Bloggfćrslur mánađarins, júní 2012
17.6.2012 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Ađ tefla eins og Tal
Stigahćsti skákmađur heims, Norđmađurinn Magnús Carlsen er međal ţátttakenda á Tal-mótinu sem hófst í Moskvu á fimmtudaginn. Eins og áđur á ţessum minningarmótum sem byrjuđu áriđ 2006 gefst gott tćkifćri til ađ rifja upp skákir og feril snillingsins frá Riga sem lést fyrir 20 árum 55 ára ađ aldri.
Tal varđ heimsmeistari ađeins 23 ára gamall en hélt titlinum í ekki nema eitt ár. Sigurganga hans og tilţrif voru slík ađ enginn komst undan áhrifum hans. Eftir áskorendamótiđ í Júgóslaviu áriđ 1959 kvađst Tigran Petrosjan hafa gengiđ um strćti og torg og ekki getađ hugsađ um annađ en taflmennsku Tal. Hann gerđi ýmsar breytingar á varfćrnislegum stíl sínum og varđ heimsmeistari áriđ 1963.
Og greinarhöfundur hélt ţví blákalt fram viđ Bobby Fischer ađ Tal hlyti ađ hafa haft mest áhrif á hann. Robert James jánkađi ţví en argfjađrađist svolítiđ út af hinu baneitrađa augnaráđi töframannsins" ţegar ţeim laust saman í áskorendamótnu ´'59. Ţeir tefldu saman á fjórum mótum á árunum 1958-'61 og Tal varđ efstur í ţeim öllum.
Tal tók fram í bók, sem hann skrifađi um ćvi sína og feril, ađ hann hefđi alltaf lagt meira upp úr innsći en flóknum útreikningum. Ţađ skýrđi samt ekki nema ađ hluta ţann sérstaka ćvintýraljóma sem stafađi af taflmennsku hans. Eigum viđ ekki ađ bćta inn í ţessa stöđu dálitlum hooligan-isma" sagđi hann stundum og setti allt í bál og brand. Í grein í Huffington Post nýlega benti Lubomir Kavalek á Tal-áhrifin" í einni skák sem Bobby Fischer tefldi viđ Ludek Packman í Chile áriđ 1959. Sennilega hefur Fischer komist ađ ţeiri niđurstöđu eftir ţessa bráđskemmtilegu skák međ öllum sínum skrítnu myndum, ađ rólegri og rökréttari nálgun félli betur ađ skapgerđ hans:
Santiago 1959:
Ludek Pachman - Bobby Fischer
Nimzoindversk vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. d4 d5 4. e3 Rc6 5. Rc3 Bb4 6. Bd2 O-O 7. a3 Bxc3 8. Bxc3 Re4 9. Dc2 a5 10. b3 b6 11. Bb2 Ba6 12. Bd3 f5 13. Hc1 Hc8 14. O-O Hf6 15. Hfd1 Hh6 16. Bf1 g5!
Blćs til sóknar. Upp úr ţessar óvenjulegu byrjun sem minnir á grjótgarđs-afbrigđiđ" í hollenskri vörn hefur svartur náđ vćnlegum fćrum.
17. cxd5 g4!?
Tal-áhrifin. Hćpinn leikur ţví svartur átti 17. ...Bxf1 og hvort sem hvítur velur 18. dxe6, 18. Dxc6 eđa 18. dxc6 getur svartur ávallt leikiđ 18. ... Bxg2! og eftir 19. Kxg2 kemur 19. ... g4 međ sterkri sókn.
18. Bxa6 gxf3 19. gxf3!
Betra en 19. Bxc8 Dg5 20. g3 Hxh2! og svartur vinnur.
19. ... Dg5+ 20. Kf1 Hxh2 21. fxe4 Hf8!
Snilldarleikur sem Pachman hafđi sést yfir.
22. e5 f4! 23. e4 f3 24. Ke1
24. ...Dg1+?
Ađ skáka er eins og ađ spila út trompi," sagđi Ingi R. Jóhannsson einhverju sinni. Eftir ţennan leik er svarta stađan töpuđ. Af mörgum álitlegum kostum var 24. ... exd5! bestur. Silikonvinurinn" Houdini fullyrđir ađ ţá sé svarta stađan unnin ţví ađ eftir 26. exd5 kemur hinn eitursvali 26. ... Re7!
25. Kd2 Dxf2 26. Kc3 Dg3 27. Dd3 exd5 28. Hg1
Frá og međ ţessum eik er taflmennska Pachman nánast óađfinnanleg.
28. .. Hg2 29. Hxg2 Dxg2 30. Df1 dxe4 31. Dxg2 fxg2 32. Hg1 Hf2 33. Bc4 Kf8 34. Bd5 Hf3 35. Kc4 b5 36. Kc5 Re7 37. Hxg2 Rxd5 38. Kxd5 Hxb3 39. Kxe4 b4 40. axb4
og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
-------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 10. júní 2012.
Spil og leikir | Breytt 9.6.2012 kl. 21:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2012 | 18:53
Líf og fjör á útitaflinu 17. júní!
Skákakademían mun í sumar standa fyrir ýmsum viđburđum til ađ lífga upp á útitafliđ, enda verđa sumarnámskeiđ SR skammt frá. Ţau hefjast á morgun, mánudag. Allar upplýsingar um sumarnámskeiđin er ađ finna á forsíđunni hér á skák.is!
Myndaalbúm frá útitaflinu (HJ)
17.6.2012 | 18:10
Caruana efstur fyrir lokaumferđ Tal Memorial
Caruana (2770) eru efstur ađ lokinni áttundu og nćstsíđustu umferđ Tal Memorial sem fram fór í dag. Caruna vann Kramnik (2801). Carlsen (2835) og Radjabov (2784) eru í 2.-3. sćti. Caruna mćtir Aronian (2825) í lokaumferđinni.
Úrslit 8. umferđar:Fabiano Caruana | 1-0 | Vladimir Kramnik |
Alex. Morozevich | 0-1 | Luke McShane |
Magnus Carlsen | ˝-˝ | Ev. Tomashevsky |
Alexander Grischuk | 1-0 | Hikaru Nakamura |
Teimour Radjabov | ˝-˝ | Levon Aronian |
Stađan:
- 1. Caruana (2770) 5 v.
- 2.-3. Carlsen (2835) og Radjabov (2784) 4,5 v.
- 4.-7. Morozevich (2769), Kramnik (2801), Grischuk (2761) og McShane (2706) 4 v.
- 8.-9. Nakamura (2775) og Aronian (2825) 3,5 v.
- 10. Tomashevsky (2738) 3 v.
Mótiđ er ćgisterkt en međalstig eru 2776 skákstig. Taflmennskan hefst kl. 11 á daginn nema ađ lokaumferđin hefst kl. 9. Frídagar eru 11. og 15. júní.
17.6.2012 | 12:22
Útitafliđ vaknar til lífsins - Björn međ fjöltefli í dag
Skákakademían býđur upp á taflmennsku á útitaflinu sunnudaginn 17. júní milli klukkan 14 og 17. Björn Ţorfinnsson, margreyndur landsliđsmađur í skák, mćtir og teflir viđ gesti og gangandi. Ţátttaka kostar ekkert, og eru áhugasamir skákmenn á öllum aldri hvattir til ađ mćta.
Fjöltefliđ á ţjóđhátíđardaginn markar upphaf ađ líflegu starfi á útitaflinu í sumar. Skákakademían mun verđa međ fjöltefli og útiskákmót á föstudögum.
16.6.2012 | 18:37
Efstu mann töpuđu á Tal Memorial - fimm skákmenn efstir og jafnir
Kramnik (2801) og Morozevich (2769) sem voru efstir eftir sex umferđir á Tal Memorila töpuđu báđir í sjöundu umferđ sem fram fór í dag. Kramnik fyrir McShane (2706) og Moro fyrir Tomashevsky (2738). Öđrum skákum lauk međ jafntefli. Ţeir eru efstir ásamt Carlsen (2835), Radjabov (2784) og Caruana (2770).
Úrslit 7. umferđar:
Teimour Radjabov | ˝-˝ | Fabiano Caruana |
Levon Aronian | ˝-˝ | Alexander Grischuk |
Hikaru Nakamura | ˝-˝ | Magnus Carlsen |
Ev. Tomashevsky | 1-0 | Alex. Morozevich |
Luke McShane | 1-0 | Vladimir Kramnik |
Stađan:
- 1.-5. Carlsen (2835), Morozevich (2769), Radjabov (2784), Kramnik (2801) og Caruana (2770) 4 v.
- 6. Nakamura (2775) 3,5 v.
- 7.-9. Grischuk (2761), Aronian (2825) og McShane (2706) 3 v.
- 10. Tomashevsky (2738) 2,5 v.
Mótiđ er ćgisterkt en međalstig eru 2776 skákstig. Taflmennskan hefst kl. 11 á daginn nema ađ lokaumferđin hefst kl. 9. Frídagar eru 11. og 15. júní.
16.6.2012 | 16:19
Tómas Veigar og Jón Kristinn Gođafossmeistarar
Tómas Veigar Sigurđarson og Jón Kristinn Ţorgeirsson, báđir úr SA, urđu hlutskarpastir á útiskákmóti Gođans sem haliđ var viđ Gođafoss í Ţingeyjarsveit í gćrkvöld. Ţeir komu jafnir í mark međ 8 vinninga af 9 mögulegum. Tefld voru hrađskákir, einföld umferđ og allir viđ alla. Alls mćttu 10 skákmenn til leiks, en ţar af voru einungis ţrír frá Gođanum. Akureyringar fjölmenntu hinsvegar á mótiđ líkt og ţeir gerđu í Vaglaskógi í fyrra.
Frá skákstađ í gćrkvöld. Gođafoss í baksýn.
Lokastađan:
1-2. Tómas Veigar Sigurđarson 8 af 9
1-2. Jón Kristinn Ţorgeirsson 8
3. Sigurđur Arnarson 6
4. Sigurđur Ćgisson 5,5
5. Hjörleifur Halldórsson 4,5
6. Rúnar Ísleifsson 4
7. Andri Freyr Björgvinsson 3,5
8. Sigurđur Eiríksson 2,5
9. Sigurbjörn Ásmundsson 2
10. Hermann Ađalsteinsson 1
Kuldalegir skákmenn í gćrkvöld.
Ađstćđur voru sćmilegar í gćrkvöld. ţurrt í veđri og nánst logn, en hitsastigđ var ekki nema 7 gráđur í +.
16.6.2012 | 14:35
Útitafliđ vaknar til lífsins: Fjöltefli Björns á ţjóđhátíđardaginn!
Skákakademían býđur upp á taflmennsku á útitaflinu sunnudaginn 17. júní milli klukkan 14 og 17. Björn Ţorfinnsson, margreyndur landsliđsmađur í skák, mćtir og teflir viđ gesti og gangandi. Ţátttaka kostar ekkert, og eru áhugasamir skákmenn á öllum aldri hvattir til ađ mćta.
Fjöltefliđ á ţjóđhátíđardaginn markar upphaf ađ líflegu starfi á útitaflinu í sumar. Skákakademían mun verđa međ fjöltefli og útiskákmót á föstudögum.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2012 | 10:53
Sumarsólstöđumót í Vin
Miđvikudaginn 20. júní verđur sumarsólstöđumót í Vin, Hverfisgötu 47 og hefst ţađ klukkan 13:00.
Treyst er á ađ ţađ sé alltaf gott veđur á Sumarsólstöđum! Ekki verra ef hćgt vćri ađ skella nokkrum borđum út í garđ.
Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunarfresti og ţađ er um ađ gera ađ líta á ţetta sem hressandi undirbúning fyrir Strandir.
Bókavinningar fyrir efstu sćtin og happadrćtti. Glćstar kaffiveitingar í hléi og allir hjartanlega velkomnir í Vin.
14.6.2012 | 22:17
Skákmunirnir seldust ekki
Fram kemur á vef RÚV ađ skákmunirnir sem voru á uppbođi hjá Bruun Rasmussen í dag hafi ekki selst. Á vef rúv.is segir:
Skákmunir tengdir heimsmeistaraeinvígi ţeirra Fischers og Spasskys seldust ekki ţegar bjóđa átti ţá upp hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn í dag.
Viđstaddir voru mjög undrandi hve gripirnir voru slegnir langt undir matsverđi en síđar kom í ljós ađ mistök höfđu orđiđ. Slökkt hafđi veriđ á hljóđnema uppbođshaldarans og ţess vegna heyrđu fáir eđa engir í salnum ađ hann sagđi "seldust ekki" Á heimasíđu Bruun Rasmussen segir ađ munirnir hafi ekki selst en áhugasamir geti spurst fyrir hjá fyrirtćkinu.
Sjá nánar klippu úr 22-fréttum (hefst ca. 15:25): http://ruv.is/sarpurinn/tiufrettir/14062012/samantekt-ur-frettum-kl18
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2012 | 18:39
Kramnik efstur ásamt Morozevich - jafntefli í skák tveggja stigahćstu skákmanna heims
Kramnik (2801) er nú efstur ásamt Morozevich (2769) ađ lokinni sjöttu umferđ Tal Memorial sem fram fór í dag í Moskvu. Kramnik vann Tomashevsky (2738) en Moro tapađi fyrir Nakamura (2775). Jafntefli varđ í skák tveggja stigahćstu skákmanna heims Carlsen (2835) og Aronian (2825). Sá norski er í 3.-5. sćti međ 3,5 vinning. Frídagur er á morgun.
Úrslit 6. umferđar:Fabiano Caruana | 1-0 | Luke McShane |
Vladimir Kramnik | 1-0 | Ev. Tomashevsky |
Alex. Morozevich | 0-1 | Hikaru Nakamura |
Magnus Carlsen | ˝-˝ | Levon Aronian |
Alexander Grischuk | ˝-˝ | Teimour Radjabov |
Stađan:
- 1.-2. Morozevich (2769) og Kramnik (2801) 4 v.
- 3.-5. Carlsen (2835), Radjabov (2784) og Caruana (2770) 3,5 v.
- 6. Nakamura (2775) 3 v.
- 7.-8. Grischuk (2761) og Aronian (2825) 2,5 v.
- 9. McShane (2706) 2 v.
- 10. Tomashevsky (2738) 1,5 v.
Mótiđ er ćgisterkt en međalstig eru 2776 skákstig. Taflmennskan hefst kl. 11 á daginn nema ađ lokaumferđin hefst kl. 9. Frídagar eru 11. og 15. júní.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 27
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 199
- Frá upphafi: 8766390
Annađ
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 115
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar