Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2018

Gunnar Erik sigrađi á lokamóti Bikarsyrpu TR

20180408_174406-1017x1024

Gunnar Erik Guđmundsson (1553) kom, sá og sigrađi á fimmta og síđasta móti Bikarsyrpunnar ţennan veturinn en teflt var í Skákhöll TR um nýliđna helgi. Gunnar hlaut 6 vinninga í skákunum sjö en í öđru sćti međ 5,5 vinning var Benedikt Ţórisson (1291) . Fimm keppendur komu jafnir í mark međ 5 vinninga; Örn Alexandersson (1481), Árni Ólafsson (1275), Rayan Sharifa (1222), Tómas Möller (1169) og Óttar Örn Bergmann Sigfússon (1142) ţar sem Örn hlaut ţriđja sćtiđ á mótsstigum (tiebreaks). Efst stúlkna var Anna Katarina Thoroddsen en hún landađi 4 vinningum.

Mót helgarinnar var fjölmennt og vel skipađ og var styrkleikabreidd keppenda góđ sem er mikilvćgt í mótum Bikarsyrpunnar. Eins og svo oft varđ úr ćsispennandi barátta og réđust úrslit ekki fyrr en í lokaumferđinni seinnipart sunnudagsins. Fyrir hana voru Örn, Gunnar og Benedikt efstir og jafnir međ 5 vinninga en Árni kom í humátt međ 4,5 vinning ásamt Kristjáni Degi Jónssyni (1319). Liđsfélagarnir úr Breiđablik, Örn og Gunnar, mćttust á efsta borđi á međan ađ liđsfélagarnir úr TR, Árni og Benedikt, mćttust á öđru borđi, en á ţriđja borđi hafđi Kristján Dagur svart gegn Tómasi. Svo fór ađ Gunnar hafđi sigur gegn Erni en á sama tíma gerđu Árni og Benedikt jafntefli í viđureign ţar sem Benedikt var međ vćnlega sóknarstöđu en Árni varđist af hörku. Kristján Dagur tapađi manni gegn Tómasi sem landađi sigrinum í kjölfariđ.

Ţar međ var ljóst ađ Gunnar Erik sigrađi í fjórđa mótinu í röđ og raunar fór hann taplaus í gegnum öll fimm mótin sem er eftirtektarverđur árangur. Ţađ ţarf ţví ekki ađ koma á óvart ađ hann hlaut ađ auki verđlaun fyrir ađ vera međ besta samanlagđa árangur í mótum syrpunnar í vetur og fćr ţví nafn sitt ritađ á hinn eftirsótta farandbikar. Allar líkur eru á ađ Gunnar sé nú útskrifađur úr Bikarsyrpunni enda ekki langt í ađ kappinn rjúfi 1600-stiga múrinn.

Verđlaun fyrir samanlagđan árangur félaga í Taflfélagi Reykjavíkur hlutu Adam Omarsson, Benedikt Ţórisson og Árni Ólafsson.

Viđ óskum verđlaunahöfum til hamingju međ árangurinn og ţökkum öllum ţeim sem hafa veriđ međ okkur í Bikarsyrpunni í vetur. Viđ hefjum aftur leik í haust og hlökkum til ađ hitta ykkur!

Nánar á heimasíđu TR.


Caruana sigurvegari GRENKE-mótsins

437390.04bbb1f3.630x354o.b125e83e1810@2x

Fabiano Caruana (2784) er sjóđheitur ţessa dagana. Hann vann Vitiugov (2735) í lokaumferđ GRENKE-mótsins í Baden-Baden og vann öruggan sigur á mótinu. Áskorandinn hlaut 6˝ vinning eđa vinningi meira en heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2843) sem varđ annar eftir jafntefli viđ Anand (2776) í lokaumferđinni. Vitiugov varđ í 3.-4. sćti ásamt Aronian (2794).

Caruana er nú kominn í annađ sćti heimslistans međ 2817,5 skákstig. fór upp fyrir Mamedyarov (2814). Ásamt Carlsen (2837,5) er ţessir ţrír međ gott forskot á nćstu menn en fjórđi er Krmanik (2792) 22 stigum á eftir Aseranum. 

Nánar á Chess.com

Lokastađan

Clipboard01

 

 


Lenka međ annađ gott jafntefli í Slóvakíu

Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2198), byrjar afar vel á EM kvenna sem nú er í gangi í Vysoke Tatry í Slóvakíu. Í annari umferđ, sem fram fór í gćr, gerđi hún jafntefli viđ hina georgísku Meri Arabidze (2393). Lenka hefur nú gert jafntefli viđ tvćr skákkonur sem eru mun stigahćrri en hún. 

Ţriđja umferđ fer fram í dag og sem fyrr teflir Lenka viđ stigahćrri skákkonu. Andstćđingur dagsins er hin pólska Alicja Sliwicka (2329).

Ţriđja hefst kl. 13:15 og er hćgt ađ fylgjast međ Lenku í beinni. 

Alls taka 144 skákkonur ţátt frá 144 löndum. Ţar af eru 13 konur sem bera stórmeistaratitil og 35 sem eru stórmeistarar kvenna. 


Patrick vann Páskamót Vinaskákfélagsins

IMG_2009-620x330

Glćsilegt páskamót Vinaskákfélagsins var haldiđ mánudaginn 9 apríl 2018, kl: 13, í Vin ađ Hverfisgötu 47. Alls tóku 17 manns ţátt í mótinu. Tefldar voru 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Skákstjóri var Hörđur Jónasson. Mótiđ var reiknađ til hrađskákstiga.

Eftir smá hökt í byrjun, ţá rann mótiđ í gegn međ miklum sóma. Patrick Karcher (1998) kom sá og sigrađi međ fullu húsi eđa 6 vinningum. Í öđru sćti var Guđni Pétursson (2133) međ 5 vinninga og í 3 sćti varđ Jóhann Valdimarsson (1502) međ 4 vinninga ásamt fleirum, en fékk bronsiđ á stigum.

Gaman ađ geta ţess ađ ein kona tefldi í mótinu en ţađ var Margrét H. Halldórsdóttir og fékk hún 2 vinninga. Í lokin voru skákmenn og konur bođiđ upp á kaffi og vöfflur ađ hćtti Inga Hans starfsmann Vinjar.

Öll úrslit er hćgt ađ sjá á chess-results

Kveđja Hörđur Jónasson varaforseti.


Íslandsmót grunnskólasveita fer fram á sunnudaginn

Íslandsmót grunnskóla 8.–10. bekkur 2018 fer fram í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxafeni 12, sunnudaginn 15. apríl. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 10+5. Teflt verđur eftir svissneska kerfinu. Taflmennskan hefst kl. 13 og lýkur mótinu um kl. 17.  

Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.–10. bekk. Ef sérstaklega efnilegir skákmenn finnast í 1.–7. bekk er ţeim leyfilegt ađ tefla međ sínum skóla en ţá ađeins í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt ađ ţrír varamenn. 

Ţátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Ţó ekki hćrri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla. 

Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-c sveitir ásamt verđunum fyrir efstu sveitir af landsbyggđinni. 

Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borđi.  

Íslandsmeistarinn fćr  keppnisrétt til ţátttöku á Norđurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Finnlandi í september.  

Skráning fer fram á Skák.is. Skráningu skal lokiđ í í síđasta lagi á hádegi 13. apríl nk

Ath. Áríđandi er ađ sveitirnar séu skráđar fyrirfram. 

Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.


Bragi Ţorfinnsson formlega orđinn fjórtándi íslenski stórmeistarinn

Rd10_bragi

Bragi Ţorfinnsson er fjórtándi íslenski stórmeistarinn. Á heimasíđu FIDE má finna lista yfir nýja titilhafa, sem samţykktir voru á fundi FIDE í Minsk í Hvíta-Rússlandi 7.-8. apríl og á ţeim lista má finna nafn Braga Ţorfinnssonar. 

Innilega til hamingju Bragi!


GRENKE: Caruana međ hálfs vinnings forskot á Carlsen fyrir lokaumferđina

phpKNiAGP

Öllum skákum áttundu og nćstsíđustu umferđar lauk međ jafntefli í gćr. Carlsen (2843) tókst ekki ađ vinna Vitiugov (2735) og jafntefli samiđ eftir 63 leiki. Caruana (2784) gerđi jafntefli viđ Aronian (2794). 

Lokaumferđin hefst kl. 13 í dag. Ţá teflir Carlsen viđ Anand (2776) sem hefur ekki átt gott mót og Caruana mćtir Vitiugov. Verđi tveir keppendur efstur og jafnir verđur teflt til ţrautar međ styttri umhugsunartíma. Carlsen verđur ađ vinna sína skák og treysta á ađ Caruana vinni ekki. 

Nánar á Chess.com

Stađan:

Clipboard03

 

 


Páskamót Vinaskákfélagsins fer fram í dag

Páskamót Vinaskákfélagsins verđur haldiđ mánudaginn 9 apríl kl: 13, í Vin ađ Hverfisgötu 47. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Skákstjóri verđur Hörđur Jónasson. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. 

Í hléi verđur bođiđ upp á kaffi og vöfflur. Góđ verđlaun verđa í bođi. Ţiđ getiđ skráđ ykkur á mótiđ á gula kassanum efst á síđunni á skak.is. Einnig getiđ ţiđ skráđ ykkur á stađnum.

Allir velkomnir!!

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.

 


EM kvenna: Lenka međ gott jafntefli í fyrstu umferđ

EM kvenna hófst í dag í Vysoke Tatry í Slóvakíu. Lenka Ptácníková (2198) er međal keppenda. Lenka byrjađi vel á mótinu og gerđi jafntefli viđ armensku skákkonuna Lilit Mkrtchian (2403) sem er alţjóđlegur meistari. Lenka teflir á morgun viđ ađra sterka skákkonuna eđa hina georgísku Meir Arabidze (2393). 

Önnur umferđ hefst kl. 13:15 og er hćgt ađ fylgjast međ Lenku í beinni. 


Caruana efstur á GRENKE-mótinu: Carlsen vann Naiditsch

437134.b12ca949.630x354o.4a6f5d51a204

Fabiano Caruana (2784) er efstur međ 5 vinninga eftir 7 umferđir á GRENKE-mótinu í Baden Baden. Í gćr vann hann MVL (2789). Magnus Carlsen (2843), sem vann Arkadij Naiditsch (2701), er í 2.-3. sćti ásamt Nikita Vitiugov (2735). Heimsmeistarinn tefldi Najdorf-afbrigđi Sikileyjarvarnar í gćr - eitthvađ sem hann hefur ekki veriđ ţekktur fyrir undanfariđ. 

Áttunda og nćstsíđasta umferđ fer fram í dag og hefst kl. 13. Ţá teflir Carlsen viđ Vitiugov og Caruana viđ Aronian. Vitigov mćtir Caruana í lokaumferđinni en Carlsen teflir ţá viđ Anand.

Nánar á Chess.com

Stađan:

Clipboard02

 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 8778234

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband