Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2015

Ný íslensk skákstig

Ný íslensk skákstig eru nýkomin út. Stigahæstur íslenskra skákmanna er nú enginn annar en Margeir Pétursson (2582).  Elvar Örn Hjaltason er stigahæstur nýliða og Óskar Víkingur Davíðsson hækkaði mest frá mars-listanum.

Topp 20

Margeir Pétursson (2582) er stigahæstur íslenskra skákmanna. Í næstum sætum eru Hannes Hlífar Stefánsson (2580) og Héðinn Steingrímsson (2569).

Nr.

Nafn

Stig

Mism

Tit

Skákir

Félag

1

Margeir Pétursson

2582

-9

GM

677

TR

2

Hannes H Stefánsson

2580

-5

GM

1163

TR

3

Héðinn Steingrímsson

2569

27

GM

393

Fjölnir

4

Jóhann Hjartarson

2557

-50

GM

784

TB

5

Hjörvar Grétarsson

2553

14

GM

624

Huginn

6

Helgi Ólafsson

2549

-2

GM

853

TV

7

Jón Loftur Árnason

2507

-6

GM

645

TB

8

Henrik Danielsen

2497

-13

GM

293

TV

9

Helgi Áss Grétarsson

2480

-9

GM

604

Huginn

10

Stefán Kristjánsson

2473

2

GM

874

Huginn

11

Friðrik Ólafsson

2459

0

GM

173

TR

12

Karl Þorsteins

2453

2

IM

603

TR

13

Jón Viktor Gunnarsson

2451

12

IM

1128

TR

14

Guðmundur Kjartansson

2421

-15

IM

794

TR

15

Þröstur Þórhallsson

2412

-16

GM

1311

Huginn

16

Bragi Þorfinnsson

2403

-18

IM

1033

TB

17

Björn Þorfinnsson

2398

17

IM

1133

TR

18

Dagur Arngrímsson

2397

1

IM

661

TB

19

Arnar Gunnarsson

2394

13

IM

838

TR

20

Ingvar Jóhannesson

2361

13

FM

849

TV

 

Nýliðar

Fimmtán nýliðar eru á listanum nú. Þeira langstigahæstur er Elvar Örn Hjaltason (1706). Í næstu sætum eru Þorvaldur Kári Ingveldarson (1372) og Stephan Briem (1274).

Nr.

Nafn

Stig

Mism

Skákir

Félag

1

Elvar Örn Hjaltason

1706

1706

9

 

2

Þorvaldur Kári Ingveldarson

1372

1372

5

Vinaskákfélagið

3

Stephan Briem

1274

1274

5

 

4

Stefán Gunnar Sveinsson

1218

1218

6

SFÍ

5

Rúnar Jónsson

1193

1193

5

 

6

Katla Torfadóttir

1192

1192

11

 

7

Sverrir Hakonarson

1179

1179

19

 

8

Birkir Ísak Johannsson

1176

1176

26

 

9

Almar Máni Þorsteinsson

1163

1163

15

SSON

10

Hjörtur  Kristjánsson

1144

1144

13

 

11

Svava Þorsteinsdóttir

1114

1114

6

TR

12

Ísak Orri Karlsson

1023

1023

16

Huginn

13

Mateusz Jakubek

1000

1000

6

TR

14

Óttar Örn B.Sigfússon

1000

1000

17

Huginn

15

Stefán Dagur Jónsson

1000

1000

11

 

 

Mestu hækkanir

Óskar Víkingur Davíðsson hækkaði mest allra frá síðasta stigalista eða um 299 skákstig. Í næstum sætum eru Veronika Steinunn Magnúsdóttir (209) og Róbert Luu (187).

Nr.

Nafn

Stig

Mism

Skákir

Félag

1

Óskar Víkingur Davíðsson

1666

299

176

Huginn

2

Veronika S Magnúsdóttir

1598

205

213

TR

3

Róbert Luu

1523

187

111

TR

4

Einar Bjarki Valdimarsson

2012

147

224

UMSB

5

Heimir Páll Ragnarsson

1589

138

272

Huginn

6

Stefán Orri Davíðsson

1251

138

87

Huginn

7

Baldur Teodor Petersson

1746

123

76

TG

8

Halldór Atli Kristjánsson

1377

101

111

Huginn

9

Björn Hólm Birkisson

1937

97

178

TR

10

Óskar Long Einarsson

1614

96

190

SA

11

Símon Þórhallsson

2029

94

149

SA

12

Hilmir Freyr Heimisson

1959

81

213

Huginn

13

Alexander Már Bjarnþórsson

1080

80

42

TR

14

Loftur Baldvinsson

1953

77

138

Skákgengið

15

Andri Freyr Björgvinsson

1843

75

186

SA

16

Agnar Tómas Möller

1801

72

145

SR

17

Hrund Hauksdóttir

1707

72

305

Fjölnir

18

Hjálmar Sigurvaldason

1420

71

170

Vinaskákfélagið

19

Aron Þór Mai

1510

70

93

TR

20

Héðinn Briem

1443

66

34

Víkingaklúbburinn

 

Reiknuð mót

  • Bikarsyrpa TR #4
  • Íslandsmótið í skák – (landsliðs-, áskorenda- og opinn flokkur)
  • Íslandsmót skákfélaga (1. deild, 2. deild, 3. deild og 4. deild)
  • Landsmótið í skólaskák (eldri og yngri flokkur)
  • Meistaramót Skákskólan Íslands (Undir og yfir 1600 skákstigum)
  • Reykjavíkurskákmótið
  • Skákmót öðlinga
  • Skákþing Hugins (norður)
  • Skákþing Skagafjarðar
  • Wow air Vormót TR (a- og b-flokkur)

Skákþáttur Morgunblaðsins: Héðinn Íslandsmeistari í þriðja sinn

Hedinn mblHéðinn Steingrímsson er skákmeistari Íslands 2015 eftir sigur á helsta keppinaut sínum um titilinn, Hjörvari Steini Grétarssyni, í lokaumferð mótsins sem fram fór á sunnudaginn. Skák þeirra var hreint úrslitauppgjör en fyrir hana hafði Héðinn ½ vinnings forskot á Hjörvar en á móti kom að Hjörvar hafði hvítt í skákinni. Hann tefldi byrjunina hinsvegar fremur ónákvæmt og í þröngri stöðu gaf hann Héðni kost á öflugum biskupsleik sem í raun gerði út um taflið. Lauk skákinni eftir aðeins 23 leiki. Þar með hafði Héðinn unnið sína sjöunda skák í röð, hafði hlotið 9 ½ vinning úr ellefu skákum en það er árangur sem reiknast upp á 2763 elo-stig. Hækkar hann um 29 elo-stig fyrir frammistöðuna. Þetta er í þriðja sinn sem Héðinn verður Íslandsmeistari, hann vann titilinn fyrst árið 1990, þá aðeins 15 ára gamall og sá yngsti í skáksögunni, og í annað sinn árið 2011. Héðinn er vel að sigrinum kominn, en hann mætti vel undirbúinn til leiks og á lokasprettinum vann hann bæði Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason. Árangur Hjörvars Steins er einnig frábær og reiknast árangur hans upp á 2626 elo-stig. Jón L. Árnason varð í 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlífari Stefánssyni. Einar Hjalti Jensson, sem varð í 5. sæti, náði áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

mótstafla

Fjölmargir lögðu leið sína í Hörpu til að fylgjast með viðureign Hjörvars og Héðins á sunnudaginn. Þá var hægt að fylgjast með skákinni í beinni útsendingu á a.m.k. tveim netmiðlum og mótshaldarinn var einnig með streymisútsendingu frá skákstað:

Skákþing Íslands 2015; 11. umferð:

Hjörvar Steinn Grétarsson – Héðinn Steingrímsson

Tarrasch-vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 c5 5. e3

Sneiðir hjá skarpasta framhaldinu, 5. cxd5 Rxd5 6. e4.

5. ... Rc6 6. cxd5 exd5 7. Be2 cxd4 8. Rxd4 Bd6 9. O-O O-O 10. h3 He8 11. Rf3 a6 12. b3 Bf5 13. Bb2 Bc7 14. Dd2 Dd6 15. Hfd1 Hfd8 16. Hac1 h5!?

Þessum fremur óvænta leik virðist hafa verið beint gegn næsta leik Hjörvars og heppnast því fullkomlega. En leikurinn gaf Hjörvari engu að síður tækifæri til að þróa stöðu sína áfram með 17. De1!

17. Bd3??

Eftir svar Héðins er ljóst að stöðu hvíts verður ekki bjargað.

17. ... Bg4!

G2GU4RL1- Sjá stöðumynd -

Hótar 18. ... Bxf3. Hvítur er varnarlaus.

18. hxg4 hxg4 19. g3 gxf3 20. Bf1 Bb6!

Beinir spjótum sínum að e3-peðinu og hótar eftir 21. ... Bxe3 eða eftir því sem verkast vill, 21. ... Hxe3.

21. He1 Rg4 22. Bh3

22 Rd1 dugar skammt vegna 22. ... Dh6!

22. ... Bxe3! 23. Hxe3 Rxe3

- og Hjörvar gafst upp.

Jón L. Árnason tefldi síðast á lokuðu móti fyrir 20 árum – afmælismóti Friðriks Ólafssonar. Hann byrjaði rólega en eftir því sem leið á mótið tefldi hann af meira sjálfstrausti og 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlífari Stefánssyni telst ásættanleg frammistaða. Jóhann Hjartarson náði sér ekki á strik og átti afleitan kafla frá fimmtu umferð til þeirrar síðustu. Hann var eini keppandinn sem gerði ekki jafntefli. Jóhann þurfti yfirleitt ekki að kvarta undan stöðunum sem hann fékk upp úr byrjunum. Styrkur hans hefur oftast legið í góðri leiktækni í miðtöflunum en þar var hann mistækur að þessu sinni. En þátttaka hans og Jóns L. lyfti mótinu á hærra plan. Skákir Björns Þorfinnssonar vöktu athygli fyrir fjörleg tilþrif og marga skrýtna leiki. Framkvæmd mótsins tókst með miklum ágætum.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.  

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 27. maí

Skákþættir Morgunblaðsins


Guðmundur Kjartansson: Ameríkutúr 2014

Vegas-póker

Guðmundur Kjartansson hefur skrifað afar skemmtilegan myndskreyttan pistil um Ameríkutúr sinn í fyrra. 

Hann fylgir með PDF-viðhengi sem allir skákáhugamenn eru hvattir til að lesa.

Skák hans á móti Iturrizaga fylgir með sem viðhengi og er líka hægt að nálgast á Chessbase.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Pistill frá Degi Arngrímssyni - Skáksumarið 2014

Nú þegar skáksumarið 2015 er nálgast er tilvalið að birta pistil frá Degi Arngrímssyni frá skáksuamrinu 2014.

Albena (1.-9. Júní)

Mótið kallast Grand Europe Cup og er haldið á vinsælum ferðamannastað sem heitir Albena. Skákirnar fóru fram í stóru íþróttahúsi í hjarta bæjarins og var mótið sterkt og góð verðlaun í boði (30.000 €). Aðstæður voru mér kunnulegar enda hef ég farið seinustu tvö ár á þetta mót.

Í fyrstu og þriðju umferðunum sigraði ég stigalága andstæðinga (1892, 2114) með hvítt og tapaði í annari og fjórðu umferð gegn Sedlak (2570) og Akopian (2667) með svart. Í báðum skákunum með svart var þemað mjög svipað. Ég var komin með þægilegra tafl eftir byrjunina en missti þráðinn og endaði í óþægilegum stöðum þar sem voru mislitir biskupar. 

Í fimmtu umferð gerði ég jafntefli við úkraínskan FM (2190) sem var undir 12 ára. Ég reyndi of mikið á stöðuna með hvítt gegn slavanum og var í raun heppinn að halda jafntefli.

Í sjöttu umferð sigraði ég stigalægri andstæðing (2077) örugglega með svart og í sjöundu umferð vann ég rúmenskan alþjóðlegan meistara (2493) með hvítt. Ég fékk góða stöðu út úr byrjuninni en missteig mig í miðtaflinu og þurfti að verjast fram í endatafl. Þegar ég hélt ég væri eingöngu búin að tryggja mér jafntefli, þá tók andstæðingur minn fáránlega ákvörðun í stresskasti og allt í einu var ég kominn með þekkta vinningsstöðu í hróksendatafli.

Í áttundu umferði tapaði ég illa gegn serbneskum IM (2442). Anstæðingurinn minn bauð mér jafntefli mjög snemma en ég ákvað að reyna að vinna hann. Ég hefði betur tekið jafnteflinu því ég lék mjög illa af mér og tapaði örugglega.

Í níundu og seinustu umferð mótsins vann ég stigalægri andstæðing (2192) og var það líklega besta skák mín á mótinu.

Ég var nokkuð svekktur í lok móts því fyrir síðustu umferðina átti ég von á pengingaverðlaunum ef ég myndi sigra. Ég vann en andstæðingar mínir á mótinu stóðu sig hreint út sagt illa í síðustu umferðinni og því missti ég af peningaverðlaunum á stigaútreikningi.

Golden Sands (10.-18. Júní)

Frá Albena lá leið mín yfir til Golden Sands. Mótið er eingöngu í hálftíma fjarlægð og því voru flestir þátttakendur í Albena með á Golden Sands. Fleiri bættust síðan við og var mótið enn sterkara en það fyrra enda betri verðlaun í boði (40.000 €). Mótið í Golden Sands er í raun framhald af mótinu í Albena og bar þess vegna líka nafnið Grand Europe Cup. Teflt var á tveimur stöðum. Annars vegar á fimm stjörnu hóteli þar sem aðstæður voru góðar. Fimmtíu efstu borðin voru þar. Hins vegar var teflt í opinberu skákhúsi staðarins þar sem skákmenn fengu að hlusta á allskonar partýtónlist á meðan á skákinni stóð sem var fín tilbreyting til að byrja með en breyttist fljótt í martröð þegar á leið. Var ég staðráðinn í að standa mig betur en á fyrra mótinu en sú varð alls ekki raunin!

Í fyrstu skák mótsins sigraði ég ungan Asera með herkjum í mislitu biskupaendatafli. Í annari umferð mætti ég Akopian aftur en í þetta skiptið með hvítt. Ég fékk  þægilegt tafl út úr g3 Benoni og í miðtaflinu var ég komin með mjög vænlega stöðu. Akopian bauð mér jafntefli á krítísku augnabliki þar sem ég hefði þurft að halda haus í nokkra leiki og hefði ég þá verið með vinningsstöðu. Ekki fór betur en svo að ég lenti í einu gildrunni í stöðunni og tapaði. Eftir þetta klaufalega tap sá ég aldrei til sólar og hélt þar með uppteknum hætti að tapa 25 stigum þriðja árið í röð Í Búlgaríu.   

Andorra

Dagana 19.-27. júlí sl. tók ég þátt í opnu skákmóti í Andorra. Mótið fór fram á Hótel Gothard við fínar aðstæður. Var ég ekki einn míns liðs því í för voru félagar mínir úr skákinni, Hjörvar og Jón Trausti.

Í fyrstu tveimur umferðunum vann ég tvo stigalægri andstæðinga (1891, 2094) en í þriðju umferð tapaði ég fyrir úkraínska stórmeistaranum Andrey Vovk (2616) með svart.

Ég fékk stigalægri andstæðing (2140) með hvítt í fjórðu umferð og var innblásinn af nýkrýndum Íslandsmeistara Guðmundi Kjartanssyni og tefldi enska leikinn. Byrjunin heppnaðist ekki sem skyldi og eftir 40 leiki kom upp endatafl þar sem ég hafði riddara gegn biskup. Staðan var strangt til tekið jafntefli en andstæðingur minn þurfti alltaf að passa sig á að lenda ekki í leikþröng. Næstu 40 leikina lék ég köllunum fram og til baka í von um að andstæðingur minn myndi leika af sér. Hefði ég sennilega tekið jafnteflinu ef andstæðingur minn hefði ekki verið búinn að bjóða mér fjórum sinnum jafntefli fyrr í skákinni. Kom upp drottningaendatafl þar sem ég hafði auka riddara og hvorugur hafði peð (D+R gegn D). Þegar hér var komið sögu var skákin búin að standa í rúmlega 6 klst. og var ég bjartsýnn á að ég myndi ná að vinna þetta og að lokum lék hann sig í mát.

Í fimmtu umferð vann ég WIM frá Kólumbíu (2190) nokkuð auðveldlega og í þeirri sjöttu sigraði ég spænskan stórmeistara eftir miklar sviptingar (sjá skýrðu skákina hér að neðan).

 Í næstu umferð fékk ég svart á Hjörvar Stein Grétarsson (2535). Hann tefldi mjög vel og komst ég aldrei inn í skákina og tapaði.

 Í áttundu umferðinni tapaði ég fyrir ísraelska stórmeistaranum Artur Kogan (2548) í flókinni skák. Á tímabili stóð ég til vinnings en tefldi ónákvæmt í tímahrakinu.

 Í síðustu umferðinni vann ég auðveldan sigur með svörtu gegn Spánverja (2202).

Niðurstaðan var 10 stig í plús sem var ásættanlegur árangur og var ég hvað mest ánægður með að hafa teflt allar skákir í botn og að engin hafi endað jafntefli.

Í lokin vil ég þakka Skáksambandi Íslands fyrir stuðninginn. 

Dagur Arngrímsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Jón Trausti er Skákmeistari Skákskóla Íslands 2015

Jón Trausti skákmeistari Skákskólans

Jón Trausti Harðarson vann félaga sinn  Dag Ragnarsson 1 ½ : ½ í einvígi þeirra um sæmdarheitið Skákmeistari Skákskóla Íslands 2015 sem fram fór á mánudagskvöldið. Þeir urðu efstir og jafnir á meistaramótiskólans sem fram fór um  helgina  hlutu báðir 5 ½ vinning af sex mögulegum, gerðu jafntefli innbyrðis og unnu aðrar skákir sínar. Hefð er fyrir því að teflt sé um titilinn, farandbikar og 1. verðlaun sem að þessu sinni voru 50 þús. króna ferðavinningur á skákmót erlendis og 35 þús. uppihaldskostnaðurað auki.

Dagur og Jón Trausti

Þeir tefldu skákir sínar á mánudagskvöldið með tímfyrirkomulaginu 30 30 og lauk fyrri viðureign þeirra með jafntefli en Dagur hafði hvítt. Seinni skákina vann Jón Trausti og þar með einvígið. Samstarfsaðili Skákskólans varðandi meistaramótið var GAMMA.  Flokkaskipting með góðum verðlaunum í báðum flokkum þótti takast vel og verður væntanlega haldi áfram á sömu braut með það fyrirkomulag á  meistaramóti skólans. Þetta er í fyrsta sinn sem Jón Trausti vinnur Meistaramót Skákskólans en Dagur sigraði örugglega á mótinu í fyrra.     


Gunnar endurkjörinn forseti SÍ á aðalfundi sambandsins

Gunnar forzetiAðalfundur Skáksambands Íslands fór fram laugardaginn 30. maí sl. í félagsheimili Breiðabliks í Kópavogi. Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti SÍ en hann var fyrst kosinn árið 2009.

Litlar breytingar urðu á stjórn. Pálmi R. Pétursson, fráfarandi varaforseti, hættir í stjórn að eigin frumkvæði. Sæti hans í aðalstjórn tekur Óskar Long Einarsson. Sæti Óskars í varastjórn tekur Donika Kolica.

Skákgengið var samþykkt sem nýtt aðalildarfélag Skáksambandsins. 

Fundurinn var átakalítill og endurspeglaði ánægju með skákstarfið í dag.

Tekist var á um nokkrar lagatillögur. Flestar tillögur voru felldar eða vísað til stjórnar. Þar má nefna tillögur um breytingar á Íslandsmót skákfélaga sem var vísað til stjórnar með 10 atkvæðum gegn 8. Það þýðir að 10 liða keppni verður til staðar a.m.k. tvö næstu keppnistímabil í efstu deild.

Tvær tillögur voru samþykktar. Samþykkt var að setja í lög sambandsins að öll mót á vegum SÍ verði reiknuð til FIDE-stiga sem er aðeins staðfesting á framkvæmdinni eins og hún hefur verið verið.

Stærsta breytingin á aðalfundinum var gjörbreyting á framkvæmd unglingamóta SÍ. Framvegis verður teflt í flokkum 8 ára og yngri, 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 og 15-16 ára. Munu mótin fara fram á sama tíma og einnig teflt um Íslandsmeistaratitil stúlkna í sömu aldursflokkum. Þess í stað munu falla niður nokkur mót sem haldin hafa verið.

Unglingameistaramót Íslands mun taka umtalsverðum breytingum. Það verður opið fyrir 17-22 ára keppendur (í stað 20 ára og yngri) auk þess sem sigurvegarar úr yngri flokkum fá þar keppnisrétt. Stærsta breytingin sem fór í gegn 10-9 eftir endurtalningu er að unglingameistari Íslands ár hvert fái keppnisrétt í landsliðsliðsflokki.

Fundargerð aðalfundarins er í vinnslu. 


Ný alþjóðleg skákstig

Ný alþjóðleg skákstig eru komin út. Töluverðar breytingar eru á listanum eftir Íslandsmótið í skák. Hannes Hlífar Stefánsson (2580) er sem fyrr stigahæstur. Sigurður Freyr Jónatansson er stighæastur nýliða og Einar Valdirsson hækkar mest frá maí-listanum.

Topp 20

Hannes Hlífar Stefánsson (2580) er stigahæsti skákmaður landsins. Stutt er þó í næstu menn sem eru Hjörvar Steinn Grétarsson (2571). 

Heildarlistinn fylgir með sem PDF-viðhengi.

Nr.SkákmaðurTitStigSkMismAtHrað
1Stefansson, HannesGM258018-1025102585
2Gretarsson, Hjorvar SteinnGM2571111025572550
3Steingrimsson, HedinnGM2561112925542588
4Olafsson, HelgiGM25460025422614
5Hjartarson, JohannGM253511-31 2550
6Petursson, MargeirGM252900 2546
7Danielsen, HenrikGM251020-10 2549
8Arnason, Jon LGM2499100 2409
9Kristjansson, StefanGM24850025352435
10Kjartansson, GudmundurIM246211-1224372346
11Gunnarsson, Jon ViktorIM24580023942492
12Thorsteins, KarlIM245300 2381
13Gretarsson, Helgi AssGM24500024812457
14Gunnarsson, ArnarIM24250024332444
15Thorhallsson, ThrosturGM24150024872481
16Thorfinnsson, BragiIM241415-224552416
17Thorfinnsson, BjornIM241111424122463
18Jensson, Einar HjaltiFM2394183523742287
19Ulfarsson, Magnus OrnFM23770023042309
20Johannesson, Ingvar ThorFM23728-623672385
21Arngrimsson, DagurIM237200 2377


Nýliðar 


Fimm nýliðar eru á listanum. Þeirra stigahæstur er Sigurður Freyr Jónantansson (1694) en í næstu sætum eru Arnþór Hreinsson (1542) og Freyja Birkisdóttir (1295).

Nr.SkákmaðurTitStigSkMismAtHrað
1Jonatansson, Sigurdur Freyr 1694101694 1568
2Hreinsson, Arnthor 154281542  
3Birkisdottir, Freyja 129551295  
4Adalsteinsson, Birgir 1257111257  
5Baldursson, Atli Mar 122961229  


Mestu hækkanir


Einar Valdimarsson (77) hækkar mest frá maí-listanum. Í næstum sætum eru Vignir Vatnar Stefánsson (72) og Hrund Hauksdóttir (45).

Nr.SkákmaðurTitStigSkMismAtHrað
1Valdimarsson, Einar 202277718911895
2Stefansson, Vignir Vatnar 195377217912016
3Hauksdottir, Hrund 17755451648 
4Davidsdottir, Nansy 171854215601510
5Jensson, Einar HjaltiFM2394183523742287
6Magnusdottir, Veronika Steinunn 168253414921557
7Steingrimsson, HedinnGM2561112925542588
8Kristinsson, Magnus 1793628 1747
9Sigurdsson, Birkir Karl 181562717771823
10Jonsson, Olafur Gisli 1926726 1861


Stigashæstu skákkonur landsins

Lenka Ptácníková (2307) er sem fyrr langstigahæsta skákkona landsins. Í næstum sætum eru Hallgerður Helga (2014) og Guðlaug (1934) Þorsteinsdætur.

Nr.SkákmaðurTitStigSkMismAtHrað
1Ptacnikova, LenkaWGM2307112322672089
2Thorsteinsdottir, Hallgerdur 20146-319271943
3Thorsteinsdottir, GudlaugWFM19346-920072004
4Finnbogadottir, Tinna Kristin 19260018931884
5Kristinardottir, Elsa Maria 18900018422020
6Johannsdottir, Johanna Bjorg 18620019481966
7Fridthjofsdottir, Sigurl. Regina 179061  
8Hauksdottir, Hrund 17755451648 
9Helgadottir, Sigridur Bjorg 177100 1737
10Davidsdottir, Nansy 171854215601510


Stigahæstu ungmenni landsins (20 ára og yngri)

Oliver Aron Jóhannesson (2300) er stigahæsta ungmenni landsins. Í næstum sætum eru Dagur Ragnarsson (2266) og Jón Kristinn Þorgeirsson (2227).

Nr.SkákmaðurTitStigSkMismAtHrað
1Johannesson, OliverFM23006-220612161
2Ragnarsson, DagurFM22666-1720712023
3Thorgeirsson, Jon Kristinn 2227001940 
4Karlsson, Mikael Johann 21610020272069
5Hardarson, Jon Trausti 21075-3619221971
6Thorhallsson, Simon 21060018511672
7Heimisson, Hilmir Freyr 19820017161802
8Sigurdarson, Emil 195500  
9Stefansson, Vignir Vatnar 195377217912016
10Birkisson, Bjorn Holm 18927-2116891616


Stigahæstu skákmenn heims

Magnus Carlsen (2876) er sem fyrr langstigahæsti skákmaður heims. Í næstum sætum eru Fabiano Caruana (2805) og Vishy Anand (2804).

Listann má nálgast hér.

Reiknuð mót

  • Wow air vormót TR (a- og b-flokkur)
  • Skákmót öðlinga
  • Skákþing Íslands - landliðsflokkur
  • Bikarsyrpa TR # 4
  • Skákmót Vals (hraðskákstig)
  • Landsmótið í skólaskák - eldri og yngri flokkur -(atskákstig)

Meistaramót Skákskólans kemur til útreiknings í júlí nk.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Dagur og Jón Trausti efstir á Meistaramóti Skákskóla Íslands

P1040484

Dagur Ragnarsson og Jón Trausti Harðarson urðu efstir og jafnir á Meistaramóti Skákskóla Íslands sem lauk síðdegis í gær. Þeir hlutu báðir 5 ½ vinning af sex mögulegum og munu heyja tveggja skáka einvígi um sæmdarheitið Meistari Skákskóla Íslands 2015 en Dagur er núverandi handhafi þess titils. Einvígið er fram í kvöld, mánudagskvöld, og hefst kl. 20. Tímamörk í skákunum verða 30 30 en skákir verða ekki reiknaðar til stiga. Verði jafnt verður gripið til Armageddon skákar með styttri unhugsunartíma.

P1040486

Í 3. sæti varð Andri Freyr Björgvinsson en hann hlaut 4 vinninga eftir sigur á Hilmi Frey Heimissyni í lokaumferðinni og varð því hlutskarpastur í flokki keppenda á stigabilinu 1800 – 2000 elo og hlýtur ferðavinning á skákmót að verðmæti kr. 40 þús.

P1040472

Í 4. sæti varð Oliver Aron Jóhannesson með 3 ½ vinning og í 5. sæti kom Veronika Steinunn Magnúsdóttir einnig með 3 ½ vinning. Hún náði bestum árangri keppenda í með  1600-1800 elo-stig og kemur ferðavinningur sér vel fyrir hana þar sem hún er á leið á skákmót til Sardiníu.  

Mótstaflan í Chess-Results.

Meistaramót Skákskólans hófst á föstudag með tveim umferðum og einnig voru tefldar tvær umferðir á laugardag og tvær á sunnudag. Tímamörk voru 90 30 í öllum umferðunum. 15 keppendur tefldu í stigahærri flokknum en 18 i flokki skákmanna sem voru undir 1600 elo stig eða stigalausir. Þar voru tímamörkin 30 30 en lengstu skákirnar tóku hátt á þriðju klukkustund.

P1040467

Jóhann Arnar Finnsson og Robert Luu urðu efstir og jafnir með 4 ½ vinning af sex mögulegum í 1. – 2. sæti en Jóhann var hærri á stigum og komu 1. verðlaun því í hans hlut, verðlaunagripur og ferðavinningur á skákmót erlendis að verðmæti 40 þús. í 3. – 5. sæti urðu svo Mikhalyo Kravchuk, Aron Þór Mai og Stephan Briem allir með 4 vinninga.

Mótstaflan í Chess-Results.   


Hraðkvöld hjá Hugin í kvöld

Hraðkvöld Hugins verður mánudaginn 1. júní nk.  og hefst tafliðkl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Þettta er síðasta hraðkvöld á vormisseri en þau hefjast að nýju í haust.

Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á skákkvöldinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


« Fyrri síða

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 108
  • Frá upphafi: 8778232

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband