Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2012

Sigur á B sveit Svía

Álfhólsskóli í SvíţjóđÁlfhólsskóli vann B sveit Svía í morgun 2.5 - 1.5 og hefur ţví unniđ allar viđureignir sínar í mótinu. Liđid er í 2. sćti á eftir A sveit Svía sem reyndar virđist vera ađ stinga af á mótinu.

Í ţetta sinn var röđin komin ađ Róbert ađ gera slćm og óţörf mistök en í gćr tóku Dawid og Felix sinn hvorn óţarfa skellinn. (Í ţessu sambandi verđur reyndar ađ segjast ađ ţađ hjálpar ekkert ađ ţurfa ađ hefja leik kl 7 ađ morgni ađ íslenkum tíma). Felix og Agnar unnu sannfćrandi en Dawid gerdi jafntefli.

Síđar í dag mćtir sveitin hinum knáu köppum Noregs en okkar drengir hyggjast ţar sýna frćndum okkar í verki ađ ekki sé skynsamlegt ađ vera međ ágreining viđ Íslendinga hvort ţađ sem er í skák eđa í makríl deilunni :-)

Upplýsingar um framgang mótsins og PGN skrár er ađ finna á  http://www.rockaden.com/skollag-nm-2012-mellanstadiet/

Víkingar lögđu Helli

Undanúrslitin í hrađskákkeppni taflfélaga fóru fram í fyrrakvöld í Betrunarhúsinu í Garđabć sem er félagsheimili TG. Ţar mćttust annars vegar TG og Gođinn og hins vegar Hellir og Víkingaklúbburinn. Gođinn vann TG eins og fjallađ hefur veriđ um á skáksíđunni. Í hinni viđureigninni bitu Víkingar í skjaldarrendur strax í upphafi viđureignar en létu hins vegar ógert ađ öskra ógurlega, kannski af tillitsemi viđ hina viđureignina sem hófst nokkru fyrr.

Hvađ um ţađ ţeir sölluđu samt inn vinningum frá upphafi og leiddu í hálfleik međ 25,5 v. gegn 10,5 v. Seinni hálfleikur fór eins fram nema ađ Hellismenn náđu loks ađ vinna lokaumferđina og laga stöđuna ađeins en viđureignina sjálfa vann Víkingaklúbburinn međ 51 v. gegn 21 v. Hellismanna. 

Í hrađskákkeppni eins og ţessari er ţađ ţannig ađ ţađ getur oft gengiđ á ýmsu ţannig ađ sumir fá fleiri vinninga en stöđurnar gefa tilefni til en ađrir fćrri en í ţađ heila jafnast ţetta yfirleitt út. Björn, Ólafur, Magnús og Stefán voru bestir Víkinga. Hjá Hellismönnum voru Andri og Sigurbjörn bestir.

Fyrir Víkingaklúbbinn tefldu:

  • Björn Ţorfinnsson 11v af 12
  • Ólafur B. Ţórsson 9v/11
  • Magnús Örn Úlfarsson 8v/12
  • Stefán Kristjánsson 7v/8
  • Stefán Sigurjónsson 4,5v/8
  • Gunnar Freyr Rúnarsson 4v/6
  • Ţorvarđur Ólafsson 3,5v/8
  • Haraldur Baldursson 2v/3
  • Lárus Knútsson 1v/2
  • Jónas Jónasson 1v/2

Fyrir Helli tefldu:

  • Sigurbjörn Björnsson 5,5v/12
  • Andri Grétarsson 6/12
  • Bragi Halldórsson 3v/12
  • Rúnar Berg 2,5v/8
  • Baldur A. Kristinsson 2v/11
  • Helgi Brynjarsson 1,5v/5
  • Hilmir Freyr Heimisson 0v/5
  • Ögmundur Kristinsson 0v/7

Rimaskóli heldur áfram sigurgöngunni - finnsku meistararnir lagđir í 3. umferđ

Norđurlandamói grunnskólasveita var haldiđ áfram í borginni Tampere í Finnlandi međ 3. umferđ á laugardagsmorgni.  Skáksveit Rimaskóla mćtti sveit Finnlandsmeistaranna frá Espoo. Nansý Davíđsdóttir kom inn í sveitina en 1. borđs mađurinn Dagur Ragnarsson hvíldi. Ţađ var ţví Oliver Aron sem tefldi á 1. borđi og ólíkt honum var taflmennskan ómarkviss og hann lenti í öngstrćri međ kónginn sinn. Nokkuđ óvćnt tap stađreynd. Á hinum borđunum vannst örugur sigur og úrslitn ţví 3 - 1 fyrir Rimaskóla. Norđmenn og Svíar áttust viđ, liđin sem eru í 2. og 3. sćti. Viđureigninni er ólokiđ en ekki ólíklegt ađ hún endi jafnt. Skáksveit Rimaskóla er ţví áfram međ góđa forustu á NM grunnskóla og mćtir sveit Noregs í 4. umferđi en Norđmenn eru í 2. sćti. Ţađ verđur ábyggilega ekkert gefiđ eftir í ţeirri viđureign. 


NM grunnskólasveita: Finnar sáu aldrei til sólar gegn sveit Rimaskóla

Ţađ tók sigurreifa Rimaskólakrakka frá 1. umferđ ađeins tćpa klukkustund ađ leggja í 2. umferđ Finnland II 4 - 0. Finnsku krakkarnir sáu aldrei til sólar í sínum skákum. Enda rignir hjá okkur í Tampere bćđi dropum og vinningum. Skáksveit Rimaskóla ţau, Dagur, Oliver Aron, Jón Trausti og Hrund, hefur ţví byrjađ glćsilega á NM 2012 og hefur fullt hús vinninga eđa átta talsins.

Skákirnar gegn Finnunum voru aldrei flóknar eđa í hćttu svo mikill virtist getumunurinn á liđunum tveimur. Ţegar ţetta er ritađ eru önnur úrslit úr 2. umferđ ekki ljós en líklegt ađ Noregur verđi í 2. sćti ađ umferđinni lokinni. Rimaskólasveitin teflir viđ Finnland I í ţriđju umferđ og alveg ljóst ađ Nansý kemur inn í sveitina í ţeirri umferđ. Ađstćđur á skákstađ eru ţröngar og bjóđa upp á takmarkađa ađstöđu en vel fer um Íslendingana á Hótel Cumulus í miđri Tampere borg sem er 200.000 manna bćr um 200 km frá Helsinki.

Heimasíđa mótsins

 


NM barnaskólasveita: Sigur gegn Dönum

Álfhólsskóli í SvíţjóđÁlfhólsskóli vann Dani 2.5 - 1.5 á Norđurlandamóti barnaskólasveita í gćr. Strákarnir eru ţví komnir međ 5 vinninga og eru í 2. sćti eftir fyrsta keppnisdag. 

Agnar og Róbert unnu sína andstćđinga en Felix tapađi eftir slćm mistök í Slavneskri vörn. Dawid gerđi svo jafntefli eftir ćsispennandi hróksendatafl ţar sem Dawid var 1 peđi undir en náđi ađ jafna leikinn eftir slćm mistök Danans. Virkilega flott hja Dawid enda andstćđingurinn umtalsvert stigahćrri (1940).

Í nćstu umferđ tefla strákarnir svo viđ B sveit Svía ţar sem ekkert annađ en sigur kemur til greina. 

A sveit Svía er efst eftir 2 umferđir međ fullt hús. 

Hćgt er ađ fylgjast međ stöđu mála á http://www.rockaden.com/resultat/Skollag_NM_2012_mellanstadiet/skol_nm_mellanstadiet_2012.xls


Sigurbjörn í TV

Sigurbjörn Björnsson

Fidemeistarinn Sigurbjörn Björnsson er genginn til liđs viđ Taflfélag Vestmannaeyja. Hann hefur undanfarin 10 ár teflt fyrir Helli og ţar á undan fyrir SH.  Sigurbjörn státar af allmörgum sigrum á skákferli sínum og má ţar m.a. nefna ađ hann varđ Skákmeistari Reykjavíkur áriđ 2007 auk ţess sem hefur ţrívegis deilt efsta sćtinu á sama móti. Sigurbjörn hefur tvívegis unniđ Haustmót TR og ţrívegis hefur hann hampađ sigri á Meistararmóti Hellis.  Auk ţess varđ hann nokkrum sinnum Skákmeistari Hafnarfjarđar.  Sigurbjörn náđi sínum fyrsta alţjóđlega áfanga fyrir ári síđan á EM Taflfélaga í Slóveníu og fór svo yfir 2400 elóstig í seinni hluta Íslandsmóts Skákfélaga í mars síđastliđnum. Sigurbjörn mun án efa styrkja ţétt liđ Vestmannaeyinga í komandi deildarkeppni.


Skákćfingar TR hefjast í dag

Áratuga löng hefđ er fyrir Laugardagsćfingum Taflfélags Reykjavíkur. Ţćr hefjast aftur eftir sumarfrí laugardaginn 8. september. Ađ venju fara ćfingarnar fram í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12.

Á ćfingunum eru ćfingaskákmót, skákkennsla, skákţrautir ásamt ýmsum öđrum uppákomum. Ţá er bođiđ upp á léttar veitingar um miđbik ćfinganna, en sá partur er orđinn órjúfanlegur hluti af ćfingunum hjá börnunum. Haldiđ er utan um mćtingu og árangur barnanna og hverri ćfingu er gerđ góđ skil í ítarlegum pistlum.

Á laugardögum kl. 11.30 - 13.30 verđur bođiđ upp á sérstakar skákćfingar fyrir stelpur á öllum aldri. Ţessar skákćfingar eru ađallega hugsađar fyrir byrjendur. Allar stelpur, 5 ára og eldri, eru velkomnar. Allar mömmur, ömmur, frćnkur og vinkonur eru sérstaklega velkomnar ađ taka ţátt í skákćfingunum! Skákţjálfari verđur Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir, formađur T.R. Viđ byrjum núna á laugardaginn 8. september!

Á laugardögum kl. 14 -16 verđa skákćfingar fyrir börn og unglinga (stelpur og stráka) fćdd 1997 og síđar. A-flokkurinn verđur eingöngu opinn fyrir ţau sem eru félagsmenn í T.R. og er fyrir alla unglinga fćdd 1997-1999, svo og yngri börn sem eru lengra komin í skáklistinni. B-flokkurinn er opinn fyrir öll börn sem eru fćdd 2000 og síđar.

Flokkarnir munu ţó stundum vera saman í einum hópi. Fyrirkomulagiđ munu skákţjálfarar kynna betur á ćfingunum. Skákţjálfarar á Laugardagsćfingunum verđa eins og í fyrra Torfi Leósson og Dađi Ómarsson, skákmenn í T.R.

Ţátttaka á skákćfingunum er ókeypis.

Veriđ velkomin!

Fyrirspurnir sendist á taflfelag@taflfelag.is


Stórsigrar gegn Lúxemborg og Egyptalandi

Ţađ unnust tveir stórsigrar í 10. og nćstsíđustu umferđ ólympíuskákmótsins sem fram fór í dag.  Liđiđ í opnum flokki vann 4-0 sigur á Lúxemborg.  Hannes Hlífar Stefánsson, Henrik Danielsen, Hjörvar Steinn Grétarsson og Ţröstur Ţórhallsson unnu.  Kvennaliđiđ vann sveit Úrugvć 3-1.  Lenka Ptácníkóva og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir unnu en Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir gerđu jafntefli.

Liđiđ í opnum flokki er opnum flokki er í 55. sćti međ 11 stig.  Kínverjar, Armenar og Rússar eru efstir međ 17 stig.  

Kvennaliđiđ er í 63. sćti međ 10 stig.  Kínverjar og Rússar eru efstir međ 17 stig.

Nánar verđur fjallađ um stöđu mála á morgun.

156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig.  Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.


Beinar útsendingar: Lúxemborg og Egyptaland

Dagur, Ţröstur og HjörvarStrákarnir tefla í dag viđ sveit Lúxemborgar.  Stelpurnar tefla viđ sveit frá Egyptalandi.  Í báđum tilfellum erum viđ međ sterkari sveit á pappírnum, sérstaklega í opnum flokki.  Varamennirnir Dagur Arngrímsson og Elsa María Kristínardóttir hvíla í dag.

Viđ höfum sex sinnum mćtti Lúxemborg og hafa ţessar viđureignir unnist fimm sinnum og einu sinni hefur orđiđ jafntefli.  Síđast tefldum viđ ţá viđ 1980 og vannst sú viđureign 3,5-0,5.

Stelpurnar hafa einni sinni áđur mćtt Egyptalandi.  Ţađ var áriđ 1982.  Ţá vannst sigur međ fullu húsi, 3-0.

Kínverjar, Rússar, Armenar og Bandaríkjamenn eru efstir 15 stig af 18 mögulegum. Kínverjar eru Kínverjar í upphafi viđureignar gegn Filippseyingumhćstir á stigum og standa ţví best ađ vígi eins og er. Búast má viđ gífurlega spennandi baráttu í lokaumferđunum. Tíunda og nćstsíđasta umferđ fer fram í dag og hefst kl. 12. Ţá mćtast Kínverjar og Bandaríkjamenn. Rússar mćta Argentínumönnum, sem hafa komiđ mjög á óvart, og Armenar mćta Hollendingum, sem hafa veriđ á miklu flugi eftir mjög lélega byrjun.

Íslenska liđiđ í opnum flokki mćtir sveit Lúxemborgar en kvennaliđiđ mćtir sveit Egyptalands. Frídagur er á morgun. Lokaumferđin fer fram á sunnudag og hefst klukkan átta.

Kínverjar eru í vćnlegri stöđu í kvennaflokki eftir öruggan sigur á Frökkum í gćr. Rússar eru í öđru sćti, einu stigi á eftir Kínverjum.

Íslenska liđiđ hefur níu stig og er í 69. sćti, í fjórđa sćti Norđurlandaţjóđanna. Danir eru efstir međ 13 stig og í 13. sćti en ţeir hafa reyndar veriđ mjög heppnir međ andstćđinga og ađeins mćtt veikari andstćđingum. Ţađ breytist í dag ţegar ţeir mćta Ungverjum, sem hafa á ađ skipa fjórđa sterkasta liđinu miđađ viđ skákstig.

Liđiđ í kvennaflokki hefur átta stig og er í 76. sćti og er einnig í fjórđa sćti Norđurlandaţjóđa.

Beinar útsendingar: 156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig.  Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.

Fljúgandi start Rimaskóla í Tampere

Rimaskóli í TampereLiđsmenn Rimaskóla, ţau Dagur, Oliver Aron, Jón Trausti og Hrund byrjuđu međ trukki á Norđurlandamóti grunnskóla sem hófst í borginni Tampere í Finnlandi í morgun. Líkt og svo oft drógst Rimaskóli á móti sćnska meistaraskólanum í 1. umferđ en ađ ţessu sinni virđast ţessir tveir skólar sterkastir á pappírnum.

Eftir ţriggja tíma yfirlegu og óljósar stöđur tóku vopnin ađ Rimaskóli í Tamperesnúast Rimaskólakrökkum í hag og á stuttum tíma höfđu ţau unniđ sigur yfir Svíunum á öllum borđum. Jón Trausti var fyrstur til ađ ná vinningsstöđu en á sama tíma virtust Oliver Aron og Hrund í óţarfa tímahraki. Dagur var međ óhagstćđan skiptamun gegn stigahćsta manni mótsins Egor Norlin (2143) lengst af en vann sigur í lokin og hefndi ţar harma sinna frá ţví á Norrćna skólaskákmótinu í Finnlandi í vetur. Fljúgandi start, Rimaskólasveitin hefur tekiđ forystu og nú er bara ađ fylgja sigrinum vel eftir. (HÁ)

Heimasíđa mótsins

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband