastrovasilis

Á borđiđ kom hefđbundiđ drottningarbragđ en sá gríski valdi sjaldgćft afbrigđi, lék ...Bd6 snemma og svo kom b6 međ uppskiptum á a6 og riddarinn settur á ...c7. Allt hiđ furđulegasta, ég allavega hef ekki séđ ţetta áđur. Manni fannst ađ hvítur hlyti ađ vera međ eitthvađ smá í stöđunni en mér fannst eins og Gummi hlyti ađ hafa misst ţráđinn ţarna snemma án ţess ađ ég skilji fyllilega hvar. Kannski var Da4 og svo e4 í kjölfariđ ekki tímasett rétt. 

7th_gummi_1

Svartur fékk fullkomna blokkeringu gegn stöku peđi hvíts og ţegar búinn ađ skipta upp á tveimur léttum mönnum sem er yfirleitt góđ ţumalputtaregla gegn staka peđinu. Svarta stađan reyndist mun auđteflanlegri og hann í raun bćtti stöđu sína smátt og smátt. Sem betur fer missti Mastroinn af leiđ til ađ vinna skiptamun í 27. leik og Gummi greip tćkifćriđ og náđi ađ einfalda skákina niđur í algjörlega öruggt jafntefli. Ţetta var fyrsta skákin ađ klárast í viđureigninni.

 

4. borđ: Bragi svart gegn Halkias

7th_team

Bragi fékk Íslandsvininn Stelios Halkias á 4. borđi. Gaman er ađ segja frá ţví ađ ţessir tveir mćttust fyrsta áriđ 1992 á barnaskákmóti! Ţá skildu ţeir jafnir. Bragi notađi ţá skák ţó ekki í undirbúningi dagsins en engu a síđur var mikiđ ađ undirbúa ar sem Stelios hefur veriđ í Rf3/d4/c4 og meira ađ segja ađeins kominn í e4 líka.

Bragi var ţví heppinn ađ fá hluta af undirbúningi upp í afbrigđi í enskri vörn. Ţar hafđi hann undirbúiđ ţekkta peđsfórn međ ...d6 leiknum en Stelios "smelled a rat" og ákvađ ađ fara ekki í krítískustu leiđina í ţví afbrigđi og tefldi rólega. Raunar tefldi hann eiginlega of rólega og Bragi jafnađi tafliđ meira og minna.

Líklegast hefđi Bragi getađ gert sér mun auđveldara fyrir međ ţví ađ skipta upp á öllum hrókum og verja drottningarendatafliđ. Engu ađ síđur varđist hann vel og í raun er erfitt ađ benda á klár mistök í vörninni hjá Braga. Mögulega hefđi veriđ hćgt ađ stilla peđunum á kóngsvćng öđruvísi upp fyrr en líklegast er líka ...Hc1 í stađ ...Hc5 auđveldara jafntefli ţar sem svarti kóngurinn verđur ekki jafn passífur og í skákinni.

Rd7_bragi_stelios

Hér lék Steilos Hf3! sem er eini vinningsleikurinn í stöđunni skv endataflsgrunnum.

Ţađ skal ekki tekiđ af Stelios ađ hann tefldi lokin mjög vel og fann nánast einu leiđirnar til ađ skapa leiđindi og svo til ađ stýra vinningnum í höfn. Svekkjandi tap hjá Braga og síđasta skák dagsins og 1-3 tap niđurstađan.

Heilt yfir ţví mjög sanngjarnt tap eftir dapran dag hjá okkar mönnum. Nóg er ţó eftir og endaspretturinn alltaf mikilvćgur.


                ********************************


Kíkjum á nokkra mola úr mótinu:

- Eugino Torre reynsluboltinn frá Filipseyjum sem er ađ tefla á sínu 23. Ólympíumóti og hefur jafnframt set met yfir flestar skákir tefldar á mótinu. Gamli kallinn er algjörlega "on fire" međ 6/7 vinninga á mótinu. Spurning hvort hann gisti í Flame Towers?!

- Íran er međ ungt og spennandi liđ. Ţeir voru á 9. borđi, ţví sem viđ tefldum á í gćr, og unnu ţar stóran sigur á Mongólíu. Ivan Sokolov ţjálfar ţá en í liđinu eru mjög ungir strákar og međal annars hiđ ofvaxna undrabarn Parham Maghsoodloo. Hann er taplaus í mótinu. Ţarna er á ferđinni mikiđ efni og heimsmeistari U-16 og í ÓL U16 sigurliđi Írana. Ávallt er hćgt ađ finna hann í sama vestinu enda lítill tími til ađ skipta um föt ţegar menn stúdera 16 tíma á dag!

7th_parham

- Bandaríkjamenn leiđa mótiđ eftir stórsigur á Indverjum sem detta niđur í deilt annađ sćtiđ ásamt fimm öđrum ţjóđum. Ţar er óvćntasta liđiđ Lettar međ Shirov og Kovalenko en ţeir lögđu Hollendinga í umferđ dagsins. Ţessi moli ćtlar eitthvađ ađ lengjast ţví ţegar mér dettur ţessi viđureign í hug ţá dettur mér í hug skák Shirovs gegn Giri. Ţar notađi Giri "beisiklí" engan tíma á skákin og átti 1:35 á klukkunni (5 mínútum meira en byrjađ er međ) ţegar hann ţvingađi ţráskák rétt eftir 20. leik svarts. Shirov hinsvegar notađi mikinn tíma og starđi ítrekađ algjörlega gal út í tómarúmiđ en ţegar Shirov gerir ţađ velur hann sér oft punkt sem ţá yfirleitt er manneskja á sviđinu og starir örugglega algjörlega ómeđvitađ á ţá manneskju međ einhverskonar morđaugnaráđi. Björn Ívar lenti einmitt í ţví í ţađ síđustu umferđ! 

- Ian Nepomniachti er algjörlega í einhverjum eigin heimi međ 7 vinninga úr 7 skákum og grettir sig bara yfir hvađ andstđingarnir međ 2600+ elóstig eru ađ leika slökum leikjum og drekkur svo kókiđ sitt: linkur á skákina

- Magnus Carlsen er venjulega merktur sponsor sínum í VG eđa klćddur einhverjum vönduđum jökkum. Í dag var hann frekar casual á ţví:

7th_mc

- Fyrst viđ vorum ađ tala um eigin heim hjá Nepomniachti kíkji á byrjunina hjá Jobava...hvađ er ađ frétta segi ég nú bara! linkur á skákina

- Englendingar eru "back in the game" eftir ađ ţeir flengdu Kínverja óvćnt 3-1 í dag. Englendingar voru sendir međ skottiđ milli lappana eftir 3,5-0,5 tap gegn Hollendingum fyrr í mótinu en hafa komiđ sterkir til baka. Michael Adams sveiđ Wang Yue (júúú) úr gjörsamlega engri stöđu, ég og Björn Ívar höfđum gert grin ađ ţví snemma í skákinni hvađ ţetta vćri öruggt jafntefli. linkur á skákina

- Geđveiki dagsins, kíkjiđ á skák Marcus Ragger gegn Sebastian Maze. Nćstum 30 leikir af Kóngsindverja teoríu gjörsamlega "úđađ" út á báđa bóga. linkur á skákina. Frakkar halda áfram ađ ströggla og eru jafnir okkur ţrátt fyrir ađ hafa nćst stigahćsta skákmann heims í sínum röđum.

- Ţessi er frá Kyrgystan. Ţeir tefla alltaf međ ţessa hatta!7th_kyrgystan

- Ţessi mannvera biđur kćrlega ađ heilsa :-)  ...meistari Luis Galego frá Portúgal, mikill Íslandsvinur.

7th_galego

- Ekki er hćgt ađ ljúka pistlinum án ţess ađ minnast a´uppáhalds sveit okkar Björns Ívars en ţađ er Suđur-Súdan. Ţeir unnu í dag auđveldan sigur á Sao Tome & Principe 3-1. Sao Tome er međ stigamenn á öllum borđum ţó stigalágir séu. Deng, Diing og Deng unnur allir en Deng tapađi....altso Michael Deng.

- Finnbjörn Vang, FIDE-dindill (uppnefni okkar hér á FIDE delegate) ţeirra Fćreyinga tefldi sína fyrstu skák á Ólympíumóti í 6. umferđ í gćr til ţess vćntanlega ađ Helgi Dam Ziska ćtti betri möguleika á GM áfanga ţar sem skák viđ 1960 stiga mann var ekki ađ gera neitt fyrir međalstigin hans. Finnbjörn spreytti sig aftur í dag en afraksturinn er ađeins háflur vinningur.

- Hammer-vaktin. Jón Lúđvík landađi sínu sjöunda jafntefli í jafn mörgum skákum. Viđ bíđum en aftur alvöru "Hammer-blow"

- Maturinn á hótelinu hérna er orđinn ađeins ţreyttur. Azerarnir virđist eiga ţađ til ađ ofsteikja allt og fyrirbrigđiđ sósa er ekki í hávegum haft hér. Engu ađ síđur var góđur punktur hjá Gullu ađ eftir ţeir steikja allt í drasl ađ ţá allavega drepa ţeir bakteríur eins og Salómon Elías. Viđ Bragi brutum ţetta upp í kvöld og fundum Dominos pizza stađ hér stutt frá hótelinu. Fín pizza og cheesy garlic bread. Sáttir.

 

Látum ţetta gott heita af ADHD punktum dagsins. Á morgun mćtum viđ Slóvökum....einhverjir apakettir (ţeir vita hverjir ţeir eru) höfđu sagt ađ viđ myndum mćta Slóvenum en á ţví er mikill munur! Sá misskilningur var ţó leiđréttur fljótlega. Viđ mćtum semsagt sveit sem leidd er af Ljubomir Ftacnik, gamla brýninu....eđa Fantastic eins og túlkur landsliđsins kallađi hann ;-)  Slóvakar eru númer 49 í stigaröđinni og ţvi ekki of kröfuhart ađ vonast eftir sigri á morgun ţó búast megi viđ jafnri og spennandi viđureign. 

Ingvar Ţór Jóhannesson - liđstjóri í opnum flokki.


Ólympíuskákmótiđ: 7. umferđ í kvennaflokki

Ísland ˝ - Spánn 3˝

Andstćđingar okkar í 7. umferđ voru Spánverjar (međalstig: 2335).

P1040681

Úr viđureigninni viđ Spánverja í dag. Gáta fyrir glögga: Á myndinni sést stórmeistari, međ rautt nef, sem hefur oft teflt á Íslandi og gegn Íslendingum. Hvađa landsliđ ţjálfar hann?

Lenka hafđi svart gegn WGM Monica Calzetta Ruiz (2249) á 1. borđi. Upp kom Sikileyjarvörn međ sama sniđi og viđ höfđum skođađ fyrir skákina. Lenka fékk snemma fína stöđu og náđi ađ setja Monicu undir talsverđa pressu. Á einum tímapunkti í tímahrakinu átti Lenka afgerandi vinningsleiđ sem byggđist á flókinni fléttu.

7lenkaHér lék Lenka 36...Rxd6 og fór út í endatafl peđi yfir. Hún átti ţess í stađ vinningsleiđ međ 36...a3! 37. Rxc4 Hxd3 38. Bxd3 a2 39. Ha5 Bd5+! 40. Kg1 Ha8! og hvítur getur ekki stöđvađ svarta a-peđiđ.

Lenka missti af vinningsleiđinni en valdi ţess í stađ ađ fara út í hróksendatafl peđi yfir. Sú spćnska varđist afar vel og hélt jafntefli á endanum eftir 107 leiki. Lenka fćr stórt hrós fyrir ađ reyna ađ kreista blóđ úr steini!

Guđlaug hafđi hvítt gegn IM Sabrina Vega Gutierrez (2411). Gutierrez kom okkur ögn á óvart í byrjuninni međ ţví ađ snúa Semi-slav yfir í grjótgarđsvörn snemma tafls. Gulla fékk engu ađ síđur fína stöđu en varđ á ónákvćmni í miđtaflinu og tapađi peđi.

7gulla

Gulla lék síđast 16. f3 og Gutierrez svarađi ţví međ 16...cxd4! 17. exd4 Bxe5 18. dxe5 dxc4 19. Bxe4 fxe4 20. fxe4 Dc5+ og vann peđ.

Eftir ţađ hleypti sú spćnska henni ekkert aftur inn í skákina og tap niđurstađan.

Hrund hafđi svart gegn IM Ana Matnadze (2383). Ana er hörku skákkona sem varđ m.a. heimsmeistari barna/unglinga í tvígang, ef ég man rétt. Hrund fékk prýđilega stöđu út úr byrjuninni eftir ađ Ana hafđi valiđ undarlegt framhald í ţekktri stöđu. Sennilega hefur hana grunađ ađ viđ hefđum kíkt vel á afbrigđiđ sem henni stóđ til bođa ađ tefla, sem var rétt hjá henni ţví viđ höfđum fundiđ skemmtilegar leiđir fyrir svartan fyrir skákina.

7hrund

Hér vorum viđ búin ađ plotta ýmislegt djöfullegt eftir 7. e4, sem er eđlilegasti leikurinn. Matnadze er reynd skákkona og hefur sennilega ,,fundiđ lykt af rottunni" ţví hún lék 7. Rg5?! sem breytti karakter stöđunnar talsvert.

Upp kom stađa ţar sem svartur ţurfti ekki ađ hafa neinar áhyggjur en í flćkjunum í miđtaflinu missti Hrund af bestu leiđinni og tapađi tveimur peđum og í framhaldinu manni og neyddist til ađ gefast upp.

Veronika hafđi hvítt gegn WIM Niala Collazo Hidalgo-Gato (2268). Viđ bjuggumst viđ ađ sú spćnska myndi beita Sikileyjarvörn en hún kom okkur á óvart međ 1...g6. Veronika tefldi ekki nógu markvisst í byrjuninni, gaf svörtum alltof mikinn tíma og lenti í vandrćđum međ ađ valda miđborđiđ sitt. Eftir ađ hafa lent í algjörri klemmu náđi hún ađ losa um sig og stóđ alls ekki verr um tíma. Ţegar tímamörkunum var náđ gat hún fariđ í uppskipti á drottningum og stađan er sennilega í jafnvćgi. Ţess í stađ hélt hún drottningunum inni á borđinu en ţá fékk Niala mikiđ spil sem Veronika réđ ekki viđ og varđ ađ lokum mát eftir flóttatilraun hvíta kóngsins.

7veronika

Hér var líklega einfaldast fyrir Veroniku ađ leika 41. Dxf6+ Kxf6 41. Hd1 og jafntefli eru líklegustu úrslitin. Hún lék ţess í stađ 41. Dd7 og missti tökin á stöđunni eftir 41...Dc3

Eins og skákáhugamenn geta ímyndađ sér er andrúmsloftiđ á skákstađ nánast ólýsanlegt. Ţađ er farin ađ fćrast töluverđ spenna í toppbaráttuna og ţađ er gaman ađ geta fylgst međ bestu skákmönnum heims í miklu návígi. Viđ Ingvar getum nefnilega gengiđ á milli allra borđa, ţar sem viđ höfum sérstakt liđsstjóraspjald sem gefur okkur ,,frítt spil". Áhorfendur og ađrir gestir eru útilokađir frá borđunum af sterklega byggđum azerskum öryggisvörđum sem taka vinnu sína mjög alvarlega. Í gćr gekk ég framhjá viđureign Kazakhstan og Lettlands en ţar er góđvinur okkar Alexei Shirov á 1. borđi fyrir Letta. Ég velti fyrir mér í augnablik hvađ var ađ gerast á borđinu og ţegar ég leit upp og ćtlađi ađ rölta áfram tók ég eftir ţví ađ Shirov starđi í augun á mér.

shirov11

Ég leit aftur á stöđuna í smá stund en ţegar ég leit aftur upp var Shirov ennţá ađ horfa í augun á mér og nú međ algjörri dauđastöru. Ég hélt augnsambandi viđ meistarann á međan ég fikrađi mig niđur af sviđinu og hćfilega langt í burtu frá honum, aftur yfir í kvennahluta keppnissalarins. Ţegar ég var kominn ţangađ, svona 30-40 metra í burtu, sá ég ađ hann horfđi enn á mig. Kannski hélt hann ađ ég vćri Grétarsson eđa Jensson og hann ćtti harm ađ hefna gegn mér. Minniđ mig allavega á ađ forđast Shirov í framtíđinni. 

Í 8. umferđ mćtum viđ skáksveit Marokkó. Viđ erum ögn stigahćrri á öllum borđum og teljum okkur eiga fína möguleika á ađ sigra ţá viđureign. Viđ hlökkum til morgundagsins!

Ţangađ til nćst, bestu kveđjur frá Bakú.

Björn Ívar


ÓL: Brött brekka í Bakú í dag

ICELAND_Maria Emelianova

Hún reyndist of brött brekkan sem íslensku landsliđin lentu í er 7.umferđ var tefld á Ólympíuskákmótinu í Bakú í dag. Ísland tapađi fyrir Grikklandi 1-3 í opnum flokki og í kvennaflokki tapađi liđiđ fyrir firnasterku liđi Spánar 0,5-3,5.

Í opna flokknum gerđu Hjörvar Steinn Grétarsson og Guđmundur Kjartansson jafntefli, en Hannes Hlífar Stefánsson og Bragi Ţorfinnsson töpuđu sínum skákum. Jóhann Hjartarson hvíldi ađ ţessu sinni.

Ađ lokinni 7.umferđ er Ísland í 26.-49.sćti međ 9 stig og eru ţar í góđum hópi öflugra skákţjóđa á borđ viđ Frakkland, Spán og Ţýskaland.

Iceland vs Greece_Paul Truong

Í kvennaflokki hélt Lenka Ptacnikova uppteknum hćtti og fćrđi taflmenn sína um skákborđiđ af miklu sjálfstrausti. Lenka var nálćgt ţví ađ vinna skákina međ svörtu gegn stigahćrri andstćđingi, en varđ ađ lokum ađ sćttast á skiptan hlut eftir 107 leikja baráttu. Guđlaug Ţorsteinsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir töpuđu sínum skákum. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir hvíldi í dag.

Ađ lokinni 7.umferđ situr íslenska kvennaliđiđ í 77-98.sćti eftir ţrjú töp í röđ.

Lenka Ptacnikova

Í opna flokknum tók ofursveit Bandaríkjanna sig til og lagđi efsta liđ mótsins, Indland, međ minnsta mun, 2,5-1,5. Bandaríkin hefur ţví tyllt sér í toppsćtiđ međ 13 stig ađ loknum sjö umferđum. Ţá gerđu Englendingar sér lítiđ fyrir og unnu Kína 3-1 og deila ţeir 2.sćti međ Indlandi, Rússlandi, Úkraínu, Georgíu og Lettlandi.

Fimm liđ eru efst í kvennaflokki međ 12 stig; Rússland, Kína, Aserbaísjan, Bandaríkin og Holland. Rússland varđ ađ gera sér jafntefli ađ góđu gegn Póllandi í dag og Kína lagđi Úkraínu međ minnsta mun í uppgjöri stigahćstu liđa mótsins.

USA Team_Paul Truong

8.umferđ verđur tefld á morgun, laugardag, og verđa klukkurnar settar í gang klukkan 11 ađ íslenskum tíma. Ţá mćtir Ísland (2527) liđi Slóvakíu (2504) í opnum flokki, en kvennaliđiđ (2003) etur kappi viđ Marokkó (1824). Ţađ verđur fróđlegt ađ sjá hvernig íslensku liđin bregđast viđ mótlćti dagsins.

 


Dagskrá skákćfinga TR um helgina (10.-11. sep)

Vegna fyrsta móts Bikarsyrpu TR verđur fyrirkomulag skákćfinga nú um helgina međ eftirfarandi hćtti:

Laugardagur 10. september

  • 10:40-11:00 Byrjendaflokkur I (Manngangskennsla).
  • 11:15-12:15 Byrjendaflokkur II (Fyrir börn sem kunna mannganginn).
  • 12:30-13:45 Skákćfing stúlkna.
  • 14:00-16:00 Laugardagsćfing (opnar ćfingar) – fellur niđur vegna Bikarsyrpunnar.
  • 16:10-17:40 Afreksćfing A.

Sunnudagur 11. september:

  • 10:45-12:15 Afreksćfing B – fellur niđur vegna Bikarsyrpunnar.

Jafnframt hvetjum viđ ykkur krakkar sem hafiđ veriđ ađ sćkja skákćfingar félagsins, eđa annarra félaga, til ađ vera međ í Bikarsyrpunni enda er um afar gott ćfingarmót ađ rćđa sem jafnast á viđ margar skákćfingar. Upplýsingar um Bikarsyrpuna má sjá hér og hćgt er ađ skrá sig til leiks hér. Bikarsyrpan hefst í dag föstudag kl. 17:30.


Viđureignir dagsins: Grikkland og Spánn

Sjöunda umferđ Ólympíuskákmótsins hefst kl. 11 í dag. Andstćđingar dagsins eru Grikkir í opnum flokki og Spánn í kvennaflokki. Rétt eins og í gćr teflir íslenska liđiđ í opnum flokki upp á palli međ hinum toppsveitunum.

Opinn flokkur

Jóhann Hjartarson hvílir í opnum flokki. Grikkir (2592) eru međ átjánda sterkasta liđ mótsins sé miđađ viđ međalstig en íslenska liđiđ (2527) er ţađ 44. sterkasta

Bein útsending.

Clipboard03

Kvennaflokkur

Íslenska kvennaliđiđ (2003) mćtir afar sterkri sveit Spánverja (2335). Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir hvílir. Íslenska kvennaliđiđ er hiđ 61. sterkasta sé miđađ viđ međalstig en Spánn er ţađ 14. sterkasta en hefur ekki stađiđ undir vćntingum í Bakú og heldur ţví vonandi áfram í dag! 

Bein útsending.

 

Clipboard05

 


Bikarsyrpa TR hefst í dag

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ ţriđja áriđ í röđ. Mót syrpunnar í vetur verđa fimm talsins og hefur umferđum hvers móts veriđ fjölgađ í sjö.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2001 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.

Fyrsta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 9. september og stendur til sunnudagsins 11. september. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

 

Dagskrá Bikarsyrpu I:

1. umferđ: 09.september kl. 17.30 (fös).

2. umferđ: 10.september kl. 10.00 (lau).

3. umferđ: 10.september kl. 13.00 (lau).

4. umferđ: 10.september kl. 16.00 (lau).

5. umferđ: 11.september kl. 10.00 (sun).

6. umferđ: 11.september kl. 13.00 (sun).

7. umferđ: 11.september kl. 16.00 (sun).

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni 7.umferđ.

 

Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hverja yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.

Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.

Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2.sćti og 3.sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir samanlagđan árangur í mótunum fimm, ţar á međal er veglegur farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1.sćti gefur 5 einkatíma, 2.sćti gefur 3 einkatíma og 3.sćti gefur 2 einkatíma.

Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar til viđ undirbúning mótsins. Hlökkum til ađ sjá ykkur!

 

Skráningarform

Skráđir keppendur


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 8778398

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 84
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband