Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2017
7.7.2017 | 08:55
Nýtt fréttabréf SÍ
Nýtt fréttabréf SÍ kom út í fyrradag. Međal efnis í blađinu:
- Jóhann og Lenka Norđurlandmeistarar í skák
- Alţjóđlegt unglingamót til minningar um Steinţór Baldusson
- Friđrik teflir í Dundee
- Íslandsmót kvenna hefst 16. ágúst
- NM barna- og grunnskólasveita haldiđ ađ Laugum í september
- Ný mótaáćtlun SÍ
- Skráning í Norđurljósamótiđ
- GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ - niđurtalning
- Mót á döfunni
Fréttabréfiđ má nálgast hér.
Fréttabréf SÍ kemur einu sinni á mánuđi ađ jafnađi og er sent rafrćnt til áskrifenda. Hćgt er ađ skrá sig fyrir ţig á Skák.is (ofarlega til vinstri).
Eldri fréttabréf SÍ má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2017 | 18:27
Fundargerđ ađalfundar SÍ
Ađalfundur SÍ var haldin 27. maí sl. Fundargerđ fundarins er nú ađgengileg. Hana má sem finna sem viđhengi.
Einnig er fundargerđ fyrsta stjórnarfundar SÍ ađgengileg.
Fundargerđirnar báđar fylgja međ sem viđhengi.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2017 | 10:47
Garry Kasparov snýr aftur!
Garry Kasparov fetar í fótspor Jóhanns Hjartarsonar og snýr aftur! Ţrettándi heimsmeistarinn tefldi síđast reiknađa skák 2015 og hefur síđan ţá lítiđ teflt nema í sýningarskákir. Hann reyndar tefldi einvígi viđ Short áriđ 2015 og á fjögurra manna móti áriđ 2016 ásamt Nakamura, So og Caruana. Nú teflir hann vegar á skákmóti - reiknuđu til skákstiga í ágúst í St. Louis.
Á mótinu, sem Garry teflir, er teflt eftir sama fyrirkomulagi og í París og Leuven. Níu atskákir og 18 hrađskákir.
Međal andstćđinga hans verđa Nakamura, Caruana, Aronian, Karjakin og Anand.
Nánar má lesa um endurkomu Kasparovs á Chess24.
Mynd: Lennart Ootes (af Chess24).
5.7.2017 | 23:20
Alţjóđlegt unglingamót til minningar um Steinţór Baldursson
Skáksamband Íslands og Skákskóli Íslands standa fyrir alţjóđlegu unglingamóti í janúar nk. Mótiđ verđur minningarmót um Steinţór Baldursson, fyrrum stjórnarmann SÍ og alţjóđlegan skákdómara, sem lést langt fyrir aldur fram í fyrra.
Virđing hf. ţar sem Steinţór vann síđustu starfsárin veitti stjórn SÍ nýlega 750.000 kr. til stuđnings mótshaldinu. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, og Claire Bilton, ekkja Steinţórs, veittu styrknum móttöku. Forstjóri Virđingar, Hannes Frímann Hrólfsson og Lára Björnsdóttir frá Virđingu fćrđu SÍ styrkinn.
Jafnframt styrkir Landsbankinn viđ mótiđ međ 750.000 kr. framlagi en ţar starfađi Steinţór um langt árabil.
Fyrirkomulag mótsins verđur kynnt í ágúst.
SÍ fćrir Virđingu og Landsbankanum miklar ţakkir fyrir ađ styđja svona myndarlega viđ mótshaldiđ.
5.7.2017 | 15:14
Ráđgátan um uppruna taflmannanna frá Ljóđhúsum - Íslenska kenningin
Ritiđ The Enigma of the Lewis Chessmen The Icelandic Theory um hina fornu taflmenn og mögulegan íslenskan uppruna ţeirra, eftir Guđmund G. Ţórarinsson, verkfrćđing, er nú komin út í fjórđa sinn í enn aukinni og endurbćttri útgáfu á ensku í ritstjórn Einars S. Einarssonar.
Ţeirri áhugaverđu tilgátu ađ hinir fornfrćgu taflmenn séu íslenskir ađ uppruna, en ekki norskir - gerđir í Ţrándheimi, eins og haldiđ hefur veriđ fram, vex stöđugt fylgi. Kenning Guđmundar ţar um er nú almennt viđurkennd sem jafngild hinni fyrri og af mörgum talin sennilegri.
Ţessir merku skák- og listmunir fundust 1831 grafnir í sand í Uig (Vík) á eyjunni Lewis eđa Ljóđhúsum eins og eyjan er jafnan nefnd í fornum íslenskum heimildum. Ţeir er fyrstu taflmennirnir međ nútímasniđi sem fundist hafa í heiminum og taldir vera međal 5 merkustu muna og gersema í eigu Breska ţjóđminjasafnsins og ţess Skoska, ţar sem 11 af ţeim 93 taflmönnum sem fundust eru varđveittir, en í ţeim söfnum kennir margra grasa.
Eins og kunnugt er endurvakti Guđmundur áriđ 2010 ţá einkar athyglisverđu kenningu, sem Sir Frederic Madden safnvörđur British Museum setti fram 1832 stuttu eftir ađ taflmennirnir fundust, ađ ţeir vćru ađ öllum líkindum íslenskir ađ uppruna. Skornir úr rostungstönnum í Skálholti í lok 12. aldar af Margréti hinni högu, prestfrú ţar fyrir tilstuđlan Páls Jónssonar, biskups. Fjallađ hefur veriđ um ţessa kenningu og söguskođun á alţjóđlegum málţingum bćđi í Edinborg og í Skálholti og ritađ um hana í New York Times, the Scotsman og fleiri víđlesnum blöđum og skáksíđum víđa um heim.
Í ljósi ţeirra nýju röksemda og ígrundana, sem settar eru fram í hinni auknu og endurbćttu útgáfu, má segja ađ hinni norsku kenningu hafi mögulega veriđ hrundiđ. Kemur ţar einkum til ađ ţađ mikla ófremdarástand ríkti á erkibiskups-stólnum í Niđarósi í lok 11. aldar á ţeim tíma ţegar taflmennirnir eru taldir hafa veriđ gerđir sem og mörg önnur afar söguleg og athyglisverđ rök sem benda til Íslands.
Fyrir sex árum síđan fannst útskorinn taflmađur úr beini á Siglunesi frá sama tíma, sem ber svo sterkt svipmót af hróknum/berserknum í Lewistaflsettunum ađ vart fer milli mála ađ sá sem hann gerđi hafi annađ hvort veriđ kunnugur ţeim eđa umrćddur hrókur veriđ fyrirmynd ţeirra.
Bókin IVORY VIKINGS The Mystery of the Most Famous Chessmen in the World and the Woman who made them sem út kom fyrir tveimur árum, eftir bandaríska rithöfundinn og sagnfrćđinginn Nancy M. Brown, hleypir enn frekari stöđum undir íslensku kenninguna um uppruna hinna fornu taflmanna.
Ef kenningin um ađ taflmennirnir frá Ljóđhúsum séu í raun íslenskir ađ uppruna reynist rétt mun hún varpa nýju ljósi á menningu og handmennt landsmanna okkar til forna og breyta Íslandssögunni. Forfeđur okkar voru ekki einungis frábćrir sögumenn, skáld og sagnaritarar - sem alkunna er - heldur og einnig afburđa lista- og hagleiksmenn á heimsvísu.
Bókin er til sölu í Safnbúđ Ţjóđminjasafnsins, Gestastofu Skálholts og hjá útgefandanum: galleryskak@gmail.com. Hćgt er ađ skrá sig fyrir bókinni hér á Skák.is (guli kassinn).
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2017 | 11:33
Jóhann Hjartarson í Akraborginni
Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák varđ um helgina Norđurlandameistari í skák í annađ sinn. Jóhann kíkti um borđ í Akraborgina á X-inu og spjallađi um ferilinn og óvćntan titil.
Viđtaliđ er alls 15 mínútur og er óhćtt ađ mćla međ ţví.
Viđtaliđ má nálgast hér.
5.7.2017 | 09:23
Lyfjaval í Mjódd sem Hjörvar Steinn Grétarsson tefldi fyrir sigrađi á Mjóddarmótinu
Hjörvar Steinn Grétarsson sem tefldi fyrir Lyfjaval í Mjódd sigrađi örugglega međ fullu húsi 7v af sjö mögulegum á Mjóddarmótinu sem fram fór laugardaginn 1. júlí sl. í göngugötunni í Mjódd Annar var Dađi Ómarsson međ 6v sem tefldi fyrir Gámaţjónustuna. Gámaţjónustan var einnig í öđru sćti í fyrra en ţá međ annan keppanda viđ stýriđ. Ţađ var meiri slagur um ţriđja sćtiđ á mótinu en ţar voru fjórir skákmenn jafnir í 3. 6. sćti međ 5v en ţađ voru Hilmir Freyr Heimisson sem tefldi fyrir Hjá Dóra, Aron Ţór Maí sem tefldi fyrir Suzuki bíla, Vignir Vatnar Stefánsson sem tefldi fyrir Gísla Einarsson múrarameistara og Júlíus Björnsson sem tefldi fyrir Eflingu stéttarfélag. Ţeir Hilmir Freyr, Aron Ţór og Vignir Vatnar eru allt ungir og efnilegir skákmenn sem eflaust munu vinna mótiđ síđar. Júlíus Björnsson hefur hins vegar ekki sést á móti hérna lengi enda býr hann erlendis og er hérna ađ heimsćkja vini og ćtttingja og notađi tćkifćriđ og skellti sér á Mjóddarmótiđ. Annar keppandi sem kom langt ađ er Torin Kuehnle sem kemur fá Philadelphia í Bandaríkjunum og er hér í stuttu sumarleyfi.
Mjóddarmótiđ hefur ekki áđur fariđ fram í júlí ţannig ađ ţađ var rennt nokkuđ blint í sjóinn međ ţátttökuna. 33 skákmađur tók ţátt sem er nokkuđ nćrri međalţátttöku og verđur ađ teljast harla gott miđađ viđ núverandi ađstćđur. Mótiđ var vel skipađ blöndu af eldri og yngri skákmönnum. Af ţeim sem tóku ţátt höfđu Hjörvar, Dađi og Bragi Halldórsson sem núna tefldi fyrir Reykjavíkurborgunniđ mótiđ áđur. Mótshaldiđ tókst vel ţrátt fyrir tvćr bilađar klukkur, hrók á hvolfi og ólöglega leiki og má segja ađ engin ágreiningsefni hafi komiđ upp fyrr en í lokin ţegar bćđi Róbert Lagerman sem tefldi fyrir ÍTR og Júlíus Björnsson töldu báđir sig hafa unniđí í lokaumferđinni ţótt ţeiri hefđu átt ađ tefla innbyrđis. Viđ ahugun kom í ljós ađ ţeir höfđu alls ekki teflt saman heldur tefldi Róbert viđ Braga Halldórsson og Júlíus viđ Alexander Oliver Mai, Ökuskólinn í Mjódd. Máliđ var bara leyst međ ţví ađ leiđrétta pörun lokaumferđar miđađ viđ hvernig hún var tefld. Ţetta má eflaust skrifa á ţađ hve bjart var í Mjóddinni ţótt ţađ vćri skýjađ ţannig ađ pörunin sem varpađ var á hvítan vegginn í Mjóddinni sást ekki alstađar vel. Ađ vísu var hún einnig lesin upp en ţađ virđist ekki hafa dugađ til í ţessu tilviki. Ţađ má svo velta fyrir sér hvort mistökin hefđu nokkuđ uppgötvast ef Alexander Oliver hefđi unniđ Júlíus.
Skákfélagiđ Huginn ţakkar keppendum fyrir ţátttökuna og fyrirtćkjunum fyrir ţeirra framlag til mótsins. Sjáumst ađ ári.
Nánar á Skákhuganum.
Lokastađan á Chess-Results.
Skákhátíđ í Árneshreppi verđur haldin dagana 7. til 9. júlí ţar sem áhugamönnum gefst kostur á ađ spreyta sig gegn sumum bestu skákmönnum Íslands. Međal ţeirra sem ţegar eru skráđ til leiks eru Guđmundur Kjartansson, nýbakađur Íslandsmeistari, stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason og Lenka Ptacnikova og landsliđskonan Guđlaug Unnur Ţorsteinsdóttir.
Hátíđin hefst međ tvískákarmóti og brennu í Trékyllisvík föstudagskvöldiđ 7. júlí kl. 20. Í tvískák eru tveir saman í liđi, og iđulega afar heitt í kolunum.
Hápunktur hátíđarinnar verđur laugardaginn 8. júlí í félagsheimilinu, minninningarmót Jóhönnu Kristjónsdóttur 2017. Jóhanna, sem lést 11. maí síđastliđinn, var međal ötulustu liđsmanna Hróksins og hafđi jafnframt sterk tengsl viđ Árneshrepp. Yfirskrift hátíđarinnar er sótt í kjörorđ Jóhönnu: Til lífs og til gleđi.
Minningarmótiđ hefst klukkan 14 og verđa tefldar 8 umferđir, međ 10 mínútna umhugsunartíma. Verđlaun á mótinu eru í senn vegleg og óvenjuleg, m.a. listaverk sem Guđjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi vinna sérstaklega af ţessu tilefni. Ţá verđa ýmsir munir úr fjarlćgum löndum, vegleg gjafabréf og fleiri vinningar.
Á laugardagskvöldiđ verđur hátíđarkvöldverđur í félagsheimilinu, ţar sem ýmislegt verđur til skemmtunar, og verđlaun á minningarmóti Jóhönnu afhent.
Hátíđinni lýkur međ hrađskákmóti í Kaffi Norđurfirđi sunnudaginn 9. júlí kl. 12. Ţar verđa tefldar 5 mínútna skákir, 7 umferđir, og sigurvegarinn hlýtur nafnbótina Norđurfjarđarmeistarinn 2017.
Hrókurinn hefur um árabil efnt til skákviđburđa í Árneshreppi og ţangađ hafa flestir bestu skákmenn landsins og fjölmargir áhugamenn lagt leiđ sína á skákmót og hátíđir.
Árneshreppur er afskekktasta og fámennasta sveitarfélag á Íslandi, en jafnframt eitt hiđ fegursta og stórbrotnasta. Ţađ er Hróknum mikiđ gleđiefni ađ geta nú bođađ til hátíđar undir kjörorđunum: Til lífs og til gleđi.
- Áhugasamir ćttu ađ skrá sig sem fyrst hjá hrafnjokuls@hotmail.com eđa chesslion@hotmail.com.
- Mjög góđ tjaldstćđi eru í Trékyllisvík og Norđurfirđi.
- Gistirými er takmarkađ en viđ reynum ađ hjálpast ađ viđ ađ koma öllum góđum gestum í hús!
4.7.2017 | 08:38
Samstarf Skákskólans og Skákdeildar Breiđabliks nćsta vetur
Skákskóli Íslands og Skákdeild Breiđabliks munu hafa samvinnu um daglega skákţjálfun efnilegra skákkrakka á grunnskólaaldri nćsta vetur. Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskólans hefur jafnframt veriđ ráđinn yfirmađur skákţjálfunarmála hjá Skákdeild Breiđabliks. Helgi er FIDE Senior Trainer og margreyndur stórmeistari í skák.
3.7.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Skákmót međ styttri umhugsunartíma njóta vaxandi vinsćlda
Heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen gekk ekki vel á norska mótinu um síđustu helgi. Hann hlaut 4 vinninga af níu mögulegum, varđ í 6.-9. sćti og Armeninn Levon Aronjan hljópst á brott međ sigurlaunin og er allur ađ fćrast í aukana eftir nokkur mögur ár. Sá grunur lćđist ađ manni ađ ţađ henti Norđmanninum hreinlega betur ađ tefla skákir međ styttri umhugsunartíma. Kannski er hann svona nćmur á samtíđ sína en stađreyndin er sú ađ styttri skákirnar fá ć meiri athygli. Eftirminnileg var sú kvöldstund heimsmeistaraeinvígisins í New York í fyrra ţegar úrslitaskákirnar fjórar, sem Magnús og Karjakin tefldu ađ afloknu ţunglamalegu 12 skáka einvígi sem lauk án niđurstöđu, voru sýndar á breiđtjaldi á Times Square í New York og Rauđa torginu í Moskvu og fylgdist mikill mannfjöldi međ.
Garrí Kasparov var í vikunni viđstaddur opnun mótarađar í París, Grand Chess tour en ţar eru mćttir til leiks ýmsir kunnir kappar og enn og aftur var Magnús Carlsen mćttur til leiks. Kasparov sem er einn skipuleggjanda gat ţess í viđtali viđ frönsku pressuna ađ ţessa dagana vćri auđveldara ađ finna kostendur fyrir mót međ styttri umhugsunartíma. Fyrirkomulagiđ er ţannig ađ tíu ţátttakendur tefla níu at-skákir međ tímamörkum 25 10 Bronstein, síđan er tvöföld umferđ í hrađskákinni međ tímamörkunum 5 3 Bronstein. Kasparov lagđi furđu mikla áherslu á ađ Bronstein tímamörkin yrđu notuđ á Reykjavik Rapid-mótinu 2004 og situr enn viđ sinn keip. Í ţví kerfi bćtist ekki viđ tímann.
Í París eru gefin tvö stig fyrir sigur í at-skákinni og eitt stig fyrir jafntefli. Í hrađskákinni fá menn 1 stig fyrir sigur og jafntefli er eftir sem áđur ˝ vinningur. Ţetta eru ekki slćm býtti fyrir norska heimsmeistarann sem ađ loknum sjö umferđum hefur náđ forystunni. Stađan: 1. Carlsen 10 stig. 2. Nakamura 9 stig. 3. Mamedyarov 8 stig. 4.-5. So og Grischuk 7 stig. 6. Vachier-Lagrave 6 stig. 7. Karjakin 5 stig. 8. Topalov 4 stig 9. Bacrot 3 stig 10. Caruana 1 stig.
Ţađ gefur auga leiđ ađ viđureignir međ skertum umhugsunartíma eru misjafnar ađ gćđum en spennan er líka meiri.
Magnús lék afar lćvísum leik í ţessari stöđu í 3. umferđ:
Magnús Carlsen Vachier-Lagrave
30. De2!
Verst ýmsum hótunum og virđist undirbúa framrás b-peđsins.
30. ... Kh8??
Hann varđ ađ leika 30. ... Bd6 eđa 30. ... He8.
31. f4!
Vinnur mann. Svartur reyndi ....
31. ... exf3 32. Dxe5 Dh5
... en eftir
33. Rf4 Dxh2 34. Rg6+ Kh7 35. Rxf8+ Kh8 35. Rg6+ Kh7 37. Rf4!
... var frekari barátta vonlaus og Frakkinn gafst upp í 39. leik.
Hćgt er ađ fylgjast međ hrađskákunum í dag t.d. á vefsvćđi Chess24., Chessbomb og ICC. Baráttan hefst kl. 16 í dag en kl. 14 á morgun, sunnudag.
Jóhann og Guđmundur tefla á Norđurlandamótinu í skák
Norđurlandamótiđ í skák hefst í ţrem flokkum í Växsjö í Svíţjóđ á mánudaginn. Í opna flokki mótsins tefla Íslandsmeistarinn Guđmundur Kjartansson og Jóhann Hjartarson. Jóhann varđ Norđurlandameistari fyrir 20 árum. Stigahćstur keppenda er Svíinn Nils Grandelius. Efsta sćtiđ gefur keppnisrétt á heimsbikarmóti FIDE sem fram fer í Georgíu í haust.
Lenka Ptacnikova teflir á Norđurlandamóti kvenna og ţá teflir Áskell Örn Kárason í öldungaflokki mótsins.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 24. júní 2017
Spil og leikir | Breytt 26.6.2017 kl. 12:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 15
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 122
- Frá upphafi: 8778224
Annađ
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar