Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2018

Lokamót Bikarsyrpu TR hófst í gćr

20180406_174454-1024x576

36 keppendur eru skráđir til leiks í fimmta og síđasta mót vetrarins í Bikarsyrpu TR sem er nćstamesta ţátttaka frá upphafi. Fyrsta umferđ fór fram í gćr og báru krakkarnir sig afar fagmannlega ađ viđ skákborđin enda mörg hver orđin reynd í bransanum. Venju samkvćmt samanstendur keppendalistinn af mjög reynslumiklum krökkum í bland viđ ađra sem eru ađ stíga sín fyrstu skref í kappskákmóti.

Ţrátt fyrir ađ úrslit fyrstu umferđar hafi veriđ nokkuđ eftir hinni títtnefndu bók, ţá urđu til margar baráttuskákir á borđunum köflóttu og ljóst er ađ ţađ verđur ekkert gefiđ eftir í komandi orrustum helgarinnar. Önnur umferđ hefst í daglaugardag kl. 10 og eru áhorfendur hvattir til ađ mćta og fylgjast međ ţessum glćsilega hópi ađ störfum viđ taflborđin. Alltaf heitt á könnunni!

Á Chess-Results má finna öll úrslit í mótinu.

Nánar á heimasíđu TR.

 


Öđlingamótiđ: Lenka međ fullt hús

IMG_9894-683x1024

 

Ţegar ţremur umferđum er lokiđ í Skákmóti öđlinga er stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova (2200), ein efst međ fullt hús vinninga. Ţriđja umferđ fór fram í gćrkveldi ţar sem Lenka lagđi Hrafn Loftsson (2169) í baráttuskák. Fimm keppendur koma nćstir međ 2,5 vinning, ţ.á.m. Fide-meistarinn Sigurbjörn Björnsson (2278) og Ţorvarđur F. Ólafsson (2176) en ţeir gerđu átakalítiđ jafntefli sín í milli í orrustu gćrkveldsins. Á ţriđja borđi gerđu Sverrir Örn Björnsson (2135) og Kristján Örn Elíasson (1829) sömuleiđis jafntefli en á nćsta borđi lagđi Ögmundur Kristinsson (2010) Halldór Garđarsson (1793) ţar sem Halldór féll á tíma í stöđu ţar sem hann hafđi kóng og hrók gegn kóngi, hróki og biskupi Ögmundar.

Búast má viđ ađ línur fari ađ skýrast í nćstu umferđum en fjórđa umferđ fer fram nćstkomandi miđvikudagskvöld ţar sem mćtast á efstu borđum Sigurbjörn og Ögmundur, Kristinn J. Sigurţórsson (1744) og Ţorvarđur, sem og Kristján Guđmundsson (2289) og Haraldur Baldursson (1949). Ađ venju má sjá öll úrslit, ásamt innslegnum skákum, á Chess-Results.

Nánar á heimasíđu TR.

 


Heimsmeistarinn slapp međ skekkinn

436876.6d4db49e.630x354o.eb98124b10f5@2x

Öllum skákum fimmtu umferđar GRENKE-mótsins í gćr lauk međ jafntefli. Stađan á toppnum er ţví óbreytt. MVL (2789), Caruana (2784) og Vitiugov (27359 eru ţví sem fyrr efstir. Magnus Carlsen (2843) og Aronian (2794) fylgja ţar humátt á eftir međ hálfum vinningi minna.  

Sú skák sem vakti mesta athygli var skák Georg Meier (26489 og heimsmeistarans. Sá ţýski missti af fallegri vinningsleiđ í 39. leik og heimsmeistarinn slapp ţví međ skrekkinn.

Nánar á Chess.com

Stađan:

Clipboard01

 

Sjötta umferđ fer fram í dag og hefst kl. 13. Ţá teflir Norđmađurinn viđ Aronian. Forystusauđirnir Vitiugov og MVL mćtast. 

 

 


Lokamót Bikarsyrpu TR hefst í dag

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ fjórđa áriđ í röđ. Líkt og síđastliđinn vetur verđa mót syrpunnar fimm talsins og verđa tefldar sjö umferđir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR ađ Faxafeni 12.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2002 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.

Fimmta og síđasta mót Bikarsyrpunnar ţennan veturinn hefst föstudaginn 6. apríl og stendur til sunnudagsins 8. apríl. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

Dagskrá:

1. umferđ: 6. apríl kl. 17.30 (fös)
2. umferđ: 7. apríl  kl. 10.00 (lau)
3. umferđ: 7. apríl  kl. 13.00 (lau)
4. umferđ: 7. apríl  kl. 16.00 (lau)
5. umferđ: 8. apríl  kl. 10.00 (sun)
6. umferđ: 8. apríl  kl. 13.00 (sun)
7. umferđ: 8. apríl  kl. 16.00 (sun)

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni 7. umferđ.

Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan. Merkja skal viđ yfirsetu í 1. umferđ á neđangreindu skráningarformi.

Sjálfkrafa tap dćmist á keppanda sem mćtir á skákstađ meira en 15 mínútum eftir ađ viđkomandi umferđ hefst.

Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.

Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar og ţá hlýtur einnig efsta stúlkan í hverju móti bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sćti og 3. sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir besta samanlagđan árangur, ţar sem mest fjögur mót gilda; taflsett, skákklukka, 5.000kr bókainneign ásamt veglegum farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir besta samanlagđan árangur, ţar sem mest fjögur mót gilda, fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sćti gefur 5 einkatíma, 2. sćti gefur 3 einkatíma og 3. sćti gefur 2 einkatíma.

Skráning fer fram í gegnum skráningarform hér ađ neđan. Hlökkum til ađ sjá ykkur!

Skráningarform

Skráđir keppendur

Skákstjórn: Ţórir Benediktsson, s. 867 3109, thorirbe76@gmail.com


Caruana í hóp efstu manna á GRENKE

436608.bbb2ea45.630x354o.5de8e2e14418@2x

Áskorandinn, Fabiano Caruana (2784), virđist vera í góđu formi ţessa dagana. Í gćr vann hann Íslandsvininn Arkadij Naiditsch (2701) á GRENKE-mótinu sem nú er teflt Baden Baden. Ítalinn fyrrverandi er nú efstur ásamt ţeim MVL (2789) og Nikita Vitiugov (2735) en ţeir hafa allir hlotiđ 3 vinninga í 4 skákum. Heimsmeistarinn, Magnus Carlsen (2843), er í 4.-5. sćti međ 2˝ vinning ásamt Levon Aronian (2794). Carlsen gerđi í gćr jafntefli viđ MVL.

php6qJOmn

Fimmta umferđ fer fram í dag og hefst kl. 13. Ţá mćtir Caruana Vishy Anand (2776), Carlsen teflir viđ Georg Meier (2648). Skák MVL og Aronian (2794) getur orđiđ afar áhugaverđ. 

Nánar á Chess.com

 

 


Páskamót Vinaskákfélagsins fer fram á mánudaginn

Páskamót Vinaskákfélagsins verđur haldiđ mánudaginn 9 apríl kl: 13, í Vin ađ Hverfisgötu 47. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Skákstjóri verđur Hörđur Jónasson. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. 

Í hléi verđur bođiđ upp á kaffi og vöfflur. Góđ verđlaun verđa í bođi. Ţiđ getiđ skráđ ykkur á mótiđ á gula kassanum efst á síđunni á skak.is. Einnig getiđ ţiđ skráđ ykkur á stađnum.

Allir velkomnir!!

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.

 


Hilmir Freyr: Pistill frá Xtracon í Helsingřr, Danmörku

Ég tók ţá ákvörđun, međ frekar stuttum fyrirvara ađ taka ţátt í Xtracon skákmótinu í Helsingřr í Danmörku, eftir ađ mér bauđst gisting međ krökkunum sem tefla flest í danska ungmenna landsliđinu. Mótiđ var haldiđ var dagana 22. júlí til 30. júlí sl. Ég hef einu sinni áđur teflt á ţessu móti en ţađ var áriđ 2013.

Hilmir1Teflt er í Konventum sem er bygging međ mörgum rýmum og er borđunum rađađ í ţau og teflt er frá jarđhćđ uppá 3.hćđ í húsinu. Ég veit ađ ţađ truflar suma en ekki mig. Međfram sjálfu mótinu er bođiđ uppá ađra viđburđi og ég tók t.d ţátt í Parlyn móti ţar sem ég var í liđi međ FM Mikkel Manosri Jacobsen vini mínum. Viđ fengum 8 ˝ vinning.

Sjálft mótiđ var skemmtilegt, ég endađi međ 6,5 vinning af 10 mögulegum.

Mig langar ađ sýna eftirfarandi skák:  Ég var hvítur á móti Andreas Fossan (1998) frá Noregi og viđ fórum í Uppskipta-Frakkann, Exchange-French.  

Hilmir21.d4 e6 2.e4 d5 3.exd5 exd5 4.c4 Nf6 5.Nc3 Be7 6.Bg5 c6 7.Bxf6 Bxf6 8.cxd5 O-O 9.Bc4 Re8+ 10.Nge2 b5 11.Bd3 b4 12.Ne4 Bxd4 13.Nxd4 cxd5 14.Ne2! Hér ef ađ svartur drepur nú riddarann á e4 ţá kemur Bxe4 og svartur getur ekki drepiđ tilbaka útaf máti á áttundu reita röđinni, ţannig (15.Bxe4 Dxd1+ 16.Hxd1 og hótunin er ennţá sú sama en svartur getur reynt (16.Ba6 17.Bxa8 myndi koma 17.Hxe2+ 18.Kf1 og 18.Rd2+ og ţar myndi skákinn enda međ ţráleik. En hvítur er međ frábćran leik í stađ 17.Bxa8 og ţađ er (17.Hd2!) valdar bara riddarann á e2 og svartur getur ekki drepiđ biskupinn á e4 útaf máti á áttundureitaröđinni og nú hótar hvítur bara ađ taka hrókinn á a8. Ţess vegna hélt skákinn áfram svona ţar sem ég var bara manni yfir og vann tiltölulega auđveldlega. 14.Nc6 15.N4g3 Qh4 16.Bb5 Bb7 17.Bxc6 Bxc6 18.O-O d4 19.Qxd4 Qg5 20.Qf4 Qd5 21.f3 Qc5+ 22.Kh1 Bb5 23.Rfe1 Qf2 24.Ne4 Qb6 25.N2g3 Rad8 26.Nf5 Qg6 27.Rac1 Bd3 28.b3 h6 29.Nxh6+ gxh6 30.Nf6+ Kf8 31.Qxb4+ 1-0.

Hilmir Freyr Heimisson.

 

-------------------

Fyrir áhugasama má vekja athygli á ađ Xtracon Chess Open fer fram 21.-29. júlí í ár. Međal skráđra keppenda eru Jóhann Hjartarson og Baadur Jobava. 


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Ţrettán ára strákur vann opna flokkinn á GRENKE-mótinu

phpmnavzX

Ţrettán ára ţýskur strákur, Vincent Keymer (2403) stal senunni á GRENKE Chess Open sem lauk í gćr. Sá ţýski sem tefldi í a-flokki vann ţar sigur ţrátt fyrir ađ vera ađeins nr. 99 í stigaröđ keppanda. Keymer varđ međ ţessum árangri fyrir ofan 49 stórmeistara og ţar af fjóra međ meira en 2700 skákstig. Í lokaumferđinni lagđi hann sjálfan Richard Rapport (2715) ađ velli. Ein óvćntustu mótaúrslit skáksögunnar. Ţjálfari hans er Peter Leko.

 

 

 

Vignir Vatnar Stefánsson (2300) var einnig međal keppenda. Hann hlaut 5,5 vinninga. Eftir slaka byrjun hrökk Vignir í gang í lokaumferđunum og hlaut 3,5 vinninga í 4 síđustu umferđunum. Vignir gerđi jafntefli viđ ţýska stórmeistarann Roland Schmaltz (2470) í lokaumferđinni.

Lokastöđuna í a-flokkinum má finna hér

Stefán Már Pétursson (1698), fađir Vignis, tefldi í b-flokki og hlaut 5 vinninga. Félagi hans, Guđmundur G. Guđmundsson (1591), hlaut 3,5 vinninga. 

Í sjálfu ađalmótinu, sem ber nafniđ GRENKE Chess Classic, unnu Caruana og MVL sínar skákir í 3. umferđ. Caruana vann Georg Meier en Frakkinn lagđi Hou Yifan ađ velli. Öđrum skákum lauk međ jafntefli. MVL og Vitiugov eru efstir. Carlsen er í 3.-5. sćti. 

Stađan

Clipboard01


Frídagur er í dag. Mótiđ heldur áfram á morgun. Ţá fćrist má frá Karlsruhe til Baden-Baden. 

Nánar á Chess.com

 

 


Ekkert verđur úr sameiningu Hugins og TR

20180331_135802

Ekkert verđur úr sameiningu Skákfélagsins Hugins og Taflfélags Reykjavíkur sem lesa mátti um í frétt á Skák.is 1. apríl sl. 

Ekki reyndi á vilja félagsmanna fyrir sameiningu félaganna enda var fréttin uppspuni frá rótum. Jón Ţorvaldsson átti hugmyndina og ritađi textann ađ mestu leyti. Formennirnir, Kjartan Maack og Pálmi Pétursson tóku ţátt í sprellinu međ Jóni og létu međal annars taka af sér mynd saman. 

Upprunalega fréttin


Birkir Karl efstur á hrađkvöldi Hugins

Birkir Karl Sigurđsson sigrađi á hrađkvöldi Hugins sem fram fór 26. mars sl. Birkir Karl fékk 11 vinninga af 12 mögulegum. Tefld var tvöföld umferđ og varđ ţađ ađeins Pétur Pálmi Harđarson sem náđi ađ vinna Birkir Karl í annarri skák ţeirra. Annar var Pétur Pálmi  međ 10 vinninga og hann tapađi einnig annarri skák í viđbót. Ţriđji var svo Vigfús Ó. Vigfússon međ 7,5 vinninga. 

Forritin hjá Chess-results vöru í einhverju óstuđi á ţessu hrađkvöldi svo ekki var hćgt ađ nota ţađ međ góđu móti međ á hrađkvöldinu stóđ. Ţađ stoppađi ekki hrađkvöldiđ og var gripiđ til gömlu góđu mótstöflunnar. Fyrst málum var ţannig komiđ fyrir ţá var hrađkvöldiđ líka klárađ handvirkt međ ţví Birkir  dró í happdrćttinu. Hann valdi töluna 2 sem ekki er algengt ađ komi upp í ţessum drćtti svo ţađ var Pétur Pálmi sem var sá heppni ađ ţessu sinni. Smá hlé verđur nú á ţessum skákkvöldum ţannig ađ ţađ nćsta verđur ekki fyrr en síđasta mánudag í apríl.

Lokastađan á atkvöldinu: 

  1. Birkir Karl Sigurđsson 11v/12
  2. Pétur Pálmi Harđarson 10v
  3. Vigfús Ó. Vigfússon, 7,5v
  4. Hjálmar Sigurvaldason, 5v
  5. Björgvin Kristbergsson, 4v
  6. Hörđur Garđarsson, 3,5v
  7. Pétur Jóhannesson, 1v

Lokastađan í chess-results:


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 116
  • Frá upphafi: 8778240

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband