Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2017

Skákmaraþon Hróksins hefst í dag

18342816_1309419885832409_7251357821013678668_n

Hrókurinn efnir til skákmaraþons í þágu stríðshrjáðra barna í Sýrlandi og Jemen, föstudag og laugardag n.k. Hrafn Jökulsson forseti Hróksins hefur sett sér það markmið að tefla 200 skákir á 30 klukkustundum, og er safnað áheitum og framlögum í þágu UNICEF og Fatimusjóðs, sem nú standa fyrir neyðarsöfnun. Meðal áskorenda Hrafns í skákmaraþoninu eru Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, og fjöldi annarra á öllum aldri. 

UN046879

Skákmaraþonið fer fram í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11, við Reykjavíkurhöfn, þar sem vel verður tekið á móti gestum. Hrafn byrjar að tefla klukkan 9 á föstudagsmorgun og ætlar að sitja við til miðnættis. Sama dagskrá verður á laugardaginn, og verður opið hús allan tímann. Fulltrúar UNICEF og Fatimusjóðs veita upplýsingar á staðnum um hina grafalvarlegu stöðu í Sýrlandi og Jemen, þar sem milljónir barna lifa í skugga stríðs og hungursneyðar. 

UN046837

Á síðasta ári söfnuðust um 3 milljónir í skákmaraþoni Hróksins sem runnu óskiptar í neyðarhjálp í Sýrlandi. Kostnaður við maraþonið er enginn og hópur sjálfboðaliða gefur vinnu sína. 

UN046894

Leitað er eftir framlögum og áheitum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hæsta einstaka áheitið er frá velunnara sem ekki lætur nafns síns getið, sem greiða mun 2000 krónur fyrir hverja skák sem Hrafn teflir, eða 400.000 ef skákirnar verða 200 talsins. 

UN044523

Yfirskrift skákmaraþonsins er "Við erum ein fjölskylda" en það eru kjörorð Hróksins. Allir eru hjartanlega velkomnir í Pakkhúsið meðan á maraþoninu stendur. Heitt verður á könnunni, ýmsar veitingar í boði og vel tekið á móti öllum. 

 


Héðinn einn efstur með fullt hús

2017-05-11 17.02.38

Héðinn Steingrímsson (2562) er efstur með fullt hús eftir aðra umferð Íslandsmótsins í skák sem er nýlokið í Hafnarfirði. Héðinn vann í dag Bárð Örn Birkisson (2162) sem barðist hetjulega þótt það hefði ekki dugað. Þrír keppendur hafa 1½ allir eftir góða sigra í dag. Það eru Dagur Ragnarsson (2320), Sigurbjörn Björnsson (2268) og Guðmundur Kjartansson (2437).

2017-05-11 17.02.19-2

Dagur vann Vestfirðinginn Guðmund Gíslason (2336), Sigurbjörn hafði betur gegn Davíð Kjartanssyni (2389) og Guðmundur Kjartansson lagði Vigni Vatnar Stefánsson (2334) að velli. Eina jafnteflisskák umferðirnar varð skák Björns Þorfinnssonar (2407) og Hannesar Hlífars Stefánssonar (2568).

Frídagur er á morgun. Þriðja umferð fer fram á laugardaginn. 

Taktu þátt í getraun um röð efstu manna mótsins

Á skákstað er hægt að fylgjast með skákunum á stóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hægt að setjast inn í skákskýringaherbergið þar sem hægt er að spá í spilin með öðrum áhorfendum. 


Vorhátíð TR haldin laugardaginn 13.maí kl.14-16

IMG_8942-620x330Vorhátíð TR verður haldin næstkomandi laugardag þann 13.maí og hefst fjörið klukkan 14. Vorhátíðin er einskonar uppskeruhátíð allra þeirra barna sem mætt hafa á æfingar Taflfélags Reykjavíkur á þessari vorönn. Öllum börnum sem hafa sest að tafli á byrjendaæfingum, stúlknaæfingum, framhaldsæfingum, afreksæfingum eða á sjálfri Laugardagsæfingunni er velkomið að taka þátt í hátíðinni með okkur. Einnig öll þau börn sem teflt hafa fyrir hönd félagsins í Íslandsmóti unglingasveita og Íslandsmóti skákfélaga.

Á Vorhátíðinni teflum við 6 umferða mót með tímamörkunum 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik (5+3). Verðlaunapeningar verða veittir fyrir 3 efstu sætin, 3 efstu stúlkur, 3 efstu af þeim sem eru fædd 2005 eða síðar og 3 efstu af þeim sem eru fædd 2008 eða síðar. Að auki verða veittar viðurkenningar fyrir góða ástundun á vorönninni.

Við hlökkum til að hitta ykkur öll og fagna saman vel heppnaðri vorönn!


Önnur umferð Íslandsmótsins hefst kl. 17 í dag í Hafnarfirði

Önnur umferð Íslandsmótsins í skák hefst núna kl. 17 í dag í Hraunseli, Flatahrauni 3 í Hafnarfirði. Þar eru afar góðar aðstæður fyrir keppendur og áhorfendur. Margar spennandi skákir í dag. Má þar nefna að Hannes teflir við Björn, Héðinn við Bárð og Guðmudnur við Vigni. 

Taktu þátt í getraun um röð efstu manna mótsins

Í umferð dagsin mætast:

  • AM Björn Þorfinnsson (2407) - SM Hannes Hlífar Stefánsson (2566)
  • FM Guðmundur Gíslason (2336) - FM Dagur Ragnarsson (2320)
  • FM Sigurbjörn Björnsson (2268) - FM Davíð Kjartansson (2389)
  • AM Guðmundur Kjartansson (2334) - FM Vignir Vatnar Stefánsson (2334)
  • SM Héðinn Steingrímsson (2562) - Bárður Örn Birkisson (2162). 

Á skákstað er hægt að fylgjast með skákunum á stjóru tjaldi í skáksalnum. Einnig er hægt að setjast inn í skákskýringaherbergið þar sem hægt er að spá í spilin með öðrum áhorfendum. 


Sumarnámskeið Skákdeildar Breiðabliks

Í sumar stendur Skákdeild Breiðabliks fyrir sumarnámskeiðum fyrir 6 til 12 ára börn. Þjálfari verður Kristófer Gautason, sem hefur séð um þjálfun yngri hóps hjá Skákdeild Breiðabliks í vetur. Aðstoðarþjálfari verður Stephan Briem unglingameistari Breiðabliks. Skáknámskeiðin verða í stúkunni við Kópavogsvöll eftir hádegi (kl 13-16) og byrjar fyrsta námskeiðið 12.júní.

Sjá nánar í meðfylgjandi hlekki. https://www.breidablik.is/as…/ymislegt/sumarnamskeid2017.pdf

Skráning er hérna: https://breidablik.felog.is/


Skákmaraþon Hróksins fyrir stríðshrjáð börn í Sýrlandi og Jemen

18342816_1309419885832409_7251357821013678668_n

Hrókurinn efnir til skákmaraþons í þágu stríðshrjáðra barna í Sýrlandi og Jemen, föstudag og laugardag n.k. Hrafn Jökulsson forseti Hróksins hefur sett sér það markmið að tefla 200 skákir á 30 klukkustundum, og er safnað áheitum og framlögum í þágu UNICEF og Fatimusjóðs, sem nú standa fyrir neyðarsöfnun. Meðal áskorenda Hrafns í skákmaraþoninu eru Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, og fjöldi annarra á öllum aldri. 

UN046879

Skákmaraþonið fer fram í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11, við Reykjavíkurhöfn, þar sem vel verður tekið á móti gestum. Hrafn byrjar að tefla klukkan 9 á föstudagsmorgun og ætlar að sitja við til miðnættis. Sama dagskrá verður á laugardaginn, og verður opið hús allan tímann. Fulltrúar UNICEF og Fatimusjóðs veita upplýsingar á staðnum um hina grafalvarlegu stöðu í Sýrlandi og Jemen, þar sem milljónir barna lifa í skugga stríðs og hungursneyðar. 

UN046837

Á síðasta ári söfnuðust um 3 milljónir í skákmaraþoni Hróksins sem runnu óskiptar í neyðarhjálp í Sýrlandi. Kostnaður við maraþonið er enginn og hópur sjálfboðaliða gefur vinnu sína. 

UN046894

Leitað er eftir framlögum og áheitum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hæsta einstaka áheitið er frá velunnara sem ekki lætur nafns síns getið, sem greiða mun 2000 krónur fyrir hverja skák sem Hrafn teflir, eða 400.000 ef skákirnar verða 200 talsins. 

UN044523

Yfirskrift skákmaraþonsins er "Við erum ein fjölskylda" en það eru kjörorð Hróksins. Allir eru hjartanlega velkomnir í Pakkhúsið meðan á maraþoninu stendur. Heitt verður á könnunni, ýmsar veitingar í boði og vel tekið á móti öllum. 

 


Vigfús sigraði á hraðkvöldi

Næst síðast hraðkvöld vetrarins hjá Huginn fór fram síðasta mánudag 8. maí. 11 keppendur mættu til leiks á einu af sterkari hraðkvöldum vetrarins. Úrslitin voru nokkuð óvænt en Vigfús Ó. Vigfússon sigraði með 7 vinningum af átta mögulegum. Tapið kom strax í annarri umferð þegar hann tapaði örugglega fyrir Vigni Vatnari Stefánssyni.

Síðan fór að ganga betur og í spennandi skák við Örn Leó Jóhannsson þar sem Vigfús stóð betur í lokin var erfitt að tefla til vinnings, með báðar drottningarnar á borðinu og á þeim litla tíma sem eftir var og Örn Leó hafði margar skákir meðan kóngur Vigfúsar varð að flýja í skjól yfir endilangt borðið. Hins vegar hvíldi mátflétta á kónginum hjá Erni Leó og með því að halda henni meira og minna vakandi í gegnum flestar skákirnar var alltaf von til þess að hún myndi gleymast í hita leiksins. Þegar það gerðist þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Úrslitin réðust svo í næst síðustu umferð í skák Vigfúsar við Atla Jóhann Leósson. Í lokin var komið jafnteflislegt endatafl með hrókum og mislitum biskupum. Í barningnum í tímahrakinu í lokin féll Atli Jóhann í lævísa mátgildru en ef hann hefði varast hana hefði sigurinn verið honum næsta vís. Þegar upp var staðið þurfti Vigfús á þessum sigri að halda því með jafntefli hefði hann og Örn Leó verið jafnir að vinningum og Örn Leó unnið á stigum eins sést ef mótstaflan er skoðuð í chess-results. Að þessu sinni virtist skákstjórnin á Reykjavíkurskákmótinu vera fyrirtaks undirbúningur fyrir þetta hraðkvöld enda þurfa skákstjórar að fylgjast með meira en bara einni skák.

Að þessu sinni var Örn Leó Jóhannsson annar með 6,5 vinnga en Örn Leó hefur verið manna sigursælastur á þessum hraðkvöldum í vetur og þriðji var Eiríkur Björnsson með 6 vinnga.

Eftir nokkurt hlé fékk Vigfús að draga í happdrættinu. Að þessu sinni var ekki hægt að draga Björgvin þannig að Jakob Alexander Petersen var dreginn í staðinn. Vigfús valdi Saffran en Jakob Alexander valdi  Dominos. Næsta skákkvöld verður hraðkvöld mánudaginn 29. maí.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Vigfús Ó. Vigfússon, 7v/8
  2. Örn Leó Jóhannsson, 6,5v
  3. Eiríkur Björnsson, 6v
  4. Vignir Vatnar Stefánsson, 5,5v
  5. Atli Jóhann Leósson, 4,5v
  6. Jakob Alexander Petersen, 4,5v
  7. Sigurður Freyr Jónatansson, 4,5v
  8. Gunnar Nikulásson, 3,5v
  9. Hörður Jónasson, 3v
  10. Einar Tryggvi Petersen, 2v
  11. Hjálmar Sigurvaldason, 1v

Úrslitin í chess-results:


Ungu mennirnir byrja vel á Íslandsmótinu í Hafnarfirði

Það er óhætt að segja að ungu mennirnir hafa byrjað vel á Íslandsmótinu í skák sem hófst í Hafnarfirði í dag. Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, lék fyrsta leik mótsins, drottningarpeðinu fram um tvo reiti, fyrir hinn 14 ára Vigni Vatnar Stefánsson gegn heimamanninum, Sigurbirni Björnssyni. Vignir sótt fast að Hafnfirðingnum sem reyndist vandanum vaxinn og hélt jafntefli í afar spennandi skák.  

Taktu þátt í getraun um röð efstu manna mótsins

Annar ungur og efnilegur skákmaður Bárður Örn Birkisson, 17 ára, var mjög nærri því að leggja Íslandsmeistarann frá 2014, Guðmund Kjartansson, að velli. Guðmundur sýndi mikla seiglu þegar hann náði að halda jafntefli. 

Dagur Ragnarsson, 19 ára, gerði svo öruggt jafntefli gegn hinum tólffalda Íslandsmeistara í skák, Hannesi Hlífari Stefánssyni. 

Allir ungu mennirnir gerðu því gott jafntefli í dag. 

Héðinn Steingrímsson vann öruggan sigur á Birni Þorfinnssyni sem þótti að mati áhorfenda á skákstað leggja fullmikið á stöðuna.  

Davíð Kjartansson og Guðmundur Gíslason tefldu lengst allra. Skákinni lauk með jafntefli eftir harða baráttu.

Héðinn hefur því þegar tekið forystuna. Sá eini sem vann í dag. Óhætt er þó að segja skákmennirnir hafi ekki verið friðsamir enda voru allar skákir tefldar í botn. 

Önnur umferð hefst fer fram á morgun og hefst kl. 17. Teflt er í Hraunseli, Flatahrauni 3. Þá mætast: 

  • AM Björn Þorfinnsson (2407) - SM Hannes Hlífar Stefánsson (2566)
  • FM Guðmundur Gíslason (2336) - FM Dagur Ragnarsson (2320)
  • FM Sigurbjörn Björnsson (2268) - FM Davíð Kjartansson (2389)
  • AM Guðmundur Kjartansson (2334) - FM Vignir Vatnar Stefánsson (2334)
  • SM Héðinn Steingrímsson (2562) - Bárður Örn Birkisson (2162). 

Íslandsmótið hefst kl. 16:45 í Hafnarfirði í dag

SkaksambandIslandsLogo

Íslandsmótið í skák 2017 verður sett í dag kl. 16:45 í Hraunseli (húsnæði Félags eldri borgara), Flatahrauni 3, í Hafnarfirði. Mótið stendur til 20. maí. 

Taktu þátt í getraun um röð efstu manna mótsins

Breytingar urðu á keppendalista mótsins í dag þegar Davíð Kjartansson tók sæti Þrastar Þórhallssonar sem forfallaðist. Í dag var dregið um töfluröð. Í fyrstu umferð mótsins mætast:

  • SM Héðinn Steingrímsson (2562) - AM Björn Þorfinnsson (2407)
  • Bárður Örn Birkisson (2162) - AM Guðmundur Kjartansson (2437)
  • FM Vignir Vatnar Stefánsson (2334) - FM Sigurbjörn Björnsson (2268)
  • FM Davíð Kjartansson (2389) - FM Guðmundur Gíslason (2336)
  • FM Dagur Ragnarsson (2320) - SM Hannes Hlífar Stefánsson (2566).

Forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, Guðlaug Kristjánsdóttir, mun setja mótið fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar og leika fyrsta leik þess. 

Skákáhugamenn eru hvattir til að fjölmenna í Fjörðinn í dag og vera viðstaddir setningu mótsins. Á skákstað verður hægt að fylgjast með skákunum á stóru tjaldi. 


Skákþáttur Morgunblaðsins: Frábær endasprettur færði Giri sigur

GOS1171L0Til þess að slíta sig frá öðrum og ná toppsætinu á opnu móti sem telur yfir 200 keppendur þarf að vinna nokkrar lykilskákir og taka áhættu. Anish Giri hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að reiða sig um of á tæknilega þátt skákarinnar en þegar hann hefur mætt til leiks gegn sterkustu skákmönnum heims rignir niður jafnteflum. Minnisstætt er t.d. þegar hann gerði jafntefli í öllum 14 skákum sínum í áskorendakeppninni í Moskvu í fyrra.

Á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í Hörpunni á fimmtudaginn fetaði hann kunnuglegar slóðir framan af; hann takmarkaði áhættuna, vann skákir sínar gegn minni spámönnunum og hélt sig með hjörðinni sem fremst fór. Á lokasprettinum virtist hann vakna til vitundar um það að til að ná sigri yrði hann að þyrla upp ryki óvissunnar; sigrar hans með svörtu í áttundu og níundu bentu a.m.k. í þá átt. Úrslitaskák mótins má telja viðureign hans í 9. umferð við „manninn með sólgleraugun“, Baadur Jobava, sem er án efa einhver hæfileikaríkasti skákmaður heims. Skákir þessa litríka Georgíumanns eru alltaf athyglisverðar og þegar hann er í stuði halda honum engin bönd; á Ólympíumótinu í Baku fékk hann 7 ½ v. úr tíu skákum á 1. borði fyrir Georgíu og lagði að velli skákmenn á borð við Topalov, Ponomariov og Rapport. Í skákinni sem hér fer á eftir reyndist áhorfendum erfitt að ráða í þær myndir sem birtust á skákborðinu. „Vélarnar“ sátu þó við sinn keip og mátu ástandið á borðinu þannig að að allt væri í himnalagi hjá Giri jafnvel þó svo að peð hans á drottningarvæng þurkuðust út:

Reykjavikurskákmótið 2017; 9. umferð

Baadur Jobnava Anish Giri

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Rb3 Rbd7 9. Be2 Be7 10. Dd3 Dc7 11. O-O

Eftir að hafa hafnað „tillögu“ Giris í 7. leik, að tefla upp „eitraða peðs-afbrigðið“, sem hefst með 8. Dd2 Dxb2 9. Hb1 eða 9. Rb3, sættir Jobava sig við stöðu sem er þægilegt að tefla með svörtu.

11. ... b5 12. a3 Bb7 13. Kh1 Hc8 14. Hae1 O-O 15. Dh3 Hfe8 16. Bd3 e5 17. fxe5 dxe5 18. He3!?

Hér mátti eiga von á 18. Rxd5 en eftir 18. ... Rxd5 19. exd5 Rf8 kemst hvítur ekkert áfram.

18. ... Rf8 19. Re2 Dd7 20. Hf5 De6 21. Rd2 R6d7 22. Bxe7 Hxe7 23. Rb3 g6 24. Dg3 Rf6 25. Hf1 R8d7 26. De1 Kg7 27. Rg3 h5!

„Najdorf-elementin“ eru hér komin fram í öllu sínu veldi.

28. Re2 Hh8 29. h3 Db6 30. Rg1 h4!

Eftir þennan einfalda leik þarf hvítur að glíma við veikleika á g3 og f4.

31. Rf3 Hee8 32. Kh2 Hh5 33. He2 Heh8 34. Df2 Dxf2 35. Hfxf2 g5 36. Hf1 g4 37. Rfd2 Hg5 38. c4 Rh5 39. cxb5 axb5 40. Bxb5 Rdf6 41. Rc5 Bc8 42. Hee1 Rf4 43. hxg4 Rxg4 44. Kh1 Rf6 45. Rd3 Hg3!

GOS1171M5- Sjá stöðumynd 1 -

Ein aðalhótun svarts er að leika h-peðinu til h3. Þannig má svara 47. Rxf4 með 47. ... h3! t.d. 48. gxh3 Bxh3! 49. Kh2 exf4 50. Hxf4 Hg2+ og riddarinn á d2 fellur.

46. Hf3 Bg4 47. Hfe3 Hxg2

Ekkki slæmt en „Houdini 5“ bendir á að 47. ... Bd7! sé sterkara t.d. 48 Bxd7 Rxd3 o.s.frv.

48. Rc4 Hc2 49. Rdxe5?

Hann varð að leika 49. Rcxe5 en svartur ætti að vinna eftir 49. .. Rg2.

GOS1171M549. ... R6h5!

 

Frábær leikur sem gerir út um taflið. Hvítur ræður ekkert við riddarana.

50. Kg1 Rg3 51. Hxg3 hxg3 52. Re3 Rh3+

- og Jobava lagði niður vopnin. Hann verður mát í næsta leik.

 

------------------

Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 29. apríl

Skákþættir Morgunblaðsins


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 8778342

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband