Fćrsluflokkur: Spil og leikir
13.1.2018 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Skákin fangar athygli Jóns og Gunnu
Stór hluti norsku ţjóđarinnar sat límdur viđ skjáinn síđustu daga ársins 2017 ţegar heimsmeistaramótin í at-skák og hrađskák fóru fram í Riyadh í Sádi-Arabíu, en auk vefmiđlanna var norska sjónvarpiđ, NRK, međ beinar útsendingar frá viđureignum Magnúsar Carlsen. Niđurstađan: hinn 48 ára gamli Indverji Wisvanathan Anand varđ heimsmeistari í atskák og Magnús Carlsen heimsmeistari í hrađskák.
Skákin er á mikilli uppleiđ í sjónvarpi og á netinu. Vandinn hefur veriđ sá ađ keppnisgreinin sem slík hefur ţótt gera of miklar kröfur til ţekkingar áhorfandans og ekki náđ ađ fanga athygli Jóns og Gunnu. Eins og mótin eru matreidd nú til dags međ skákskýringum, nćrmyndum af keppendum, tímahraki og tölvugreiningu er ađ verđa breyting á. Ţegar viđ bćtist hátt verđlaunafé eykst athygli stćrstu fjölmiđlanna; 250 ţúsund dalir voru í 1. verđlaun í hvoru móti og má geta ţess ađ CNN sýndi langan ţátt um mótiđ. En heimsmeistaramótiđ beindi einnig athygli ađ bjánalegum skákreglum og atvik úr viđureign Magnúsar Carlsen í 1. umferđ hrađskákarinnar kallađi á sterk viđbrögđ:
Magnus Carlsen Inarkiev
Síđasti leikur heimsmeistarans var 27. Ha7xb7+. Rússinn Inarkiev sá fram á ađ stađa hans vćri töpuđ eftir 27. ... Hxb7 28. Bxe8+ og eftir uppskipti á hrókum á hvítur ađ vinna á umframpeđinu en lék ţess í stađ ólöglegum leik, 27. ... Re3+. Af mörgu vitlausu regluverki sem komiđ hefur frá FIDE síđustu árin opnar ein sú vitlausasta á ţann möguleika ađ sá sem leikur ólöglegum leik getur unniđ skákina; Magnús lék nefnilega 28. Kd3 og Inarkiev krafđist vinnings á ţeirri forsendu ađ Magnús hefđi leikiđ ólöglegum leik! Ţótti mörgum býsna lágt lotiđ en viti menn: dómarinn féllst á ađ ţađ vćri réttmćt krafa! Stuttu síđar var svo fariđ ađ rýna í reglurnar og niđurstađan varđ sú ađ skákinni skyldi haldiđ áfram eftir 27. leik hvíts. Inarkiev neitađi ađ tefla frekar en dómarinn var settur af og okkar mađur í Sádi-Arabíu, alţjóđlegi dómarinn Omar Salama, var settur yfir viđureignir heimsmeistarans.
Atvikiđ virtist slá Magnús Carlsen út af laginu fyrri keppnisdaginn en ţann síđari náđi hann vopnum sínum og ađ lokum hlaut hann 16 vinninga af 21 mögulegum. Karjakin og Anand komu nćstir međ 14˝ vinning hvor.
Minningarmót um Steinţór Baldursson
Skáksamband Íslands og Skákskóli Íslands hafa samvinnu um alţjóđlegt mót skipađ skákmönnum 20 ára og yngri til ađ minnast Steinţórs Baldurssonar, stjórnarmanns í SÍ, sem féll frá langt um aldur fram haustiđ 2016. 24 skákmenn hófu keppni á fimmtudaginn og tefldar verđa sjö umferđir međ tímamörkunum 90 30. Eftir fyrstu tvćr umferđirnar voru fjórir međ tvo vinninga, ţ.ám. Birkir Örn Bárđarson.
Hinn 16 ára gamli Aron Thor Mai fékk á sig sjaldséđa leiđ í Najdorf-afbrigđi Sikileyjarvarnar en var öllum hnútum kunnugur:
Aron Thor Mai Ljuten Apol (Fćreyjar)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Rc6 8. Rxc6 bxc6 9. e5 h6 10. Bh4 g5 11. fxg5 Rd5 12. Re4 Db6 13. c3 hxg5 14. Bxg5 dxe5?
15. ... exd5 er svarađ međ 17. Rf6+ og 18. Rxd5+ sem vinnur drottninguna.
16. Dd2 Bxg5 17. Rx
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 6. janúar 2018.
Spil og leikir | Breytt 11.1.2018 kl. 01:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2018 | 10:50
Hannes vann í fyrstu umferđ í Prag
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2523) tekur um ţessar mundir ţátt í tveimur alţjóđlegum mótum í Tékklandi. Hiđ fyrra fer fram í Prag dagana 12.-19. janúar óg í framhaldinu fer Hannes til Marienbad og teflir 20.-27. janúar. Ţess fyrir utan tekur Hannes ţátt í Skákhátíđ MótX í Stúkunni í Breiđabliki en tekur yfirsetur ţar á međan hann er í Tékkó.
Fyrsta umferđ fór fram í gćr og ţar vann Hannes stigalágan ţjóđverja (2071). Fyrirstađan í dag verđur meiri en í dag mćtir rússneska alţjóđlega meistaranum Nikolay Monin (2193) í fyrri skák dagsins sem nú er í gangi.
13.1.2018 | 10:29
Vignir Vatnar sigrađi á hrađkvöldi
Vignir Vatnar Stefánsson sigrađi á atkvöldi Hugins sem fram fór 8. janúar sl. Vignir Vatnar fékk 5,5v af sex mögulegum og ţađ var Kristján Halldórsson sem náđi jafnteflinu í fimmtu umferđ en ađrir máttu játa sig sigrađa. Síđan komu ţrír jafnir međ 4v en ţađ voru ţeir Stephan Briem, Kristján Halldórsson og Benedikt Briem. Af ţeim var Stephan hćstur á stigum og hlaut annađ sćtiđ. Kristján kom nćstur ađ stigum og hlaut ţriđja sćtiđ en Benedikt ţurfti ađ láta sér nćgja fjórđa sćtiđ ţótt hann hafi lagt ađ velli sér eldri og reyndari skákmenn á atkvöldinu.
Tölvan var látin um dráttinn eins og á síđustu skákkvöldum. Upp kom talan sjö ţannig ađ Vigfús var dreginn í ţetta sinn og höfđu sumir á orđi ađ ţetta vćri nú ekkert random. Vignir Vatnar valdi gjafabréf frá Dominos og Vigfús valdi Saffran enda lítur hver sínum augum á silfriđ. Nćsta skákkvöld verđur mánudaginn 29. janúar og ţá verđur hrađkvöld.
Lokastađan á hrađkvöldinu:
1. Vignir Vatnar Stefánsson, 5,5v/6
2. Stephan Briem, 4v
3. Kristján Halldórsson, 4v
4. Benedikt Briem, 4v
5. Kristófer Ómarsson, 3,5v
6. Sigurđur Freyr Jónatansson, 3v
7. Vigfús Ó. Vigfússon, 3v
8. Hjalti Atlason, 3v
9. Örn Alexandersson, 2,5v
10. Hjálmar Sigurvaldason, 1,5v
11. Björgvin Kristbergsson, 1v
12. Hörđur Jónasson, 1v
Lokastađan í chess-results:
12.1.2018 | 13:38
Óvćnt úrslit í 1.umferđ Skákţings Reykjavíkur
Margar skemmtilegar skákir voru tefldar í skáksal Taflfélags Reykjavíkur á miđvikudagskvöld ţegar flaggskip félagsins, Skákţing Reykjavíkur, lagđi úr höfn. Ţađ má međ sanni segja ađ ţetta sögufrćga skákmót hafi byrjađ međ látum. Stigahćrri skákmenn ţurftu margir hverjir ađ hafa mikiđ fyrir viđureignum sínum gegn ţeim stigalćgri svo oft skall hurđ nćrri hćlum. Ţó svo stigamunurinn vćri 500-900 stig ţá var handagangurinn í öskjunni slíkur ađ eitthvađ varđ undan ađ láta. Ţessari fyrstu umferđ lauk međ ţremur óvćntum úrslitum sem kann ađ gefa fyrirheit um ţađ sem koma skal í Skákţinginu ţetta áriđ.
Skákţing Reykjavíkur var fyrst haldiđ áriđ 1932. Ţá fór međ sigur úr býtum hinn sexfaldi Íslandsmeistari Ásmundur Ásgeirsson. Síđan ţá hafa margir af fremstu skákmönnum ţjóđarinnar hampađ Reykjavíkurmeistaratitlinum, enginn ţó oftar en stórmeistarinn Ţröstur Ţórhallsson og alţjóđlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson; alls sjö sinnum. Á međal sigurvegara eru stórmeistararnir Friđrik Ólafsson (1960, 1963, 1975), Margeir Pétursson (1980), Helgi Ólafsson (1976, 1977), Hjörvar Steinn Grétarsson (2009, 2010), Stefán Kristjánsson (2002, 2006) og Jón L. Árnason (1981).
Keppendur Skákţingsins ţetta áriđ eru alls 57 og ţar á međal eru tveir fyrrum Reykjavíkurmeistarar. Alţjóđlegi meistarinn Bragi Ţorfinnsson (2426), sem vann mótiđ áriđ 2004, og FIDE-meistarinn Sigurbjörn J. Björnsson (2288), sem varđ hlutskarpastur áriđ 2007, ţykja báđir sigurstranglegir. Ađrir titilhafar sem munu vafalítiđ blanda sér í toppbaráttuna eru alţjóđlegi meistarinn Einar Hjalti Jensson (2336), FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2332), FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2304) og stórmeistari kvenna Lenka Ptácníková (2218).
Mótiđ hófst á ţví ađ skákdrottningin Birna Halldórsdóttir lék fyrsta leikinn á efsta borđi í skák Einars Hjalta (2336) sem hafđi hvítt gegn Óskari Long Einarssyni (1785). Birna hefur ásamt manni sínum, Ólafi Ásgrímssyni, stađiđ stađföst vaktina hjá Taflfélagi Reykjavíkur í áratugi og hafa ţau hjónin gćtt félagiđ einstöku og ómetanlegu lífi. Ţađ fór vel á ţví ađ Birna léki fyrsta leikinn í einu elsta og virtasta skákmóti ţjóđarinnar ţar sem Ólafur gegnir embćtti skákstjóra. Birna lék kóngspeđi Einars Hjalta fram um tvo reiti og var sem peđiđ öđlađist fítonskraft ţví ţađ reyndist örlagavaldur snemma tafls. Töfrar Birnu eru órannsakanlegir.
Í ţessari fyrstu umferđ urđu ţau tíđindi helst ađ fyrrum formađur Taflfélags Reykjavíkur, Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (1734), skellti Degi Ragnarssyni (2332) međ hvítu. Dagur geystist upp drottningarvćnginn og međ óstöđvandi frípeđ á b-línunni stóđ pilturinn međ pálmann í höndunum. Sjaldgćf villa hefur slćđst í útreikningana hjá Degi ţví hann bauđ upp á varhugaverđ drottningakaup sem umturnuđu taflinu. Skyndilega blasti viđ mát uppi í borđi, óleysanleg leikţröng og Sigurlaug stóđ til vinnings. Hún setti örlögin í hendur Guđsmannsins sem dansađi um borđiđ undir lok skákarinnar ţar til hann komst á a3-f8 skálínuna og vinningurinn var í höfn.
Rektor Menntaskólans viđ Hamrahlíđ, Lárus H. Bjarnason (1539) gerđi sér lítiđ fyrir og vann MR-inginn Gauta Pál Jónsson (2161) í nokkuđ sérkennilegri Sikileyjarvörn ţar sem Gauti Páll pakkađi inn peđi og fćrđi rektornum ađ gjöf í skiptum fyrir virka menn og betri peđastöđu. Ţó grunsamlega pakka beri ađ nálgast af varúđ ţá ţáđi rektorinn gjöfina án nokkurra eftirmála. Hann stóđ af sér allt sprikl Gauta Páls og hafđi ađ lokum sigur í 45 leikjum.
Gamla brýniđ Jón Úlfljótsson (1687) hélt upp á 50 ára Skákţingsafmćliđ sitt međ ţví ađ lćsa hurđum og henda lyklinum gegn Sigurbirni J. Björnssyni (2288). Ţó sögur fari af ţróttmiklum keppnismönnum í Faxafeninu sem komist hafa í gegnum lćstar hurđar ţá reyndist stađa Jóns svo rammgirt ađ vel vopnum búinn sérsveitarmađur hefđi ţurft frá ađ hverfa. Jón og Sigurbjörn sćttust ţví á skiptan hlut eftir 41 leik.
Önnur úrslit ţessarar viđburđaríku 1.umferđar voru samkvćmt hinni víđfrćgu bók. Engu ađ síđur voru margir meistarar framtíđarinnar hársbreidd frá ţví ađ gera ţaulvönum keppnismönnum skráveifu. Ţessi fyrsta umferđ lofar ţví svo sannarlega góđu fyrir fyrir framahaldiđ og eru skákunnendur hvattir til ţess ađ taka ţátt í veislunni međ ţví ađ líta viđ í skáksalinn. Hörkuskákir eru framundan í 2.umferđ mótsins sem hefst nćstkomandi sunnudag klukkan 13:00. Íslenskukennarinn og rithöfundurinn Bragi Halldórsson (2082) stýrir ţá hvítu mönnunum á efsta borđi gegn Einari Hjalta (2336). Á öđru borđi hefur Aron Ţór Mai (2066) hvítt gegn stórmeistarabananum Vigni Vatnari (2304).
Taflfélag Reykjavíkur mun sem fyrr ţjónusta skákáhugamenn međ öflugri úrslitaţjónustu, leiftursnöggum innslćtti skáka, glóđvolgum ljósmyndum úr skáksal og krćsingum úr eldhúsinu. Ţeir skákáhugamenn sem ekki eiga heimangengt geta fylgst međ skákum efstu borđa í beinni útsendingu á netinu.
Skákir 1.umferđar ásamt úrslitum og mótstöflu má finna á Chess-Results.
Sjá nánar á heimasíđu TR.
12.1.2018 | 07:00
Skákţing Akureyrar hefst á sunnudaginn
Skákţing Akureyrar, hiđ 80. í röđinni hefst nk. sunnudag 14. janúar.
Teflt verđur í Skákheimilinu í Íţróttahöllinni viđ Skólastíg.
Dagskrá:
- umferđ sunnudaginn 14. janúar kl. 13.00
- umferđ fimmtudaginn 18. janúar kl. 18.00
- umferđ sunnudaginn 21. janúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 28. janúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 4. febrúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 11. febrúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 18. febrúar kl. 13.00
Öllum er heimil ţátttaka í mótinu.
Tefldar verđa 7 umferđir skv. svissnesku kerfi. *
Sigurvegar mótsins hreppir heiđurstitilinn: **
Skákmeistari Akureyrar 2018
Umhugsunartími verđur 90 mínútur á skákina, auk ţess sem 30 sekúndur bćtast viđ tímann fyrir hvern leik (90+30).
Ţátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir ađra. Ţátttaka er ókeypis fyrir ţá unglinga sem greitt hafa ćfingagjald.
Mótiđ verđur reiknađ til íslenskra og alţjóđlegra skákstiga.
Verđlaun:
- sćti kr. 20.000
- sćti kr. 14.000
- sćti kr. 8.000
stigaverđlaun (1799 stig og minna) kr. 8.000
Skráning er hjá skákstjóra í netfangiđ askell@simnet.is eđa á facebook-síđu Skákfélags Akureyrar.
Einnig er hćgt ađ skrá sig á skákstađ eigi síđar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferđar.
* Mótsstjórn áskilur sér rétt til ţess ađ gera breytingar á fjölda umferđa ţegar endanlegur ţátttakendalisti liggur fyrir. Ákvörđun um fyrirkomulag verđur tilkynnt keppendum fyrir upphaf fyrstu umferđar.
** Skákmeistari Akureyrar getur ađeins sá orđiđ sem er búsettur á Akureyri og/eđa er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.
Spil og leikir | Breytt 8.1.2018 kl. 08:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2018 | 19:58
TORG skákmót Fjölnis verđur haldiđ 26. janúar á Skákdegi Íslands Ókeypis ţátttaka
Skákdeild Fjölnis hefur stađiđ fyrir afar glćsilegu TORG skákmóti, hvert ár síđan 2004. Ţetta er eitt allra vinsćlasta barna-og unglingaskákmót landsins og er ćtlađ öllum áhugasömum grunnskólanemendum í Grafarvogi og á landinu öllu. Teflt er um verđlaunagripi og 30 verđlaun eđa happadrćttisvinninga. Teflt er í hátíđarsal Rimaskóla og hefst skákmótiđ kl. 15:00 föstudaginn 26. janúar og lýkur sama dag um kl 17:00. Skráning á stađnum og ţví heppilegt ađ allir keppendur mćti korteri fyrir keppni.
TORG skákmótiđ ber ađ ţessu sinni upp á Skákdag Íslands 26. janúar sem er afmćlisdagur Friđriks Ólafssonar fyrsta stórmeistara Íslands í skák. Friđrik verđur 83 ára ţennan dag og verđur honum bođiđ ađ vera viđstaddur mótiđ sem heiđursgestur og fylgjast međ ćsku Íslands ađ tafli. Ţátttaka á ţessu glćsilega móti er ókeypis. Hagkaup og Emmess ís eru styrktarađilar mótsins. Fyrirtćkin gefa fjölda vinninga og bjóđa öllum ţátttakendum upp á ís, drykk og nammi í skákhléi. Fyrirtćkin á Torginu viđ Hverafold gefa einnig vinninga til mótsins, gjafabréf á pítsur, bćkur, tískufatnađ ofl. Foreldrar sem eru međvitađir um áhuga barna sinna á skáklistinni ćttu ađ hvetja börn sín til ađ taka ţátt í ţessu vinsćla skákmóti og taka tímann frá. Foreldrar eru einnig velkomnir ađ fylgjast međ og ţiggja kaffiveitingar á stađnum. Grunnskólanemendur, fjölmennum á skemmtileg skákmót í Rimaskóla á Skákdegi Íslands föstudaginn 26. janúar kl. 15.00 17:00.
10.1.2018 | 13:00
Jón Torfason vann Nýársskákmót Vinaskákfélagsins
Nýársskákmót Vinaskákfélagsins var haldiđ mánudaginn 8. Janúar 2018 í Vin ađ Hverfisgötu 47. Tefldar voru 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Skákstjóri var Hörđur Jónasson. Ţetta var fyrsta skákmót ársins 2018 hjá Vinaskákfélaginu. 11 keppendur tók ţátt í skákinni og var sérstaklega gleđilegt ađ Jón Torfason skyldi geta veriđ međ.
Halldóra Pálsdóttir forstöđukona í Vin lék fyrsta leikinn á skák ţeirra Róbert Lagerman og Finn Finnssonar.
Mótiđ tókst vel og var glatt á hjalla.
Jón Torfason sigrađi mótiđ međ 5,5 vinninga og var hćrri á stigum heldur en Róbert Lagerman sem fékk líka 5,5 vinninga og annađ sćtiđ. Ţriđja sćtiđ varđ Hjálmar Sigurvaldason međ 4 vinninga.
Eftir skákmótiđ gćddu keppendur sér á dýrindis vöfflum međ sultu og rjóma og kaffi. Ennfremur var reitt fram brauđterta og ţakkar stjórn Vinaskákfélagiđ fyrir góđar veitingar.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2018 | 07:00
Skákţing Reykjavíkur hefst í kvöld
Skákţing Reykjavíkur hefst miđvikudaginn 10. janúar kl. 19.30. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 90 mínútur og bćtast viđ 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndur bćtast viđ eftir hvern leik alla skákina. Teflt er í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12.
Keppendur geta tekiđ tvćr yfirsetur (bye) í umferđum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra viđ upphaf umferđarinnar á undan. Hálfur vinningur fćst fyrir yfirsetu.
Athygli er vakin á ţví ađ umferđir á sunnudögum hefjast kl. 13:00.
Dagskrá
1. umferđ miđvikudag 10. janúar kl. 19.30
2. umferđ sunnudag 14. janúar kl. 13.00
3. umferđ miđvikudag 17. janúar kl. 19.30
4. umferđ sunnudag 21. janúar kl. 13.00
5. umferđ miđvikudag 24. janúar kl. 19.30
6. umferđ sunnudag 28. janúar kl. 13.00
7. umferđ miđvikudag 31. janúar kl. 19.30
8. umferđ sunnudag 04. febrúar kl. 13.00
9. umferđ miđvikudag 07. febrúar kl. 19.30
Hrađskákmót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 11. febrúar kl. 13 og verđur ţá jafnframt verđlaunaafhending fyrir Skákţingiđ.
Tímamörk
90 mín á 40 leiki, síđan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn
IA Ólafur Ásgrímsson og IA Ríkharđur Sveinsson (rz@itn.is / s.772 2990)
Ađalverđlaun
- 1. sćti kr. 80.000
- 2. sćti kr. 40.000
- 3. sćti kr. 20.000
Stigaverđlaun
- Besta frammistađa miđađ viđ eigin stig (rating performance eigin stig) kr. 10.000.
- U2000 og U1800 kr. 10.000.
- U1600, U1400, U1200, stigalausir bókaverđlaun.
Fide stig gilda viđ úthlutun stigaverđlauna (íslensk stig til vara). Hver keppandi getur ađeins hlotiđ ein aukaverđlaun (ofangreind röđ verđlauna gildir).
Ţátttökugjöld (greiđist međ reiđufé viđ upphaf móts).
kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.
Skráningarform
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2018 og hlýtur sá keppandi sem verđur efstur ţeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eđa eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varđveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson.
Verđi keppendur jafnir ađ vinningum í ţremur efstu sćtunum, verđur verđlaunum skipt (Hort-kerfi), en stigaútreikningur (tiebreaks) látinn skera úr um lokaröđ. Í öđrum verđlaunaflokkum ganga verđlaun óskipt til ţess sem hefur flest stig eftir stigaútreikning. Röđ stigaútreiknings: 1. Innbyrđis úrslit 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz (median) 4. Sonneborn-Berger.
Skákţing Reykjavíkur er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga. Skákir mótsins verđa slegnar inn og birtar á pgn formi.
Vinsamlegast mćtiđ tímanlega á skákstađ til ađ stađfesta skráningu og greiđa ţátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, ţ.e. kl. 19:15.
Spil og leikir | Breytt 8.1.2018 kl. 19:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2018 | 16:43
Hollenskur sigur á gríđarlega vönduđu minningarmóti um Steinţór
Skáksamband Íslands og Skákskóli Íslands stóđu í sameiningu fyrir minningarmóti um Steinţór Baldursson dagana 4.-7. janúar. Mótiđ var haldiđ í Stúkunni viđ Kópavogsvöll. Um var ađ rćđa unglingaskákmót fyrir tuttugu ára og yngri. Mótiđ var sannarlega í samrćmi viđ hugsjónir Steinţórs enda var unga kynslóđin, grasrótin og framtíđin honum einkar hugleikin. Alls tóku 24 skákmenn ţátt í mótinu. Ţar af voru ţrettán íslenskir og ellefu erlendir skákmenn sem komu frá fjórum löndum.
Mótiđ var sett 4. janúar. Mikill fjöldi fólks var viđstaddur og mátti ţar sjá flesta helstu forsvarsmenn skákhreyfingarinnar, gamla samstarfsfélaga, vini og ekki síst fjölskyldu Steinţórs. Gunnar Björnsson, forseti Skáksamband Íslands, hélt stutta rćđu ţar sem Steinţórs var minnst og fariđ yfir alltof stuttan feril (en árangursríkan) hans í skákhreyfingunni.
Móđir Steinţórs, Arndís Ármann Steinţórsdóttir, hélt einnig rćđu og sýndi međal annars viđurkenningu sem Steinţór fékk áriđ 1977 fyrir ađ gera jafntefli viđ Hort í fjöltefli í Valhúsaskóla, undirritađa af Einari S. Einarssyni, ţáverandi forseta SÍ. Ţađ fylgdi sögunni ađ viđurkenningin hefđi ávallt veriđ Steinţóri hjartfólgin og hangiđ upp á vegg í herbergi hans alla tíđ.
Ađ ţessu loknu lék Felix, sonur Steinţórs, fyrsta leik mótsins, 1. d2-d4, fyrir Alexander Oliver Mai gegn stigahćsta keppenda mótsins, Hollendingnum, Thomasi Beerdsen.
Ađ lokinni setningu mótsins var gestum og gangandi bođiđ í súpu og brauđ í bođi mótshaldara. Stóđu ţar vaktina ţau Birna Halldórsdóttir og Ólafur S. Ásgrímsson međ miklum myndarskap.
Thomas ţessi reyndist bestur allra og sigrađi á mótinu. Hann hlaut 6 vinninga og var taplaus. Tefldi af öryggi og vann flesta andstćđinga sína örugglega og fljótt. Annar varđ Lettinn Aleksandrs Jazdanovs međ 5˝ vinning. Ţriđji varđ annar Hollendingur Tycho Dijkhuis (2402) međ 5 vinninga. Bárđur Örn Birkisson tók svo síđustu peningaverđlaunin en hann varđ fjórđi međ 4˝ vinning. Mun hann ćtla ađ fjárfesta í nýjum buxum fyrir ţau!
Símon Ţórhallsson, Alexander Oliver Mai, Gauti Páll Jónsson, Oliver Aron Jóhannesson og Dagur Ragnarsson hlutu 4 vinninga.
Steinţórsmótiđ nú er fyrsta alţjóđlega unglingamótiđ sem haldiđ er á Íslandi um langt árabil. Mikil eftirspurn er eftir slíku mótshaldi og vonandi verđur framhald á ţví. Ţađ er afar mikilvćgt fyrir skákmenn framtíđarinnar ađ fá tćkifćri til ađ tefla oftar viđ erlenda skákmenn í stađ ţess ađ tefla sífellt viđ sömu andstćđinga sí og ć. Íslensku skákmennirnir gerđu margir hverjir gott mót.
Taflmennskan var ströng en tefldar voru tvćr skákir alla daga nema lokadaginn. Ungum skákmönnum finnst ekkert tiltöku mál ađ tefla tvćr skákir á dag, ţótt sumir hinna eldri séu minna hrifnir af slíku álagi!
Birkir Ísak Jóhannsson hćkkađi mest íslensku skákmannanna ađ stigum (+37). Nćstir voru Bárđur (+36), Símon (+24), Óskar Víkingur Davíđsson (+17), Benedikt Briem (+17) og Alexander Oliver (+11).
Lokahóf mótsins var svo haldiđ á sunnudeginum. Birna og Ólafur buđu upp á íslenskt lambakjöt fyrir keppendur og ađra gesti sem heldur betur sló í gegn.
Gunnar Björnsson, forseti SÍ, og Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, afhentu verđlaun mótsins. Sigurvegari mótsins fékk í verđlaun íslenskt hraun og var dolfallinn yfir ţessum verđlaunagrip sem honum fannst greinilega miklu merkilegri en "enn einn bikarinn".
Mótshaldiđ var ţeim sem ţetta ritar ákaflega minnisstćtt. Velviljinn var svo bersýnilegur. Ţakkir fá sérstakar bćđi Landsbankinn og Kvika banki en Steinţór vann á báđum stöđum. Án stuđnings ţessara fyrirtćkja hefđi mótshaldiđ ekki veriđ mögulegt. Ađ minnsta kosti ekki jafn gríđarlega vandađ! Sérstakar ţakkir fá ţeir Hannes Frímann (Kviku) og Árni Ţór (Landsbankanum).
Ekki vantađi vilja skákstjóra viđ ađ vinna viđ mótiđ enda flestir gamlir félagar Steinţórs og margir minnast Tromsöf-erđlagsins međ miklum hlýhug. Róbert Lagerman, Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Omar Salama, Kristján Örn Elíasson og Hörđur Jónasson stóđu öll vaktina.
Auk mín skipuđu Helgi Ólafsson og Stefán Bergsson mótsstjórn. Óskar Long Einarsson og Ţorsteinn Stefánsson reyndust óţreytandi viđ alls konar reddingar og stúss. Ásdís Bragadóttir, framkvćmdastjóri Skáksambands Íslands, vann mikiđ starf og var eins og svo oft áđur manneskjan bakviđ tjöldin viđ framkvćmd mótsins.
Gríđarlega vandađ.
Gunnar Björnsson.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2018 | 07:00
Skákţing Akureyrar hefst 14. janúar
Skákţing Akureyrar, hiđ 80. í röđinni hefst nk. sunnudag 14. janúar.
Teflt verđur í Skákheimilinu í Íţróttahöllinni viđ Skólastíg.
Dagskrá:
- umferđ sunnudaginn 14. janúar kl. 13.00
- umferđ fimmtudaginn 18. janúar kl. 18.00
- umferđ sunnudaginn 21. janúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 28. janúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 4. febrúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 11. febrúar kl. 13.00
- umferđ sunnudaginn 18. febrúar kl. 13.00
Öllum er heimil ţátttaka í mótinu.
Tefldar verđa 7 umferđir skv. svissnesku kerfi. *
Sigurvegar mótsins hreppir heiđurstitilinn: **
Skákmeistari Akureyrar 2018
Umhugsunartími verđur 90 mínútur á skákina, auk ţess sem 30 sekúndur bćtast viđ tímann fyrir hvern leik (90+30).
Ţátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir ađra. Ţátttaka er ókeypis fyrir ţá unglinga sem greitt hafa ćfingagjald.
Mótiđ verđur reiknađ til íslenskra og alţjóđlegra skákstiga.
Verđlaun:
- sćti kr. 20.000
- sćti kr. 14.000
- sćti kr. 8.000
stigaverđlaun (1799 stig og minna) kr. 8.000
Skráning er hjá skákstjóra í netfangiđ askell@simnet.is eđa á facebook-síđu Skákfélags Akureyrar.
Einnig er hćgt ađ skrá sig á skákstađ eigi síđar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferđar.
* Mótsstjórn áskilur sér rétt til ţess ađ gera breytingar á fjölda umferđa ţegar endanlegur ţátttakendalisti liggur fyrir. Ákvörđun um fyrirkomulag verđur tilkynnt keppendum fyrir upphaf fyrstu umferđar.
** Skákmeistari Akureyrar getur ađeins sá orđiđ sem er búsettur á Akureyri og/eđa er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.
Spil og leikir | Breytt 8.1.2018 kl. 08:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.7.): 1
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 131
- Frá upphafi: 8778743
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar