Fćrsluflokkur: Spil og leikir
24.3.2016 | 14:00
Úrslit á Páskaeggjamóti Víkingaklúbbsins
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fór fram miđvikudaginn 23 mars, en 39 keppendur tóku ţátt í ţrem flokkum. Krakkar fćddir 2008 og yngri teldu í yngsta flokknum, en ţeir sem fćddir voru 2006 og 2007 kepptu í sér flokki, en í elsta flokknum kepptu krakkar fćddir 2005 og eldri. Tefldar voru 6. umferđir međ 5. mínútna umhugsunartíma.
Í yngsta flokknum sigrađi Bjartur Ţórisson, en ţau leiđu mistök urđu ađ skákstjórar tóku ekki eftir ţví. Nćstur kom Jökull Bjarki, Anna Katarína og Einar Dagur. Í flokki krakka sem fćdd eru 2006 og 2007 sigrađi Benedikt Ţórisson, Adam Omarsson varđ annar og Batel varđ ţriđja. Í elsta flokki sigrađi Stephan Briem, Daníel varđ annar og Arnór ţriđji. Efst stúlkna varđ Batel. Anna Katarína varđ önnur og Iđunn ţriđja. Efstur Víkinga varđ Jón Hreiđar, Guđmann Brimarvarđ annar og Jökull ţriđji. Nánari úrslit sjá töflu.
Skákstjórar á mótinu voru Stefán Bergsson, Gunnar Fr. Rúnarsson og Sigurđur Ingason. Allir krakkarnir fengu svo páskaegg ađ lokum, en Nói-Sírus styrkti mótiđ af miklum myndarskap.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2016 | 13:00
Vignir Vatnar sigrađi á hrađkvöldi Hugins
Eftir ađ hafa sigrađi á Páskaeggjamóti Hugins skellti Vignir Vatnar Stefánsson sér á hrađkvöld Hugins. Ţar fór allt á sömu leiđ. Sigurinn féll honum í skaut međ 6,5v af 7 mögulegum. Í ţetta sinn var ţađ Vigfús Ó. Vigfússon sem náđi jafntefli gegn Vigni Vatnari eđa var ţađ kannski öfugt. Annar var Andri Grétarsson međ 6v og Vigfús var ţriđji međ 5,5v. Vignir Vatnar dró í happdrćttinu og sýndi ţađ ađ hann kann líka ađ draga ţví hann hann dró skákstjórann eins og ekkert vćri sjálfsagđara. Vignir Vatnar valdi pizzu frá Dominos en Vigfús tók miđa frá Saffran. Vigfús sá um skákstjórn en eins og oft áđur naut hann ađstođar Harđar Jónassonar viđ fćrslu úrslita.
Nćsta skákkvöld verđur svo hrađkvöldi mánudaginn 25. apríl nk.
Lokastađan á hrađkvöldinu:
- Vignir Vatnar Stefánsson, 6,5v/7
- Andri Grétarsson, 6v
- Vigfús Ó. Vigfússon, 5,5v
- Hjálmar Sigurvaldason, 4v
- Sigurđur Freyr Jónatansson, 3v
- Hörđur Jónasson, 2v
- Björgvin Kristbergsson, 1v
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2016 | 12:03
Vignir Vatnar sigrađi á páskaeggjamóti Hugins
Páskaeggjamót Hugins í Mjódd fór fram síđastliđinn mánudag 21. mars. Ţađ var 41 keppandi sem mćtti nú til leiks, tefldu 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og var glatt á hjalla allan tímann, ţótt nokkurn tíma tćki ađ hefja mótiđ vegan tćknilegra vandamála. Úrslitin voru afgerandi í ţetta sinn en Vignir Vatnar Stefánsson sigrađi örugglega á móinu međ 6,5v. Vignir Vatnar er ekki alveg ókunnugur efst sćtinu á páskaeggjamótinu en hann vann einnig mótin 2012 og 2013. Alexander Oliver Mai sýndi ađ árangurinn á Reykjavíkurskákmótinu var engin tilviljun og sá til ţess ađ Vignir Vatnar gekk ekki frá borđi međ fullt húsi. Alexander bćtti svo um betur og tók 2. sćtiđ međ 5,5v eins og Aron Ţór Maí en stigin hjá Alexander voru hćrri.
Veitt voru verđlaun í ţremur flokkum. Tveimur aldursflokkum ţar sem Vignir Vatnar, Alexander Oliver og Aron Ţór.voru efstir í eldri flokki. Yngri flokki ţar sem Ísak Orri Karlsson, Stefán Orri Davíđsson og Óskar Víkingur Davíđsson voru allir međ 5v og hlutu ţeir sćti í ţessari röđ eftir stigaútreikning.
Stúlknaverđlaun fengu Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir, Eydís Magnea Friđriksdótir og Elín Edda Jóhannsdótttir. Nćstu stelpur komu stutt á eftir ţeim.
Auk ţess fékk efsti keppandi í hverjum aldursflokki páskaegg í verđlaun. Ef sá efsti hafđi unniđ páskaegg í ađalverđlaun fékk sá nćsti í aldursflokknum páskaeggiđ.
Í lokin voru tvö páskaegg dregin út og duttu ţar Elfar Ţorsteinsson og Vilhjálmur Bjarni Gíslason í lukkupottinn. Ţau sem ekki hlutu verđlaun á mótinu voru svo leyst út međ litlu gulleggi ţannig ađ allir fóru ánćgđir heim. Mótsstjórar voru Erla Hlín Hjálmarsdóttir og Vigfús Ó. Vigfússon.
Eftirtaldir hlutu verđlaun á páskaeggjamótinu:
Eldri flokkur:
- Vignir Vatnar Stefánsson , 6,5v
- Alexander Oliver Mai, 5,5v
- Aron Ţór Mai, 5,5v
Yngri flokkur:
- Ísak Orri Karlsson, 5v
- Stefán Orri Davíđsson, 5v
- Óskar Víkingur Davíđsson, 5v
Stúlkur:
- Ylfa Ýr Welding Hákonardótttir, 4v
- Eydís Magnea Friđriksdótttir, 4v
- Elín Edda Jóhannsdóttir, 3v
Árgangaverđlaun:
- Árgangur 2011: Jósef Omarsson
- Árgangur 2009: Bjartur Ţórisson
- Árgangur 2008: Anna Katarina Thoroddsen
- Árgangur 2007: Gunnar Erik Guđmundsson
- Árgangur 2006: Benedikt Briem (Stefán Orri Davíđsson)
- Árgangur 2005: Örn Alexandersson (Ísak Orri Karlsson)
- Árgangur 2003: Stephan Briem (Vignir Vatnar Stefánsson)
- Árgangur 2002: Jökull Freyr Davíđsson
- Árgangur 2001: Jón Ţór Lemery (Aron Ţór Maí)
- Árgangur 2000: Dawid Kolka
Myndskreytta frásögn má finna á heimasíđu Hugins.
24.3.2016 | 11:28
Caruana og Karjakin efstir á áskorendamótinu
Tvö stórmót eru í gangi ţessa dagana. Annars vegar áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák í Stúkunni í Kópavogi ţar sem keppt er um tvo sćti í landsliđsflokki sem fram fer í Seltjarnarnesi í maí-júní og hins vegar áskorendamótiđ í Moskvu ţar sem keppt er um réttinn til ađ mćta Magnúsi í heimsmeistaraeinvígi í nóvember í New York.
Á međan allt er óljóst í Kópavogi ţá virđist mega ađ ganga ađ tvennu vísu í Moskvu. Annars vegar ađ Karjakin sé í skiptu fyrsta sćti eftir hverja umferđ - en yfirleitt međ nýjum forystusauđi og hins vegar ađ Giri geri jafntefli.
Caruana (2794) vann Anand (2762) í gćr en öđrum skákum lauk međ jafntefli. Ţar međ fór Caruana upp fyrir Anand og er efstur ásamt Karjakin (2760). Forystumennirnir hafa 6 vinninga eftir 10 umferđir. Anand (2762) er í 3.-4. sćti ásamt Aronian (2786) međ 5,5 vinninga. Giri (2793) er fimmti međ 5 vinninga en hann er hefur gert jafntefli í öllum sínum skákum og virđist jafnvel vera orđinn meiri jafnteflisvél en Peter Leko ţegar hann var upp á sitt besta.
Ellefta umferđ af fjórtán hefst nú kl. 12. Ţá tefla Anand-Karjakin, Topalov-Caruana, Aronian-Svidler og Giri-Nakamura.
Stađan:
- Heimasíđa mótsins
- Chess 24 (beinar útsendingar)
24.3.2016 | 10:53
Fimm efstir í áskorendaflokki
Ţađ er fjörlega teflt í áskorendaflokki í Stúkunni og hart barist um sćtin tvö í landsliđsflokki sem í bođi eru. Í annarri umferđ sem fram fór í gćr unnu hinir stigalćgri á tveimur efstu borđunum. Björgvin Víglundsson (2164) vann Dag Ragnarsson (2243) á ţví fyrsta og Jón Trausti Harđarson (2058) Vigni Vatnar Stefánsson (2228)á ţví öđru.
Úrslit 2. umferđar má finna hér.
Jón Trausti, Björgvin eru efstir međ tvo vinninga ásamt Ţorvarđi F. Ólafssyni (2195), Oliver Aroni Jóhannessyni (2177) og Jóhanni Ingvasyni (2171).
Ţađ stefnir í hörkuumferđ í dag. Björgvin teflir viđ Ţorvarđ og Jón Trausti viđ Jóhann. Á ţriđja borđi gćti stefnt í hörkuviđureign Davíđs Kjartanssonar (2348), sem mátti teljast ljónheppinn ađ vinna Halldór Pálsson (2004) í gćr og Lenku Ptácníková (2192)
Umferđ dagsins hefst kl. 14. Pörun umferđinnar má finna hér.
Áhorfendur eru velkomnir í Stúkuna. Ţar eru mjög góđar ađstćđar fyrir skákáhugamenn. Međal annars hefur Birnukaffi flutt sig tímabundiđ um set og hćgt ađ kaupa ljúffengur vöfflur í Stúkunni.
Fyrir ţá sem heima sitja verđur hćgt ađ fylgjast međ skák Björgvins og Ţorvarđs í beinni hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Indverjinn Gupta međ vinningsforskot fyrir lokaumferđina í dag
Indverski stórmeistarinn Abhiteet Gupta vann Svíann Nils Grandelius í 9. umferđ Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu í gćr. Indverjinn náđi ţar međ vinnings forskoti á nćstu menn, hefur átta vinninga af níu mögulegum. Í 2.-6. sćti eru Búlgarinn Cheparinov, Aserinn Mamedyarov, Ítalinn Rambaldi, Rússinn Andreikin og Englendingurinn Gawain Jones, allir međ sjö vinninga.
Guđmundur Kjartansson er efstur Íslendinga en hann vann ítalska stórmeistarann Dvirnyy í gćr og er međ 6˝ vinning, jafn indversku skákdrottningunni Töniu Sadchev sem er taplaus ţótt hún hafi teflt viđ marga stigahćstu skákmenn mótsins. Hefur frammistađa hennar vakiđ mikla athygli.
Hvađ varđar ađra íslensku ţátttakendurna hafa margir af ungu skákmönnunum stađiđ sig vel og ef miđ er tekiđ af stigahćkkunum eingöngu slá ţeir Alec Elías Sigurđarson og Alexander Thor Mai öllum viđ međ meira en 100 elo-stiga hćkkun.
Stigahćstu íslensku skákmennirnir, ţeir Hannes Hlífar Stefánssonar og Hjörvar Steinn Grétarsson, hafa ekkert sýnt ađ ţessu sinni en á hinn bóginn hafa Guđmundur Kjartansson og Björn Ţorfinnsson teflt frísklega. Ţađ var ađ vísu súrt í broti fyrir Björn ađ tapa fyrir Aryan Tari í 9. umferđ í gćr en ţar lét Björn drottninguna af hendi fyrir meira en lítiđ óljósar bćtur. Hann á eina glćsilegustu leikfléttu mótsins er hann mćtti Norđmanninum Kvamme í 7. umferđ:
Reykjavíkurskákmótiđ 2016:
Björn Ţorfinnsson John A. Kvamme
Trompowsky-byrjun
1. Rf3 g6 2. d4 Rf6 3. Bg5 Bg7 4. e3 c5 5. c3 b6 6. Rbd2 Bb7 7. Bd3 d6 8. Dc2 0-9. h4 cxd4 10. exd4 Rc6 11. h5 Hc8
11.... Rxh5 kom til greina en bauđ heim skiptamunarfórn á h5.
12. hxg6 hxg6 13. Bc4 Ra5 14. Be2 Dd7 15. Hh4 b5 16. b4 Rc4 17. Bxc4 bxc4 18. 0-0-0 Bc6? 19. Hdh1 Ba4?
Missir tök á e4-reitnum. Langbest var ađ hefja gagnsókn međ 19.... a5.
20. Bxf6! Bxf6
Vitaskuld ekki 20.... Bxc2 21. Hh8+ og mátar.
21. De4 d5
Ţrumuleikur sem Norđmađurinn hafđi ekki tekiđ međ í reikninginn.
22.... Bxh8 23. Dh4 Kg7 24. g4!
Slćr tvćr flugur í einu höggi, hótar 25. g5 og tekur f5-reitinn af drottningunni.
24.... Hg8 25. Re5! De8 26. Rdf3! Kf8 27. Rg5
Svartur fćr ekkert viđ riddarana ráđiđ.
27.... Db5 28. Dh7 Bg7 29. Rxg6+! Ke8 30. Dxg8+ Kd7 31. Dxg7 fxg6 32. He1 He8 33. Re6 Kc8 34. Rc5 Db8 35. He5 Bc6 36. Dxg6
og svartur gafst upp.
Armeninn slapp naumlega
Annar íslenskur skákmađur sem hefur átt gott mót er Stefán Kristjánsson. Hann tefldi langa og erfiđa skák viđ Armenann Hrant Melkumnjan í 7. umferđ og eftir ţunga stöđubaráttu í miđtaflinu náđi hann upp vinningsstöđu. Tímamörkin reyndust honum erfiđ; ţó ađ 30 sekúndur bćtist sjálfkrafa viđ tímann eftir hvern leik getur mikil uppsöfnuđ spenna leitt af sér rangar ákvarđanir.
Stefán Melkumjan
65. Ke4??
Frípeđunum á ađ ýta! Eftir 65. g6 vinnur hvítur, t.d. 65.... Hh3+ 66. Kg4 Hh1 67. f5 a1(D) 68. Hxa1 Hxa1 69. f6 og hvítur kemur sér upp drottningu.
65.... Hh1 66. g6 a1(D) 67. Hxa1 Hxa1 68. f5 Hg1 69. Ke5 Kc4 70. Kf6
Ekki dugar 70. f6 vegna 70.... Hg5+! međ jafnteflisstöđu.
70.... Kd5 71. Kg7 Ke5 72. f6 Kf5 73. f7 Hxg6+ 74. Kh7 Hf6 75. Kg7 Hxf7+ 76. Kxf7
Jafntefli.
Síđasta umferđ mótsins hefst kl. 11 í dag.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 16. mars
Spil og leikir | Breytt 19.3.2016 kl. 12:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2016 | 08:11
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák hófst í gćr
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák hófst í gćr í Stúkunni viđ Kópavogsvöll. Flokkurinn er vel skipađur en 12 skákmenn hafa meira en 2000 skákstig. Án efa verđur hart barist um sćtin tvo í landsliđsflokki sem í bođi eru.
Ekkert varđ um óvćnt úrslit ţar sem allir hinir stigahćgri unnu hina stigalćgri. Sumir ţurftu ţó ađ hafa mjög mikiđ fyrir hlutunum og má ţar nefna Jón Trausta Harđarson (2058) sem var ljónheppinn ađ vinna Alec Sigurarđarson (1365).
Úrslit fyrstu umferđar má finna hér.
Önnur umferđ fer fram og hefst kl. 18. Ţá mćtast međal annars:
- Dagur Ragnarsson (2243) - Björgvin Víglundsson (2164)
- Jón Hrausti Harđarson (2058) - Vignir Vatnar Stefánsson (2228)
- Ţorvarđur F. Ólafsson (2195) - Stefán Arnalds (2007)
Röđun 2. umferđar má finna hér.
Áhorfendur eru velkomnir í Stúkuna. Ţar eru mjög góđar ađstćđar fyrir skákáhugamenn. Međal annars hefur Birnukaffi flutt sig tímabundiđ um set og hćgt ađ kaupa ljúffengur vöfflur í Stúkunni
23.3.2016 | 07:00
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fer fram í dag
Páskaeggjamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu miđvikudaginn 23. mars. Tefldar verđa 6. umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann og hefst mótiđ kl. 17.15. Allir krakkar eru velkomnir og ţátttaka er ókeypis. Keppt verđur ţrem flokkum: Flokki fćddra 2000-2005, flokki fćddra 2006-7 og flokki fćddra 2008 og yngri (flokkaskipting er í vinnslu).
Allir fá páskaegg fyrir framistöđu sína og ţátttaka í mótinu er ókeypis. Barna og unglingaćfingar Víkingaklúbbsins verđa vikulega á miđvikudögum fram á sumar.
ATH: Nauđsynlegt er ađ skrá sig (nafn og fćđingarár) til ađ tryggja ţátttöku.
Skráning á mótiđ fer fram á Skák.is (guli kassinn efst)
Heimilisfang hér:
Knattspyrnufélagiđ Víkingur
Trađarlandi 1, 108 Reykjavík
Spil og leikir | Breytt 20.3.2016 kl. 15:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2016 | 22:44
Salaskóli Íslandsmeistari barnaskólasveita í 1.-3. bekk
22 sveitir mćttu til keppni á Íslandsmóti barnaskólasveita 1.-3.bekk sem haldiđ var í fyrsta skipti í ár. Áđur hafđi einungis veriđ keppt í flokki 7.bekkinga og yngri, en ţá áttu ţeir sem voru í yngstu bekkjunum viđ ofurefli ađ etja.
Ađalhvatamađurinn ađ ţessu nýja og velheppnađa fyrirkomulagi var Lenka Ptachnikova skákkennari Álfhólsskóla.
Mótiđ var haldiđ í Stúkunni viđ Kópavogsvöll og teflt á tveim hćđum. Á efri hćđinni tefldu A liđin og á jarđhćđinni tefldu B-E liđin. Skákdeild Breiđabliks sá um mótshaldiđ.
Stúlknaliđ frá Grunnskólanum í Grindavík byrjađi mjög vel og var í efsta sćtinu eftir fyrri hlutann međ 10 vinninga af 12 mögulegum. Í nćstu umferđum fóru sterkustu sveitirnar ađ mćtast og jafnađist ţá leikurinn til muna. Segja má ađ minnsta kosti fimm sveitir hafi átt góđan möguleika á titlinum ţegar tvćr umferđir voru eftir. Salaskóli nýtti sínar lokaviđureignir best og stóđ ađ lokum uppi sem verđskuldađur sigurvegari.
Sveitin var skipuđ ţeim Gunnari Erik Guđmundssyni, Brynjari Emil Kristjánssyni, Kjartani Sigurjónssyni og Dađa Fannari Hlífarssyni.
Röđ efstu sveita
- 1. Salaskóli 18 vinninga
- 2. Hörđuvallaskóli 16 vinninga
- 3.-4. Álfhólsskóli og Grunnskóli Grindavíkur 15 vinninga
Borđaverđlaun a-sveita
- Bestur árangur á 1.borđi: Adam Omarsson Háteigsskóli 6 af 6
- Bestur árangur á 2.borđi: Brynjar Emil Kristjánsson Salaskóla og Fannar Smári Jóhannsson Hörđuvallaskóla 5 af 6
- Bestur árangur á 3.borđi: Kjartan Sigurjónsson Salaskóla 5 af 6
- Bestur árangur á 4.borđi: Bjarki Steinn Guđlaugsson Hörđuvallaskóla 6 af 6
Bestu b-e liđin
- Besta B-liđiđ: Salaskóli
- Besta C-liđiđ: Salaskóli
- Besta D-liđiđ: Salaskóli
- Besta E-liđiđ: Álfhólsskóli
Borđaverđlaun b-e liđa
- Bestur árangur á 1.borđi B-E liđa: Katrín María Jónsdóttir Salaskóla C-sveit 6 af 6
- Bestur árangur á 2.borđi B-E liđa: Gunnar Ţór Guđmundsson Salaskóla B-sveit 5 af 6
- Bestur árangur á 3.borđi B-E liđa: Magnús Ingi Gunnarsson Salaskóla B-sveit og Vuk Alexander Dorovic Álfhólsskóla B-sveit 5 af 6
- Bestur árangur á 4.borđi B-E liđa: Ólafur Fannar Pétursson Salaskóla B-sveit 6 af 6
Til margra ára hefur mikiđ skáklíf veriđ í Salaskóla og ánćgjulegt hve mikil breidd skákkrakka kemur ţađan. Heiđurinn af ţessu mikla árangri á Tómas Rasmus. Ţađ er nefnilega töff ađ tefla í Salaskóla !
Mótinu lauk međ pizzuveislu og skólastjóri Skákskólans og stórmeistarinn Helgi Ólafsson kom og afhenti verđlaun. Ţađ var vel viđ hćfi ţví hann hefur tekiđ viđ efnilegustu skólanemendunum í Kópavogi undanfarin ár og byggt ţá upp í ađ verđa gríđarlega sterka skákmenn. Ţetta hefur gerst undir hatti Skákakademíu Kópavogs í stúkunni viđ Kópavogsvöll.
Skákstjórar voru Halldór Grétar Einarsson og Stefán Bergsson
Nánari úrslit A liđ: http://chess-results.com/tnr212993.aspx?lan=1&art=0&rd=6&wi=821
Nánari úrslit B-D liđ: http://www.chess-results.com/tnr213381.aspx?lan=1&art=0&turdet=YES&wi=821
22.3.2016 | 22:37
Skákmót öđlinga hefst 30. mars
Skákmót öđlinga 40 ára og eldri hefst miđvikudaginn 30. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Tefldar verđa 7 umferđir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viđbótartími á hvern leik.
Skákmót öđlinga verđur nú haldiđ í 25. sinn. Núverandi Skákmeistari öđlinga er Einar Valdimarsson.
Dagskrá:
1. umferđ miđvikudag 30. mars kl. 19.30
2. umferđ miđvikudag 6. apríl kl. 19.30
3. umferđ miđvikudag 13. apríl kl. 19.30
4. umferđ miđvikudag 20. apríl kl. 19.30
5. umferđ miđvikudag 27. apríl kl. 19.30
6. umferđ miđvikudag 4. maí kl. 19.30
7. umferđ miđvikudag 11. maí kl. 19.30
Mótinu lýkur miđvikudaginn 18. maí kl. 19:30 međ hrađskákmóti og verđlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í ađalmótinu og hrađskákmótinu.
Ţátttökugjald er kr. 5.000 fyrir ađalmótiđ og kr. 500 fyrir hrađskákmótiđ. Innifaliđ er frítt kaffi allt mótiđ ásamt rjómavöfflum og öđru góđgćti á lokakvöldi.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 17
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 132
- Frá upphafi: 8778468
Annađ
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar