Fćrsluflokkur: Spil og leikir
17.6.2015 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Glćsileg leikflétta Friđriks
Stórmeistararnir Friđrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson taka ásamt fjölmögum íslenskum skákmönnum ţátt í opnu alţjóđlegu móti sem, fram fer á eyjunni Sardiníu. Ţetta mót er liđur í ţeirra í undirbúningi fyrir Evrópumót landsliđa sem fram fer í Reykjavík í haust en eins og fram hefur hefur komiđ fram teflir Ísland fram gullaldarliđi í keppninni en ađrir í ţeirri sveit eru Jón L. Árnason og greinarhöfundur. Eftir ţrjár umferđir höfđu Friđrik og Jóhann hlotiđ 2˝ vinning og voru í 6.- 12. sćti, Margeir Pétursson var međ 1˝ vinning en hvađ varđar ađra íslenska keppendur má geta frábćrrar frammistöđu hins unga Heimis Páls Ragnarsson sem er međ 2˝ vinning eins og Stefán Bergsson. Međ 2 vinninga eru Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Óskar Víkingur Davíđsson, Áskell Örn Kárason og Gunnar Björnsson. Alls taka 124 skákmenn ţátt í mótinu, ţar af 16 Íslendingar. Tvćr umferđir voru á dagskrá í gćr en tefldar verđa níu umferđir og lýkur mótinu um helgina.
Sigurskák Friđriks yfir Ţjóđverjanum Schaefer í 3. umferđ sem fram á mánudaginn vakti talsverđa athygli fyrir skemmtileg tilţrif Friđriks sem lagđi andstćđing sinn ađ velli međ snarpri atlögu. Friđrik, sem var ţekktur fyrir ađ leggjast djúpt í stöđurnar ţannig ađ jafnvel fyrsti leikur hans og gat kostađ drjúgan tíma á klukkunni, teflir mun hrađar í dag og sparar ţannig orkuna. Hann lendir yfirleitt ekki í tímahraki en stíllinn er dínamískur sem fyrr:
Friđrik Ólafsson Michael Schaefer (Ţýskaland)
Drottningarbragđ
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 7. Bh4 O-O 7. e3 Re4
Afbrigđi sem kennt er viđ Emanuel Lasker sem var heimsmeistari frá 1896-1921. Hér er algengast ađ leika 8. Bxe7 en Friđrik sneiđir hjá alfaraleiđum.
8. Bg3 c5 9. Bd3 cxd4 10. Rxd4 Rxg3 11. hxg3 Rc6 12. cxd5 Rxd4 13. exd4 exd5 14. Bc2 He8 15. Kf1!
Til greina kom ađ hrókera stutt en Friđrik vildi hafa hrókinn til taks á h-línunni. Ţađ á eftir ađ koma sér vel.
15. ... Bf8
Til ađ svara 16. Dd3 en hvítur beinir nú spjótum sínum ađ d5-peđinu.
16. Df3 Be6 17. Bb3 Db6?
Betra var 17. ... Dd6 og eftir 18. Rxd5 Had8 o.s.frv.
18. Rxd5 Da5?
18. ... Dxd4 er svarađ međ 19. Rc7 en betra var 18. .... Db5+.
19. Hh5!
Ţar kom hrókurinn í spiliđ og hótar nú 20. Rf6+ međ drottningarvinningi.
19. ... Da6+ 20. Kg1 Hac8 21. He5 Hed8 22. Hae1 Hd7
Hyggst auka ţrýstinginn á d-línunni en er of seinn.
Ekki dugar 25. ... Dxe6 vegna 26. Rf6+! og vinnur.
25. Kh2 Df1
Hótar máti á h1 en Friđrik var búinn ađ sjá ţetta fyrir.
Línurof.
26. ... Dxe1 27. Re7+ Kh7 28. Df5+! Kh8 29. Dxf8+Kh7 30. Dg8 mát.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 10. júní
Spil og leikir | Breytt 12.6.2015 kl. 08:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 11:52
Heimsmeistarinn féll á tíma međ unniđ tafl gegn Topalov
Augnablikiđ ţegar Magnusi er ljós ađ hann sé fallinn á tíma.
Fyrsta umferđ Norway Chess hófst í gćr í Stafangri. Stćrstu tíđindi mótsins verđa ađ teljast ađ heimsmeistarinn sjálfur, Magnus Carlsen, tapađi eftir ađ hafa falliđ á tíma eftir 60 leiki. Magnus gerđi ráđ fyrir ađ fá viđbótartíma eftir 60 leiki en slíkt var ekki til stađar. Yfirdómari mótsins fór yfir reglurnar viđ upphaf umferđar ţar sem allir voru mćttir nema Magnus. Ţurfti t.d. Garry Kasaprov, sem lék fyrsta leik mótsins, ađ bíđa í nokkurn tíma.
Heimsmeistarinn var alls kostar ekki sáttur. Sagđi mótshaldara ekki hafa kynnt tímamörkin nógu vel en ţau er ekki hefđubundin á toppskákmótum ţar sem yfirleitt er viđbótartími eftir 60 leiki. Hann mćtti ţó í viđtöl ađ skák lokinni.
Carlsen: "Even if I had been present at the start of the game where it was announced, not sure I'd hear it. Would be in my own world anyway"
Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) June 16, 2015
Fram hefur ţó komiđ ađ tímamörkin hafi komiđ fram í sérstöku upplýsingablađi til keppenda.
Fjörlega var teflt í umferđinni. Giri vann Grischuk, Nakamura sigrađi Hammmer og Vachier-Lagrave hafđi getur gegn Aronian. Anand og Caruana gerđu jafntefli.
Um kvöldiđ fór brunavarnarkerfiđ í gang í hótelinu. Carlsen hafđi húmor fyrir sjálfum sér og tísti:
Fire alarm went off at the hotel. Not my fault
Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) June 16, 2015
Önnur umferđ hefst kl. 14. Ţá mćtast međal annars Caruana-Carlsen og Topalov-Nakamura.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14)
- Beinar útsendingar (norska)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 00:01
Teflt viđ útitafliđ í dag
Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir fjöltefli viđ skákmeistara viđ útitafliđ á Bernhöftstorfu á milli 14 og 17.gestir og geta teflt sín á milli. Skákmeistarinn Björn Ívar Karlsson, skákmeistari, mun tefla viđ gesti og gagnandi sem eru hvattir til ađ fjölmenna!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2015 | 18:36
Frú Sigurlaug sem Einar Hjalti tefldi fyrir sigrađi í Mjóddarmótinu
Einar Hjalti Jensson sem tefldi fyrir Frú Sigurlaugu sigrađi međ 6v af sjö mögulegum á Mjóddarmótinu sem fram fór laugardaginn 13. júní. sl. Ţetta var annađ áriđ í röđ sem ţetta föruneyti hafđi sigur í mótin, sem er nokkuđ merkilegt fyrir ţćr sakir ađ keppendur draga um fyrirtćki. Annar varđ Davíđ Kjartansson sem tefldi fyrir Sorpu međ 5,5v. Siđan komu fjórir skákmenn jafnir međ 5v en ţađ voru Oliver Aron Jóhannesson sem tefldi fyrir GM Einarsson múrarameistra, Dagur Ragnarsson sem tefldi fyrir Kaupfélag Skagfirđinga, Helgi Brynjarsson sem tefldi bara fyrir sjálfan sig ţar hann kom ađeins of seint til ađ draga og Kjartan Maack sem tefldi fyrir Ökuskólann í Mjódd.
29 skákmađur tók ţátt sem er minnsta ţátttaka frá hruni. Mótiđ var hins vegar eins og ávalt međ sterkari hrađskákmótum sem eru haldin eru hér landi. Mótiđ fór vel fram og komu engin ágreiningsefni upp ţótt ţrjár klukkur biluđu í hita leiksins. Úrslit réđust svo ekki fyrr en í lokaumferđinni eins og vera ber. Ađstćđur á skákstađ voru nokkuđ erfiđar ţar sem sólin skein allan tímann og ţađ bjart var í göngugötunni ađ í fyrsta skipti ekki hćgt ađ notast viđ skjávarpann, síđan Monradspjöldin voru aflögđ. Skákstjóri greip ţví til ţess ráđs ađ lesa upp pörun hverrar umferđar og gekk mótiđ ágćtlega upp međ ţví móti.
Lokastađan á Mjóddarmótinu:
Röđ Nafn Vinn. M-Buch.
- Frú Sigurlaug, Einar Hjalti Jensson, 6v, 22.,5
- Sorpa, Davíđ Kjartansson, 5,5v, 23.0
- GM Einarsson, Oliver Aron Jóhannesson, 5v, 23
- Kaupfélag Skagfirđinga, Dagur Ragnrsson, 5v, 20.0
- Helgi Brynjarsson, 5v, 20
- Ökuskólinn i Mjódd, Kjartan Maack, 5v, 18.0
- Valitor, Bárđur Örn Birkisson, 4,5, 20.0
- Talnakönnun, Örn Leó Jóhannsson, 4v, 22.0
- Arion Banki, Gauti Páll Jónsson, 4v, 21.0
- Suzuki bílar, Gylfi Ţórhallsson, 4v, 20.5
- Ţorsteinn Gauti Sigurđsson, 4v, 19.5
- Gámaţónustan, Guđmundur Gíslason, 4v, 16,5
- ÍTR, Eiríkur Björnsson, 4v, 16.0
- Efling stéttarfélag, Hallgerđur Helga Ţorsteinsd., 4v, 15,5
- HS Orka, Björn Hólm Birkisson, 4v, 14.5
- Landsbanki Íslands,Ţór Valtýsson, 3,5v, 20.5
- BV 60, Halldór Pálsson, 3,5v, 15.0
- Gunnar Nikulásson, 3v, 20.5
- Sigurđur Freyr Jónatansson, 3v, 18.5
- Nettó í Mjódd, Óskar Haraldsson, 3v, 16.5
- Finnur Kr. Finnsson, 3v, 15.5
- Íslandspóstur, Sigurđur Ingason, 3v, 15.0
- Íslandsbanki, Jón Úlfljótsson, 2.5v, 17.5
- Jón Víglundsson, 2.5v, 16.0
- Gunnar Friđrik Ingibergsson, 2,5v, 15.5
- Hjálmar Hrafn Sigurvaldason, 2,5v, 15.5
- Freyja Birkisdóttir, 2v, 14.0
- Pétur Jóhannesson, 1,5, 14,5
- Björgvin Krisbergsson, 1,5v, 14.0
16.6.2015 | 16:22
Björn Jónsson endurkjörinn formađur TR
Björn Jónsson var endurkjörinn formađur Taflfélags Reykjavíkur á ađalfundi félagsins sem fór fram fyrr í gćrkvöldi. Međstjórnendur voru kosnir Bragi Thoroddsen, Gauti Páll Jónsson, Kjartan Maack, Omar Salama, Ríkharđur Sveinsson og Ţórir Benediktsson. Varastjórn skipa Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir, Eiríkur K. Björnsson, Torfi Leósson og Birkir Bárđarson. Úr stjórn gengu Ţröstur Olaf Sigurjónsson og Áslaug Kristinsdóttir og ţakkar félagiđ ţeim fyrir vel unnin störf.
16.6.2015 | 14:21
Norway Chess mótiđ rétt nýhafiđ
Ofurmótiđ í Stafangri í Noregi, Norway Chess, hófst kl. 14. Međal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heims. Magnus Carlsen (2876), Caruana (2805), Anand (2803) og Nakamura (2802).
Carlsen og Topalov tefla saman í fyrstu umferđ. Hćgt er ađ fylgjast međ öllum herlegheitunum í beinni útsendingu.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14)
- Beinar útsendingar (norska)
16.6.2015 | 14:11
Hannes í beinni frá Teplice
Hannes Hlífar Stefánsson (2580) og Lenka Ptácníková (2307) eru bćđi međal keppenda á Teplice-mótinu í Tékklandi. Hannes Hlífar hefur 2,5 vinning en Lenka hefur 2 vinninga.
Hannes er í beinni frá fjórđu umferđ sem er nýhafin. Ţar teflir hann viđ alţjóđlega meistarann Sebastian Plischki (2395).
Árangur ţeirra á mótinu má nálgast á Chess-Results.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14)
- Chess-Results
16.6.2015 | 11:51
Teflt viđ útitafliđ á morgun - 17. júní
Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir fjöltefli viđ skákmeistara viđ útitafliđ á Bernhöftstorfu og gestir geta teflt sín á milli. Skákmeistarinn Björn Ívar Karlsson, skákmeistari, mun tefla viđ gesti og gagnandi sem eru hvattir til ađ fjölmenna!
Tafliđ fer fram á milli 14 og 17.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2015 | 07:46
Riddarinn - teflt á ţriđjudegi (í dag) ađ ţessu sinni
Riddarar reitađa borđsins láta ekki reglubundnar skákvćringar sínar falla niđur enda ţótt ţjóđhátíđardagurinn setji strik í reikninginn međ ţví ađ vera í miđri viku. Ţessvegna verđur blásiđ til sóknar og varnar á ţriđjudegi í ţetta sinn og efnt til veislukaffis til hátíđarbrigđa.
Spennu- og gamanmyndin HRÚTAR sem vann til verđlauna í Cannes nýveriđ lýsir vel átökum tveggja sauđfjárbćnda og brćđra í Bárđardal sem talast ekki viđ frekar en skákmenn ađ tafli. Ţar leika hrútar ađalhlutverkin auk stórleikaranna Sigga Sigurjóns og Tedda Júl sem fara á kostum.
Á skákborđinu stangast menn líka á ţó međ ólíkum hćtti sé og láta ekki deigan síga ţó sumar sé. Djúpt innsći og heildstćtt stöđumat og hugsun er ţó ţađ sem gildir og rćđur úrslitum.
Í síđustu viku var metţátttaka í Vonarhöfn skáksal Riddararns í skjóli Hafnarfjarđarkirkju. Aldrei hefur mótiđ unnist á svo lágu vinningshlutfalli fyrr eđa ađeins međ 7.5 vinningi af 11 mögulegum sem segir og sýnir ađ baráttan á borđinu hefur veriđ feikihörđ. Allir skyldu ţó sćmilega sáttir á yfirborđinu. Hér má sjá lćrdómsríkt sýnishorn af taflmennsku dagsins:
Svo fylgir mótstaflan međ líka međ hér ađ neđan til frekari upplýsingar. Muniđ ađ tvíklikka á myndir til ađ sjá ţćr í HD, bćđi stćrri og skýrari, og klikkiđ svo ekki á ţví ađ mćta til tafls ţeir sem hafa aldur til.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2015 | 09:58
Sjö íslenskir verđlaunahafar!
Ţađ gekk sérlega vel hjá íslensku sendinefndinni í Portu Mannu í Sardiníu en mótinu lauk í gćr. Alls hömpuđu sjö Íslendingar verđlaunum!
Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Friđrik Ólafsson urđu efstir Íslendinganna í 4.-14. sćti međ 6 vinninga. Jóhann varđ hćstur ţeirra eftir stigaútreikning og hlaut 6. sćtiđ.
Áskell Örn Kárason, Veronika og yđar einlćgur urđu í 15.-28. sćti međ 5,5 vinning. Ég varđ efstur í flokki skákmanna međ minna en 2100 skákstig og Veronika önnur. Veronika varđ svo efst í u1800 flokknum.
Ţorsteinn Magnússon varđ annar í u1500 flokknum og Heimir Páll Ragnarsson varđ annar í unglingaflokki.
Íslendingar fengu tvö af ţremur verđlaunum í flokki skákmanna 60 ára og eldri. Áskell varđ ţriđji og Friđrik annar. Ţýski stórmeistarinn Lothar Vogt tók gulliđ sjónarmun á undan Friđriki eftir stigaútreiknng.
Yuri Garret, ađalskipuleggjandi mótsins, ţakkađi íslensku sendisveitinni sérstaklega fyrir komuna og nefndi hversu ánćgjulegt ţađ hefđi veriđ ađ fá ţessar ţrjár gođsagnir í mótiđ. Fékk hann Friđrik upp til ađ afhenda sérstök afreksverđlaun fyrir tvo unga Ítali. Friđik hélt stutta tölu og ţakkađi Yuri fyrir frábćrt mótshald.
Íslendingar almennt mokuđu inn stigum. Í fljótu bragđi sýnist mér allir nema titilhafarnir hćkka á stigum. Engin ţó meira en Veronika og Heimir sem tóku inn 121 og 120 skákstig!
Konstantin Landa sigrađi á mótinu. Varđ efstur ásamt Sabino Brunello en vann mótiđ á stigum.
Leikur mótsins
Áskell Örn Kárason átti án efa einn allra merkilegasta leik mótsins. Í nćstsíđustu umferđin lék hann 38...Ba6+ sem vann skákina ţegar í stađ. Ţegar Áskell kom heim uppgötvađi hann ađ á a6 hefđi átt ađ vera svart peđ sem ađ einhverjum ástćđum hafđi fćrst til á a7! Leikurinn var ţví kolólöglegur! Ţađ breytti ţví ţó ekki ađ stađa Áskels var kolunnin.
Ég sjálfur
Ég sjálfur tók ţátt í mótinu eins og í fyrra. Mér gekk mun betur nú en ţá og tek inn 30 stig fyrir frammistöđuna. Ég hef ađ ég held aldrei haft jafn gaman ađ ţví tefla og nú.
Ég undirbjó mig fyrir hverja einustu skák (nema fyrir fyrstu umferđ), sem ég hef lítt sinnt í gegnum tíđina, og ávallt nema einu sinni nýttist undirbúningurinn á einhvern hátt. Síđustu skákina gegn David Spence (2248) vann ég á eldhúsborđinu (frekar borđinu á veröndinni). Fórnađi drottningu međ svörtu í áttunda leik og vann skákina í 26 leikjum.
Allar mínar skákir voru tefldar í botn nema eitt stutt jafntefli á tvöfalda deginum.
Ađstćđur
Allar ađstćđur á skákstađ voru til fyrirmyndar. Flott skáksett, dúkuđ borđ, vatnsvél, loftrćsting og góđir skákstjórar. Allt gert til ađ skákmönnunum liđi vel.
Eina sem mér fannst mega gera betur var ađ birta pörun fyrr. Ítalirnir klárađu umferđina og fóru svo ađ borđa. Ađ ţví loknu var parađ! Íslendingar myndu para fyrst og borđa svo!
Yuri Garret og hans liđ stóđ sig frábćrlega
Ađ loknu
Íslendingarnir voru gríđarlega ánćgđir međ mótiđ og allir skemmtu sér vel. Krakkarnir höfđu gríđarlega gaman ađ ţví ađ hafa gođsagnirnar ţrjár međ. Ţeir sinntu krökkunum vel og fóru stundum yfir skákirnar međ ţeim.
Óhćtt er ađ mćla međ ţessu móti fyrir íslenska skákmenn. Einkar fjölskylduvćnar ađstćđur til stađar.
Ég og mitt fólk stefnir ótrautt á ţátttöku ađ ári!
Gunnar Björnsson
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 4
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 132
- Frá upphafi: 8779210
Annađ
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 91
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar