Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spil og leikir

ÓL: Dauðafæri í opnum flokki - Ísland mætir Portúgal og Svartfjallalandi

9.umferð Ólympíuskákmótsins í Bakú hefst innan skamms og mæta íslensku liðin Portúgal og Svartfjallalandi.

Í opnum flokki glímir Ísland við Portúgal og verður það að teljast afar heppilegur mótherji á þessu stigi í mótinu. Ísland er í raun í dauðafæri að komast upp á brakandi pallinn í 10.umferð ásamt fremstu skákþjóðum heims, og gæti þá mögulega mætt einhverri þeirra. Fyrst þarf þó að leggja Portúgal að velli og það verður engin barnaleikur. Til þess þurfa okkar menn að setjast við skákborðin vel undirbúnir, einbeittir og fullir sjálfstrausts. Bragi Þorfinnsson hvílir í dag.

Portugal

Í kvennaflokki mætir Ísland liði Svartfjallalands. Stúlkurnar okkar eru stigalægri á öllum borðum. Þær hafa hins vegar sótt gull í greipar stigahærri þjóða áður í mótinu og eru því til alls líklegar. Guðlaug Þorsteinsdóttir hvílir í dag.

Montenegro

 


Ólympíumót: 8. umferð í opnum flokki

rd8_teamEftir vonbrigði gærdagsins var í raun ekkert annað á boðstólnum en að vinna sigur á Slóvökum í umferð dagsins. Fall er fararheill og sem betur fer héldum við aðeins í um 30-45 mínútur í gær að við værum að fá Slóvena en á því er mikill munur þar sem þeir hafa nokkra 2600 gaura. Leiðinleg mistök sem verða að skrifast að mestu á mig að hafa ekki "double-checkað" en mér var sagt að við fengum Slóvena. Sem betur fer no harm no foul afsakið sletturnar hjá mér svona almennt!

Umferðin byrjaði á því að Hannes gleymdi græna kortinu sínu sem þarf til að komast inn á skáksvæðið og mætti svo í mótsbolnum öfugum. Sem betur fer lá leiðin upp á við eftir það fyrir okkur.

Snemma varð ljóst að það stefndi í fína sénsa fyrir okkur í viðureigninni. Slóvakarnir voru ekki að fá neitt með hvítu mönnunum (gegn Hannesi/Gumma) á meðan við virtumst hafa fínar stöður með hvítt (Jóhann/Bragi).

Rennum aðeins yfir gang mála á hverju borði.

1. borð Hannes svart gegn Lubomir Ftacnik

Ftacnik...eða Fantastic eins og gárungarnir kalla hann er reynsluboltinn í Slóvakíu liðinu og mikill teoríuhestur. Ftacnik hefur mikið skýrt skákir í gegnum tíðina og þótt góður skríbent sem slíkur. Hann hinsvegar var ekkert að rugga bátnum í byrjunni og lék 4.Rbd2 gegn slavneskri vörn sem verður nú seint kallað "critical test" á þeirri byrjun.

Hannes lét frumlegheitin lítið á sig fá og skipti yfir í mjög trausta Grunfeld stöðu. Hannes var óánægður á einum stað að hafa ekki skipt upp riddaranum á e4 í stað Rbd7 en þá hefðu ekki verið nein vandamál. Í staðinn gat Ftacnik aðeins gruggað í vatninu en fór ekki í krítískustu leiðina. Þrátt fyrir að hvítur fengi meira rými var í raun aðeins c-línan að vinna með og það var ekki nóg. Hannes hélt auðveldu jafntefli og þetta var fyrsta skákin til að klárast.

Í steindauðu jafntefli var Hannesi farið að leiðast þófið og bauð jafntefli. Lubomir var hinsvegar ekki alveg á því strax og lék nokkrum tilgangslausum leikjum í viðbót til að syna að það var HANN sem hefði átt að bjóða þar sem hann var með "aðeins betra í blöðunum" útaf rýminu ;-)

Rd8_Hannes

Hér bauð Hannes jafntefli....mínir nýjust "sourcar" segja reyndar að mögulega hafi hann bara yppt ökklum og baðað út höndum sem skýrir nokkra leiki í viðbót frá herra Fantastic.


3. borð: Guðmundur svart á Jurcik

Gummi var nokkuð vel undirbúinn í þessari skák og hafði skoðað það sem kom upp í skákinni í sínum Chessbase skrám. Hann tefli því byrjunina nokkuð hratt og virtist ekki eiga við nokkur vandamál að stríða. Hvítur fékk ekki neitt og tiltölulega snemma bauð hvítur í raun upp á þrátefli með riddarahoppum sínum.

8th_gummi

Guðmundur hafði hér örðu af möguleika sökum fjarlægs frelsingja á a-línunni. Hvítur náði hinsvegar að neutraliza það nokkuð auðveldlega og jafnteflið óumflýjanlegt.

Guðmundur taldi á þeim tímapunkti að Jóhann væri mögulega með verra eftir ...Df4 hjá andstæðingi hans og tefldi því áfram. Gummi hafði líklegast aðeins betra í tölvunum en staðan bauð í raun aldrei upp á neitt og að lokum einfaldaðist staðan of mikið. Traust skák hjá Gumma með svörtu, hann var aldrei í taphættu og einhverjir smá möguleikar á að búa til færi. Gott fyrir blóðþrýstinginn hjá liðsstjóranum ;-)

 

4. borð: Bragi hvítt á Petrik

Bragi var nokkuð öruggur um hvað kæmi upp hér og undirbúningur því nokkuð markviss og öruggur. Við þurftum að skoða nokkrar línur og á meðal þeirra var einmitt sú sem kom upp. Sú var ekki skoðuðuð mjög djúpt en ég man að Bxe4 var á borðinu og man að Bragi var sáttur við ef sá varíantur kæmi upp og hann væri vel hnútum kunnur þar.

Bragi virtist fá fínt frumkvæði í byrjuninni og alltaf virtist Petrik vera "í köðlunum". Hann hinsvegar náði einhvern veginn alltaf að redda sér með ótrúlegri ákveðni og þrátt fyrir að Bragi hefði verið duglegur að setja fyrir hann vandamál náði hann að mestu að leysa þau þrátt fyrir tímapressu.

8th_bragi

Bragi setti ítrekað upp vandamál fyrir andstæðinginn sem hann náði þó að leysa. Hér hefði 19.De3! verið erfitt vandamál og lúmskt þar sem 18...He8 20.Bxe5 Dxe5 21.Dxe5 Hxe5 22.Re4! virist tryggja hvítum hartnær unnið tafl. 

Í raun nokkuð svekkjandi skák þar sem Bragi hélt góðri pressu og var mjög stutt frá því að knésetja Slóvakann. Í lokin var Slóvakinn búinn að verjast það vel að hann var nálægt því að fá betra tafl þegar Bragi fann lævísa þrskák.

Sú þráskák fór hinsvegar ekki vel með blóðþrýsting undirritaðs þar sem ég hélt í smástund að svartur gæti fórnað riddara sínum með ...Rf8 og þótt hvítur taki með skák er riddari hans oní á e3 og hvíts bíður einfaldega gröfin köld. Sem betur fer átti hvítur einfaldan leik, He1 sem Bragi hafði séð. Jafntefli niðurstaðan og þegar þessari skák lauk var aðeins skák Jóhanns eftir og staðan 1,5-1,5.

 

2. borð: Jóhann hvítt á Pacher

Jóhann mætti hér Slóvaka sem leit út fyrir að vera á aldur við mig (svipuð hárlína) og nafnið hans var auk þess nánast enska orðið "Patzer" sem við köllum einfaldlega á íslensku skunkur. Fyrir skákina töldum við því nánast engar líkur á að Jóhann myndi ekki vinna ;-)

Í byrjuinni leitaði Jóhann í smiðju Botvinniks með Bc4 leiknum. Við á hliðarlínunni (ég og Björn Ívar) töldum að Jóhann hefði fína stöðu eftir byrjunina og það hélt Jóhann líka. Hann fann hinsvegar ekki neitt áþreifanlegt og einhvern veginn virtist Pacherinn vera að ná blokkeringu á hvítum reitum og Jóhann gat alls ekki látið það gerast og lék því c4-c5 en það töldum við engu að síður tryggja svörtum strategískt betra tafl og aðeins meiri sénsa. 

Jóhann var líklega samt aldrei langt frá því að hafa jafnt tafl og í framhaldi tefldi hann hreint frábærlega. Hann nýtti sér sitt eina mótspil á h-línunni og lét grafa svartreitabiskup sinn lifandi á a1 en gerði sér grein fyrir því að það vandamál væri aðeins tímabundið því að um leið og svartur maður myndi yfirgefa d5-reitinn væri kominn möguleiki á peðsfórn með d4-d5 til að opna taflið fyrir biskupinn. 

Þennan part skákarinnar tefldi Jóhann af miklum krafti og sérstaklega var g4 leikurinn mikilvægur fyrir framvindu skákarinnar. þrátt fyrir kraft í taflmennskunni var stutt á milli hláturs og gráturs og á nokkrum stöðum hefði Pacher getað stýrt taflinu mjög nálægt ef ekki í jafntefli. Endatöfl virðist og voru allavega ekki sterka hlið hans í þessu tilviki og hann leyfði Jóhann að leika sér að sér og þegar c-peðið var við það að komast í endamark lagði svartur niður vopnin.

Rd8_johann

Hér rétti Pacherinn fram spaðann og þögul fagnaðarlæti liðsstjóra voru hreint gríðarleg. Ef ég hefði líkamlega burði til að framkvæma heljarstökk hefði ég líklega gert það!

Liðsstjóri á hliðarlínunni leyfði sér að "kýla loftið" með massífu fagnaðarhöggi þar sem sigurinn var í höfn 2,5-1,5. Mikill seiglusigur hjá Jóhanni og heilt yfir góð viðureign. Reyndar bjóst ég við að vinningurinn kæmi á 4. borði og að Jóhann myndi gera jafntefli en skákin getur verið tricky sem hún sannarlega var í dag. Við kvörtum hinsvegar ekki og að mínu mati sanngjarn sigur í heimahöfn!

 

8th_results

 

ADHD punktar liðsstjóra:

 

- "Torre-vaktin" .... gamli kallinn bara heldur áfram. Með 7 af 8 algjörlega trufluð frammistaða upp á 2771 skákstig! Viðtal við hann að neðan. Hann tefldi fyrst 1970 í Siegen.

- Hammer-vaktin: Jón Lúðvík heldur áfram að vinna ekki eina einustu skák. Hann var með sjö jafntefli í sjö skákum. Hann fékk janfteflisboð í dag sem hann hafnaði að sjálfsögðu.....og tapaði. First hand knowledge frá Magnusi Carlsen sem er líka búinn að finna Dominos hérna í Baku ;-)

- Suður-Súdan vaktin: Stórvinir okkar halda áfram að eiga hreint út sagt stórkostlegt mót. Í dag lögðu þeir að velli sveit Palestínu. Deng og Deng unnu góða sigra á meðan Diing Diing tryggði sigurinn með jafntefli. Því miður tapaði Deng að þessu sinni. Gaman verður að fylgjst með lokasprettinum hjá þeim. S-Súdan byrjuðu númer 176 í röðinni en eru núna númer 92 í mótinu!

- Fullt-hús vaktin: Nepomnachti var með 7 af 7 en laut í gras í dag gegn Wesley So. Eftir standa tveir með 6 vinninga af 6 mögulegum. Besta rating performance ( mælanlegt) er hinsvegar hjá Volokitin (2974) og Jobava (2976)

- Talandi um Jobava. Hann lagði Ponomariov (fyrrverandi FIDE heimsmeistara) að velli í 21 leik í dag með stórkostlegri fléttu sem menn eru ekki að halda vatni yfir. Kalla þurfti út auka öryggisverði til að hafa hemil á mannfjöldanum sem safnaðist saman við borðið! Kíkjið á þessa ótrúlegu slátrun á fyrrverandi FIDE heimsmeistara!

- Mótshaldið almennt er mjög gott. Mikill peningur er lagður í mótið og margt sem er hreinlega stórkostlegt. Til að mynda fá rútur okkar lögreglufylgd í gegnum umferðina í Baku og við því t.d. að skauta yfir á rauðum ljósum og fleira. Á móti er þetta aðeins um 5km leið og menn ekkert svo lengi í leigubíl (Gummi og Hannes tóku slíkan í dag og gekk vel). Einnig eru sjálfboðaliðar mjög margir og eiginlega of margir. Á hótelinu voru snemma í mótinu 4-5 sjálfboðaliðar í einhverskonar information center á hótelinu en nánast ekkert að gera. Á skákstað eru svo örugglega 8-9 öryggisleitarhlið og í hverju þeirra 6-10 manns og þetta "lið" hefur í raun ekki neitt að gera allan daginn. Á einu hliðinu þar sem ég og Björn Ívar förum stundum að fá okkur ferkst loft eru 5-6 "öryggisverðir" og svo 3-4 sjálfboðaliðar. Þetta fólk er í raun ekki að gera nokkurn skapaðan hlut og eru því mjög ánægð ef það kemur einhver delegate inn um öryggisleitarhliðið á 20-30 mínútna fresti.

Við Björn höfum farið að einu þessara hliða til að fá ferskt loft síðuastu tvær umferðir (sökum vinda hér fær maður ferskan blæ um þennan inngang sem er sá eini sem er opinn út). Það er ljóst að þessir blessuðu öryggisverðir leita eftir öllum tiltækum ráðum eftir einverju "til að gera" og eins og Björn Ívar benti á í pistli sínum gerði einn þeirra athugasemd við það að ég hallaði mér utan í steinsteyptan vegg. Ekki nennti ég að rökræða ástæðuna fyrir því en já, það er furðulegt hvað menn eru extreme hér í öryggisgæslunni.

Reyndar hafa menn orðið eitthvað pirraðir hér yfir yfirgengilegri öryggisgæslu. T.a.m. má benda á pistil chess.com frá því í gær: https://www.chess.com/news/cancel-your-saturday-plans-double-usa-russia-on-tap-4264 en þar sést að Nigel Short neitaði að láta leita á sér af þeirri "slightly" hrokafullu ástæðu að hann sér fyrrverandi keppandi í heimsmeistaraeinvígi (í annarri grein sé ég reyndar að það átti að draga hann úr tímahraki og því dreg ég fyrri ummæli til baka ;-) http://en.chessbase.com/post/2016-baku-rd7-the-day-the-giants-fell Short málið er neðarlega í þessari grein í tenglinum). Í dag þegar við komum inn var einn keppandi úr gríska kvennaliðinu nánast öskrandi á einn af öryggisvörðunum en ekki veit ég af hverju. Í öllu falli er ljóst að þegar gerðar eru athugasemdir við að halla sér að steinsteyptum veggjum eða gera einfaldar teygjuæfingar (í bæði skiptin ég) þá er eitthvað mikið að. Í raun er nánast ómannúðlegt og lélegt hvað FIDE og mótshaldarar eru að gera mönnum erfitt fyrir að gera góð skil að þessu flaggskipi skákhreyfingarinnar. Auðvitað á að leyfa minni löndum (eins og okkur) sénsinn á að t.d. hafa liðsstjóra sem getur eytt 3 tímum í byrjun umferðar í það að skrifa pistla/fréttir/taka myndir eða hvað það kann að vera sem eykur hróður skákarinnar. Í stað þess eru liðsstjórar fastir í göngutúrum og hangsi með ekkert að gera nema að skoða skákir og drekka vatn og vona að dagurinn í dag sé handahófskenndur að því leyti að leyft sé að koma með bækur til aflestrar inn í skáksalinn. því miður hefur það verið algjörlega happa/glappa hvort að öryggisverðir leyfi það og undirritaður búinn að gefast upp eftir 50% árangur í fyrstu 6 umferðunum.

- Ioannis Papionnaou sá er sveið Hannes í gær er ótrúlegur tækniskákmaður. Á EM á Íslandi var hann með pressu og nálægt svíðingi gegn Héðni í uppskiptabragðinu í Slavneskri vörn. Héðinn hélt velli eftir erfiða vörn en það fór ekki jafn vel fyrir Belyavsky sem ótrúlegt nokk tapaði peði í 25. leik og lét "kreysta úr sér drulluna" í þessu saklausa afbrigði.

- Ólyginn liðsstjóri kvennaliðsins hitti Pacherinn á stigagangi hótelsins okkar að tala við sjálfan sig eftir skákina.....líklega ekki ennþá búinn að jafna sig á tapinu gegn Jóhanni.

- Ekki er hægt að loka þessum pistli án þess að minnast á Færeyinga sem unnu stórkostlegan sigur á sveit Bosníu. Helgi Dam Ziska er kominn langleiðina með stórmeistaraáfanga eftir mikinn seiglusigur á bosnískum stórmeistara með svörtu. Sjúrðu Þorsteinnsson tryggði svo sigurinn með því að ganga algjörlega frá sínum andstæðingi. Í 9. umferð fá Færeyigar ótrúlega pörun, Olympíumeistara Kínverja sem eru allir með yfir 2700 stig. Það er ekkert smá gaman fyrir okkur að vera fyrir ofan þessa kínversku sveit þegar svo langt er liðið á mótið!

- Random punktur. Eftir að hafa séð eftirfarandi mynd af Karjakin:

Rd8_karjakin

...þa mundi ég allt í einu að þegar ég tók myndir af honum í Tromsö 2014 var hann alltaf eins, tók alltaf eftir myndavelinni og horfði til baka með tómum augum. Snögg goggle leit virðsit sýna að þetta er algjörlega normið hjá Karjakin þó einstaka sinnum læði hann inn brosi (smellið til að sjá stærra)

8th_karjakin


- Bandaríkjamenn náðu að redda jafntefli gegn Rússum (So hetjan) og leiða því með 14 stig jafngildi 7 sigra vs 1 tap eða 6 sigrar og tvö jafntefli. Úkraínumenn og Indverjar jöfnuðu þá í dag. Ljóst má vera að úrslitin ráðast ekki fyrr en í seinustu umferð.

     ***************************

Drátturinn í 9. umferð kom okkur mikið á óvart. Þrátt fyrir sigurinn teflum við niður fyrir okkur og fáum sveit Portúgal sem er númer 60 í stigaröðinni og því talsvert veikari en við og sú slóvaska sveit sem við lögðum að velli. Í raun er þessi pörun algjörlega sturluð og "meikar ekkert sense". Af 15 þjóðum með 11 vinninga erum við næsta lægstri í rakning og Portúgal langneðstri. Tvær lægst rönkuðu þjóðirnar af 15 eru því að mætast í þessum hópi. Þessi pörun er þvílíkt "layup" fyrir okkur að komast í frábæra stöðu fyrir tvær síðustu umferðirnar. Portúgal er að mestu með stigalága stórmeistara en einnig nokkra alþjóðlega meistara. Sjálfur Luis Galego er okkur að góðu kunnur enda margfaldur Íslandsvinur og mikill höfðingi. 

Enn og aftur eru við líka að fá sama lit á fyrsta borði tvær umferðir í röð. Þessar óvæntu litaparanir hafa sett allt í uppnám hjá okkur og öll plön um að jafna litasamsetningar manna sem mest hafa farið gjörsamlega út um þúfur þó auðvitað eigi það ekki að vera lykilatriði í liðakeppnum. Að sjálfsögðu vill maður ekki að einhver sé að fá ítrekað svart en stundum lendir það bara þannig. Í þetta skiptið hafa flestir svörtu mennirnir lent á Hjörvari en hefur tekið því eins og sannur liðsmaður og menn hafa í raun sýnt frábæran liðsanda hér úti og boðist til að hvíla svo að félagarnir jafni litina út sem best. Ég tel að liðsandinn og fórnfýsin sem menn hafa sýnt hér fyrir hvern annan sé algjör lykill að þeim árangri sem við höfum náð hingað til.

En já, þetta er orðið gott. Aftur var listin í að rita einhver orð á tölvu aðeins auðveldari eftir góðan sigur en eftir erfitt tap. Við skulum vona að ég þurfi að skrifa langan pistil aftur á morgun þótt það sé lýjandi ;-)

Rd8_captain

bestu kveðjur frá sáttum og bjarsýnum captain í Baku, Azerbaijan

Ingvar Þór Jóhannesson

 

p.s. það er bara ein regla, og það er að negla!


Hörðuvalla drengir með pálmann í höndunum

Áður en að þriðja umferð hófst voru liðsmenn almennt sammála um það að þetta væri viðureignin sem yrði að vinnast. Andstæðingarnir voru Noregur 1 en þeir eru með hæstu meðalstig allra í mótinu. Norsarar hefðu staðið sig vel í fyrstu tveimur umferðunum og voru tveimur vinningum frá okkur fyrir umferðina. Því var ljóst að um erfiða viðureign væri að ræða.

Viðureignin þróaðist vel fyrir okkur og Vignir og Stephan fengu fljótlega mjög góðar stöður. Sverrir og Arnar virtust vera með allt "undir kontról" en þó var mikil barátta eftir.

Ísland 4 - Noregur I 0

Viggi Vatt 3 umferð1.borð: Vignir Vatnar - Afras (1852) 1-0

Vignir tefldi byrjunina hratt og af miklu öryggi. Snemma varð ljóst að Vignir væri mun betri skákmaður en Afras og komu nokkrir ónákvæmir leikir hjá Afras í miðtaflinu og refsaði Vignir heldur betur fyrir það, og sigraði örugglega. Úrvinnslan hjá Vigni í þessari skák var framúrskarandi. Skákin var fyrst að klárast og var aðeins lognið á undan storminum fyrir aumingja Norðmennina. Vignir er með fullt hús á mótinu, 3 vinninga af 3!

2.borð : Liam (1653) - Stephan Briem 0-1

Andstæðingur Stephans tefldi Grand-Prix afbrigðið í Sikileyjarvörn en komst þó lítið áfram í byrjuninni, Stephan var vel undirbúinn og fékk góða stöðu mjög snemma. Andstæðingur Stephans lék klauStephan 3 umferðfalega af sér peði snemma í skákinni, og var Stephan þá með yfirburðarstöðu en Liam náði þó að klóra í bakkann og náði að koma sér út í endatafl með mislituðum biskupum en þó átti Stephan nokkur tromp eftir í hendinni, og loksins loksins kom "ýmindunaraflið" frá Stephani sem ég óskaðist eftir í seinasta pistli og kláraði hann skákina einkar glæsilega.
Góður sigur hjá Stephani. 

3.borð : Sverrir Hákonarson - Nicholas (1515) 1-0

 Sverrir tefldi London system og upp kom jöfn staða sem  hafði ekki upp á margt að bjóða. Þegar líða fór á  skákina, fór Nicholas að eyða ansi miklum tíma og þá  fór Sverrir 3 umferðSverrir að pressa á kauða, sem þýddi að hann þurfti  að nota allan sinn tíma og að lokum var of mikið af  flækjum fyrir Nicholas sem gerði það að verkum að hann  féll á tíma. Sverrir er með fullt hús á mótinu, 3  vinninga af 3!

4.borð : Henrik (0) - Arnar Milutin 0-1

Þegar að Arnar Milutin kemst á "run" þá er alveg eins gott að reyna að stoppa flóðhest á ferð (ekki hægt) , drengurinn á það til að taka syrpur þar sem að hann vinnur hverja skákina á fætur annarri. Arnar er að tefla vel á mótinu og geislar af sjálfstrausti enda sést það augljóslega við borðið. Arnar fékk betri stöðu út úr byrjuninni, og betri tíma þar að auki. 
Þó svo að Arnar hafi ekki verið neinu liði yfir til að byrja með, þá var Arnar með hartnær strategískt unnið. Veikleikarnir voru miklir hjá hvítum, og um leið og fyrsta peðið féll hjá hvítum þá átti hann enginn svör. Skák Arnars var önnur að klárast og þá var staðan orðin 2-0 fyrir okkar menn og bæði Stephan og Sverrir með góðar stöður og því leit allt út fyrir að toppsætið væri okkar. Arnar Milutin er með fullt hús 3v af 3!

 Niðurstaðan varð semsagt glæsilegur 4-0 sigur fyrir okkar  menn sem var mun framar vonum, að vinna hæstu sveitina að  meðalstigum með mesta mun (4-0) er ótrúlega vel gert hjá  drengjunum. Upp er komin sú staða að við þurfum aðeins 3,5  vinning af 8 á morgun til þess að tryggja okkur sigur og  eigum við tvær stigalægstu sveitirnar eftir. Eftir fund með  foreldrum áðan, var ákveðið að nýta umferðina í fyrramálið  til þess að hvíla tvo í liðinu og koma inn með varamennina þá  Benedikt og Óskar. 

 Næst á dagskrá er lið Finna Arnar Milutin 3 umferðen þeir eru aðeins með hálfan  vinning í mótinu. Strákarnir vita þó að sigurinn er ekki enn  kominn í höfn, og því var farið snemma í háttinn og byrjað að  undirbúa sig andlega fyrir átök morgundagsins. Stefnan er  sett á það að við getum mætt alveg pressulausir í seinustu  umferðina.

 Staðan í Barnaskólamótinu:
 1.Hörðuvallaskóli 11/12
 2. Svíþjóð 7,5/12
 3. Danmörk 6,5/12

 Álfhólsskóli 1/2 - Noregur I 3 1/2

 Andstæðingar okkar í þriðju umferð voru Noregur I en þeir eru  með hæstu meðalstig allra í mótinu. Strákarnir voru ákveðnir  að rétta úr kútnum eftir slæmt tap í morgun, enda hafa þeir verið að tefla vel en úrslitin ekki alveg fallið með þeim. Norska liðið er mun eldra og reyndara en okkar lið. 

1.borð: Dawid Kolka - August (1936) 1/2

 

Dawid hafði hvítt gegn Ágústi sem hafði verið að tefla vel í mótinu. Dawid Dawid 3 umferðtefldi af miklum  krafti og fékk góða stöðu úr byrjuninni. Jafnt og þétt fékk  Dawid betra og betra tafl, og að lokum í endataflinu var  hann kominn biskup yfir en þó fyrir tvö peð. Ágúst varðist  vel eftir að hafa misst manninn en Dawid varð á mistök þegar  hann missti sitt eina peð, og því var lokastaðan tveir  biskupar á móti einum. Glæsileg skák hjá Dawid engu að  síður. 

2.borð : Aleksander (1855) - Róbert Luu 1-0

 Róbert hafði svart gegn Aleksander. Við áttum von á því að  Aleksander myndi tefla 1.c4 en hann kom okkur á óvart og lék  1.e4 í fyrsta leik, lítið við því að gera. Upp kom  hefðbundin Skandinavísk staða þar sem hvítur stóð alltaf  betur. Í raun og veru var staða Róberts aldrei góð í  skákinni, en hann varðist af mikilli hörku og það var ekki  auðvelt fyrir hvítan að finna eitthvað rakið þó að staðan  liti vel út. Að lokum fann Aleksander leið sem fólst í því  að skipta upp í mislitað biskupaendatafl en það skipti þó ekki máli, þar sem hvítur var kominn of langt með frípeðið sitt. 

3.borð : Halldór Atli - Odin (1710) 0-1

Halldór Atli hafði hvítt á 3.borði gegn Óðni. Við Halldór Atli ákváðum að tefla eitthvað solid, enda andstæðingurinn mikið stigahærri. Halldór fékk fína stöðu úr byrjuninni og náði að stilla riddörunum sínum á flotta reiti sem "kontróleruðu stöðinni algjörlega" , en í miðtaflinu komu því miður nokkrir ónákvæmir leikir og tapaði Halldór kalli. Eftir það var ekki aftur snúið.

4.borð : Even (1608) - Guðmundur Agnar 1-0

Guðmundur Agnar hafði svart á 4.borði gegn Even. Eins mikið og ég hrósaði Agnari fyrir frumlegar byrjanir í gær þá kom það í bakið á honum tvöfalt jafnvel þrefalt í dag. Agnar ákvað að tefla óhefðbundinn Grunfeld og til þess að gera langa sögu stutta, þá tapaði hann skákinni á innan við hálftíma. 

Leiðinlegt og stórt tap 3 1/2 - 1/2 staðreynd en vitað var að þessi dagur yrði alltaf erfiður þar sem við fengum tvær stigahæstu sveitirnar. Ég var þó ánægður með taflmennskuna að mörgu leyti sérstaklega hjá Dawid. Það þýðir lítið að svekkja sig á þessu því við eigum erfiða viðureign í fyrramálið gegn Dönum. Í fyrramálið mun Halldór Atli hvíla og inn í hans stað kemur Atli Mar.

Staðan í Unglingamótinu:

1. Noregur I 9/12
2Noregur II 7,5/12
3. Danmörk 6/12
4. Svíþjóð 5/12
5. Ísland 4,5/12

Þangað til næst, bestu kveðjur frá Holmenkollen. 

Birkir Karl Sigurðsson

Heimasíða mótsins: http://skole2016.nordisksjakk.no/en/

 

 


Ólympíuskákmótið: 8. umferð í kvennaflokki

Ísland 2½ - Marokkó 1½

Andstæðingar okkar í 8. umferð voru stelpurnar frá Marokkó (meðalstig: 1824). Hugarfarið hjá stúlkunum okkar var mjög gott fyrir umferðina og við gerðum okkur grein fyrir að með sigri í dag gætum við komið okkur aftur á beinu brautina, eftir þrjú þungbær töp í röð.

8umferd (2)

Vígalegt íslenskt kvennalandslið við upphaf 8. umferðar

Á fyrsta borði hafði Lenka hvítt gegn WCM Hind Bahji (1948). Lenka fékk upp sama afbrigði gegn Sikileyjarvörn og við höfðum skoðað fyrir skákina og fékk algjört yfirburðartafl. Bahji lék mjög vafasömum e5 leik snemma í skákinni sem skildi d6 peðið eftir bakstætt. Lenka vann peðið fljótlega en svartur fékk örlítið mótspil í staðinn. Það var í rauninni aldrei neitt meira en smá sprikl og Lenku tókst að koma sér út í stöðu sem var mjög vænleg. Hún fékk nokkur tækifæri til þess að stýra skákinni í vinningsstöðu en missti aðeins þráðinn og Bahji komst út í endatafl sem var því miður jafntefli.

8lenka

Hér ætlaði Lenka upphaflega að leika 29. Hd5! og hélt að hún væri að vinna mann. Hún sá þó skyndilega 29...Re4 sem bjargar manninum og ákvað þess í stað að leika 29. Bxc5 og eftir 29...Hxc5 hékk Bahji á jafntefli. Þess í stað var 29. Hd5 bestur og eftir 29...Re4 30. Hxf5 Rxd6 31. Hg5+ Kf8 32. c5! stendur hvítur til vinnings.

Örlítið svekkelsi að ná ekki að vinna skákina en það jákvæða var að þessi skák var sú síðasta til að klárast í viðureigninni og tryggði þar með sigurinn.

Á öðru borði hafði Guðlaug svart gegn WIM Sbai Rania (1907). Upp kom sjaldgæft afbrigði slavneskrar varnar sem við höfðum skoðað vel fyrir skákina. Rania var ekki alveg með á nótunum og neyddist til að gefa peð til að bjarga kóngnum sínum frá alvarlegum hótunum. Guðlaug hefði getað haldið í peðið með prýðilegri stöðu en ákvað þess í stað að fórna peðinu til baka með þeirri hugmynd að loka biskup hvíts inni á a7. Sú áætlun gekk ekki upp og Rania komst aftur inn í skákina.

8gulla

Hér gat Gulla leikið 14...Kb8 og haldið peðinu með fínni stöðu. Hún lék 14...Bb4 og hvítur komst aftur inn í skákina eftir miklar flækjur eftir 15. Bxa7

Gulla missti af bestu leiðunum og lenti í vandræðum í framhaldinu. Hún missti svo algjörlega tökin á stöðunni og neyddist til að gefast upp, eftir harða baráttu.

Á þriðja borði hafði Hallgerður Helga hvítt gegn WFM Chaimaa Alaou Belghiti (1654). Belghiti tefldi Caro-Kann vörn eins og við höfðum gert ráð fyrir og Halla kom henni á óvart með hvassri leið, með 4. Rc3 og 5. g4, sem við höfðum skoðað vel fyrir skákina. Planið var auðvitað að kaffæra þá marokkósku strax í byrjuninni. Belghiti átti ekkert svar við taflmennsku Höllu, var of passíf í stað þess að ráðast strax gegn miðborðinu, og Halla fékk yfirburðarstöðu. Belghiti lék mönnunum fram og flúði svo með þá aftur upp í borð. Halla bætti stöðuna jafnt og þétt þangað til Belghiti var orðin svo aðþrengd með mennina sína á 8. reitaröð að hún var við það að fá þá í fangið!

8halla-1

Staðan eftir 15. leik svarts, 15...Rg8.

8halla-2

Staðan eftir 24. leik svarts, 24...Rg8 - hvað er að frétta?

Á endanum brustu allar varnir og Halla vann öruggan og glæsilegan sigur.

8halla-3

Lokastaðan eftir 37. c6. Svartur gafst upp. Takið eftir svörtu mönnunum á kóngsvængnum.

Á fjórða borði hafði Veronika svart gegn Khadija Ibrahimi (1565). Við höfðum kortlagt Ibrahimi vel fyrir skákina og Veronika fékk upp sömu stöðu eftir 9. leik hvíts og við höfðum haft á ,,eldhúsborðinu" fyrir skákina. Við höfðum rætt þá áætlun að leika 9...h5, 10...Rh6 o.s.frv. með góðum tökum á stöðunni; svipað og Hjörvar Steinn hafði teflt fyrr í mótinu. Veronika ákvað að leika 9...Re7 og þurfti að leysa nokkur tæknileg vandamál í framhaldinu sem hún þó gerði mjög vel og uppskar yfirburðartafl. Hún vann peð og skipti svo upp í endatafl sem var auðunnið.

8veronika

Hér gerði Veronika sér grein fyrir að ef hún næði uppskiptum á hrókum gæti ekkert stöðvað inngöngu svarta kóngsins á hvítu reitunum. Samkvæmt reglu Capablanca er biskupaendataflið mjög hagstætt fyrir svartan; peðin á andstæðum reitum við biskupinn en hvítur með sín peð á samlitum reitum við biskupinn. Hún lék því 39...Hd8 og eftir 40. Hxd8 Bxd8 41. Be1 Kd5 hefur svartur öll tök á stöðunni. 

Veronika innbyrti svo sigurinn af miklu öryggi. Vel útfærð skák.

Eftir umferðina í dag höfum við 8 stig og erum í 59.-77. sæti.

Nokkrir molar úr 8. umferð:

- Bandaríska kvennasveitin vann góðan sigur á Rússum og eru efstar fyrir 9. umferð ásamt Kína

- Ég kíkti á Shirov í dag, sem gerði gott jafntefli við Mamedyarov með svörtu. Shirov leit ekkert í augun á mér.

- Íranski vinur okkar Parham Maghsoodloo mætti enn og aftur í veiðivestinu sínu, sem hann heldur mikilli tryggð við. Hann veiddi Ítalann Danyyil Dvirnyy út í sama afbriði og Solak tefldi gegn Hannesi í 6. umferð. Þar var Parham með endurbót á taflmennsku Hannesar og Dvirnyy beit á agnið. Því miður missti Parham skákina niður í jafntefli svo fiskurinn slapp í þetta sinn.

parham

Parham og vestið.

- Skáksveinar Nicks deFermian frá Bermúda (svar við gátu síðasta pistils) gerðu jafntefli við Svasíland í dag, 2-2.

- Öryggisgæslan á mótinu er farin fram úr öllu hófi. T.d. var leitað á Nigel Short í tímhraki gegn Li Chao í gær. Short neitaði að taka þátt í þessari þvælu og fékk viðvörun. Hann vann skákina sem betur fer.

- Öryggisverðirnir bönnuðu Ingvari að halla sér upp að vegg í Kristalshöllinni í dag, af einhverri ástæðu. Við gátum ekki annað en brosað.

- Vinir okkar frá Suður-Súdan (,,We play under the trees man!", frá síðasta pistli Ingvars) unnu góðan sigur í dag. Við dáumst að því hvað þeir eru góðir miðað við skort á bókum, tölvum og þjálfurum.

Í 9. umferð, sem fram fer á morgun, mætum við mjög þéttri sveit Svartfjallalands (meðalstig: 2169) sem er eingöngu skipuð titilhöfum. Við höfum verið að standa vel í þessum sterku sveitum hingað til svo við erum bjartsýnar fyrir morgundaginn.

Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.

Björn Ívar


Skákþáttur Morgunblaðsins: Íslensku liðin hófu Ólympíumótið með stórsigri

Íslensku liðin unnu stórsigur, 4:0, í fyrstu umferð Ólympíuskákmótsins sem hófst í gær í höfuðborg Aserbaídsjan, Bakú. Í opna flokknum þurftu menn að hafa svolítið fyrir hlutunum gegn Eþíópíu en andstæðingur Hjörvars Steins Grétarssonar átti vænlega stöðu lengi vel en missti tökin í kringum 40. leikinn. Jóhann Hjartarson hvíldi en Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn, Guðmundur Kjartansson og Bragi Þorfinnsson skiluðu vinningum í land.

Í kvennaflokki unnu íslensku stúlkurnar lið Maldíveyja einnig 4:0. Lenka Ptacnikova, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir unnu en Guðlaug Þorsteinsdóttir hvíldi. Mikill elo-stigamunur er á íslensku liðunum og mótherjunum og því varla hægt að líta á viðureignirnar nema sem góða upphitun.

Allar umferðir mótsins hefjast kl. 11 að íslenskum tíma að lokaumferðinni undanskilinni. Hægt er fylgjast með öllum viðureignum á hinum ýmsu vefsvæðum, t.d. Chess24, Chessbomb, ICC og svo er sent út frá heimasíðu skipuleggjenda. Tefldar verða ellefu umferðir í báðum flokkum og eru gefin 2 stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Alls eru 180 lið skráð til keppni í opna flokknum og í kvennaflokknum eru þátttökuþjóðirnar 140 talsins.

Úrslit í gær voru undantekningarlaust eftir bókinni. Í opna flokknum unnu átta stigahæstu liðin 4:0 og í kvennaflokknum unnu 14 sterkustu liðin með sömu tölum og íslensku liðin. Armenar sem hafa þrisvar unnið ólympíugull taka ekki þátt en þeir hafa átt í harðvítugum deilum við Asera um héraðið Nagorno Karabak. 

40 ár frá sigri Bandaríkjamanna í Haifa

Fyrir greinarhöfnd sem horfir yfir sviðið eftir að hafa tekið þátt í næstum því hverju einasta Ólympíumóti yfir 40 ára tímabil er tæknibylting skákarinnar stærsta breytingin. Gönguferðir um söguslóðir Biblíunnar gera fyrsta Ólympíumót mitt í Haifa í Ísrael árið 1976 eitt það minnisstæðasta. Það fór samt fram við aðstæður sem hafa komið fyrir í sögu keppninnar; nokkrar aðildarþjóðir FIDE virtust hafa gleymt merkingu einkennisorða FIDE, Gens una sumus. Sovétmenn og önnur ríki Varsjárbandalagsins sátu heima. 

Keppnin um gullið stóð á milli Bandaríkjamanna og Hollendinga. Þeir fyrrnefndu höfðu sigur eftir harða keppni en í sveitinni voru gamlir og góðir Bandaríkjamenn, Robert Byrne, William Lombardy og Larry Evans.

Og nú 40 árum síðar gætu Bandaríkjamenn unnið aftur. Þeir eru með þrjá ása uppi í erminni: Caruana, Nakamura og So. Forseti Rússneska skáksambandsins, Andrei Filatov, staðhæfir að Garrí Kasparov sé þjálfari Bandaríkjamanna en ætti samt að geta andað rólega; Rússar eru með sterkasta liðið á pappírnum. Vladimir Kramnik teflir á 1. borði og áskorandinn Sergei Karjakin á 2. borði. Ekki má heldur gleyma Kínverjum sem eru núverandi ólympíumeistarar. 

Magnús Carlsen er mættur

Búast hefði mátt við því að heimsmeistarinn Magnús Carlsen myndi safna kröftum fyrir HM-einvígið í New York í nóvember. En hann er mættur til leiks en hvíldi í gær. Magnús hefur átt misjöfnu gengi að fagna í sveitakeppnum, tapaði tveim skákum á EM í fyrra og einnig tveimur á ÓL í Tromsö 2014. Á 2. borði norsku sveitarinnar er félagi hans og aðstoðarmaður, Jon Ludwig Hammer.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 3. september 2016

Skákþættir Morgunblaðsins


Helgi efstur í Eyjum: mögnuð skák gegn Elvari

helgi og andriAfmælismót Taflfélags Vestmannaeyja hófst í dag með fyrri degi mótsins. Mótið er vel skipað og blandast saman gamalkunnir heimamenn við sterka skákmenn af meginlandinu. Arnar Sigurmundsson formaður TV hefur verið í fararbroddi í skipulagningu sem hefur tekist afar vel. Að lokinni taflmennsku í dag bauð Arnar keppendum í klukkutíma rútuferð um eyjuna þar sem ýmislegt merkilegt og fræðandi kom fram. Hrein forréttindi að fá svona skoðunarferð með heimamanni sem þekkir söguna áratugi og jafnvel aldir aftur í tímann. 

Eins og búast mátti við er Helgi Ólafsson efstur eftir fyrri keppnisdag með fullt hús. Í fyrstu umferð stýrði Helgi hvítu mönnunum gegn Andra Val Hrólfssyni. Formaður bæjarráðs Páll Marvin Jónsson lék fyrsta leikinn fyrir Helga. Þeir félagar Helgi og Andri tefldu eitt sinn sögufræga skák sem hófst 1973 en lauk árið 1993! Skákin fór nefnilega í bið í janúar 1973 en svo tók að gjósa í Heimaey svo skákin kláraðist ekki fyrren 20 árum síðar. 

Nokkrir skákmenn koma í humátt á eftir Helga. Þar á meðal er hinn þekkti stöðubaráttuskákmaður Elvar Guðmundsson. Elvar stýrði hvítu mönnunum gegn Helga í fjórðu umferð. Sú skák einkenndist af rólegheitum framan af og Helgi jafnaði taflið auðveldlega. Í miðtaflinu tók Elvar á það ráð að sprengja upp miðborðið og eftir nokkur uppskipti kom staða þar sem báðir höfðu drottningu, riddara og fáein peð. Staðan var nokkuð tvísýn þar sem báðir áttu frípeð. Á krítísku augnabliki bauð Elvar jafntefli. Helgi ákvað að halda skákinni gangandi enda möguleikar á báða bóga. Fór svo að honum virtist verða ágengt í að fá betra tafl með hugsanlegri mátsókn en þá lék Elvar algerum snilldarleik þegar hann bombaði riddara ofan í bæðri drottningu og riddara Helga! Sú sleggja knúði fram unnið tafl þar sem frípeð Elvars varð að drottningu í kjölfarið og hin fyrri drottning komst í vörnina á sama tíma. Stórmeistarinn barðist áfram með drottningu og riddara gegn tveimur drottningum Elvars. Kóngur Elvars var viðkvæmur og Helgi með ýmsar hótanir. Fór svo að Elvar afréð í mikilli tímapressu að fara fram á borðið með kónginn. Það virtist ætla að takast og hinir fjölmörgu áhorfendur sáu fram á að Elvari væri að takast að skipta upp á annarri drottningu sinni og drottningu Helga. Elvar hélt það líka. En ekki Helgi! Í stað þess að drepa drottningu Elvars til baka lék hann g7-g6 skák og mát! Leikur sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti í þessari æsispennandi skák. Í lokastöðunni á því hvítur tvær drottningar og einhver peð en svartur einungis riddara og fáein peð. Keppendur eiga mikið lof skilið fyrir þessa skemmtun og vonandi birtist skákin á næstunni.

Á morgun verða tefldar fjórar umferðir. Landsbankinn er helsti styrktaraðili mótsins en einnig styrkja fjölmörg fyrirtæki í Eyjum mótið.

Stöðu og pörun má sjá hér; http://chess-results.com/tnr238119.aspx?lan=1&art=4&wi=821


ÓL: Jóhann Hjartarson tryggði Íslandi sigur

8.umferð Ólympíuskákmótsins í Bakú var viðburðarík í meira lagi. Íslenski landsliðshópurinn lét mótlæti gærdagsins ekki slá sig út af laginu og mætti til leiks í Kristalhöllina með grimma einbeitingu og sigurvilja. Bæði liðin unnu sínar viðureignir og klífa nú upp stigatöfluna á ný.

Hjartasson_Paul Truong

Viðureign Íslands og Slóvakíu í opnum flokki var í jafnvægi lengi vel. Fljótlega sömdu bæði Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson um jafntefli með svörtu og því var allt traust sett á Jóhann Hjartarson og Braga Þorfinnsson sem stýrðu hvítu mönnunum í sínum viðureignum. Bragi tefldi vel eins og hann hefur gert allt mótið og fékk vænlega stöðu. Andstæðingur hans varðist vel og að lokum endaði skákin með jafntefli. Eftir sat Jóhann Hjartarson með óljóst tafl sem hann varð að vinna til að ná inn tveimur stigum. Af mikilli seiglu, vopnaður áratugalangri reynslu og úthaldi unglings, snéri Jóhann á hálfþrítugan andstæðing sinn eftir um 4 klukkustunda setu. Ísland vann því viðureignina 2,5-1,5.

Iceland v Morocco_Paul Truong

Í kvennaflokki tefldi íslenska liðið af krafti gegn Morokkó og leit á tímabili út fyrir stórsigur. Hafði Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur, á orði að undirbúningur liðsins fyrir viðureignina hefði gengið mjög vel og allar landsliðstúlkurnar fengu upp stöðu sem skoðuð var um morguninn. Að lokum vannst sigur með minnsta mun, 2,5-1,5. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir tefldu skínandi vel og unnu sínar skákir mjög örugglega. Lenka Ptacnikova gerði jafntefli en Guðlaug Þorsteinsdóttir tapaði sinni skák.

Pörun 9.umferðar liggur ekki enn fyrir.

 


Kringluskákmótið fer fram 15. september

Kringluskákmótið 2016 fer fram fimmtudaginn 15. september, og hefst það kl. 17:00. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar. 

Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar muni taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu i ágúst. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn). Hámarkfjöldi keppenda er 40 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu.  Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 8 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma.  

1. verðlaun 15.000 kr.

2. verðlaun 10.000 kr

3. verðlaun 5000 kr.  

Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2016 og forlátan verðlaunagrip að auki. Núverandi Kringlumeistari er Björn Þorfinnsson, sem telfdi fyrir hið íslenska reðursafn.   Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson. 

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

Úrslit Kringlumótsins 2016 hér: og hér:
Kringlumóitið 2016, myndaalbúm hér:

Hörðuvallaskóli efstir eftir tvær umferðir

Önnur umferð á Norðurlandamótinu barnaskóla og unglingasveita fór fram í morgun. Fyrirfram mátti búast við hörkuviðureignum hjá báðum liðum. 

Hörðuvallaskóli voru stigahærri á öllum borðum en þó mátti ekki miklu muna. 

Hörðuvallaskóli 3 1/2 - Danir 1/2

 

1.borð : Ludvig (2021) - Vignir Vatnar 0-1

 

Vignir tefldi þessa skák af miklu öryggi og innbyrði sigurinn örugglega. Vignir fór út í endatafl þar sem hann var með góðan riddara á móti slökum biskup og fékk að lokum frípeð sem að hvítur gat ekki stöðvað. Hvatningin sem Vignir Vatnar gefur Hörðuvalla liðinu er ómetanleg, allir liðsmenn sveitarinnar líta mikið upp til Vignis og er árangur skólans að miklu leyti honum að þakka.

 

2.borð : Stephan - Benjamin (1425) 1/2 

Stephan ákvað að leita í verkfæraskáp Bent Larsens og lék 1.b3! Stephan fékk þægilega stöðu úr byrjuninni en þó ekki mikið frumkvæði. Stephan er að tefla mjög vel en vantar kannski ákveðna greddu í taflmennskuna hjá honum og meira ýmindunarafl. 

 

3.borð : Martin (1251) - Sverrir 0-1

Sverrir ákvað að tefla Skandinavann á móti Svíanum, við litla hrifningu þjálfarans... En þó er ekki hægt að segja annað en að hann hafi fengið flotta stöðu úr byrjuninni og ekkert yfir henni að kvarta. Sverrir fékk snemma vænlegt tafl, og var kominn með unna stöðu en þá komu nokkrir ónákvæmir leikir hjá Sverri og komst Svíinn aftur inn í skákina, en til allrar lukku dugði það ekki og Sverrir tryggði sér sinn annan sigur í röð.

 

4.borð : Arnar Milutin - Omar (1307) 1-0

Þessi skák reyndist vera mikill tilfinningarússíbani sérstaklega fyrir áhorfendur. Drengirnir skiptust á að leika skákinni af sér. Arnar fékk mun betri stöðu úr byrjuninni og leit allt út fyrir þægilegan sigur hjá Arnari en annað kom á daginn og sneri Svíinn á Arnar og var allt í einu kominn peði yfir í endatafli. Arnar hefur seint verið þekktur fyrir að gefast upp, og reyndist þrjóskan í Arnari skila honum þessum mikilvæga sigri. Hann trixaði Svíann að fara með kónginn sinn á sjöttu reitarröðina sem gerði honum kleyft að skáka biskupinn af andstæðing sínum.
Flottur sigur hjá Arnari, en hann getur þó teflt mun betur. 

Heilt yfir eru þetta frábær úrslit gegn sterkri sveit Svía. Umferðin á eftir mun reynast okkur gífurlega mikilvæg, en þar mætum við sterkri sveit Norðmanna. Ef góð úrslit koma úr þeirri viðureign, erum við í ansi góðum málum þar sem að í seinustu tveimur umferðunum mætum við tveimur lökustu sveitunum. En við tökum þó bara eina viðureign í einu!

 

Álfhólsskóli - Noregur I 1-3

 Andstæðingar okkar í 2.umferð voru Noregur 1 með meðalstig 1800. Norska liðið er skipað sterkum og reynslumiklum skákmönnum sérstaklega á efstu þremur borðunum. 

Benjamin (1917) - Dawid Kolka 1-0

Dawid hafði teflt byrjunina vel og var með fína stöðu þegar að hann lék af sér allri skákinni í einum leik. Dawid má ekki láta þetta tap hafa áhrif á sig, þar sem að það kemur fyrir bestu menn að leika afleikjum. Ég ræddi við Dawid eftir skákina og lofaði hann mér því að nota reiðina í sér til þess að sigra í skákinni á eftir. 

Róbert Luu - Aleksander Fossan (1856) 0-1

Róbert tefldi þessa skák heilt yfir mjög vel, og var mjög solid. Eftir Bxg6 hjá honum var mér byrjað að dreyma um sigur hjá honum, sem hefðu auðvitað verið frábær úrslit en það verður að gefa andstæðing hans það, að hann tefldi virkilega vel og því fór sem fór. Smá ónákvæmni hjá Róberti í endataflinu leiddu til þessa taps. Róbert getur þó gengið sáttur frá borði eftir þessa skák.

 

Aleksander Flæsen (1704) - Halldór Atli 1-0

Halldór Atli var staðráðinn í því að koma sterkur til baka eftir slæmt tap í gær, en því miður gekk það ekki eftir. Halldór Atli tefldi Najdorf og fékk fína stöðu úr byrjuninni  en lét þó ekki til skarar skríða nógu fljótt, og hvítur sótti á kóngsvæng og að lokum þurfti Halldór Atli að játa sig sigraðann. Halldór Atli er ekki með heilladísirnar með sér eins og staðan er núna, en trú mín á þessum strák er svo sannarlega til staðar og mun ég tefla honum þangað til að hann dettur í gang!

 

Guðmundur Agnar - Ulrik (0) 1-0

Guðmundur Agnar tefldi þessa skák eins og engill. Af öllum íslensku liðsmönnunum hefur Guðmundur Agnar komið mér hvað mest á óvart, ég viðurkenni fúslega að fyrir ferðina var álit mitt á Guðmundi Agnari sem skákmanni ekki mikið, en sá hefur troðið sokk ofan í mig! Guðmundur Agnar hefur teflt af fádæma öryggi og komið andstæðing sínum í tímapressu í báðum skákum og veitir andstæðing sínum allskonar vandamál. Ég gat ekki annað en vorkennt andstæðing Guðmundar í dag en drengurinn er einfaldlega á eldi og er hvergi nærri hættur.

 

3-1 tap er ásættanlegt gegn sterkri sveit eins og Norðmönnum en þó er alltaf leiðinlegt að tapa. Í næstu umferð mætum við Noreg II en þeir eru með enn hærri meðalstig en Noregur I og því verður sú viðureign enn erfiðari, en ekki má gleyma því að á góðum degi geta þessir strákar unnið alla á þessu móti. 

Næsta umferð hefst klukkan 16:00 á íslenskum tíma. 

Beinar útsendingar: http://skole2016.nordisksjakk.no/en/live-games/

Birkir Karl Sigurðsson

Hörðuvalla ROUND 2

Álfhóls ROUND 2

 

 

 


Skáksambandi Búlgaríu vísað úr Evrópska skáksambandinu

Aðalfundur Evrópska skáksambandins (ECU) fer fram í dag í Bakú. Fundurinn hefur þegar verið tíðindamikill því Skáksambandi Búlgaríu var vísað úr sambandinu.

Ýmsar ásakanir hafa verið bornar forseta Skáksambands Búlgaríu og fyrrum forseta ECU, Silvio Danaliov. Grunsemdir eru um að peningar sem greiddir hafa verið ECU hafi ekki skilað sér til inn á reikninga ECU.

Óskað var eftir því að Skáksamband Búlgaríu myndi skila gögnum sem gætu skýrt hvert þeir peningar hafi endað. Skáksamband Búlgaríu hefur ekki orðið við þeirri beiðni. Tilaga stjórnar ECU um brottvísun Skáksambands Búlgaríu var samþykkt með miklum meirihluta á fundinum með 37 atkvæðum gegn 11. 

Skákmenn frá Búlgaríu munu ekki líða fyrir brottvísunina því þeir muna geta teflt á Evrópumótum sem einstaklingar undir flaggi ECU eða FIDE.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 8778394

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband