Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2017

Fimmta umferđ Íslandsmótsins hefst í Hafnarfirđi kl. 17

18452336_10155378751733217_109898250_o

 

Fimmta umferđ Íslandsmótsins í skák hefst kl. 17 í dag í Hraunseli, Flatahrauni 3 í Hafnarfirđi. Ţar eru afar góđar ađstćđur fyrir keppendur og áhorfendur. Mótiđ hefur veriđ í senn sviptingasamt og taflmennskan mjög fjörleg.

Í dag getur stađan skýrst á toppnum - ţví efstu og stigahćstu menn mćtast innbyrđis á tveimur borđum. Annars vćgast Fjölnisfélagarnir Héđinn og Dagur og hins Hannes og Guđmundur Kjartansson.

Í umferđ dagsins mćtast:

  • FM Dagur Ragnarsson (3) - SM Héđinn Steingrímsson (3˝)
  • SM Hannes Hlífar Stefánsson (2˝) - AM Guđmundur Kjartansson (3)
  • FM Vignir Vatnar Stefánsson (1˝) - AM Björn Ţorfinnsson (2˝)
  • FM Guđmunudur Gíslason (˝) - FM Sigurbjörn Björnsson (2)
  • FM Davíđ Kjartansson (˝) - Bárđur Örn Birkisson (1)

 

Stađan:

1. Héđinn Steingrímsson 3˝ v.
2.-3. Guđmundur Kjartansson og 
Dagur Ragnarsson 3 v.
4.-5. Björn Ţorfinnsson og Hannes Hlífar Stefánsson 2˝ v.
6. Sigurbjörn Björnsson 2 v.
7. Vignir Vatnar Stefánsson 1˝ v.
8. Bárđur Örn Birkisson 1 v.
9.-10. Davíđ Kjartansson og Guđmundur Gíslason ˝ v.

Á skákstađ er hćgt ađ fylgjast međ skákunum á stóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hćgt ađ setjast inn í skákskýringaherbergiđ ţar sem hćgt er ađ spá í spilin međ öđrum áhorfendum. 


Grandelius og Jobava sigurvegar Sigeman-mótsins

Sigeman-mótinu lauk í gćr í Malmö í Svíţjóđ. Íslandsvinirnir Nils Grandelius (2665) og Baadur Jobava (2713) urđu efstir og jafnir á mótinu. Báđir hlutu ţeir 3 vinninga í 5 skákum. Pavel Eljanov (2755) og Erik Blomquist urđu í 3.-4. sćti međ 2˝ vinning.

Lokastađan

Clipboard01

 

Nánar um mótiđ á Chess.com.


Héđinn efstur á Íslandsmótinu í skák - Guđmundur og Dagur koma nćstir

2017-05-14 13.03.21

Fjórđu umferđ Íslandsmótsins í skák er rétt nýlokiđ í Hafnarfirđi. Héđinn Steingrímsson (2562) er efstur međ 3˝ vinning eftir öruggan sigur í ađeins 17 leikjum gegn Davíđ Kjartanssyni (2389). Guđmundur Kjartansson (2437) og Dagur Ragnarsson (2320) eru í 2.-3. sćti međ 3 vinninga eftir jafntefli í innbyrđis skák. Guđmundur sótti lengi vel ađ Degi sem varđist fimlega og náđi ţráskák og jafntefli.  

2017-05-14 13.01.47

Björn Ţorfinnsson (2407) vann Guđmund Gíslason (2306). Sigurbjörn Björnsson og Hannes Hlífar Stefánsson (2566) gerđu jafntefli í ćsispennandi skák. Sigurbjörn fórnađi hrók fyrir sterk frípeđ. Hannes átti vinningsleiđ í framhaldinu sem hann fann ekki og síđar átti Sigurbjörn vinningsleiđ sem hann einnig missti af. Jafntefli varđ niđurstađan. 

2017-05-14 13.00.49

Bárđur Örn Birkisson (2162), 17 ára, og Vignir Vatnar Stefánsson (2334), 14 ára, gerđu jafntefli í skák ungu mannanna ţar sem Bárđur átti lengi vel undir högg ađ sćkja en varđist mjög vel og hélt sínu. 

2017-05-14 13.01.00

Stađan:

1. Héđinn Steingrímsson 3˝ v.
2.-3. Guđmundur Kjartansson og 
Dagur Ragnarsson 3 v.
4.-5. Björn Ţorfinnsson og Hannes Hlífar Stefánsson 2˝ v.
6. Sigurbjörn Björnsson 2 v.
7. Vignir Vatnar Stefánsson 1˝ v.
8. Bárđur Örn Birkisson 1 v.
9.-10. Davíđ Kjartansson og Guđmundur Gíslason ˝ v.

Fimmta umferđ fer fram á morgun og hefst kl. 17. Ţá eru tveir toppbaráttuslagir. Héđinn teflir viđ Dag og Guđmundur mćtir Hannesi. 

2017-05-14 15.15.00

Teflt er í Hraunseli, Flatahrauni 3, Hafnarfirđi, viđ frábćrar ađstćđur bćđi fyrir keppendur og áhorfendur. 


Fjórđa umferđ Íslandsmótsins hefst kl. 13 í Hafnarfirđi

18452336_10155378751733217_109898250_o

 

Fjórđa umferđ Íslandsmótsins í skák hefst núna kl. 13 í dag í Hraunseli, Flatahrauni 3 í Hafnarfirđi. Ţar eru afar góđar ađstćđur fyrir keppendur og áhorfendur. Miklar sviptingar í umferđ gćrdagsins og spurning hvort slíkt verđi einnig upp á teningnum í dag. Tveir af efstu mönnum mönnum mótsins, Guđmundur Kjartansson og Dagur Ragnarsson mćtast. 

Í umferđ dagsins mćtast:

  • AM Guđmundur Kjartansson (2˝) - FM Dagur Ragnarsson (2˝)
  • SM Héđinn Steingrímsson (2˝) - FM Davíđ Kjartansson (˝)
  • FM Sigurbjörn Björnsson (1˝) - SM Hannes Hlífar Stefánsson (2)
  • AM Björn Ţorfinnsson (1˝) - FM Guđmundur Gíslason (˝)
  • Bárđur Örn Birkisson (˝) - FM Vignir Vatnar Stefánsson (1)

Á skákstađ er hćgt ađ fylgjast međ skákunum á stóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hćgt ađ setjast inn í skákskýringaherbergiđ ţar sem hćgt er ađ spá í spilin međ öđrum áhorfendum. 


Skákţáttur Morgunblađsins: Ekki fćđast allir međ "fléttugleraugun" á nefinu

Hćfileikar manna á skáksviđinu eru stundum skilgreindir eftir hćfni ţeirra til ađ sjá fyrir snjalla leiki. Ýmsir ađrir ţćttir eru vitaskuld líka mikilvćgir en eitt er víst: ekki fćđast allir međ "fléttugleraugun" á nefbroddinum. Međ stöđugum ćfingum er samt hćgur vandi ađ rćkta međ sér hćfni á ţessu sviđi. Frćgir fléttumeistarar eins og Mikhael Tal virtust hrista flétturnar fram úr erminni eins og enginn vćri morgundagurinn og ekki nema von ađ menn stöldruđu viđ og spyrđu: Hvernig fer mađurinn ađ ţessu? Hver er galdurinn? Svariđ er ađ ţrumuleikirnir koma stundum ef "almenn skynsemi" er látin víkja eitt andartak. Orđum ţetta svo: í flókinni stöđu stendur valiđ kannski milli fjögurra eđa fimm leikja og ólíklegasti möguleikinn getur veriđ sá eini rétti; sjaldnast reyndar – en stundum. Ţađ er alveg ómaksins vert ađ brjóta hlekki hugar til ađ "útiloka vitleysuna," – eins og einn góđur mađur orđađi ţađ. Á minningarmótinu um Aserann Vugar Gashimov féllu leikir ţannig í sigurskák Topalovs gegn öflugasta skákmanni Pólverja:

Shamkir 2017

Radoslav Wojtaszek – Venselin Topalov

Slavnesk vörn

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Rh4 Bg6 7. Rxg6 hxg6 8. Bd3 c5 9. Db3 Dd7 10. cxd5 exd5 11. dxc5 Rc6 12. Bd2 Bxc5 13. Hc1 Hd8 14. Ra4 Bd6 15. Rc5 Bxc5 16. Hxc5 d4 17. Bb5 O-O 18. Bxc6 bxc6 19. f3 De7 20. Hc2 Rd5 21. Kf2 Hb8 22. Da3 

GMN117TEBSvartur virđist hafa jafnađ tafliđ án mikilla erfiđleika og fremur dauflegt endatafl virđist blasa viđ. En Topalov skyggndist dýpra í stöđuna og spurđi sig síđan: hver er ólíklegasti leikurinn í stöđunni?

22. ... Hxb2!!

Alveg magnađ. Ef nú 23. Dxe7 ţá kemur 23. ... Hxc2, og biskupinn fellur og e-peđiđ gerir út um tafliđ.

23. Dxb2 dxe3+ 24. Bxe3 Dxe3+ 25. Kg3

25. Kf1 kom einnig til greina og er skárri kostur ţó ađ stađan sem kemur upp eftir 25. ... Rf4 26. Dc2 Db6! sé nánast óverjandi, t.d. 27. g3 Rd5! og 28. ... Re3+

25. ... Df4+ 26. Kf2 Hb8! 27. Dc1 Dd4+ 28. Kg3 Re3! 29. Hc5 Hb2 30. Hg1

 

GMN117TEFOg hér hefđi skákin mátt fá verđugan endi međ öđrum frábćrum leik, 30. ... Hc2! og Wojtaszek hefđi stöđvađ klukkuna og gefist upp ţar sem 31. Hxc2 leiđir til máts, 31. ... Rf5+ 32. Kh2 Dh4 mát! Takiđ eftir ađ 31. Dxc2 Rxc2 32. Hxc3 dugar heldur ekki vegna 32. ... Dxg1. Leikurinn sem Topalov velur dugar samt til sigurs.

30. ...Hxa2 31. h3 Dd6+ 32. f4 Dd3 33. Kh2 De4 34. Hg5 Hc2

- og Wojtaszek gafst upp. Framhaldiđ gćti orđiđ 35. De1 Dxf4 36. Hg3 Rf5 o.s.frv.

Heimađurinn Shakriyar Mamedyarov sigrađi nokkuđ óvćnt, hlaut 5 ˝ vinning úr níu skákum. Í 2. – 4. sćti komu So, Topalov og Kramnik međ 5 vinninga hver.

 

 

Keppni í landsliđsflokki hefst í Hafnarfirđi 10. maí

 

Af ţeim tíu skákmönnum sem taka ţátt í keppni landsliđsflokks á Skákţingi Íslands 2017 hafa fjórir orđiđ Íslandsmeistarar, Hannes Hlífar Stefánsson, Héđinn Steingrímsson, Ţröstur Ţórhallsson og Guđmundur Kjartansson. Ađrir keppendur í stigaröđ eru Björn Ţorfinnsson, Guđmundur Gíslason, Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragnarsson, Sigurbjörn Björnsson og Bárđur Örn Birkisson. Mótiđ fer fram í Hraunseli í Hafnarfirđi. Umferđirnar hefjast kl. 17. 

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 6. maí

Skákţćttir Morgunblađsins


Vignir gerđi jafntefli viđ stórmeistarann - ţrír efstir og jafnir eftir ótrúlega umferđ

2017-05-13 13.01.13

Ţriđja umferđ Íslandsmótsins í skák fór fram í Hafnarfirđi í dag og gekk á ýmsu. Hinn 14 ára Vignir Vatnar Stefánsson (2334) gerđi sér lítiđ fyrir og gerđi jafntefli viđ stórmeistarann Héđin Steingrímsson (2562), ţrefaldan Íslandsmeistara. Reyndar var ţađ ţannig ađ ţađ var stórmeistarinn sem ţurfti ađ hafa fyrir jafnteflinu. Dagur Ragnarsson (2320) og Guđmundur Kjartansson (2437) eru jafnir Héđni á toppnum. Báđir eftir ótrúlega sigra gegn andstćđingum sínum í dag. Hannes Hlífar Stefánsson (2566) er fjórđi međ 2 vinninga.

2017-05-13 12.59.22

Ađeins einni skák lauk međ jafntefli ţ.e. áđurnefndi skák Vignis og Héđins. Björn Ţorfinnsson (2407) vann öruggan sigur á Bárđi Erni Birkissyni (2162) eftir ađ hafa lagt fyrir hann lćvíslega gildru sem Bárđur féll í. Hannes Hlífar sýndi sínar bestu hliđar ţegar hann vann Guđmund Gíslason (2336). Á miklu gekk hins vegar í skákum Kjartanssona Davíđs (2389) og Guđmundar (2437) annars vegar og Dags Ragnarssonar (2320) og Sigurbjörns Björnssonar (2268) hinsvegar. 

2017-05-13 13.00.53

Davíđ virtist lengi vel vera ađ hafa sigur gegn Guđmundi en missti ţráđinn í hróksendatafli. Lék fyrst niđur skákinni í jafntefli og síđar í tap. Skák Sigurbjörns og Dags skipti nokkrum sinnum um eigendur. Í lokin virtist Sigurbjörn hafa nokkra vinningsmöguleika en lék af sér ţá heilum hrók og mátti gefast upp.

Stađan:

1.-3. Dagur Ragnarsson, Héđinn Steingrímsson og Guđmundur Kjartansson 2˝ v.
4. Hannes Hlífar Stefánsson 2 v.
5.-6. Björn Ţorfinnsson og Sigurbjörn Björnsson 1˝ v.
7. Vignir Vatnar Stefánsson 1 v.
8.-10. Bárđur Örn Birkisson, Davíđ Kjartansson og Guđmundur Gíslason ˝ v.

2017-05-13 13.01.52

Fjórđa umferđ fer fram á morgun og hefst kl. 13. Ţá mćtast međal annars forystusauđirnir Guđmundur og Dagur. Héđinn teflir viđ Davíđ. Hannes mćtir Sigurbirni.

Á skákstađ er hćgt ađ fylgjast međ skákunum á stóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hćgt ađ setjast inn í skákskýringaherbergiđ ţar sem hćgt er ađ spá í spilin međ öđrum áhorfendum. 


Ţriđja umferđ Íslandsmótsins hefst kl. 13

18452336_10155378751733217_109898250_o

Ţriđja umferđ Íslandsmótsins í skák hefst núna kl. 13 í dag í Hraunseli, Flatahrauni 3 í Hafnarfirđi. Ţar eru afar góđar ađstćđur fyrir keppendur og áhorfendur. Margar spennandi skákir í dag. Má ţar nefna ađ forystusauđurinn Héđinn mćtir Vigni Vatnar sem og skák Dags Ragnarssonar og Sigurbjörns Björnssonar sem báđar hafa 1˝ vinning

Taktu ţátt í getraun um röđ efstu manna mótsins

Í umferđ dagsins mćtast:

  • FM Vignir Vatnar Stefánsson (˝) - Héđinn Steingrímsson (2)
  • FM Dagur Ragnarsson (1˝)- FM Sigurbjörn Björnsson (1˝)
  • FM Davíđ Kjartansson (˝) - Guđmundur Kjartansson (1˝)
  • SM Hannes Hlífar Stefánsson (1) - FM Guđmundur Gíslason (˝) 
  • Bárđur Örn Birkisson (˝)- AM Björn Ţorfinnsson (˝)  

Á skákstađ er hćgt ađ fylgjast međ skákunum á stjóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hćgt ađ setjast inn í skákskýringaherbergiđ ţar sem hćgt er ađ spá í spilin međ öđrum áhorfendum. 


Vorhátíđ TR fer fram í dag

IMG_8942-620x330Vorhátíđ TR verđur haldin nćstkomandi laugardag ţann 13.maí og hefst fjöriđ klukkan 14. Vorhátíđin er einskonar uppskeruhátíđ allra ţeirra barna sem mćtt hafa á ćfingar Taflfélags Reykjavíkur á ţessari vorönn. Öllum börnum sem hafa sest ađ tafli á byrjendaćfingum, stúlknaćfingum, framhaldsćfingum, afreksćfingum eđa á sjálfri Laugardagsćfingunni er velkomiđ ađ taka ţátt í hátíđinni međ okkur. Einnig öll ţau börn sem teflt hafa fyrir hönd félagsins í Íslandsmóti unglingasveita og Íslandsmóti skákfélaga.

Á Vorhátíđinni teflum viđ 6 umferđa mót međ tímamörkunum 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna sem bćtast viđ eftir hvern leik (5+3). Verđlaunapeningar verđa veittir fyrir 3 efstu sćtin, 3 efstu stúlkur, 3 efstu af ţeim sem eru fćdd 2005 eđa síđar og 3 efstu af ţeim sem eru fćdd 2008 eđa síđar. Ađ auki verđa veittar viđurkenningar fyrir góđa ástundun á vorönninni.

Viđ hlökkum til ađ hitta ykkur öll og fagna saman vel heppnađri vorönn!


Ađalfundur SÍ fer fram 27. maí nk.

Skáksamband Íslands

Ađalfundur Skáksambands Íslands fer fram laugardaginn 27. maí í skákhöll TR, Faxafeni 12. Í viđhengjum međ má finna ársreininga SÍ, lagabreytingatillögu Gunnars Björnssonar um Íslandsmót skákfélaga og svo sjálft fundarbođiđ.

Heimasíđa SÍ.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Meistaramót Skákskóla Íslands fer fram 26.-28. maí

Skákskóli Íslands

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsáriđ 2016/2017 fer fram dagana 26.–28. maí og verđur í tveim styrkleika/stigaflokkum.  Annar flokkurinn verđur skipađur keppendum sem hafa 1600 alţjóđleg elo-stig eđa meira en hinn flokkurinn er skipađur keppendum sem er undir 1600 elo stigum eđa stigalausir. 

Skráning fer fram hér á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.

Vakin er athygli á ţví ađ tímamörk eru mismunandi í flokkunum og fćrri umferđir verđa tefldar í efri styrkleikaflokknum en ţar er teflt um sćmdarheitiđ Meistari  Skákskóla Íslands. Núverandi meistari Skákskólans er Dagur Ragnarsson. 

Ţátttökurétt hafa nemendur skólans og allir ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum skólans eđa hlotiđ ţjálfun á vegum skólans.  

Ađ öđru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til ađ bjóđa völdum einstaklingum til ţátttöku. 

Mótsnefnd mun jafnframt taka afstöđu til óska ţeirra sem ekki ná stigalágmörkum en vilja líka tefla í stigahćrri flokknum.  

Flokkur undir 1600–elo-stigum og stigalausir: 

  1. umferđ: Föstudagur 26. maí kl. 18
  2. umferđ: Föstudagur 26. maí kl. 20 
  1. umferđ. Laugardagur 27. maí kl. 10-13.
  2. umferđ: Laugardagur 27. maí 13 –16
  3. umferđ: Laugardagur 27. maí 16-19 

6.. umferđ: Sunnudagur 28. maí kl. 10-13.

  1. umferđ: Laugardagur 28. maí kl. 13 –16
  2. umferđ: Laugardagur 28. maí kl. 16-19 

Tímamörk í öllum umferđunum 30 30. 

Keppendur geta tekiđ eina eđa tvćr ˝ vinnings yfirsetur í fyrstu fimm umferđunum en tilkynna verđur um yfirsetuna fyrir umferđ og áđur en rađađ er í ţá nćstu. 

 

Flokkur keppenda međ 1600 – elo stig og meira. 

 

Tefldar verđa sex umferđir eftir svissneska kerfinu í báđum flokkum.

Dagskrá mótsins verđur međ eftirfarandi hćtti:

 

Flokkur 1600 alţjóđleg elo – stig og ofar:

 

  1. umferđ: Föstudagur 26. maí kl. 16
  2. umferđ: Föstudagur 26. maí kl. 20

 

  1. umferđ. Laugardagur 27. maí kl. 10
  2. umferđ: Laugardagur 27. maí 15

 

  1. umferđ: Sunnudagur 28. maí kl. 10
  2. umferđ: Sunnudagur 28. maí kl. 15

 

Tímamörk í öllum umferđunum 90 30.

 

Keppendur geta tekiđ eđa tvćr ˝ vinnings yfirsetu í fyrstu fjórum umferđunum en verđa ađ tilkynna um yfirsetuna fyrir umferđina og áđur en rađađ er í nćstu umferđ.

Skákmenn sem eru međ minna en 1600 elo- stig geta óskađ eftir ţví ađ tefla í flokki stigahćrri keppenda og mun mótsnefnd taka afstöđu til ţess og skila niđurstöđu međ góđum fyrirvara. 

 

Verđlaun í flokki 1600 elo +

 

  1. verđlaun: farmiđi á skákmót ađ verđmćti kr. 50 ţús + uppihaldskostnađur kr. 35 ţús.
  2. verđlaun: Farmiđi á skákmót ađ verđmćti kr. 40 ţús.
  3. – 5. sćti Vandađar skákbćkur.

Auk ţess verđa veitt stigaflokkaverđlaun í mótinu:

 

1800 – 2000 elo:

  1. verđlaun: Farmiđi á skákmót ađ verđmćti kr. 40 ţús.

 

1600-1800 elo:

  1. verđlaun: Farmiđi á skákmót ađ verđmćti kr. 40 ţús.

 

Verđlaun í flokki 1600 elo og minna  og stigalausra:

 

  1. verđlaun: farmiđi á skákmót ađ verđmćti kr. 40 ţús:
  2. – 3. verđlaun: vandađar skákbćkur ađ eigin vali.

 

Verđlaun keppenda sem eru undir 1200 elo stig eđa stigalausir:

  1. verđlaun: Vandađar skákbćkur.
  2. verđlaun: Landsliđstreyja „tólfunnar“.
  3. verđlaun: Landsliđstreyja „tólfunnar“.

 

Mótsstig úrskurđa verđi keppendur jafnir ađ vinningum í báđum flokkum - nema í keppni um 1.  sćti í stigahćrri flokknum . Ţá skal teflt um titilinn: 

Meistari Skákskóla Íslands 2017. 

Ađalstyrktarađili Meistaramóts Skákskóla Íslands 2017 er  GAMMA. 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778337

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband