Færsluflokkur: Spil og leikir
12.9.2016 | 15:40
ÓL: Naumt tap gegn Póllandi - stórsigur á Sri Lanka
Pólverjar reyndust of stór biti fyrir íslenska liðið í opnum flokki er liðin áttust við í 10.umferð Ólympíuskákmótsins í Bakú. Pólverjar unnu 2,5-1,5. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Guðmundur Kjartansson gerðu allir jafntefli en Bragi Þorfinnsson tapaði sinni skák.
Í kvennaflokki vann Ísland stórsigur gegn Sri Lanka 3-1. Lenka Ptacnikova, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Hrund Hauksdóttir unnu sínar skákir en Guðlaug Þorsteinsdóttir tapaði sinni viðureign.
Það stefnir í æsispennandi baráttu um sigurinn í opnum flokki á milli Bandaríkjanna og Úkraínu. Bæði lið unnu nauma sigra í dag og eru nú efst og jöfn fyrir síðustu umferð með 18 stig. Norðmenn unnu glæsilegan sigur á einu efnilegasta liði mótsins, Íran, 3,5-0,5. Magnus Carlsen hefur dregið vagninn fyrir Noreg í mótinu og hefur heimsmeistarinn nælt sér í 7 vinninga í 9 skákum.
Í kvennaflokki tók Kína risaskref í átt að sigri í mótinu með því að leggja Pólland að velli næsta örugglega. Kína hefur hlotið 18 stig en næstu þjóðir hafa 16 stig.
Síðasta umferð mótsins verður tefld á morgun og hefst hún klukkan 7 að íslenskum tíma. Skákáhugamenn heima á Íslandi þurfa því að stilla vekjaraklukkur sínar til að missa ekki af fjörinu. Pörun síðustu umferðar liggur ekki fyrir.
12.9.2016 | 09:25
ÓL: Pólland og Sri Lanka andstæðingar dagsins
Í dag klukkan ellefu að íslenskum tíma verða klukkur settar í gang í 10.umferð Ólympíuskákmótsins í Bakú. Ísland mætir firnasterkri sveit Póllands í opnum flokki og stúlkurnar etja kappi við Sri Lanka.
Eftir jafnteflisvonbrigði gærdagsins glímir Ísland við erfiðasta andstæðing sinn til þessa í opnum flokki. Pólska sveitin er sú sjöunda stigahæsta í mótinu. Jóhann Hjartarson hvílir í dag.
Í kvennaflokki mætir Ísland ungu og efnilegu liði Sri Lanka. Lið Sri Lanka er sýnd veiði en ekki gefin því allar þessar ungu srílönkur eru í stigagróða, samtals 350 stiga hækkun. Veronika Steinunn Magnúsdóttir hvílir í dag.
11.9.2016 | 22:54
Ólympíuskákmótið: 9. umferð í kvennaflokki
Svartfjallaland 2½ - Ísland 1½
Andstæðingar okkar í 9. umferð voru Svartfellingar (meðalstig: 2169). Þétt sveit og erfiðir andstæðingar á pappírunum. Ég hafði þó fulla trú á liðinu því við höfðum sýnt að við höfðum fullt í þessar sterkari sveitir að gera, með árangri okkar gegn bæði Englandi og Moldavíu fyrr í mótinu.
Á fyrsta borði hafði Lenka svart gegn WIM Aleksanda Milovic (2252). Við sáum að Aleksandra hafði nokkuð óhefðbundinn byrjunarstíl og það mætti gera ráð fyrir hverju sem er. Byrjunarleikur hennar, 1. e3, kom því ekkert svakalega á óvart. Carlsen lék þessu einmitt í einni af sínum skákum fyrr í mótinu. Upp kom nokkurs konar enskur leikur með óhefðbundnu sniði. Lenka jafnaði taflið snemma og eftir ónákvæmni hvíts barðist hún fyrir frumkvæðinu af miklum krafti. Í miðtaflinu fórnaði Lenka manni, með þeirri hugmynd að vinna hann aftur með miklum vöxtum. Milovic virtist alveg missa tökin á stöðunni við þetta og með nokkrum hnitmiðuðum fallegum leikjum sigldi Lenka sigrinum í höfn. Frábær taflmennska og öruggur sigur.
Hér lék Lenka 20...Rfxe4! 21. Rxe4 Rxe4 22. fxe5 Rg5! og hvíta staðan hrundi.
Hallgerður Helga við upphaf 9. umferðar
Á öðru borði hafði Hallgerður Helga hvítt gegn WIM Tijana Blagojevic (2223). Upp kom afbrigði af slavneskri vörn, sem við höfðum skoðað aðeins fyrir skákina. Blagojevic breytti aðeins útaf því sem við höfðum gert ráð fyrir og Halla fann ekkert betra en að fara út í drottningarlaust miðtafl sem bauð ekki upp á mikið. Eftir einhverjar flækjur þar sem Halla hefði hugsanlega getað staðið höllum fæti leystist staðan upp í jafntefli.
Staðan eftir 15. Ke3. Frekar óvenjuleg staða sem var þó allan tímann í jafnvægi og endaði í sanngjörnu jafntefli.
Á þriðja borði hafði Hrund svart gegn WIM Marija Stojanovic (2127). Marija tefldi ítalskan leik og fékk heldur þægilegra tafl út úr byrjuninni. Hrund náði þó að jafna taflið nokkurn veginn en missti þráðinn í miðtaflinu og lenti í vandræðum. Hún neyddist til að gefa peð og í framhaldinu annað. Eftir það var enginn möguleiki að bjarga stöðunni og sannfærandi sigur hvíts staðreynd.
Hér lék Hrund 17...Re5?! og lenti í vandræðum eftir 18. Rxe5 dxe5 19. Rf5! - Betri leikur er sennilega 17...b6 og svartur stendur aðeins verr en þarf ekki að hafa miklar áhyggjur.
Á fjórða borði hafði Veronika hvítt gegn WFM Lidija Blagojevic (1957). Upp kom Philidor-vörn sem við höfðum kortlagt vel fyrir skákina. Blagojevic breytti útaf alfararleiðum snemma tafls en Veronika hélt sig við upphaflega planið, sem sennilega var röng ákvörðun. Hún varð heldur planlaus í framhaldinu og í stað þess að sætta sig við að staðan væri jöfn fór hún í sókn sem snérist í höndunum á henni. Blagojevic náði hagstæðum uppskiptum og í framhaldinu öllum tökum á stöðunni. Hún vann skiptamun og eftir það hrundi staða Veroniku. Öruggur sigur svarts.
Hér lék Veronika 15. Bxf6?! og eftir 15...Bxf6 náði svartur góðum tökum á svörtu reitunum. Þess í stað hefði hvítur getað haldið frumkvæðinu með 15. Rxe6 Bxe6 16. Bf4 með þægilegu tafli.
Lokastaðan 1 ½ - 2 ½ vissulega svekkjandi en það vantaði aðeins upp á taflmennskuna í þessari viðureign til þess að við ættum meira skilið út úr henni.
Nokkrir punktar frá 9. umferð:
- Kína vann góðan sigur á Bandaríkjunum í kvennaflokki og eru efstar eftir 9. umferð með 16 stig.
- Bráðefnilegt lið Íran gerði 2-2 jafntefli við England í dag þar sem Gawain okkar Jones þurfti að bjarga stiginu með því að vinna á 4. borði. Luke McShane fór niður í logum gegn Shahin Lorparizangeneh (2454) á 3. borði. Parham Maghsoodloo mætti í vestinu sínu og gerði jafntefli við David Howell á 2. borði. Ivan Sokolov er liðsstjóri liðsins og virðist nokkuð sáttur með árangurinn.
- Ég er enn að jafna mig eftir að hafa hitt andstæðing Jóhanns frá því í umferðinni í gær, hinn slóvakíska GM Milan Pacher, í stigaganginum á hótelinu.
GM Pacher
Þannig er mál með vexti að maður er fljótari að labba upp og niður stigann á milli hæða en að taka lyftuna. Ég nota því oft stigaganginn til að komast upp á hæðina fyrir ofan. Stigagangurinn er dimmur og drungalegur en þegar ég hljóp á milli hæða í gær sá ég þessa þvílíku stóru og stæðilegu mannveru eina í myrkrinu í stigaganginum, í hörku samræðum við sjálfan sig. Eftir að hafa tapað gegn Jóa og þannig klúðrað viðureigninni gegn okkur mátti gera ráð fyrir að Patzerinn væri mjög reiður - og ég hélt í eitt augnablik að þetta yrði mín síðasta stund, þarna í stigaganginum. En blessunarlega tók hann ekki eftir mér og ég slapp inn á herbergi. Ég passaði þó að hafa dyrnar læstar um nóttina.
- Öryggisverðir mótsins gerðu enn og aftur heiðarlega tilraun til þess að enda líf mitt í dag. Þeir hafa mikinn áhuga á því að láta mig aftengja insúlíndæluna mína því þá grunar sennilega, eins og áður hefur komið fram, að hún sé annaðhvort skáktölva eða sprengja. Ég hef þurft að fara með sömu ræðuna fyrir hverja einustu umferð: að um sé að ræða life threatening situation ef tækið yrði aftengt. Þeir hafa fallist á það hingað til; en með semingi þó.
- Baadur Jobava frá Georgíu er orðinn ein af hetjum mótsins. Hann er búinn að tefla eins og vél, með 7 vinninga af 8 mögulegum á 1. borði. Hann sigraði Richard Rapport frá Ungverjalandi í dag, með svörtu, í skák sem var frekar frumleg eins og við mátti búast af þeim félögum. Eftir 1. e4 d6 2. Rc3 e5 3. f4 exf4 4. Rf3 kom 4...Re7 og svo 5....Rg6. Þessi riddari endaði svo á h8 í 12. leik en átti góða endurkomu í skákina í 40. leik og innsiglaði sigurinn að lokum. Baadur er með árangur upp á 3013 skákstig eftir umferðina í dag.
Bestur Jobava
Eftir umferðina í dag eru einungis tvær umferðir eftir og nú er mikilvægt að gefa allt sitt í síðustu skákirnar og klára mótið með sæmd, bæði í opnum flokki og kvennaflokki. Það er komin dálítil þreyta í keppendur mótsins ekki bara þá íslensku, heldur alla hina auðvitað og ég hef trú á því að það sé nauðsynlegt að komast yfir þreytuna og berjast til síðasta blóðdropa í lokaumferðunum - ef menn ætla að ná góðum árangri.
Á morgun fáum við mjög efnilegt lið Sri-Lanka (meðalstig: 1717) sem hefur verið að tefla frábærlega á mótinu; 4 liðsmenn af 5 eru að græða tæp 100 stig á mann. Það gæti því orðið þungur róður á morgun en við stefnum að því að fara langt á reynslunni.
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
Björn Ívar
11.9.2016 | 22:41
Ólympiumót: 9. umferð í opnum flokki
Eins og á Evrópumótinu í knattspyrnu fyrr í sumar varð jafntefli niðurstaðan í viðureign við Portúgali. Að þessu sinni er komið að okkur að segja að þeir voru bara varnarsinnaðir og fara ekki langt á þessu móti ;-)
Fyrirfram hefði mátt búast við íslenskum sigri þar sem við vorum stigahærri á öllum borðum. Munurinn var hinsvegar ekki það verulegur að ganga mætti að honum sem vísum.
Snemma var ég nokkuð bjartsýnn á góð úrslit þar sem mér fannst Hjörvar hafa fína stöðu, Hannes traustur og andstæðingur Jóhanns notaði tímann sinn algjörlega eins og rasstrúður. Skák Guðmundur var hinsvegar mjög tvíeggjuð og vissi ég ekkert hvað var í gangi þar. Eins og svo oft áður þróuðust hlutir svo aðeins öðruvisi en við mátti búast. Merkilegt nokk var kóngsindversk vörn í boði á þrem borðum.
Áður en lengra er haldið kemur smá getraun. Á myndinni fyrir neðan er undirritaður og svo fánar í baksýn. Reynir Pétur ferðarinnar, Kjartan Maack spurði mig hvaða land ætti ljósbláa fánann með rauðu röndinni skáhallt yfir. Undirrtaður strögglaði mikið við þetta og fann ekki svarið þrátt fyrir að hefa tvær vísbendingar. Omar Salama kom svo með svarið. En svarið kemur neðst fyrir ykkur kæru lesendur ;-)
En lítum aðeins á gang mála hjá hverjum og einum eins og venjulega. Galego hvíldi hjá Portúgölunum enda búinn að tefla allar á meðan að Bragi hvídli hjá okkur, búinn að tefla sex í röð og fínt að koma sterkur inn á lokasprettinn.
1. borð: Hannes svart á Ferreira
Skákin hjá Hannesi var nokkuð solid og hann var aldrei í teljandi vandræðum. Andstæðingur hans átti mögulega einn tímapunkt þar sem hann hefði getað skapað örlítið vandamál fyrir Hannes en Hannes var með vörnina á hreinu þar. Eftir að möguleiki hvíts á frumkvæði hafði fjarað út voru aðeins þungir menn eftir á borðinu og Hannes líklega með aðeins betra. Hannes samdi um leið og 30 leikir kláruðust enda staðan nokkuð líflaus. Hannes hefði þó líklega getað reynt eitthvað aðeins í lokastöðunni og þó aðallega þar sem hann hafði 58 mínútur gegn 6 og bara til að halda möguleikanum á að tefla áfram lifandi ef hinar skákirnar hefðu þróast illa.
2. borð Hjörvar hvítt gegn Damaso.
Hjörvar tefldi fianchetto gegn kóngsindverjanum og virtist fá skínandi stöðu í byrjuninni eftir hina þvinguðu leiki, Ba3 og c5-c6 í framhaldinu.
Einhvern veginn virtist þó erfitt að fá eitthvað haldbært á hvítan og hefði þurft einhverja sjúka tölvuleiki til að viðhalda frumkvæði en Hjörvar valdi þó plan sem leit vel út með Rc3-b5-d4 sem er mjög eðlilegt.
Hjörvar strögglaði í framhaldinu að finna plan og Damaso tefldi mjög vel og bætti sína stöðu jafnt og þétt og var líklegast kominn með aðeins betra þó Hjörvar hafi aldrei verið í taphættu. Jafntefli var svo óumflýjanlegt þegar staðan einfaldaðist of mikið.
3. borð Jóhann svart á Fernandez
Andstæðingur sem Jóhann þekkir vel enda mættust þeir á Heimsmeistaramóti ungmenna að ég held 1984. Jóhann nefndi að þá hefði hann verið mikill tímahrakssjúklingur og það virðist ekkert hafa elst af honum með árunum ef marka má skák dagsins!
Hér tókst Fernandez á einhvern óskiljanlegan hátt að hugsa í 48 mínútur og 27 sekúndur og leika svo hinum trölleðlilega leik 9.Bb2. Hreint ótrúleg ákvörðun...já eða ákvörðunarleysi. Staðan er tiltölulega einföld og vel þekkt og maðurinn bara kominn langleiðina í tímahrak strax.
Eftir 20 leiki var Jóhann með fína stöðu, algjörlega búinn að jafna taflið þegar hann fór að þvinga of mikið í stöðunni og einfalda hana. Hann vildi meina að t.d. ...Dc7 i stað ..:Bc6 væri mun praktískara til að halda mönnum inná. Portúgalinn fékk því e.t.v auðveldari leiki en ella til að leika í tímahrakinu en samt var hann ótrúlegt ópraktískur og ítrekað lét hann tíma ganga niður í 1 sekúndu áður en hann lék þannig að hann átti 31 sekúndu eftir að hafa leikið. Var í raun tvisvar nálægt því að falla í stöðum þar sem ekkert þurfti að reikna og eiginlega alltaf ljóst hvað hann myndi leika. Mikill tímahrakssjúklingur þarna á ferð og minnti undirritaðan nokkuð á Kjartan nokkurn Maack....nema hvað að Kjartan leikur þegar 2 sekúndur eru eftir og skrúfur mönnum aðeins niður á en hann ýtir og á eftir 31 sekúndu eftir að hafa leikið ;-)
En já, staðan einfaldaðist of mikið og e.t.v. var Jóhann ennþá að tefla eilítið upp á tímann og að refsa andstæðingnum fyrir tímahrakið. Það sem gerðist í staðinn var að í stað þess að fara að tefla stöðuna og redda jafnteflinu svaf Jóhann á verðinum á meðan að Portúgalinn bætti sína stöðu mjög vel og tefldi hreint fantavel. Eftir að peð féll á c5 í endataflinu hrundi staðan algjörlega og engum björgum við komið. Svekkjandi tap og óþarfi.
4. borð Guðmundur hvítt á Sousa
Þessi skák hjá Guðmundi fylgdi langri teóríu í kóngsindverja. Guðmundur mætti til leiks með hugmynd sem undirritaður hefur ekki séð áður með Kh1 og Hg1 og hvítur opnar sjálfur stöðuna á kóngsvæng. Eins og ég skil þetta afbrigði hefur venjan verið sú að hvítur þarf að vera á undan að brjótast í gegn á drottningarvængnum og muna svo að beygja til hægri áður en hann verður mát hinumegin.
Andstæðingur Guðmundar tefldi að því er virtist af nokkru öryggi líka ef marka mátti klukkuna. Í stuttu máli kom upp staða sem ég skildi ekkert í og erfið var að meta. Mér fannst á tímapunkti vera farið að halla á Guðmund en eftir á að hyggja byggði ég það ekki á neinu sérstöku nema að það var svona kortér í mögulegar fórnir á kóngsvængnum. Í öllu falli var þessi skák ekki góð fyrir blóðþrýsting liðsstjóra!
Er von nema maður spyrji hver þremillinn sé í gangi í svona stöðum? Svartur er búinn að hlaða öllum mönnunum á g-línuna. Hvernig metur maður svona stöðu? Tölvan segir 0.18 en ég veit ekki neitt ;-)
Eftir að hafa skoðað skákina eftirá með tölvum virðist hvítur alltaf hafa haft betra og Gummi vel með á nótunum í skákinni. Hann fékk svo hartnær unnið tafl með vel tímasettri skiptamunsfórn sem stoppaði algjörlega svörtu sóknina.
Hér kom 32.Hxd7! og Gummi tók algjörlega stjórnina og lét hana ekki af hendi út skákina. Þétt og vel tefla skák hjá Gumma sem er að koma sterkur inn í lokin og hetja dagsins í dag.
Miðað við að ýmislegt datt ekki með okkur í dag eru 2-2 ágætis úrslit. Hinsvegar hefði Jóhann í raun aldrei átt að tapa og Hjörvar með mjög vænlegt og eins Hannes aldrei í neinni hættu. Sigur í viðureigninni hefði því verið kærkominn en skákin er svona stundum og aðeins hægt að horfa fram á veginn.
Ýmsir punktar úr 9. umferð og sem mér hefur dottið í hug og kannski gleymt að koma að áður:
- Tekið var viðtal við Jóhann fyrir nokkrum dögum. Hér er tengill á það
- Noregur loksins komnir á efri borðin en sendir aftur niður með 3-1 ósigri gegn Bandaríkjamönnum. Carlsen mætti Caruana og beitti skandinavískri vörn en það gerði hann líka merkilegt nokk gegn honum í Tromsö 2014!
- Torre-vaktin...í stttu máli þá heldur kallinn bara áfram, 8 af 9 og bara vinnur og vinnur. Efnilegur skákmaður þarna á ferð!
- Hammer-vaktin er ekki alveg jafn skemmtileg....allavega ekki fyrir hann en mögulega fyrir aðdáendur harmleikja. Jón Lúðvík tapaði í dag gegn Nakamura og því enn án sigurs með 7 jafntefli og 2 tapskákir. Hann náði 2700 á dögunum en virðist vera á góðri leið með að fara aftur niður fyrir 2600!
- Baadur Jobava er gríðarlega skemmtilegur skákmaður. Í gær vann hann Ponomariov í 21 leik. Í dag leitaði hann í siðju Hallgerðar en hann lét múra riddarann sinn úti í horni á h8.
Út í horn fór riddarinn í 12. leik og kom ekki út fyrr en í 40. leik og kláraði dæmið svo! Þetta var á móti stigahæsta skákmanni Ungverja, Richard Rapport með 2752 skákstig takk fyrir! Rapport er sjálfur mjög skemmtilegur og frumlegur skákmaður og þetta því draumaviðureign fyrir skákáhugamenn.
- Leðurblökur gerðu vart við sig á skákstað í dag. Sá ég allavega þrjár slíkar og hef aldrei áður borið þessi dýr augum áður á ævinni. Þær eru mun minni í smíðum en ég hefði ætlað og þegar ein þeirra lenti á gólfinu (og öryggisverðir fengu loksins eitthvað bitastætt að gera!) þurfti lítið annað en litla fína servíettu til að flytja blökuna burt af mótsstað.
- Lenti í furðulega atviki í gær þegar 8. umferðin var nýbyrjuð. Fór að ná í kaffi fyrir strákana. Í röðinni er Búlgari..hann fer allt í einu að hlæja upphátt og svo strax aftur í kjölfarið. Fyrst hélt ég að einhver væri með honum og þeir væru að hlæja að einhverju þó það væri verulega óeðlilegt þegar umferðin er byrjum að hlæja upphátt. Ég klára að hella mjólk í kaffið og þá fer hann aftur að hlæja upphátt og mjög furðulegum svona geðveikishlátri bara einn með sjálfum sér. Það þarf vart að taka það fram að Búlgörum er ekki að ganga vel í mótinu ;-)
- Vinir okkar í Suður-Súdan áttu lítið roð í Egypta og töpuðu 4-0. Þegar ég kom að borðinu hjá þeim fékk Deng á 4. borði flottan leik á sig:
...Dc3 er hér stílhreinn og flottur. Deng og Deng töpuðu líka og Diing Diing.
- Frændur okkar Færeyingar reðu ekki við Ólympíumeistara Kínverja. Kínverjar unnu 4-0 og hafa því náð okkur á stigatöflunni eftir 9 umferðir. Það hlýtur að teljast gott hjá okkur ;-)
- Athyglisverð viðureign í dag þegar Írak og Sýrland mættust en þessi lönd hafa auðvitað verið mikið í fréttum og samskipti þeirra söguleg á margan hátt. Sýrlendingarnir mættu flestir í mjög flottum jakkafötum sem eftir var tekið og ég tók líka sérstaklega eftir.
- "Gátan" með fánakvikindið er leyst. Jóhann tók að sér að kíkja á google þar sem ég gat ekki staðfest að ég hefði munað rétt og gleymdi því svo alltaf. En það er rétt að fáninn er 70m x 35m sem er hreint ótrúleg stærð. Stöngin er í 162m hæð og fáninn er 350kg!!
- Hótelmaturinn er orðinn verulega þreyttur hérna. Þeir virðast engan veginn kunna að fara með kjúkling og ofsjóða hann alltaf þannig að hann verður seigur og bara ekki góður. Ég er búinn að væla undan þessu áður en já, ótrúlegt en satt þá hefur verið skroppið á Dominos hér seinni part móts.
- Hannes var tekinn í random check eftir skákina og þurfti að fylgja þar til gerðum skákstjóra í anti-cheating room. Ég sá tvo aðra á okkar slóðum tekna í slíkt eftirá test.
- Bandaríkjamenn virðist standa eftir nánast með pálmann í höndunum. Þeir mæta spútnikliði Georgíumanna og satt best að segja verður sigur þeirra að teljast líklegur þó að Jobava sé einn af mönnum mótsins hingað til. Bandarikin eru ólíkleg til að fá mjög sterka sveit í lokin þar sem Kínverjar komast ekki á efstu borðin og þeir eru búnir með Rússa og Úkraínu. Indverjar eða Azerar væru líklegastir að eiga möguleika á að veita þeim skráveifu. Úkraínumenn eru vissulega með jafn marga vinninga og Bandaríkjamenn en Bandaríkin eru að taka þá á innbyrðisviðureign/vinningum og vinna því væntanlega ef liðin yrðu jöfn í lokin.
Á morgun eru það Polverjar. Þeir eru 7. stigahæsta liðið og eins og Kínverjar liklegast ekki sáttir við núverandi stöðu. Vissulega erfið viðureign en við gerum okkar besta og sjáum hverju það skilar okkur. Við gerum ráð fyrir að Mates Bartel hvíli á morgun þar sem við sáum hann í súpermarkaðnum fyrr í kvöld kaupa sér vodkaflösku í fylgd með kapteininum Bartosz Socko. Það var ekki búið að para þegar við fengum þessar óvæntu "upplýsingar" en ef þetta er blöff hjá þeim til öryggis á alla andstæðinga með jafn marga vinninga þá er þetta vel gert! Einnit kemur þó til greina að Duda hvíli eftir tvö töp í röð. Við allavega gerum okkar besta....að mér læðist einhver tilfinning um að við séum að fara að koma á óvart á morgun :-)
Bestu kveðjur frá Baku,
Ingvar Þór Jóhannesson - liðsstjóri í opnum flokki.
Svar við getraun: Fáninn tilheyrir Afríkuríkinu Congó (rétt svar er Democratic Republic of Congo eins og Rúnar Berg benti réttilega á!)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2016 | 19:33
Helgi Ólafsson sigraði í Eyjum
Helgi Ólafsson stórmeistari varð hlutskarpastur á Afmælismóti Taflfélags Vestmannaeyja sem fram fór um helgina. Taflfélagið átti níutíu ára afmæli fyrr á árinu. Meðal keppenda voru margir skákmenn sem teflt hafa með félaginu í áratugi. Við mótslok gerði Arnar Sigurmundsson formaður og aðalskipuleggjandi mótsins lauslega könnun á því hve margir keppendur hefðu sinnt formennsku í félaginu. Kom í ljós að sjö keppendur hefðu einhvern tímann verið formenn félagsins á síðustu 50 árum!
Sigur Helga var mjög öruggur og rakaði hann inn átta vinningum í níu skákum. Hann lenti í taphættu gegn Elvari Guðmundssyni en vann aðrar skákir nokkuð örugglega fyrir utan tvö jafntefli gegn þeim Davíð Kjartanssyni og Ægi Páli Friðbertssyni. Davíð varð í öðru til þriðja sæti ásamt Oliver Aron Jóhannessyni en þeir hlutu sex og hálfan vinning.
Við verðlaunaafhendinguna flutti Helgi Ólafsson skemmtilega ræðu. Fór hann yfir ýmislegt á sínum upphafsárum í Taflfélagi Vestmannaeyja rétt fyrir 1970. Minntist Helgi þess hve mótandi þessi ár voru fyrir hann sem einstakling og skákmann og færði félaginu og reyndum félagsmönnum þess sérstakar þakkir.
Mótshaldið gekk afar vel. Léttleikandi andi og vinastemning sveif yfir vötnum þótt hart væri barist á borðinu. Landsbanki Íslands var helsti styrktaraðili mótsins.
Lokastaðan:
1 | 1 | GM | Olafsson Helgi | ISL | 2539 | 8 | 47 | 36 | 41 |
2 | 2 | FM | Kjartansson David | ISL | 2356 | 6,5 | 50 | 38 | 33,5 |
3 | 4 | FM | Johannesson Oliver | ISL | 2255 | 6,5 | 48 | 36 | 32,5 |
4 | 9 | Bergsson Stefan | ISL | 2018 | 5,5 | 51 | 38 | 27,8 | |
5 | 7 | IM | Bjarnason Saevar | ISL | 2093 | 5,5 | 44 | 33 | 26,5 |
6 | 21 | Hermannsson Ólafur | ISL | 1623 | 5,5 | 34 | 29 | 18,3 | |
7 | 3 | FM | Gudmundsson Elvar | ISL | 2328 | 5 | 50 | 38 | 26 |
8 | 10 | Vigfusson Vigfus | ISL | 1957 | 5 | 50 | 38 | 23,5 | |
9 | 6 | Hardarson Jon Trausti | ISL | 2100 | 5 | 48 | 37 | 21,5 | |
10 | 13 | Hauksson Hordur Aron | ISL | 1867 | 5 | 42 | 32 | 20,8 | |
11 | 14 | Gudlaugsson Einar | ISL | 1854 | 5 | 40 | 31 | 18,8 | |
12 | 5 | Fridbertsson Aegir | ISL | 2129 | 4,5 | 48 | 37 | 23,3 | |
13 | 8 | Sverrisson Nokkvi | ISL | 2067 | 4,5 | 41 | 31 | 16,3 | |
14 | 12 | Unnarsson Sverrir | ISL | 1937 | 4,5 | 40 | 33 | 16,8 | |
15 | 22 | Vilhjalmsson Oli Arni | ISL | 1614 | 4,5 | 36 | 29 | 14,5 | |
16 | 15 | Gislason Stefan | ISL | 1755 | 4,5 | 35 | 28 | 10,3 | |
17 | 19 | Sigurðsson Einar | ISL | 1685 | 4,5 | 33 | 28 | 13 | |
18 | 11 | Larsen Guðfinnsson Sæbjörn | ISL | 1941 | 4 | 43 | 37 | 14,5 | |
19 | 16 | Hrolfsson Andri Valur | ISL | 1743 | 4 | 36 | 28 | 9,5 | |
20 | 18 | Sigurmundsson Arnar | ISL | 1690 | 3,5 | 33 | 28 | 6,25 | |
21 | 17 | Olafsson Thorarinn I | ISL | 1712 | 3,5 | 33 | 27 | 5,75 | |
22 | 20 | Davidsson Gudmundur | ISL | 1660 | 2 | 31 | 26 | 1,5 | |
23 | 24 | Þorleifsson Þorri | ISL | 0 | 1,5 | 31 | 27 | 2 | |
24 | 23 | Thordarson Agust Mar | ISL | 0 | 0 | 33 | 26 | 0 | |
http://chess-results.com/tnr238119.aspx?lan=1&art=1&wi=821
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2016 | 19:14
Álfhólsskóli tóku bronsið með flottum endasprett!
Fyrir umferðina voru Hörðuvalla strákar búnir að tryggja sér sigur en hins vegar voru Álfhólsskóla drengir í miklum séns á því að ná verðlaunasæti en þó þyrfti þá að vinnast stór sigur gegn þéttu liði Svía. Okkur fannst það í raun og veru ótrúlegt að fyrir seinustu umferðina ættum við séns á verðlaunasæti, þar sem við vorum alls ekki sáttir með okkar frammistöðu í mótinu.
Álfhólsskóli 3 - Svíþjóð 1
1.borð: Joakim (2000) - Dawid Kolka 1-0
Dawid var nokkuð vel undirbúinn fyrir skákina en Joakim var búinn að vera sjóðandi heitur á mótinu og var að tefla alveg glimrandi vel, því var vitað að það yrði á brattann að sækja fyrir Dawid. Joakim hélt frumkvæðinu allan tímann og hleypti Dawid aldrei almennilega inn í skákina. Joakim fékk frábæra peðastöðu og skipti upp á hárréttum tímapunkti og því var ekkert fyrir Dawid að gera nema að gefa skákina.
2.borð: Róbert Luu - Erik (1600) 1-0
Eftir að hafa lesið frá mér í seinasta pistlinum mínum að Róbert væri of passífur, ákvað hann að tefla til sigurs í seinustu skákinni í mótinu. Skemmst er frá því að segja að Róbert Luu fór illa með Svíann og sigraði hann sannfærandi í ansi laglegri skák.
3.borð : Albin (1600) - Guðmundur Agnar 0-1
Agnar fékk fína stöðu úr byrjuninni. Snemma vann hann peð af andstæðing sínum og skipti upp í endatafl þar sem hann var með riddaraparið og sex peð á móti biskupaparinu og fimm peðum, á þeim tímapunkti ákvað Agnar að bjóða jafntefli(!!?) án þess að spyrja undirritaðann, ég lagðist á bæn að Svíinn myndi vera svo vitlaus að taka ekki jafntefli, þar sem hann var með koltapað. Ætli leikritið mitt hafi ekki náð til hans, því hann neitaði jafnteflisboðinu...10 leikjum seinna gafst hvítur upp :) . Ég gat ekki annað en hoppað úr kæti beint fyrir framan Svíana en þessi sigur tryggði okkur bronsið.
4.borð : Atli Mar - Alexander (1500) 1-0
Atli Mar var svekktur í morgun þegar ég sagði honum að hann myndi ekki tefla í fjórðu umferð, en hann tók því samt á réttan hátt. Í staðinn fyrir að koma að væla og tuða í mér, mætti hann ferskur í seinustu umferðina og hreinlega pakkaði Alexander mikla saman! Eftir klukkutíma af umferðinni voru bæði Atli og Róbert búnir að vinna og veitti það mér mikla bjartsýni. Atli Mar tefldi hreint frábærlega.
Hörðuvallaskóli 1 1/2 - Noregur II 2 1/2
Andstæðingar okkar í seinustu umferðinni voru Noregur II. Ákveðið var að hvíla þá sem voru öruggir með borðaverðlaun ( Sverri og Arnar ) . Inn komu Benedikt og Óskar en þeir voru að tefla báðir sína fyrstu skák á Norðurlandamóti. Lítið var upp á að tefla í þessari viðureign nema gamla góða stoltið.
1.borð : Vignir Vatnar - Max Dahl (1700) 1-0
Vignir hafði hvítt gegn Max Dahl og fékk snemma yfirburða stöðu eins og svo oft áður í mótinu. Vignir var kominn nokkrum peðum yfir fljótlega og var sigur hans aldrei í neinni hættu. Vignir Vatnar kláraði mótið með 5 vinninga af 5. Frábær frammistaða hjá drengnum og gæinn er einfaldlega í allt öðrum klassa en jafnaldrar sínir hér á Norðurlandamótinu.
2.borð : Gaute (1600) - Stephan Briem 1/2
Stephan Briem þurfti á sigri að halda ef að hann vildi fá borðaverðlaun eins og allir hinir í Hörðuvalla liðinu, en þó var vitað fyrir mótið að erfiðasta prógramið miðað við sín eigin stig var hjá Stephani. Ég og Stephan höfðum undirbúið andstæðinginn vel og stúderuðum hann fram og til baka á hótelbarnum , þegar við erum loks búnir að stúdera og ég er að ganga frá tölvunni sjáum við andstæðing Stephans beint fyrir aftan okkur!!! Þá hafði hann fylgst með öllum stúderingunum okkar... Norsaranum leist auðvitað ekkert á þetta og lék því í fyrsta leik 1.b3!
Snemma í skákinni vann Stephan peð en komst þó lítið áleiðis og verðum við að gefa Gauta það að hann tefldi vel upp á jafnteflið..
3.borð : Benedikt Briem - Kristian (1500) 0-1
Eins og áður hefur verið komið fram var þetta fyrsta skák Benedikts á Norðurlandamóti. Benedikt var vel undirbúinn fyrir skákina, enda fékk hann frábæra stöðu úr byrjuninni og var í raun og veru klaufi að ná ekki úrslitum í þessari skák, ég tel að blanda af reynsluleysi og stressi hafi reynst örlagavaldur þar. Benedikt tefldi London system og var með alla stöðuna "undir kontról" áður en að hann lék 13.Da4 en eftir það var á brattann að sækja.
4.borð : Fredrik (0) - Óskar Hákonarson 1-0
Eins og hjá manninum sem sat við hliðin á honum var þetta sömuleiðis fyrsta skák Óskars á Norðurlandamóti og einkenndist taflmennskan hans af reynsluleysi og stressi. Óskar lenti snemma í vandræðum en hélt sér þó inni í skákinni lengi vel, en því miður dugði það ekki til. Þrátt fyrir það að báðir varamennirnir hafi tapað sínum skákum í seinustu umferðinni, þá ber að minna á það að það er mjög skrýtið að koma inn á við þessar aðstæður, þ.e að skákin skipti litlu sem engu máli. Varamennirnir eiga jafnmikinn hlut í þessum sigri og hinir. Þeir félagarnir sex hafa myndað mjög náin tengsl og er hver og einn með sitt hlutverk. Mín spá er sú að þessi sami hópur verði fulltrúar okkar Íslendinga á Norðurlandamóti grunnskólasveita næstu þrjú árin.
Þetta var minn næstseinasti pistill, en ég mun setja inn einn lokapistil fljótlega.
Birkir Karl Sigurðsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2016 | 18:44
ÓL: Jafntefli og tap í Bakú
Mikil spenna var í Kristalhöllinni í Bakú þegar 9.umferð var tefld á Ólympíuskákmótinu. Ísland mætti Portúgal í opnum flokki og varð að gera sér jafntefli að góðu. Í kvennaflokki tapaði Ísland fyrir Svartfjallalandi með minnsta mun.
Það var mikið í húfi þegar Ísland mætti Portúgal í opnum flokki. Okkar menn voru stigahærri á öllum borðum, þó ekki munaði miklu, og með sigri hefði liðið klifið hátt upp töfluna. Tækifærin voru til staðar en því miður dugði það ekki til þess að leggja Portúgal að velli. Viðureignin endaði með jafntefli 2-2. Guðmundur Kjartansson var hetja liðsins í dag er hann reimaði rúlluskautana þéttingsfast á fætur sér og vann góðan sigur. Hannes Hlífar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grétarsson gerðu jafntefli. Jóhann Hjartarson tapaði sinni skák.
Í kvennaflokki mætti Ísland liði Svartfjallalands. Lenka Ptacnikova fór fyrir liðinu sem fyrr, lét tískubyrjun Ólympíumótsins 1.e3 ekki slá sig út af laginu, og vann enn eina skákina gegn stigahærri andstæðingi. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hélt sömuleiðis áfram að tefla skínandi vel og gerði jafntefli gegn mun stigahærri andstæðingi. Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir töpuðu sínum skákum. Viðureignin tapaðist því með minnsta mun, 1,5-2,5.
10.umferð hefst á morgun klukkan 11 að íslenskum tíma. Ísland mætir þá sjöundu sterkustu skáksveit mótsins, Póllandi, á meðan kvennaliðið mætir liði Sri Lanka.
11.9.2016 | 14:56
Björgvin Íslandsmeistari öldunga í þriðja sinn
Íslandsmót 65 ára og eldri var háð í gær í Ásgarði, félagsheimili FEB nær Árbæjarsafni, á vegum skákklúbba eldri borgara, Riddarans og Æsis.
Mótið fór hið besta fram og var vel skipað þrátt fyrir nokkur forföll skráðra keppenda. Góður keppnisandi sveif yfir vötnunum eftir að Guðmundur Sigurjónsson, 2. stórmeistari Íslendinga, þrefaldur Íslandsmeistari (fyrst 17 ára) og tífaldur Ólympíumótsfari m.m., hafði ýtt því úr vör með því að leika fyrsta leikinn til marks um að hildarleikurinn væri hafinn.
Ýmsir gamalkunnir garpar voru mættir til tafls albúnir að selja sig dýrt. Það gekk því miður ekki eftir hjá öllum því Björgvin Víglundsson var í miklum vígahug og var búinn að tryggja sér sigurinn og sæmdarheitið 3ja árið i röð þegar 2 umferðir voru eftir. Júlíus Friðjónsson varð annar líkt og í fyrra en Gunnar Gunnarsson þriðji. Hann ávann sér líka heiðurstitilinn "Bestur" í aldurflokki 81 árs og eldri. Jóhann Örn hlaut sömu nafnbót í flokki 76-80 ára, Harvey Georgsson í flokki 71-75 og svo að sjálfsögðu Björgvin í sínum aldursflokki undir sjötugu.
Sigurvegurinn fékk fallegan minjagrip til eignar auk þess að fá nafn sitt skráð gullnu letri á farandgrip sem Maggi Pé gaf til keppninnar á sínum tíma og 50.000 króna ferðastyrk frá SÍ á Norðurlandamót öldunga í Sastamala, Finnlandi, 22.-30. október nk. Aldursflokkameistarar hlutu verðlaunapeninga til staðfestingar góðri frammistöðu og skákgetu. Karl Steingrímsson var fulltrúi landsbyggðarinnar fékk heiðurs- og þakkargull að launum.
Mótshaldarar þakka stoltum styrktaraðilum FEB; Jóa Útherja; KRST Lögmönnum og Leturprenti veittan stuðning. Páll Sigurðsson var skákstjóri/dómari og á líka þakkir skildar.
11.9.2016 | 14:45
Aðalfundur Hugins verður haldinn 21. september
Aðalfundur skákfélagsins Hugins verður haldinn í húsnæði Sensu hf. að Ármúla 31 í Reykjavík miðvikudagskvöldið 21. september kl 20:30. Félagsmenn fyrir norðan verða í húsnæði Seiglu í Reykjadal. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Sjá nánar hér:http://skakhuginn.is/um-gm-helli/samthykktir-gm-hellis/
11.9.2016 | 11:53
HÖRÐUVALLASKÓLI NORÐURLANDAMEISTARAR!
Eftir frábæra byrjun á mótinu og með pálmann í höndunum var komið að því að mæta liði Finna. Finnir eru stigalægsta sveitin í flokknum. Finnar eru með mjög ungt lið, og strákarnir voru staðráðnir í því að tryggja sér Norðurlandameistara titilinn með stæl. Eins og glöggir lesendur tóku eftir, þá sagði ég það í pistlinum í gærkveldi að ég myndi henda varamönnunum inn en það var ekkert annað en gamla góða sálfræðin. Ég var handviss um að það væru Finnar og Danir að lesa pistlana mína og því ákvað ég að plata þá aðeins, hvað gerir maður ekki til þess að sigra. Fyrirfram vissum við að við þyrftum 3,5 vinning til þess að tryggja okkur titilinn en sigurhugarfarið í þessum strákum er það mikið að það kemur aldrei neitt annað til greina en 4 vinningar.
Hörðuvallaskóli 4 - Finnland 0
1.borð: David (1329) - Vignir Vatnar 0-1
Ég ræddi það nú lauslega við Vignir Vatnar í gærkveldi að hann myndi hvíla í fjórðu umferðinni, enda hefði hann ekkert gaman að því að tefla við 1300 stiga mann. Hann fór upp í herbergi hundsvekktur síðan fékk ég smsið "hættu þessu, ég tefli". Jæja, auðvitað hlusta ég á Vigga Vatt sérstaklega þegar hann er að tefla svona vel. Snemma í skákinni var ljóst í hvað stefndi, Vignir fékk yfirburðarstöðu. Virkilega traustur sigur hjá Vigni og hefur hann leitt liðið eins og herforingi.
2.borð : Stephan Briem - Adam (1143) 1-0
Stephan fékk snemma mjög vænlegt tafl. Andstæðingur Stephans veitti honum ekki mikla mótspyrnu og sigraði Stephan skákina örugglega.
3.borð : Pranav (0) - Sverrir Hákonarson 0-1
Sverrir fær í raun og veru alltaf góðar stöður úr byrjunum sínum, og er alveg rosalega þægilegur liðsmaður. Skákin hans Sverris var fyrst að klárast, en ég leit fyrst á stöðuna hans eftir klukkutíma og þá var hann kominn tveimur köllum yfir. Sverrir kláraði skákina af miklu öryggi.
4.borð : Arnar Milutin - Alvar (0) 1-0
Arnar Milutin mætti sjóðandi heitur til leiks, og sigraði skákina sína af miklu öryggi eins og allir liðsfélagar hans.
Vignir,Sverrir og Arnar eru allir með fullt hús.
Strákarnir kláruðu þessa umferð af mikilli yfirvegun og sigldu Norðurlandameistara titlinum örugglega heim. Í seinustu umferð fáum við Noreg II en þeir eru sýnd veiði en ekki gefin. Í seinustu umferðinni ætla ég að gefa varamönnunum tækifæri (eða hvað !!?) ég sagði þetta líka í pistlinum í gærkvöldi, sjáum hvort ég standi við stóru orðin í þetta sinn.
Álfhólsskóli 2 - Danmörk 2
Í fjórðu umferð mættum við þéttu liði Dana meðalstig (1800). Eftir slæman dag í gær vorum við staðráðnir í því að bæta upp fyrir gærdaginn.
1.borð: Dawid Kolka - Nicolai (2100) 1-0
Dawid hafði hvítt gegn Nicolai. Dawid undirbjó sig mjög vel fyrir þessa skák, og eftir um 15 leiki var hann með 1:35 á klukkunni. Gott dæmi um flottan undirbúning. Upp kom uppskiptaafbrigðið í Spænska leiknum sem hann hafði litið vel á fyrir skákina. Staðan eftir byrjunina var í jafnvægi og hélst í raun þannig alla skákina. Báðir lentu í tímahraki og höndlaði Dawid það betur og skipti hann upp í peða endatafl þar sem hann var peði undir en með sterkt frípeð sem tryggði honum sigurinn.
2.borð : Albert (1824) - Róbert Luu 1-0
Róbert hafði svart gegn Alberti. Róbert tefldi enn og aftur Skandinavann. Því miður tefldi Róbert ekki sína bestu skák, að mínu mati teflir hann of passíft. Hvítur fékk mjög þægilega stöðu. Í framhaldinu sótti hvítur án afláts á kóngsvæng og að lokum þurfti Róbert að játa sig sigraðann.
3.borð : Halldór Atli - Nienke (1560) 1/2
Halldór Atli hafði hvítt gegn ungri telpuað nafni Nienke. Þó svo að það var ómögulegt að undirbúa títtnefnda Nienke þá vorum við svo heppnir að hann tefldi Benkö-gambit sem við Halldór Atli vorum nýbúnir að fara yfir áður en haldið var út. Halldór Atli fékk því flotta stöðu úr byrjuninni. Í miðtaflinu lék Halldór klaufalega af sér peði, og bauð andstæðingur hans jafntefli um svipað leyti og ákvað ég að það væri líklegast best í stöðunni að taka jafnteflinu, sérstaklega þar sem sjálfstraustið á Halldóri Atla er ekki sem hæst. Flott fyrir Halldór að enda á góðri skák og ná jafntefli við stigahærri skákmann.
4.borð : Benedicte (0) - Guðmundur Agnar 1/2
Agnar hafði svart gegn ungri stelpu. Upp kom stórfurðuleg staða eins og gerist nánast undantekningarlaust í skákunum hjá Agnari. Agnar tapaði nokkrum peðum í byrjunininni, en hin unga Benedicte læsti biskupinn sinn klaufalega inni og Agnar kominn með unnið tafl. Hins vegar var úrvinnslan hjá Agnari ekki nægilega góð, og lék hann "b5" þegar hann var búinn að langhróka og galopnaði fyrir kónginn sinn. Í framhaldinu lék Agnar af sér drottningu, en var þó með hrók og tvo kalla í staðinn. Ég gaf mér það að þessi skák væri búin og hætti að fylgjast með, nokkrum mínútum síðar lauk skákinni og var ég handviss um að Agnar hefði gefið, neinei! Benedicte ákvað að þráskáka drenginn með kolunna stöðu og reyndist vera hæstánægð með jafnteflið! Jæja, lukkan með okkur loksins.
Lokatölur 2-2 sem eru heilt yfir sanngjörn og góð úrslit fyrir okkar. Við fáum Svía í seinustu umferð og ef við viljum eiga séns á bronsinu þurfum við að vinna þá stórt. Við höfum verið að tefla vel, en lukkan ekki alveg með okkur í liði en við erum tilbúnir fyrir seinustu umferðina!
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Holmenkollen.
Birkir Karl Sigurðsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 2
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 8778393
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar