Færsluflokkur: Spil og leikir
13.2.2017 | 09:00
Þrenning berst um titilinn!
Engar breytingar urðu í hópi forystusveina í sjöttu og næstsíðustu umferð Skákþings Akureyrar í dag. Þremenningarnir unnu allir og hafa nú eins og hálfs vinnings forskot á fjórða mann þegar ein umferð er eftir. Svona fór þetta í gær:
- Andri-Sveinbjörn 1-0
- Tómas-Ulker 1-0
- Haraldur-Jón Kristinn 0-1
- Hreinn-Alex 1/2
- Heiðar-Gabríel 0-1
- Ágúst-Fannar 0-1
Staðan er þá þessi fyrir lokaumferðina, sem tefld verður næsta sunnudag:
1-3. Andri, Jón Kristinn og Tómas 5; 4. Alex 4; 5-9. Gabríel, Hreinn, Karl, Ulker og Sveinbjörn 3; 10. Haraldur 2,5; 11-13. Ágúst, Fannar og Heiðar 2.
Í lokaumferðinni eigast þessi við:
- Alex-Jón Kristinn
- Gabríel-Andri
- Sveinbjörn-Tómas
- Ulker-Karl
- Fannar-Hreinn
- Heiðar-Ágúst
Ef tveir eða fleiri verða jafnir eftir síðustu umferð þarf að heyja úrslitakeppni um titilinn "Skákmeistari Akureyrar 2017".
Spil og leikir | Breytt 12.2.2017 kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2017 | 07:00
Skákkeppni vinnustaða fer fram á fimmtudaginn
Taflfélag Reykjavíkur býður öllum vinnustöðum að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2017 sem fram fer í félagsheimili TR að Faxafeni 12, fimmtudaginn 16.febrúar. Taflið hefst klukkan 19:30. Mótið er kjörið fyrir hinn almenna skákáhugamann þar sem vinnufélagar geta teflt saman í einu liði og spreytt sig gegn skákmönnum annarra vinnustaða.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 8 mínútur á hverja skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við umhugsunartímann eftir hvern leik (8+2). Teflt er í þriggja manna liðum og er hverju liði heimilt að hafa eins marga varamenn og þeim hugnast. Ekkert takmark er á fjölda liða hvers vinnustaðar.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar.
Þátttökugjald er 15.000kr fyrir hverja sveit. Skráning fer fram í gegnum sérstakt skráningarform sem finna má á vef TR (einnig aðgengilegt á www.skak.is). Nánari upplýsingar um mótið veitir Kjartan Maack í síma 8620099.
Við hvetjum alla vinnustaði til þátttöku. Byrjendur jafnt sem lengra komnir eru velkomnir.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2017 | 22:11
Guðmundur Peng sigurvegari á Bikarsyrpu helgarinnar
Fjórða mótið af fimm í Bikarsyrpu TR fór fram um líðandi helgi og sá hópur rétt um 30 glæsilegra skákkrakka um að halda uppi stemningunni í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur. Líkt og tvö undangengin mót skiptist mótahaldið upp í opinn flokk og stúlknaflokk. Í opna flokknum voru keppendur 25 talsins og var ánægjulegt að sjá hluta þeirra vera að spreyta sig í fyrsta sinn í Bikarsyrpunni ásamt þeim sem reyndari voru. Stúlknaflokkurinn samanstóð af fimm efnilegum skákstelpum þar sem ein leikskólamær lét sig ekki um muna að etja kappi við eldri og reyndari stúlkur.
Ekki var nóg með að barn á leikskólaaldri tæki þátt í stúlknaflokknum heldur var jafnaldri hennar á meðal þátttakenda í opna flokknum. Þau Jósef Omarsson og Wihbet Goitom Haile, sem bæði eru á sjötta aldursári, eiga sannarlega hrós skilið fyrir að taka þátt í skákmóti á borð við Bikarsyrpuna í ljósi ungs aldurs.
Þá að gangi mótsins. Sem fyrr segir voru keppendur 25 talsins og gaman var að sjá áframhaldandi aukningu í þátttöku óreyndari og stigalausra keppenda sem hafði fækkað nokkuð í liðnum mótum. Bikarsyrpan er nefnilega hugsuð fyrir byrjendurnir líka, þ.e. krakka sem hafa farið í gegnum fyrstu stig skákarinnar og langar að stíga næstu skref. Það er alls ekkert skilyrði að vera kominn með skákstig eða þá að vera útlærður í að skrifa niður skákirnar Bikarsyrpan er meðal annars hugsuð til þess að hjálpa hinum ungu skákmönnum við að öðlast meiri færni í þessum efnum.
Mörg börn sem þegar eru orðin margreynd á sviði skáklistarinnar mynduðu hóp þeirra sterkari í flokknum og var Daníel Ernir Njarðarson (1365) þeirra stigahæstur en hann er nú á sínu síðasta "löggilda" ári í Bikarsyrpunni þar sem framhaldsskólinn er handan við hornið. Næstir í röðinni, og nokkuð yngri, voru Guðmundur Peng Sveinsson (1267) og þá Kristján Dagur Jónsson og Árni Ólafsson, báðir með 1224 Elo-stig.
Það lá því fyrir hjá þeim sem til þekkja að baráttan yrði hörð, enda varð sú raunin. Í fyrstu umferð voru flest úrslit eins og búast mátti við en þó ber að nefna jafntefli Gylfa Más Harðarsonar við Árna þar sem Gylfi stóð síst lakar þegar þeir félagar slíðruðu sverðin. Gylfi sýnir skákgyðjunni mikinn áhuga og er það einungis tímaspursmál hvenær hann birtist á Fide-listanum góða haldi hann áfram góðri ástundun.
Í annarri umferð vann í öllum tilfellum sá stigahærri þann stigalægri og fjöldi spennandi viðureigna leit dagsins ljós hjá þeim keppendum sem státa ekki af alveg eins mikilli reynslu. Strax í þriðju umferð fóru sterkustu skákmennirnir að mætast þar sem m.a. Daníel Ernir hafði betur gegn Sindra Snæ Kristóferssyni (1207) og Guðmundur knésetti hina eitilhörðu Batel Goitom Haile (1205). Og já, Batel er eldri systir fyrrnefndrar Wihbet tvær svakalegar þar á ferð.
Guðmundur og Daníel leiddu því með fullt hús að loknum þremur umferðum og í fjórðu umferð mættust einmitt þeir félagar. Úr varð virkilega spennandi orrusta þar sem Daníel var skiptamun yfir í endatafli en vel staðsettir og snaróðir riddarar Guðmundar tryggðu honum jafntefli að lokum. Á sama tíma rann æði á Magnús Hjaltason (1205) sem sigraði Árna og þar með var sá fyrrnefndi kominn upp að hlið Guðmundar og Daníels með 3,5 vinning.
Á þessum tímapunkti var spennan strax orðin mjög mikil og stutt í næstu keppendur. Í fimmtu umferð lagði Daníel Magnús á meðan Guðmundur hafði betur gegn Adam Omarssyni (1070) og voru þeir því aftur orðnir einir efstir, nú með 4,5 vinning hvor. Fjórir keppendur önduðu ofan í hálsmál (þó ekki bókstaflega enda væri það furðulegt) þeirra og því ljóst að þeir máttu ekki misstíga sig.
Þá kom að sjöttu umferð sem reyndist í hæsta máta söguleg því hún bauð upp á eina lengstu baráttuna í sögu Bikarsyrpunnar. Var þar um að ræða rimmu Batel og Breiðablikspiltsins, Gunnars Eriks Guðmundssonar (1148). Þegar allt virtist stefna í sigur hinnar fyrrnefndu þar sem hvor keppanda hafði hrók og riddara en Batel tveimur peðum meira (að sjálfsögðu höfðu bæði kóng enda myndi annað ekki samrýmast alþjóðlegum skákreglum) var skyndilega komin upp jafnteflisleg staða eftir að Gunnar varðist vel og náði einu peði til baka.
Staðan fyrir lokaumferðina var því þannig að Guðmundur var einn efstur með 5,5 vinning en næstur með 4,5 vinning kom Daníel Ernir. Fimm keppendur fylgdu með 4 vinninga og því ljóst að allt gat gerst í lokaumferðinni. Í henni stýrði Guðmundur svarta liðinu gegn Árna og í tvísýnu endatafli lék Guðmundur af sér manni og gaf skákina í kjölfarið. Daníel Ernir gerði hinsvegar jafntefli við Gunnar Erik og því hélt Guðmundur efsta sætinu.
Guðmundur Peng sigraði því með 5,5 vinning en í öðru sæti með 5 vinninga varð Árni, jafnmarga vinninga og Daníel Ernir sem hlaut 3. sætið. Magnús lauk einnig leik með 5 vinninga en aðeins sjónarmunur var á þessum þremur eftir stigaútreikning.
Í stúlknaflokknum tefldu allar við alla og þar reyndist Iðunn Helgadóttir sterkust og vann alla sína andstæðinga. Í fyrstu umferð lagði hún hina ungu Wihbet en á sama tíma hafði Elsa Kristín Arnaldardóttir betur gegn Soffíu Berndsen. Önnur umferð fól í sér spennandi orrustu á milli Elsu og Iðunnar annarsvegar og hinsvegar Karenar Ólafar Gísladóttur og Soffíu. Svo fór að Iðunn og Soffía höfðu betur og voru því komnar í forystu. Í þriðju umferð sigraði Iðunn Karen en Elsa vann rimmuna við Wihbet. Iðunn landaði svo sigrinum í fjórðu umferð gegn Soffíu en í fimmtu og síðustu umferð tryggði Elsa sér annað sætið með sigri á Karen. Lokastaðan var sú að Iðunn hlaut efsta sætið með 4 vinninga, Elsa Kristín varð önnur með 3 vinninga og næst með 2 vinninga var Soffía.
Enn einu móti Bikarsyrpunnar er því lokið þar sem allir keppendur eiga það sameiginlegt að hafa verið iðnir við að stunda skákina og sækja skákæfingar. Slíkt skilar sér alltaf að lokum og erum við strax farin að hlakka til fimmta og síðasta móts syrpunnar sem fer fram helgina 17.-19. mars. Takk kærlega fyrir þátttökuna og sjáumst í mars!
Nánar á heimasíðu TR (myndskreytt frásögn)
Lokastaðan og öll úrslit (Chess-Results)
11.2.2017 | 20:00
Skákþáttur Morgunblaðsins: Vann sigur á erfiðum andstæðingi
Guðmundur Kjartansson vann Björn Þorfinnsson í áttundu og næstsíðustu umferð Skákþings Reykjavíkur og er með 7 vinninga af átta mögulegum og ½ vinnings forskot á Dag Ragnarsson og Lenku Ptacnikovu fyrir lokaumferð mótsins sem fram fer á morgun. Sigur Guðmundar kom nokkuð á óvart því Björn hefur reynst honum erfiður undanfarin misseri.
Á Nóa-Síríus-mótinu sem fram fer samtímis skákþinginu er Guðmundur einnig efstur en spútnik þess móts er Daði Ómarsson sem unnið hefur Jón L. Árnason, Vigni Vatnar Stefánsson og nú síðast Björn Þorfinnsson. Daði er í efsta sæti ásamt Guðmundi og Þresti Þórhallssyni en þeir eru allir með 3 ½ vinning. Óvæntustu úrslit fjórðu umferðar voru þau að Benedikt Jónasson vann Íslandsmeistarann Jóhann Hjartarson. Benedikt er í 4.-6. sæti ásamt Björgvini Jónssyni og Vigni Vatnari Stefánssyni með 3 vinninga.
Í b-riðli er Hörður Aron Hauksson efstur með fullt hús vinninga.
Í stóra uppgjöri áttundu umferðar á Skákþingi Reykjavíkur beitti Björn leið sem kennd er við stórborgina London og rekja má til sögufrægs einvígis McDonnel og Louis Bourdonnais árið 1834. Magnús Carlsen hefur mikið dálæti á þessari leið en Guðmundur fór í smiðju til Nakamura og var öllum hnútum kunnugur. Eftir byrjunina lokaðist staðan en galopnaðist svo skyndilega og Guðmundur var í essinu sínu og tefldi glæsilega:
Skákþing Reykjavíkur 2017
Guðmundur Kjartansson
Björn Þorfinnsson
London-kerfið
1. d4 e6 2. Bf4 Rf6 3. e3 c5 4. c3 Rc6 5. Rd2 d5 6. Rgf3 Bd6 7. Bg3 O-O 8. Bd3 b6 9. e4 Be7 10. e5 Rh5 11. Rg1 g6 12. Re2 f5 13. f4 c4 14. Bc2 b5 15. b3?
Björn hefði betur sleppt þessu. Betra var 15. Bf2.
15. ... b4!
Grípur tækifærið og opnar stöðuna á drottningarvæng.
16. bxc4 bxc3 17. Rb1 Ba6 18. c5 Rxg3 19. hxg3 Da5! 20. Rc1
Ekki 20. Rbxc3 Bxe2 og vinnur mann og eftir 20. Rexc3 leikur svartur hrók til b8 með vinningsstöðu vegna hótunarinnar Hxb1.
20. ... Hab8 21. g4 Hb4 22. gxf5 Hxd4 23. Dg4 Hxf5 24. Rb3 Db4 25. Dh3
Snyrtilega leikið, 26. Dxh4 er svarað með 26. ... Hxe5+! 27. Kf2 Hxf4+ o.s.frv.
26. g3 Hdxf4! 27. Bxf5 exf5 28. gxh4 De4+ 29. Kd1 De2+
- og hvítur gafst upp vegna 30. Kc1 Db2+ og 31. ... c2+.
Wesley So sigraði og ógnar Magnúsi Carlsen á toppi heimslistans
Fyrir lokaumferð stórmótsins í Wijk aan Zee var ekki talið ósennilegt að Magnúsi Carlsen tækist að komast upp við hlið Filippseyingsins Wesley So. Magnús hafði hvítt gegn Sergei Karjakin en So var með svart gegn Jan Nepomniachtchi. Ekki var langt liðið á umferðina þegar ljóst var að Karjakin ætlaði ekki að gefa sig en Nepo hafði teflt byrjunina hörmulega og var með tapað tafl eftir aðeins níu leiki og gafst upp eftir 28 leiki. Magnús varð að sætta sig við jafntefli og 2. sæti:
1. So 9 v. ( af 13 ) 2. Carlsen 8 v. 3.-5. Adhiban, Aronjan og Wei 7 ½ v. 6.-7. Karjakin og Eljanov 7 v. 8. Giri 6 ½ v. 9.-11. Harikrishna, Andreikin og Wojtaszek 6 v. 12. Nepomniachtchi 5 v. 13. Rapport 4 ½ v. 14. Wely 3 ½ v.
Niðurstaðan boðar breytingar á heimslistanum. Þar er Magnús áfram efstur en bilið er að minnka. Hann er með 2838 elo-stig, Caruana kemur næstur með 2827 elo-stig og So er í 3. sæti með 2822 elo-stig.
------------------
Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 4. febrúar 2017
Spil og leikir | Breytt 4.2.2017 kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2017 | 18:37
Sigurjón skákmeistari Vestmannaeyja 2017
Hinn 8. janúar hófst Skákþing Vestmannaeyja 2017 og lauk mótinu í gærkvöldi 9. febrúar. Þátttakendur voru sex og tefldar voru tvær umferðir með 60 mínútna umhugsunartíma auk 30 sek. á hvern leik.
Sigurvegari og skákmeistari Vestmannaeyja 2017 varð Sigurjón Þorkelsson, en hann hlaut 9 vinninga af 10 mögulegum. Í öðru sæti varð Einar B. Guðlaugsson með 7,5 vinninga og í þriðja sæti varð Stefán Gíslason fráfarandi meistari með 5 vinninga.
Sigurjón er nú meistari í 12. sinn, en hann varð fyrst Skákmeistari Vestmannaeyja 1986 og síðast 2006 og hefur orðið meistari oftar en nokkur annar. Einar B. Guðlaugsson varð skákmeistari Vestmannaeyja á árunum 1965 til 1968 eða 4 ár í röð. Aðrir keppendur voru Arnar Sigurmundsson, Gísli Eiríksson og Þórarinn I. Ólafsson, allt gamalkunnar kempur úr félaginu.
Mótstöflu má finna á heimasíðu TV.
10.2.2017 | 18:30
Örn sigraði á hraðkvöldi Hugins
Örn Leó Jóhannsson sigraði örugglega á hraðkvöldi Hugins sem haldið var mánudaginn 6. febrúar sl. Örn Leó fékk 13 vinninga af 14 mögulegum og var það aðeins Eiríkur Björnsson sem náði að merkja við hann. Annar var Vigfús Ó. Vigfússon með 10,5 vinninga og þriðji var Eiríkur Björnsson með 10 vinninga.
Þátttakendur tefldu tvöfalda umferð með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik. Þótt umferðirnar væru 14 þá tók þetta ekki svo langan tíma þar sem báðar skákirnar við hvern andstæðing voru tefldar í röð. Örn Leó dró Hjálmar Sigurvaldason við mikinn fögnuð Björgvins til að byrja með. Sjálfur valdi Örn Leó úttektarmiða frá Saffran en það á eftir að koma í ljós hvað Hjálmar velur. Næsta skákkvöld verður atkvöld mánudaginn 27. febrúar.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
- Örn Leó Jóhannsson, 13v/14
- Vigfús Ó. Vigfússon, 10,5v
- Eiríkur Björnsson, 10v
- Sigurður Freyr Jónatansson, 8,5v
- Hjálmar Sigurvaldason, 6v
- Björgvin Kristbergsson, 5v
- Óttar Örn Bergmann Sigfússon, 1,5v
- Pétur Jóhannesson, 1,5
Úrslitin í chess-results:
10.2.2017 | 09:35
Bragi sigraði á Toyota-skákmótinu
Toyotaskákmótið 2017 var haldið föstudaginn 3 febrúar í höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni Garðabæ. Þetta var 10 Toyota skákmótið. Fyrsta Toyotamótið fór fram í félagsheimili F E B í Stangarhyl 4 en hin níu hafa öll verið haldin í höfuðstöðvum Toyota. Þrjátíu skák öðlingar tóku þátt að þessu sinni. Mótið var mjög vel mannað í ár eins og öll fyrri mót.
Það hafa sex einstaklingar unnið þessi mót frá upphafi og fjórir þeirra voru mættir til leiks sl. föstudag.
Að þessu sinni fór mótið fram í sérstökum kennslusal hjá þeim Toyota mönnum. Áður höfum við teflt á milli glæsivagnanna í söludeildinni. Aðstaðan þarna núna var alveg frábær og ekki voru veitingarnar af verri endanum.
Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota hefur oftast leikið fyrsta leikinn hjá okkur en hann var staddur í útlöndum að þessu sinni svo að Páll Þorsteinsson okkar tengiliður hjá Toyota tók það að sér að þessu sinni. og lék fyrsta leikinn hjá elsta þátttakendanum Magnúsi V Péturssyni sem tefldi með hvítu á fyrsta borði í fyrstu umferð við Kristinn Bjarnason eftir að formaður okkar Garðar Guðmundsson hafði sett mótið með ræðu.
Það var ljóst frá upphafi að það yrði hart barist á flestum borðum enda fór það svo að fjórir af fyrrum sigurvegurum röðuðu sér í fjögur efstu sætin.
Það voru tefldar 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.
Jafnir í 1.-2. sæti urðu Bragi Halldórsson og Gunnar Gunnarsson báðir með 7 vinninga en Bragi örlítið hærri á stigum þannig að hann fær sitt nafn á bikarinn í þriðja sinn.
Í 3. sæti varð svo sigurvegarinn frá því á síðasta ári Gylfi Þórhallsson með 6½ vinning. Jafnir í 4.-5. sæti urðu svo Jóhann Örn Sigurjónsson og Sæbjörn G. Larsen báðir með 6 vinninga en Jóhann töluvert hærri á stigum.
Alls fengu sautján keppendur verðlaun.
Sú nýlunda var tekin upp að þessu sinni að verðlauna þrjá þá neðstu með smá upphæð. Það var ekki verið að líta á þetta sem nein skammarverðlaun heldur verið að verðlauna fyrir góða viðleitni.
Við hjá Ásum viljum þakka Toyota mönnum kærlega fyrir frábærar móttökur verðlaun og veitingar.
Garðar Guðmundsson sá um skákstjórn að þessu sinni.
10.2.2017 | 07:00
Fjórða mót Bikarsyrpunnar ásamt Bikarmóti stúlkna hefst í dag
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.
Fjórða mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 10. febrúar og stendur til sunnudagsins 12. febrúar. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.
Við endurtökum leikinn og höldum að auki meðfram Bikarsyrpunni Bikarmót stúlkna sem mæltist vel fyrir á síðastliðnum mótum. Með því gefst stelpum sem vilja prófa form Bikarsyrpunnar aukið tækifæri á að spreyta sig áður en þær taka þátt í sjálfri Bikarsyrpunni. Tefldar verða fimm umferðir í stúlknamótinu, ein á föstudag og tvær hvorn daginn laugardag og sunnudag, en að öðru leyti verður fyrirkomulag hið sama og í Bikarsyrpunni. Nánari dagskrá má sjá hér að neðan.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Dagskrá Bikarsyrpu IV:
1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 11. febrúar kl. 16.00 (lau)
5. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
6. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)
7. umferð: 12. febrúar kl. 16.00 (sun)
Dagskrá Bikarmóts stúlkna:
1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
5. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)
Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni síðustu umferð hvors móts fyrir sig.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu (í stúlknamótinu er ein yfirseta leyfð í umferðum 1-3). Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.
Sigurvegari hvors móts hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!
Skákstjórn: Þórir Benediktsson (867 3109) og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (862 6290)
Skráningarform
Spil og leikir | Breytt 2.2.2017 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2017 | 21:29
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer 1.-9. apríl nk. Teflt er í Breiðabliks-stúkunni í Kópavogi. Tefldar verða níu umferðir eftir svissneska kerfinu.
Verðlaun í áskorendaflokki eru sem hér segir:
- 75.000 kr.
- 45.000 kr.
- 30.000 kr.
Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki í ár sem fram fer á Hafnarfirði, 9.-20. maí nk.
Séu menn jafnir ræður stigaútreikningur.
Skráning
Þátttökugjöld eru 5.000 kr. Unglingar 15 ára og yngri (2000 og síðar) fá 50% afslátt. F3-félagar fá frítt í mótið.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Þátttökugjöld greiðist inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót.
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Tímamörk
Áskorendaflokkur: 90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.
Opinn flokkur: 30 mínútur auk 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.
Dagskrá:
- umferð, laugardagurinn, 1. apríl, kl. 13:00
- umferð, sunnudagurinn, 2. apríl, kl. 13:00
- umferð, mánudagurinn, 3. apríl, kl. 18:30
- umferð, þriðjudagurinn, 4. apríl, kl. 18:30
- umferð, miðvikudagurinn, 5. apríl, kl. 18:30
- umferð, fimmtudagurinn, 6. apríl, kl. 18:30
- umferð, föstudagurinn, 7. apríl, kl. 18:30
- umferð, laugardagurinn, 8. apríl, kl. 13:00
- umferð, sunnudagurinn, 9. apríl, kl. 13:00
Jafnteflisreglur
Takmarkanir eru settar á jafnteflisboð. Hún gengur út á það að ekki er heimilt að bjóða jafntefli fyrr en báðir keppendur hafa leikið 30 leiki. Á því má gera undantekningar sé þráteflt en þá verður að stöðva klukku, kalla á skákstjóra og koma með jafntefliskröfu.
Yfirseta
Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-6 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni með góðum fyrirvara og fylla út eyðublað þess efnis hjá skákstjóra.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2017 | 16:43
Mai bræður- pistill frá Róm
Meðfylgjandi er pistill frá þeim bræðrum Aroni Þór og Alexander Oliver Mai. Bent er á pistilinn má finna einnig hér í PDF.
------
Í byrjun desember héldum við bræðurnir til Rómar að tefla á alþjóðlegu skákmóti: 1° International Chess Festival Roma Città Aperta 2016. Mótið var 9 umferða opið kappskákmót sem var teflt á sjö dögum. Í fyrstu þrem umferðunum var öðruvísi kerfi þar sem maður tefldi við menn sem voru með svipaðan styrkleika þannig að eftir þrjár umferðir voru sumir 1600/1700 stiga skákmenn í fyrsta sæti. En síðan breyttist þetta í hefðbundið svissneskt pörunarkerfi. Mótið var haldið á 4 stjörnu hóteli þar sem við meðal annars dvöldum á. Hótelið var skammt frá miðborginni, þar sem auðvelt var að taka neðanjarðarlest á helstu staði eins og hringleikahúsið, Vatíkanið og miðbæinn. Hitastigið var á bilinu 16-22 gráður sem var frekar þægilegur hiti.
Í mótinu voru alls 182 keppendur frá 30 þjóðum frá fjórum heimsálfum. Það voru þó nokkuð margir sem vöktu athygli okkar á mótinu en uppúr stóð Fabio De Carlo. Fabio De Carlo (2055) sem Alex vann langa endataflsskák. Á einum tímapunkti vakti Alex upp drottningu í kolunnu endatafli og kallaði þá Fabio til skákstjórans og sagði að Alex gerði það vitlaust og vildi krefjast sigurs en skákstjórinn sá hvað gerðist og sagði að Alex gerði það hárrétt og gaf Fabio skákina stuttu seinna. Tveimur umferðum seinna fékk Aron einnig Fabio og tefldi hann sömu byrjun og Alex hafi teflt við hann. Skákin var löng og voru þeir einu eftir í salnum. Fabio var orðin þreyttur og fór að leika hratt og lék sér síðan í mát, síðan fleygði köllunum um salinn og hrópaði öllum illum orðum.
Salurinn var mjög þægilegur enda var hann kældur fyrir umferðir. Eini gallin var að menn máttu reykja fyrir utan svo að það dreifðist þó nokkuð mikil reykingarlykt inn. Á mótinu var mjög áhugaverð regla: maður þurfti að spyrja skákstjóra hvort maður mætti fara út úr salnum t.d. fara á klósettið, fá sér vatnsglas o.fl.
Aron vann þrjár, þrjú jafntefli og tapaði þrem og endaði með 4,5 vinninga og hækkaði um 72 stig.
Alex endaði í 1. sæti í flokki 1500-1799. Alex vann tvær, gerði sex jafntefli, og tapaði einni og endaði með 5 vinninga og hækkaði um 120 stig.
Mælum með þessu móti. Þökkum Skáksambandinu og Taflfélagi Reykjavíkur kærlega fyrir stuðninginn.
Skákir frá mótinu má finna hér að neðan.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 3
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 93
- Frá upphafi: 8778324
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 67
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar