Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
30.5.2009 | 17:17
Gunnar kjörinn forseti SÍ
Gunnar Björnsson var kjörinn forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins sem fram fór á átakalitlum fundi í dag.
Gunnar hefur starfað í skákhreyfingunni í samfleytt 23 ár og er formaður Taflfélagsins Hellis en mun láta af því starfi í sumar.
Með Gunnari í stjórn voru kjörnir sex meðstjórnendur úr sex félögum og þar af þrír úr landsbyggðarfélögum. Það eru Magnús Matthíasson, Edda Sveinsdóttir, Helgi Árnason, Kristján Örn Elíasson, Magnús Pálmi Örnólfsson og Stefán Bergsson. Í varastjórn voru kjörnir Róbert Lagerman, Stefán Freyr Guðmundsson, Halldór Grétar Einarsson og Jón Gunnar Jónsson.
Lagabreytingatillaga Gunnars um félagaskiptaglugga var samþykkt með breytingum þó. Það þýðir að hægt er að skrá inn nýja félagsmenn, sem hafa lögheimili á Íslandi, fyrir síðari hlutann auk þess að skákmenn sem ekki tefldu með sínu félagi í fyrri hlutanum geta skipt um félag á milli hluta.
Í lokaræðu sagði nýkjörinn forseti að megináhersla yrði lögð innlenda starfsemi á næsta starfsári og ekki yrði úr henni dregið heldur frekar gefið í. Forseti lagði áherslu að áfram yrði haldið á þeirri braut að fela félögum á landsbyggðinni að halda mót í nafni sambandsins. Einnig að sem fyrr yrði lögð áhersla á að halda norðurlandasamstarfinu á óbreyttan hátt. Draga þyrfti hins vegar úr annarri alþjóðlegri starfsemi sökum breyttra aðstæðna og það væri ljóst ekki væri hægt að senda jafn margra fulltrúa og áður á Evrópu- og heimsmeistaramót og að þátttaka Íslands á slíkum atburðum gæti verið með öðrum formerkjum en hingað til.
Eitt fyrsta verk nýrrar stjórnar verður að búa til nýja mótaáætlun fyrir næsta starfsár.
Spil og leikir | Breytt 3.6.2009 kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2009 | 17:01
Jóhann sigraði á fjölmennu fimmtudagsmóti
Jóhann H. Ragnarsson bar sigur úr býtum á síðasta fimmtudagsmóti vetrarins sem Taflfélag Reykjavíkur stóð fyrir í fyrrakvöld. Jóhann hlaut 8,5 vinning úr níu skákum en hann var með forystu allan tímann og leyfði aðeins jafntefli gegn Kristjáni Erni Elíassyni í sjöttu umferð. Júlíus L. Friðjónsson varð annar með 8 vinninga en í þriðja sæti með 6 vinninga var Sverrir Sigurðsson.
Úrslit:
Place Name Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch. Progr.
1 Jóhann H. Ragnarsson, 8.5 37.5 49.5 43.0
2 Júlíus L. Friðjónsson, 8 34.0 44.5 38.0
3 Sverrir Sigurðsson, 6 33.5 44.0 30.0
4-6 Páll Snædal Andrason, 5.5 38.5 51.0 28.0
Sigurjón Haraldsson, 5.5 36.0 48.5 27.5
Elsa María Kristínardóttir, 5.5 33.0 43.5 29.5
7-13 Kristján Örn Elíasson, 5 40.0 52.5 30.0
Magnús Matthíasson, 5 36.0 45.0 28.0
Örn Stefánsson, 5 34.0 44.5 23.0
Halldór Pálsson, 5 32.5 40.0 26.5
Birkir Karl Sigurðsson, 5 29.5 39.5 21.0
Dagur Kjartansson, 5 29.0 35.5 18.0
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, 5 27.0 34.5 21.0
14 Magnús Kristinsson, 4.5 34.5 45.5 26.0
15-19 Þórir Benediktsson, 4 34.5 43.5 26.0
Guðmundur Kristinn Lee, 4 31.5 38.0 22.0
Finnur Kr. Finnsson, 4 29.0 35.0 21.0
Brynjar Steingrímsson, 4 28.5 36.0 18.0
Steinar Aubertsson, 4 27.5 34.0 17.0
20 Björgvin Kristbergsson, 3 23.5 29.0 10.0
21-23 Pétur Jóhannesson, 2 28.0 36.5 12.0
Halldór Skaftason, 2 28.0 34.5 10.0
Pétur Axel Pétursson, 2 27.0 34.5 13.0
24 Finnbogi Þorsteinsson, 0.5 26.0 33.0 1.5
Mótið var vel sótt en 24 keppendur mættu að þessu sinni og enn bættist í hóp nýrra andlita ásamt því að margir af fastagestum vetrarins létu einnig sjá sig. Um miðbik mótsins var gert hlé á taflmennskunni og keppendum boðið upp á pizzuveislu ásamt því sem Óttar Felix Hauksson, formaður TR, veitti verðlaun fyrir Unglingameistaramót Reykjavíkur sem fram fór í byrjun mánaðar. Það voru hinir ungu og efnilegu TR-ingar, Páll Snædal Andrason og Birkir Karl Sigurðsson sem fengu afhenta glæsilega eignabikara.
Að því loknu var komið að hápunkti kvöldsins en þá dró formaðurinn þrjú nöfn úr potti sem innihélt nöfn allra þeirra sem höfðu mætt á fimm eða fleiri mót í vetur. Á fjórða tug skákmanna af þeim rúmlega eitthundrað sem mætt hafa í vetur voru með í pottinum og voru líkurnar á því að vera dreginn út þeim mun meiri eftir því sem oftar hafði verið mætt. Í boði voru kr. 40.000, 20.000 og 10.000 og fór það svo að Andri Gíslason fékk 40.000 kr, Páll Snædal Andrason fékk 20.000 kr og það var síðan vel við hæfi að Kristján Örn Elíasson fengi 10.000 kr en hann hefur haft veg og vanda við stjórn mótanna í vetur og missti aðeins úr eitt mót af þeim 33 mótum sem voru haldin.
Stjórn TR vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í mótunum í vetur og vonast til að sjá sem flesta aftur þegar mótin hefjast á ný í september.
29.5.2009 | 15:19
Skákstarf í fjórum skólum í Grafarvogi
Á heimasíðu Skákakademíu Reykjavíkur má nálgast ferskan pistil frá Braga Þorfinnssyni um skákkennslu í fjórum skólum í Grafarvogi undanfarna mánuði. Skólarnir sem um ræðir eru Borgaskóla, Engjaskóli, Víkurskóli og Korpuskóli. Um er að ræða fróðlegan pistil um uppbyggingarstarfið sem verið hefur í gangi í Skákakademíu Reykjavíkur frá reyndum skákmeistara.
29.5.2009 | 07:47
Stofnfundur íslenskra skákdómara haldinn í kvöld
Til stendur að stofna Félags íslenskra skákdómara (FÍS) og er hér með boðað til stofnfundar félagsins föstudaginn 29. maí kl. 20, þ.e. degi fyrir aðalfund sjálfs Skáksambandsins, í húsakynnum þess, Faxafeni 12.
Þeir sem óska eftir því að gerast stofnfélagar eru beðnir um að hafa samband í netfangið fis@skaksamband.is sem fyrst. Íslensk skákfélög er hvött til að tilnefna a.m.k. félagsmenn í FÍS.
Drög um lög félagsins liggja fyrir:
Lög félags íslenskra skákdómara (FÍS)
1.gr.
Félagið heitir Félag íslenskra skákdómara og er skammstafað FÍS.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
3. gr
Tilgangur félagsins er að vera samstarfsvettvangur íslenskra skákdómara.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því kynna nýjar skákreglur og reglubreytingar, með námskeiðum fyrir félög og dómara og með reglulegum samráðsfundum með dómurum þar sem álitamál er rædd. Hægt er leita til félagsins varðandi álit á reglum en félagið úrskurðar ekki í álita- eða deilumálum. Félagið sem slíkt heyrir ekki undir stjórn Skáksambands Íslands sem þó getur leitað ráðgjafar eða aðstoðar t.d. varðandi álitamál á reglum eða námskeiðahald.
5. gr.
Stofnfélagar eru: (Hér þarf nöfn, heimilisföng og kennitölur allra stofnenda).
6.gr.
Félagsaðild hafa allir alþjóðlegir skákdómarar og FIDE-dómarar. Einnig þeir sem reynslu af dómarastörfum og hafa þá verið dómarar í a.m.k fimm skákmótum síðustu 3 ár og þar af eitt kappskákmót eða stórt unglingaskákmót. Hvert aðildarfélag Skáksambands Íslands hefur rétt á tilefna einn mann í félagið og skal sá hafa þá einhverja reynslu af skákdómarastörfum.
Stjórn félagsins metur hvort umsækjendur uppfylli skilyrðin. Nýja félagsmenn má taka inn hvenær sem er.
7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum þ.e. formanni og 2 meðstjórnendum. Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Almennt skal stefnt að því halda aðalfund sambandsins degi fyrir aðalfund Skáksambands Íslands. Aðalfundir sem og félagsfundir skulu vera boðaðir með a.m.k hálfsmánaðar fyrirvara og þá með rafpósti til félagsmanna og á Skák.is.
Daglega umsjón félagsins annast formaður félagsins. Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta stjórnar.
8. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
9. gr.
Árgjald félagsins er 1.000 kr.
10. gr.
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið til kynningarstarfs.
11. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til Skáksambands Íslands.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins 29. maí 2009 og öðlast þegar gildi.
Dagsetning og undirskriftir allra stofnenda eða stjórnarmanna.
28.5.2009 | 19:14
Þór sigraði á hraðskákmóti Ása
Skákdeild Félags eldri borgara fékk nýlega nafnið Æsir. Hún hefur aðsetur í Ásgarði félagsheimili eldri borgara í Reykjavík. Vetrarstarfinu lauk formlega þriðjudaginn 26. maí með hraðskákmóti. Það er samt eitt vorverk eftir, en það er að fara með flokk skákmanna og etja kappi við eldri borgara frá Akureyri. Munu hóparnir mætast á Blönduósi helgina 6.-7. júní og er meiningin að þar verði barist í tvo daga. Hótel Blönduós hefur verið bókuð fyrir þessar orrustur.
Á þessum síðasta skákdegi var öllum boðið í kaffi og tertur Jóhanna ráðskona staðarins sá um það með glæsibrag. Þá voru veitt verðlaun fyrir bestan samanlagðan árangur á skákdögum í vetur. Haraldur Axel Sveinbjörnsson varð Vetrarhrókur númer 1 hann fékk 137.5 vinninga en hann mætti á alla skákdaga vetrarins, Vetrarhrókur nr. 2 varð Þorsteinn Guðlaugsson með 136 vinninga hann sleppti úr einum degi. Vetrarhrókur nr. 3 varð Sæmundur Kjartansson með 104.5 en hann mætti á alla skákdaga vetrarins 28 sinnum alls.
Úrslit á hraðskákmótinu.
- 1 Þór Valtýsson 6.5 vinninga
- 2-5 Jóhann Örn Sigurjónsson 5
- Björn V Þórðarson 5
- Kári Sólmundarson 5
- Þorsteinn Guðlaugsson 5
- 6-11 Haraldur Axel Sveinbjörns 4
- Jón Víglundsson 4
- Halldór Skaftason 4
- Gísli Sigurhansson 4
- Einar S Einarsson 4
- Óli Árni Vilhjálmsson 4
- 12-15 Birgir Sigurðsson 3.5
- Birgir Ólafsson 3.5
- Hermann Hjartarson 3.5
- Bragi G Bjarnason 3.5
- 16-18 Finnur Kr Finnsson 3
- Ingi E Árnason 3
- Hreinn Bjarnason 3
- 19-21 Ásgeir Sigurðsson 2.5
- Baldur Garðarsson 2.5
- Bragi Garðarsson 2.5
- 22 Halldór Jónsson 2
- 23-24 Viðar Arthúrsson o.5
- Hrafnkell Guðjónsson 0.5
Spil og leikir | Breytt 29.5.2009 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2009 | 08:35
Síðasta fimmtudagsmót vetrarins í kvöld hjá TR
Síðasta fimmtudagsmótið að sinni verður haldið í kvöld. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10. Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening. Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Í lok móts fer fram happdrættisútdráttur þar sem dregnir verða út þrír vinningar, kr. 40.000, 20.000 og 10.000. Allir sem hafa mætt á minnst fimm mót í vetur verða með í útdrættinum og því oftar sem hefur verið mætt, því meiri líkur eru á að verða dreginn út. 33 einstaklingar eru nú í pottinum en alls hafa tæplega 100 skákmenn og skákkonur mætt á mótin í vetur.
27.5.2009 | 17:42
Bókin um Williard Fiske - kom út á þessu ári hjá Háskólaútgáfunni
Fáir hafa haft aðra eins tröllatrú á Íslandi og Íslendingum eins og Bandaríkjamaðurinn Daniel Willard Fiske. Um miðja 19. öld fékk hann, þá ungur maður, geysilegan áhuga á Íslandi. Hann lærði íslensku og dvaldi á Íslandi um hríð 1879. Hann trúði því að Ísland ætti mjög bjarta framtíð fyrir sér, aðeins þyrfti að herða til aðgerða. Hann kynntist fjölda manna sem margir hverjir hjálpuðu honum síðar við söfnun á íslenskum ritum.
Ástamál hans voru ljúfsár, en hann kvæntist mjög auðugri stúlku sem lést eftir skamma sambúð. Harðsóttur arfur eftir hana gerði honum kleift að safna íslenskum bókum af ástríðu, sem varð hið markverðasta við lífsstarf hans og myndar stofninn að Fiske Icelandic Collection við Cornell-háskólann í Bandaríkjunum. Í þessari bók er dregin upp heilsteypt mynd af margbrotnum persónuleika manns, sem vildi auðga líf Íslendinga og bæta hag þeirra.
Útgefandi er Háskólaútgáfan og er verð bókarinnar er 4.400. Þeir sem senda svar fljótlega til Skáksambands Íslands í netfangið, skaksamband@skaksamband.is gefa fengið hana á 3.872 kr. (12% afsláttur).
27.5.2009 | 10:51
Gunnar Björnsson gefur kost á sér sem forseti SÍ
Gunnar Björnsson hefur ákveðið að gefa kost á sér sem forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins sem fram fer nk. laugardag.
Gunnar hefur starfað samfleytt í skákhreyfingunni í 23 ár. Í stjórn TR 1986-91, í stjórn Hellis frá 1991 og þar af sem formaður 1991-95 og frá 2004 og í stjórn Skáksambands Íslands 1992-99 og 2004-06. Alþjóðlegur skákdómari frá 1996 og ritstjóri Skák.is frá upphafi en síðan var sett á laggirnar 1. apríl 2001.
Verði Gunnar kjörinn mun hann hætta sem formaður Hellis á aðalfundi félagsins sem haldinn verður í i júní.
Aðalfundur SÍ fer fram í Félagsheimili TR, Faxafeni 12, á laugardag og hefst kl. 10.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.5.2009 | 21:00
Stofnfundur félags íslenskra skákdómara haldinn á föstudag
Til stendur að stofna Félags íslenskra skákdómara (FÍS) og er hér með boðað til stofnfundar félagsins föstudaginn 29. maí kl. 20, þ.e. degi fyrir aðalfund sjálfs Skáksambandsins, í húsakynnum þess, Faxafeni 12.
Þeir sem óska eftir því að gerast stofnfélagar eru beðnir um að hafa samband í netfangið fis@skaksamband.is sem fyrst. Íslensk skákfélög er hvött til að tilnefna a.m.k. félagsmenn í FÍS.
Drög um lög félagsins liggja fyrir:
Lög félags íslenskra skákdómara (FÍS)
1.gr.
Félagið heitir Félag íslenskra skákdómara og er skammstafað FÍS.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
3. gr
Tilgangur félagsins er að vera samstarfsvettvangur íslenskra skákdómara.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því kynna nýjar skákreglur og reglubreytingar, með námskeiðum fyrir félög og dómara og með reglulegum samráðsfundum með dómurum þar sem álitamál er rædd. Hægt er leita til félagsins varðandi álit á reglum en félagið úrskurðar ekki í álita- eða deilumálum. Félagið sem slíkt heyrir ekki undir stjórn Skáksambands Íslands sem þó getur leitað ráðgjafar eða aðstoðar t.d. varðandi álitamál á reglum eða námskeiðahald.
5. gr.
Stofnfélagar eru: (Hér þarf nöfn, heimilisföng og kennitölur allra stofnenda).
6.gr.
Félagsaðild hafa allir alþjóðlegir skákdómarar og FIDE-dómarar. Einnig þeir sem reynslu af dómarastörfum og hafa þá verið dómarar í a.m.k fimm skákmótum síðustu 3 ár og þar af eitt kappskákmót eða stórt unglingaskákmót. Hvert aðildarfélag Skáksambands Íslands hefur rétt á tilefna einn mann í félagið og skal sá hafa þá einhverja reynslu af skákdómarastörfum.
Stjórn félagsins metur hvort umsækjendur uppfylli skilyrðin. Nýja félagsmenn má taka inn hvenær sem er.
7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum þ.e. formanni og 2 meðstjórnendum. Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Almennt skal stefnt að því halda aðalfund sambandsins degi fyrir aðalfund Skáksambands Íslands. Aðalfundir sem og félagsfundir skulu vera boðaðir með a.m.k hálfsmánaðar fyrirvara og þá með rafpósti til félagsmanna og á Skák.is.
Daglega umsjón félagsins annast formaður félagsins. Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta stjórnar.
8. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
9. gr.
Árgjald félagsins er 1.000 kr.
10. gr.
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið til kynningarstarfs.
11. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til Skáksambands Íslands.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins 29. maí 2009 og öðlast þegar gildi.
Dagsetning og undirskriftir allra stofnenda eða stjórnarmanna.
Spil og leikir | Breytt 27.5.2009 kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.5.2009 | 23:38
Aðalfundi TR frestað
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 1
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 169
- Frá upphafi: 8779107
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 105
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar