Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2011

Hrađskákkeppni taflfélaga hefst í byrjun ágúst

Hrađskákkeppni taflfélaga, hefst eftir verslunarmannahelgi.  Ţetta er í sautjánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélagiđ Hellir er núverandi meistari.  Í fyrra var metţátttaka en ţá tóku 16 liđ ţátt og er stefnt ađ ţví ađ bćta ţađ met í ár!

Taflfélög eru hvött til ađ skrá sig sem sig sem fyrst til leiks.  Reglur keppninnar eru hér ađ neđan. 
Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi.     

Dagskrá mótsins er sem hér segir

1. umferđ (16 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 15. ágúst (hugsanleg forkeppni ef meira en 16 liđ taka ţátt)
2. umferđ (8 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 25. ágúst
3. umferđ (undanúrslit): Skuli vera lokiđ 5. september
4. umferđ (úrslit): Um 15. september (líklegt ađ keppnin verđi sett á helgina 9.-11. september eđa 16.-18. september).

Umsjónarađili getur heimilađ seinkanir viđ sérstakar ađstćđur.     

Skráning til ţátttöku rennur út 5. ágúst nk.   Forráđamenn taflfélaga eru vinsamlegast beđnir um ađ hafa samband viđ Gunnar Björnsson í netfangiđ gunnibj@simnet.is eđa í síma 820 6533.
Tilkynna ţarf eftirfarandi:

Liđ
Liđsstjóri
Símanúmer liđsstjóra
Netfang liđsstjóra

Reglur keppninnar:

1.  Sex manns eru í hvoru liđi og tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir í öđru liđinu tefla viđ alla í hinu liđinu. Samtals 12 umferđir, eđa 72 skákir.

2.  Heimaliđ sér um dómgćslu. Komi til deiluatriđa er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.

3.  Varamenn mega koma alls stađar inn. Ţó skal gćta ţess ađ menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstćđingi og hafi ekki sama lit í báđum skákunum.

4.  Ćtlast er til ţess ađ ţeir sem tefli séu fullgildir međlimir síns félags. Ađeins má tefla međ einu taflfélagi í keppninni.

5.  Liđsstjórar koma sér saman um hvenćr er teflt og innan tímaáćtlunar.  Komi liđsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónarađili ákvarđađ tímasetningu.

6.  Verđi jafnt verđur tefldur bráđabani. Ţađ er tefld er einföld umferđ ţar sem dregiđ er um liti á fyrsta borđi og svo hvítt og svart til skiptist. Verđi enn jafnt verđur áfram teflt áfram međ skiptum litum ţar til úrslit fást.

7.  Heimaliđ bjóđi upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eđa kex.

8.  Viđureignirnar skulu fara fram innan 100 km. radíus (max 1-1,5 klst. ferđalag) frá Reykjavík nema ađ félög komi sér saman um annađ.  

9.  Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auđiđ er í netfangiđ gunnibj@simnet.is og eigi síđar en 12 klukkustundum eftir ađ keppni lýkur.

10. Úrslit keppninnar verđa ávallt ađgengileg á heimasíđu Hellis, www.hellir.blog.is , sem er heimasíđa keppninnar, og á www.skak.is.

11. Mótshaldiđ er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvćmd mótsins.

Skák út um allt!

100 9235Skákakademía Reykjavíkur í samstarfi viđ Skáksamband Íslands hefur hrundiđ af stađ átakinu Skák út um allt. Međ átakinu er ćtlađ ađ skákvćđa sem flesta almenningsstađi í borginni. Er ţá sérstaklega litiđ til sundlauga, kaffihúsa, ţjónustumiđstöđva og íţrótta- og dvalarheimila. Hverjum stađ verđur gefiđ eitt tafl og viđ afhendinguna mun ađili frá Skákakademíunni taka skák viđ einhvern frá ţeim sem ţiggja tafliđ.

Átakiđ hófst í vikunni ţegar Stefán Bergsson fastagestur Sundlaugar Vesturbćjar og 100 9234framkvćmdastjóri Skákakademíunnar gerđi sér ferđ í laugina en í ţetta skiptiđ ekki til potta- og gufulegu. Hrađskák skyldi tefld viđ Dag Arngrímsson sundlaugarvörđ og alţjóđlegan meistara. Skákin var tefld á bakka laugarinnar og stýrđi Dagur hvítu mönnunum. Stefán lenti snemma í mikilli beyglu en tókst um síđir ađ snúa á Dag sem varđ svo mikiđ um ađ hann lék sig í mát í einum. 

Ađ taflmennsku lokinni var Sundlauginni fćrđ taflsettiđ ađ gjöf sem verđur haft í anddyrinu svo gestir og starfsmenn geti gripiđ í tafl ţegar fćri gefst. 

Átakiđ heldur áfram á nćstu vikum og mánuđum en stefnt er ađ ţví ađ heimsćkja 50 stađi fyrir áramót. Ţeir skákmenn sem vinna á almenningsstöđum eru beđnir um ađ hafa samband viđ Stefán Bergsson: stefan@skakakademia.is 

Myndaalbúm (HJ)


Czech Open: Hannes og Guđmundur Kja unnu í fyrstu umferđ

Guđmundur KjaAđalmót skákhátíđinnar í Czech Open hófst í dag.  Ţrír íslenskir skákmenn tefla í a-flokki mótsins, stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2547), alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2310) og nafni hans Gíslason (2322).  Hannes og Kjartansson (2310) unnu báđir stigalćgri andstćđinga í fyrstu umferđ en Gíslason tapađi fyrir stigalćgri andstćđing.  Skák Hannesar gegn ţýska alţjóđlega meistaranum Ruediger Seger (2390) í 2. umferđ verđur sýnd beint á netinu á morgun og hefst útsending kl. 13.

Einnig hófst í dag b-flokkur ţar sem Sigurđur Eiríksson (1951) og Jakob Sćvar Sigurđsson (1789) tefla.  Ţeir töpuđu báđir fyrir stigahćrri andstćđingum.

Í a-flokki tefla 279 skákmenn.  Ţar af eru 50 stórmeistarar og 58 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er nr. 17 í stigaröđ keppenda, Gíslason nr. 132 og Kjartansson nr. 140.

 

 


Stefnir í sterkasta Norđurlandamót öldunga í skák sem fram hefur fariđ

Friđrik ÓlafssonMótiđ haldiđ hér á landi í fyrsta sinn í haust • Búist er viđ metţátttöku

Sjöunda Norđurlandamót öldunga í skák verđur haldiđ í fyrsta skiptiđ á Íslandi í september nćstkomandi. Stórmeistarinn Friđrik Ólafsson hefur skráđ sig til leiks ásamt fleiri stórmeisturum í skák eins og Yrjo Rantanen og Heikki Westerinen. Nú ţegar hafa 33 skákmenn [45 ţann 22. júlí] skráđ sig til leiks og bendir allt til ţess ađ met verđi slegiđ sem sett var í Fredrikstad áriđ 2001, er 46 skákmenn tóku ţátt.

Fyrsta Norđurlandamót öldunga var haldiđ í Karlstad í Svíţjóđ áriđ 1999 en síđan hefur mótiđ veriđ haldiđ annađ hvert ár. Íslendingar hafa aldrei fjölmennt á mótin og hafa mest 1-2 keppendur frá Íslandi tekiđ ţátt ađ sögn Gunnars Björnssonar, formanns Skáksambands Íslands. „Ţađ hefur orđiđ kippur í öldungastarfi í skák á Íslandi og ţađ eru nokkur virk félög öldunga í skák, bćđi í Reykjavík og Hafnarfirđi, en hlutfalliđ er mjög óhagstćtt konum ţar sem ađeins karlmenn hafa skráđ sig í mótiđ sem haldiđ verđur eftir um tvo mánuđi," segir Gunnar.

Friđrik ađ öllum líkindum stigahćstur

„Ţađ eru óvenjulega sterkir skákmenn sem ćtla ađ taka ţátt núna og miklu fleiri góđir en oft hefur veriđ," segir Gunnar. „Íslendingar hafa hingađ til ekki komist í efstu röđ á ţessum Norđurlandamótum. Ţetta er kjöriđ tćkifćri fyrir menn ađ tefla viđ kollega sína frá Norđurlöndunum," segir Gunnar.

„Ég skráđi mig en ţađ er spurning hvort tíminn passi, ég geri samt ráđ fyrir ţví," segir Friđrik Ólafsson, stórmeistari í skák, 76 ára ađ aldri. Hann segist hafa skráđ sig ţví skorađ hafi veriđ á hann og einnig vegna ţess ađ ţetta er í fyrsta skiptiđ sem mótiđ er haldiđ á Íslandi og ţví meiri möguleikar ađ hann geti veriđ međ. „Ég virđist vera stigahćstur af ţessum ţátttakendum," segir Friđrik.

Friđrik hefur undanfarin ár sinnt áhugamálum sínum, eins og ferđalögum, tónlist, gönguferđum og fleira. Hefur hann ferđast mikiđ međ skemmtiferđaskipum sem hann telur vera mjög ţćgilegan ferđamáta. Einnig hefur hann unniđ ađ ţví ađ skrásetja 50 ára skákferil sinn og býst viđ ađ gefa verkiđ út ţegar ţví hefur veriđ lokiđ. „Já, ég er spenntur fyrir ađ taka ţátt, ţađ er alltaf gaman ađ tefla ţó mađur sé nú orđinn frekar latur viđ ţađ en ég hef ađeins fylgst međ. Mađur ţarf mikinn kraft í ađ tefla, eldmóđ og einbeitni. Mađur er nú ekki lengur tvítugur," segir Friđrik en hann hefur lítiđ teflt á undarförnum árum. „Ég reikna međ ţví ađ ég rifji ađeins upp mannganginn og skođi ţađ sem hefur veriđ ađ gerast til ađ ţjálfa upp hugsunina, ţađ er ákveđinn rútína ađ koma heilafrumunum í gang. Mađur gleymir ţví nú aldrei sem gert hefur veriđ sćmilega," segir Friđrik ađ endingu.

Ofangreind grein birtist í Morgunblađinu 15. júlí sl. og er hér birt međ leyfi ţess og blađamanns (María Elísabet Pallé).

Kramik byrjar vel í Dortmund

KramnikŢađ er ekki algengt ađ ţrjú toppskákmót séu í gangi í einu.  Í dag hófst Dortmund Sparkassen-mótiđ en međal keppenda eru Kramnik (2781), Nakamura (2770) og Giri (2701).  Auk Dortmund-mótsins er mótiđ í Biel sem og HM landsliđa í gangi.  Á morgun hefst svo Czech Open sem er nú reyndar ekki í sama styrkleika!

Kramnik vann Ponomariov (2764) en öđrum skákum lauk međ jafntefli.  Rétt eins og í Biel taka 6 skákmenn ţátt og tefld er tvöföld umferđ.

Úrslit 1. umferđar:

Georg Meier ˝-˝ Le Quang Liem
Vladimir Kramnik 1-0 Ruslan Ponomariov
Anish Giri ˝-˝ Hikaru Nakamura 


 


Guđmundi Kja gekk vel á atskákmóti í Pardubice

Guđmundur K og Guđmundur GAlţjóđlega meistaranum Guđmundi Kjartanssyni (2310) gekk vel á atskákmóti sem fram fór í gćr og í dag í Pardubice í Tékklandi.  Mótiđ var hluti af Czech Open-skákhátíđinni.  Guđmundur hlaut 6 vinninga í 9 skákum og varđ í 11.-23. sćti af 132 skákmönnum.  Guđmundur Gíslason tók einnig ţátt og hlaut 4,5 vinning og varđ í 60.-78. sćti.

Árangur Kjartanssonar samsvarađi 2477 skákstigum en árangur Gíslasonar samsvarađi 2169 skákstigum.   Ţeir taka báđir ţátt í ađalmótinu sem hefst á morgun.  Ţar teflir einnig stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2546).

Sigurvegar mótsins voru tékkneski stórmeistarinn David Navara (2722) og úkranínski alţjóđlegi meistarinn Andrey Baryshpolets (2474) en ţeir hlutu 7,5 vinning.  29 stórmeistarar tóku ţátt í ţessa sterka atskákmóti.


Armenar efstir á HM landsliđa

MovsesianArmenar eru efstir á HM landsliđa ţegar 5 umferđum af 9 er lokiđ.   Armenar hafa 8 stig af 10 mögulegum, hafa gert jafntefli viđ Rússa og Bandaríkjamenn.  Nýr liđsmađur Armena, Movsesian (2700), hefur reynst drjúgur og hefur hlotiđ 3˝ vinning á öđru borđi.  Rússar og Ungverjar koma nćstir međ 7 stig.  Rússar töpuđu óvćnt fyrir Aserum, 1-3.  Mótiđ fer fram í Ningbo í Kína.  Frídagur er á morgun en mótinu verđur framhaldiđ á föstudag og lýkur svo á ađfaranótt ţriđjudags.   

10 af sterkustu landsliđum heims taka ţátt og tefla allir viđ alla. Rússar hafa sterkasta liđiđ á pappírnum (međalstig 2752) en nćstir koma Aserar (2737), Úkraínumenn (2722) og Armenar (2709). 

Stađan:

 

Rk.TeamTB1TB2
1Armenia813,5
2Russia712
3Hungary711,5
4Ukraine610,5
5China511
6Azerbaijan511
7USA510
8Israel48
9India38
10Egypt04,5

 


Björn Ívar og Donika sigurvegarar á sumarskákmóti Akademíunnar

Verđlaunahafarnir og Stefán SteingrímurMikiđ er um ađ vera ţessa vikuna í skáklífi Reykjavíkur. Á mánudag var sett ţátttökumet á Skákmóti í Vin og í hádeginu í gćr mćtti vel á ţriđja tug keppenda í Skákakademíuna ţar sem fór fram annađ Sumarskákmót Skákakademíunnar. Seinni partinn í dag stendur svo Taflfélag Reykjavíkur fyrir skák á Klambratúni.

Mótiđ í gćr var vel mannađ og um 10 keppendur yfir 2000 stigum. Fyrirfram mátti búast viđ öruggum sigri Hjörvars Steins en Mátinn Arnar Ţorsteinsson lagđi Hjörvar ađ velli í nćst síđustu umferđ. Fór svo ađ ţeir tveir urđu efstir og jafnir međ fimm vinninga af sex ásamt hreindýrabananum Birni Ívari Karlssyni. Björn hafđi áđur unniđ Arnar en tapađ fyrir Hjörvari.Unglingarverđlaunhafar: Dr. Gauti, Donika, Guđmundur Agnar og Stefán Steingrímur

Donika Kolica varđ hlutskörpust af yngri kynslóđinni en fast á hćla hennar komu Guđmundur Agnar Bragason og Gauti Páll Jónsson.

Í dag verđur svo opiđ hús í Skákakademíunni frá morgni og fram eftir degi. Upp á síđkastiđ hefur mikiđ bćst í Skákbókakost Skákakademíunnar sem nýtur velvilja Ingvars Ţórs Jóhannessonar, en Ingvar geymir hluta sinna fjölmörgu skákbóka í Tjarnargötunni. Skákmenn geta ţví litiđ viđ á morgun; gripiđ í tafl og jafnvel litiđ í bók.

Ţađ er ţví nóg um ađ vera í dagí skáklífi Reykjavíkur, í Tjarnargötunni og á Klambratúni.

Myndaalbúm (HJ)


Íslenskt efni á ChessCafe.com

Chess CaféŢađ eru margar áhugaverđar skákfréttasíđur á bođstólum, fyrir utan www.skak.is, en ţegar öllu er á botninn hvolft er ChessCafe.com sennilega sú besta og fjölbreyttasta.  Eins konar safnsíđa međ helstu skákfréttum alls stađar ađ, sem birst hafa á öđrum skáksíđum undir "Daily Chess New Links" , svo sem Chessbase News; The Week In Chess;  ChessVipes; Chessdom; og vefsíđum dagblađa hvađanćva ađ úr heiminum.   Á ChessCafe.com er ţvi  hćgt ađ nálgast  nánast allt sem skiptir máli á einum stađ fyrir sem vilja fylgjast vel međ skákfréttum og mótum og sjá ţađ helsta sem skrifađ er um skák og skákmál. 

Ţess utan eru á ChessCafe sérstakir mjög fróđlegir ţćttir,  svo sem:  Ritdómar um skákbćkur; Skođanahorniđ; Skjalasafniđ og Video-kastljósiđ ofl. fyrir utan  greina fastra dálkahöfunda,sem skrifa um ađskiljanleg efni tengdum skák.   Ţar á međal eftir einn af ađstandendum síđunnar Dađa Jónsson, kerfisfrćđing og skákdálkahöfund, undir yfirskriftinni ChessOK Cafe, sem skrifar fćrđilegar ritgerđir um Chess Assistant hugbúnađ og rannsóknarforrit.

Ný grein eftir Dađa birtist fyrir nokkrum dögum um "Aquarium 2011 directory structure".  Ţá  trónir nú íslenska skákmyndbandiđ Chess Fury (SkákOfsi) í video-horninu, sem sýnir ákafaskákmenn í KR í ham og í nćrmynd, sem láta sér ekki muna um ađ tefla 13 umferđa hrađskákmót á mánudögum allan ársins hring.  

ChessCafe.com er frábćr síđa sem hćgt er ađ mćla međ og sjá allt ţađ helsta um skák og ţađ er gerast á skáksviđinu  í hnotskurn.  Á forsíđunni er ađ finna leiđbeiningar og góđar ráđleggingar um hvernig best er ađ nota og nálgast efni síđunnar.  -

Texti frá Einari S. Einarssyni.

http://www.chesscafe.com/video/video.htm


Teflt á Klambratúni!

Dótakassinn á Klambratúni í samvinnu viđ Taflfélag Reykjavíkur býđur borgarbúum upp á ţann möguleika ađ koma og tefla á Klambratúni í sólinni fimmtudaginn 21. júlí, ţeim ađ endurgjaldslausu.

Hugmyndin kemur úr Central Park ţar sem bođiđ er upp á steypt borđ ţar sem fólk getur komiđ međ sína taflmenn og nýtt blíđviđriđ í góđa hugarleikfimi. Á morgun milli fjögur og sjö verđur ţví hćgt ađ tefla ásamt ţví ađ nýta leikföngin og spilin sem Dótakassinn hefur til umráđa.

Kíkiđ á Klambratún á fimmtudaginn milli kl 16.00-19.00!

Dótakassinn á Klambratúni, ÍTR - Frístundamiđstöđin Kampur


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 17
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 238
  • Frá upphafi: 8765214

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 140
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband