Bloggfćrslur mánađarins, maí 2017
9.5.2017 | 00:05
Íslandsmótiđ í skák fer fram í Hafnarfirđi 10.-20. maí
Íslandsmótiđ í skák 2017 fer fram í Hraunseli (húsnćđi Félags eldri borgara), Flatahrauni 3, í Hafnarfirđi dagana 10.-20. maí nćstkomandi.
Ţađ er mikil ánćgja innan Skáksambands Íslands ađ mótiđ skuli vera haldiđ í Hafnarfirđi, eftir 14 ára hlé. Á nćsta skólaári fyrirhugar Skáksamband Íslands ađ auka mjög kraftinn viđ skákkennslu í Hafnarfirđi í samvinnu viđ Skákdeild Hauka og Hafnarfjarđarbć.
Keppendalistinn í ár er hvorttveggja í senn sterkur og afar athyglisverđur. Íslandsmeistarinn frá ţví í fyrra, Jóhann Hjartarson, mun ţó ekki verja titil sinn í ár.
Međal keppenda eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, tólffaldur Íslandsmeistari, og Héđinn Steingrímsson, ţrefaldur Íslandsmeistari. Tveir ađrir fyrrverandi Íslandsmeistarar taka ţátt en ţađ eru Guđmundur Kjartansson (2014) og Ţröstur Ţórhallsson (2012). Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson lćtur sig ekki vanta nú frekar en endranćr, enda margfaldur verđlaunahafi á mótinu, og til alls líklegur.
Međal annarra keppenda má nefna efnilegasta skákmann landsins, Vigni Vatnar Stefánsson, sem er ađeins 14 ára og einn sá yngsti sem teflt hefur í landsliđsflokki. Vignir komst í fréttirnar fyrir skemmstu ţegar hann varđ sá yngsti í skáksögunni hérlendis til ţess ađ fara yfir 2400 skákstig.
Heimamenn eiga sinn fulltrúa en međal keppenda er Hafnfirđingurinn Sigurbjörn Björnsson.
Ađrir keppendur eru Vestfirđingurinn knái, Guđmundur Gíslason, sem oft hefur náđ eftirtektarverđum árangri á Íslandsmótinu, ungmennin Dagur Ragnarsson og Bárđur Örn Birkisson, eru báđir tefla nú á sínu fyrsta Íslandsmóti. Sá síđarnefndi er unglingameistari Íslands.
Keppendalistinn (skákstig í sviga)
- Hannes Hlífar Stefánsson (2566) - stórmeistari
- Héđinn Steingrímsson (2562) - stórmeistari
- Guđmundur Kjartansson (2437) alţjóđlegur meistari
- Ţröstur Ţórhallsson (2420) - stórmeistari
- Björn Ţorfinnsson (2407) alţjóđlegur meistari
- Guđmundur Gíslason (2336) FIDE-meistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2334) FIDE-meistari
- Dagur Ragnarsson (2320) FIDE-meistari
- Sigurbjörn Björnsson (2268) FIDE-meistari
- Bárđur Örn Birkisson (2162)
Mótiđ verđur sett miđvikudaginn 10. maí kl. 16:45. Forseti bćjarstjórnar Guđlaug Kristjánsdóttir mun setja mótiđ fyrir hönd Hafnarfjarđar og leika fyrsta leik ţess. Dregiđ verđur um töfluröđ degi fyrir mótiđ eđa ţann 9. maí kl. 12:30.
Góđ ađstađa verđur á skákstađ fyrir áhorfendur. Hćgt verđur ađ fylgjast međ skákunum ţar á tjaldi. Auk ţess verđa beinar útsendingar á vefsíđu mótsins, http://icelandicchesschampionship.com/.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Hollenski stórmeistarinn Anish Giri varđ einn efstur á 35. Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í Hörpu í gćr. Giri vann landa sinn Erwin lAmi fremur auđveldlega í ađeins 30 leikjum en ţegar flestum skákum á efstu borđum var ólokiđ var ljóst ađ enginn gat náđ Giri sem ţá hafđi ţá hlotiđ 8˝ vinning af 10 mögulegum. Í 2.-5. sćti komu Indverjinn Gupta, Hollendingurinn Van Foreest, Armeníumađurinn Serge Movsesian og Bandaríkjamađurinn Gata Kamsky, allir međ 8 vinninga
Sigur Giri kom ekki á óvart ţar sem hann var stigahćsti keppandinn en í byrjun apríl sat hann í 11. sćti heimslistans. Giri sem er 22 ára gamall hefur um nokkurra ára skeiđ veriđ fremsti skákmađur Hollendinga og hefur svipađa yfirburđastöđu ţar í landi og Max Euwe, heimsmeistari 1935-37, hafđi áđur og Jan Timman síđar. Hann er fćddur í Rússalandi en áriđ 2008 fluttist hann til Hollands međ foreldrum sínum, rússneskri móđur og nepölskum föđur. Áđur höfđu ţau búiđ í Japan. Hann talar reiprennandi sex tungumál: rússnesku, japönsku, hollensku, ensku, ţýsku og nepölsku. Skákstíll hans er léttur og leikandi. Hann getur státađ af betra skori í innbyrđis viđureignum sínum viđ norska heimsmeistarann Magnús Carlsen. Í lokaumferđinni í gćr kom Giri mönnum sínum ţannig fyrir á drottningarvćng ađ L´Ami gat sig hvergi hrćrt og tapađi án ţess ađ fá rönd viđ reist:
Reykjavíkurskákmótiđ 2017 10. umferđ:
Anish Giri Erwin L´Ami
Pólsk vörn
1. Rf3 Rf6 2. d4 e6 3. g3 b5 4. Bg5 Bb7 5. Rbd2 d5
Eđlilegra er 5. ... c5. Ţó ađ svartur nái í augnablikinu ađ loka á hvíta hornalínuna á hún eftir ađ galopnast.
6. e3 a6 7. a4 b4 8. Rb3 Rbd7
Hann gat leikiđ 8. ... a5 en eftir 9. Re5 er ađstađan allt annađ en ţćgileg.
9. Ra5! Dc8 10. Bxf6 Rxf6 11. c4 dxc4 12. Rxb7 Dxb7 13. Bg2 c3 14. bxc3 bxc3 15. O-O Bb4 16. Re5 Rd5 17. a5!
17. ... Hb8 18. Da4+ Db5 19. Bxd5! exd5 20. Rc6 O-O 21. Hfb1 Dc4?
Eftir ţetta er stađan vonlaus. Hann gat barist áfram međ 21. .... Dxa4 22. Hxa4 Hb5 23. Hbxb4 c2 ţó ađ hróksendatafliđ sem kemur upp eftir 24. Ha1 Hfb8 25. Hc1 Hxb4 26. Rxb4 Hxb4 27. Hxc2 sé trúlega tapađ.
23. Rxb4 Hb8 24. Rc2 De2 25. Re1 h6 26. Dc2 Dc4 27. Rd3 Hb3 28. Kg2 g6 29. Rc5 Hb2 30. Dd3
og svartur gafst upp.
Jóhann, Bragi og Hannes Hlífar efstir íslensku ţátttakendanna
Jóhann Hjartarson, Bragi Ţorfinnsson og Hannes Hlífar Stefansson náđu bestum árangri islensku skákmannanna, hlutu 7 vinninga og enduđu í 11. 29. sćti. Hannes tók tvćr ˝-vinnings yfirsetur en eftir fremur slysalegt tap um miđbik mótsins átti hann ekki möguleika á ađ blanda sér í baráttu efstu manna. Jóhann og Bragi teldu allar tíu skákirnar og bćttu báđir ćtlađan árangur sinn. Árangur íslensku keppendanna sem voru 88 talsins var undir međallagi miđađ viđ sum fyrri mót en fjölmargra sterkra íslenskra skákmanna var saknađ og framvarđasveitin ţví full-ţunnskipuđ. Margir hćkkuđu myndarlega á stigum, enginn ţó meira en Birkir Ísak Jóhannsson sem bćtti sig um 122 elo-stig. Ađrir sem hćkkuđu sig um 50 elo stig eđa meira voru Jón Ţór Lemery, 79 elo-stig, Arnar Heiđarsson, 77 elo-stig, Nansý Davíđsdóttir, 72 elo-stig, Jóhann Arnar Finnsson 62 elo-stig. Ađal styrktarađili 35. Reykjavíkurskákmótins var GAMMA.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 28. apríl 2017
Spil og leikir | Breytt 29.4.2017 kl. 17:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2017 | 07:00
Hrađkvöld hjá Hugin í kvöld
Spil og leikir | Breytt 4.5.2017 kl. 08:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2017 | 14:46
Benedikt Briem Íslandsmeistari í skólaskák í yngri flokki - aukakeppni ţarf í ţeim eldri
Landsmótinu í skólaskák lauk í dag á Akureyri. Benedikt Briem (1431) kom sá og sigrađi í yngri flokki (1.-7. bekk) Landsmótsins í skólaskák. Hann hlaut 6 vinninga í sjö skákum. Róbert Luu (1733) og Gunnar Erik Guđmundsson (1247) urđu jafnir í 2.-3. sćti međ 5,5 vinninga en Róbert fékk silfriđ eftir stigaútreikning.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Vignir Vatnar Stefánsson (2334) og Hilmir Freyr Heimisson (2144) komu jafnir í mark međ 6 vinninga í eldri flokki og ţurfa ađ heyja aukakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Ţađ einvígi dregst fram yfir 20. maí vegna ţátttöku Vignis í landsliđsflokksins Íslandsmótsins í skák. Stephan Briem varđ ţriđji međ 5 vinninga og fćr bronsiđ.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Ţađ er athyglisvert ađ Kópavogsbúar hirđa öll sex verđlaunin.
Stefán Bergsson, Landsmótsstjóri, mun skrifa ítarlegan pistil um gang mótsins á morgun.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2017 | 23:41
Síđasta umferđ á Landsmóti framundan
Sjötta og nćstsíđasta umferđ á Landsmótinu í skólaskák fór fram seinni partinn og í kvöld. Margar spennandi skákir voru tefldar og sérstaklega í eldri flokki á efstu borđunum tveimur. Á öđru borđi stýrđi Nansý Davíđsdóttir hvítu mönnunum gegn Vigni Vatnari Stefánssyni. Nansý tefldi byrjunina af miklum krafti og hafđi drottninguna af Vigni en gaf í stađinn tvo hróka. Nansý ţáđi ađ lokum jafntefli í stöđu ţar sem möguleikarnir voru allir hennar. Á fyrsta borđi hafđi Hilmir Freyr hvítt gegn Stephan Briem. Hilmir fékk betri stöđu en stađa Stephans var nokkuđ traust ţó svo kóngurinn hafi lengi vel veriđ á d7 í miđtaflinu. Miđborđiđ var ţó lokađ en Hilmir Freyr var sjálfum sér líkur og tók nokkra áhćttu viđ ađ sprengja upp miđborđiđ. Viđ ţađ lifnađi biskup Stephans á b7 viđ og fékk svartur ţá ýmsa sénsa. Fljótlega skiptist svo upp í endatafl ţar sem Hilmir stóđ betur. Stephan varđist ţó af mikilli hörku og tryggđi sér gott jafntefli gegn eldri og reyndari keppanda.
Hilmir og Vignir eru ţví enn efstir og jafnir en nú međ einn vinning niđur og hafa ţví fimm vinninga af sex mögulegum. Stpehan er í ţriđja sćti međ fjóra vinninga.
Í yngri flokki er Benedikt Briem einn efstur međ fimm vinninga. Í jöfnum flokki hefur taflmennska Benedikts veriđ hvađ best og hann gert fá mistök og nýtt sér ţá sénsa sem hafa gefist. Róbert Luu og Gunnar Erik koma í öđru til ţriđja sćti međ fjóra og hálfan vinning.
Síđasta umferđ hefst 10:00 á sunnudagsmorgni.
Paranir:
http://www.chess-results.com/tnr279319.aspx?lan=1&art=2&rd=7&wi=821
http://www.chess-results.com/tnr279386.aspx?lan=1&art=2&rd=7&wi=821
6.5.2017 | 14:05
Spennan eykst á Landsmóti
Í morgun fór fram fimmta umferđ Landsmótsins í skólaskák. Síđustu skák umferđarinnar var rétt ađ ljúka ţar sem Hilmir Freyr lagđi Nansý eftir fjögurra tíma setu. Hilmir pressađi alla skákina án ţess ađ fá mikiđ meir en örlítiđ betra tafl. Tíminn minnkađi og í tímahraki beggja lék Nansý af sér sem Hilmir nýtti sér um leiđ. Vignir Vatnar vann sína skák örugglega og leiđa ţeir félagar ţá áfram flokkinn međ hálfan vinning niđur.
Í yngri flokki var mest spennandi skákin milli ţeirra Kristjáns Dags Jónssonar og Róberts Luu. Í peđsendatafli átti Róbert mun ţćgilegra tafl og hreinan vinningsleik í einni stöđunni. Róbert gáđi hins vegar ekki ađ sér, lék vitlausu peđi sem gaf Kristjáni fćri á snotru gegnumbroti sem tryggđi honum unniđ tafl. Á efsta borđi gerđu Gunnar Erik og Benedikt Briem jafntefli. Ţessi úrslit ţýđa ađ Benedikt er einn efstur međ fjóra vinninga en Róbert, Kristján, Freyja og Gunnar Erik koma í humátt eftir međ ţrjá og hálfan vinning. Mikil spenna framundan í yngri flokki.
Nánari úrslit á chess-results.com.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2017 | 08:42
131 krakki tók ţátt í Skólameistaramóti Kópavogs!
Skólameistaramót Kópavogs 2017 í 1.-4.bekk fóru fram föstudaginn 5.mai í stúkunni viđ Kópavogsvöll. Alls tóku 131 skákkrakkar ţátt. 50 í 3.-4. bekk, 49 í 2.bekk og 32 í 1.bekk.
Úrslit:
Skólameistarar Kópavogs
- 1.bekk: Guđrún Fanney Briem Hörđuvallaskóla
- 2.bekk: Guđmundur Orri Sveinbjörnsson Vatnsendaskóla
- 3.-4.bekk: Tómas Möller Vatnsendaskóla
1.bekkur strákar
- Steinar Logi Halldórsson Vatnsendaskóla 4 v
- Kirill Igorsson Hörđuvallaskóla 4 v
- Arnór Víglundsson Salaskóla 4 v
1.bekkur stelpur
- Guđrún Fanney Briem Hörđuvallaskóla 5v
- Elín Lára Jónsdóttir Salaskóla 3,5 v
- Ţórhildur Helgadóttir Smáraskóla 2 v
2.bekkur strákar
- Guđmundur Orri Sveinbjörnsson Vatnsendaskóla 6 v
- Friđbjörn Orri Friđbjörnsson Vatnsendaskóla 5 v
- Mikael Bjarki Vatnsendaskóla 5v
2.bekkur stelpur
- Hildur Sara Björnsdóttir Smáraskóla 5 v
- Berglind Edda Birkisdóttir Salaskóla 3 v
- Sunna Dögg Björgvinsdóttir Smáraskóla 3 v
3.-4.bekkur strákar
- Tómas Möller Vatnsendaskóla 8 v
- Rayan Sharifa Álfhólsskóla 7 v
- Fannar Smári Jóhannsson Hörđuvallaskóla 6 v
3.-4.bekkur stelpur
- Katrín María Jónsdóttir Salaskóla 6 v
- Sesselja Kjartansdóttir Salaskóla 4 v
- Vigdis Erla Davíđsdóttir Smáraskóla 3,5 v
- Arey Amelía Sigţórsdóttir Salaskóla 3 v
Ţađ var Skákdeild Breiđabliks sem sá um mótiđ međ ađstođ skákkennara í Kópavogi.
Móts&skákstjóri var Halldór Grétar Einarsson
Úrslit á Chess-Results:
- 1.bekkur: http://chess-results.com/tnr279379.aspx?lan=1
- 2.bekkur: http://chess-results.com/tnr279376.aspx?lan=1
- 3.- 4.bekkur: http://chess-results.com/tnr279375.aspx?lan=1
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2017 | 22:36
Landsmót hafiđ á Akureyri
Landsmót í skólaskák hófst í dag á Akureyri. Teflt er viđ góđar ađstćđur í Rósenborg sem var áđur Barnaskóli Akureyrar og ţar áđur Barnaskóli Íslands eins og hann eitt sinn hét. Flestir keppendur gista einnig í skólanum og ţegar ţessar línur eru ritađar er hópurinn saman úti á fótboltavelli ađ hressa sig viđ eftir langa skátsetu og pizzuát.
Í dag voru tefldar fjórar atskákir. Gekk á ýmsu í ţeim og margar jafnar og spennandi skákir tefldar. Í eldri flokki eru efstir og jafnir međ ţrjá og hálfan vinning ţeir Hilmir Freyr Heimisson og Vignir Vatnar Stefánsson. Ţeir gerđu tilţrifalítiđ jafntefli í ţriđju umferđ en hafa unniđ örugga sigra í öđrum skákum sínum.
Í yngri flokki eru efstir međ ţrjá og hálfan vinning ţeir Robert Luu og Benedikt Briem. Ţeir gerđu jafntefli í vel tefldri skák. Róbert pressađi framan af skákinni en Benedikt varđist vel og fćrin voru hans megin undir lok skákarinnar.
Klukkan tíu í fyrramáliđ hefst fimmta umferđ og byrjar ţá kappskákhluti mótsins.
Paranir flokkanna má sjá á tenglunum ađ neđan:
http://www.chess-results.com/tnr279319.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821
http://www.chess-results.com/tnr279386.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821
5.5.2017 | 20:33
Róbert endurkjörinn forseti Vinaskákfélagsins
Ađalfundur Vinaskákfélagsins haldin ţann 4 maí 2017.
Ađalfundur Vinaskákfélagsins var haldin ţann 4 maí 2017. Öll almenn ađalfundastörf voru afgreidd, eins og skýrsla stjórnar, Uppgjör reikninga félagsins og lagabreytingar.
Sjálfkjöriđ var í flest embćtti en ţó dró einn varamađur sig til baka ţegar áhugi kom frá öđrum í ţađ embćtti.
Hér er hin nýja stjórn:
Forseti: Róbert Lagerman
Varaforseti: Hörđur Jónasson
Gjaldkeri: Héđinn Briem
Ritari: Hjálmar Sigurvaldason
Međstjórnandi: Ingi Tandri Traustason
Varamađur 1: Ađalsteinn Thorarensen
Varamađur 2: Ţorvaldur Ingveldarson
Verndari félagsins er sem fyrr Hrafn Jökulsson.
Spil og leikir | Breytt 6.5.2017 kl. 13:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2017 | 16:42
Tómas Veigar skákmeistari Hugins á Húsavík
Tómas Veigar Sigurđarson vann sigur á meistaramóti Hugins sem lauk 30. apríl sl. á Húsavík. Tómas fékk 4 vinninga af 5 mögulegum. Rúnar Ísleifsson, Smári Sigurđsson og Ćvar Ákason urđu í 2-4. sćti međ 3,5 vinninga hver en Rúnar hreppti 2. sćtiđ, Smári 3. sćtiđ og Ćvar 4. sćtiđ eftir stigaútreikning.
Tefldar voru 5 umferđir međ tímamörkunum 90+30/leik og teflt var á Laugum, Húsavík og Vöglum.
Nokkur óvćnt úrslit litu dagsins ljós í mótinu og ber ţađ hćst óvćnt tap Hermanns fyrir Piotr Wipior í 3. umferđ og sömuleiđs óvćnt tap Sighavts fyrir Andrzej Witala í lokaumferđinni.
Verđlaun voru afhent fyrir meistaramótiđ á lokaskákćfingu á Húsavík í gćrkvöldi og ţá voru međfylgjandi myndir teknar.
Nánar á heimasíđu Hugins.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 10
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 8778346
Annađ
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar