Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2018

Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram í dag

Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram þriðjudaginn 17. apríl í Laugalækjarskóla.

Tefldar verða 6-7 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. 
 
Teflt er í yngri flokki 1.-7. bekkur og eldri flokki 8.-10. bekkur. Sigurvegari hvors flokks fær sæti á Landsmótinu í skólaskák.
 
Mótið hefst klukkan 16:00.
 
Hver skóli má senda til leiks sína skólameistara eða sterkustu skákmenn.
 
Skráning á stebbibergs@gmail.com

Hörðuvallaskóli Íslansdmeistari grunnskólasveita

30738935_10156159064500275_8193145421338509312_n

Skáksveit Hörðuvallaskóla vann öruggan sigur á Íslandsmóti grunnskólasveita sem fram fór í gær, 15. apríl, í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Hörðuvellingar hófu mótið miklum látum, því þeir unnu Ölduselsskóla 4-0 í fyrstu umferð. Sveitin hlaut 26½ vinning í 28 skákum. Þriðji Íslandsmeistaratitill Hörðuvallaskóla á jafn mörgum árum.

Skáksveit Íslandsmeistara Hörðuvallaskóla skipuðu:

  1. Vignir Vatnar Stefánsson 4½ v. af 5
  2. Stephan Briem 7 v. af 7
  3. Arnar Milutin Heiðarsson 7 v. af 7
  4. Sverrir Hákonarson 5 v. af 5
  5. Benedikt Briem 2 v. af 2
  6. Óskar Hákonarson 1 v. af 2 

Liðsstjóri var Gunnar Finnsson.

Baráttan um hin tvö verðlaunaætin var harðari. Þar börðust Rimaskóli, Ölduselsskóli og Laugalækjarskóli. Svo fór að Rimaskóli hlaut silfrið en Ölduselsskóli krækti sér í bronsið.

Sveit Rimaskóla skipuðu:

  1. Nansý Davíðsdóttir 5 v. af 7
  2. Joshua Davíðsson 5 v. af 7
  3. Arnór Gunnlaugsson 3½ v. af 6
  4. Anton Breki Óskarsson 4 v. af 5
  5. Kjartan Karl Gunnarsson 3 v. af 3

Liðsstjóri var Björn Ívar Karlsson

Sveit Ölduselsskóla skipuðu:

  1. Óskar Víkingur Davíðsson 4 v. af 7
  2. Stefán Orri Davíðsson 5 v. af 7
  3. Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson 5½ v. af 7
  4. Birgir Logi Steinþórsson 5 v. af 7

Liðsstjóri var Björn Ívar Karlsson

B-sveit Rimaskóla vann keppni b-liða. Liðsstjóri þar var einnig Björn Ívar Karlsson. 

Borðalaunahafar urðu sem hér segir:

  1. Alexander Oliver Mai (Laugalækjarskóla) 6½ v.
  2. Stephan Briem (Hörðuvallaskóla) 7 v.
  3. Arnar Milutin Heiðarsson (Hörðuvallaskóla) 7 v.
  4. Sverrir Hákonarson (Hörðuvallaskóla) og Birgir Logi Steinþórsson (Ölduselsskóla) 5 v.

Skákstjóri mótsins var Ingibjörg Edda Birgisdóttir.

Lokastöðuna má finna á Chess-Results.


Guðmundur efstur eftir sigur í fimmtu umferð

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2430), vann ísraelska FIDE-meistarann Yair Parkhov (2373) í fimmtu umferð Rector Cup sem nú er í gagni í Úkraínu. Guðmundur hefur byrjað afar vel og er efstur með 4 vinninga.

Sjötta umferð fer fram í dag og þá teflir Guðmundur við FIDE-meistarann Alisher Suleymenov (2351). Þess má geta að í lokaumferðunum þremur mætir Guðmundur öllum stórmeisturunum þremur.  

Um er að ræða manna 10 manna lokað skákmót. Guðmundur er fimmti í stigaröð keppenda. Meðalstigin eru 2424 skákstig. 

Mótið á Chess-Results.


Íslandsmót skákfélaga: Skákir 2. deildar

Daði Ómarsson hefur slegið inn skákir 2. deildar Íslandsmóts skákfélaga. Þær má finna sem viðhengi með frétt.


Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram á morgun

Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram þriðjudaginn 17. apríl í Laugalækjarskóla.

Tefldar verða 6-7 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. 
 
Teflt er í yngri flokki 1.-7. bekkur og eldri flokki 8.-10. bekkur. Sigurvegari hvors flokks fær sæti á Landsmótinu í skólaskák.
 
Mótið hefst klukkan 16:00.
 
Hver skóli má senda til leiks sína skólameistara eða sterkustu skákmenn.
 
Skráning á stebbibergs@gmail.com

Arnar Smári og Fannar Breki umdæmismeistarar Norðurlands eystra

30120445_1633711063391386_552076446_n

Umdæmismótið fyrir Norðurland eystra var háð á Akureyri í dag. Í eldri flokki háðu þeir Arnar Smári Signýjarson (Giljaskóla) og Gabríel Freyr Björnsson (Brekkuskóla) einvígi um sigurinn og þar hafði sá fyrrnefndi sigur

30120531_1633711263391366_131584210_n_1

Í yngri flokki tefldu fimm strákar um sigurinn. Eftir harða keppni bar Fannar Breki Kárason (Glerárskóla) sigur úr býrum, en Kristján Ingi Smárason (Borgarhólsskóla) varð í öðru sæti. Var Kristján um tíma með unnið í úrslitaskákinni, en lék illa af sér og tapaði. Í þriðja sæti varð Ingólfur Árni Benediktsson (Naustaskóla), en lestina ráku þeir Jökull Máni Kárason (Glerárskóla, 1. v.) og Ingólfur Bjarki Steinþórsson (Naustaskóla).

Myndirnar tók Smári Sigurðsson.


Guðmundur með jafntefli í fjórðu umferð

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2430), gerði jafntefli við moldóska FIDE-meistarann Andrei Macovei (2388) á alþjóðlega mótinu Rector Cup í Úkraínu. Guðmundur hefur 3 vinninga og er í 1.-2. sæti. 

Í fimmtu umferð, sem fram fer í dag teflir Gummi við ísraelska FIDE-meistarann Yair Parkhov (2373).

Um er að ræða manna 10 manna lokað skákmót. Guðmundur er fimmti í stigaröð keppenda. Meðalstigin eru 2424 skákstig. S 

Mótið á Chess-Results.


Lenka vann á fyrirhafnarlausan hátt

50

Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2198), vann fyrirhafnarlausan sigur í sjöundu umferð EM kvenna í gær. Andstæðingur hennar hin portúgalska Cararina Leite Oralova (2134) mætti ekki til leik. Hélt að það hefði verið frídagur í gær. 

Lenka hefur 3 vinninga vinninga. Rússneska skákkonan Valentina Gunina (2507) er efst með 6 vinninga. 

Frídagur er hins vegar í dag. Í áttundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Lenka við hina serbnesku Teodora Injac (2290), sem er alþjóðlegur meistari kvenna. 

Alls taka 144 skákkonur þátt frá 30 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar, 29 alþjóðlegir meistarar og 35 sem eru stórmeistarar kvenna. Lenka er annar tveggja fulltrúa Norðurlandanna. Hin er Pia Cramling. 


Skákþáttur Morgunblaðsins: 13 ára Þjóðverji stal senunni

GMF12LS9THvítur leikur og vinnur.

Georg Maier – Magnús Carlsen

Staðan kom upp í fimmtu umferð efsta flokks skákhátíðarinnar GRENKE chess sem stendur yfir þessa dagana í Karlsruhe og Baden Baden í Þýskalandi. Það merkilega við þessa stöðu er að hvítur á þrjá leiki sem allir leiða til vinnings. Ég er nánast handviss um að þeir sem eitthvað kunna fyrir sér myndu finna rétta leikinn án mikillar yfirlegu. Heimamaðurinn Maier hafði teflt vel en virtist aldrei afhuga jafntefli gegn heimsmeistaranum sem hafði greinilega teygt sig of langt þegar hér var komið sögu. Vinningsleikirnir þrír eru:

A) 39. Hh5.

Svartur á enga haldgóða vörn gegn hótuninni 40. Hxh7+, t.d. 39.... De7 40. Hxh7+ Kxh7 40. Hh1+ Kg8 41. 41.Be6+ Hff7 42. Hh6! með hótuninni 43. Dh5. Engin vörn finnst.

B) 39. Hh1.

Vinnur einnig t.d. 39.... De7 40. Hxh7+ Kxh7 41. Hh5+ Kg6 42. Hh6+! Kf7 43. Dh5+ og mátar.

C) 39. Hf5

– og svartur er varnarlaus, t.d. 39.... Db8 40. Hxf8+ Dxf8 41. Hb1 og vinnur. Hvítur átti nægan tíma fram að 40. leik til að finna einn þessara leikja. Kannski var hann hræddur við að vinna. Hann valdi:

39. Ha1?

og eftir...

39.... De7 40. Dxg7+ Dxg7 41. Hxg7 Kxg7 42. Hxa4 Bc6 43. Hb4... sömdu keppendur um jafntefli.

Magnús tefldi strax í fyrstu umferð við hinn nýbakaða áskoranda Fabiano Caruana. Eins og oft áður virtist hann hafa í fullu tré við Bandaríkjamanninn en upp kom flókið hróksendatafl þar sem peð svarts voru komin lengra, kóngsstaðan betri og vinningshorfur þarafleiðandi góðar:

GMF12LS9PGrenke classic; 1. umferð:

Fabiano Caruana – Magnús Carlsen

Svartur á leik og staðan er unnin en vinningsleikurinn á fátt líkt með mynstrum sem skákmenn hafa oft í kollinum í hróksendatöflum. 54.... Hh7! hefur þann tilgang að hamla för hvítu peðanna. Aðalbrigðið er svona: 55. Kxd3 Hd7+! 56. Ke4 a5 57. g5 a4 58. g6 Hd8! 59. Hc7 a3 60. g7 a2 og svartur vinnur. En Magnús valdi að leika:

54.... a5?

og eftir...

55. h6! He2+ 56. Kxd3 Hh2 57. g5

varð hann að sætta sig við skiptan hlut...

57.... Hh3+ 58. Kd2 Hh2+ 59. Kd3

– Jafntefli.

Eftir þessi vonbrigði hefur lítið gengið hjá Norðmanninum þótt hann sé að venju með í baráttunni um sigurinn. Staðan þegar fjórar umferðir eru eftir: 1.-3. Caruana, Vachier-Lagrave og Vitiugov 3½ v. (af 5). 4.-5. Carlsen og Aronjan 3 v. 6.-7. Anand og Bluebaum 2 v. 8.-10. Hou Yifan, Maier og Naiditsch 1½ v.

GMF12LS9LUm það leyti sem aðalmótið hófst lauk keppni í opna A-flokknum en þar var mikið mannval á ferðinni og eitt sterkasta opna mót ársins. Úrslitin hafa vakið mikla athygli því að 13 ára Þjóðverji, Vincent Keymer, bar glæsilegan sigur úr býtum, hlaut átta vinninga af níu mögulegum og stal gjörsamlega senunni. Hann er talinn mesta efni sem Þjóðverjar hafa eignast um áratuga skeið. Fjórir efstu urðu:

1. Keymer 8 v. (af 9). 2.-4. Korobov, Shirov og Gordievskí 7½ v. Aðstoðarmaður Keymers og þjálfari á mótsstað var ungverski stórmeistarinn Peter Leko.

Vignir Vatnar Stefánsson, nýorðinn 15 ára, tók þátt í þessu móti og stóð sig ágætlega, hlaut 5½ vinning af níu mögulegum og hafnaði vel fyrir ofan mitt mót en keppendur voru hvorki fleiri né færri en 787 talsins. Faðir hans, Stefán ´Már Pétursson, tefldi í opna B-flokknum og hlaut fimm vinninga af níu mögulegum.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 7. apríl 2018

Skákþættir Morgunblaðsins


Góð byrjun Guðmundar í Úkraínu

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2430) byrjar vel á alþjóðlegu móti í Kharkiv í Úkraínu. Eftir 3 umferðir hefur Guðmundur hlotið 2,5 vinninga og er efstur keppenda.

Úrslit Guðmundar í 1.-3. umferð:

Clipboard01

 

 

 

 

 

Í fjórðu umferð, sem fram fer í dag, teflir Guðmundur við moldóvska FIDE-meistarann Andrei Macovei (2388). 

Um er að ræða manna 10 manna lokað skákmót. Guðmundur er fimmti í stigaröð keppenda. Meðalstigin eru 2424 skákstig. 

Mótið á Chess-Results.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband