Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júní 2015

Ađalfundur TR fer fram á mánudaginn

Ađalfundur Taflfélags Reykjavíkur verđur haldinn mánudaginn 15. júní í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12.  Fundurinn hefst kl. 20.  Dagskrá er venjuleg ađalfundarstörf.  Hér ađ neđan fylgja lagabreytingatillögur sem liggja fyrir.


Riddarinn: Hvert ćfingamótiđ öđru betra!

RIDDARINN - skákklúbbur eldri borgarra í Vonarhöfn

Ekkert lát er á skákskylmingum eldri skákmanna í Vonarhöfn ţó sól hćkki á lofti.  Ţar hittast gamlir skákskarfar til tafls á miđvikudögum allan ársins hring. Margir ţeirra tefla líka  í öđrum klúbbum og skemmta sér viđ ađ vega mann og annan hvar sem fćri gefst – ţó í óeiginlegri merkingu sé.

Síđustu mót hafa fariđ harđnandi međ ţátttöku reyndra meistara af gamla skólanum. Almennt er taflmennskan mjög lífleg og enginn annars bróđir í leik.  Spennan og vígamóđurinn er  ţađ sem ţessir gömlu fuskar sćkja í og ţrífast á.  Allir skilja ţó sáttir enda skiptir góđur félagsskapur öllu máli.

ŢRÍR FRĆKNIR ELDRI SKÁKMENN - ESE

Síđastliđinn miđvikudag var ţađ Jón Ţ. Ţór sem brá sér í víking eftir nokkurt hlé og fór međ sigur af hólmi međ 9.5 vinningi af 11 mögulegum.  Kristján Stefánsson sá óútreiknanlegi ástríđuskákmađur skaust öllum á óvart upp í annađ sćtiđ, Gunnar Gunnarsson varđ ţriđji og Ingimar Halldórsson fjórđi.  Fyrir viku síđan var ţađ hins vegar Gunnar sem vann međ 10.5 v., Ingimar annar og Jóhann Örn ţriđji.  Og fyrir hálfum mánuđi var ţađ svo Ingimar sem gaf engin griđ og sigrađi međ sama vinningafjölda. 

Taflmennska eldri skákmanna gefur lífinu mikiđ gildi fyrir ţá – brýtur upp tilbreytingaleysi tilverunnar- og dreifir huga ţeirra frá Alţingisrásinni og hinum lákúrulegu umrćđum ţar,  ástandinu í málefnum aldrađra og ţjóđmálum almennt. Gamall hálfútbrunninn eldmóđur blossar upp og ţeim halda engin bönd viđ ađ freista ţess ađ máta andstćđinginn eđa verđa sjálfir mát ella.  J

  Sjá má svipmyndir af vettvangi og vopnaviđskiptum á međf. myndskeiđum:

https://youtu.be/_X8

https://youtu.be/2KVuc107Vzc

https://youtu.be/fr_mMryipN0

Riddarinn - mótstafla 03.06.15 -ese

Öll  úrslit á www.riddarinn.net.  

 


Mjóddarmót Hugins fer fram á laugardaginn

Mjóddarmótiđ fer fram laugardaginn 13. júní í göngugötunni í Mjódd.  Mótiđ hefst kl. 14 og er mótiđ öllum opiđ. Góđ verđlaun í bođi.  Á síđasta ári sigrađi Frú Sigurlaug en fyrir hana tefldi Einar Hjali Jensson.  Tefldar verđa sjö umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma.  Skráning fer fram í síma 866-0116 og á skak.is Upplýsingar um skráđa keppendur má finna hérŢátttaka er ókeypis!

Mjóddarmótiđ var fyrst haldiđ 1999 og hét ţá Kosningamót Hellis og fór fram á kjördegi. Á fyrsta mótinu sigrađi Hannes Hlífar Stefánsson sem tefldi fyrir Símvirkjann. Mótiđ fékk fljótlega nafniđ Mjóddarmótiđ enda ekki hćgt ađ halda kosningamót á hverju ári og ekki var mögulegt ađ halda mótiđ á kjördegi eftir ađ félagiđ flutti í núverandi húsnćđi.

Verđlaun eru sem hér segir:

  • 1. 15.000
  • 2. 10.000
  • 3.   5.000

Skráning:


Friđrik međ glćsiskák - sex Íslendingar í beinni í morgunsáriđ

Friđrik einbeittur í upphafi skákar

Friđrik Ólafsson sýndi ađ hann hafi engu gleymt ţegar hann vann glćsilegan sigur í ţriđju umferđ Sardiníumótsins í gćr.  Fórnađi skiptamun og svo fórn og mátađi í framhaldinu. Friđrik hefur 2,5 vinning og er efstur Íslendinganna ásamt Jóhanni Hjartarsyni, Stefáni Bergssyni og Heimi Páli Ragnarssyni.

 

Stefán Bergsson međ góđan sigur

Jóhann ţurfti verulega ađ hafa fyrir sínum andstćđingi sem var 13 ára og greinilega mikiđ efni. Stefán vann góđan sigur í gćr en Heimir Páll gerđi jafntefli viđ skákmann sem var 600 skákstigum hćrri en hann. Var sérstaklega gaman ađ fylgjast međ ţeirri skák ţar sem andstćđingurinn var alveg fara af taugum á međan Heimir Páll var pollrólegur. Heimir hefur 2,5 vinning ţrátt fyrir ađ hafa teflt uppfyrir sig allt mótiđ.

Heimir Páll hefur átt mjög gott mót

Ţorsteinn Magnússon bćttist viđ í hóp ungra skákmanna sem hafa hafa stigahćrri andstćđinga.  Steini vann međ smellinni taflmennsku.

Hörđur og sá blindi

Hörđur Jónasson tefldi viđ fulltrúa blindra á mótinu en Hörđur ţurfti ađ segja leikinn upphátt og leika fyrir andstćđinginn.

Stađa efstu íslensku skákmannanna:

  • 6-12. Jóhann Hjartarson, Friđrik Ólafsson, Heimir Páll Ragnarsson og Stefán Bergsson 2,5 v.
  • 13-43. Gunnar Björnsson, Áskell Örn Kárason, Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Óskar Víkingur Davíđsson 2 v.
  • 44.-58. Margeir Pétursson, Óskar Long Einarsson og Loftur Baldvinsson 1,5 v.

Tvćr umferđir fara fram í dag og hefjast ţćr klukkan 7 og 13:30. Sex Íslendingar eru í beinni í fyrri umferđ dagins.

Ţađ eru Friđrik sem teflir viđ ítalska stórmeistarann Sabino Brunello, Jóhann Hjartarson, Stefán Bergsson, Áskell Örn, Margeir Pétursson og yđar einlćgur.

Höfundur

Bestu kveđjur frá Sardiníu,
Gunnar

 


Gott gengi íslensku keppendanna í Sardiníu

Margeir og Áskell

Önnur umferđ Bjarnarhöfđa-mótsins fór fram í Sardiníu í gćr.  Jóhann Hjartarson vann en Margeir Pétursson og Friđrik Ólafsson gerđu jafntefli. Áskell Örn Kárason var nćrri ţví ađ halda jafntefli gegn Sabino Brunello. Óskar Víkingur Davíđsson og Heimir Páll Ragnarsson eru ţeir eru einu sem hafa fullt hús en ţeir hafa veriđ ađ tefla viđ mun veikari andstćđinga.

Óskar og Heimir

Heilt yfir gengur Íslendingum vel. Krakkarnir ungu hafa veriđ ađ gera góđa hluti. Heimir Páll, Óskar Víkingur, Stefán Orri og Veronika hafa öll veriđ ađ vinna stigahćrri andstćđinga. Sumir eru auđvitađ ađ stíga sín fyrstu skref á alţjóđlegu móti og fá hér frábćra reynslu.

Steini og Balti

Ađstćđur eru allar til fyrirmyndar. Flott sett á dúkuđum borđum. Loftkćling til stađar og vel fer um keppendur. 

Í hádeginu er svo hlađborđ međ úrvalsfćđi. Gisting og fullt fćđi kostar ađeins um 9.000 kr. á fullorđinn.

Pubb kviss

Í gćr fór fram Pub Quiz í umsjón Stefáns Bergsson og Erlu og gekk vel. Ingvar Ţór Jóhannesson reyndist ráđagóđur frá Hafnarfirđi en hann henti í nokkrar spurningar. Ian og Cathy Rogers sem eru hér í fríi og vinnu unnu sigur.

Yuri og Ian

Ég sjálfur gerđi jafntefli í gćr viđ Alan Byron, tíđan gest á Reykjavíkurmótunum, í hörkuskák og er heilt yfir ánćgđur viđ taflmennsku mína.

Margeir, Jóhann, Friđrik og Áskell verđa allir í beinn í dag en umferđin hefst kl. 13. Vek athygli á ţví ađ á morgun eru tvćr umferđir  og hefst sú fyrri kl. 7.

Ţessi pistill átti ađ birtast fyrir umferđ í dag - en birting mistókst.

Bestu kveđjur frá Sardínu,
Gunnar

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Á Íslandsmótinu sannađi 30 leikja reglan gildi sitt

Á Íslandsmótinu sem lauk í Hörpu um síđustu helgi var tekin upp sú ágćta regla ađ banna jafntefli áđur en 30 leikjum var náđ. Ţó gátu menn slíđrađ sverđin ef sama stađan kom ţrisvar en ţađ kom ekki oft fyrir. 30 leikja reglan er reyndar rússnesk uppfinning og var ef ég man rétt notuđ á sovéska meistaramótinu 1973 ţegar herđa átt upp bestu skákmennina eystra eftir hrakfarir ţeirra í viđskiptum sínum viđ Bobby Fischer. Nokkrir háttsettir menn úr íţróttamálaráđuneytinu vildu raunar fangelsa ţá sem fylgdu Spasskí til Reykjavíkur sumariđ 1972 međ ţeim rökum, ađ afhrođ á keppnisvelli geri kröfu til ţess ađ sökudólgur sé fundinn – ţegar í stađ. En ţrátt fyrir 30 leikja regluna tókst hinum friđsömu á ţessu meistaramóti ađ semja sín jafntefli og ţá yfirleitt međ samningum áđur en skákin var tefld; í bakherbergjum hripuđu menn niđur sennilegt 30 leikja handrit og skákin síđan „tefld“ og jafntefli samiđ.

30 leikja reglan náđi ţví aldrei miklum vinsćldum en svo komu Búlgarar međ Sofia-regluna sem leggur blátt bann viđ jafnteflum nema međ leyfi og fyrir milligöngu skákdómara. Á Íslandsmótinu kallađi 30 leikja reglan fram mikla baráttu í nánast hverri einustu skák en mönnum gekk misjafnlega vel ađ halda haus í vandasömum stöđum eins og gengur:

Einar-BjornSjá stöđumynd

Einar Hjalti Jensson – Björn Ţorfinnsson

Eftir byrjun sem Birni er nokkuđ vel kunn ćtlađi hann ađ leika 12....De8 en ţá fór hugurinn á flug og skyndilega greip Björn í biskupinn...

12. ...Bxh2+? 13. Kxh2 De8

Hótar riddaranum og 13. ...Rh4 en hvítur á gott svar: 14. Bc5! međ hugmyndinni 14. ...Rg4+ 15. Kg3 og 15. ...Dg6 strandar á 16. Re7+. Einar Hjalti hefđi átt ađ „rissa“ upp valkostina í huganum en lék...

14. exd5 Rh4+ 15. Kg3 Dh5 16. f4?

Tapar. Nauđsynlegt var fyrst 16. Re7+ og síđan 17. f4.

16. ... He8! 17. Re5 Hxe5! 18. fxe5 Dxe5+ 19. Hf4

Eđa 19. Kf3 Rxe3 20. Dxe3 Bg4+! 21. Kf2 Hf8+ og vinnur.

19. ... Rxe3 20. Kf3 Bg4+! 21. hxg4 Hf8+

- og Einar gafst upp ţví hann verđur mát í nćsta leik.

Henrik-BjornHenrik Danielsen – Björn Ţorfinnsson

Björn komst í hann krappan í nokkrum skákum og hér situr hann ađ tafli í 10. umferđ međ koltapađa stöđu gegn Henrik Danielsen. Hann hefđi getađ gefist upp í ţessari stöđu međ góđri samvisku en ákvađ ađ henda litlu spreki á löngu slokknađ bál:

34. ... Hxh3

Ţessum leik er t.d. hćgt ađ svara međ 35. Bxf4 en Henrik lék...

35. Bxh3??

og nú kom...

35. ... Rd3+!

Henrik varđ svo mikiđ um ţennan leik ađ hann skellti upp úr, stöđvađi klukkuna og gafst upp. Stađan er vissulega töpuđ, t.d. 36. Ke2 Rxb2 37. g5 Da6+ en hann hefđi alveg eins og Björn getađ haldiđ ađeins áfram.

Johann-GummiJóhann Hjartarson – Guđmundur Kjartansson

Í miđtafli lokaumferđar ţar sem yfirburđir hvíts eru augljósir greip Guđmundur til ţess ráđs ađ leika ...

25. ...Bf5

Og hugmyndin var einföld, 36. Rxf5 Hxe5? og nćr manninum til baka. Eđa hvađ? Jóhann í góđu formi hefđi ekki veriđ lengi ađ sjá 37. Df6! Hxf5 38. Dh8+ Ka7 39. He1 og viđ hótuninni 40. He8 er engin vörn. Hann valdi hinsvegar ađ leika...

26. f4

og eftir...

26. ... Be4!

...var biskupinn komin í óskaađstöđu og Guđmundur vann í 43 leikjum.


Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 31. maí

Skákţćttir Morgunblađsins


Góđ byrjun í Sardiníu

Margeir og Jóhann

Ţađ gekk almennt vel hjá íslensku skákmönnunum í fyrstu umferđ sjöunda Bjarnarhöfđa mótsins sem fram fer í Sardínu. Sextán Íslendingar taka ţátt í mótinu. Međ fylgihlutum eru Íslendingarnar alls 30 talsins.

Veronika vann góđan sigur

Í fyrstu umferđ unnust 9 skákir, 3 jafntefli og 4 skákir töpuđust.  Margeir og Friđrik unnu báđir góđir sigra en Jóhann ţurfti ađ sćtta sig viđ jafntefli.

Ađstćđur á stađnum eru afar góđar. Skákstađurinn flottur og allt til stađar. Yuri Garret ađalskipugeggjari mótsins er afar fćr sem slíkur. í gćr eftir skákir setjast menn niđur á hótelbarnum og fara yfir skákirnar.

Friđrik í fyrstu

Mótshaldarinn setti mótiđ og tók fram ađ hversu mikill heiđur ţađ vćri fyrir mótiđ ađ hafa Friđrik Ólafsson ţar og var vel klappađ í salnum. 

Hörđur

Teflt er eftir ađlöguđu svissnesku kerfi ţar sem keppendum er skipt upp í nokkrar grúppur. Ég sjálfur var t.d. efstur í minni grúppu í gćr og tefldi viđ Írann Jim Murray. Í dag tefli ég viđ Alan Byron, sem margir ţekkja úr Reykjavíkurskákmótinu, ţrátt fyrir ađ hann tapađ fyrir Brunello. Ćtla ađ reyna ađ stúdera ţetta kerfi og athuga hvort ţetta gćti veriđ eitthvađ fyrir Reykjavíkurskákmótiđ. Ekki víst ađ kerfi sem hannađ er fyrir 124 eigi endilega viđ ţar. 

Margeir, Friđrik og Jóhann verđa sem fyrr í beinni í dag en umferđin hefst kl. 13. Í ţann hóp bćtist viđ Áskell Örn Kárason sem teflir viđ ítalska stórmeistarann Sabino Brunello (2526).

Bestu kveđjur frá Sardínu,
Gunnar

 


Grćnlandssyrpan í Vin á mánudag: Borgarstjórinn heiđursgestur

26Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er heiđursgestur á Grćnlandsmóti Hróksins og Vinaskákfélagsins, sem haldiđ verđur í Vin mánudaginn 8. júní klukkan 13. Tefldar verđa sex umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.
Ţetta er annađ mótiđ í Flugfélagssyrpu FÍ, Hróksins og Vinaskákfélagsins, en sigurvegarinn fćr ferđ fyrir tvo til Grćnlands.

Fyrsta mótiđ í Flugfélagssyrpunni fór fram 4. maí og ţar sigrađi Róbert Lagerman. Fjögur mót eru í syrpunni og er reiknađur árangur úr ţremur bestu mótum hvers keppanda. Spennandi verđur ađ fylgjast međ framhaldinu, en Héđinn Steingrímsson, stórmeistari og nýbakađur Íslandsmeistari, sigrađi í Flugfélagssyrpunni 2014.

19Vinaskákfélagiđ var stofnađ af liđsmönnum Hróksins 2014 og hefur síđan stađiđ fyrir reglulegum ćfingum í Vin, bata- og frćđslusetri Rauđa krossins viđ Hverfisgötu 47. Ţangađ eru allir hjartanlega velkomnir.

Ađ vanda eiga keppendur og gestir í Vin von á ljúffengum veitingum. Bakarameistarinn, sem hefur veriđ bakhjarl Vinaskákfélagsins frá upphafi, leggur til gómsćta tertu og heimamenn í Vin leggja til ljúffengar vöfflur.

 

 

Böđvar Böđvarsson trésmíđameistari og Jón Gnarr borgarstjóri stinga saman nefjum í Vin.

Gunnar Björnsson forseti SÍ og Ţórdís Rúnarsdóttir forstöđumađur í Vin.

Ţórir Guđmundsson og stórmeistarinn Regína Pokorna á Sumarhátíđ Hróksins í Vin 2003.

Jón Kristjánsson heilbrigđisráđherra teflir viđ Hrafn í Vin.


Margeir, Jóhann og Friđrik verđa í beinni frá Sardiníu kl. 13

Fyrsta umferđin í Sardiníu hefst kl. 13 í dag. Stórmeistararnir Margeir, Jóhann og Friđrik verđa allir í beinni.

 


Sextán Íslendingar tefla í Sardiníu

Sextán íslenskir skákmenn taka ţátt í alţjóđlega mótinu í Sardiníu sem hefst í dag kl. 13. Međ fylgifiskum (mökum, börnum, foreldrum, öfum og ömmum) telur hópurinn alls 30 manns. Međal keppenda eru stórmeistararnir Friđrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson og FIDE-meistarinn Áskell Örn Kárason. 

Keppendalistinn íslenski er annars sem hér segir:

3. GM Johann Hjartarson 
4. GM Margeir Petursson 
12. GM Friđrik Ólafsson 
15. FM Askell O Karason 
46. 1N Stefan Bergsson 
47. CM Gunnar Bjornsson 
56. 1N Loftur Baldvinsson 
101. 1N Veronika Magnusdottir 
111. 1N Oskar Long Einarsson 
113. 2N Jonasson Hordur 
115. NC Heimir Pall Ragnarsson 
117. NC Oskar Vikingur Davidsson 
119. NC Thorsteinn Magnusson 
121. NC Stefan Davidsson 
122. NC Baltasar Mani Wedholm 
124. NC Birgir Logi Steinthorsson 


Heildarkeppendalistinn er hér.


Umferđin í dag hefst kl. 13. Gera má ráđ fyrir ađ einhverjir Íslendingar verđi í beinni útsendingu (a.m.k. Jóhann og Margeir) en pörun er vćntanleg um kl. 12.

Skák.is verđur međ puttann á púlsinum frá Sardiníu. 

Heimasíđa mótsins


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 24
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 157
  • Frá upphafi: 8765543

Annađ

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 128
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband