Fćrsluflokkur: Spil og leikir
22.7.2011 | 07:00
Stefnir í sterkasta Norđurlandamót öldunga í skák sem fram hefur fariđ
Mótiđ haldiđ hér á landi í fyrsta sinn í haust Búist er viđ metţátttöku
Sjöunda Norđurlandamót öldunga í skák verđur haldiđ í fyrsta skiptiđ á Íslandi í september nćstkomandi. Stórmeistarinn Friđrik Ólafsson hefur skráđ sig til leiks ásamt fleiri stórmeisturum í skák eins og Yrjo Rantanen og Heikki Westerinen. Nú ţegar hafa 33 skákmenn [45 ţann 22. júlí] skráđ sig til leiks og bendir allt til ţess ađ met verđi slegiđ sem sett var í Fredrikstad áriđ 2001, er 46 skákmenn tóku ţátt.Fyrsta Norđurlandamót öldunga var haldiđ í Karlstad í Svíţjóđ áriđ 1999 en síđan hefur mótiđ veriđ haldiđ annađ hvert ár. Íslendingar hafa aldrei fjölmennt á mótin og hafa mest 1-2 keppendur frá Íslandi tekiđ ţátt ađ sögn Gunnars Björnssonar, formanns Skáksambands Íslands. Ţađ hefur orđiđ kippur í öldungastarfi í skák á Íslandi og ţađ eru nokkur virk félög öldunga í skák, bćđi í Reykjavík og Hafnarfirđi, en hlutfalliđ er mjög óhagstćtt konum ţar sem ađeins karlmenn hafa skráđ sig í mótiđ sem haldiđ verđur eftir um tvo mánuđi," segir Gunnar.
Friđrik ađ öllum líkindum stigahćstur
Ţađ eru óvenjulega sterkir skákmenn sem ćtla ađ taka ţátt núna og miklu fleiri góđir en oft hefur veriđ," segir Gunnar. Íslendingar hafa hingađ til ekki komist í efstu röđ á ţessum Norđurlandamótum. Ţetta er kjöriđ tćkifćri fyrir menn ađ tefla viđ kollega sína frá Norđurlöndunum," segir Gunnar.Ég skráđi mig en ţađ er spurning hvort tíminn passi, ég geri samt ráđ fyrir ţví," segir Friđrik Ólafsson, stórmeistari í skák, 76 ára ađ aldri. Hann segist hafa skráđ sig ţví skorađ hafi veriđ á hann og einnig vegna ţess ađ ţetta er í fyrsta skiptiđ sem mótiđ er haldiđ á Íslandi og ţví meiri möguleikar ađ hann geti veriđ međ. Ég virđist vera stigahćstur af ţessum ţátttakendum," segir Friđrik.
Friđrik hefur undanfarin ár sinnt áhugamálum sínum, eins og ferđalögum, tónlist, gönguferđum og fleira. Hefur hann ferđast mikiđ međ skemmtiferđaskipum sem hann telur vera mjög ţćgilegan ferđamáta. Einnig hefur hann unniđ ađ ţví ađ skrásetja 50 ára skákferil sinn og býst viđ ađ gefa verkiđ út ţegar ţví hefur veriđ lokiđ. Já, ég er spenntur fyrir ađ taka ţátt, ţađ er alltaf gaman ađ tefla ţó mađur sé nú orđinn frekar latur viđ ţađ en ég hef ađeins fylgst međ. Mađur ţarf mikinn kraft í ađ tefla, eldmóđ og einbeitni. Mađur er nú ekki lengur tvítugur," segir Friđrik en hann hefur lítiđ teflt á undarförnum árum. Ég reikna međ ţví ađ ég rifji ađeins upp mannganginn og skođi ţađ sem hefur veriđ ađ gerast til ađ ţjálfa upp hugsunina, ţađ er ákveđinn rútína ađ koma heilafrumunum í gang. Mađur gleymir ţví nú aldrei sem gert hefur veriđ sćmilega," segir Friđrik ađ endingu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 23:55
Kramik byrjar vel í Dortmund
Ţađ er ekki algengt ađ ţrjú toppskákmót séu í gangi í einu. Í dag hófst Dortmund Sparkassen-mótiđ en međal keppenda eru Kramnik (2781), Nakamura (2770) og Giri (2701). Auk Dortmund-mótsins er mótiđ í Biel sem og HM landsliđa í gangi. Á morgun hefst svo Czech Open sem er nú reyndar ekki í sama styrkleika!
Kramnik vann Ponomariov (2764) en öđrum skákum lauk međ jafntefli. Rétt eins og í Biel taka 6 skákmenn ţátt og tefld er tvöföld umferđ.
Úrslit 1. umferđar:
Georg Meier | ˝-˝ | Le Quang Liem |
Vladimir Kramnik | 1-0 | Ruslan Ponomariov |
Anish Giri | ˝-˝ | Hikaru Nakamura |
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13:30 (notuđ er hálftíma seinkun))
21.7.2011 | 17:18
Guđmundi Kja gekk vel á atskákmóti í Pardubice
Alţjóđlega meistaranum Guđmundi Kjartanssyni (2310) gekk vel á atskákmóti sem fram fór í gćr og í dag í Pardubice í Tékklandi. Mótiđ var hluti af Czech Open-skákhátíđinni. Guđmundur hlaut 6 vinninga í 9 skákum og varđ í 11.-23. sćti af 132 skákmönnum. Guđmundur Gíslason tók einnig ţátt og hlaut 4,5 vinning og varđ í 60.-78. sćti.
Árangur Kjartanssonar samsvarađi 2477 skákstigum en árangur Gíslasonar samsvarađi 2169 skákstigum. Ţeir taka báđir ţátt í ađalmótinu sem hefst á morgun. Ţar teflir einnig stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2546).
Sigurvegar mótsins voru tékkneski stórmeistarinn David Navara (2722) og úkranínski alţjóđlegi meistarinn Andrey Baryshpolets (2474) en ţeir hlutu 7,5 vinning. 29 stórmeistarar tóku ţátt í ţessa sterka atskákmóti.
21.7.2011 | 14:16
Armenar efstir á HM landsliđa
Armenar eru efstir á HM landsliđa ţegar 5 umferđum af 9 er lokiđ. Armenar hafa 8 stig af 10 mögulegum, hafa gert jafntefli viđ Rússa og Bandaríkjamenn. Nýr liđsmađur Armena, Movsesian (2700), hefur reynst drjúgur og hefur hlotiđ 3˝ vinning á öđru borđi. Rússar og Ungverjar koma nćstir međ 7 stig. Rússar töpuđu óvćnt fyrir Aserum, 1-3. Mótiđ fer fram í Ningbo í Kína. Frídagur er á morgun en mótinu verđur framhaldiđ á föstudag og lýkur svo á ađfaranótt ţriđjudags.
10 af sterkustu landsliđum heims taka ţátt og tefla allir viđ alla. Rússar hafa sterkasta liđiđ á pappírnum (međalstig 2752) en nćstir koma Aserar (2737), Úkraínumenn (2722) og Armenar (2709).
Stađan:
Rk. | Team | TB1 | TB2 |
1 | Armenia | 8 | 13,5 |
2 | Russia | 7 | 12 |
3 | Hungary | 7 | 11,5 |
4 | Ukraine | 6 | 10,5 |
5 | China | 5 | 11 |
6 | Azerbaijan | 5 | 11 |
7 | USA | 5 | 10 |
8 | Israel | 4 | 8 |
9 | India | 3 | 8 |
10 | Egypt | 0 | 4,5 |
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 7 á morgnana - nema lokaumferđin hefst kl. 2 um nótt)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 07:00
Björn Ívar og Donika sigurvegarar á sumarskákmóti Akademíunnar
Mikiđ er um ađ vera ţessa vikuna í skáklífi Reykjavíkur. Á mánudag var sett ţátttökumet á Skákmóti í Vin og í hádeginu í gćr mćtti vel á ţriđja tug keppenda í Skákakademíuna ţar sem fór fram annađ Sumarskákmót Skákakademíunnar. Seinni partinn í dag stendur svo Taflfélag Reykjavíkur fyrir skák á Klambratúni.
Mótiđ í gćr var vel mannađ og um 10 keppendur yfir 2000 stigum. Fyrirfram mátti búast viđ öruggum sigri Hjörvars Steins en Mátinn Arnar Ţorsteinsson lagđi Hjörvar ađ velli í nćst síđustu umferđ. Fór svo ađ ţeir tveir urđu efstir og jafnir međ fimm vinninga af sex ásamt hreindýrabananum Birni Ívari Karlssyni. Björn hafđi áđur unniđ Arnar en tapađ fyrir Hjörvari.
Donika Kolica varđ hlutskörpust af yngri kynslóđinni en fast á hćla hennar komu Guđmundur Agnar Bragason og Gauti Páll Jónsson.
Í dag verđur svo opiđ hús í Skákakademíunni frá morgni og fram eftir degi. Upp á síđkastiđ hefur mikiđ bćst í Skákbókakost Skákakademíunnar sem nýtur velvilja Ingvars Ţórs Jóhannessonar, en Ingvar geymir hluta sinna fjölmörgu skákbóka í Tjarnargötunni. Skákmenn geta ţví litiđ viđ á morgun; gripiđ í tafl og jafnvel litiđ í bók.
Ţađ er ţví nóg um ađ vera í dagí skáklífi Reykjavíkur, í Tjarnargötunni og á Klambratúni.
Myndaalbúm (HJ)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 00:24
Íslenskt efni á ChessCafe.com
Ţađ eru margar áhugaverđar skákfréttasíđur á bođstólum, fyrir utan www.skak.is, en ţegar öllu er á botninn hvolft er ChessCafe.com sennilega sú besta og fjölbreyttasta. Eins konar safnsíđa međ helstu skákfréttum alls stađar ađ, sem birst hafa á öđrum skáksíđum undir "Daily Chess New Links" , svo sem Chessbase News; The Week In Chess; ChessVipes; Chessdom; og vefsíđum dagblađa hvađanćva ađ úr heiminum. Á ChessCafe.com er ţvi hćgt ađ nálgast nánast allt sem skiptir máli á einum stađ fyrir sem vilja fylgjast vel međ skákfréttum og mótum og sjá ţađ helsta sem skrifađ er um skák og skákmál.
Ţess utan eru á ChessCafe sérstakir mjög fróđlegir ţćttir, svo sem: Ritdómar um skákbćkur; Skođanahorniđ; Skjalasafniđ og Video-kastljósiđ ofl. fyrir utan greina fastra dálkahöfunda,sem skrifa um ađskiljanleg efni tengdum skák. Ţar á međal eftir einn af ađstandendum síđunnar Dađa Jónsson, kerfisfrćđing og skákdálkahöfund, undir yfirskriftinni ChessOK Cafe, sem skrifar fćrđilegar ritgerđir um Chess Assistant hugbúnađ og rannsóknarforrit.
Ný grein eftir Dađa birtist fyrir nokkrum dögum um "Aquarium 2011 directory structure". Ţá trónir nú íslenska skákmyndbandiđ Chess Fury (SkákOfsi) í video-horninu, sem sýnir ákafaskákmenn í KR í ham og í nćrmynd, sem láta sér ekki muna um ađ tefla 13 umferđa hrađskákmót á mánudögum allan ársins hring.
ChessCafe.com er frábćr síđa sem hćgt er ađ mćla međ og sjá allt ţađ helsta um skák og ţađ er gerast á skáksviđinu í hnotskurn. Á forsíđunni er ađ finna leiđbeiningar og góđar ráđleggingar um hvernig best er ađ nota og nálgast efni síđunnar. -
Texti frá Einari S. Einarssyni.
http://www.chesscafe.com/video/video.htm
20.7.2011 | 19:22
Teflt á Klambratúni!
Dótakassinn á Klambratúni í samvinnu viđ Taflfélag Reykjavíkur býđur borgarbúum upp á ţann möguleika ađ koma og tefla á Klambratúni í sólinni fimmtudaginn 21. júlí, ţeim ađ endurgjaldslausu.
Hugmyndin kemur úr Central Park ţar sem bođiđ er upp á steypt borđ ţar sem fólk getur komiđ međ sína taflmenn og nýtt blíđviđriđ í góđa hugarleikfimi. Á morgun milli fjögur og sjö verđur ţví hćgt ađ tefla ásamt ţví ađ nýta leikföngin og spilin sem Dótakassinn hefur til umráđa.
Kíkiđ á Klambratún á fimmtudaginn milli kl 16.00-19.00!
Dótakassinn á Klambratúni, ÍTR - Frístundamiđstöđin Kampur
20.7.2011 | 18:18
Carlsen efstur í Biel
Magnus Carlsen (2821) er efstur međ 7 stig ađ lokinni 3. umferđ ofurmótsins í Biel sem fram fór í dag. Magnus mátti sćtta sig viđ jafntefli viđ Morozevich (2694) sem er međ 5 stig.
Sex skákmenn taka ţátt og tefla tvöfalda umferđ. Veitt eru 3 stig fyrir sigur og eitt stig fyrir jafntefli.
Úrslit 2. og 3. umferđar:July 19th: 2nd round (from 2 PM) Maxime Vachier-Lagrave - Alexander Morozevich 0 - 1 (41) Magnus Carlsen - Alexei Shirov 1 - 0 (33) Fabiano Caruana - Yannick Pelletier ˝ - ˝ (59)
July 20th: 3rd round (from 2 PM)Yannick Pelletier - Maxime Vachier-Lagrave ˝ - ˝ (34) Alexei Shirov - Fabiano Caruana 1 - 0 (63) Alexander Morozevich - Magnus Carlsen ˝ - ˝ (52
Stađan:
Name ELO Points 1. Magnus Carlsen NOR 2815 7 2. Alexander Morozevich RUS 2694 5 3. Alexei Shirov ESP 2714 4 4. Maxime Vachier-Lagrave FRA 2722 2 Fabiano Caruana ITA 2711 2 Yannick Pelletier
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
20.7.2011 | 11:44
Guđmundur međ sigra í lokumferđunum í stigamóti í Pardubice
Guđmundur Gíslason (2322) vann stigalága andstćđinga í tveimur síđustu umferđum stigamóts sem fram fer í Pardubice í Tékklandi. Guđmundur hlaut 4˝ vinning og endađi í 16.-24. sćti. Níu skákmenn urđu efstir og jafnir međ 5˝ vinning.
Í mótinu, sem var sjö umferđir, tóku 90 skákmenn ţátt í. Ţar af voru 3 stórmeistarar og 4 alţjóđlegir meistarar. Guđmundur var nr. 5 í stigaröđ keppenda. Mótiđ var hluti af Czech Open.
19.7.2011 | 15:39
Sumarskákmót Skákakademíunnar á afmćlisdegi FIDE
Spáđ er heiđskýrum himni og glampandi sól á morgun. Ţví er tilvaliđ ađ efna til annars Sumarskákmóts Skákakademíunnar sem ađ ţessu sinni verđur tileinkađ alţjóđa Skáksambandinu FIDE. FIDE var stofnađ 20. júlí 1924 og er ţví einu ári eldra en Skáksamband Íslands sem var stofnađ á Blönduósi áriđ 1925.
Illdeilur og átök hafa oft einkennt FIDE sem má telja eđlilegt ţegar litiđ er til ţess ađ 158 skáksambönd eiga ađild ađ sambandinu og skákmennirnir á bakviđ ţau eins ólíkir og ţeir eru margir. Einkunnarorđ sambandsins standa ţó alltaf fyrir sínu; GENS UNA SUMUS sem ţýđir Viđ erum ein fjölskylda.
Helsti áfangaveiđari Íslands um ţessar mundir Hjörvar Steinn Grétarsson hefur bođađ komu sína á mótiđ sem hefst 12:00.
Tefldar verđa sex umferđir međ 5 mínútna umhugsunartíma og tekur mótiđ rúman klukkutíma.
Nokkur borđ verđa úti á stétt svo menn geta sólađ sig og teflt í leiđinni.
Skákmenn eru hvattir til ađ fjölmenna í Skákakademíuna Tjarnargötu 10 A í hádeginu á morgun.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.7.): 0
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 124
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 97
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar