Færsluflokkur: Spil og leikir
15.9.2016 | 12:24
Íslandsmót skákfélaga hefst 29. september - skráningarfrestur rennur út 20. september
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2016-2017 fer fram dagana 29. sept 2. okt. nk. Mótið fer fram í Rimaskóla í Reykjavík. 1. umferð (eingöngu í 1.deild) mun hefjast kl. 19.30 fimmtudaginn 29. september. Aðrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 30. september. kl. 20.00 og síðan tefla 1. október kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 2. október.
Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími bætist við eftir hvern leik.
Þátttökugjöld:
- 1. deild kr. 70.000.-
- 2. deild kr. 60.000.-
- 3. deild kr. 20.000.-
- 4. deild kr. 15.000.-
Skáksamband Íslands mun greiða fargjöld utan stór-Reykjavíkursvæðisins samkvæmt reikningum fyrir sveitir í 1. og 2. deild. Miða skal við einn brottfararstað á hverju svæði, t.d. Akureyri, Egilsstaði, Ísafjörð. Sami háttur verður hafður í 3. og 4. deild og áður, þ.e. þátttökugjöld höfð lág en sveitirnar verða sjálfar að sjá um ferðakostnað á skákstað.
Vakin er athygli á eftirfarandi texta í 19. grein skáklaga: Fyrir upphaf 1.umferðar fyrri hluta ÍS skulu félögin skila inn styrkleikaröðuðum lista allra þeirra keppenda sem þeir hyggjast nota í keppninni.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast Skáksambandi Íslands fyrir 20. september með bréfi, tölvupósti (skaksamband@skaksamband.is), símleiðis eða á Skák.is (guli kassinn). Að gefnu tilefni er minnt á að nauðsynlegt er að skrá sveitir í keppnina, ekki síst í 4. deild.
Stjórn SÍ mælist til af gefnu tilefni - að félögin skrái ekki fleiri sveitir til keppni en þau treysta sér til að manna í báðum hlutum keppninnar.
15.9.2016 | 06:47
Haustmót TR hefst á sunnudaginn
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2016 hefst sunnudaginn 18. september kl.14. Mótið, sem er hið 83. í röðinni, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótið er flokkaskipt og öllum opið.
Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Tefldar verða þrjár umferðir á viku og eru alls níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokaða flokka er keppendum raðað eftir Elo-skákstigum.
Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 17. september kl. 18.
Lokaumferð fer fram sunnudaginn 16. október en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu miðvikudaginn 19. október þegar Hraðskákmót TR fer fram.
Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Bragi Þorfinnsson.
Dagskrá:
1. umferð: Sunnudag 18. september kl. 14.00
2. umferð: Miðvikudag 21. september kl. 19.30
3. umferð: Föstudag 23. september kl. 19.30
Hlé
4. umferð: Miðvikudag 5. október kl.19.30
5. umferð: Föstudag 7. október kl. 19.30
6. umferð: Sunnudag 9. október kl. 14.00
7. umferð: Miðvikudag 12. október kl. 19.30
8. umferð: Föstudag 14. október kl. 19.30
9. umferð: Sunnudag 16. október. kl. 14.00
Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur jafnir í efstu sætum verður peningaverðlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráða lokaröð keppenda.
Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur.
Þátttökugjöld:
3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).
14.9.2016 | 18:07
Kringluskákmótinu frestað um viku
Kringluskákmóti Víkingaklúbbsins sem átti að fara fram á morgun hefur verið frestað um viku. Það fer fram fimmtudaginn 22. september og hefst kl. 17.
14.9.2016 | 18:03
Davíð efstur á Meistaramóti Hugins
Davíð Kjartansson er einn efstur með 5 vinninga að loknum 5. umferðum á Meistaramóti Hugins. Í fimmtu umferð sem fram fór sl mánudagskvöld tefldi Davíð við Jón Trausta Harðarson og vann sigur í skemmtilegri skák. Annar er Mikael Jóhann Karlsson með 4 vinninga en hann lagði Vigfús Ó. Vigfússon að velli með mikilli framrás kóngsins upp borðið. Jafnir í 3.-6. sæti eru Sævar Bjarnason, Björgvin Víglundsson, Dawid Kolka og Dagur Ragnarsson allir með 3,5 vinning. Lengstu skák viðureignarinnar áttu þeir Sævar Bjarnason og Björgvin Víglundsson en þar var sæst á skiptan hlut eftir langa baráttu.
Næsta umferð sú 6. fer fram fimmtudagskvöldið 15. september og hefst kl. 19.30. Staðan að lokinni 5. umferð í chess-results:
Í 6. umferð mætast m.a. efstu menn Davið og Mikael Jóhann og er nú eða ekki ef menn ætla að stöðva sigurgöngu Davíðs. Á næstu borðum eru einnig athyglisverðar viðureignir en þar tefla Björgvin og Dagur og Sævar mætir Dawid.
14.9.2016 | 01:00
Skákæfingar Fjölnis hefjast í dag
Vikulegar skákæfingar Skákdeildar Fjölnis fyrir börn og unglinga hefjast miðvikudaginn 14. september og verða þær framvegis alla miðvikudaga í vetur frá kl. 16:30 18:00. Æfingarnar eru í Rimaskóla og er gengið inn um íþróttahús skólans. Árangur þeirra barna sem sótt hafa reglulega skákæfingar Fjölnis hefur verið mjög góður á undanförnum árum og skákdeildin hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir árangursríkt starf.
Foreldrar áhugasamra barna í Grafarvogi og á höfuðborgarsvæðinu öllu eru hvattir til að nýta sér skemmtilegar og áhugaverðar skákæfingar Fjölnis sem bjóðast ókeypis.
Í fyrra mættu að jafnaði 30 krakkar á hverja æfingu. Æfingarnar miðast við að þátttakendur kunni góð skil á öllum grunnatriðum skáklistarinnar og tefli sér til ánægju. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á æfingarnar af og til. Þeir geta auðveldlega aðstoðað með ýmsum hætti. Reynt er að hafa æfingarnar fjölbreyttar og skemmtilegar, kennsla og skákmót til skiptis. Boðið er upp á veitingar á hverri æfingu svo sem ávexti, kexmeti og vatn. Öllum skákæfingum lýkur með verðlaunaafhendingu. Meðal leiðbeinenda í vetur verða m.a. afreksunglingar í skáklistinni úr úrvalsflokki Skákskóla Íslands.
Umsjón með skákæfingum Fjölnis í vetur hefur líkt og undanfarin ár Helgi Árnason formaður skákdeildarinnar. Munið fyrstu skákæfinguna 14. september kl. 16:30.
Spil og leikir | Breytt 8.9.2016 kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2016 | 14:53
ÓL í Bakú: Sárgrætileg endalok - Bandaríkin og Kína Ólympíumeistarar
Það er alþekkt að síðasta umferð Ólympíumóta í skák er sú mikilvægasta enda ræður hún því oft hvort að mótið í heild sinni teljist gott eða slæmt. Íslenska landsliðið í opnum flokki fékk erfiða andstæðinga í síðustu umferð. Sterkt landslið Argentínumanna beið okkar manna og ljóst var að barist yrði á banaspjótum.
Íslenska liðið varð snemma fyrir áfalli þegar staða Hjörvars Steins féll eins og spilaborg gegn stórmeistaranum Mareco. Leiðinlegur endir á frábæru móti hjá Hjörvari. Á sama tíma voru stöður Hannesar Hlífars Stefánssonar og Guðmundar Kjartanssonar að leysast upp í jafntefli. Jóhann Hjartarson tefldi af krafti á 3.borði gegn stórmeistaranum Perez Ponsa. Sá argentínski var í nauðvörn en á hreint ótrúlegan hátt náði hann að fórna nánast öllu liðinu sínu til þess að þvinga fram óstöðvandi þráskák. Þar með tryggði hann Argentínumönnum sigur með minnsta mun, 2,5 - 1,5.
Íslenska liðið féll langt niður töfluna við þessi úrslit og endaði mótið í 60.sæti af 180 þjóðum. Liðið var aldrei neðar í mótinu en eftir síðustu umferð sem er sárgrætilegt.
Íslenska kvennaliðið mætti ofjörlum sínum í liði Grikklands. Lenka Ptacnikova, sem staðið hafði sig frábærlega á 1.borði, tapaði eftir snarpa baráttu. Guðlaug Þorsteinsdóttir varð sömuleiðis að lúta í gras á öðru borði en góðu fréttirnar voru frábær barátta Hallgerðar Helgu Þorsteinsdóttur og Hrundar Hauksdóttur sem björguðu jafntefli í sínum skákum gegn mun stigahærri andstæðingnum.
Íslenska liðið endaði í 78.sæti af 140.þjóðum.
Bandaríkjamenn unnu sögulegan sigur í opnum flokki en þetta er í fyrsta skipti síðan 1976 sem að þeir standa uppi sem sigurvegarar. Liðið varð jafnt Úkraínumönnum að vinningum en hafði sigurinn því að sameiginlegur vinningafjöldi andstæðinga þeirra var hærri. Rússar náðu með herkjum að landa bronsverðlaunum og eru eflaust hundfúlir með árangurinn.
Kínverjar unnu sigur á Rússum í úrslitaviðureigninni í kvennaflokki og sendu þar með ríkjandi Ólympíumeistara (og það í þrígang) í 4.sæti mótsins. Pólsku konurnar hrepptu silfur og úkraínska sveitin hlaut brons.
13.9.2016 | 00:32
Lokapistill NM - Gull og brons
Árangur Íslensku liðanna á Norðurlandamótinu í ár er betri en undanfarin ár og tel ég að það sé að miklu leyti að þakka frábærri stemmingu í hópnum öllum. Hörðuvalla drengir fóru á Norðurlandamótið í fyrra með nákvæmlega sama lið og tóku silfrið, í ár voru þeir reynslunni ríkari og sigruðu mótið virkilega sannfærandi. Álfhólsskóla drengirnir náðu bronsinu með flottum endaspretti en þeir voru með yngsta liðið í unglingamótinu og því eiga þeir nóg eftir ( f. utan fyrirliðann Dawid sem stóð sig með miklum sóma ) nú verða hinir að stíga upp.
Hér fyrir neðan er ég með greiningu á einstaklings frammistöðu hvers og eins á mótinu um helgina. Í lengri kantinum en ég vona að þið afsakið það kæru lesendur.
Hörðuvallaskóli ( 1.sæti )
1.borð: Vignir Vatnar Stefánsson. 5v af 5. +35 elóstig. Borðaverðlaun. Þessi drengur heldur áfram að gera frábæra hluti í skákinni. Hann er sannur fyrirliði og ætli það lýsi honum ekki best þegar að ég ætlaði að hvíla hann í 4.umferð þar sem hann átti að tefla við 1300 stiga mann, hann tók það ekki mál. Þetta snýst ekki um stigin á manninum, hann vill bara vinna. Vignir Vatnar er fæddur sigurvegari og ef hann heldur áfram á þessari braut er ég sannfærður um það að hann verður stórmeistari. Vignir Vatnar hefur nú leitt liðið til Norðurlandameistara titils og er hann sönn fyrirmynd fyrir strákana í sveitinni sem og alla skákkrakka.
2.borð : Stephan Briem. 3v af 5. +35 elóstig. Þrátt fyrir það að Stephan Briem var eini í sveitinni sem ekki fékk borðaverðlaun, þá stóð hann sig samt sem áður frábærlega þar sem hann var með erfiðasta prógramið miðað við eigin stig fyrir mótið.Stephan var ekki sáttur eftir að ég gagnrýndi hann í pistlinum mínum fyrir að vera óhugmyndaríkur og tróð vænum sokk upp í mig þegar að hann gjörsigraði andstæðing sinn í næstu umferð! Framfarirnar hjá Stephani Briem s.l ár eru hreint út sagt ótrúlegar, og er þar mikil æfing að skila sér. Stephan hefði hæglega getað fengið fleiri vinninga á mótinu, en var að tefla virkilega vel og stefnir hann hratt upp stigalistann. Stephan Briem er nafn sem skákmenn munu heyra ætíð oftar á komandi árum hann mun bara verða betri, einn heitasti skákmaður landsins í dag á grunnskólaaldri.
3.borð : Sverrir Hákonarson. 4v af 4. +75 elóstig! Borðaverðlaun. Það er alveg sama hvað Sverrir tekur sér fyrir hendur hann verður frábær í því! Afreksmaður í fótbolta og fimleikum og núna Norðurlandameistari í skák. Sverrir var stigakóngur mótsins og tefldi af virkilega miklu öryggi. Sverrir er með algjörar stáltaugar og er þvílíkur stríðsmaður. Sverrir getur náð langt í skákinni en verður þó að tefla meira, eina ástæðan fyrir því að drengurinn er með svona fá stig er vegna þess að hann er ekki nógu duglegur að tefla. Á góðum degi er Sverrir 1600-1700 stiga maður og ég hef enn þann daginn í dag ekki séð Sverrir tefla lélega skák og hef ég séð þó nokkrar hjá honum!
4.borð : Arnar Milutin Heiðarsson. 4v af 4. +18 elóstig. Borðaverðlaun. Hressasti strákurinn í öllum hópnum um það verður ekki deilt. Arnar Milutin léttir verulega upp á stemminguna í hópnum og er alveg lífsnauðsynlegt að hafa einn "Arnar Milutin" í hverju liði að mínu mati. Það er ótrúlegt að fylgjast með þessum dreng hoppandi og skoppandi út um allt fyrir og eftir umferð, en á meðan að umferð stendur teflir hann eins og engill og eyðileggur andstæðinginn sinn. Arnar Milutin var í raun og veru alltof góður fyrir fjórða borðið, sigrarnir hans voru í flestum tilfellum mjög sannfærandi. Arnar tefldi mjög agað á mótinu og í staðinn fyrir að "bíða" eftir að andstæðingur sinn myndi gera mistök, pressaði hann stanslaust og á lokum brotnuðu þeir. Frábært mót hjá Arnari og hans frammistaða sýnir svart á hvítu hversu þétt þessi sveit er en að aðskildum Vigni eru 2-4 borð mjög svipaðir að styrkleika og það er gulls ígildi.
Benedikt Briem: Benedikt er langyngstur í hópnum og er yngri bróðir Stephans Briem. Þrátt fyrir slæmt tap hjá Benedikti í einu skákinni sinni, þá gæti verið að undirritaður hafi hent honum of snemma út í djúpu laugina. Að tefla sína fyrstu skák á Alþjóðlegu móti gegn 1500 stiga manni var kannski aðeins of mikið, sniðugra hefði verið að láta hann tefla í 4.umferð gegn stigalausum andstæðing en ég hugsa þó að til lengri tíma muni Benedikt muna eftir þessari skák og læra mikið af henni. Nú mun Benedikt að öllum líkindum leiða Hörðuvallaskóla sveitina á Íslandsmóti barnaskólasveita á næsta ári og ég skora á hann hér með að fá jafnaldra sína til þess að byrja að stúdera og mæta með flotta sveit að ári!
Óskar Hákonarson: Óskar er límið í liðinu. Hann bindir strákana saman og er góður vinur þeirra allra. Þrátt fyrir að hafa tapað í gær tefldi hann á köflum fína skák, og með meiri reynslu hefði hann klárað þessa skák. Sama má segja með Óskar og um Benedikt, að ég henti þeim kannski fullsnemma í djúpu laugina en þeir munu búa að þessu svo lengi sem þeir lifa. Óskar er mikilvægur hlekkur í liðinu og peppar menn ávallt vel upp fyrir og eftir skákir. Frábær drengur sem getur staðið sig vel í skákinni með meiri æfingu.
Heilt yfir er þetta auðvitað frábær árangur hjá þessu magnaða liði. Fyrir mótið var að sjálfsögðu stefnt á sigurinn og eitthvað sem við töldum raunhæft, en þó bjuggumst við alls ekki við að við myndum sigra með svona miklum yfirburðum. Í raun og veru var mótið búið eftir þrjár umferðir en þá vorum við komnir með 3,5 vinnings forskot. Þetta lið hefur svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta en ég skora á SÍ og fleiri aðila til þess að styðja þetta lið á EM/HM en Norðurlandamótið var alltof létt fyrir þá! Liðsandinn sem einkennir þetta lið er eitthvað sem ég hef aldrei kynnst áður, þeir eru allir góðir vinir og styðja hvorn annan. Að lokum vil ég óska Gunnari Finnssyni til hamingju með góðan árangur.
Álfhólsskóli ( 3.sæti )
Fyrir mótið settum við okkur engin sérstök markmið fyrir utan það að hafa gaman og njóta augnabliksins. Samkvæmt elóstigum áttum við að lenda í næstseinasta sæti en ég vissi þó að það byggi meira í þessu liði en það. Á góðri helgi hefðum við jafnvel getað verið í baráttu um eitthvað stærra en bronsið en því miður voru ekki allir á deginum sínum. Ég kom inn sem liðsstjóri aðeins örfáum vikum fyrir mót þar sem Lenka er að keppa á Ólympíumótinu og því er þessi flotti árangur hjá liðinu mest henni að þakka. Ég sá aðallega um að peppa liðið og halda öllum við efnið.
1.borð : Dawid Kolka 2,5/5 +12 elóstig
Vitað var fyrirfram að þetta yrði erfitt mót fyrir Dawid en hann var að mæta stórjöxlum í hverri umferð. Hann sýndi þeim þó enga virðingu og vann til að mynda stigahæsta mann mótsins. Heilt yfir getur Dawid verið sáttur við eigin frammistöðu og er hann flottur fyrirliði. Þetta mót var í seinasta sinn sem hann mun leiða Álfhólsskóla liðið og því er tækifæri fyrir aðra að stíga upp í hans stað. Álfhólsskóli getur þakkað Dawid fyrir framlag hans en án hans hefðu þeir ekki farið á Norðurlandamótið held að það sé öllum ljóst. Frábær drengur hann Dawid og á bjarta framtíði fyrir sér sem skákmaður.
2.borð : Róbert Luu 2/5 -20 elóstig
Þrátt fyrir að Róbert lækki á elóstigum á mótinu er ég gríðarlega stoltur af honum. Hann var yngstur allra á Unglingamótinu og er það í raun og veru afrek fyrir sig að vera mættur á annað borð á Norðurlandamót unglingasveita en hann er aðeins 11 ára gamall (f.2005 !!) . Mín ráðlegging til Róberts er að hætta að hugsa um jafntefli, ég brenndi mig á þessu sjálfur þegar að ég var yngri að hugsa aðeins um jafntefli þegar ég tefldi á móti stigahærri og veit ég það fyrir vissu að það hefur slæm sálfræðileg áhrif. Róbert var ekki sáttur eftir að ég gagnrýndi hann í pistlinum mínum eftir fjórða umferð þar sem ég mældi svo að hann væri einmitt of passífur og tók það greinilega virkilega inn á sig því að hann girti sig heldur betur í seinustu umferðinni og slátraði andstæðing sínum á innan við klukkutíma. Róbert Luu er flottur strákur sem mun án nokkurs vafa ná langt í skákinni og er aðeins rétt að byrja eins og allir í þessum hóp.
3.borð : Halldór Atli 0,5/4 -4 elóstig
Því miður var þetta ekki mótið hans Halldórs Atla. Fyrir mótið vissum við að þriðja borðið gæti orðið vandamál þar sem að mesti stigamunurinn var þar á milli okkar og hinu liðanna, en þó hafði ég ekki miklar áhyggjur þar sem ég veit hvað manna best hversu góður Halldór Atli getur verið, ( vann mig ta.m á RVK OPEN 2015 !! ) Ef að Halldór Atli vill ná árangri í skák þá verður hann að setja meiri tíma í skákinni, þá eru honum allir vegir færir. Þrátt fyrir að hann sé í ákveðni lægð núna þá er ekki nema u.þ.b mánuður síðan að hann vann kappskákmót og því vonum við að þetta hafi bara verið slakt mót hjá honum og að hann komi tvíefldur til baka. Halldór Atli er sterkur karakter og gefst ekki upp svo auðveldlega, ég tel að fyrsta skákin hafi verið algjör vendipunktur í mótinu hjá honum þegar hann leikur af sér drottningu með hvítu á móti stigalausum andstæðing en hann var alveg eyðilagður eftir þá skák skiljanlega. Erfitt var að núllstilla sig eftir þá skák, og einkenndist taflmennskan í hinum umferðunum af lágu sjálfstrausti að mínu mati. Hins vegar endaði hann á góðum nótunum þar sem hann náði jafntefli gegn stigahærri andstæðing í afbrigði sem við vorum nýbúnir að fara yfir í Benkö- gambit eitthvað sem ge
rði mig afskaplega stoltan!
4.borð : Guðmundur Agnar Bragason 3,5/5 +25 elóstig
Í raun og veru mætti alveg færa rök fyrir því að Agnar er maður mótsins fyrir mína parta allavega. Ég viðurkenni það fúslega núna að fyrir mótið vildi ég skrá hann sem varamann og hafa Atla Mar á fjórða borði, sá sýndi það og sannaði að á góðum degi er hann algjörlega frábær skákmaður. Enda tók Lenka það ekki í mál að ég myndi hafa hann sem varamann, hún hafði mikla trú á honum og hafði hún rétt fyrir sér. Eftir slæmt tap í þriðju umferð hugsaði ég með mér, jæja þá er "mómentumið" farið frá honum, ætti ég að taka hann útaf? Nei, ég gef honum sénsinn og skilaði hann 1,5/2 í seinustu tveimur og var hársbreidd frá því að taka borðaverðlaun fyrir fjórða borðið. Agnar átti margar flottar skákir í mótinu og þarf að vera mun duglegri að tefla því að það er augljóst að hæfileikarnir eru til staðar. Þrátt fyrir einkennilegan og stórfurðulegan skákstíl skilaði hann mikilvægum punktum fyrir okkur og stóð sig best allra í liðinu. Tvær undarlegar uppákomur áttu sér stað við skákborðið hans; sú fyrsta var þegar hann var drottningu undir með hrók og kall í staðinn, með gjörtapað tafl og ég hætti að fylgjast með skákinni og nokkrum mínútum seinna kláraðist skákin og var ég búinn að skrá hjá mér tap hjá honum, kem ég að honum skellihlæjandi þar sem andstæðingur hans þráskákaði hann og bauð jafntefli.. Ekki veit ég enn hvernig hann fór að því en jæja mikilvægur hálfur punktur þar.
Annað atvikið var í seinustu umferð þegar við vorum í hörkubaráttu um bronsið og þurftum á vinningi að halda, Agnar var með kolunnið endatafl og var það bara formsatriði að klára skákina, heyri ég allt í einu jafnteflisboð frá Agnari (!!!) ég reiddist honum mjög þá, enda þurftum við á sigrinum að halda, ég þurfti því að setja upp þvílíkt leikrit að ég væri að vona að Svíinn myndi taka jafnteflinu og hann var nógu vitlaus til þess að taka því ekki og sigraði Agnar 10 leikjum seinna! Munaði mjóu þar....:)
Varamaður : Atli Mar 1/1 +37 elóstig
Atli Mar kom inn í liðið á seinustu stundu með frábært hugarfar og er gáfnaljósið í hópnum. Virkilega skemmtilegur karakter sem mætti endilega sinna skákinni meira enda hæfileikarnir klárlega til staðar. Eftir slæmt tap hjá Halldóri Atla í fyrstu umferð bauð ég Atla Mar að koma inn á í aðra umferð, og afþakkaði hann boðið þar sem hann vildi gefa Halldóri Atla annað tækifæri, greinilega góður vinur ( kannski of góður !!? ) . Ég lofaði honum að ég myndi tefla honum í fjórðu umferð en hætti við á seinustu stundu, þar sem ég sá að þetta var seinasta tækifærið fyrir Halldór Atla að fá hvítt og ef ég myndi setja Atla inn á í seinustu fengi hann hvítt. Það var augljóst að Atli var ekki sáttur með ákvörðun mína en sætti sig þó við hana og mætti vel undirbúinn til leiks fyrir seinustu skákina og gjörsamlega skúraði gólfið með andstæðing sínum, seinustu fréttir segja að hann hafi hlupið heim til Svíþjóðar eftir skákina og sé enn hlaupandi. Vissulega þurfti ég að spyrja mig að nokkrum spurningum eftir þá skák, til dæmis, af hverju setti ég hann ekki inn á fyrr? en auðvelt er að vera vitur eftirá. Nú skora ég á Atla Mar að leggjast í stúderingar og byrja að tefla á mótum og hann mun aldrei þurfa að vera varamaður aftur!
Að lokum vil ég þakka Skáksambandi Íslands kærlega fyrir að gefa mér tækifæri fyrir að vinna með þessum liðum og vona ég að þetta verði ekki mitt seinasta mót með þeim
Verið sæl að sinni,
Birkir Karl Sigurðsson
12.9.2016 | 21:53
Ólympíumót: 10. umferð í opnum flokki
Í 10. umferð á Ólympíuskákmótinu mættum við stórskotaliði Pólverja í opnum flokki. Pólverjar voru fyrir mótið 7. stigahæsta liðið enda með elítuskákmann á fyrsta borði, Wojtazek með 2736 elóstig og svo mjög stigaháa skákmenn á hinum borðunum og þar af tvo sem hafa tiltölulega nýlega orðið heimsmeistarar í yngri aldursflokkum.
Pólverjarnir hafa ekki átt gott mót það sem af er en eiga möguleika á að laga stöðuna í lokin.
Þrátt fyrir að þetta ætti að vera erfið viðureign á pappírunum varð hún hörkuspennandi og á tímabili voru bæði netverjar og undirritaður sammála um að við ættum möguleika á allavega jafntefli og jafnvel vinna viðureignina.
Eftir mikla baráttu,barning og gríðarlega spennu urðum við að lúta í lægra haldi eftir æsilegt tímahrak.
Kíkjum aðeins á gang mála í skákunum í þeirri röð sem þær kláruðust.
1. borð Hannes hvítt á Wojtaszek (2736)
Hannes fékk erfiðan andstæðing en hann hefur nú lagt sterkari skákmenn en þennan að velli. Skák þeirra félaga varð hinsvegar mjög stutt. Ég kom "heim" úr rúnti um skáksalinn þegar rétt rúmlega 40 mínútur voru liðnar til að finna 1/2-1/2 sem úrslit og fyrsta borði, semsagt stórmeistarajafntefli.
Þar sem ekki má semja í undir 30 leikjum höfðu þeir endurtekið stöðuna þrisvar sinnum. Vissulega var ekkert líf í stöðunni og Hannes taldi enga ástæðu að láta reyna á þann pólska.
Bb5-c4 og Bc6-d5 var endurtekið hér
4. borð: Bragi svart á Darius Swiercz 2639
Bragi tefldi með svörtu 1.d4 Rf6 2.c4 b6. Merkilegt nokk þá var nákvæmlega sama staða á 3. borði hjá Gumma og eilítið fyndið moment þegar liðsstjóri Frakka og vinur minn Fabien Libiszewski kom og kíkti á viðureignina hjá okkur og glotti svo yfir þriðja og fjorða borði. Við tókum stutt spjall og hann sagði að þriðja borðið okkar ætti bara að bíða eftir leik hjá því fjórða og svo öfugt ;-)
Byrjunin hjá Braga varð einhvern veginn að hálfgerðri Grunfeld stöðu en svartur var eitthvað á eftir með að ná hinum venjulegu "breakum" c5 eða e5. Bragi náði þó að leika ...e5 en líklegast hefði hann átt að leika ...Ra5 og ...c6 í stað ...Re7 sem var mögulega upphafið að vandræðum.
Engu að síður vildu tölvurnar meina að Bragi væri nálægt því að hafa jafnt tafl þegar hann lék sínum versta leik í þessu móti. Og átti í raun aldrei möguleika í skákinni eftir það.
Hér kom peðsfórn með ...g5 sem reyndist misheppnuð og eftirleikurinn varð auðveldur fyrir fyrrverandi heimsmeistara 20 ára og yngri.
Versta skák Braga á mótinu en hann getur tekið margt gríarðlega jákvætt með sér en hann tefldi á köflum alveg skínandi vel og sýndi að ef að stoppað er í nokkur göt á hann að klára stórmeistaratitilinn.
2. borð: Hjörvar svart á Mateus Bartel (2646)
Hjörvar var klár í bátana í Spánverjanum gegn 1.e4 hjá Bartel. Til þessa hafði Bartel ávallt sleppt h3 í aðalvaríantinum og leikið þess í stað d4 strax. Því fór minnstur tími i aðallínurnar en Hjörvar hafði þó kíkt á þær.
Bartel tefldi mjög hratt og eftir 22 leiki var hann enn yfir byrjunartíma sínum á klukkunni (Hannes var t.d. búinn á þeim tíma!).
Hjörvar tefldi vörnina vel og sérstaklega var ...Rb7 góður leikur en tölvurnar vildu leika honum. Yfirleitt stendur riddarinn illa þarna og svartur vill ekki setja hann þar nema tilneyddur. Í þessu tilviki var það hinsvegar góður leikur og Jóhann t.a.m. var mjög sáttur við þennan leik hjá okkar yngsta stórmeistara.
Í stöðu sem leit út fyrir að vera nokkuð venjuleg Spánverja staða fór Bartel í peðsfórnir hér:
Hjörvar "took up the gauntlet" eins og þeir segja á engilsaxneskunni og bauð Bartel upp á að sýna sér snilldina. Snilldin reyndist aðeins minni en við (Björn Ívar) héldum á hliðarlínunni. Vissulega vann Bartel í kjölfarið skiptamun en Hjörvar hafði fína stöðu og enga taphættu. Á tímabili vorum við hræddir um að einhver brakandi snilld væri í kortunum með Rxe5xd7 og einhverju drottningarfórna "systemi". Sem betur fer var það ekki í spilunum.
Hér erum við með lokastöðuna. Bartel lék sínum 40. leik og bauð jafntefli. Hjörvar spurði mig og ég sagði að hann mætti ráða, má í raun ekki segja meira en "Yes", "No" eða "You decide". Á þessum tímapunkti virtist staða Gumma vera kolunnin þó vissulega væri hún flókin. Hjörvar átti um 7 mínútur eftir þegar boðið kom og gekk niður í 2 mín meðan hann fylgdist með skák Gumma áður en hann tók jafnteflinu.
Ég átti í mikilli innri baráttu um hvað ég ætti að skipta mér mikið af en ég var ekki jafn viss með skákina hjá Gumma og var þar að auki að spá í að banna jafnteflið þar sem jafntefli á þessum tímapunkti myndi setja mikla pressu á Gumma í tímahrakinu að klára sína skák.
Hjörvar var líklega í engri taphættu og með aðeins betra í tölvunum. Hinsvegar er erfitt að sjá hvernig svartur bætir stöðuna eftir 40...Kg7 41.Hf1 Be8 42.Bb1. Vissulega er hægt að ýta b-peðinu aðeins áfram en hvað svo? Reyndar getur hvítur ekki gert neitt heldur og því hefði kannski verið hættulaust að tefla áfram. Höfum þó i huga að ákvarðrnir þurfti að taka á mjög stuttum tíma og eins hafði Hjörvar verið í vörn mest alla skákina og fann fyrr einhverri þreytu. Auðvelt að gagnrýna á hliðarlínunni en rétt er að vissulega hefði verið gaman ef Gummi hefði klárað sína skák og Hjörvar hefði allavega getað látið Pólverjana svitna yfir möguleikanum að vera að tapa fyrir víkingaklappandi Íslendingum.
3.borð: Guðmundur hvítt á Kacper Piorun (2681)
Anstæðingur Guðmundar í þessari skák er mjög áhugaverður. Piorun hefur nokkrum sinnum orðið heimsmeistari í "problem-solving" eða þeirri list að leysa hinar ýmsu skákþrautir. Má því ætla að hann sé góður í útreikningum og úrræðagóður í hinum ýmsu stöðum. Það kom að vissu leyti á daginn í dag.
Snemma fannst mér Gummi fá mjög fina stöðu og þó maður haldi oft að maður hafi ekki rétt fyrir sér þvi andstæðingurinn sé með 2681 elóstig þá segir allt common sense hér að hvítur standi betur. Piorun er algjörlega búinn að vera að "krútta yfir sig" með manúveringunni He5-a5 og De8-e5-h5. Hvítur er með peð á d6 og ef hann nær f4 og e4-e5 er hann með alla stöðuna og svartur með fáranlegan hrók á a5.
Gummi tefldi skákina vel og var að yfirspila andstæðing sinn. Hér fórnaði hann peði með b4 sem er ákveðin kraftataflmennska en kannski var ekki þörf á því þó hvíta staðan sé enn mun betri. "Ekki fórna með unnið" eins og ávkeðinn lögfræðingur hjá DeCode sagði fyrr í ferðinni ;-)
Hér fóru leikar að æsast og ég varð allt í einu ekki viss um að Gummi væri að vinna. Hér var að mig minnir komið jafnteflisboð hjá Hjörvari og Gummi fór að virka stressaðri en hann var nokkrum mínútum fyrr. Allt í háalofti en hvítur er með mun betri stöðu. Gummi fann fínan leik í 30.Db4 en átti hér magnaða tölvusleggju með 30.Dd2!! og svartur er með tapað.
Í miklu tímahraki var Gummi áfram með unnið og hér bjóst ég við 35.Rg3 og hvítur valdar allt. Ég hrökk hinsvegar við þegar líklega fyrstu og einu mistök Guðmundar í skákinni komu með 35.Dd4?
Piorun fékk allt í einu mótspil og staðan varð erfið auk þess sem peð í viðbót féll í valinn.
Eftir að tímamörkunum var náð kom upp athyglisvert augnablik enn og aftur. Gummi lék sínum 40. leik og þurfti að pissa verandi búinn að halda í sér allt tímahrakið. Skiljanlega enginn tími gefist til að fara á klósettið þegar teflt er á viðbótartíma í miklu tímahraki. Hér gerði Gummi þau mistök að standa ekki bara beint upp og rjúka á klósettið. Í stað þess lék andstæðingur hans tiltölulega fljótlega (hann var líka undir 1 mínútu á leikinn) og þegar Gummi ætlaði að biðja skákstjóra um leyfi til að fara á klósettið vildi hann ekki leyfa honum það þar sem hann hafði séð leikinn. Ég spurði skákstjóra hvort hann mætti ekki fara á klósettið þrátt fyrir þetta og benti á fimm tómar vatnsflöskur á gólfinu hjá Gumma. Hann neitaði því hinsvegar þar sem hann hafði sé leikinn. Ekki er ég viss um að reglurnar séu svona strangar og skv. samtali eftir skákina við Rikka hefði mátt finna skákstjóra til að fylgja honum á klósettið og því fannst mér ansi hart að okkur vegið þarna.
Þetta endaði þannig að Gummi lék hér tiltölulega snöggt í 41. leik Hd4 og fór á klósettið. Þegar hann kom aftur beið hans 41...Ha1+ og því miður er eini leikurinn í raun og veru 42.Hd1 vegna þess að 42.Kd2 er að bjóða upp á 42...Ha2+ og svo í ýmsum varíöntum Hxe2 og Dg1+ og svo drepið á d4. Misskilningurinn hjá Gumma áður en hann fór á klósettið var að í einni stöðunni var svarti hrókurinn á a2 og í hinum a1. Hann hélt því að svartur gæti ekki krafist. Hinsvegar skiptir engu máli hvaðan maðurinn kemur, bara að sama staðan komi upp þrisvar. Sem betur fer skipti þetta í raun ekki miklu máli þar sem líklegast er alls ekki lengur vinningur í stöðunni en í öllu falli kom þetta atvik strax í veg fyrir að hægt væri að reyna eitthvað þar sem jafntefli var krafist og viðureigninni þvi lokið.
Svekkjandi tap þar sem Gummi hafði yfirspilað þennan gæja gjörsamlega og mjög slysalega atburðarás og afleikur sem varð til þess að hann missti skákina niður í jafntefli. Spennandi viðureign og lærdómsrík fyrir bæði liðið og liðsstjórann.
Úrslitin: (smella til að sjá stærra eins og á öllum myndum)
*****************************************
Punktar úr 10. umferð:
- Fyrst einn úr 9. umferð. Það var mjög skemmtilegt moment í lok skákar Ivan Salgado Lopez hjá Spánverjum. Það er ekki oft sem menn fá tækifæri á að drepa þrjú peð í röð í peðsendatafli og fljótlega hið fjórða. Augljóslega dugði það ekki til en áhugavert moment ;-)
- Carlsen vann enn og aftur og nú gegn Írananum Ghaem Maghami. Carlsen beitti London systeminu og lét Íranann líta illa út.
- Norðmenn unnu að mínu viti óvæntan stórsigur 3,5-0,5 gegn spútnikliði Íran. Við Björn Ívar spáðum báðir 2,5-1,5 fyrir Íran. Vart þarf að taka fram að það var Jón Lúðvík sem gerði eina jafnteflið og er því enn án sigurs á mótinu ;-)
- Torre-vaktin er gjörsamlega að brenna yfir. Í dag var Ian Gourlay frá Skotlandi lagður að velli en hann er með um 2350 elóstig. Við erum að tala um 9 vinninga af 10 hjá filipeysku goðsögninni!
- Baadur Jobava datt niður fyrir 3000 í performance með því að gera jafntefli við þriðja stigahæsta mann mótsins Fabiano Caruana. Jobava kom enn og aftur gríðarlega á óvart....að þessu sinni með því að gera ekkert óvænt og tefla ítalska leikinn!
- Helgi Dam Ziska varð í dag fyrsti Stórmeistari í skák í sögu Færeyja. Við óskum honum hjartanlega til hamingju með það enda Færeyingar stórvinir okkar og Helgi einn besti og ljúfasti drengur sem hægt er að kynnast. Helgi lagði að velli áður ósigraðan fyrsta borðsmann Bólívíu sem hafði farið á kostum með 7 vinninga úr 7 skákum.
- Arkadij Naiditsch hefur valdið miklum vonbrigðum fyrir heimamenn hjá Azerum og tapaði sinni fjórðu skák í röð í dag.
- Grikkir halda áfram að vera ólseigir. Þeir lönduðu tæpu jafnefli gegn Spánverjum í dag og eru eina sveitin ásamt Bandaríkjamönnum sem er ósigruð.
- Krúttlegasti keppandi mótsins í viðtali, hún er 9 ára og búin að vinna sýna fyrstu skák á Ólympíumóti! Hún fékk að sjálfsögðu nælu íslenska skáksambandsins og gott betur frá Don Roberto sem dæmdi hjá henni fyrr í mótinu.
- Turkmenistan hljóta að vera að eiga sitt besta Ólympíumót. Þeir eru eunu stigi fyrir ofan okkur í 36. sæti og hafa nýtt sér mikinn "monrad-meðbyr". Þótt ótrúlegt megi virðst hafa Turkmenar eftir viðureign sýna á morgun gegn Azerbaijan mætt öllum þrem sveitum Azerbaijan í þessu móti!
- Bandaríkjamenn verða að teljast líklegastir til að hampa gullinu hér. Þeir eru enn jafnir Úkraínumönnum í efsta sæti en hafa þá á innbyrðis viðureign og vinningum. Bandaríkjamenn mæta spútnikliði Kanadamanna í síðustu umferð sem á pappírunum á að vera góð pörun fyrir þá og sigur. Það er þó aldrei hægt að bóka neitt í þessu og verður spennandi að fylgjast með í fyrramálið.
*********************************************
Á morgun er það Argentína sem er ágætis pörun miðað við nokkrar monster sveitir sem við gátum lent á eins og Holland og Ísrael sem hefði verið gríðarlega erfitt að vinna. Vissulega eru Argentínumennirnir stigahærri en möguleikarnir ættu að vera fínir. Fínt líka loksins að losna úr þessu litla Evrópumóti sem við vorum lentir í ;-)
bestu kveðju frá Baku,
Ingvar Þór Jóhannesson, liðsstjóri í opnum flokki
p.s. meðan þessi pistill var í skrifum sá ég að klukkan var 00:02 en skila átti inn liðsuppstillingu fyrir 00:00....mér til happs þá er aðalliðinu skilað inn sjálfkrafa ef það gleymist. Ég var nú með það bakvið eyrað en ég fékk samt smá sjokk þegar ég var ekki alveg viss um hvort ég væri 100% viss ;-)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2016 | 20:53
Ólympíuskákmótið: 10. umferð í kvennaflokki
Ísland 3 Sri Lanka 1
Andstæðingar okkar í 10. umferð voru Sri Lanka (meðalstig: 1717), sem er skáksveit skipuð ungum og efnilegum stúlkum. Þær voru flestar með stigagróða nálægt 100 stigum á mann, fyrir umferðina, svo það var engin ástæða til að halda að viðureignin yrði auðveld.
Við upphaf 10. umferðar gegn Sri Lanka
Á fyrsta borði hafði Lenka hvítt gegn TH D Nihlesh Tharushi (1584). Lenka lék 1. g3 í fyrsta leik til þess að taka andstæðing sinn ,,úr teóríunni og það gekk fullkomlega upp. Upp kom kóngsindversk árás og Lenka tefldi í sama stíl og Fischer gerði stundum í gamla daga. Í rauninni var um algjöra módelskák í kóngsindverski árás að ræða. Eftir 20. Rf6!+ réð svartur ekkert við mátsókn hvíts. Í framhaldinu henti Lenka höllum mönnunum sínum í átt að svarta kóngnum og Tharushi gafst upp þegar hún hefði þurft að gefa drottninguna til að stoppa mátið. Flottur og öruggur sigur.
20. Rf6+! ala Fischer. Tharushi lék 20...Kh8 en eftir 21. Rg5! réð hún ekkert við stormsveip hvítu mannanna á kóngsvængnum.
Á öðru borði hafði Guðlaug svart gegn Dilhara Ishini Wickramasinghe (1750). Upp kom sama afbrigði í slavneskri vörn, með 3...dxc4, og Gulla hafði teflt áður í mótinu. Við höfðum skoðað afbrigðið nokkuð vel en engu að síður missti Gulla aðeins tökin á stöðunni eftir byrjunina og tapaði í framhaldinu peðinu sínu á c4. Hún var þá peði undir og þurfti að verjast í erfiðu endatafli. Hún hafði peðameirihluta á drottningarvæng en náði aldrei neinu mótspili og í rauninni tefldi Wickramasinghe virkilega vel, það verður ekki tekið af henni. Öruggur sigur hvíts.
Hér lék Gulla 11...h6 sem er sennilega of hægfara. Hér kom til greina að leika 11...a6 og svo 12...b5 og hanga á peðinu á c4. Staðan verður tvíeggjuð en svartur á sín tækifæri.
Á þriðja borði hafði Hallgerður Helga hvítt gegn Dasuni Hansika Mendis (1699). Upp kom ítalskur leikur sem Halla þekkir vel. Snemma í skákinni skildi Halla riddara eftir í uppnámi á b3 með 13. Rf5! Mendis þorði ekki að taka manninn og í framhaldinu fór Halla í stórsókn gegn svarta kóngnum. Hún vann peð en tapaði því aftur. Það kom þó ekki að sök því hún hafði talsvert frumkvæði og svarta kóngstaðan var veik. Mendis var auk þess mjög tæp á tíma og missti algjörlega tökin á stöðunni og lék sig beint í mát. Mjög góð skák og fallega útfærð sókn. Með þessum sigri tryggði Halla sér WFM titil með því að ná 6 vinningum af 9 skákum. Til hamingju með það, Halla!
Hér lék Halla 13. Rf5! Liðsstjórinn fór að svitna því hann sá ekki killerinn. Hugmynd Höllu var 13...Dxb3 14. Rxg7! Kxg7 15. Bh6+! Kxh6 16. Dxf6+ Kh5 17. g4+! Kxg4 18. Kh1!! og mát í kjölfarið með 19. Hg1+. Frábær flétta hjá Höllu. Mendis tók ekki riddarann, lék 13...g6 en eftir 14. Bh6! var hún í ,,köðlunum" og Halla vann af öryggi.
Á fjórða borði hafði Hrund svart gegn Zainab Saumy (1688). Við sáum fyrir skákina að Saumy var að tefla spænska leikinn og lögðum upp með að Hrund myndi tefla gæluafbrigði Björns Þorfinnssonar með 3...Rge7. Hrund nýtti allar helstu hugmyndir Bjössa í afbrigðinu, lék Rg6 og seinna Be7 og Bg5. Hún komst beint í kóngssókn og hélt hugmyndum Bjössa áfram á lofti með g5 og h5. Hún reif upp hvítu kóngsstöðuna og það var aldrei spurning hvernig skákin myndi enda; um var að ræða algjöra einstefnu. Saumy réð ekkert við stöðuna eftir að g- og h-línurnar opnuðust. Hrund kláraði skákina með fallegri fléttu, vann drottningu og svo hrók og Saumy gafst upp. Flottur sigur hjá Hrund.
Kóngssókn eftir uppskrift Björns Þorfinnssonar: 17...g4!
22...Hdg8+ og hvíti kóngurinn átti ekkert skjól. Eftir 23. Kf2 Db2+ 24. Ke3 Hh3+ 25. Hf3 Da3+ vann Hrund af öryggi.
Punktar úr 10. umferð:
- Kínverskur stúlkurnar unnu þær pólsku í dag og eru komnar með aðra hönd á titilinn fyrir síðustu umferð.
- Bandaríkjamenn unnu Georgíu í opna flokknum, hafa 18 stig, og fá Kanada á morgun. Úkraína er líka með 18 stig og fá Slóveníu. Þeir standa þó verr að vígi en Bandaríkin þar sem þeir töpuðu innbyrðis viðureign og eru líka lægri að vinningum.
- Baadur okkar Jobava kom Caruana á óvart í byrjuninni í dag. Venjulega teflir Jobava 1. d4 2. Rc3 3. Bf4!? en í dag lék hann 1. e4 og tefldi teóríu í ítalska leiknum! Hann fékk þó lítið út úr byrjuninni og Caruana tryggði sigurinn í viðureigninni með öruggu jafntefli. Athygli vakti að Nakamura fór niður í logum með hvítu gegn Mikheil Mchedlishvili á 2. borði.
- Ég var tekinn í sérstakt eftirlit í dag fyrir að dirfast að koma með insúlíndælu á skákstað. Eftir að 6 öryggisverðir höfðu virt fyrir sér gripinn í nokkra stund var ég tekinn afsíðis þar sem azerskur sjúkraflutningamaður gaf blessun sína yfir því að tækið væri hvorki sprengja né skáktölva. Ég hlakka til að sjá hvað gerist á morgun. Það má geta þess að liðsmenn íslenska kvennalandsliðsins höfðu mjög gaman að fylgjast með aðförunum.
- Skemmtilegustu nöfn skákmanna á mótinu hingað til: Olga Gutmakher frá Ísrael og Ockie Jean Michel MONNEY frá Fílabeinsströndinni.
- Krúttlegasti keppandi mótsins er Fiorina Berezovsky, 9 ára, frá Mónakó. Þessi mynd náðist af Don Robertó, ,,the friendly arbiter" og Fiorinu fyrir 9. umferð:
- Liðsstjórarnir eru algjörlega búnir að missa það og æfðu ballett við upphaf 10. umferðar.
Á morgun, í 11. og síðustu umferð, mætum við grjóthörðu liði Grikklands (meðalstig: 2239). Við þurfum að eiga mjög góðan dag til þess að taka sigur í þessari umferð en við gefum allt okkar í þetta og endum mótið með stæl.
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
Björn Ívar
12.9.2016 | 20:05
Ísak Orri sigraði á fyrsta móti Bikarsyrpunnar
Ísak Orri Karlsson (1148) kom, sá og sigraði á afar spennandi upphafsmóti Bikarsyrpu TR sem fram fór um liðna helgi. Tefldar voru sjö umferðir og hlaut Ísak 6 vinninga en næst honum með 5 vinninga komu Joshua Davíðsson (1411) og Batel Goitom.
Mótið einkenndist af mikilli spennu og þegar kom að lokaumferðinni höfðu tveir keppendur 5 vinninga og aðrir tveir 4 vinninga þannig að allt gat gerst enda breyttist staða keppenda ört þegar úrslit úr síðustu umferðinni tóku að detta inn. Á efsta borði stýrði hin unga Batel Goitom hvítu mönnunum gegn Joshua og var ekkert á því að gefa eftir í baráttunni við stigahæsta keppanda mótsins. Örugglega færði hún mennina til á borðinu köflótta, vann snemma lið og sigldi sigrinum án mikillar hættu í höfn. Þar með var Batel komin í hóp keppenda sem höfðu 5 vinninga og að jafntefli gegn Árna Ólafssyni (1156) á öðru borði myndi duga Ísaki Orra til sigurs í mótinu.
Ísak hafði hvítt gegn Árna og úr varð afar jöfn og spennandi orrusta þar sem hnífjafnt var í liði og staðan nánast samhverf alveg þar til Ísak vann peð og fékk í kjölfarið vænlega stöðu í endatafli þar sem þeir félagar höfðu sinn hrókinn hvor. Árni varðist hvað hann gat en þegar Ísak knúði fram uppskipti á hrókunum sá Árni sæng sína uppreidda og lagði niður vopn. Sem fyrr segir stóð Ísak Orri því uppi sem sigurvegari mótsins, einn með 6 vinninga, og er sannarlega vel að sigrinum kominn. Þess má til gamans geta að Ísak ætlaði sér að taka yfirsetu fyrr í mótinu en eftir góða byrjun snérist honum hugur og kom sú ákvörðun honum sannarlega til góða.
Sjáumst á næsta móti Bikarsyrpunnar sem fer fram fyrstu helgina í nóvember.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 3
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 8778394
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar